Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson050
Kristín Jónsdóttir spilar á saxófón á jólatónleikum tónlistarskólans í Höfðaskóla 1986. Jane Sillar kennari spilar undir á píanóið
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn043
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Tveir töffarar frá Skagaströnd tylla sér niður á útikaffihúsi í London. Benóný Gunnarsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri.
Ævar Axelsson - safn031
Sylvía Hrólfsdóttir á barnsaldri.
Guðmundur Guðnason024
<P>Þessi mynd er sú síðasta í fimm mynda röð frá Guðmundi Guðnasyni. Hinar myndirnar eru númer 2543, 2544, 2545 og 2546. Myndirnar sýna Ole Aamundsen hjálpa Lárusi Jónssyni lækni við að klifra yfir milligerði í Spákonufellsrétt. Lárus er prúðbúinn með hatt og sker sig þannig úr öðrum sem eru að störfum í réttinni. </P><br><P>Lárus á síðustu metrunum með að komast yfir milligerðið. Eitthvað hefur það gengið brösuglega a.m.k. hefur hann misst hattinn og Ole er glottaralegur við að aðstoða Lárus. </P>
Guðmundur Guðnason121
Reiptog á sjómannadegi 1970. Mennirnir sem taka á við reipið eru: Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d. 29.12.2013) og Gunnar Sveinsson. Mennirnir tveir á endanum eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari126
Lokahátíð verkstjóra vinnuskólans á Skagaströnd. Frá vinstri: Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri, Guðmundur Guðmundsson, Lilja Kristinsdóttir, Ragnar Smári Ingvarsson, Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Þórðardóttir, Rósa Björg Högnadóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir. Myndin er tekin 14. ágúst 1998 í Kántrýbæ.
Guðmundur Guðnason049
Hof á Skaga. Kirkjan er til vinstri og gamla íbúðarhúsið til hægri en skemma næst okkur. Gamla húsið er nú horfið en nýtt reist í staðin.
Óþekktur ljósmyndari128
Lokahátíð vinnuskólans á Skagaströnd 1998. Á myndinni eru starfsmennirnir og hjónin Lilja Kristinsdóttir og Guðmundur Guðmundsson. Myndin var tekin í Kántrýbæ 14. ágúst 1998.
Guðmundur Guðnason978
Hjónin Margrét Jóhannesdóttir og Ole Aamundsen í Lundi.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn030
Þátttakendur á félagmálanámskeiði á Skagaströnd fengu svona skírteini að námskeiðinu loknu. Á myndinni eru standandi frá vinstri: Jóngeir Jónatansson, Bernódus Ólafsson, Jón Ingi Ingvarsson, Friðjón Guðmundsson, Helgi Gunnarsson, Hallbjörn Björnsson, Sveinn Ingólfsson, Jón Pálsson, Björgvin Jónsson, Jón Jónsson og Kristján Hjartarson. Sitjandi frá vinstri: Þorgerður Guðmundsdóttir, Ólína Steingrímsdóttir, Baldur Óskarsson leiðbeinandi á námskeiðinu, Björk Axelsdóttir, Soffía Lárusdóttir og Guðmundur Jóhannesson.
Guðmundur Guðnason120
Pálmi Sigurðsson trésmiður, sem lengi bjó í Pálmalundi (Hólabraut 27).
Guðmundur Guðnason043
Þetta par er óþekkt. Ef þú veist hver þau eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn037
Konur úr kvenfélaginu Einingin á þorrablóti í Tunnunni einhverntíma á sjöunda áratugnum. Maturinn er kominn á borðið og allt er tilbúið fyrir gestina. Stólarnir hafa verið fengnir að láni í skólanum og fólk þurfti sjálft að koma með diska og hnífapör með sér að heiman. Frá vinstri eru: Gestheiður Jónsdóttir, Helga Berndsen, Sigríður Ásgeirsdóttir, Elísabet Árnadóttir (Bebbý), Karla Helgadóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir og Anna Halldórsdóttir Aspar. Matinn unnu konurnar að mestu sjálfar, gerðu slátur, lifrapylsu og lundabagga og súrsuðu, sviðu svið og gerðu sviðasultu, bökuðu brauð og og flatkökur og sáu til þess að einhver heimamaður framleiddi harðfisk fyrir þær. Skemmtiatriði voru ofast í formi upplesturs og fjöldasöngs en síðan var dansað að borðhaldi loknu eins og nú er gert við undirleik hljómsveitar þar sem harmónikan var í aðalhlutverki.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn060
Systkinin úr Höfðakoti, Steindór Rúniberg Haraldsson og Fjóla Sigurðardóttir. Myndin var tekin um 1960 á blettinum hjá Höfðakoti.
