Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason408
Þetta eru systurnar Margrét og Sigrún Guðlaugsdætur.
Guðmundur Guðnason260
Á þessari mynd sést vel togbrautin, sem var notuð með hléum á árunum 1974 - 1978, í Spákonufelli. Drifhjól var útbúið og tengt við drifúttak vélarinnar og svo var blökk komið fyrir uppi á hæðinni. Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp. Bannað var að vera með trefla í lyftunni því kaðallinn sneri upp á sig á leiðinni og átti til að grípa vettlinga sem þá festust við kaðalinn og losnuðu ekki fyrr en á niðurleiðinni. Eitt sinn munaði litlu að slys yrði þegar kona gleymdi sér og fór upp með trefil um hálsinn. Kaðallinn greip endann og byrjaði að snúa honum um sig. Konan áttaði sig hvað verða vildi og gat losað sig við trefilinn rétt áður en hún kom að blökkinni uppi. Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) átti og sá um dráttarvélina og sést hann á myndinni aftan við vélina. Til vinstri er Karl Berndsen (d. 12.2.1995) að búa sig undir að binda á sig skíðin. Aðrir eru óþekktir.
Jón Jónsson182
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Við borðið sitja, frá vinstri: Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001), Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007) kona hans og Níels Grímsson. Bak við þau á næsta borði sést Steindór R. Haraldsson.
Guðmundur Guðnason298
Séra Árni Sigurðsson í ræðustól í Húnaveri. Tilefnið var hátíð vegna 100 ára afmælis Bergastaðakirkju 1983.
Magnús B Jónsson016
Leikfimiæfingar á sjómannadegi 1983. Frá vinstri sýna æfingar: Stefán Jósefsson, Guðmundur J. Björnsson, Guðjón Sigtryggsson, Finnur Kristinsson og Ólafur Bernódusson.
Guðmundur Guðnason422
<p>Þessi lögreglumaður er Runólfur Aðalbjörnsson frá Hvammi í Langadal. Þarna er hann 22 - 23 ára gamall og myndin var líklega tekin á sjómannadegi annað hvort árið 1956 eða 1957.</p>
Magnús B Jónsson074
Hópur skíðagöngufólks gengur upp þáverandi tún við Hágerði - núverandi Golfvöll. Fremstur fer Magnús B. Jónsson og síðan kona hans Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir. Þriðji er Bernódus Ólafsson en aðrir eru óþekktir. Í baksýn grillir í Höfðann í skafrenningnum sem var þennan dag.
Guðmundur Guðnason402
Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi. Myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason281
Þetta fólk er líklega Sigurður Ísólfsson og fjölskylda hans. Sigurður er maðurinn í gráu jakkafötunum. Ef þú þekkir hitt fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason621
Andrés Árni Baldursson ólst upp á neðri hæðinni í Þórshamri.
Guðmundur Guðnason341
Bræðurnir Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til vinstri og Georg Hjartarson (d.13.9.2001) til hægri drekka kaffi með Ágústu Ágústsdóttur söngkonu og úlpuklæddum manni sem mun vera Einar Helgason sem bjó í Sólvangi um tíma.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn066
Hjónin Anna H. Aspar og Bernódus Ólafsson í lystisiglingu á bát Bernódusar, Blíðfara, inn á Vækilvíkinni í Höfðanum. Litla stúlkan fremst í bátnum er Þórunn Bernódusdóttir og aftast er systir hennar Halla Björg Bernódusdóttir. Stúlkan í miðjunni er Selma Þórarinsdóttir.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn074
Elísabet G. Kristjánsdóttir (Elsa) ( d. 21.3.1991).
Magnús B Jónsson018
Kassahlaup á sjómannadegi 1983. Tilbúnir að leggja af stað eru frá vinstri: Jón Jónsson, Sigurjón Guðbjartsson og Kristján Karlsson. Lengst til hægri er ræsirinn Jón Ingi Ingvarsson.
Guðmundur Guðnason504
Leiksýning í Tunnunni, Klerkar í klípu. Frá vinstri eru í hlutverkum sínum: Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Björg Ólafsdóttir (d. 1.4.2007) og Edda Pálsdóttir.
Guðmundur Guðnason507
Leikarar í óþekktri leiksýningu (Klerkar í klípu ?) í Tunnunni. Frá vinstri: Ari Ólafsson frá Sævarlandi, Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) frá Vík, Hörður Ragnarsson, Edda Pálsdóttir, Björg Ólafsdóttir (d. 1.4.2007), Guðný Sigurðardóttir, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) frá Suður Skála og Helgi Gunnarsson. Fremst situr leikstjórinn Birna Blöndal.
