Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
34_GisliEinarsson_Vidvik
Gisli Einarsson í Viðvík
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn 047
Óveður geysar á Skagaströnd á 9. áratugnum. Vesturhliðin á verksmiðjunni.
Kristín Björnsdóttir004
<p>Hallbjörn Björnsson (Halli Boss) landar fiski úr Sigurði Hu 18við "Litlu bryggju". Á bryggjunni er Guðmundur J. Björnsson bróðir Hallbjörns og býr sig undir að tína fiskinn upp á kerruna sem sér í hornið á til vinstri. Faðir Hallbjörns, Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri, smíðaði Sigurð Hu 18 árið 1966 og reri á honum til fiskjar endrum og sinnum. Aðallega var báturinn þó gerður út á grásleppu af Sigurði Björnssyni bróður Hallbjörns og Guðmundar. Sigurður Hu 18 er enn til og er í öruggri vörslu Sigurðar Björnssonar. Reyndar var skipt um nafn á bátnum því Sigurðar nafnið var í einkaeigu og var hann því nefndur Sigurður Jónsson eftir það. Báturinn aftan við Sigurð hét Ósk Hu og var í Stefáns Stefánssonar (d. 2.1.1988). Aftast sér svo í Víking St 12 sem var í eigu Péturs Ástvaldssonar á Hólmavík. Pétur fórst ásamt öðrum manni með Víkingi í mars 1971. "Litla bryggjan" er nú löngu horfin en hún var um það bil þar sem nú er suð-austur hornið á Miðgarði (Arnarsbryggjunni). "Litla bryggjan" lækkaði fram til endans til að auðveldara væri að landa fiski við hana eftir stærð bátsins sem landað var úr. Maðurinn fremst á bryggjunni er óþekktur.</p>
Jón Jónsson173
Guðbjartur Guðjónsson í Vík (Bjartur í Vík) (d. 23.9.1992) les upp á sviðinu í Fellsborg. Tilefnið er óþekkt.
Ólafur Bernódusson054
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987. Á henni er skólasjórinn Páll Leó Jónsson og tveir starfsmenn Útvarps Höfðaskóla sem starfrækt var þessa viku. Starfsmennirnir eru Viggó Magnússon útvarpsstjóri með hljóðnemann og Þorlákur Sveinsson tæknimaður. Börnin tvö í forgrunninum eu óþekkt.
Guðmundur Guðnason434
Starfsmenn í frystihúsi Hólaness hf á Hólanesi fyrir utan frystihúsið. Frá vinstri: Jóhann Jakobsson (d. 24.3.1987) Blálandi, Henrý Kristjánsson (22.6.1972) Kárastöðum, Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) Skjaldbreið, Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1998) Sævarlandi, Jón Árnason (d. 5.9.1993) Náttbrún, Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) Litla Bergi, Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) Sunnuhvoli, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Fjalli, Árni Max Haraldsson ( d. 6.12.1976) Litla Bergi, Jón Áskelsson (d. 26.3.1989) Hólanesi og Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) þá: Sólvöllum
Guðmundur Guðnason181
Fólkið í þessum sönghópi er talið frá vinstri: Jóhanna Björnsdóttir frá Gili, Sigurjón Stefánsson Steiná, Sigfús Guðmundsson frá Eiríksstöðum, Friðrik Björnsson Gili og Sigurbjörg R. Stefánsdóttir. Myndin var tekin þegar karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps hélt tónleika á Húnavöku. Ártalið er óþekkt.
Guðmundur Guðnason277
Maðurinn til vinstri er Sigurður Ísólfsson. Aðrir eru óþekktir en ef þú veist hvaða fólk þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason191
Réttað í Spákonufellsrétt haustið 1962.
Guðmundur Guðnason247
Fermingarárgangur 1981. Fremst frá vinstri: Bergþóra Huld Birgisdóttir, Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), Svenny Hallbjörnsdóttir, Rósa Sigurðardóttir. Miðröð f.v.: Ólafur Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Hrólfur Pétursson, Björn Hallbjörnsson. Aftasta röð f.v.: Þórarinn K. Þórsson, Birna Sveinsdóttir, Arnar Arnarsson, Erna Rós Magnúsdóttir og Ingvar Þór Jónsson. Myndin var tekin í Hólaneskirkju (eldri).
Jóhannes Pálsson og 10 börn hans 037
Jóhannes Pálsson skósmiður frá Garði (d. 9.3.1972) með 10 af börnum sínum. Fremri röð frá vinstri: Elín, Birna, Jóhannes Pálsson, Sigríður og Hrefna. Aftari röð frá vinstri: Guðjón, Hartmann, Jóhanna, Þorleifur, Guðmundur og Páll.
