Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson961
Hrólfur Eggert Pétursson húsasmiður á sjómannadegi 6. júní 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1051
Feðgarnir Lýður Hallbertsson og Eiríkur Lýðsson um borð í bát sínum Dagrún Hu 121 í febrúar 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 337
Krakkarnir á myndinni eru að bíða utan við sundlaugina eftir að röðin komi að þeim í sundkennslu. Frá vinstri: tveir óþekktir, Sindri Freyr Björnsson, Telma Jónasdóttir, Bylgja Hrund Ágústsdóttir, Mikael Garðar Hólmgeirsson, Almar Atli Ólafsson, Andri Már Gunnarsson, Jón Árni Baldvinsson, Brynjar Daði Finnbogason, óþekkt og María Gret Gunnarsdóttir.
Steinþór Karlsson 018
Jóhannes Heiðmar Indriðason gerir sig kláran á vaktaskiptum að fara í vinnsluna á Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Ólafur Bernódusson718
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðrún Hjaltey Hallgrímsdóttir, Sæunn Ósk Steingrímsdóttir og Egill Örn Ingibergsson að leika í einu atriðanna sem voru á dagskránni. Sá sem liggur á gólfinu er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1353
Myndin var tekin í Skagabúð 27. maí 2012 en tilefni veislunnar á myndinni er ekki þekkt. Á henni eru systur með mökum sínum. Frá vinstri: Guðlaug Grétarsdóttir, Hjalti Viðar Reynisson, Auður Sandra Grétarsdóttir og Óli Hjörvar Kristmundsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1015
Á hverju ári er haldið þorrablót á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg. Þangað er gjarnan boðið ýmsum velunnurum heimilisins til að njóta veitinga og skemmtunnar með heimilisfólkinu. Þessi mynd var tekin 3. febrúar 2012 á einu slíku blóti af Angelu Mariu Bosombrio að syngja við undirleik þeirra Skarphéðins Einarssonar til vinstri og Hauks Ásgeirssonar til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 236
Myndin var tekin 1. febrúar 2013 af þeim Guðrúnu Soffíu Pétursdóttur til vinstri og Guðríði Líneik Daníelsdóttur til hægri í eldhúsinu í Fellsborg við undirbúning þorrablóts. Milli þeirra sér í Þórlaugu Svövu Arnardóttur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1397
Þessar tvær stúlkur eru á leið á grímuball í Fellsborg 27. nóvember 2012. Hekla Guðrún Þrastardóttir til vinstri og Bylgja Ágústsdóttir til hægri.
Ólafur Bernódusson931
Á vorin eru gjarnan einn til tveir útivistardagar í Höfðaskóla. Þá geta nemendurnir valið sér verkefni utan skólans. Eitt af verkefnunum í maílok 2008 var að ganga á Spákonufellið. Hópurinn á myndinni valdi það og myndin var tekin á Borgarhausnum 23. maí. Sitjandi frá vinstri: Stefán Velemir, Indriði Björnsson, Óskar Björnsson, Guðjón Páll Hafsteinsson, óþekkt, Viktor Örn Valdimarsson og Ingimar Guðjónsson. Standandi frá vinstri: Ágúst Ingi Ágústsson kennari, óþekkt, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Torfi Friðrik Magnason og Telma Dögg Bjarnadóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson954
Róðrarsveit unglinga á sjómannadegi 6. júní 2009. Frá vinstri: Stefán Velemir, Sæþór Ágústsson, Sylvía Hrólfsdóttir, óþekkt stúlka, Sonja Sif Ólafsdóttir, Elías Gunnar Hafþórsson og óþekktur stýrimaður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1081
Foreldrar og börn ganga kringum jólatréð á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012.
Arnar HU 1 - safn 43
Spjallað í matsalnum milli hífa 27. mars 2004. Frá vinstri: Elvar Freyr Aðalsteinsson, Skúli Tómas Hjartarson og Kristján Karlsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1237
Tríóið á myndinni tók þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012. Frá vinstri: Anton Þór Einarsson, Egill Örn Ingibergsson og Elmar Jóhann Grétarsson. Við píanóið situr Eymundur Lórens Grétarsson.
