Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason722
Mynd úr leikritinu Vekjaraklukkan sem sett var á svið í gömlu Tunnunni um páska 1964 á vegum Höfðaskóla undir stjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundssson úr Skeifunni, Gunnlaugur Sigmarsson, Kolbrún Jónsdóttir úr Sænska húsinu, Guðmundur Ingi Jónatansson frá Höfðabrekku, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti og Alda Jónsdóttir Hjallholti. Myndin var tekin á sýningu.
Adolf H Berndsen - safn011
Guðmundur Guðnason eða Mundi póstur (d. 21.11.1988) með einkennishúfuna og reiðhjólið sem fylgdi starfi hans sem bæjarpóstur á Skagaströnd. Hér er Mundi fyrir utan heimili sitt Ægissíðu þar sem hann bjó með foreldrum sínum meðan þau lifðu.
Adolf H Berndsen - safn020
Fritz H. Berndsen stendur í gættinni á heimili sínu í Árnesi, sem hann byggði 1899. Árnes er safn í dag um gamalt heimilishald. Á rekkunum kringum Fritz er hann að þurrka saltfisk.
Guðmundur Guðnason499
Guðmundur Jósafatsson frá Brandsstöðum (d. 16.6.1982) talar á þorrablóti í Húnaveri.
Kristín Björnsdóttir023
Heima á Jaðri á góðri stundu. Til vinstri er Guðný Sigurðardóttir með Elísabetu Hallbjörnsdóttur, dóttur sína, í fanginu þá kemur Björn Hallbjörnsson sonur hennar og lengst til hægri er amma barnanna, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) húsmóðir á Jaðri. Guðný er tengdadóttir Elísabetar, gift Hallbirni Björnssyni. Myndin var tekin kringum 1970.
Guðmundur Guðnason724
Aðalbjörg Sigurðardóttir (Bagga) frá Akurgerði með son sinn Þröst Þorbjörnsson í fanginu.
Guðmundur Guðnason488
Björn pálsson alþingismaður frá Ytri Löngumýri (d. 11.4.1996) talar á einhverri samkomu.
Guðmundur Guðnason547
Fjölskyldan í Straumnesi. Inga Þorvaldsdóttir (d. desember 2012) og Birgir Árnason (d. 2.2.2005) með Eyrúnu dóttur sína á milli sín. Fyrir framan sitja synir þeirra, Búi Þór (d. 18.9. 2009) til vinstri og Árni Björn til hægri.
Guðmundur Guðnason530
<p>Réttað í Spákonufellsrétt. Frá vinstri: Konráð Klemensson Konnabæ (Garðhúsum) (d. 20.11.1981), Gunnlaugur Björnsson Harrastöðum (d. 8.5.1978 ), Ágúst Jakobsson Blálandi (d. 1.6.1989) ), Sveinn Ingi Grímsson og óþekktir. </p>
Guðmundur Guðnason659
Páfríður Benjamínsdóttir frá Skálholti. Myndin var tekin 1960 við fermingu Pálfríðar.
Guðmundur Guðnason450
Dvalarheimilið Sæborg tekið í notkun. Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður í ræðustól. Maðurinn sem situr í fremstu röð er Guðmundur Bjarnason þáverandi heilbrigðisráðherra.
Guðmundur Guðnason640
<P>Framsóknarvist spiluð á Hótel Blönduós. Pétur Hafsteinsson (d. 9.10.1987) frá Hólabæ, Pétur Ólason (d. 18.7.1998) frá Miðhúsum og Lárus Sigurðsson (d. 14.10.1983) frá Tindum spila. Konurnar eru óþekktar. Aftast á myndinni stendur Snorri Arnfinnsson og skyggnist um með hönd á enni. </P>
Guðmundur Guðnason541
Hjónin í Miðnesi 1, Högni Jensson og Ragna Friðriksdóttir (d. 5.2.1981).
Guðmundur Guðnason474
Eggert Skarphéðinsson í Sólheimum (d. 2.6.1987) klöngrast út um baggagatið á hlöðunni sinni.
Guðmundur Guðnason566
Tryggvi Jónsson frá Ártúnum leikur sér á heimatilbúnum bát.
Guðmundur Guðnason480
<P>Hér dansar Sveinn Ásmundsson byggingameistari frá Ásbúðum og Siglufirði við óþekkta konu. Sveinn byggði bæði Héraðshælið og félagsheimilið á Blönduósi. </P>
Guðmundur Guðnason754
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd. Greinileg hefur verið húsfyllir á ballinu en þeir sem ekki eru í búningum eru fram við dyr meðan grímubúna fólkið dansar með númer á bakinu.
Guðmundur Guðnason728
Örn Berg Guðmundsson (Assi) frá Höfðabrekku á fermingardeginum sínum 1963.
Guðmundur Guðnason546
Búi Þór Birgisson frá Straumnesi (d. 18.9.2009).
