Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason220
Hestarnir teknir til kostanna á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Knaparnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason468
Myndin var tekin í Höfðaskóla á óþekktum tíma (sennilega kringum 1960). Hallbjörn Hjartarson leikur á orgelið en Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6. 2002), Ásmundur Magnússon (d. 2.2. 1996) maður hennar og Páll Jóhannesson (d. 29.1.1989) hlusta á.
Guðmundur Guðnason642
Framsólknarvist spiluð á Hótel Blönduósi. Guðmundur Jónasson (d. 6.2.1988) frá Ási er á miðri mynd en aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason466
Kirkjukór Hólaneskirkju. Myndin var tekin í skólanum. Efri röð frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson Brimnesi, Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) Ægissíðu og Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi. Fremri röð frá vinstri: Ólína Hafsteinsdóttir (Lilla) Reykholti, Guðrún Sigurðardóttir, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður Skála, Erla Lárusdóttir, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016).
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn078
Halla Björg Bernódusdóttir á mynd sem var sennilega tekin einhverntíma á árunum1950 - 1955.
Guðmundur Guðnason396
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) póstur frá Ægissíðu til vinstri og Páll Jónsson ( . 19.7.1979) skólastjóri til hægri. Myndin var tekin í skólanum við orgel sem þar var. Báðir voru þeir Guðmundur og Páll organistar meðfram störfum sínum.
Guðmundur Guðnason444
Þessi litli strákur heitir Þórður en ekki vitum við föðurnafnið. Móðir hans er Margrét þórðardóttir.
Guðmundur Guðnason599
Mynd tekin í 50 ára afmæli Þorfinns Bjarnasonar (f. 5.5.1918 - d. 6.11.2005). Þorfinnur er til hægri en hjá honum situr Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) skipstjóri.
Guðmundur Guðnason601
Gengið eftir fjörukambinum með kistu eftir húskveðju í Kálfshamarsvík árið 1961. Líklega er verið að kveðja Jóhannes Einarsson (F. 24.7.1888) frá Hátúni í Kálfshamarsvík..
Guðmundur Guðnason398
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu og Þórey Ólafsdóttir frá Árbakka á góðri stund.
Guðmundur Guðnason272
Byrjunarframkvæmdir við frystiklefann á uppfyllingunni við Skúffugarðinn austanverðan. Klefan byggði Hólanes hf. Í baksýn sést Arnar Hu 1, fyrsti skuttogari Skagstrendings hf sem kom í heimahöfn í fyrsta sinn 1973 frá Japan þar sem hann var smíðaður.
Guðmundur Guðnason397
Myndin var tekin á heimleið úr Skrapatungurétt. Frá vinstri: Ingþór Þorfinnsson, Þórður Jónsson (d.25.12.2009) og Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988).
Guðmundur Guðnason405
Kennarar við Höfðaskóla í kringum 1960. Standandi frá vinstri eru: Ingólfur Ármannsson og Kristinn Pálsson (d. 21.10.2008) en sitjandi eru Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) og Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri.
Guðmundur Guðnason440
Valgerður Kristjánsdóttir frá Núpi í Laxárdal (Gerða frá Núpi).
Guðmundur Guðnason386
Rósa Sigurðardóttir frá Hólanesi með vini sínum Guðmundi Guðnasyni (d. 21.11.1989) frá Ægissíðu.
Guðmundur Guðnason333
Sigursveit í kappróðri tekur við verðlaunum sínum úr höndum Ingvars Jónssonar (með hatt) frá Brúarlandi og Björgvins Jónssonar frá Höfðabrekku. Í sveitinni voru, talið frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson (Assi) Höfðabrekku, Guðmundur J. Björnsson Jaðri, Reynir Sigurðsson Þórsmörk, Stefán Jósefsson Reykholti, Eðvarð Ingvason Valhöll, Árni Björn Ingvarsson Sólheimum og stýrimaðurinn Pétur Jóhannsson Lækjarbakka. Myndin var sennilega tekin 1967.
Guðmundur Guðnason487
Jólasveinninn kemur í heimsókn á jólatrésskemmtun á Sturluhóli. Konan með gleraugun er Dómhildur Jónsdóttir prestsfrú frá Skagaströnd. Drengurinn fremst á myndinni til vinstri er Jón Tryggvi Jökulsson frá Núpi og hægra megin sést bróðir hans, Valgarður Jökulsson til hálfs. Hægra megin við Dómhildi er svo Halla Jökulsdóttir systir þeirra. Stúlkan sem sést í fremst í horninu til hægri er Halldóra Ingimundardóttir frá Enni. Myndin var tekin milli jóla og nýárs 1967. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason369
Jón Pálsson í ræðustól á sviðinu í Fellsborg. Við borðið í salnum má þekkja hjónin Þorvald Skaftason og Ernu Sigurbjörnsdóttur vinstra megin en hjónin Sigurð Bjarnason og Sigrúnu Lárusdóttur hægra megin við borðið.