Hjördís, Adolf og börn 028
Hjónin Hjördís Sigurðardóttir og Adolf Jakob Berndsen með börnum sínum. Börnin eru, frá vinstri: Frits Hendrik Berndsen, Sigurður Berndsen, Guðrún Björg Berndsen, Steinunn Berndsen og Adolf Hjörvar Berndsen.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn035
Mæðgurnar Signý Ástmarsdóttir vinstra megin og móðir hennar Jóhanna Sigurjónsdóttir til hægri. Myndin er tekin 1983 í eldhúsinu að Mánabraut 5.
Guðmundur Guðnason086
Margrét Valdimarsdóttir (Númadóttir).
Guðmundur Guðnason084
Guðjón Árnason í Ásgarði sem lítill drengur.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn028
Henry Kristjánsson (d.22.6.1972) frá Kárastöðum á hrútasýningu við fjárhúsin í Bjarmalandi. Myndin er tekin einhverntíma kringum 1960.
Jóhannes Pálsson Garði 036
Jóhannes Pálsson (f. 1878 - d. 9.3.1972) skósmiður í Garði á Skagaströnd
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn011
<p>Lionsfélagar fóru í skemmtiferð til Siglufjarðar einhverntíma seint á sjöunda áratugnum og tóku konurnar sínar með. Þá var þessi mynd tekin á einhverjum áningarstað. Á myndinni eru frá vinstri: Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) sveitarstjóri, Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Guðríður Bergsdóttir (d.10.6.1996) kona hans, Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) hreppsstjóri, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) málari, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) organisti, Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Jón Pálsson, kennari og seinna skólastjóri, Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007) heilsugæsluhjúkrunarkona og kona Friðjóns, Hörður Ragnarsson bífreiðastjóri, Björk Axelsdóttir kona Jóns Pálssonar, Þorgerður Guðmundsdóttir (d.24.4.2008), Páll Jónsson (d.19.7.1979) skólastjóri, Edda Pálsdóttir dóttir hans, Ole Aamundsen (d.?), Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) bifreiðastjóri og umboðsmaður, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) tollvörður, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) póstur, Jón Árnason bílstjóri frá Víðimel í Skagafirði, Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990) kona Ástmars, Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) kona Bernódusar og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir kona Harðar.</p><br><p> </p>
Guðmundur Guðnason048
Tvær fermingarstúlkur á tröppunum á Holtastaðakirkju. Stúlkan hægra megin er Rannveig Runólfsdóttir frá Hvammi í Langadal og Ólöf Jónsdóttir frá Ártúnum til vinstri.
Óþekktur ljósmyndari137
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans á hótel Dagsbrún 11. október 1996. Rósa Björg Högnadóttir verkstjóri.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn021
Þetta unga og glaða fólk er frá vinstri: Vilborg Jónsdóttir (d.?) frá Bergi, Gunnar Helgason (d.19.10.2007) úr Stórholti og Helga Berndsen frá Karlsskála. Hér eru þau á skemmtiferð einhverntíma kringum 1950.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn001
Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) sem lengi bjó í Akri (Hólabraut 13) er hér með sonum sínum: Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) til vinstri og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) til hægri.
Guðmundur Guðnason172
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Maðurinn með hattinn er Páll Jónsson skólastjóri, Rúnar Ingvarsson er í ljósu peysunni og maðurinn með sixpensarann er Eggert Skarphéðinsson úr Sólheimum.
Guðmundur Guðnason054
Hjónin í Höfðabrekku Þorgerður Guðmundsdóttir og Björgvin Jónsson á góðri stund á heimili sínu.
Guðm. Jóh. að kafa 1961 018
Guðmundur Jóhannesson við köfunarstörf 1961. Á bátnum Ægi eru hjálparmenn hans þeir Kristófer Árnason slöngumaður og Þórbjörn Jónsson í talstöðinni. Guðmundur vann lengi sem kafari, aðallega við hafnargerð, víða um land. Ef grannt er skoðað sést í stórt hjól lengst til vinstri á myndinni. Þessu hjóli var snúið stanslaust meðan Guðmundur var í kafi og með því dælt lofti niður til hans eftir loftslöngunni sem Kristófer var ábyrgur fyrir að ekki flæktist eða á hana kæmi gat. Mikið ábyrgðarstarf var líka að vera á talstöðinni og þurfti að ríkja mikið traust milli kafarans og talstöðvarmannsins. Bátinn Ægi áttu þeir saman um tíma þeir Guðmundur og Þórbjörn.
