Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1453
Nágrannakonurnar Sylvía Hrólfsdóttir til vinstri og Herdís Jakobsdóttir til hægri spjalla saman yfir höfðinu á Tinnu sem Sylvía er að viðra. Myndin var tekin 25. janúar 2012.
Ólafur Bernódusson1001
Páll Halldórsson, nýorðinn tveggja ára , fylgist með á íþróttadegi skólanna í Austur Húnavatnssýslu sem haldinn var á Skagaströnd í apríl 2001. Stúlkan er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1313
Sigurjón Elí Eiríksson niðri í lest á Dagrúnu Hu 121 að landa í lok apríl 2012. Sigurjón hefur getið sér gott orð í bílaíþróttum sem keppandi í "drift".
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 238
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin inni í vigtar- og aðstöðuhúsi Norðuráss á Sölvabakkamelum. Á myndinni bíða nokkrir sveitastjórnarmenn eftir gestum. Léttar veitingar vori í boði af þessu tilefni. Mennirnir eru frá vinstri: Björn Kristjánsson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Hallur Hilmarsson og tveir óþekktir menn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1079
Feðginin Klara Ósk Hjartardóttir og Hjörtur Guðmundsson á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1191
Hjónin Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) og Helga Berndsen njóta sólarinnar sunnan undir vegg á Karlsskála 19. júlí 2009.
Ólafur Bernódusson716
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni er Sveinn Hallgrímsson að leika í einu atriðanna sem voru á dagskránni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1010
Á hverju ári er haldið þorrablót á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg. Þangað er gjarnan boðið ýmsum velunnurum heimilisins til að njóta veitinga og skemmtunnar með heimilisfólkinu. Þessi mynd var tekin 3. febrúar 2012 á einu slíku blóti af óþekktum heimilismanni til vinstri og sambúðarfólkinu Jóni Gunnarssyni og Ingibjörgu Kristinsdóttur til hægri. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson852
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg 16. mars 2007. Á myndinni er atriði 4. bekkjar í gangi. Krakkarnir eru frá vinstri: Einar Ari Einarsson, Arnar Páll Guðjónsson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundssen og Svandís Lilja Hallgrímsdóttir.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 027
Aðalheiður Sif Árnadóttir til vinstri og Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir til hægri að leika sér í snjónum við leikskólann Barnaból í mars 1978.
Steinþór Karlsson 017
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Þröstur Árnason til vinstri og Jóhannes Heiðmar Indriðason hægra megin tylla sér smástunud á bekkinn í stakkageymslunni áður en þeir fara fram í vinnsluna.
Ólafur Bernódusson922
Þorgerður Björk Guðmundsdóttir í Höfðaskóla í mars 2008.
Séra Pétur og Dómhildur - safn187
Myndin var tekin vorið 1971 í Hólaneskirkju eldri. Þá var kirkjuskólinn alltaf kallaður sunnudagaskóli enda haldinn á sunnudagsmorgnum. Páll Jónsson skólasjóri Höfðaskóla, sem er maðurinn á myndinni, starfaði líka við kirkjuna. Á myndinni er hann að afhenda krökkunum einhver skjöl vegna starfsins yfir veturinn. Til hægri við Pál eru Ástmar Kári Ástmarsson til hægri og Vihelm Björn Harðarson til vinstri. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1189
Unglingar í bæjarvinnunni að dytta að Spákonufellsrétt í júlí 2010. Unglingarnir eru frá vinstri talið: Þórður Indriði Björnsson, Sara Rut Fannarsdóttir, Kristján Ýmir Hjartarson og Jóhann Örn Stefánsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn198
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) stendur hér á milli tveggja óþekktra kvenna. Þær eru að öllum líkindum ömmur barnanna í skírnarkjólunum sem þær halda á. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 361
Róbert Freyr Gunnarsson 1. maí 2009 í 90 ára afmæli ömmu sinnar Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016).
