Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1388
Lengi var rekið skólamötuneyti í Kántrýbæ. Þessi mynd var tekin 8. nóvember 2012 af nokkrum strákum úr Höfðaskóla á leið í hádegismat. Strákarnir eru, frá vinstri: Viktor Már Einarsson, Páll Halldórsson, Birkir Freyr Gunnarsson, Elvar Geir Ágústsson (fjær), Daði Snær Stefánsson (nær) og Ísak Karl Tryggvason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1025
Þorrablótið 2012 var haldið 4. febrúar í Fellsborg. Á þessari mynd eru leikarar að syngja grín um Kántrýbæ og Hallbjörn J. Hjartarson. Frá vinstri: María Ösp Ómarsdóttir, Trostan Agnarsson, Elva Dröfn Árnadóttir, Guðni Már Lýðsson (fjær), Þorgerður Þóra Hlynsdóttir (nær), Hugrún Sif Hallgrímsdóttir (fjær), Halldór Gunnar Ólafsson (nær) í gerfi sem Hallbjörn kántrýkóngur, Sigríður Stefánsdóttir og Hafþór Smári Gylfason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1335
Sjómennirnir og tómstundabændurnir Jón Gunnarsson til vinstri og Rúnar Jósefsson til hægri á spjalli á bryggjunni í október 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1156
Ungir menn í vinnugallanum tylla sér 11. júní 2009 utan við gömlu tunnuna meðan hún var ennþá notuð sem áhaldahús. Strákarnir eru frá vinstri: Kristján Ýmir Hjartarson, Almar Freyr Fannarsson, Eyþór Kári Egilsson og Brynjar Max Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1100
Guunnar Albertsson heima hjá sér á Oddagötunni 23. júlí 2007.
Arnar HU 1 - safn 52
Reglulega eru haldnar slökkvi- og björgunaræfingar um borð í Arnari HU 1. Þessi mynd var tekin á einni slíkri þar sem búið er að búa um messann, Evu Dís Gunnarsdóttur, á börum til flutnings. Ingimar Vignisson er vinstra megin við börurnar og Kristján Blöndal hægra megin í ljósum bol. Aðrir eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson768
Ágúst Ómarsson togaraskipstjóri við stjórnvölinn á björgunarskipinu Húnabjörg í apríl 2005. Ágúst fer gjarnan í útköll sem skipstjóri ef hann er í landi og í fríi frá togara-skipstjórninni.
Séra Pétur og Dómhildur - safn205
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin né hvert tilefnið var. Fólkið var allt sóknarbörn séra Péturs Þ. Ingjaldssonar (d.1.6.1996) sem situr til vinstri í efri röð. Við hlið hans er eiginkona hans, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og síðan koma hjónin á Hofi, Aðalheiður Magnúsdóttir (d.?) og Hilmar Árnason (d.16.3.1988). Framan við þau krjúpa hjónin Alda Friðgeirsdóttir og Sigurður Pálsson sem bjuggu lengi í Króksseli.
Ólafur Bernódusson991
Þessar fjórar vinkonur voru á leið á skólaball þegar þessi mynd var tekin 7. maí 2010. Frá vinstri: Sigurlaug Máney Sæmundsen, Heba Líf Jónsdóttir, Sigubjörg Katla Valdimarsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 281
Fundur hjá Lionklúbbi Skagastrandar 21. desember 2011. Frá vinstri: Guðjón Guðjónsson, Árni Ólafur Sigurðsson og Finnbogi Guðmundson.
Ingibergur Guðmundsson 325
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er stund miklli stríða eftir að búið er að einangra skálann með glerull. Skíðaáhugamennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Pétur Eggertsson, Ólafur Bernódusson og Magnús B. Jónsson.
