Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson826
Myndin var tekin á toppi Spákonufells klukkan 23:56 þann 21. júní 2009 á lengsta degi ársins, sólstöðunum. Þá sest sólin ekki heldur fer niður að sjávarfletinum um miðnættið og síðan hækkar hún sig aftur í rólegheitum. Eins og sjá má á myndinni var nepja á toppnum og skýjað en sást þó til sólar annað slagið. Bak við vörðuna eru Jón Ólafur Sigurjónsson til vinstri og Þráinn Bessi Gunnarsson til hæggri. Konan í bláu úlpunni er Guðrún Pálsdóttir en sú með rauða bakpokann í höndunum er Herdís Jakobsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 022
Krakkar að leik við jólatréð á leikskólanum Barnaból á þrettándanum 1977. Frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og Guðmundur Rúnar ?. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1020
Þorrablótið 2012 var haldið 4. febrúar í Fellsborg. Á þessari mynd eru Magnús B. Jónsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri að lesa innganginn að næsta atriði á sviðinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1107
Bjarni Helgason (d. 30.12.1983) kemur úr grásleppuróðri með sel í farteskinu. Bjarni var löngum kenndur við bát sinn og kallaður Bjarni á Stíganda. Eftir að hann seldi Stíganda Hu 9 gerði hann út á grásleppu á minni bátum, fyrst á Blíðfara Hu 17 og síðan á trillunni Albert. Báturinn sem Bjarni er í á myndinni er líklega Blíðfari. Þeir sem eru að aðstoða hann við að landa selnum eru, um borð í trillunni: sonur hans Helgi Bjarnason (d.1.3.2007) næstur okkur, þá Kristmundur Ingibjörnsson í miðið og annar sonur Bjarna, Skúli Bjarnason lengst frá okkur. Um borð í stóra bátnum (líklega Stíganda Hu 9) er Guðmundur J. Björnsson og óþekktur. Myndina tók Þórarinn Björnsson (d.24.5.1985) líklega kringum 1965.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1210
Fannar Viggósson við sorptroðara á urðunarstaðnum í Stekkjarvík í janúar 2011.
Ólafur Bernódusson925
Vinkonurnar Bára Þorvaldsdóttir til vinstri og Guðrún Sigurðardóttir til hægri á kunnuglegum slóðum í Hólaneskirkju. Báðar hafa þær sungið í kór kirkjunnar í áratugi. Myndin var tekin 15. maí 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1409
Ólafur Bernódusson til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson til hægri að skera hákarl í kar til kæsingar. Myndin var tekin 6. maí 2011 þannig að hákarlinn hefur líklega verið tilbúinn til átu einhverntíma nálægt jólum það ár.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 215
Friðmar Kári Eiríksson bjartsýnn í vinnuskólanum í júní 2014.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 156
Þessi prúðbúna kona er Þuríður Jakobsdóttir (d. 10.7.1965) frá Brautarholti.
Ólafur Bernódusson928
15. maí 2008 voru haldir styrktartónleikar í Hólaneskirkju til styrktar Jóni Gunnari Einarssonar sem slasaðist illa í bifhjólaslysi nokkru fyrr. Á myndinni syngur Angela Maria Bosombrio við undirleik Hans Birgis Högnasonar.
Ólafur Bernódusson823
Sumarið 2010 fylltist höfnin á Skagaströnd skyndilega af sandsíli og Makríl sem gæddi sér á sílunum. Makríllinn var svo gráðugur að hægt var að veiða hann nánast á bera króka. Þetta nýtti Karl Olsen sér og veiddi hvern fiskinn af öðrum í frístundum sínum. Þessi mynd var tekin af Karli 12. júlí með einn á. Makríllinn hvarf svo úr höfninni nokkrum dögum seinna, jafn skyndilega og hann kom.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 214 - Copy
Myndin var tekin um miðjan júlí 2012 þar sem karlarnir eru að spjalla. Þeir eru frá vinstri: Sigurjón Ingólfsson, Sigurður Björnsson, Gísli Snorrason og Hjörtur Guðbjartsson. Gísli á bátinn á myndinni en Sigurður koma að smíði hans með föður sínum. Hjörtur og Sigurjón vinna með Gísla á Vélaverkstæði Skagastrandar.