Ólafur Bernódusson745
Sumarið 2012 útbjuggu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar og aðrir sjálfboðaliðar, göngustíg gegnum skógræktarsvæði félagsins austan við tjaldsvæðið á Skagaströnd. Hann var síðan nefndur Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem í mörg ár var ötull formaður Skógræktarfélagsins. Á myndinni er Ólafur Bernódusson að koma fyrir brú yfir skurð sem sker stíginn.
Ólafur Bernódusson944
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), sem er í miðju á myndinni, hélt upp á níræðisafmælið sitt í Fellsborg 1. maí 2009. Hjá henni standa bróðir hennar Björn Magnússon (d.13.11.2010) bóndi á Syðra Hóli og Elísabet Árnadóttir (d.16.3.2017).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1120
Þrír hressir ungir menn við kvöldvöku á kántrýdögum í ágúst 2010. Mennirnir eru frá vinstri: Stefán Sveinsson, Indiði Hauksson og Ingvar Þór Jónsson.
Ólafur Bernódusson874
Íbúar Bogabrautar tóku sig til um miðjan ágúst 2007 og komu saman í götugrill við Bogabraut 19. Á myndinni eru mæðginin Ari Jón Þórsson og Fjóla Jónsdóttir.
Steinþór Karlsson 015
Sævar Berg Ólafsson til vinstri og Óskar Þór Kristinsson til hægri bíða á bekknum í stakkageymslunni eftir að fiskur komi niður á vinnsludekkið svo hægt sé að hefja vinnsluna. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Ólafur Bernódusson 729
Steypireyður er stærsta skepna jarðarinnar og er reyndar talinn stærsta skepna sem nokkurn tíma hefur verið til. Einn slíkan rak dauðan í fjöruna sunnan við bæinn Ásbúðir á Skaga í ágúst 2010. Fréttir af hvalrekanum voru fluttar í öllum helstu fjölmiðlum landsins enda sjaldgæft að steypireyð reki á fjörur. Á myndinni stendur átta ára gamall drengur, Ólafur Halldórsson, á hvalnum til að sýna stærðarhlutföllin en Ásbúðir sjást til hægri á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1129
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd við vinnu sína á sveitarstjórnarskrifstofunni 28. nóvember 2002.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 353
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt stúlka (?dóttir Sigrúnar Ómarsdóttur?), Viktor Örn Einarsson og Sunna Steingrímsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson855
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni eru nemendur að gera sig klár fyrir gönguna við Fellsborg með kröfuspjöldin sín. Frá vinstri: óþekktur, Andrea Kristjánsdóttir, Brynjar Max Ólafsson, óþekktur, Sigurjón Elí Eiríksson, Sara Rut Fannarsdóttir, Alex Már Gunnarsson, Freyja Einarsdóttir, Kristbjörg Ragnheiðardóttir og Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Ólafur Bernódusson777
Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra tekur fyrstu skóflustungu að nýbyggingu heilsugæslunnar á Skagaströnd haustið 2005. Það gerði hann með JCB gröfu Guðmundar J. Björnssonar sem leiðbeinir honum við verkið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1062
Lárus Árnason (d. 21.5.2011) út túni hjá Ási 19. janúar 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1262
Ólafur Bernódusson kemur í söluskálann eftir heimsókn í leikskólann Barnaból í gervi jólasveins um miðjan desember 2018.
Ingibergur Guðmundsson 327
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni eru Ólafur Bernódusson til vinstri og Stefán Ægir Lárusson að rýna í teikningarnar áður en næstu skref eru tekin í framkvæmdunum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 377
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005. Leifur Örn Ragnarsson er næstur okkur í þrautabrautinni en aftan við hann er Sveinn Hallgrímsson en aðrir eru óþekktir nema Carl Erik Lehman Jakobsen íþróttakennari til hægri.