Ólafur Bernódusson 2 719
Víðavangshlaup umf.Fram var haldið í maí 2001. Lárus Ægir Guðmundsson stjórnaði hlaupinu af röggsemi en hann er lengst til hægri á myndinni. Hér er hann að raða ungum stúlkum upp við rásmarkið. Lengst til vinstri er Ingibergur Guðmundsson sem var tímavörður en stúlkurnar eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1441
Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson til hægri á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ í janúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 500
Þröstur Líndal Gylfason til vinstri og Ómar Ingi Ómarsson til hægri fyrir utan gömlu Tunnuna í júlí 2004 en þá var Tunnan notuð sem áhaldahús sveitarfélagsins. Þar er nú Spákonuhofið til húsa. Þegar myndin var tekin voru þeir félagar starfsmenn Höfðahrepps.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1174
Vinir og lengi samstarfsmenn á spjalli í lok maí 2010 utan við gamla kaupfélagið. Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri. Adolf var oddviti Höfðahrepps (Sveitarfélagsins Skagaströnd) 1978 - 1990 og Lárus var sveitarstjóri hreppsins lengst af þess tíma.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 347
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Viktori Erni Einarssyni í kraftastellingu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1124
Einar Karlsson 30. desember 2002 í kaffi í áhaldahúsinu.
Ólafur Bernódusson796
Í nokkur ár veiddist vel af hörpudiski í Húnaflóa og voru gerðir út nokkrir bátar á þessar veiðar yfir sumarið og fram á haustið. Skelin var m.a. unninn á Skagaströnd og skapaði allmikla atvinnu. Smátt og smátt dró úr veiðunum þar til svo kom að þær hættu að borga sig. Þessi mynd var tekin 16. september 2006 af löndun á skel, líklega úr Arnarborg Hu 11. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur J. Björnsson, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðbjartur Sævarsson, Vilhjálmur Skaftason og um borð að hífa er Marías Bjarni Viggósson
Árni Geir Ingvarsson - safn 1352
Feðgarnir Albert Ingi Haraldsson til vinstri og Haraldur Max Árnason til hægri í lok maí 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 446
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestri úr nokkrum jólabókum á aðventunni. Eru þá fengnir nokkrir upplesarar af íbúum Skagastrandar til að lesa stutta kafla úr nýjum bókum ársins. Á þessari mynd, sem tekin var á slíku upplestrarkvöldi 11. desember 2013 í Bjarmanesi, les Trosta Agnarsson úr ljóðabókinni: Í norðanvindi og vestanblæ eftir Rúnar Kristjánsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1460
Árni Ólafur Sigurðsson ber á grindverkið við húsi sitt á Ránarbrautinni í júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 375
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005. Stúlkan á myndinni er Telma Jónasdóttir en Carl Erik Lehman Jakobsen íþróttakennari er til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson975
Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna eða SH var stofnað í febrúar 1942. 1992 hélt SH upp á 50 ára afmæli sitt með því að bjóða starfsfólki hraðfrystihúsanna, sem mynduðu sölumiðstöðina, til kaffiveislu. Þessi mynd var tekin í veislunni í kaffistofu Hólaness hf. Hægra megin við borðið sitja talið frá hægri: Guðrún Pálsdóttir, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Sveinn Jónasson, óþekktur og Vilborg Magnúsdóttir. Við enda borðsins situr Kristinn Guðmundsson. Vinstra megin við borðið má þekkja Birgir Árnason (d.2.2.2005) og konu hans Ingu Þorvaldsdóttur (d.14.12.2012). Í hvítri skyrtu með kaffikönnur í höndunum er Lárus Ægir Guðmundsson sem var framkvæmdastjóri Hólness hf á þessum tíma. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson780
Göngufólk á göngu í nágrenni Skaftafells í áttina að Morsárjökli. Frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Gunnar Svanlaugsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Sigríður Stefánsdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Lára Guðmundsdóttir, Páll Halldórsson, Inga Sigurðardóttir og Torfhildur Rúna Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1190
Gunnar Albertsson vélstjóri og Guðrún Guðmundsdóttir verslunarkona fyrir utan heimili Gunnars að Oddagötu 5, 22. júlí 2010.
Ólafur Bernódusson882
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst af mæðgunum Elvu Þórisdóttur og Ásdísi Öddu Ólafsdóttur þegar þær komu í heimsókn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1447
Hjónin Guðrún Sigurðardóttir og Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ í janúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1288
Stefán Sveinsson lagar húfuna á dóttur sinni Stefaníu Hrund Stefánsdóttur meðan hann spjallar við Jón Ólaf Sigurjónsson. Myndin var tekin um miðjan desember 2012 þegar þeir voru að sækja sér jólatré í Gunnfríðastaðaskóg.