Ólafur Bernódusson861
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni er keppni í Limbó í gangi. Undir slánni er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri en Gunnar Halldórsson matsveinn og Hrólfur Pétursson smiður bíða eftir að röðin komi að þeim. Aftar í röðinni eru svo þrír óþekktir nemendur, Alex Már Gunnarsson með skrítna húfu og Elva Þórisdóttir kennari. Dómarar við slána eru Sonja Sif Ólafsdóttir vinstra megin og Sara Rut Fannarsdóttir til hægri. Þar fylgjast Telma Dögg Bjarnadóttir og Stefán Velemir með árangri Magnúsar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1329
Gylfi Sigurðsson til vinstri og Hjörtur Guðbjartsson til hægri að skreyta ljósastaur við Bogabrautina fyrir Kántrýdaga 16. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1103
Hjónin Sævar Rafn Hallgrímsson og Ragnheiður Magnúsdóttir spjalla við nágranna sinn Lárus Ægi Guðmundsson, sem er á milli þeirra, í ágúst 2010. Sævar og Ragheiður eiga heima á Hólabraut 21 en Lárus á 24.
Ingibergur Guðmundsson 329
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er Árni Geir Ingvarsson að vinna við raflagnir í skálanum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 376
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Valgerði Guðný Ingvarsdóttur í þrautabrautinni. Aðrir eru óþekktir.
Steinþór Karlsson 006
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999 af nokkrum skipverjum að fylgjast með félögum sínum á gúmmíbát á svartfuglaskytteríi. Báturinn sést, ef vel er skoðað, út við sjóndeildarhringinn vinstra megin við miðju. Bæring Skarhéðinsson er lengst til hægri með heyrnartól. Maðurinn í blárri peysu og sjóbuxum er Jóhann Ásgeirsson og maðurinn með bláu húfuna til hægri er Slavko Velemir. Hinir tveir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1411
Myndin var tekin í lok maí 2012 þegar Stefán Jósefsson (nær) og Sævar Rafn Hallgrímsson (fjær) voru að koma að bryggju frá því að draga upp grásleppunet í lok vertíðar á bátnum Hafsteini.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1451
Myndin var tekin á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ 21. janúar 2012. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Björn Hallbjörnsson (situr) og Gunnar Sveinsson.
Ólafur Bernódusson771
Fyrsta skóflustungan tekin að gervigrasvellinum á Skagaströnd. Líklega var þetta 2005 eða 2006 en skólabörn aðstoðuðu Magnús B. Jónsson sveitarstjóra við moksturinn. Til vinstri klappar Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri fyrir verkinu en nemendur Höfðaskóla fylgjast með.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1022
Þorrablótið 2012 var haldið 4. febrúar í Fellsborg. Á þessari mynd er Halldór Gunnar Ólafsson að leika Lárus Ægi Guðmundsson á skemmtirevíu kvöldsins.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 97
Kaffiboð 1967. Frá vinstri: Ólafur Guðlaugsson (d.17.5.1996) Sævarlandi, tvö óþekkt, Jón Gunnar Jósefsson Reykholti, Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994) Sævarlandi og Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) Reykholti.
Ólafur Bernódusson874
Íbúar Bogabrautar tóku sig til um miðjan ágúst 2007 og komu saman í götugrill við Bogabraut 19. Á myndinni eru mæðginin Ari Jón Þórsson og Fjóla Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1154
Myndin var tekin um borð í Frigg Hu 15 líklega snemma á sjötta áratugnum. Karlarnir uppi í bassaskýlinu eru að skyggnast um eftir síld. Maðurinn til hægri er líklega Jón Vilhjálmsson (d.31.8.2011) frá Brandaskarði en hinn maðurinn er óþekktur. Frigg var smíðuð 1916 í Danmörku en endaði lífdagana á báli í Vestmannaeyjum í júlí 1964 þá dæmd ónýt. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson). Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson876
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst og er af björgunarsveitarmönnum utan við hús sveitarinnar sem þeir smíðuðu. Til vinstri er Viktor Örn Einarsson en hinn drengurinn er óþekktur.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 83
Myndin var tekin utan við Gamla pósthúsið (Bogabraut 10) líklega kringum 1970. Á henni eru frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir?, Vilhelm B. Harðarson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 357
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Hallbjörgu Jónsdóttur.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 041
Steindór Gíslason (d.1985) til vinstri og Jóhann Björn Þórarinsson til hægri grilla sér silung við bakka Laxár í Aðaldal. þar voru þeir í veiðitúr ásamt nokkrum öðrum skagstrendingum einhverntíma kringum 1980.
