Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason312
Fé rekið til réttar í Spákonufellsrétt.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn036
Uppábúnar kvenfélagskonur úr kvenfélaginu Einingin á Þorrablóti í Tunnunni einhverntíma á sjöunda áratugnum. Frá vinstri: Elísabet (Bebbý) Árnadóttir frá Réttarholti, Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri Harrastöðum, Sigríður Ásgeirsdóttir frá Lækjarbakka, Gestheiður Jónsdóttir Bogabraut 5, Anna Halldórsdóttir Aspar úr Stórholti, Helga Berndsen frá Karlsskála og Karla Helgadóttir í Ásbyrgi. Svona klæddar gengu þessar konur um beina á þorrablótinu.
Ólafur Bernódusson045
Fyrsta Kántrýhátíðin var haldin 1984. Hún fór að mestu fram á tjaldsvæðinu en þar voru byggð ýmis leiktæki. Á myndinni eru krakkar að nýta sér eitt af leiktækjunum í bergjunum austan við tjaldsvæðið.
Jón Jónsson216
Kántrýhátíð 1985. Messa þar sem kirkjukórinn söng við undirleik Kristjáns Hjartarsonar organista. Prestur var séra Oddur Einarsson og meðhjálpari var Hallbjörn Hjartarson.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn045
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Hjónin Aðalheiður Guðmundsdóttir og Árni Guðbjartsson uppábúin yfir kvöldverði á veitingastað í London.
Ólafur Bernódusson058
Jón Pálsson var skólastjóri Höfðaskóla í u.þ.b. tvo áratugi fram til ársins 1986 er hann lét af störfum. Hér er hann í ræðustól í skólanum við einhvert hátíðlegt tækifæri.
Lárus og Lára, börn og tengdab. 056
Á myndinni eru hjónin Lára Kristjánsdóttir og Lárus G. Guðmundsson með börnum sínum og tengdabörnum. Þau hjónin sitja fremst en hitt fólkið er, talið frá vinstri: Sigurður Magnússon, Ingibjörg Lárusdóttir, Jörgen Berndsen, Kristjana Sigurbjörg Lárusdóttir, Guðmundur Lárusson, Erla Valdimarsdóttir, Guðmundur Jóhannesson og Soffía S. Lárusdóttir.
36_Þura_Litla_Bergi_1947
Þuríður á Litla-bergi, 1947
Guðmundur Guðnason184
Réttastörfum að ljúka í Spákonufellsrétt 1969. Drengurinn á myndinni er Guðmundur Viðar Guðmundsson en baksvipinn á Ágúst Jakobsson Blálandi.
Lísa Berndsen og Stella 1945 062
Elísabet Berndsen (Lísa) vinstra megin og Kristjana Sigurbjörg Lárusdóttir (Stella) til hægri.
Magnús B Jónsson078
Björn Pálsson alþingismaður frá Löngumýri undir stýri á Landrovernum sínum. Myndin sennilega tekin 1982.
Jón Jónsson188
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Linda Hafdal er lengst til vinstri en Jóhanna Ólafsdóttir prestsfrú og Friðjón Guðmundsson málari eru í forgrunni.
Guðmundur Guðnason148

Aftan á þessari mynd af fjórum konum stendur : Frá v. Kamilla frá Dalvík, 2. Sigrún Ármannsdóttir, 3. ?, 4. Sigríður frá Dalvík. 1954. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en hugsanlega tengjast konurnar Kvennaskólanum á Blönduósi á einhvern hátt. Ef þú veist eitthvað meira um myndina og konurnar á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Ólafur Bernódusson023
Verðlaunahafar í karlaflokki á innanfélagsmóti í golfi á Háagerðisvelli. einhverntíma á árunum í kringum 1990. Þessir menn voru sigursælir á golfmótum þessara ára. Frá vinstri: Ómar Jakobsson, Oliver Oliversson og Jón Ingi Ingvarsson
Jón Jónsson191
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir vistmenn á dvalarheimilinu Sæborg. Uppvask í eldhúsinu. Frá vinstri: Ása Jóhannsdóttir frá Lækjarbakka, Særún Jónsdóttir úr Sænska húsinu og Inga Björgvinsdóttir.
Guðmundur Guðnason238
Þessi litla stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Magnús B Jónsson041
Hljómsveitin Jójó frá Skagaströnd spilar á útisviði í Reykjavík - sennilega á 17. júní. Í hljómsveitinni eru frá vinstri: Fannar Viggósson, Ingimar Oddsson, Kristján Blöndal, Viggó Magnússon og Jón Arnarson.
Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir og Sigursteinn Guðmundsson læknir 022
Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir (d. 17.6.1978) á tali við Sigurstein Guðmundsson lækni um borð í Arnari Hu 1. Myndin sennilega tekin árið 1973.