Steinþór Karlsson 012
Guðmundur Henry Stefánsson við vinnu á vinnsludekkinu í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1071
Deilt er um hvort hundurinn sé besti vinur mannsins eða hvort það sé hesturinn. Þetta fólk var úti að labba með besta vin sinn? í febrúar 2010 og áttu spjall við tónlistarskólann. Sigrún Lárusdóttir til vinstri og Pétur Eggertsson til hægri.
Ólafur Bernódusson881
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst af gestum í þorpinu. Frá vinstri: Aðalheiður Sif Árnadóttir, Róbert Freyr Gunnarsson og Halla Kristín Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1350
Laufey Inga Stefánsdóttir nýútskrifuð stúdent í lok maí 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1291
Ísak Andri Jónsson að fá sér kakósopa í Gunnfríðarstaðaskógi 16. desember 2012 verandi í jólatrés-leiðangri með foreldrum sínum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1211
Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Norðurár, sem rekur sorpmóttökuna í Stekkjarvík, við vinnu sína 21. janúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1402
Myndin var tekin á fimleikasýningu sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 459
Myndin var tekin í jólamessu í Hofskirkju á jóladag 2013. Séra Bryndís Valbjörnsdóttir er fyrir altarinu en kirkjukór Hólaneskirkju syngur við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur. Í kórnum eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Guðlaug Grétarsdóttir, Helga Dögg jónsdóttir, Sigurður Bjarnason, Árdís Indriðadóttir, Ólafur Bernódusson (fjær), Herdís Jakobsdóttir (nær), Dagný Hannesdóttir, Hafþór Gylfason, Þórarinn Grétarsson (fjær), Ragnhildur Ragnarsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hildur Ingólfsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1323
Á lokadegi í bæjarvinnunni 9. ágúst 2012 skemmtu unglingarnir sér við að renna sér í froðurennibraut sem komið var fyrir í brekkunni norðan við íþróttavöllinn. Á myndinni eru tveir í brautinni og aðrir bíða uppi eftir að röðin komi að þeim.
Séra Pétur og Dómhildur - safn194
Fermingarbörn með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) í Hólaneskirkju eldri á fermingardegi sínum 29. apríl 1979. Í fremri röð eru frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir?, Björk Sveinsdóttir, séra Pétur, Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Margrét Ólafsdóttir. Í aftari röð eru frá vinstri: Ingólfur Sveinsson, Guðbjartur Sævarsson, Hjörtur Þórarinn Sigurðsson (d.9.5.2015), Óli Axel Óskarsson, Valdimar Viggósson, Rögnvaldur Ottósson og Sigurður Jónsson.
Ólafur Bernódusson772
Guðmundur Árnason (d.14.10.2009) í göngutúr á Oddagötu í lok júní 2005.
Steinþór Karlsson 005
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Á henni eru þrír skipverjar að sjósetja gúmíbát til að fara á svartfuglaskyttetrí. Mennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1279
Þór Arason (d.11.8.2018) til vinstri, Sverrir Brynjar Berndsen í miðið og Adolf H. Berndsen til hægri koma fyrir auglýsingaskilti fyrir Spákonuhofið á Skagaströnd um miðjan júlí 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 271
Drengirnir tveir, Ólafur Halldórsson til vinstri og Almar Atli Ólafsson til hægri, fylgjast með framkvæmdum við gerð á gangstéttarkanti við Norðurbraut í lok ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1334
Starfsmenn Vinnumálastofnunar á Skagaströnd líta upp úr önnum dagsins í hólunum framan við Stjórnsýsluhúsið um miðjan ágúst 2012. Á myndinni eru frá vinstri: Borghildur Sigmunds- Þorbjargardóttir, Kolbrún Eðvarðsdóttir (fjær), Runólfur Bjarni Gautason (fjær), Eyþór Theódórsson (nær), Sigurlaug Lára Ingimundardóttir, og Þórunn Valdís Rúnarsdóttir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1128
Kristín Sigurðardóttir Blöndal við vinnu sína á Hreppsskrifstofunni 28. nóvember 2002.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1482
Vinkonurnar Herdís Jakobsdóttir til vinstri og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir til hægri á Hnappstaðatúni 30. nóvember þegar kveikt var á jólatré ársins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1040
19. september 2012 kom Luis E. Arreaga sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í heimsókn á Skagaströnd. Erindið var að veita Hallbirni J. Hjartarsyni viðurkenningu og heiðursskjal frá samtökum Kántrýtónlistarmanna í Bandaríkjunum - The Country Music Association - fyrir brautryðjendastarf Hallbjarnar á sviði kántrýtónlistar á Íslandi. Af þessu tilefni var húsfyllir í hófi sem haldið var í Kántrýbæ þennan dag. Á myndinni sitja þeir hlið við hlið fyrir miðju á fremsta bekk Hallbjörn J. Hjartarson og Luis E Arreaga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1480
Kolbrún Guðnadóttir mætt með dóttur sína Þórdísi Kötlu Atladóttur á Hnappstaðatún til að fylgjast með þegar kveikt var á jólatrénu 30. nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1346
Eftir vikulangt dansnámskeið í Höfðaskóla og Barnabóli var haldin danssýning 12. október 2012 þar sem nemendur sýndu það sem þeir höfðu lært. Á þessari mynd dansa, frá vinstri: Stefanía Hrund Stefánsdóttir, Gabríel Goði Tryggvason og Sólveig Erla Baldvinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1322
Systurnar frá Árbakka 16. maí 2012. Herdís Jakobsdóttir til vinstri og Þórhildur Jakobsdóttir til hægri.