Magnús B Jónsson049
Skíðaskálinn var vígður um páska 1985 með kaffiboði. Á myndinni eru frá vinstri: Fannar Viggósson, óþekktur gítarleikari, Kristján Blöndal, Bóel Hallgrímsdóttir og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson020
Stoltir verðlaunahafar á golfmóti á Hágerðisvelli. Hér hefur greinileg verið keppt í karla- kvenna- og unglingaflokkum. Myndin er tekin einhverntíma kringum 1980. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Oliver Oliversson, Kristján??son, Ingvar Jónsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Björn Sigurðsson, Karl Berndsen og líklega Sigurbjörn Kristjánsson sem horfir niður.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn057
Guðrún Þórbjarnardóttir á sjötta áratugnum. Myndin var tekin utan við Stórholt.
Steinþór Ólafsson 085
Steinþór Carl Ólafsson (d.18.9.1985) póstmeistari á Skagaströnd.
Jón Jónsson184
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Steindór Rúniberg Haraldsson, meðhjálpari í Hólaneskirkju, ávarpar samkomuna.
Guðmundur Guðnason285
Áramótabrenna. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason428
Myndin var tekin á hrútasýningu sennilega á árunum upp úr 1960. Frá vinstri: Guðbjartur Guðmundsson ráðunautur, Skarphéðinn Einarsson frá Dagsbrún, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) Lækjarhvammi, Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) Kárastöðum og lengst til hægri er Sigurlaug Jónsdóttir Ási.
Kristín Björnsdóttir026
Gæðastund heima á Jaðri. Frá vinstri: Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) með afabarn í fanginu og Hallbjörn Björnsson sonur hans. Barnið er líklega Elísabet Hallbjörnsdóttir. Myndin var tekin kringum 1970.
Guðmundur Guðnason360
Hér syngur kirkjukór Hólaneskirkju undir stjórn Kristjáns Hjartarsonar á sviðinu í Fellsborg. Frá vinstri í kórnum eru: Hildigunnur Jóhannsdóttir, Sævar Bjarnason, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Bára Þorvaldsdóttir, óþekkt, Guðrún Sigurðardóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Elísabet Árnadóttir (Bebbý).
Guðmundur Guðnason346
Þetta káta fólk situr að kaffidrykkju. Frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Ágústa Ágústsdóttir og Georg Hjartarson(13.9.2001).
Margrét Pétursdóttir 065
Margrét Pétursdóttir. Ef þú veist eitthvað um þessa konu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Magnús B Jónsson037
Myndin var tekin af fimleikasýningu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Inga Matthíasdóttir kennari stendur lengst til hægri.
Helga Þorbergsdóttir 027
Helga Þorbergsdóttir frá Garði (f. 30.4.1884 - d. 30.9.1970). Helga var gift Jóhannesi Pálssyni skósmið í 68 ár og eignuðust þau hjónin fjölda barna.
Ólafur Bernódusson056
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987. Hér eru starfsmenn Útvarps Höfðaskóla að störfum. Frá vinstri: Viggó Magnússon, Þorsteinn Jónsson, Ægir Jónsson og Halldór Gunnar Ólafsson
Magnús B Jónsson026
Einn sjómannadag var farin Karnivalganga frá kaupfélaginu að hátíðasvæðinu við Hafnarhúsið. Myndaður var risafiskur í anda dagsins og þrammað úteftir með látum undir háværri tónlist. Myndin er af Vigdísi Viggósdóttur til vinstri en hún var með sporð fisksins á bakinu og gekk því aftast. Kolbrún Viggósdóttir er til hægri með borða og skraut sem notað var í göngunni.
Kristín Lúðvíksdóttir 049
Kristín Lúðvíksdóttir. Myndin var tekin kringum 1965.
Guðmundur Guðnason167
Þessi stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson190
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir vistmenn á dvalarheimilinu Sæborg. Þessar konur hjálpuðu til í eldhúsinu á þessu þorrablóti Sæborgar. Frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba), Þórunn Þorláksdóttir og Soffía S. Lárusdóttir.
Jón Jónsson196
Jóhanna Thorarensen frá Bergi (f. 18.11.1910 - d. 6.3.2004), lengi heimilismaður á Sæborg.
Jón Jónsson174
Krakkar á grímuballi í Fellsborg. Frá vinstri: Áslaug Sif Gunnarsdóttir, Viggó Magnússon, Guðmunda Ólafsdóttir og Jensína Lýðsdóttir. Myndin var sennilega tekin 1983 - 1985.
Jón Jónsson222
Jhonny King var eitt af aðalnúmerunum á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Hér er hann lengst til vinstri á skemmtun í Fellsborg.