Guðmundur Guðnason326
Þessi maður er Rósberg G. Snædal (d. jan. 1983) skáld með Hún Snædal son sinn í fanginu. Þeir sitja á hlaðinu á Hvammi í Laxárdal en þar bjuggu foreldra Rósbergs fram til ársins 1948 er þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Rósberg var bróðir ljósmyndarans Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988).
Guðmundur Guðnason345
Frá vinstri: Sævar Bjarnason, Helga Hermannsdóttir og Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Guðmundur Guðnason394
Kirkjukór Hólaneskirkju á einhverjum tímapunkti 1965 -1970. Á myndinni eru frá vinstri: Dórothea Hallgrímsdóttir Hólanesi, Kristján Hjartarson Grund, Elísabet Frímannsdóttir Jaðri, óþekkt, Jóhanna Thorarensen Litla Bergi, Georg Hjartarson frá Vík, óþekkt, óþekkt, Kristín Björnsdóttir Jaðri, Björgvin Jónsson Höfðabrekku, Þorgerður Guðmundsdóttir Höfðabrekku, Anna Bára Sigurjónsdóttir Sunnuhlíð, Guðmundur Guðnason Ægissíðu, Þórey Jónsdóttir Norður Skála og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu konurnar á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason461
Þessar prúðbúnu konur í óþekktri veislu eru frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Elín Njálsdóttir, Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (Bibba) (d. 26.8.2008), Jóninna Hafsteinsdóttir (d. 24.11.1994) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir er með myndavélina
Guðmundur Guðnason292
Séra Ólafur Hallgrímsson í ræðustól í Húnaveri. Tilefnið var hátíð vegna 100 ára afmælis Bergstaðakirkju 1983.
Guðmundur Guðnason462
Þetta prúðbúna fólk er í einhverri veislu, sennilega á heimili Harðar Ragnarssonar og Aðalbjargar Hafsteinsdóttur. Á myndinni eru frá vinstri: Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d. 26.8.2008), Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d. 24.11.1994), Jökulrós Grímsdóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir með myndavélina, Sigurjón Ástmarsson, Súsanna Þórhallsdóttir og Gylfi Sigurðsson.
Kristín Björnsdóttir018
<P>Frá vinstri: Sigurður Björnsson og Engilráð Guðmundsdóttir frá Jaðri. Engilráð var uppeldisdóttir hjónanna á Jaðri þeirra Björns Sigurðssonar (d. 5.10.1999) og Elísabetar Frímannsdóttur (d. 1.9. 1990) en Sigurður er sonur þeirra.</P>
Guðmundur Guðnason361
Kirkjukór Hólaneskirkju syngur á sviðinu í Fellsborg undir stjórn Kristjáns Hjartarsonar. Frá vinstri í kórnum: Hildigunnur Jóhannsdóttir, Sævar Bjarnason, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Bára Þorvaldsdóttir, óþekkt, Guðrún Sigurðardóttir, Guðmundur Guðnason, Aðalheiður Guðmundsdóttir og tvö óþekkt.
Guðmundur Guðnason517
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) hressir sig á einum snapsi í Vindhælisrétt.
Guðmundur Guðnason457
Eiður Hilmarsson frá Hofi og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu.
Guðmundur Guðnason401
Stúlkurnar á myndinni voru nágrannar í útbænum þegar þær voru að alast upp. Lengst til vinstri er <br>Matthildur Fossdal Hafsteinsdóttir í Dvergasteini. Dvergasteinn er horfinn fyrir löngu en hann stóð milli Skálholts og Bankastrætis. Í miðið er svo Sóley Benjamínsdóttir í Skálholti, sem enn stendur við Skagaveg. Lengst til Hægri er Áslaug Hrólfsdóttir úr Bjarmalandi sem stendur í skakkhorn við Skálholt hinum megin við Skagaveginn en þar hefur engin búið í mörg ár. Matthildur átti þrjá bræður en tveir þeirra eru nú látnir. Sóley átti tvær systur og er önnur þeirra látin. Áslaug var einbirni. Allar fluttu þessar blómarósir ungar burt frá Skagaströnd. Myndina tók Guðmundur Guðnason líklega kringum 1960.
img006
Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (snýr baki í ljósmyndara), Guðmundur Jóhannesson og Birgir Árnason við vinnu sína í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar.
Guðmundur Guðnason373
Hægra megin við borðið, fremst,má sjá Bernódus Ólafsson og konu hans Önnu H. Aspar klappa fyrir einhverju í Fellsborg. Aðrir eru óþekktir.
Kristín Björnsdóttir009
Elísabet S. Frímannsdóttir (Beta) (d. 1.9.1990) frá Jaðri.