Guðmundur Guðnason155
Pálmi Guðnason (d. 23.3.1994) frá Ægissíðu bjó lengst af á Blönduósi. Þessa mynd hefur hann látið taka af sér á ljósmyndastofu Jóns Kaldal og síðan sent móður sinni sem póstkort því aftan á myndinni stendur: <em>Klemensína Klemensdóttir, Vesturá,</em> en foreldrar Pálma bjuggu um hríð á Vesturá í Laxárdal.
Guðmundur Guðnason021
<p>Hólmfríður Magnúsdóttir frá Syðra-Hóli</p>
Guðmundur Guðnason051
Þessi flutningabíll H 275 var í eigu Valdimars Núma Guðmundssonar (d.14.3.1972) sem sá um flutninga á vörum og fólki milli Skagastrandar og Reykjavíkur í allmörg ár.
Guðmundur Guðnason023
Af einhverjum ókunnum ástæðum hafa þessir menn límt á sig gerviskegg. Lengst til hægri er Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu en hinir tveir eru óþekktir. Ef þú veist hverjir þeir eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason988
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps í Húnaveri.
Ólafur Bernódusson059
Páll Leó Jónsson var skólastjóri í Höfðaskóla 1986 - 1991 er hann tók við skólastjórastöðu á Blönduósi. Á myndinni er Páll í ræðustól í Fellsborg við skólaslit.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn025
Halldóra Pétursdóttir frá Höfðakoti. Myndin var tekin einhvertíma á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason161
<p>Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: <em>"Frá Hestamannamóti á Vallabökkum í Skagafirði". </em>Fleira er ekki vitað um myndina.</p>
Óþekktur ljósmyndari134
Hér hjálpast starfsmenn Höfðahrepps að við að reisa samkomutjald á Hnappstaðatúni. Frá vinstri: Rósa Björg Högnadóttir, Mugnús Ólafsson bæjarverkstjóri, Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba), og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri. Myndin sennilega tekin 1998.
Guðmundur Guðnason013
Guðrún Einarsdóttir (d.17.10.1971) frá Vindhæli, móðir Guðmanns Magnússonar bónda þar og systkina hans. Myndina tók Guðmundur Guðnason sumarið 1957.
Ólafur Bernódusson025
Landsbanki Íslands stóð fyrir víðavangshlaupum ungmenna á hverju vori í mörg ár. Útibúið á Skagaströnd lét ekki sitt eftir liggja og voru haldin slík hlaup í mörg ár. Þátttakendu komu af "markðssvæði" Landsbankans, Skagaströnd, Blönduósi, Hvammstanga og úr sveitunum. Þessi mynd er tekin á árunum kringum 1985 og sýnir verðlaunahafa í stúlknaflokki. Á myndinni eru þekkt: Anna Dröfn Guðjónsdóttir lengst til vinstri, Guðný Finnsdóttir er sigurvegari á efsta palli.Til hægri með hvíta húfu er Jónas Þorvaldsson og drengurinn í svarta jakkanum og er að borða ís er Friðrik Gunnlaugsson. Ef þú þekkir aðra á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason096
Ægissíða. Bærinn þar sem Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari bjó lengst af með foreldrum sínum Guðna Sveinssyni og Klemensínu Klemensdóttur.
Guðmundur Guðnason141
Fjársafnið að koma af fjalli til að verða réttað í Spákonufellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason138
Guðbergur Stefánsson frá Kambakoti, seinna í Rjúpnafelli á Skagatrönd, við réttarstörf í Hofrétt 1965.
Guðmundur Guðnason146
Árni Kristófersson (d.11.10.1982) Árnesi á spjalli við óþekktan mann í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Afmæli Fram 1976 004
50 ára afmælisveisla umf Fram í Fellsborg 1976. Á myndinni er Kristján Hjartarson í ræðustól en frá vinstri sitjandi við háborðið eru: Steingrímur Jónsson Höfðakoti, Páll Jónsson skólastjóri, Ingvar Jónsson hreppstjóri, Unnur Gunnarsdóttir og Axel Hallgrímsson.
Ólafur Bernódusson048
Kántrýhátíðin 1985 á tjaldsvæðinu á Skagaströnd. Á þessari mynd syngur óþekkt söngkona við undirleik hljómsveitar Sigurðar Björgvinssonar en hann er gítarleikarinn með ljósa hattinn. Drengurinn neðst í horninu til vinstri er Ólafur Magnússon og stúlkan í hvíta jakkanum er Hólmfríður Anna (Día Anna) Ólafsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson029
Þessar hressu konur sáu um mat og kaffi á Bridgemóti Skagastrandar í Fellsborg á einhverntíma á níunda áratugnum. Slík Bridgemót þar sem fólk kom víða að til að keppa í Bridge voru haldin á Skagaströnd í nokkur ár meðan starfsemi Bridgeklúbbs Skagastrandar stóð með hvað mestum blóma. Á myndinni frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Guðmundur Sigurðssonson sem var keppnisstjóri, Bjarney Valdimarsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir og Elín Njálsdóttir.
