Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1182
Vinkonurnar og nágrannarnir Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý) til vinstri og Guðný Finnsdóttir (Gígja) til hægri á rölti í byrjun júní 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1070
Þessi mynd var tekin 20. janúar 2010 af hestaáhugafólkinu, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Óskar Axelsson, Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011) og Hrönn Árnadóttir. Manneskjan lengst til hægri er óþekkt.
Ólafur Bernódusson905
Guðjón Ingimarsson bóndi á Hofi glaðbeittur við fjárdrátt í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 208
Þessi mynd var tekin 18. september 2012. Páll Jóhannesson til vinstri er að ganga frá bátnum sínum fyrir veturinn og spjalla við Guðmund Jón Björnsson í leiðinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1395
Söngskemmtun var haldin í félagsheimilinu á Blönduósi 10. nóvember 2012 til að safna peningum fyrir sjúkan ungling. Á myndinni spila og syngja, frá vinstri: Skarphéðinn Einarsson, Haukur Ásgeirsson, Helga Dögg Jónsdóttir og Benedikt Blöndal.
Ólafur Bernódusson936
Nes listamiðstöð hefur haft margvísleg góð áhrif á Skagaströnd. Meðal annars hefur fólkið sem þar dvelur tímabundið víkkað sjóndeildarhring íbúanna og gert þá móttækilegri fyrir ýmsum undarlegum uppákomum. Þessi mynd var tekin á einni slíkri uppákomu í lok september 2008. Þá safnaðist fólk saman og æpti í kór fyrir listamann sem tók ópið upp á myndband til notkunar í einhverju sköpunarverki sínu. Eins og sjá má brást fólk á öllum aldri vel við og æpti af lífs- og sálarkröftum á Hólanesinu og skemmti sér hið besta um leið.
Ólafur Bernódusson941
Systurnar María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) til vinstri og Ásdís Magnúsdóttir til hægri spjalla saman í níræðisafmæli Maríu 1.5.2009 í Fellsborg.
Hrefna Jóhannesdóttir031
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Ól. Oddsson & Dahlmann Þingholtsstræti 2 Reykjavík. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson793
Slökkvilið Skagastrandar á æfingu 22.apríl 2006. Þá komu menn frá Brunavörnum ríkisins með gám þar sem hægt var að æfa reykköfun og að slökkva eld í þröngu rými. Félagarnir í slökkviliðinu eru frá vinstri: Guðjón Ebbi Guðjónsson, óþekktur, Birkir Rúnar Jóhannsson, óþekktur, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006) og tveir óþekktir.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 015
Margrét Anna Jóhannsdóttir þriggja ára til vinstri og Bryndís Ingimarsdóttir tveggja ára til hægri standa framan við gardínu sem krakkarnir á leikskólanum Barnaból skreyttu. Myndin var tekin þar sumarið 1977.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 169
Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007) við afgreiðslu í apótekinu. Hulda var heilsugæsluhjúkrunarkona á Skagaströnd í fjölda ára og var mjög fær í sínu fagi. Þegar þessi mynd var tekin var apótekið niðri í vesturenda Læknisbústaðarins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson837
Þessi mynd var tekin á Hólaneskirkju þegar þar fóru fram vortónleikar Tónlistarskólans 10. maí 2010. Báðar stúlkurnar voru nemendur skólans og komu fram á tónleikunum. Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir til vinstri og Guðrún Anna Halldórsdóttir til hægri. Í baksýn sér í Ólaf Bernódusson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1093
Frændurnir Björn Guðmundsson til vinstri og Jakob Guðmundsson til hægri. Báðir eru þeir kenndir við bæinn Árbakka. Myndin var tekin 13. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1132
Hallbjörn Björnsson rafverktaki í kaffihorninu í fyrirtæki sínu Neistanum í lok nóvember 2002.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 321