Guðmundur Guðnason108
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Farangur hópsins handlangaður úr Fagranesinu upp á bryggju í Ögri. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Óþekkt kona, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) (með hatt), Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006), Guðmundur Viðar Guðmundsson, þrír óþekktir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Ingibjörg Axelma (Didda) Axelsdóttir (d. 6.3.2007) og Jón Jónsson (d. 9.7.1991).
Guðmundur Guðnason166
Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Maðurinn til vinstri, með derhúfu, er Magnús Indriðason frá Húsey. Þriðji frá hægri er Jakob Sigurðsson (d. 27.5.1991) frá Steiná síðar á Hóli. Til hægri er Ottó Þorvaldsson frá Víðimýrarseli og teymir hyrnda kind.
Guðmundur Guðnason211
Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Brugðið á leik í vinnunni. Frá vinstri: Hörður Ragnarsson, Helgi Jónatansson og Þórarinn Hjartarson frá Vík.
Magnús B Jónsson007
<P>Sigursveit kvenna í kappróðri á sjómannadegi, líklega 1989. Frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður, Hallbjörg Jónsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Sigþrúður Magnúsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Kolbrún Viggósdóttir og Edda Pálsdóttir. Þessi sveit keppti fyrir Kaupfélagið en stúlkurnar voru allar satrfsstúlkur þar. Sigrinum fylgdi bikar til varðveislu í eitt ár. Ef sama sveitin vann bikarinn þrisvar í röð eða fimm sinnum alls vannst hann til eignar. Enn er keppt í kappróðri á sjómannadegi á Skagaströnd á bátunum Gusti og Golu, sem byggðir voru í bátastöð Nóa Kristjánssonar á Akureyri árið 1948 og notaðir í fyrsta sinn á sjómannadegi það ár. Allt upp í 16 róðrarsveitir hafa keppt á sjómannadegi en það var 1988 sem þær voru svo margar. Yfirleitt eru sveitirnar þó mun færri. </P><br><P>Heimild: Sjómannadagurinn á Skagaströnd í 70 ár eftir Lárus Ægi Guðmundsson útgefið 2009.</P>
Magnús B Jónsson011
Heiðrun á sjómannadegi á Skagaströnd 1989. Lárus Ægir Guðmundsson heiðrar Jón Jónsson frá Asparlundi, Jóhann Pétursson frá Lækjarbakka og Jóhönnu Jónasdóttur frá Höfðatúni fyrir áralöng störf sína á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnasonr682
Réttarstörf í Hofrétt. Maðurinn sem sést aftan á lengst til hægri er Bernódus Ólafsson en maðurinn með húfuna er Henrý Kristjánsson. Aðrir eru óþekktir.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn051
Guðbjartur Guðjónsson (Bjartur í Vík) og Bernódus Ólafsson (Benni Ólafs). Bjartur er til vinstri á myndinni. Þessi mynd er tekin á sýningu í skólanum á handavinnu í Félagssarfi eldri borgara í desember 1987. Einnig var sölusýning á handunnum munum og var verið að safna fyrir stórri kaffivél og læstum skáp undir handavinnu og lager . Þetta tókst. Kvennfélagið seldi kaffi til styrktar sér.
Guðmundur Guðnason188
Myndin var tekin 1970 í Stafnsrétt. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri:. Pétur Sigfússon bóndi í Álftagerði Seyluhreppi, Valtýr Guðmundsson bóndi í Brattahlíð í Svartárdal og Jónas Haraldsson á Völlum í Skagafirði sem skoðar markið á hrossinu. Sá með gleraugun er Björn Eysteinn Jóhannesson bóndi í Stokkhólma í Vallhólmi. Ljósklæddi maðurinn til hægri er Guðmundur Ó. Guðmundsson en hann var um skeið skrifstofumaður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Guðmundur Guðnason186
Þessi mynd var tekin 1970 sennilega í Stafnsrétt. Á myndinni er réttarstörfum að ljúka og fólk er að skoða hross og spá í lífið og tilveruna. Guðmundur Ó. Guðmundsson er fjórði frá vinstri í ljósum buxum. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason293
Hólabraut 17 byggðu hjónin Hallbjörn Björnsson og Guðný Sigurðardóttir á áttunda áratugnum. Þarna ólu þau upp börnin sín þrjú : Björn, Elísabetu og Gunnar Halldór.
Guðmundur Guðnason231
Þessi mynd var líklega tekin í heimsókn Lionsmanna frá Skagaströnd á Siglufjörð ásamt mökum sínum. Á myndinni sýnir séra Pétur Þ. Ingjaldsson? gestunum kirkjumuni. Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri, Edda Pálsdóttir dóttir hans, óþekkt kona og Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) ljósmyndari og skátaforingi.