Séra Pétur og Dómhildur - safn195
Fermingarbörn vorið 1974 í Hólaneskirkju eldri ásamt prestinum séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Fermingarbörnin eru frá vinstri: Stefán Þór Árnason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Þorgeir Haukdal Jónsson, óþekktur, Vigdís Viggósdóttir, Þórdís Sigurðardóttir, Kristinn Guðmundsson, óþekkt, óþekkt, Sigurjón Ingólfsson (fjær), Sigurður Guðmundsson (nær) og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu fermingarbörnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hrefna Jóhannesdóttir021
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Aftan á þessa mynd er ritað nafnið "Gísli Þorbergsson" en hann var móðurbróðir Hrefnu. Ekki er vitað hvert barnið er. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 374
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005. Sveinn Hallgrímsson er næstur okkur en aftan við hann krýpur Anita Ósk Ragnarsdóttir. Lengst til hægri er Carl Erik Lehman Jakobsen íþróttakennari. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson977
Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna eða SH var stofnað í febrúar 1942. 1992 hélt SH upp á 50 ára afmæli sitt með því að bjóða starfsfólki hraðfrystihúsanna, sem mynduðu sölumiðstöðina, til kaffiveislu. Þessi mynd var tekin í veislunni í kaffistofu Hólaness hf. Steindór R. Haraldsson til vinstri afgreiðir fólk með kaffibrauð en hann sá um veisluna fyrir Hólanes hf. Í biðröðinni eru frá vinstri: Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Ingibjörg Dúna Skúladóttir, Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi), Magnús Guðmannsson, óþekkt, Signý Magnúsdóttir (d. 7.4.2016) og Gylfi Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson 2 716
Víðavangshlaup umf. Fram var haldið í maí 2001. Á myndinni er fólk að bíða eftir hlaupurum að koma í mark. Fullorðna fólkið er frá vinstri: Birna Sveinsdóttir, Slavko Velemir, Karitas Pálsdóttir, óþekktur, Ágúst Ómarsson, Jón Sveinsson, Kristín Blöndal, óþekktur, Sigþrúður Magnúsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Guðný Björnsdóttir, Einar Karlsson og Hjörtur Guðmundsson. Börnin eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson870
Systkinin Ólafur Bernódusson, Halla Björg Bernódusdóttir og Þórunn Bernódusdóttir á slóðum forfeðra sinna í Kúvíkum á Ströndum í júlí 2007. Faðir þeirra Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) fæddist í Kúvíkum 17. mars 1919
Árni Geir Ingvarsson - safn 12000
Rómantísk mynd af hjónunum Árna Geir Ingvarssyni og Herdísi Jakobsdóttur í útilegu á óþekktum stað 23. júlí 2010.
Ólafur Bernódusson812
Ólafur Bernódusson smakkar á hákarli í hjallinum sínum um miðjan júlí 2008. Dóttir hans Hólmfríður Anna Ólafsdóttir Martel fylgist vantrúuð með ásamt manni sínum Kristen James Martel. Í baksýn eru nokkrar beitur hangandi á rám.
Séra Pétur og Dómhildur - safn204
Halldóra Bjarnadóttir fæddist 14 október 1873 að Ási í Vatnsdal en dó á Blönduósi 28. nóvember 1981 þá ný orðin 108 ára gömul. Í tíu ár var hún skólastjóri Barnaskólans á Akureyri og sagt er að allan þann tíma var hún aðeins fjarverandi í eina viku vegna veikinda. Seinna kenndi hún í átta ár við Kennaraskólann. Hún var í fararbroddi í jafnréttisbaráttu kvenna allt til dauðadags, ritstýrði tímaritinu Hlín í 44 ár og gaf það út. Auk þessa ferðaðist Halldóra um landið og kenndi og fjallaði um tó- og handavinnu. Myndin af Halldóru var tekin 16. janúar 1971 þegar hún hélt þakkarræðu við það tækifæri að henni var veitt stórriddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu. Áður, 1931, hafði hún fengið riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu. Síðustu 26 ár æfinnar bjó Halldóra á Sjúkra- og elliheimilinu á Blönduósi en hélt áfram störfum sínum sem ritstjóri Hlínar ásamt ýmsu öðru. .
Séra Pétur og Dómhildur - safn192
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) með fermingarbarni sínu Sigurði Jónssyni á fermingardaginn 29. apríl 1979 í Hólaneskirkju eldri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1182
Vinkonurnar og nágrannarnir Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý) til vinstri og Guðný Finnsdóttir (Gígja) til hægri á rölti í byrjun júní 2010.
Helga Berndsen 095
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin af þessum þremur herramönnum á tröppunum á Karlsskála.<br>Á henni eru, frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995) frá Karlsskála, Þórður Jónsson (d.25.12.2010) úr Skjaldbreið og Helgi Björnsson frá Efri-Læk. Karl og Helgi voru systkinasynir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1066
Eðvarð Hallgrímsson smiður og athafnamaður til vinstri spjallar við Fritz Hendrik Berndsen framkvæmdastjóra Hertz bílaleigunnar framan við gamla mynd frá síldarárunum á Skagaströnd. Myndin af þeim félögum var tekin í ágúst 2010.