Guðmundur Guðnason353
Þessir ungu menn létu sig ekki vanta á hátíðasvæðið á sjómannadegi. Til vinstri er Axel Gígjar Ásgeirsson en til hægri er Björn Ingi Óskarsson.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn077
Systurnar Halla Björg Bernódusdóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir til hægri. Myndin var sennilega tekin 1950 - 1955.
Adolf H Berndsen - safn008
Myndin var tekin framan við Karlsskála einhverntíma upp úr 1940. Frá vinstri: Adolf J. Berndsen (situr), Karl Þórólfur Berndsen (d. 12.2.1995), Ernst G. Berndsen (d. 21.8.1983) og Ríkharður Pálsson frá Sauðanesi. Greinilega er a.m.k. strákunum mjög skemmt yfir einhverju. Í baksýn sér í húsið á Læk.
Guðmundur Guðnason337
Vala Rós Ingvarsdóttir stendur milli föður síns Ingvars Sigtryggssonar og séra Péturs Þ. Ingjaldssonar á fermingardaginn sinn í Hólaneskirkju eldri vorið 1980.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn068
Myndin er tekin í skemmtiferð - líklega í Vaglaskógi - í kringum 1950. Á myndinni eru Elísabet G. Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991) og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996).
Adolf H Berndsen - safn015
<p>Þetta heyskaparfólk er talið frá vinstri: Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987), Adolf J. Berndsen, Ernst Berndsen (d. 21.8.1983), Karl Þ. Berndsen (d. 12.2.1995) öll frá Karlsskála, Magdalena Helgadóttir (d. ?) systir Guðrúnar og Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) úr Árnesi. </p>
Guðmundur Guðnason535
Baldur Eðvarðsson
Guðmundur Guðnason368
Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) skáld, organisti og kórstjórnandi frá Grund á sviðinu í Fellsborg.
Adolf H Berndsen - safn009
<p>Unnið í heyskap á góðviðrisdegi á Skagaströnd. Frá vinstri: Karl Þórólfur Berndsen (d. 12.2.1995) með foreldrum sínum Guðrúnu Helgadóttur (d. 15.4.1987) og Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) frá Karlsskála</p>
Magnús B Jónsson087
Leikklúbbur Skagastrandar hélt Jónasarvöku í Fellsborg , líklega um jólin 1983, til heiðurs Jónasi Árnasyni en klúbburinn hafði sýnt a.m.k. tvö leikrit eftir hann. Jónas kom sjálfur á skemmtunina með konu sína með sér og tók þátt í skemmtuninni. Á myndinni syngja félagar í Leikklúbbnum einhvern af fjölmörgum söngtextum Jónasar. Frá vinstri: Óafur Bernódusson, Díana Kristjánsdóttir, Erna Hreinsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Helga Hermannsdóttir, Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir, Þorvaldur Skaftason, Kolbrún Viggósdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 091
Vígsla nýbyggingar barnaskólans 2. nóvember 1958. Skólabörn og foreldrar þeirra hlusta á vígsluræður.
Óþekktur ljósmyndari131
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri klippir á borða í Áhaldahúsinu í september 1998.
Guðmundur Guðnason316
Óþekktur harmoníkuleikari. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason479
Jón Ísberg sýslumaður (d. 24.6.2009) með konu sinni Þórhildi Guðjónsdóttur Ísberg. Maðurinn til hægri er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason195
Kristín Sigurðardóttir frá Kárastöðum og óþekkt stúlka á hestbaki við Spákonufellsrétt 1962.
Guðmundur Guðnason411
Margrét Guðlaugsdóttir.
Guðmundur Guðnason426
Helga Bachmann.
Guðmundur Guðnason213
Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Ágúst Jakobsson frá Blálandi til vinstri og Henry Kristjánsson frá Kárastöðum herða að gærunni eftir að hafa saltað hana og brotið saman á ákveðinn hátt. Gærurnar voru geymdar saltaðar og seldar þannig til fullvinnslu.
