Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1092
17. nóvember 2010 stóð Lionklúbbur Skagastrandar fyrir opnum fræðslufundi í Fellsborg um ísbirni. Þorsteinn Sæmundsson forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra á Sauðárkróki fræddi þar fundarmenn um ýmislegt sem tengist þessu hættulega rándýri sem þvælist til Íslands stöku sinnum og þá einkum á norð vesturlandi. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Jón Sveinsson, Guðjón Guðjónsson og Sævar Hallgrímsson.
Helga Berndsen 120
Myndin var líklega tekin 1966. Á henni eru barnabörn hjónanna á Karlsskála, Ernst Berndsen (d.21.8.1983) og Guðrúnar Helgadóttur (d.15.4.1987). Í aftari röð eru frá vinstri: Laufey Berndsen sem situr með Fritz Hendrik Berndsen, Guðrún Einarsdóttir, Ernst Berndsen og Adolf H. Berndsen. Fremri röð frá vinstri: Karl Berndsen, Guðrún Björg Berndsen og Steinunn Berndsen.
Ólafur Bernódusson777
Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra tekur fyrstu skóflustungu að nýbyggingu heilsugæslunnar á Skagaströnd haustið 2005. Það gerði hann með JCB gröfu Guðmundar J. Björnssonar sem leiðbeinir honum við verkið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1392
Árni Geir Ingvarsson lítur út um þvottahúsdyrnar hjá sér á Fellsbrautinni 3. nóvember 2012 eftir snjókomu undanfarinna daga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1314
Ungir menn í bæjarvinnunni í byrjun ágúst 2012. Ísak Tryggvason til vinstri og Kristján Örn Róbertsson til hægri.
Ólafur Bernódusson750
Vinirnir Stefán Ægir Lárusson og Halldór Gunnar Ólafsson á góðum degi sumarið 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1186
Steindór R. Haraldsson flaggar við kirkjuna á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Steindór var meðphjálpari við Hólaneskirkju í áratugi en lét af því starfi haustið 2018.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1067
Tónlistar- og samstarfsmennirnir Birkir Rafn Gíslason til vinstri og Bjartmar Guðlaugsson til hægri á Kántrýdögum 14. ágúst 2010.
Arnar HU 1 - safn 18
Björn Sigmundsson vélstjóri á Arnari HU 1 í stjórnklefanum niður í vélarúmi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hrefna Jóhannesdóttir027
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Brynjólfi Sigurðssyni Seyðisfirði. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Valdimar Viggósson 12
Árið 1993 gaf Valdimar Viggósson, sem er hæfileikaríkur teiknari, út dagatal með skopmyndum af fólki á Skagaströnd sem hann hafði teiknað. Þessi mynd af Sveini S. Ingólfssyni framkvæmdastjóra Skagstrendings hf prýddi júnímánuð á dagatalinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1098
Systkinin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Sigurðardóttir með bróðurdóttur sína Aðalheiði Sif Árnadóttur á milli sín ræða málin fyrir utan Bogabraut 12 um miðjan júní 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1418
Hefð er fyrir því í Hólneskirkju að sjómannakór syngur við messuna á sjómannadegi. Þessi mynd var tekin í kirkjunni á sjómannadegi 2. júní 2012. Á henni syngur Guðlaugur Ómar Guðmundsson lengst til vinstri við eigin gítarundirleik. Aðrir í hljómsveitinni eru: Ívan Árni Róbertsson á gítar, Jón Ólafur Sigurjónsson á bassa og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir á píanó. Í kórnum eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Sigurjón Guðbjartsson, Ólafur Bernódusson, Árni Ólafur Sigurðsson, Þórarinn Grétarsson, Stefán Jósefsson, Trostan Agnarsson, Hafþór Smári Gylfason og Gylfi Sigurðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 407
Valgeir Karlsson frá Víkum æfir sig á tölvuna á tölvunámskeiði (h)eldra fólks í lok febrúar 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 384
Starfsmenn á unglingamóti USAH á Skagastrandarvelli 10. júlí 2013 tilbúnir í tímatöku. Frá vinstri: Monika Jónasdóttir, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Erla Jónsdóttir og Gylfi Sigurðsson áhorfandi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1253
Þessi tvö bíða eftir safninu af fjalli í göngum 8. september 2012. Þeirra hlutverk Var að standa fyrir og beina safninu rétta leið í almenninginn við réttina hjá sunnan við Kjalarland. Fólkið er Páll Jóhannesson og Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016) sem bæði höfðu áhuga á kindum og fjárbúskap.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 270
Árni Halldór Eðvarðsson til vinstri og Ágúst Jónsson til hægri, starfsmenn Trésmiðju Helga Gunnarssonar, ganga frá nýsteyptum gangstéttarkanti við Norðurbraut.