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri heimsótti yngstu bekki Höfðaskóla rétt fyrir jólafrí 2014. Við það tækifæri gaf hann skólanum nokkur eintök af bókinni "Litla jólatréð" sem hann hafði skrifað. Á myndinni eru Magnús og Vera Valgarðsdóttir skólastjóri að fylgjast með krökkunum skoða bókina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 356
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af þeim Auðunni Árna Þrastarsyni til vinstri og Sigurði Aron Björnssyni til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1171
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970. Bryggjan sem bátarnir liggja við var kölluð Litla bryggja og hún hallaði fram, sem var algengt með bryggjur á þeim tíma sem hún var gerð, til að auðvelda löndun úr bátum sem voru misjafnir á stærð. Báturinn til hægri er Sigurður Jónsson Hu 18, og sá til vinstri er Blíðfari Hu 17 en báturinn í miðjunni er óþekktur. Á myndinni má líka sjá nokkra báta sem geymdir voru í fjörunni til vinstri á myndinni. Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson817
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af nafnlausri hljómsveit sem lék á tónleikunum. Lengst til vinstri stendur Hugrún Sif Hallgrímsdóttir en framan við hana situr Ernst Guðni Hólmgeirsson og spilar á bassa. Páll Halldórsson leikur á trommur og aftan vi hann er Benedikt Blöndal kennari. Elías Gunnar Hafþórsson handleikur gítar, Aron Breki Hjartarson blæs í saxófón en píanóleikarinn er Sigurbjörg Birta Berndsen.
Ólafur Bernódusson966
Sigursveit í kappróðri kvenna á sjómannadegi 6. júní 2009 bíður þess að taka við verðlaunum sínum. Frá vinstri: Stefán Jósefsson stýrimaður, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir, óþekkt stúlka, Alma Eik Sævarsdóttir og Arnrún Bára Finnsdóttir. Í ræðustólnum er kynnir dagsins, Lárus Ægir Guðmundsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson951
Hefð er fyrir því á sjómannadögum á Skagaströnd að ganga skrúðgöngu frá höfninni til kirkju fyrir hádegið. Þessi mynd var tekin á sjómannadegi 6. júní 2009 af skrúðgöngunni. Fánaberar eru frá vinstri: Ágúst Ómarsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Þorvaldur Skaftason og Guðjón Guðjónsson. Flestir aðrir á myndinni eru Skagstrendingar og að sjálfsögðu með merki dagsins í barminum.
Ólafur Bernódusson849
Bekkjarsystkinin Sigurlaug Máney Sæmundssen, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Ívan Árni Róbertsson á ellefta aldursári sínu í hlutverkum á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 16. mars 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1370
Fólkið a myndinni fylgdist með fyrirlestri um hafnargerð á Skagaströnd í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar í Gamla kaupfélaginu sem haldin var 13. október 2012. Fyrir og eftir fyrirlesturinn skoðaði fólk myndir úr Ljósmyndasafni Skagastrandar og reyndi að þekkja fólk sem á þeim var. Fólkið á myndinni er, frá vinstri:Lárus Ægir Guðmundsson (situr næst), Guðlaug Grétarsdóttir í rauðum buxum, Lilja Hjaltadóttir í rauðri úlpu, Adolf H. Berndsen, Herdís Jakobsdóttir, Hjalti Viðar Reynisson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Magnús B. Jónsson.
Steinþór Karlsson 033
Hafsteinn Pálsson að hífa eða slaka aftur á Arnari Hu 1 sumarið 1999. Hluti karfaaflans úr síðasta hali er kominn niður í rennuna niður á vinnsludekk en hluti aflans er enn í trollinu á dekkinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1011
Á hverju ári er haldið þorrablót á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg. Þangað er gjarnan boðið ýmsum velunnurum heimilisins til að njóta veitinga og skemmtunnar með heimilisfólkinu. Þessi mynd var tekin 3. febrúar 2012 af vin- og mágkonunum Guðrúnu Sigurðardóttur til vinstri og Ingu Þorvaldsdóttur (d. 14.12.2012) til hægri.