Guðmundur Guðnason421
<p>Kristín Helgadóttir eiginkona Hjálmars Eyþórssonar lögreglumanns.</p>
Guðmundur Guðnason303
Systkinin Gígja Óskarsdóttir og Óskar Óskarsson frá Ásholti í gönguferð á Höfðanum.
Guðmundur Guðnason400
Matthildur Fossdal til vinstri og Sóley Benjamínsdóttir leika sér á sumardegi á Höfðanum.
Guðmundur Guðnason465
Lionsfundur í Lionsklúbbi Skagatrandar með gestum. Þessi Lionsfundur hefur verið sérstakur því yfirleitt voru konur ekki á fundum klúbbsins. Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979), Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11. 2005), Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978), Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), óþekktur, Margrét Valdimarsdóttir, Valdimar Númi Guðmundsson ( d. 14.3.1972), óþekktur, Unnur Ingvarsdóttir (d. 18.6. 1977), Jón Pálsson, Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977), Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992), Sveinn Ingólfsson og Páll Þorfinnsson.
Magnús B Jónsson047
Skíðaskálinn var vígður um páska 1985 með kaffiboði. Á myndinni eru frá vinstri: Viggó Magnússon, tveir óþekktir, Baldvin Hjaltason, Vilhjálmur Skaftason, óþekktur, Ægir Jónsson.
Guðmundur Guðnason514
Réttastörf í Vindhælisrétt. Frá vinstri: Ingvi Guðnason Valhöll (d. 31.12.1991), Ólafur Jónasson Syðri Ey (d. 8.9.1980) og Þorkell Magnússon úr Goðhól ( d. 30.8.1968).
Guðmundur Guðnason430
Myndin er tekin í óþekktri kirkju. Fremst á myndinni er séra Ragnar Fjalar Lárusson. Maðurinn til vinstri aftan við Ragnar er líklega séra Bjarni Jónsson vígslubiskup. Aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir annað hvort þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason527
Sigurjón Jóhannsson frá Sunnuhlíð (Bogabraut 19)(d. 7.12.1973) með hrút.
Kristín Björnsdóttir016
Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri situr glaðbeittur á vörubílspalli.
Guðmundur Guðnason668
Þorrablót í gömlu Tunnunni sennilega kringum 1965. Að áti loknu voru borðin færð til svo pláss myndaðist til að dansa á miðju gólfi.
Guðmundur Guðnason509
þórður Jónsson (d.25.12.2009), lengst til vinstri, stjórnar verðlaunaafhendingum á grímuballi í Tunnunni. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason463
<p>Þessar stúlkur tóku þátt í keppninni: Fegurðardrottning Austur Húnavatnssýslu. Ártalið er óþekkt en gæti verið 1969?. Stúlkurnar eru frá vinstri: Guðrún Sóley Guðmundsdóttir frá Eiríksstöðum í Svartárdal, Anna Grímsdóttir frá Ljótshólum sem var kosin sem fegurðardrottning, Kristín H. Guðmundsdóttir frá Hvammstanga, Jónína G. Jósafatsdóttir og María Svavarsdóttir frá Flögu<br>
Guðmundur Guðnason572
<P>Hér hefur Guðmundur ljósmyndari annað hvort verið að gera tilraunir eða myndavélin hefur bilað og og ekki fært filmuna. A.m.k. hefur Guðmundur tekið mynd ofan á aðra mynd löngu fyrir tilkomu Photoshop og annarra tölvuforrita sem gera fólki mögulegt að breyta myndum sínum á alla kanta. Því miður þekkjum við ekki konurnar í forgrunni myndarinnar en Spákonufellið er auðþekkt í baksýn. </P>
Guðmundur Guðnason501
Frá vinstri, í leikritinu Klerkar í klípu í Tunnunni, eru í hlutverkum: Guðný Sigurðardóttir, Björg Ólafsdóttir (d.1.4.2007), Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) og Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001).