Afmæli Fram 1976 005
50 ára afmælisveisla umf Fram í Fellsborg 1976. Við borðið sitja frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Sveinbjörg Hallgrímsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, óþekkt, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir, Skafti Fanndal Jónasson, þjár óþekktar manneskjur og Soffía S. Lárusdóttir.
Sigurlaug Jónsdóttir og Sigríður Björnsdóttir 079
Sigurlaug Jónsdóttir frá Ási til vinstri og Sigríður Björnsdóttir til hægri reyna styrk birkitrés í skógarlundi.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn055
Kristín Lúðvíksdóttir á sjötta áratugnum. Myndin tekin við Stórholt.
Guðmundur Guðnason008
Kjartan Bjarnason í Holti á fermingardaginn sinn.
Guðmundur Páls. Karlsminni og Sigríður Jóhannesd. móðir hans 020
Guðmundur Pálsson frá Karlsminni (d.14.12.1976) með móður sinni Sigríði Jóhannesdóttur.
Guðmundur Guðnason057
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson og Pétur Jónsson fyrir utan dyr Hólaneskirkju eldri annað hvort á sjómannadegi eða eftir útför því aukastólar eru í andyrinu og aukabekkur hefur verið borinn út á hlað.
Guðmundur Guðnason194
Myndin var tekin 1970 í Stafnsrétt. Á myndinni er verið að brjóta málin til mergjar. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson036
Hjörtur Guðbjartsson svamlar hér í sjónum í flotbúningi. Þetta var liður í öryggisnámskeiði sjómanna sem haldið var á Skagaströnd veturinn 1985.
Lárus G Guðm. Vindhæli 054
Lárus G. Guðmundsson (d. 21.9.1981) bóndi á Vidhæli.
Jón Jónsson179
Mæðgurnar á myndinni eru Jóhanna Ólafsdóttir kennari og prestsfrú á Skagaströnd til vinstri og Hafdís Hanna Ægisdóttir dóttir hennar. Á bak við þær sér í Sigurbjörgu Angantýsdóttur vinstra megin og Dagný Guðmundsdóttur til hægri. Myndin var tekin í Fellsborg á einhverri uppákomu tengdri kirkjunni á árunum kringum 1990.
Ólafur Bernódusson040
Hallbjörn J. Hjartarson til vinstri og Bernódus Ólafsson lesa saman stuttan einþáttung á skemmtun í Fellsborg á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Báðir voru þeir mjög virkir og vinsælir leikarar í starfi Leikklúbbsins og Bernódus í Leikfélagi Skagastrandar þar á undan. Auk þess að leika var Bernódus leikstjóri margra leikrita á Skagaströnd.
Á toppi Spákonufells 006
Þessi mynd er tekin kringum 1940 af hressu fólki við vörðuna upp á Spákonufellsborg. Fólkið er óþekkt en takið eftir klæðnaði fólksins; konurnar eru í kjólum og karlarnir flestir með hatt. Sunnudags - fjallgöngutúrar tíðkuðust á þessum árum en þá bjó fólk sig í betri fötin og lagði svo af stað. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn022
Á áttunda áratugnum og fram eftir þeim níunda var mikill skíðaáhugi á Skagaströnd. Skíðalyfta var keypt og starfrækt í hlíðum Spákonufells, skíðaskálinn var byggður og skíðaáhuginn var almennur. Haldin voru fjölmenn skíðamót í svigi, bruni og skíðagöngu þar sem allir skemmtu sér vel. Fólkið á þessari mynd tók sig til og gekk á gönguskíðum frá Skagaströnd og út að Háagerði einn sunnudag vorið 1983. Þegar þangað kom beið Jón Jónsson eftir fólkinu með heitt kakó í potti og samlokur í rússajeppa sem hann átti. Standandi frá vinstri á myndinni: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Viggó Magnússon og Stefán Ægir Lárusson. Sitjandi: Jón Jónsson (d.9.7.1991), Gylfi Sigurðsson, Bára Þorvaldsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Guðrún Sigurðardóttir, Þórunn Bernódusdóttir og Anna Bára Sigurjónsdóttir. Myndina tók Ólafur Bernódusson fyrir utan Háagerðisbæinn.
Guðmundur Guðnason122
Elínbjörg Kristjánsdóttir Höskuldsstöðum og Bjarnhildur Sigurðardóttir Efrimýrum fermdar af séra Pétri Þ. Ingjldssyni í Höskuldsstaðakirkju líklega árið 1969.
1
…
27
28
29
…
167
Leita í myndasafninu
Leita