Steinþór Karlsson 028
Jóhannes Heiðmar Indriðason við störf um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Ólafur Bernódusson893
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) með tvo til reiðar við Kjalarlandsrétt á gangnadegi 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 410
Jón Gunnarsson um borð í bát sínum Rán Hu um miðjan ágúst 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1272
Þessir tveir óþekktu ungu menn notuðu góða veðrið 2. apríl 2012 til að þrífa og bóna reiðhjólin sín á stéttinni framan við Fellsborg.
Helga Berndsen 138
Þessi jólamynd var líklega tekin um 1968. Á henni eru frændsystkinin Guðrún Einarsdóttir til vinstri og svo systkinin Karl Berndsen í miðið og Laufey Berndsen til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1018
Þorrablótið 2012 var haldið 4. febrúar í Fellsborg. Á þessari mynd eru þrír kappar að leika í skemmtirevíunni á blótinu. Frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, Hafþór Smári Gylfason og Guðni Már Lýðsson.
Helga Berndsen 061
Adolf J. Berndsen hengir upp afla dagsins af skörfum eftir að hafa skroppið á sjó á skytterí sumarið 1995. Sigríður Ólafsdóttir fylgist með.
Helga Berndsen 095
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin af þessum þremur herramönnum á tröppunum á Karlsskála.<br>Á henni eru, frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995) frá Karlsskála, Þórður Jónsson (d.25.12.2010) úr Skjaldbreið og Helgi Björnsson frá Efri-Læk. Karl og Helgi voru systkinasynir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1066
Eðvarð Hallgrímsson smiður og athafnamaður til vinstri spjallar við Fritz Hendrik Berndsen framkvæmdastjóra Hertz bílaleigunnar framan við gamla mynd frá síldarárunum á Skagaströnd. Myndin af þeim félögum var tekin í ágúst 2010.
Ólafur Bernódusson963
Fólkið á myndinni er að fylgjast með hátíðahöldum sjómannadagsins við höfnina 6. júní 2009. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Bjarni Jónasson og kona hans Guðrún Brynleifsdóttir
Helga Berndsen 026
Fólk að slappa af og láta sér líða vel í sumarhúsi í Borgarfirði sumarið 1991. Frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Adolf J. Berndsen, Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) og Sigríður Ólafsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 305
Feðgarnir Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson vinstra megin og Sigurjón Guðbjartsson til hægri 1. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1023
Þorrablótið 2012 var haldið 4. febrúar í Fellsborg. Á þessari mynd er Jón Ólafur Sigurjónsson sem var einn af undirleikurunum í skemmtirevíu kvöldsins. Bak við hann grillir í Fannar Viggósson sem var einnig að spila.
Ólafur Bernódusson805
Myndin af þessum prúðbúnu bekkjarfélögum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Dagný Dís Bessadóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Freydís Kristjánsdóttir, Pascal Gruenberger, Dagur Freyr Róbertsson, Jóhann Almar Reynisson og Daði Snær Stefánsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1339
Eftir vikulangt dansnámskeið í Höfðaskóla og Barnabóli var haldin danssýning 12. október 2012 þar sem nemendur sýndu það sem þeir höfðu lært. Á þessari mynd fylgjast nokkrir nemendur og leikskólakennarar með öðrum dansa og bíða eftir að röðin komi að þeim sjálfum. Í fremri röð frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Ragnheiður Sigurjónsdóttir og Ylfa Fanndís Hrannarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: sonur Jakobs Casper ?, þórunn Bernódusdóttir og Ellert Atli Þrastarson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1257
Árni Halldór Eðvarðsson með tvo til reiðar í göngum 8. september 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 400
Myndin var tekin á þorrablóti í Fellsborg 2. febrúar 2013. Á henni er verið að syngja um hóp kvenna sem tók upp á því að stunda sjósund, oftar en ekki út við Sandlæk. Þar er dýpi ekki mikið þannig að hætta á drukknun er hverfandi. Aftur á móti vildi sandur festast milli tánna á konunum sem þær skoluðu gjarnan af sér í sundlauginni þegar þær fóru í heita pottinn þar til að fá aftur hita í kroppinn. Klæðnaður söngkvennanna er því við hæfi en þær eru, frá vinstri: María Ösp Ómarsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir, Þorgerður Þóra Hlynsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 241
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin af þeim Einari Einarassyni til vinstri og Magnúsi B. Jónssyni til hægri að kynna sér stafsemina.