Adolf H Berndsen - safn014
Ole Aamundsen (Óli norski) í Lundi var m.a. umboðsmaður fyrir Shell olíufélagið á Skagaströnd. Hér er hann við birgðatank félagsins að auglýsa Rotella smurolíu frá Shell.
Guðmundur Guðnason496
Sigríður Ásgeirsdóttir frá Lækjarbakka (d. 11.12.2006) leikur hér í óþekktu leikriti.
Guðmundur Guðnason586
Skemmtun Lionklúbbs Skagastrandar 1967 í Tunnunni. Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri frá Brúarlandi les upp.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn069
Í skemmtiferð - líklega í Vaglaskógi - í kringum 1950. Á myndinni eru frá vinstri: Guðný Pálsdóttir, Gunnar Helgason (d. 19.10.2007), Ásdís Pálsdóttir og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996).
Guðmundur Guðnason431
Hér spá í spilin, sennilega á sjómannadegi, þeir Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) Sunnuhvoli og Jón Þorsteinsson (d. 17.9. 1994) alþingismaður úr Reykjavík.
Guðmundur Guðnason451
Dvalarheimilið Sæborg tekið í notkun. Soffía Lárusdóttir baráttukona fyrir byggingu Sæborgar í ræðustól.
Guðmundur Guðnason678
Lions-dansleikur á Siglufirði 15. júní 1968. Hljólmsveitarmeðlimirnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason544
Árni Björn Birgisson frá Straumnesi
Guðmundur Guðnason606
Helgi Jónatansson (d.22.8.2020) alinn upp í Höðabrekku (Bankastræti 10).
Guðmundur Guðnason413
Alda Jónsdóttir.
Guðmundur Guðnason512
Bergur Jón Þórðarson er drengurinn sem er að leita lamba í Spákonufellsrétt 1958 þá 7 - 8 ára gamall. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason424
Pétur Jónsson (d. 18.2.1966) frá Stóra Bergi.
Guðmundur Guðnason510
Í Spákonufellsrétt 1958. Á myndinni þekkjast Pétur Jónsson Stóra Bergi (d. 18.2.1966) á miðri mynd með derhúfu og vettlinga og við hlið hans til hægri er Guðni Sveinsson frá Ægissíðu (d. 15.11.1971). Ef þú þekkir einhverja aðra á myndinni vinsamlega sednu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson209
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Á myndinni bíða Ólafur Bernódusson, Kristín Jónsdóttir og Þorvaldur Skaftason, lengst til hægri, eftir að röðin komi að þeim að skemmta.
Guðmundur Guðnason565
Ingi Heiðmar Jónson frá Ártúnum leikur sér á heimatilbúnum bát.
Guðmundur Guðnason578
Barnið er ókunnugt. Ef þú þekkir það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn080
Bernódus Ólafsson við vinnu sína úti á sjó.
Guðmundur Guðnason594
Jólaball í Tunnunni sennilega einhverntíma á sjöunda áratugnum. Jólasveininn nær okkur er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996)og sitjandi á bekknum má þekkja Adolf J. Berndsen og Hallbjörn Hjartarson. Konan með svörtu húfuna sem dansar fyrir miðri mynd er Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012).
Guðmundur Guðnason569
Guðrún Þóranna Jónsdóttir frá Ártúnum fædd 1950.
Guðmundur Guðnason524
Guðlaugur Gíslason Vinaminni (Hólabraut 16) rekur fé í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason633
Myndin var tekin í september 1962 í ferð sem Guðmundur Guðnason fór um æskuslóðir sínar í Laxárdal. Hér hafa hann og óþekktur ferðafélagi tjaldað á grænum bala.
Guðmundur Guðnason449
Dvalarheimilið Sæborg tekið í notkun. Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri í ræðustól.
Guðmundur Guðnason516
<p>Réttað í Spákonufellsrétt. Páll Jónsson frá Reykholti (d. ?) er á miðri mynd. Aðrir eru óþekktir. </p>
Guðmundur Guðnason638
Skemmtun í Húnaveri. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason485
Fjölmenn veisla á í leikfimisal Blönduskóla á Blönduósi. Tilefnið er óþekkt en sennilega er þetta mynd úr kveðjuhófi séra Þorsteins B. Gíslasonar (d. 8.6.1980) í Steinnesi árið 1965. Kunnugir geta m.a. þekkt á myndinni: Hallgrím Kristjánsson (d. 18.5.1990) og Hermínu Sigvaldadóttur (d. 28.6.19094) frá Kringlu, Jónas Halldórsson (d. 25.8.1973) á Leysingjastöðum og Eystein Erlendsson (d. 27.10.1969) frá Beinkeldu. Gaman væri að fá nánari upplýsingar um myndina þannig að ef þú veist eitthvað um hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason623
Frá vinstri á myndinni eru: María Bjarnadóttir (d. 1984) frá Holti, Steinunn Margrét Ellertsdóttir og Hrefna Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði (sem var rifið 2002 og nýtt hús byggt á lóðinni - Hólabraut 9). Myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason536
Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016).