Ólafur Bernódusson756
Myndin var tekin á sjómannadaginn 1. júní 2003. Lárus Ægir Guðmundsson til hægri hefur nýlokið við að heiðra Hallgrím Jónsson (d.1.4.2013) með silfurkrossi sjómannadagsins fyrir áratuga farsæl störf á sjó. Börnin njóta dagsins með nammið sitt.
Ólafur Bernódusson1013
Í september árið 2000 voru haldnir svokallaðir Orkudagar í Fellsborg sem fjöldi manns heimsótti. Þar kynntu mörg fyrirtæki starfsemi sína og framleiðsluvörur. Allt sem kynnt var tengdist á einhvern hátt orkuframleiðslu, notkun eða sparnaði. Myndin var tekin yfir salinn í Fellsborg en sýningin var líka í hliðarsalnum og andyrinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1041
19. september 2012 kom Luis E. Arreaga sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í heimsókn á Skagaströnd. Erindið var að veita Hallbirni J. Hjartarsyni viðurkenningu og heiðursskjal frá samtökum Kántrýtónlistarmanna í Bandaríkjunum - The Country Music Association - fyrir brautryðjendastarf Hallbjarnar á sviði kántrýtónlistar á Íslandi. Eins og sjá má á myndinni var húsfyllir í Kántrýbæ við þetta tækifæri eins og svo oft áður.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 240
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin á urðunarsvæði Norðuráss á Sölvabakkamelum. Á myndinni eru sveitastjórnamenn og aðrir gestir sem voru á svæðinu til að kynna sér starfsemina hjá hinu nýja fyrirtæki á opnunardeginum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1116
Sigurður Jónsson djúpt hugsi á tröppunum við heimili sitt að Fjallsminni 18. ágúst 2006. Hjá honum, íhugull og slakur, er besti vinur hans - kisi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 346
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005. Fullorðna fólkið á myndinni er Monika Jónasdóttir dökkklædd, Herdís Jakobsdóttir en þær voru starfsmenn leikskólans en karlinn er Carl Erik Lehman Jakobsen íþróttakennari. Strákurinn í rauðu fötunum er Sigurður Aron Björnsson og Viktor Örn Einarsson er í gráum bol en önnur börn á myndinni eru óþekkt.