Ingibergur Guðmundsson 312
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að slá frá sökklinum og hreinsa timbrið. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson og Ingibergur Guðmundsson
Ólafur Bernódusson 2 713
Feðgarnir Lýður Hallbertsson til vinstri og Eiríkur Lýðsson til hægri komu með góðan afla í maí 2001 á Dagrúnu. Aflinn var fjórir hákarlar í sömu umvitjun en þeir lögðu oft hákarlalóð á vorin um leið og þeir voru á grásleppu. Hákarlarnir voru allir skornir, kæstir og þurrkaðir og síðan etnir með góðri lyst á þorrablótum vítt um landið.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 019
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Hún var tekin á verkstæði Hólness hf á neðri hæðinni í Salthúsinu sem nú hefur verið breytt í glæsilegt gistiheimili. Á henni er Gunnar Albertsson við vinnu sína.
Ingibergur Guðmundsson 314
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni eru tveir ungir dugnaðarmenn að bera fúavara á lausu fögin sem fóru í skálann. Viggó Magnússon til vinstri og Stefán Ægir Guðmundsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 359
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Birgittu Rut Bjarnadóttur á fullri ferð í þrautabrautinni.
Ólafur Bernódusson950
1. maí 2009 hélt María Magnúsdóttir (d.2.2.2009) upp á níræðisafmæli sitt í Fellsborg. Á myndinni er hún lengst til vinstri með þremur af fjórum börnum sínum. Næstur henni er Gunnar Jón Jónsson þá Fjóla Jónsdóttir og lengt til hægri er Magnús Björn Jónsson.
Hrefna Jóhannesdóttir025
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 319
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að klæða skálann að utan. Á myndinni eru, frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Halldór Gunnar Ólafsson og Baldvin Hjaltason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1113
Þór Arason (d.11.8.2018) að mála gamla kaupfélagshúsið sem þá gekk í endurnýjun lífdaga. Myndin var tekin í lok maí 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 361
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af þeim Birgittu Rut Bjarnadóttur til vinstri og Daða Snæ Stefánssyni til hægri.
Ólafur Bernódusson973
Vinirnir Lárus Ægir Guðmundsson til vinstri og Sigurður Sigurðarson til hægri njóta síðsumarkvölds á tjaldsvæðinu í Skaftafelli eftir stífan göngudag í ágústbyrjun 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1037
Stefanía Hrund Stefánsdóttir og Gunnar Andri Elvarsson með verðlaunapeninga sína á grímuballi Höfðaskóla 22. febrúar 2012. Aftan við þau er Róbert Björn Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 352
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005. Á myndinni eru Elín Ósk Björnsdóttir til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir til hægri.
Helga Berndsen 039
Þessi mynd var tekin á sólskinsdegi á tröppunum á Karlsskála líklega kringum 1965. Frá vinstri: Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987) Guðrún Einarsdóttir og Sesselja Guðmundsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 331
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er Magnús B. Jónsson að lakka veggpanelinn eftir áramótin 1984/85.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 358
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Sigurði Aron Björnssyni á fullri ferð í þrautabraut.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1058
Þröstur Líndal Gylfason bóndi á Kjalarlandi að slóðadraga tún sitt í júní 2006.
Ólafur Bernódusson949
1. maí 2009 hélt María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) upp á níræðisafmæli sitt í Fellsborg. Á myndinni er María með þremur af systkinum sínum í veislunni. Frá vinstri: Ásdís Magnúsdóttir, Björn Magnússon (d.13.11.2010), María og Hólmfríður Magnúsdóttir.
1
…
161
162
163
…
167
Leita í myndasafninu
Leita