Ingibergur Guðmundsson 333
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Vatnið í skálann er tekið úr lind upp í hlíðinni norðan við hann. Á myndinni eru feðgarnir Halldór Gunnar Ólafsson nær okkur og Ólafur Bernódusson fjær, að koma fyrir hreinsunar-tunnu á vatnsleiðsluna að skálanum. Myndin var tekin snemma vors 1985.
Ingibergur Guðmundsson 330
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er kaffipása einhverntíma eftir áramótin 1984/85 þegar verið var að klæða skálann að innan og vinna við innréttingar. Á henni eru skíðaáhugamennirnir, frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Ólafur Bernódusson, Kjartan Birgisson og Ingibergur Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1426
Á sjómannadegi 2. júní 2012 voru þrír sjómenn heiðraðir fyrir björgunafrek sem þeir unnu sem ungir menn. Konan í miðunni er Auður Hjördís Sigurðardóttir en hún tók við heiðursmerkinu fyrir hönd föður síns Sigurðar Árnasonar (d.26.3.2013) sem bjargaði manni er féll útbyrðis af Vísi Hu 10 7. nóvember 1961. Mennirnir eru Birgir Þórbjarnarson til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri. Þeir björguðu konu og tveimur ungum frænkum hennar 8. september 1962 þegar bíll sem þær voru í fór fram af hafnargarðinum á Skagaströnd. Móðir stúlknanna litlu festist í bílnum og drukknaði í slysinu. Efst í horninu til hægri sér í Lárus Ægi Guðmundsson sem sá um heiðrunina.
Ólafur Bernódusson1012
Hjónin Kamilla Gísladóttir og séra Guðmundur Karl Brynjarsson þegar þau voru kvödd með kaffisamsæti í Fellsborg í október 2000 eftir farsæla þjónustu á Skagasatrönd, hún sem kennari og hann sem sóknarprestur.
Ólafur Bernódusson735
þrír ungir menn að spila og syngja í Bjarmanesi á Kántrýhátíð 17. ágúst 2007. Strákarnir eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Guðmundur Karl Ellertsson og Þorsteinn Jónsson.
Magnús B Jónsson97 jpg
Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d.12.9.2018)<br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 1271
Líklega þekkir Logi Hrannar Jóhannsson frá Kambakoti vel kindina sem hann er að klappa á myndinni úr Kjalarlandsrétt 8. septeber 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 269
Þór Arason lappar upp á þakið á skemmunni við Karlsskála í ágústlok 2011 með hjálp skotbómulyftara.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn098
Þessi mynd var tekin í október 1986. Á henni eru hjónin Karitas Laufey Ólafsdóttir og Ingvar Karl Sigtryggsson (d.10.7.1988), sem sitja fremst, með börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum. Frá vinstri: Kristín Jónsdóttir með Jón Inga Ragnarsson í fanginu, Vala Rós Ingvarsdóttir, Ragnar Smári Ingvarsson, Gréta Ingvarsdóttir, Þórarinn Brynjar Ingvarsson, Árni Geir Ingvarsson, Rúnar Ingvarsson (fjær), Sigursteinn Ingvar Rúnarsson (nær), Perla Rúnarsdóttir og Rósa Sigursteinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 328
Stelpur að leik í fótbolta á vellinum sunnan við Fellsborg í júnísól 2011. Frá vinstri: Sigurbjörg Birta Berndsen, Sigurlaug Máney Sæmundssen og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1120
Þrír hressir ungir menn við kvöldvöku á kántrýdögum í ágúst 2010. Mennirnir eru frá vinstri: Stefán Sveinsson, Indiði Hauksson og Ingvar Þór Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 466
Guðrún Anna Halldórsdóttir tekur saman nóturnar eftir að hafa spilað á saxófóninn sinn við messu í Hólaneskirkju á gamlaársdag 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1019
Þorrablótið 2012 var haldið 4. febrúar í Fellsborg. Á þessari mynd eru Þorgerður Þóra Hlynsdóttir (Gigga) til vinstri og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir til hægri að lesa inngang að næsta atriði á sviðinu.
