Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason905
Árbakkasteinninn stendur upp úr hafísnum sem annars þekur Húnaflóann í grennd við Skagaströnd. Myndin var sennilega tekin Hafísárið 1965.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn027
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) í hlutverki sínu sem skoskur hershöfðingi á eftirlaunum í leikritinu Gísl. Gísl var sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar veturinn 1979 - 1980 og sýnt á Skagaströnd og í nágrannabyggðarlögunum við ágæta aðsókn. Myndina tók Jónas Baldursson.
Guðmundur Guðnason031
Rósberg G. Snædal (d. 9.1.1983). Hann var bróðir Guðmundar Guðnasonar (21.11.1988) frá Ægissíðu sem átti þessa mynd.
Guðmundur Guðnason040

Myndin er af fólki sem lengi var í forystu á margvíslegan hátt á Skagaströnd. Fólkið er greinilega á fundi líklega stjórn sparisjóðsins eða fundur í Verkalýðsfélaginu. Myndin, sem er líklega tekin 1963 eða 1964, var tekin í afgreiðslu Sparisjóðs Skagastrandar í Miðnesi. Frá vinstri á myndinni eru: Björgvin Jónsson í Höfðabrekku (Bankastræti 10), Pálmi Sigurðsson í Pálmalundi (Hólabraut 27), Kristófer Árnason Sunnuhvoli (Sunnuvegur 1), Guðbjartur Guðjónsson Vík (Strandgata 4), Ingvar Jónsson hreppstjóri Skagavegi 2 (Norður - skála), Ólafur Guðlaugsson Sævarlandi, Kristján Hjartarson Grund, Haraldur Sigurjónsson Iðavöllum, Jóhanna Sigurjónsdóttir Héðinshöfða (Skagavegur 5 ?), Björgvin Brynjólfsson Miðnesi, Jóhanna Gunnlaugsdóttir Hólabraut 5.

Guðmundur Guðnason068
Fjóla Sigurðardóttir fá Höfðakoti. Myndin var tekin á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason022

Þessi mynd er sú þriðja í fimm mynda röð frá Guðmundi Guðnasyni. Hinar myndirnar eru númer 2543, 2544, 2546 og 2547. Myndirnar sýna Ole Aamundsen hjálpa Lárusi Jónssyni lækni við að klifra yfir milligerði í Spákonufellsrétt. Lárus er prúðbúinn með hatt og sker sig þannig úr öðrum sem eru að störfum í réttinni.

Á þessari mynd réttir Ole Lárusi hjálparhönd og klifrið hefst yfir milligerðið. Drengurinn sem fylgist sposkur með er óþekktur.

Guðmundur Guðnason099
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson fyrir altarinu í Höskuldsstaðakirkju. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason930
Adolf J. Berndsen við vörubílinn sinn. Réttarholt í baksýn.
Guðmundur Guðnason016

Á myndinni er Guðrún Einarsdóttir með þrjú af barnabörnum sínum, börn Guðmanns Magnússonar bónda á Vindhæli. Frá vinstri: Guðrún Guðmannsdóttir, Guðrún Einarsdóttir sem situr með Einar Guðmannsson og Anna Guðmannsdóttir.

Guðmundur Guðnason127
Þetta unga fólk er í fjallgöngu. Lengst til hægri er Fjóla Jónsdóttir en hin eru óþekkt en eru þó sennilega frændsystkini Fjólu - Snædal börn. Ef þú þekkir þeu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason136
Sumarréttir í Hofsrétt 1965. Fénu var smalað til réttar um mitt sumar til að rýja það. Á myndinni bera saman bækur sínar Lúðvík Kristjánsson frá Steinholti (með sígarettu), Lárus Árnason í Ási og Björn Sigurðsson á Jaðri sem snýr baki í myndavélina.
Guðmundur Guðnason066
Sigfríður Konráðsdóttir, dóttir Konráðs Guðmundssonar og Ragnhildar Sigurjónsdóttur sem bjuggu í risinu í Herðubreið á Skagaströnd. Konráð var oft kenndur við Garðhús eða Konnabæinn þar sem hann átti heima í æsku.
Guðmundur Guðnason974
Fermingarbörn ganga til kirkju 1965. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Ísleifur Þorbjörnsson, Karl Lúðvíksson, Kristófer Einarsson og Ólafur Bernódusson
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn038
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Á þessari mynd eru þeir Gunnar Sveinsson stjórnarmaður í Hólanesi hf og Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf á góðri stund. Lengst til vinstri er Sigubjörn Björgvinsson og einnig sér í Sigurjón Guðbjartsson stjórnarmann í Hólanesi hf á milli þeirra félaga.
Guðmundur Guðnason106
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Myndin er tekin á bryggjunni á Ögri í Ísafjarðardjúpi. Á henni þekkist Guðjón Ebbi Sigtryggsson en hinir tveir eru óþekktir. Ebbi var reyndar ekki þátttakandi í ferðinni með Skagstrendingunum heldur var hann þarna á ferð í einkaerindum.
Guðmundur Guðnason044
Jökull Sigtryggsson frá Núpi í Laxárdal
Guðmundur Guðnason060
Magnús Lárusson situr með bróður sinn Grím Valdimar Lárusson. Báðir frá Grund.
Guðmundur Guðnason038
Guðrún Árnadóttir líklega 1963.
Guðmundur Guðnason033