Steinþór Karlsson 025
Óskar Þór Kristinsson var togarasjómaður í áratugi áður en hann kom í land og settist í helgan stein. Þessi mynd af Óskari var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1226
Guðný Eva Björnsdóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Steinþór Karlsson 036
Jóhannes Heiðmar Indriðason að störfum í vinnslunni á Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1209
Guðrún Guðmundsdóttir leiðir ömmustrákinn sinn Ellert Atla Þrastarson um Hólanesið í sumarblíðu í júlí 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 372
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005. Lengst til hægri er Guðlaug Grétarsdóttir starfsmaður Barnabóls en í þrautabrautinni er Jóna Margrét Sigurðardóttir næst okkur þá Harpa Hlín Ólafsdóttir og Valgerður Guðný Ingvarsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson740
Sumarið 2012 útbjuggu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar og aðrir sjálfboðaliðar, göngustíg gegnum skógræktarsvæði félagsins austan við tjaldsvæðið á Skagaströnd. Mikil vinna fór í að keyra út malarlagi í göngustíginn og raka stíginn til. Hann var síðan nefndur Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem í mörg ár var ötull formaður Skógræktarfélagsins. Á myndinni er Ólafur Bernódusson að raka til og slétta mölina á stígnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1030
Þessir tveir herramenn eru í heimsókn á opnu húsi á Nes listamiðstöðinni 21. febrúar 2012. Báðir hafa þeir þjónað listagyðjunni dyggilega gegnum árin. Til vinstri er Erlendur Magnússon útskurðarmeistari, myndhöggvari og lífskúnstner en til hægri er Sveinn M. Sveinsson kvikmyndagerðarmaður hjá Plús film.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1158
Ungt fólk vinnugallanum tyllir sér 11. júní 2009 á bekk utan við gömlu tunnuna meðan hún var ennþá notuð sem áhaldahús. Bæjarvinnufólkið er, frá vinstri: Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Sara Rut Fannarsdóttir, Viktor Örn Valdimarsson, Halla Björk Víðisdóttir og Kristbjörg Ragnheiðardóttir.
Hrefna Jóhannesdóttir007
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1062
Lárus Árnason (d. 21.5.2011) út túni hjá Ási 19. janúar 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1262
Ólafur Bernódusson kemur í söluskálann eftir heimsókn í leikskólann Barnaból í gervi jólasveins um miðjan desember 2018.
Ingibergur Guðmundsson 327
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni eru Ólafur Bernódusson til vinstri og Stefán Ægir Lárusson að rýna í teikningarnar áður en næstu skref eru tekin í framkvæmdunum.
Ólafur Bernódusson855
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni eru nemendur að gera sig klár fyrir gönguna við Fellsborg með kröfuspjöldin sín. Frá vinstri: óþekktur, Andrea Kristjánsdóttir, Brynjar Max Ólafsson, óþekktur, Sigurjón Elí Eiríksson, Sara Rut Fannarsdóttir, Alex Már Gunnarsson, Freyja Einarsdóttir, Kristbjörg Ragnheiðardóttir og Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1169
Rebekka Þórarinsdóttir við vinnu í júní 2009. Þorgerður Guðmundsdóttir kíkir inn í myndina til vinstri.
Steinþór Karlsson 009
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1 þegar verið var að sjósetja gúmmíbát með óþekktum mönnum sem voru að fara á svartfuglaskytterí á frívaktinni. Eins og sjá má þá heldur Arnar áfram að toga á meðan sjósett er og því er króknum ekki sleppt fyrr en untanborðsmótorinn er kominn í gang.
Ólafur Bernódusson764
Vorið 2004 héldu samsýningu á verkum sinum þau Slavko Velemir og Steinunn Steinþórsdóttir í íþróttahúsinu á Skagaströnd. Þar sýndi Steinunn glerlistaverk en Slavko var með verk úr járni. Á myndinni eru þau með eitt af verkum Steinunnar á milli sín.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 005
Fjör í rennibrautinni á leikskólanum Barnaból í júní 1977. Frá vinstri: Björn Sigurðsson, tvö óþekkt börn og Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir sem er að fara að renna af stað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 300
Krakkarnir njóta sumarblíðunnar um miðjan júní 2012. Frá vinstri: Óðinn Örn Gunnarsson, tvær óþekktar stúlkur, Stefanía Hrund Stefánsdóttir og óþekkt stúlka. Ef þú þekkir einhverja af óþekktu stúlkunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 279
Adolf H. Berndsen, í stiganum, og Sigurður Bjarnason hengja upp jólaseríu á Spákonuhofið í lok nóvember 2011.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1159
Grillveisla í uppsiglingu hjá bæjarvinnufólki 11. júní 2009 fyrir utan gömlu tunnuna meðan hún var ennþá notuð sem áhaldahús. Bæjarvinnufólkið er, frá vinstri: Þorgerður Þóra Hlynsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir og Valgerður Guðmunsdóttir.