Guðmundur Guðnason523
Réttað í Spákonufellsrétt. Konan til vinstri er Elísabet Árnadóttir (Bebbý) frá Réttarholti og bogni maðurinn til hægri er Lárus Árnason frá Ási (d. 21.5.2011).
Adolf H Berndsen - safn017
Fritz H. Berndsen, sem byggði Árnes 1899 og bjó þar, situr hér við stofuborðið í Árnesi ásamt seinni konu sinni Jónínu J. Berndsen. Fritz leggur kapal en Jónína er með eitthvað á prjónunum. Enn má fara í heimsókn í Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd og er nú safn. Þar má meðal annars skoða ljósalampann sem sést á myndinni.
Guðmundur Guðnason495
Hér er verið að sýna óþekkt leikrit. Leikarinn til vinstri, sem er greinilega að leika póstburðarmann, er Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) frá Vík en konan er Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka.
Guðmundur Guðnason646
Guðmundur Jósafatsson (d. 16.6.1982) frá Brandsstöðum flytur tölu í Húnaveri.
Guðmundur Guðnason580
Skemmtun Lionklúbbs Skagastrandar 1967 í Tunnunni. Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) les upp.
Skagaströnd - safn449
Á myndinni er fyrsta hreppsnefnd Höfðahrepps sem varð til 1939 við skiptingu Vindhælishrepps hins forna í Skagahrepp, Höfðahrepp og Vindhælishrepp. Nú hafa Vindhælis- og Skagahreppur sameinast aftur í Skagabyggð og Höfðahreppur hefur skipt um nafn yfir í Sveitarfélagið Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason491
Ragnar Arnalds alþingismaður heldur ræðu á framboðsfundi í Fellsborg. Fundarstjórinn Þorfinnur Bjarnason oddviti (d. 6.11.2005) situr við hlið ræðumanns. Á milli þeirra grillir í Ólaf Jóhannesson (d. 20.5.1984) alþingismann og forsætisráðherra. Aðrir eru óþekktir
Guðmundur Guðnason482
Hér dansar Jón Ísberg sýslumaður (d. 24.6.2009) við Þorgerði Sæmundsen sem var kona Hermanns Þórarinssonar. Á bak við þau sér í Þorvald Ásgeirsson og Sigurð Kr. Jónsson á dansgólfinu.
Guðmundur Guðnason611
Einar Guðjónsson (d.1.2.1961) frá Bjarmalandi en hann var bróðir Andrésar Guðjónssonar (d.5.10.1968) verslunarmanns á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason478
<P>Jóhann Salberg Guðmundsson sýslumaður Skagfirðinga og frú. </P>
Kristín Björnsdóttir010
Þessi sumarmynd er af hjónunum Birni Sigurðssyni (d. 5.10.1999) og Elísabetu Frímannsdóttur (Betu) (d. 1.9.1990) frá Jaðri, börnum þeirra og gesti. Frá vinstri: Hallbjörn Björnsson, Jón Guðmundsson, Guðmundur J. Björnsson, Björn, Kristín Björnsdóttir, Elísabet og Sigurður Björnsson.
Adolf H Berndsen - safn021
Þessi mynd var tekin 1933 eða 1934. Þetta prúðbúna fólk á myndinni var flest allt skylt eða tengt fjölskylduböndum. Tilefni myndatökunnar er óþekkt. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Fremsta röð: Maríus Helgason, Steinþór Ólafsson og Theodór Ólafsson. Önnur röð: Ólafur Lárusson, Sigríður Ólafsdóttir, Sigríður Berndsen, Olga Berndsen, óþekktur, María Berndsen, Margrét Berndsen, Björg Berndsen, Fritz H. Berndsen og óþekktur maður fyrir aftan hann. Þriðja röð: Steinunn Berndsen með Árna Ólaf Ólafsson (Kúta) í fanginu, Carl Berndsen, Hedrik Berndsen og Regína Hansen. Aftasta röð: Ernst Berndsen og Hannes Kjartansson.
Guðmundur Guðnason842
Óþekktir leikarar í óþekktri leiksýningu í Tunnunni sennilega árið1963. Ef þú veist eitthvað um það sem myndin sýnir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason537
Guðmundur Guðnason sem tók þessa mynd tók töluvert mikið af myndum af sjónvarpsskjánum. Einkum tók hann myndir af prestum, biskupum og messum sem voru sérstakt áhugamál hjá Guðmundi. Hér er sýnishorn af einni slíkri "sjónvarpsmynd" en hún er, eins og sjá má, af séra Gunnari Árnasyni.
1
…
40
41
42
…
167
Leita í myndasafninu
Leita