Guðmundur Guðnason (f. 11.3.1923 - d. 21.11.1988) frá Ægissíðu með harmónikuna sína fyrir utan einhver skepnuhús að Syðri Reykjum 24. nóvember 1943. Guðmundur, sem var alinn upp á nokkrum bæjum í Laxárdal, var bæjarpóstur á Skagaströnd í áratugi og áhugaljósmyndari sem tók ógrynni af ljósmyndum. Var hann gjarnan fenginn inn á heimili til að taka fjölskyldumyndir því ekki var um neina ljósmyndastofu að ræða. Í þessum tilgangi ferðaðist Mundi póstur, eins og hann var oftast kallaður, fram um allar sveitir því hann var vinsæll og vinamargur. Mundi var kirkjurækinn svo af bar og söng í kirkjukór Hólaneskirkju þangað til hann dó. Hann var líka organisti í einhverjum kirkjum í nágrenni Skagastrandar og hélt skrá yfir útvarpsmessur um árabil. Þar skráði Mundi hvaða sálmar voru sungnir í hverri messu, hver predikaði og eitthvað fleira sem honum fannst skipta máli. Þegar Mundi varð fimmtugur hélt kirkjukór Hólaneskirkju honum fjölmennt kaffisamsæti. Þá orti bróðir hans, Rósberg G. Snædal, eftirfarandi vísu um hann, sem er frábær mannlýsing á þessu vinsæla góðmenni:

Lágur og þrekinn þrammar bæja milli

þambar kaffi, nýtur margra hylli.

Í hálfa öld þú hefur þolað gjóstinn

með harmoniku, myndavél og póstinn. &nbs
Guðmundur Guðnason131
Aftan á þessari mynd stendur: "Þetta erum við hjónin og hundurinn". Þá er bara spurningin hver eru hjónin? Myndin virðist vera tekin erlendis en það er þó ekki víst. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason012
Guðrún Guðmannsdóttir frá Vindhæli.
Guðmundur Guðnason117
Ekkert er vitað um þessa mynd frá sundlauginni á Skagaströnd en greinilega hefur eitthvað mikið staðið til vegna áhorfendaskarans sem fylgist með sundfólkinu. Ef þú veist eitthvað um þessa mynd vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn026

Hjónin Unnur Björnsdóttir (d.14.12.1990) og Kristján Sigurðsson (d.3.11.1966) frá Þórshamri.

Guðmundur Guðnason094
Gylfi Sigurðsson Bogabraut 12.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn003
Þessi mynd er tekin 1949 . Á henni eru systurnar Þórunn Bernódusdóttir til vinstri og Halla Björg Bernódusdóttir til hægri.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn029
Veiðimenn við Blöndu áður en hún var virkjuð. Algengt var að menn keyptu sér saman eina stöng því áin þótti erfið. Hún var alltaf kolmórauð eins og kakósúpa og mest var veitt á spún af stærstu gerð þannig að oftar en ekki var laxinn húkkaður tilviljanakennt. Menn skiptust því á um að veiða en settust bara og fylgdust með félaganum meðan þeir voru ekki sjálfir að kasta fyrir laxinn og voru tilbúnir að stökkva af stað til að aðstoða við löndunina. Þá var líka algengt að áhugasamir gestir kæmu í heimsókn til að fylgjast með hvernig veiðin gengi. Á þessari mynd frá 1982 eru frá vinstri: Jóhann Björn (Baddi) Þórarinsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001) allir frá Skagaströnd og Lárus Jónsson Blönduósi (frá Bakka í Vatnsdal).
Guðmundur Guðnason019
Myndin er tekin fyrir neðan bæinn að Vindhæli af elstu börnum Guðmanns Magnússonar bónda þar og konu hans Maríu Ólafsdóttur. Börnin eru, frá vinstri: Anna Guðmannsdóttir, Einar Guðmannsson og Guðrún Guðmannsdóttir.
Guðmundur Guðnason113
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Myndin er gömul því ekki er búið að byggja löndunarkranann á höfninni og hann var reistur einhverntíma á árunum 1943 - 1945 og því er myndin eldri en það. Ef þú þekkir húsin á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason026
Ásgeir Ásgeirsson forseti Íslands á ferð á Akureyri 29. ágúst 1962. Aðrir í myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason940
Bjarmaland, Skagavegur 14 um 1960. Maðurinn á myndinni er Sigurður Guðmonsson í Þórsmörk.
Guðmundur Guðnason968