Guðmundur Guðnason256
Þessar ungu stúlkur tóku þátt í einhverri skíðakeppni við togbrautina í Spákonufelli einhverntíma á árunum 1974 - 1978. Frá vinstri: Soffía Guðmundsdóttir, Sigþrúður Magnúsdóttir og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Hjá þeim stendur þáverandi formaður USAH, Björn Sigurbjörnsson skólastjóri á Blönduósi. Aðrir eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari130
Lokahátíð vinnuskólans 1998. Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri til vinstri og Ragnar Smári Ingvarsson til hægri. Myndin var tekin í Kántrýbæ 14. ágúst 1998.
Magnús B Jónsson020
Barnaleikur í gangi á sjómannadegi. Ingibergur Guðmundsson, Gunnar Sveinsson og Hinrik Jóhannesson stjórna leiknum.
Guðmundur Guðnason236
Stúlkurnar þrjár á þessari mynd eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason336
Þessi mynd af kirkjukórnum var tekin á einhverju námskeiði þar sem Kjartan Jóhannesson var leiðbeinandi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið snemma á sjöunda áratugnum. Aftari röð frá vinstri: Kjartan Jóhannesson söngþjálfari, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki, Hallbjörn Hjartarson Brimnesi, Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) Ægissíðu og Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi. Fremri röð frá vinstri: Ólína Gyða Hafsteinsdóttir (Lilla) Reykholti, Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður Skála, Erla Lárusdóttir, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Edda Pálsdóttir.
Guðmundur Guðnason403
Matthildur Hafsteinsdóttir Fossdal frá Dvergasteini.
Sigurbjörn Kristjánsson 1970 077
Sigurbjörn Kristjánsson - Bjössi á Kárastöðum - (d. 10.9.1989). Myndin var tekin 1970 heima á Kárastöðum.
Magnús B Jónsson039
Myndin var tekin af fimleikasýningu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Inga Matthíasdóttir kennari stendur lengst til hægri.
Magnús B Jónsson035
<P>Dansatriði á árshátíð Höfðaskóla. Frá vinstri: Vigdís Ósk Ómarsdóttir , Dagbjört Jóna Jóhannsdóttir, Elísabet Stefanía Hallbjörnsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, Hafdís Eygló Þorvaldsdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir. Stúlkurnar dönsuðu frumsaminn dans sem þær sömdu með hjálp kennara síns, Ingu Matthíasdóttur íþróttakennara. dansað var við lagið "How will I know" með Whitney Huston. Búningana hönnuðu stúlkurnar sjálfar og saumuðu buxurnar sem þær eru í á myndinni.</P><br><P> </P>
Magnús B Jónsson032
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun í Fellsborg. Frá vinstri á myndinni eru: Viggó Magnússon bassaleikari og söngvari, Ægir Jónsson trommuleikari og Jón Arnarson gítarleikari. Myndin var tekin ca 1985.
Lára Kristjánsdóttir 1981 053
Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993). Myndin var tekin 1981
Guðmundur Guðnason232
Gauti Jónsson frá Gautsdal hvílir sig á snjósleða um há sumar. Myndin er sennilega tekin á hlaðinu í Gautsdal.
Guðjón, Mundi, Gunna, Palli, Jonna, Hrefna, Sigga 017
Hluti systkinanna frá Garði, sem voru alls sextán. Frá vinstri: Guðjón Jóhannesson, Guðmundur Jóhannesson, Páll Jóhannesson, Guðrún Jóhannesdóttir, Jóhanna Jóhannesdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir, Sigríður jóhannesdóttir.
Guðmundur Guðnason149
Í Hofsrétt sumarið 1965. Hrönn Árnadóttir hjálpar Ingu Jónsdóttur í Náttbrún (Ólafsvöllum) að finna kindurnar sínar í safninu. Strákarnir á réttarveggnum eru óþekktir.
Magnús B Jónsson070
Ungir verðlaunahafar á páskamóti á skíðum á skíðasvæðinu við Skagaströnd með kennaranum sínum. Myndin var tekin ca 1980. Drengirnir með páskaeggin eru óþekktir nema sá í miðið er Brynjar Pétursson og kennarinn er Sigríður Einarsdóttir (Sissa) frá Ísafirði. Ef þú þekkir hina drengina á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hverjar eru þetta 030
Elísabet Frímannsdóttir - Beta á Jaðri (d. 1.9.1990) með litla stúlku. Ef þú þekkir stúlkuna , vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason414
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna) á Hólanesi.
1
…
33
34
35
…
167
Leita í myndasafninu
Leita