Guðmundur Guðnason554
<p>Lionklúbbur Skagastrandar var lagður niður fyrir allmörgum árum eftir að hafa starfað með myndarbrag í mörg ár. Var hann þá eini Lionklúbbur landsins sem lagður var niður. Klúbburinn var síðan endurreistur fyrir nokkrum árum með nýjum félögum, enda margir félagar úr eldri klúbbnum látnir. Þessi mynd er af einhverri samkomu hjá eldri Lionklúbbi Skagastrandar. Sennilega var myndin tekin á heimili Valdimars Núma Valdimarssonar, sem líklega var formaður á þeim tíma, því konan hans og dóttir eru með á myndinni en eins og vitað er þá eru Lionklúbbar karlaklúbbar. Tilefni veislunnar var gestakoma því á myndinni eru tveir ókunnir gestir að öllum líkindum hátt settir menn innan Lionhreyfingarinnar á Íslandi. Aðrir á myndinni eru félagar í Lionklúbbnum. </p><p>Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri frá Breiðabliki. Þorfinnur Bjarnason (d. 16.11.2005) oddviti Höfðahrepps og starfaði sem framkvæmdastjóri hreppsins. Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri Höfðahrepps frá Brúarlandi (bjó í Norður Skála). Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) sóknarprestur á Skagaströnd sem hann þjónaði í 40 ár. Ókunnur gestur. Margét Valdimarsdóttir (dóttir V. Núma). Valdimar Númi Guðmundsson (d. 14.3. 1972) flutningabílstjóri með áætlunarferðir milli Reykjavíkur og Skagastrandar í mörg ár. Ókunnur gestur. Unnur Ingvarsdóttir eiginkona V. Núma. Jón Pálsson kennari, sem seinna fór í fótspor föður síns og gerðist skólastjóri Höfðaskóla. Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) bifreiðastjóri og umboðsmaður fyrir Shell olíufélagið lengi. Þá starfaði hann líka sem ómenntaður rakari og klippti fólk. Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) framkvæmdastjóri og eigandi saumastofunnar Violu, sem var til húsa á efstu hæðinni í gamla kaupfélaginu. Sveinn S. Ingólfsson kennari og seinna oddviti Höfðahrepps og fyrsti framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til fjölda ára. Lengst til hægri er svo Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993) rafvirki . </p>
Magnús B Jónsson084
Leikklúbbur Skagastrandar hélt Jónasarvöku í Fellsborg , líklega um jólin 1983, til heiðurs Jónasi Árnasyni en klúbburinn hafði sýnt a.m.k. tvö leikrit eftir hann. Jónas kom sjálfur á skemmtunina með konu sína með sér og tók þátt í skemmtuninni. Mikið var sungið á skemmtuninni og hér syngur Jónas með félögum úr Leikklúbbnum. Þeir eru frá vinstri: Fannar Viggósson, Helga Hermannsdóttir, Þorvaldur Skaftason, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Ólafur Bernódusson, Guðbjörg Viggósdóttir, Hallveig Ingimarsdóttir, Guðný Sigurðardóttir, Magnús B. Jónsson og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Guðmundur Guðnason471
<p>Sitjandi við kaffiborð í Höfðaskóla, af óþekktu tilefni, eru frá vinstri: Hafsteinn Sigurbjarnarson Reykholti (d. 18.5.1974), Ólína Hafsteinsdóttir (Lilla) Reykholti, Guðrún Sigurðardóttir, Erla Lárusdóttir, Edda Pálsdóttir, Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996), Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6.2002), Gestheiður Jónsdóttir (d. 6.11.2010), Páll Jóhannesson frá Garði (d. 29.1.1989) og Sigríður Guðnadóttir Breiðabliki (d. 4.3.1964).</p>
Guðmundur Guðnason439
Þórey Ólafsdóttir frá Árbakka
Guðmundur Guðnason282
Ægissíða, heimili Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara þessarar myndar.
Magnús B Jónsson031
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun. Jón Arnarson gítarleikari. Myndin var tekin ca 1985.
Guðmundur Guðnason420
Aðalbjörg Sigurðardóttir (Bagga) frá Akurgerð - Hólabraut 9.
Guðmundur Guðnason220
Hestarnir teknir til kostanna á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Knaparnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason366
Kirkjukór Hólaneskirkju syngur undir stjórn Kristjáns Hjartarsonar á sviðinu í Fellsborg. Konurnar eru frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir eða Sigrún Lárusdóttir, Helga Hermannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Elísabet Árnadóttir (Bebbý). Maðurinn í gráu jakkafötunum er Georg Hjartarson.
Guðmundur Guðnason340
Guðrún Guðbjörnsdóttir, fyrir miðri mynd, drekkur kaffi með Georg Hjartarsyni (d. 13.9.2001) (lengt til vinstri) og Einari Helgasyni í Sólvangi og óþekktri konu .
Guðmundur Guðnason423
Þessi maður er óþekktur. Ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kristín Björnsdóttir002
Hjónin Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) og Elísabet Frímannsdóttir (Beta) (d. 1.9.1990) með börnin sín fyrir utan heimili þeirra að Jaðri (Neðra Jaðri). Börnin eru frá vinstri: Kristín Björnsdóttir (Dídí), Guðmundur Jón Björnsson, Hallbjörn Björnsson og Sigurður Björnsson.
1
…
37
38
39
…
167
Leita í myndasafninu
Leita