Myndin er tekin á árunum 1958 - 1960. Engilbert Óskarsson flutningabílstjóri og Sigríður Helgadóttir kona hans, sem bjuggu í Skálholti, voru að flytja til Reykjavíkur og héldu uppboð á nokkrum hluta muna sinna áður en þau fóru. Slík uppboð voru nokkuð algeng á þessum árum og voru ávallt vel sótt af fólki sem kom til að bjóða í hluti og reyna að gera góð kaup. Á þessari mynd má þekkja Elínborgu Árnadóttur frá Sólheimum, lengst til vinstri. Elísabet Frímannsdóttir frá Jaðri er með skuplu yfir hárinu og hjá henni stendur Margrét Sigurðardóttir úr Fjallsminni. Framan við Elísabetu sér í höfuð dóttur hennar Kristínar Björnsdóttur. Hallbjörg Jónsdóttir stendur beint fyrir neðan rörið sem er uppi á skúrþakinu. Fremst fyrir miðju er Björgvin Guðmundsson frá Melstað og líklega Margrét kona hans með honum. Helga Berndsen stendur hægra megin á myndinni í kápu með loðkraga og hægra megin við hana er Elísabet (Elsa) Kristjánsdóttir. Milli Björgvins og Helgu Berndsen sést í Þóreyju Jónsdóttur. Lengst til hægri, ofarlega, er Sigurður Árnason. Drengur sem horfir fram, framarlega á myndinni til hægri, í ljósri peysu, er Rúnar Hartmannsson.

Guðmundur Guðnason144
Á myndinni er Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu með óþekktri vinkonu sinni (?Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003)?). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú veist hver konan er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason134
Bernódus Ólafsson kíkir eftir eyrnamarki í Hofsrétt 1965.
Guðmundur Guðnason907
Séra Jón Kr. Ísfeld kynnir á hestamannamóti í Húnaveri 1964.
Guðmundur Guðnason955
Dansað við undirleik hljómsveitar á árshátíð Höfðaskóla
Guðmundur Guðnason089
Hjónin Jakob Guðmundsson og Helga Hermannsdóttir á Árbakka stilla sér upp við styttuna af Snorra Sturlusyni í Reykholti í Borgarfirði.
Guðmundur Guðnason039
Hross réttuð í Spákonufellsrétt. Maðurinn, sem ber yfir bakið á skjótta hestinum fremst á myndinni, er Páll Jóhannesson frá Sunnufelli ( Sunnuvegur 3) . Aðrir eru óþekktir.
Björn Bergmann 012
Björgvin Jónsson við vinnu sína í stöðinni 1970 - 1971. Báturinn er Ásdís, fyrsta nýsmíði stöðvarinnar.
Ævar Axelsson - safn025
María Gísladóttir fædd 20 júní 1861.
Björn Bergmann 005
Ásdís og Guðmundur Þór í smíðum í skipasmíðastöðinni 1970 - 1971. Þetta voru tveir fyrstu bátar stöðvarinnar. Mennirnir eru frá vinstri: óþekktur, Pálmi Sigurðsson, Sveinn Ingi Grímssoin, Hinrik Jóhannesson, Karl Guðmundsson og Eðvarð Ingvason.
Guðmundur Guðnason091
Allt klárt fyrir vígslu Höfðaskóla haustið 1958. Jón Sölvason (d. 17.8.1969) frá Réttarholti er gráhærði maðurinn lengst til vinstri en Strákurinn til hægri er Rúnar Jósefsson úr Reykholti.
Guðmundur Guðnason055
Tveir bílstjórar við fararskjóta sína. Maðurinn í ljósu skyrtunni mun vera Gunnar Jónsson (d.15.6.2003) frá Dalvík sem ók bæði eigin bifreiðum og var líka bílstjóri hjá Norðurleið. Ef þú þekkir hinn manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason936

Myndin er tekin á árunum 1958 - 1960. Engilbert Óskarsson flutningabílstjóri og Sigríður Helgadóttir kona hans voru að flytja til Reykjavíkur og héldu uppboð á nokkrum hluta muna sinna áður en þau fóru. Slík uppboð voru nokkuð algeng á þessum árum og voru ávallt vel sótt af fólki sem kom til að bjóða í hluti og reyna að gera góð kaup. drengurinn fyrir miðri mynd er Sævar Fossdal Hafsteinsson úr Dvergasteini og aftan við hann systir hans Matthildur Hafsteinsdóttir en ljóshærði drengurinn til hægri er Ólafur Bernódusson úr Stórholti. Strákurinn sem styður við barnavagninn er Karl Lúðvíksson úr Steinholti en sá lengst til vinstri er Hinrik Jóhannesson frá Ásholti. Milli þeirre er Sigrún Jósteinsdóttir frá Sólvangi. Lengst til hægri er Kristján Hjartarson með kaskeiti og horfir upp. Aðrir á myndinni eru óþekktir.