Ólafur Bernódusson963
Fólkið á myndinni er að fylgjast með hátíðahöldum sjómannadagsins við höfnina 6. júní 2009. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Bjarni Jónasson og kona hans Guðrún Brynleifsdóttir
Helga Berndsen 026
Fólk að slappa af og láta sér líða vel í sumarhúsi í Borgarfirði sumarið 1991. Frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Adolf J. Berndsen, Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) og Sigríður Ólafsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1312
Ingólfur Eðvald Björnsson til vinstri og Magnús Sólberg Baldursson til hægri skoða listaverk 21. september 2012. Listaverkið var staðsett um tíma á Hnappstaðatúninu og þá var það upplýst innan frá. Listamaðurinn var dvalargestur hjá Nes listamiðstöð en nafnið er óþekkt.
Ólafur Bernódusson853
Á árshátíðum Höfðaskóla er sú hefð að kennarar skólans eru með síðasta atriðið á dagskránni. Þar fíflast kennararnir og gera yfirleitt grín að sjálfum sér. Þessi mynd af kennurunum var tekin á árshátíðinni 16. mars 2007 þegar þeir dönsuðu í "dansbúningum" fyrir áhorfendur. Frá vinstri: Dagný Rósa Úlfarsdóttir, Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri, Erna Berglind Hreinsdóttir, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir, óþekktur, Ólafur Bernódusson, Heiðrún Tryggvadóttir og óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 338
Óhöpp gera ekki boð á undan sér. Hér hefur karastæða með fiski hrunið á hafnarvigtinni í júlí 2012. Vilhjálmur Jónsson og óþekktur tína fiskinn aftur í körin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1060
Þau eru góð saman á þessri mynd frá 15. ágúst 2008 Sigríður Klingenberg og Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017). Myndin var tekin í Bjarmanesi á Kántrýdögum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1172
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970. Bryggjan sem báturinn liggur við var kölluð Litla bryggja og hún hallaði fram, sem var algengt með bryggjur á þeim tíma sem hún var gerð, til að auðvelda löndun úr bátum sem voru misjafnir á stærð. Báturinn á myndinni er Sigurður Jónsson Hu 18 sem Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri teiknaði og smíðaði. Var hann fyrstur af nokkrum bátum sem Björn smíðaði. Dorgararnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1267
Myndin var tekin 8. september 2012 í Kjalarlandsrétt af glöðu fólki við réttarstörf. Fólkið er: Árni Halldór Eðvarðsson til vinstri og svo feðginin Jakob Guðmundsson og Þórhildur Jakobsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 80
Ástrós Villa Vilhelmsdóttir stolt af nýju peysunni sinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1354
Myndin var tekin í samkomutjaldi á Hnappstaðatúni um miðjan ágúst 2012 á Kántrýdögum. BioPol bauð öllum sem vildu upp á fiskisúpu í tilefni hátíðarinnar. Á myndinni eru Halldór Gunnar Ólafsson til hægri og Bjarni Jónsson til vinstri að gefa einhverjum gesti að smakka á súpunni. Á sviðinu situr Leo Gillespie með gítarinn og flytur frumsamin lög.
Ólafur Bernódusson714
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni er Sigurður Aron Björnsson í hlutverki sínu í einhverju atriði á árshátíðinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1280
Félagar í slökkviliði Skagastrandar á æfingu í byrjun apríl 2012. Frá vinstri: Tryggvi Hlynsson, Ragnar Már Björnsson, Hilmar Árdal Eðvarðsson og Ingvar Gýgjar Sigurðsson.
Helga Berndsen 118
Konurnar á myndinni eru tengdar gegnum hjúskap. Hjördís Sigurðardóttir er til vinstri, Helga Berndsen í miðið og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir til hægri. Hjördís og Ingibjörg Fríða voru giftar bræðrum Helgu þeim Adolf J. Berndsen og Karli Berndsen (d.12.2.1995). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 369
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Degi Frey Róbertssyni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 371
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005. Á henni bíða nokkrir krakkar eftir að röðin komi að þeim. Frá vinstri í aftari röð: Jóna Margrét Sigurðardóttir, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Leifur Örn Ragnarsson, Sveinn Hallgrímsson og tveir óþekktir drengir. Í fremri röð eru Rannveig Magnúsdóttir og Harpa Hlín Ólafsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 322
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er Baldvin Hjaltason að koma fyrir útihurðinni á skálanum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 342
Kvenfélagskonur að undirbúa þorrablót í Fellsborg í febrúar 2012. Frá vinstri: Jóhanna Karlsdóttir, Áslaug Ottósdóttir, Þórlaug Arnardóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 010
Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir til vinstri og Hugrún Pálsdóttir til hægri í sandkassanum á leikskólanum Barnabóli sumarið 1977.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 291
Stelpurnar á myndinni eru að bíða utan við sundlaugina eftir að komast í sundkennslu í maí 2012. Stelpurnar eru frá vinstri: Guðrún Björgvinsdóttir, Arna Rún Arnarsdóttir, óþekkt, Freyja Dís Jóhannsdóttir og Hekla Guðrún Þrastardóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1359
Vinirnir Frímann Lúðvíksson til vinstri og Vilhjálmur Skaftason til hægri á Kántrýdögum á Skagaströnd um miðjan ágúst 2012.