Skúli Tómas Hjartarson
Skúli Tómas Hjartarson prúðbúinn með óþekktri stúlku. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1268
Systurnar Kolbrún Jónsdóttir til vinstri og Sóley Sif Jónsdóttir uppi á steininum um miðjan júlí 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1483
Guðmundur Henry Stefánsson til vinstri og Eiríkur Lýðsson til hægri eru báðir sjómenn sem báðir eiga börn. Líklega hafa þeir verið að fylgja börnum sínum þegar myndin var tekin á Hnappstaðatúni 30. nóvember 2012 en þá var kveikt á jólatré ársins.
Ólafur Bernódusson789
Þessi hákarl kom á línuna hjá Öldunni Hu 112 16. janúar 2006. Hjá hákarlinum stendur Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður og eigandi Öldunnar. Hákarlinn var auðvitað skorinn og verkaður til að gleðja bragðlaukana haustið 2006.
Ólafur Bernódusson797
Myndin af þessum prúðbúnu stúlkum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Freyja Dís Jóhannsdóttir, Hekla Guðrún Þrastardóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir og Ástríður Helga Magnúsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 403
8. ágúst 2013 var Arnar Hu 1 að leggja af stað í túr en Benni Ólafs að koma úr stuttum túr. Um borð í Benna Ólafs er eigandinn, Ólafur Bernódusson. Eins og sjá má er töluverður stærðarmunur á þessum tveinmur skipum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1181
Fólk í skrifstofutækninámi í Höfðaskóla í apríl 2010. Fremst frá vinstri: Jóhanna Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Guðrún Magnúsdóttir og Guðbjörg Eyjólfsdóttir.Miðröð frá vinstri: Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir, Guðrún Pálsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og óþekkt. Aftasta röð frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, Kristín Jóna Sigurðardóttir, Kristín Björnsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1146
Á myndinni er Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) standandi til vinstri en hitt fólkið á henni er ekki þekkt. Ekki er heldur vitað hvenær né hvar hún var tekin en ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1457
Agnes Sævarsdóttir kennari í Höfðaskóla við vinnuborðið sitt að spjalla við Björn Inga Óskarsson tölvueftirlitsmann og netstjóra skólans. Myndin var tekin 1. febrúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 413
Vinirnir Hjörleifur Júlíusson til vinstri og Adolf J. Berndsen (d. 27.8.2018) til hægri á spjalli 23. ágúst 2013.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 172
Ekki er vitað um tilefni þessarar myndatöku sem hefur líklega verið kringum 1964. Þá var hafskipabryggjan í góðu lagi eins og sjá má og öll mannvirki síldarverksmiðjunnar enn uppi standandi; löndunarkraninn, færibandið, þrærnar og verksmiðjan sjálf. Fólkið á myndinni er Hörður Ragnarsson, barnið er líklega Vilhelm B. Harðarson og konan hjá þeim Aðalbjörg Hafteinsdóttir. Konan í gráu kápunni er óþekkt. Svarti báturinn undir löndunarkrananum er Keilir sem var í eigu Hólaness hf.
1
…
163
164
165
166
167
Leita í myndasafninu
Leita