Guðmundur Guðnason081
Skrúðganga kemur til kirkju neðan frá höfn á sjómannadegi. Ártalið er óþekkt.
Björn Bergmann 013
Smíði á Ásdísi og Guðmundi Þór 1970 -1971. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Eðvarð Ingvason, Seinbjörn Blöndal, Jón Kr. Jónsson, Guðbjartur Guðjónsson og Pálmi Sigurðsson.
Guðmundur Guðnason112
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Á myndinni er fólk að koma sér inn í rútu í Ögri. Maðurinn sem krýpur er Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) og hjá honum stendur konan hans Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) (með slæðu). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason001
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason145
Sumarréttir í Hofsrétt 1965 -rúningur. Stúlkan á myndinni er Kristín Sigurðardóttir, maðurinn með hvítu húfuna er Sigurbjörn Kristjánsson, sem er að rýja kind en Jónína Valdimarsdóttir heldur í kindina. Öll áttu þau heima á Kárastöðum á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason095
Þetta fólk er greinilega áramótadansleik líklega í félagsheimilinu á Blönduósi. Frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir Kárastöðum, Jón Kr. Jónsson Laufási, Fjóla Sigurðardóttir (d. 15.7.1988) Laufási, Þórey Ólafsdóttir Árbakka og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn002
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) með verðlaunahrútinn Sóma. Ólafur Bernódusson hjálpar til að halda við Sóma. Myndin er tekin ca 1960 í fjárhúsunum við Bjarmaland.
Guðmundur Guðnason063
Þrjú óþekkt börn. Ef þú þekkir börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason090
Sjónvarpsöldin gengin í garð. Í sjónvarpinu er séra Ólafur Skúlason. Takið eftir að sjónvörpin eru tvö.
Guðmundur Guðnason046
Tekið til altaris í Holtastaðakirkju við fermingu Ólafar Jónsdóttur frá Ártúnum og Rannveigar Runólfsdóttur í Hvammi í Langadal. Fólkið sem fylgir þeim til altaris er óþekkt.
Guðmundur Guðnason065
Aftan á þessari mynd stendur: "Frá skemmtiferð skólabarna í Engihlíðarhreppi til Reykjaskóla í Hrútafirði 1939". Gaman er að skoða farartækið sem notað var í þessari skemmtiferð. Því miður eru allir á myndinni óþekktir nema Guðmundur Guðnason sem stendur farman við aftari dyrnar á farþegakassanum. Hann er með derhúfu og röndótt bindi. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason993
Jarðýta mokar snjó við Ægissíðu þar sem Guðmundur ljósmyndari þessarar myndar átti heima. Í baksýn sést í Melstað hinum megin við götuna. Maðurinn á myndinni er sennilega Guðni Sveinsson faðir Guðmundar.
Guðmundur Guðnason032
Rúnar Jósefsson í Reykholti.
Ævar Axelsson - safn019
Þetta prúðbúna fólk er, talið frá vinstri: Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002), Guðný Finnsdóttir kona hans, Hulda Pálsdóttir og Axel Helgason (d. 16.7.1971) frá Læk. Tilefni gleðskaparins var 50 ára afmæli Margrétar Jóhannesdóttur (d. ?) í Lundi en hún var sambýliskona Ole Aamundsem (d. ?). Ole talaði af virðingu um Margréti sambýliskonu sína, sem hann alltaf kallaði "jómfrúna".
Ævar Axelsson - safn030
Sigríður Björnsdóttir á sumardegi.
Guðmundur Guðnason009
Ekkert er vitað um þessa mynd né næstu mynd (nr. 3916) sem tekin er á sama stað en af öðrum mönnum. Ef þú veist hvar myndin er tekin eða hverjir eru á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Línan í forgrunni myndarinnar er einhver skemmd í myndinni en ekki planki.
Ævar Axelsson - safn026
Sigríður Guðmundsdóttir systir Jóns Guðmundssonar sem lengi bjó á Sölvabakka.
1

25
26
27

167
Leita í myndasafninu
Leita