Valdimar Viggósson [1]
Árið 1993 gaf Valdimar Viggósson, sem er hæfileikaríkur teiknari, út dagatal með skopmyndum af fólki á Skagaströnd sem hann hafði teiknað. Þessi mynd af Karli Berndsen (d.12.2.1995) í golfi prýddi októbermánuð á dagatalinu.
Ólafur Bernódusson927
15. maí 2008 voru haldir styrktartónleikar í Hólaneskirkju til styrktar Jóni Gunnari Einarssonar sem slasaðist illa í bifhjólaslysi nokkru fyrr. Á myndinni syngur hálfsystir Jóns, Ingibjörg María Reynisdóttir, við undirleik Hans Birgis Högnasonar til vinstri og Jóns Ólafs Sigurjónssonar til hægri.
Ólafur Bernódusson875
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst og er af lögreglumönnum utan við lögreglustöðina sem þeir smíðuðu. Eymundur Lórens Grétarsson er lengst til vinstri en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Hrefna Jóhannesdóttir011
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Daníel Davíðssyni Sauðárkrók einhverntíma á árunum 1902 - 1910. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 328
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er stund miklli stríða eftir að búið er að einangra skálann með glerull. Skíðaáhugamennirnir á myndinni eru Þorbjörg Magnúsdóttir og Guðmundur J. Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 284
Fundur hjá Lionklúbbi Skagastrandar 21. desember 2011. Frá vinstri: Gunnar Reynisson, Magnús B. Jónsson og Guðmundur J. Björnsson.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn097
Þessi mynd var tekin í október 1986. Á henni eru hjónin Anna H. Aspar (d.1.9.1999) og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996),sem sitja fremst, með börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum. Frá vinstri: Guðmundur J. Björnsson, Þórunn Bernódusdóttir (fjær), Elísabet Eik Guðmundsdóttir (nær), Auður Guðmundsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (nær), Halla Björg Bernódusdóttir (fjær)Anna Sjöfn Jónasdóttir, Einar Huakur Arason, Anna Aspar Aradóttir, Þorleifur Páll Ólafsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Guðrún Pálsdóttir, Helga Ólína Aradóttir, 'olafur Bernódusson (fjær) og Lilja Bernódusdóttir (nær).
Ólafur Bernódusson898
Páll Jóhannesson fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Helga Berndsen 061
Adolf J. Berndsen hengir upp afla dagsins af skörfum eftir að hafa skroppið á sjó á skytterí sumarið 1995. Sigríður Ólafsdóttir fylgist með.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1070
Þessi mynd var tekin 20. janúar 2010 af hestaáhugafólkinu, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Óskar Axelsson, Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011) og Hrönn Árnadóttir. Manneskjan lengst til hægri er óþekkt.
Ólafur Bernódusson905
Guðjón Ingimarsson bóndi á Hofi glaðbeittur við fjárdrátt í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 208
Þessi mynd var tekin 18. september 2012. Páll Jóhannesson til vinstri er að ganga frá bátnum sínum fyrir veturinn og spjalla við Guðmund Jón Björnsson í leiðinni.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 027
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980. Á henni eru gestir á árshátíð Hólaness hf að njóta kaffiveitinga. Næst okkur á myndinni eru frá vinstri: Anna Skaftadóttir, óþekktur (?Haraldur Árnason?), Sólveig Róarsdóttir og Stefán Þór Árnason. Hinu megin við borðið eru frá vinstri: Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007), Svava Svavarsdóttir og Hinrik Jóhannesson. Við næsta borð má þekkja Björn Fossdal Hafsteinsson (d.13.4.1983) en enn lengra frá má sjá Kristján Blöndal á spjalli við Guðmund Jónsson sem er í rauðri skyrtu og dökku vesti. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson900
Búi Þór Birgisson (d.18.9.2009) fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1076
Bræðurnir Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Ragnar Smári Ingvarsson til hægri. Myndin var tekin 13. ágúst 2010.
1
…
160
161
162
…
167
Leita í myndasafninu
Leita