Guðmundur Guðnason228
Frændsystkinin Bergþóra Huld Birgisdóttir og Ingvar Jónsson í Hólaneskirkju (eldri) eftir ferminguna sína vorið 1981.
Jón Jónsson169
Soffía Lárusdóttir spilar á flygil í Fellsborg, líklega á einhverri uppákomu hjá tónlistarskólanum. Myndin var tekin snemma á níunda áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari127
Lokahátíð vinnuskólans á Skagaströnd 1998. Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri þakkar fyrir gjöf sem honum var færð við þetta tækifæri. Myndin var tekin í Kántrýbæ 14. ágúst 1998.
Magnús B Jónsson008
Kappróður á sjómannadegi. Tvær kvennasveitir keppa á Gusti og Golu. Húsið í baksýn til hægri er Rjúpnafell sem nú er horfið.
Ólafur Bernódusson021
Verðlaunahafar í kvennaflokki á golfmóti á Háagerðisvelli kringum 1990. Frá vinstri: Bjarney valdimarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
Magnús B Jónsson034
Kötturinn sleginn úr tunnunni á öskudegi í Höfðaskóla. Maðurinn með trefilinn er Ólafur Bernódusson kennari og maðurinn með yfirskeggið er Hallgrímur Hjaltason. Drengurinn með víkingahjálminn er Þorsteinn Jónsson en aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason118
Willis jeppi líklega í eigu Jósefs Stefánssonar í Reykholti. Myndin er tekin í mynni Hrafndals á gangnadegi 1967.
Guðmundur Guðnason253
Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988) (Mundi póstur) póstur, ljósmyndari og organisti frá Ægissíðu.
Guðmundur Guðnason171
Óþekkt barn að róla sér í útbænum undir stjórn barnapíu . Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn015
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) á Blíðfara sínum í Skagastrandarhöfn, sennilega snemma á sjötta áratugnum.
Magnús B Jónsson023
Magnús B. Jónsson með gott forskot í kapphlaupi á sjómannadegi.
Guðmundur Guðnason187
Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu(d. 21.11.1988) ljósmyndari, póstur og organisti með harmonikuna sína um jól.
Jón Jónsson183
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Við borðið sitja, talið frá vinstri: Torfi Sigurðsson frá Mánaskál (d. 9.10.1993), Sigurður Bjarnason Breiðabliki, Bára Þorvaldsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og óþekkt kona.
Jón Jónsson194
Guðný Hjartardóttir (f. 28.6.1918 - d. 14.3.2011) frá Blálandi var ein af systkinunum frá Vík, lengi heimilismaður á Sæborg.
Guðmundur Guðnason182
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Eggert Skarphéðinsson frá Sólheimum skoðar mark á kind. Maðurinn til hægri er Ingvi Guðnason en á milli þeirra er drengurinn Magnús Blöndal.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn009
Bridge spilaður í stofunni á Stórholti um jólin 1964. Til vinstri á myndinni er Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) í Höfðakoti en til hægri Guðmundur Pétursson (d.30.6.1987) mágur hans sem líka bjó í Höfðakoti.
Guðmundur Guðnason310
Smalað til réttar í Hofsrétt utan við Steinnýjarstaði. Bræðurnir Óskar Jóhannesson nær okkur og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) fjær í fyrirstöðu. Maðurinn lengst til vinstri er óþekktur.
Magnús B Jónsson015
Hefðbundið tunnuboðhlaup á sjómannadegi 1983. Keppendur eru óþekktir en leggja sig greinilega öll fram.
Lilja Andrésd. og Elísabet Berndsen 060
Lilja Andrésdóttir til vinstri og Elísabet Berndsen til hægri.
Guðmundur Guðnason056
Kokkurinn dansaður í Húnaveri. Þegar hljómsveitin hættir að spila dansa þau pör saman sem enda hvert á móti öðru.
Sigurbjörg á Kárast. og Lárus g Guðm. 076
Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir (d.31.12.1965) frá Kárastöðum á spjalli við Lárus G. Guðmundsson (d. 21.9.1981).
Guðmundur Guðnason179
Alþingishátíð var haldin á Þingvöllum 1930. Hátíðin var haldin til að minnast þess að 1000 ár voru þá liðin frá því að allsherjarþing var sett þar árið 930. Hátíðin stóð dagana 26. - 28. júní og þangað kom Kristján 10. konungur Danmerkur og þá ennþá, Íslands. Gríðarlegt fjölmenni var á hátíðinni en á þessari mynd er Kristján konungur með kaskeiti fyrir miðri mynd. Myndin er úr safni Guðmundar Guðnasonar en ekki tekin af honum enda fæddist hann árið 1923. Á myndinni er nafn ljósmyndarans:K.K. Bergen.