Guðmundur Guðnason447
Á árum áður þótti ekki tiltökumál að reykja innan dyra og innan um fólk sem ekki reykti. Öllum þótti þetta eðlilegt þó reykurinn færi stundum í þá sem ekki reyktu. Hér er fólk í hliðarsalnum í Fellsborg á einhverri samkomu og meirihlutinn reykir. Frá vinstri: Viggó Brynjólfsson, Páll Þorfinnsson ( d.1.9.1993), Bjarney Valdimarsdóttir og Friðbjörg Oddsdóttir
Guðmundur Guðnason237
Ekkert er vitað um þessa mynd annað en að hún var tekin í Húnaveri á einhverri skemmtun. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Magnús B Jónsson043
Krakkar í Höfðaskóla fædd 1972. Fremri röð frá vinstri: Hjalti Kristjánsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Soffía Jónasdóttir, Gunnar Ásgeirsson og Óskar Óskarsson. Aftari röð: Svava Sigurðardóttir, Hólmfríður Oddsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Stefán Sveinsson og Þorlákur Sigurður Sveinsson. Aftast er kennarinn, Karl Lúðvíksson.
Guðmundur Guðnason249
Systkini frá Litla Felli 1981. Efstur er Ólafur Ásgeirsson, Gunnar Ásgeirsson er í brúnu vesti, Jóhann Ásgeirsson við hlið hans en á milli þeirra er Hafdís Ásgeirsdóttir. Stúlkan við vinstri öxl Ólafs er Sigríður Ásgeirsdóttir og Anna Guðrún Ásgeirsdóttir framan við hana. Stúlkan milli Önnu og Hafdísar er Ása Ósk Ásgeirsdóttir og framan við hana er Þóra Dögg Ásgeirsdóttir en fremst er svo Ásta Ýr Ásgeirsdóttir.
Magnús B Jónsson040
Þessir ungu menn sáu um að spila tónlist á árshátíðardansleiknum á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á myndinni eru: Davíð Reynisson frá Harrastöðum í rauðri peysu, Viggó Magnússon í grænni skyrtu og Kristján Karlsson í ljósum jakka. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason271
Þessi mynd var líklega tekin í ferð starfsmanna Guðmundar Lárussonar á hringferð um landið einhverntíma á árunum kringum 1975. Erfitt er að þekkja fólkið en fremst til hægri er Jón Jónsson (d. 9.7.1991). Hægra megin við hann eru hjónin Jón Þorgeirsson og María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003). Fólkið sem er að setjast vinstra megin við Jón Jónsson er óþekkt en vinstra megin við þau sitja hjónin Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). Beint aftan við þau sitja svo hjónin Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) og Erla Valdimarsdóttir (d. 29.9.2008). Í röðinni aftan við þau er Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) lengst til hægri með konu sinni Elínborgu Árnadóttur (d. 7.4.1979), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) kona hans vinstra megin við þau og maðurinn sem veifar er Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008) og síðan Elísabet Árnadóttir konan hans í grænum buxum. Birna Blöndal er síðan aftan við þau, einnig í grænum buxum, og maður hennar Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) er vinstra megin við hana. Aðrir á myndinni eru óþekktir eða ekki hægt að þekkja þá með vissu.
Guðmundur Guðnason371
Þessi mynd var tekin á einhverri uppákomu á vegum kirkjukórsins í Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) frá Bjarmalandi, Jóhanna Thorarensen Litla Bergi og Elísabet Frímannsdóttir (Beta) (d. 1.9.1990) frá Jaðri. Þau þrjú voru gerð að heiðursfélögum í kirkjukórnum á þessari samkomu.
Magnús B Jónsson048
Skíðaskálinn var vígður um páska 1985 með kaffiboði. Á myndinni eru frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, óþekktur með barn, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Karl Berndsen, Guðmundur Jóhannesson, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, baksvipur Jónínu Valdimarsdóttur, Helga Jóhannesdóttir, Sveinn Ingólfsson og óþekktur.
Guðmundur Guðnason330
Þessi mynd sýnir réttarstörf í Mjóadalsrétt en sennilega var hún tekin um mitt sumar þegar verið er að rýja féð. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason364
Þær eru kátar stúlkurnar á myndinni. Frá hægri: Elín Njálsdóttir með blóm, Líney Jósefsdóttir og svo sér í Helgu Jóhannesdóttur.
Guðmundur Guðnason393
Þessar konur voru búsettar í Vatnsdalnum. Frá vinstri: Fjóla ? frá Hvammi, Elín Sigurtryggvadóttir frá Kornsá, Ragnheiður Blöndal frá Brúsastöðum, Lilja Halldórsdóttir Steinsen (d. 29.9.1997) frá Haukagili, Guðlaug Ólafsdóttir frá Snæringsstöðum og Sigrún Grímsdóttir frá Saurbæ.
Guðmundur Guðnason305
Systkinin Gígja Óskarsdóttir og Óskar Óskarsson frá Ásholti við innsiglingavörðuna á Höfðanum með nammi í poka.
38_Skemmtun_i_Vatnsdalnum
Óveður geysar á Skagaströnd á 9. áratugnum.