Ólafur Bernódusson840
Lísebet Gestsdóttir frá Brandaskarði til vinstri og Sigurlaug Kristjánsdóttir frá Tjörn til hægri. Á myndinni eru þær að selja eigin heimagerðan varning á útimarkaði við félagsheimilið á Blönduósi á Húnavöku 17. júlí 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1218
Dagný Marín Sigmarsdóttir heldur ræðu við opnum Spákonuhofsins 30. júní 2011.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1008
Á hverju ári er haldið þorrablót á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg. Þangað er gjarnan boðið ýmsum velunnurum heimilisins til að njóta veitinga og skemmtunnar með heimilisfólkinu. Þessi mynd var tekin 3. febrúar 2012 á einu slíku blóti af söngskemmtiatriði. Konurnar sem syngja eru frá vinstri: Jökulrós Grímsdóttir, Guðbjörg Eiríksdóttir og Hrafnhildur Jóhannsdóttir. Undirleikarar eru Skarphéðinn Einarsson á bassa og Haukur Ásgeirsson á gítar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 324
Feðgarnir Stefán Jósefsson til vinstri og Guðmundur Henry Stefánsson til hægri skera af netum í verbúði hins fyrrnefnda við Fjörubraut. Teinarnir eru hirtir og á þá fellt nýtt net. Netinu sjálfu - af gömlu netunum - er hent vegna þess að þau eru meira og minna rifin eftir notkun um tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1373
Bræðurnir Valdimar Viggósson til vinstri og Víkingur Viggósson til hægri í samkomutjaldinu á Hnappsstaðatúni á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 004
Myndin var tekin utan við leikskólann Barnaból sumarið 1977. Á henni eru frá vinstri: Atli Þór Þórsson, Brynjar Pétursson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Margrét Anna Jóhannsdóttir, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Dagbjört Jóna Jóhannsdóttir og Sandra Ómarsdóttir.
Steinþór Karlsson 024
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari Hu 1 kominn niður á dekk til að fylgjast með þegar risahol var tekið innfyrir. Myndin var tekin sumarið 1999 þegar Arnar var á karfaveiðum.
Steinþór Karlsson 008
Arnar Hu 1 í höfn á Reyðarfirði sumarið 1999. Á bryggjunni er Slavko Velemir, sitjandi um borð í gúmmíbátnum er Reynir Lýðsson en standandi þar er Ólafur Ásgeirsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 417
Tveir ungir reiðhjólakappar í byrjun apríl 2013. Daði Snær Stefánsson til vinstri og Páll Halldórsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1050
Hallbjörn Björnsson rafverktaki við vinnu upp í mastri á óþekktum bát í lok júlí 2006.
Steinþór Karlsson 021
Myndin ver tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Á henni er verið að hífa flottrollið á karfamiðum. Mikil flækja af köðlum koma fyrst upp á spiltromluna áður en belgur trollsins kemur með pokanum í endanum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1053
Tveir aldnir bændur úr Skagabyggð. Hjalti Árnason (d.4.7.2010) bóndi á Skeggjastöðum til vinstri og Sveinn Sveinsson bóndi á Tjörn til hægri. Myndin var tekin 14. febrúar 2010 í Skagabúð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1286
Tryggvi Hlynsson á reykköfunaræfingu slökkviliðs Skagastrandar í byrjun apríl 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1411
Myndin var tekin í lok maí 2012 þegar Stefán Jósefsson (nær) og Sævar Rafn Hallgrímsson (fjær) voru að koma að bryggju frá því að draga upp grásleppunet í lok vertíðar á bátnum Hafsteini.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1063
Jón Örn Stefánsson sleppir Gjóði sem náðist um borð í Arnari Hu 1. Gjóður er ekki algengur á Íslandi en hefur þó sést hér nokkrum sinnum. Hann er fiskiæta skyldur fálka, um 60 cm að stærð með vænghaf allt að 180 cm. Myndin var tekin 19. október 2008.