Hrefna Jóhannesdóttir029
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Sigríði Zoéga Reykjavík. Konan á myndinni er líklega Guðbjörg ? móðuramma Hrefnu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1143
Það liggur vel á fólkinu á myndinni en ekki er vitað hvenær hún var tekin. Á henni eru systurnar Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d.14.2.2008) til vinstri og Ólöf Jóhanna Smith til hægri með móðurbróður sinn, Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) á milli sín.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1198
Tveir heimilismenn á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg í lok júlí 2009. Jónína Valdimarsdóttir og óþekktur.
Steinþór Karlsson 041
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumaruið 1999. Á henni er búið að breiða yfir hluta aflans úr síðasta hali á dekkinu því vinnslan er full. Maðurinn til vinstri er óþekktur en til hægri er Guðfinnur Bjarni Ottósson. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson922
Þorgerður Björk Guðmundsdóttir í Höfðaskóla í mars 2008.
Séra Pétur og Dómhildur - safn187
Myndin var tekin vorið 1971 í Hólaneskirkju eldri. Þá var kirkjuskólinn alltaf kallaður sunnudagaskóli enda haldinn á sunnudagsmorgnum. Páll Jónsson skólasjóri Höfðaskóla, sem er maðurinn á myndinni, starfaði líka við kirkjuna. Á myndinni er hann að afhenda krökkunum einhver skjöl vegna starfsins yfir veturinn. Til hægri við Pál eru Ástmar Kári Ástmarsson til hægri og Vihelm Björn Harðarson til vinstri. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1445
Gunnar S. Halldórsson vert í Kántrýbæ afgreiðir á barnum á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í janúar 2012.
Steinþór Karlsson 038
Á þessari mynd frá sumrinu 1999 um borð í Arnari Hu 1, eru tveir sjómenn að setja stroffu um belginn á trollinu til að ná því inn. Maðurinn til vinstri er líklega Baldur Magnússon en sá til hægri líklega Skúli Tómas Hjartarson. Báðir eru mennirnir bundnir við skipið ef illa skyldi fara.
Ólafur Bernódusson758
Eftir áratuga farsælan sjómennskuferil tók Jón Ólafur Ívarsson - Daddi (d.29.12.2013) sig til og fór að mála myndir. Hann hélt svo fjölsótta sýningu á verkum sínum í Höfðaskóla á sjómannadaginn 1. júní 2003 þar sem myndirnar hans seldust eins og heitar lummur.
Ólafur Bernódusson964
Fólkið á myndinni er að fylgjast með hátíðahöldum sjómannadagsins við höfnina á Skagaströnd 6. júní 2009. Lýður Hallbertsson útgerðarmaður og skipstjóri er til vinstri en á spjalli við hann eru hjónin Ásgeir Blöndal útgerðarmaður og skipstjóri og Bryndís Bragadóttir hárgreiðslukona.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 303
Slavko Velemir við garðslátt fyrir utan Herðubreið í júlí 2012.
Séra Pétur og Dómhildur - safn188
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefnið var. Á henni eru frá vinstri í aftari röð: Lára Guðmundsdóttir, Pálfríður Bjarnadóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Aðalheiður Másdóttir. Í fremri röð frá vinstri: Lára Bylgja Guðmundsdóttir og Sigríður Gestsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1240
Kirkjukór Hólaneskirkju syngur á aðventukvöldi 2. desember 2012. Frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Guðlaug Grétarsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Sigurjón Guðbjartsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Dagný Hannesdóttir (nær), Halldór Gunnar Ólafsson (fjær), Guðbjörg Ólafsdóttir, Sigurður Bjarnason, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, Ólafur Bernódusson, Guðrún Sigurðardóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Trostan Agnarsson, Hjördís Sigurðardóttir, Hildur Ingólfsdóttir (nær), Gylfi Sigurðsson (fjær), Magnea Valdimarsdóttir og Hafþór Gylfason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 349
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Birgittu Rut Bjarnadóttur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1164
Pása í bæjarvinnunni 11. júní 2009. Krakkarnir eru, frá vinstri: Þorgerður Guðmundsdóttir, Indriði Theodór Hjaltason og Rósa Björg Einarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 308
Þeir eru á leið milli verkefna í vinnuskólanum með hjólbörur og skóflu. Þá er óþarfi að eyða orku beggja í að ganga á milli staðanna þannig að Kristján Örn Róbertsson ekur Elmari Jóhanni Grétarssyni vinnufélaga sínum í börunum. Myndin var tekin 9. ágúst 2012.
1
…
162
163
164
…
167
Leita í myndasafninu
Leita