Magnús B Jónsson006
Einar Hjartarson matar Magnús B. Jónsson félaga sinn á skyri í leik á sjómannadegi á planinu austan við verksmiðjuna. Ingibergur Guðmundsson stjórnar leiknum. Myndin líklega tekin einhverntíma á árunum 1983- 1986.
Guðmundur Guðnason322
Friðrik Björnsson og Erla Hafsteinsdóttir frá Gili í Svartárdal.
Magnús B Jónsson077
Hallveig Ingimarsdóttir og Ingibergur Guðmundsson eiga saman spennandi stund í Kántrýbæ á einhverri uppákomu á vegum Leikklúbbs Skagastrandar.
Magnús B Jónsson085

Björn Pálsson alþingismaður frá Löngumýri á ferð á Skagaströnd að vetri til. Hann var meðal annars kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Skagstrendinga - KAST - um tíma. Þá var hann með útgerð á Skagaströnd og lét smíða eikarbátinn Húna ll á Akureyri og er hann enn varðveittur. Eftirfarandi ljóð var samið um Björn af óþekktum höfund og komst á flot.

Björn hinn ríki vex og verður stórmenni
hann stjórnar bæði KAST og löngu mýrinni
og er hann keypti flaggskipið í flota norðurlands
þá frétti allur heimurinn um afrek þessa manns
því hefur nú verið spáð að saga verði um hann skráð
og sagt í útvarps sendingum frá Sameinuðu þjóðunum
að hann mun leysa Hammerskjöld af hólminum.

Jón Jónsson187
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir úr sóknarnefnd Hólaneskirkju flytur ávarp.
Magnús B Jónsson086
Leikklúbbur Skagastrandar hélt Jónasarvöku í Fellsborg , líklega um jólin 1983, til heiðurs Jónasi Árnasyni en klúbburinn hafði sýnt a.m.k. tvö leikrit eftir hann. Jónas kom sjálfur á skemmtunina með konu sína með sér og tók þátt í skemmtuninni. Á myndinni situr Jónas (í miðið) fyrir svörum þeirra Magnúsar B. Jónssonar og Guðnýjar Sigurðardóttur úr Leikklúbbnum.
Ólafur Bernódusson043
Í nokkur ár fóru félagar úr björgunarsveitinni á Skagaströnd í eggjatökuleiðangra út í Stapa, sem er eyjan rétt norðan við fossinn á Króksbjarginu. Þar söfnuðu þeir svartbakseggjum og fílseggjum sem voru síðan seld til ágóða fyrir sveitina. Svartbakseggin þóttu góð til átu en fílseggin voru meira notuð í bakstur. Kökur sem bakaðar voru úr fílseggjum urðu fallega skærgular á litinn. Á þessari mynd er Helgi Gunnarsson að ganga frá eggjunum í plastbrúsa en Guðmundur Björnsson bíður á brúninni til að láta eggin síga niður í björgunarbátin Þórdísi sem sést í baksýn. Myndin er tekin ca 1987 - 1988.
Guðmundur Guðnason169
Börnin á þessari mynd frá árinu 1962 eru ekki auðþekkt en líklega eru þetta útbæingarnir Árni Þórhallsson lengst til hægri, Halla Þórhallsdóttir í miðjunni og Marías Bjarni Viggósson til vinstri. Þau hafa verið á aldrinum 5 -10 ára þegar myndin var tekin.
Magnús B Jónsson061
Ólafur Bernódusson á leið upp með lyftunni á skíðasvæði Skagstrendinga í Spákonufelli. Myndin er tekin að vori til ca 1980.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn033
Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) frá Kárastöðum sýnir Bernódusi Ólafssyni (d.18.9.1996) úr Stórholti hvernig vanir menn flaka stórþorsk. Þeir félagar unnu lengi í frystihúsi Hólaness hf við að handflaka fisk sem var of stór fyrir flökunarvélarnar.
Magnús B Jónsson062
Magnús B. Jónsson í sveiflu á skíðunum á skíðasvæði Skagstrendinga í Spákonufelli. Myndin var tekin ca 1980.
Guðmundur Guðnason193
Réttað í Spákonufellsrétt 1962. Páll Jóhannesson er maðurinn í ljósu úlpunni með svartan kraga. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason230
Jón Haraldson í Gautsdal, lengst til hægri, skoðar snjósleða með félögum sínum. Maðurinn fyrir framan Jón bónda er sonur hans Gauti, sem nú er bóndi í Hvammi í Langadal.