Steinþór Karlsson 030
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Þarna er verið að losa karfa úr pokanum eftir tuga tonna hal. Maðurinn með vidovélina er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1244
Hjördís Sigurðardóttir með son sinn Fritz Hendrik Berndsen sér við hægri hönd og sonardóttur sína Sigurbjörgu Birtu Adolfsdóttur Berndsen sér til vinstri. Myndin var tekin 30. júní 2011 í Spákonuhofinu þegar það var opnað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1289
Sumarið 2012 gerðu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar göngustíg gegnum skógræktina austan við tjaldstæðin. Stígurinn hlaut nafnið Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem var einn af stofnendum félagsins, formaður í mörg ár og mikill skógræktarmaður. Á myndinni er Ólafur Bernódusson að jafna úr malarhlassi á Jónsstíg en síðan stígurinn var gerður hefur hann notið mikilla vinsælda sem mátuleg gönguleið gegnum skógræktina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1081
Foreldrar og börn ganga kringum jólatréð á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 303
Slavko Velemir við garðslátt fyrir utan Herðubreið í júlí 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1101
Myndin var tekin á fjörugu diskóteki á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 30. mars 2007. Frá vinstri á myndinni eru: Ellen Lind Sigurjónsdóttir, Telma Bjarnadóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir og Stefán Velemir.
Helga Berndsen 134
Þessi mynd var líklega tekin 1966 á jóla-barnaballi í Höfðaskóla. Á henni má meðal annars sjá nokkrar mæður sem sitja undir börnum sínum. Frá vinstri: þrjár óþekktar stúlkur, Guðrún Angantýsdóttir með einn af sonum sínum í fanginu, Bára Þorvaldsdóttir með dóttur sína, Önnu Elínborgu Gunnarsdóttur, í fanginu, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir með strákinn sinn Karl Berndsen, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með Vilhelm Björn Harðarson son sinn, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018) og Dagný Hannesdóttir með eitt barna sinna í fanginu(?Kristján Karlsson?).
Hrefna Jóhannesdóttir032
Páll Ólafsson Reykdal Jóhannesson (d.29.1.1989) frá Garði. Páll var einn af stofnendum Verkalýðsgfélags Skagastrandar og stundaði verkamannavinnu og sjómennsku framan af ævi. Seinna varð hann húsvörður og gangavörður í Höfðskóla.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1383
Trostan Agnarsson til vinstri og Adolf H. Berndsen til hægri spjalla saman í lok ágúst 2012 á kynningardegi vegna fyrirhugaðra hitaveituframkvæmda á árinu 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1314
Ungir menn í bæjarvinnunni í byrjun ágúst 2012. Ísak Tryggvason til vinstri og Kristján Örn Róbertsson til hægri.
Hrefna Jóhannesdóttir007
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1392
Árni Geir Ingvarsson lítur út um þvottahúsdyrnar hjá sér á Fellsbrautinni 3. nóvember 2012 eftir snjókomu undanfarinna daga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 429
Þessi mynd var tekin 21. apríl 2013 sunnan við kirkjuna á svipuðum stað og áður stóð húsið Dagsbrún þar sem systkinin á myndinni áttu heima á sinni tíð. Frá vinstri: Þorvaldur Skaftason, Anna Skaftadóttir, Vilhjálmur Skaftason, Jónas Skaftason (d.17.11.2017) og Hjalti Skaftason.
Steinþór Karlsson 013
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Á henni eru þrír skipverjar að sjósetja gúmíbát til að fara á svartfuglaskyttetrí. Í bátnur er Bjarni Ottósson við mótorinn en hinir tveir eru óþekktir. Jóhann Ásgeirsson stendur við lunninguna og bendir kranamanninum að láta síga. Aftar eru Bæring Skarphéðinsson til vinstri og Slavko Velemir til hægri. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega senmdu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 234
Árni Geir Ingvarsson bæjarverkstjóri á kaffitíma í söluskálanum á Skagaströnd í ágúst 2014.
1
…
163
164
165
166
167
Leita í myndasafninu
Leita