Ólafur Bernódusson829
Hópur fólks í hlíðum Spákonufells á niðurleið eftir að hafa gengið kvöldgöngu á Spákonufellið - Þórdísargöngu - 4. júlí 2009 á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd.
Hrefna Jóhannesdóttir012
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda tekin af Daníel Davíðssyni Sauðárkrók einhverntíma á árunum 1902 - 1910 af Gísla Guðmundssyni "vert" á Sauðárkróki.
Ólafur Bernódusson866
Þráinn Bessi Gunnarsson 12. febrúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1413
Þessir tveir herramenn héldu sameiginlega ljósmyndasýningu í íþróttahúsinu í byrjun júní 2012. Arnar Ólafur Viggósson frá Skagaströnd til vinstri og Jón Hilmarsson þáverandi skólastjóri á Hofsósi til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 315
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er hluti af vegggrindunum risinn. Á myndinni er Ólafur Bernódusson ásamt börnum sem komu í heimsókn í fjallið. Frá vinstri: óþekktur, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Ólafur, Auður Eva Guðmundsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson, sem var handlangari hjá pabba sínum við bygginguna.
Hrefna Jóhannesdóttir001
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein af yngri myndunum en maðurinn og barnið eru óþekkt. Ef þú þekkir manninn eða barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1465
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) um borð í bát sínum Boggu í Vík Hu 6 um miðjan mars 2012. Líklega er hann að fara að setja Boggu á flot til að geta farið á grásleppu það vorið.
Séra Pétur og Dómhildur - safn201
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) tekur fyrstu skóflustungu að nýrri Hólaneskirkju. Í bókinni:"Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 - 2012" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um þennan atburð á bls 60: "Á Mikjálsmessu, 29. september 1979, tók þáverandi sóknarprestur, sr. Pétur Þ. Ingjaldsson, fyrstu fimm skóflustungurnar að nýrri kirkju á Hólanesi og mynduðu þær kross. Síðan flutti hann bæn og blessunarorð." Hjá Pétri stendur kona hans Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012).
Ólafur Bernódusson708
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni eru þáverandi 5. og 6. bekkur að sýna atriði sitt. Frá vinstri: Pascal Grüenberger, Ólafur Halldórsson, Daði Snær Stefánsson, óþekkt, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Ingólfur Eðvald Björnsson, Magús Sólberg Baldursson, Guðrún Helga Björgvinsdóttir, Ástríður Helga Magnúsdóttir og Jóhann Almar Reynisson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1099
Guðný Eva Björnsdóttir er óvenju þungbúin á þessari mynd frá 19. júní 2007.
Steinþór Karlsson 042
Óþekktur maður að hífa um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1102
Rakel Jensína Jónsdóttir í kofasmíði krakka á Skagaströnd í júlí 2007. Málaingavinnan reyndist mörgum nokkuð dýr fatalega séð.
Ólafur Bernódusson948
Bræðurnir Ari Jón Þórsson til vinstri og Þórarinn Kári Þórsson í Felsborg í níræðisafmæli ömmu sinnar Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2009.
Ólafur Bernódusson932
Kristbjörg Ragnheiðardóttir á vörðunni uppi á Borgarhausnum í skólaferð í lok maí 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 383
Adolf H. Berndsen málar þakið á gömlu sjoppunni og BP bensínstöðinni við Karlsskála í júlí 2013.
Ólafur Bernódusson872
Íbúar Bogabrautar tóku sig til um miðjan ágúst 2007 og komu saman í götugrill við Bogabraut 19. Á myndinni eru frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Helgi Gunnarsson, Ragnheiður Sigurjónsdóttir og Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 105
Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008) frá Reykholti.
1
…
163
164
165
166
167
Leita í myndasafninu
Leita