Guðmundur Guðnason418
Steinunn M. Ellertsdóttir.
Guðmundur Guðnason469
Hér sitja við hlaðið kaffiborð í Höfðaskóla af óþekktu tilefni, talið frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki, Pétur Jónsson (d. 18.2.1966) Stóra Bergi, Guðmundur Guðnason ( d. 21.11.1988) Ægissíðu, Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Þorgerður Guðmundsdóttir Höfðabrekku, Hrólfur Jónsson ( d. 1.8.1989) Bjarmalandi, Þórey Jónsdóttir ( 29.12.1966) Norður Skála, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) Norður Skála og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) Höfða.
Adolf H Berndsen - safn028
Á heimilissýningu 1986 í Laugardalshöll settu starfsmenn Marska á Skagaströnd heimsmet. Þeir bökuðu stærstu sjávarréttapizzu í heimi og var metið staðfest af Örnólfi Thorlasíus fulltrúa Heimsmetabókar Guinnes á Íslandi. Pizzan var um 10 fermetrar og eftir að hún hafði verið bökuð smökkuðu á henni um 6800 manns. Steindór Haraldsson, sem var framleiðslustjóri Marska, áætlar að hægt hefði verið að gefa 20.000 manns að smakka því skammtarnir sem gefnir voru tóku um þriðjung af bökunni allri. Á myndinni hellir Steindór sjávarrétta áleggi sem hann útbjó á pizzubotninn. Tveir kokkar úr kokkalandsliði Íslands hjálpa til við að dreifa úr álegginu á pizzabotninn. Áhorfendur fylgjast spenntir með.
Kristín Björnsdóttir029
Sigurður Björnsson fylgist með ungum frænda sínum Birni Hallbjörnssyni skríða á hlaðinu á Jaðri. Myndin var sennilega tekin 1968.
Guðmundur Guðnason239
Á þessari mynd, sem sennilega var tekin kringum 1955, eru vinkonurnar Þórunn Bernódusdóttir til vinstri og Kristín Lúðvíksdóttir til hægri.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn084
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndirnar eru skannaðar úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Oft fiskaðist vel í ísnum ef hægt var að athafna sig. Hér eru við vinnu sína um borð í Vísi, frá vinstri: Jón Stefánsson, Jósef Stefánsson og Bernódus Ólafsson. Auk þeirra var um borð skipstjórinn Sigurður Árnason.
Guðmundur Guðnason222
<p>Þessar konur eru á leið upp veginn frá Fossá, en sá vegur lá til Stafnréttar. Myndin var sennilega tekin 1968. </p>
Guðmundur Guðnason378
Myndin var tekin í Ásholti. Hjónin Þorgerður Guðlaugsdóttir og Óskar Axelsson sitja hjá syni sínum Birni Inga Óskarssyni og móður Óskars, Sveinbjörgu Björnsdóttur. Myndin er sennilega tekin á fermingardegi Björns Inga.
Guðmundur Guðnason522
Þorkell Magnússon úr Goðhól (d. 30.8.1968) dregur lamb í dilk í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason273
þessi mynd var sennilega tekin á ferðalagi starfsmanna Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á árunum kringum 1975. Á myndinni er Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) á spalli við Selmu Þórarinsdóttur (d. 14.9.1990) og Eið Hilmarsson.
Magnús B Jónsson073
Maðurinn í dökku úlpunni er William Sillar sem er að prófa skíði í fyrsta sinn. Næst yst til hægri fylgist Guðrún Pálsdóttir spennt með. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason506
<P>Guðbjartur Guðjónsson frá Vík leikur í leikritinu "Klerkar í klípu" í Tunnunni. </P>
Guðmundur Guðnason178
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Guðni Sveinsson Ægissíðu (d.15.11.1971), Eggert Skarphéðinsson Sólheimum (d. 2.6.1987) og óþekktur maður.
Magnús B Jónsson069
Hér er handagangur í öskjunni. Verið er að afhenda viðurkenningarskjöl og verðlaun á skíðamóti. Eins og sjá má voru margir þátttakendur enda skíðaiðkun vinsæl á Skagaströnd á þessum árum. Myndin var tekin ca 1980. Maðurinn með sólgleraugun er Ólafur Bernódusson og konan í ljósa jakkanum er Sigríður Einarsdóttir (Sissa) skíðakennari frá Ísafirði.
Guðmundur Guðnason505
Leiksýning í Tunnunni, Klerkar í klípu. Frá vinstri : Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) frá Vík, óþekktur, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) frá Suður Skála, Ari Ólafsson frá Sævarlandir, Helgi Gunnarsson, Hörður Ragnarsson og Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001).
1
…
38
39
40
…
167
Leita í myndasafninu
Leita