Eldri borgarar á Skagaströnd 008
Eldri Skagstrendingar í skemmtiferð á vegum kvenfélagsins Einingar 6. júní 1969. Farið var til Hvammstanga og að Reykjum í Miðfirði. Þessi mynd var tekin í félagsheimilinu á Hvammstanga. Frá vinstri á myndinni eru: Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974), Tvær óþekktar konur, Guðbjörg Guðjónsdóttir (d.3.7.1981) , Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Lárus Guðmundsson (d. 21.9.1981), óþekktur maður og kona, Fjóla Gísladóttir (d. 5.11.1991), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Fremst standa í röð f.v. systkinin: Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978), Laufey Jónsdóttir (d. 25.12.1969) og Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992). Milli Laufeyjar og Steingríms eru Guðmundur Pétursson (d. 30.6.1987), og Páll Jónson (d. 19.7.1979)(aftar), en Svein Kristófersson (d. 9.5.1991) ber yfir höfuð Steingríms. Konan með svörtu húfuna er Margrét Björnsdóttir (d. 11.9.1993) og Sigurður Guðmundsson (d. 2.12.1984) maður hennar við hlið hennar. Konan aftast til hægri er Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000), þá koma Guðlaugur Guðlaugsson (d. 8.7.1990) og Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974).
Neyðarfatnaður Dómhildur, María, Soffía Sig. 070
Konurnar í kvenfélaginu Einingin á Skagaströnd prjónuðu og gáfu nærföt, sokka og fleira um borð í skip gerð út frá Skagaströnd. Á myndinni eru frá vinstri: Dómhildur Jónsdóttir (d. árið 2012), María Konráðsdóttir (d. 9. 8. 2003) og Soffía Sigurðardóttir (d.11.9.1968) við stafla af prjónlesi við afhendingu þess til togaranna á Skagaströnd
Jón Jónsson178
Leikskólabörn úr Barnabóli í heimsókn í Rækjuvinnslunni á Skagaströnd á öskudegi sennilega árið 1980. Erfitt er að þekkja börnin en fremst á myndinni í rauð-skræpóttum samfestingi með gula sól á höfðinu er Arnar Ólafur Viggósson. Þórunn Bernódusdóttir er konan með brúnu prjónahúfuna en Bára Þorvaldsdóttir er í bláum jakka með hvíta húfu. Við færibandið sjást Guðrún Sigurðardóttir og Signý Richter.
Magnús B Jónsson068
Verðlaunahafar í páska - skíðakeppni á skíðasvæðinu í Spákonufelli ásamt kennaranum sínum. Frá vinstri: Páll Jónsson, Þórarinn Þórsson, Guðjón Árnason og Sigríður Einarsdóttir (Sissa) skíðakennari.
Nemendur Barnaskólans á Skagaströnd 069
Á myndinni eru nemendur barnaskólans á Skagaströnd einhverntíma um 1940 í skólaferðalagi til Hreðavatns. Myndin er á bls. 152 í bókinni Byggðin undir Borginni og samkvæmt henni eru á myndinni: Fjóla Sigurðardóttir, Inga Þorvaldsdóttir, Ingunn Gísladóttir, Sigurbjörg Óskarsdóttir, Elín Jónsdóttir, Sigurlaug Jónsdóttir, Árni Andrésson, Unnur Stefánsdóttir, Knútur Berndsen, Soffía S. Lárusdóttir, Birgir Árnason, Ingibjörg Kristmundsdóttir, Þórarinn Björnsson, Jens Jónsson, Sigurjón Jóhannsson kennari, Björn Kristjánsson, Guðný Sigurðardóttir, Hjörtur Hjartarson, Kristjana S. Lárusdóttir og Jóhann Bogason.
Guðmundur Guðnason306
Réttað í Skrapatungurétt. Maðurinn með ljósu húfuna er Garðar Stefánsson (d. 14.3.1999) frá Kúskerpi, Magdalena Jónsdóttir (d.3.4.1972) frá Sölvabakka er stúlkan á miðri mynd og Frímann Hilmarsson (d. 3.12.2009) frá Fremsta - Gili er í blárri peysu hægra megin við hana. Stefán Ágústsson (d.22.11.1989) frá Ytri - Ey er á myndinni í bakgrunni og einnig Hallgrímur Einarsson (d.3.4.1998) frá Neðri - Mýrum. Milli Magdalenu og Frímanns sér í Þorstein Hafþórsson Blönduósi í rauðum vatnsbuxum.
Guðmundur Guðnason251
Íslenskur hundur fyrir utan Stóra Berg, sem nú er horfið. Í baksýn sér í Iðavelli. Þetta var Skúmur sem Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) átti en hann bjó á Stóra Bergi.
1

31
32
33

167
Leita í myndasafninu
Leita