Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason912

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason498

Ingvar Jónsson Sólheimum (d. 18.1.2003) og Sigríður Ásgeirsdóttir Lækjarbakka (d. 11.12.2006) leika hér í óþekktu leikriti.

Guðmundur Guðnason698
Henrý Kristjánsson (d. 22.6.1972) frá Kárastöðum.
Ólafur Bernódusson087
Spilað á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Elísabet Hallbjörnsdóttir horfir í myndvélina en Jóney Gylfadóttir skoðar spilin sín. Stúlkan í ljósu peysunni við borðshornið er Jóhanna Sveinsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram169
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd stekkur Kristjana Jónsdóttir hástökk með Fosbury-stíl. Pétur Pétursson passar að ráin sé í réttri hæð.
Guðmundur Guðnason631
Stefán Kristinsson (Kúti) (d. 2011) frá Bræðraborg. Myndin var tekin upp úr 1960.
Guðmundur Guðnason750
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd. Greinileg hefur verið húsfyllir á ballinu en þeir sem ekki eru í búningum eru fram við dyr meðan grímubúna fólkið dansar með númer á bakinu. Jón Jónsson (d. 9.7.1991) frá Asparlundi til vinstri og Hallbjörn Hjartarson frá Vík til hægri virðast vera að stjórna ballinu.
Guðmundur Guðnason649

Vinirnir Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) í Dagsbrún til vinstri og Guðmundur Guðnason (Mundi póstur) (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu saman á góðri stundu

Guðmundur Guðnason652
Sigurður Kristinsson frá Bræðraborg. Myndin var tekin upp úr 1960.
Guðmundur Guðnason644
Drengurinn í strigaskónum er Kjartan Erlendsson frá Bólstaðarhlíð (nú Sauðárkróki). Maðurinn fjær á myndinni er Pétur Pétursson (d. 7.5.1977) á Höllustöðum en hinn maðurinn er Páll Helgi Halldórsson (d.18.12.1974). Myndin var tekin í Húnaveri.
Guðmundur Guðnason764
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) frá Stórholti (Bankastræti 3) stillir sér upp við hákarlaskipið Ófeig á byggðasafninu á Reykjum. Bernódus mundi eftir bátnum í útgerð frá því að hann var strákur að alast upp í Reykjarfirði á Ströndum.
umf Fram227
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum og síðan var sameiginleg lokahátíð haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd flytur Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum, þáverandi formaður USAH, ræðu í lokahófinu.
Guðmundur Guðnason629
Á þessari mynd sem tekin var einhverntíma upp úr 1960 er Kristinn Guðmundsson (d. 1.12.1986) með syni sína. Guðmundur Kristinsson (Lilli) er lengst til vinstri, Stefán Kristinsson (Kúti) (d. 2011) situr í fangi pabba síns og til hægri er Sigurður Kristinsson.
Guðmundur Guðnason612
Þessi mynd er sennilega tekin kringum 1960 á hrútasýningu í einhverju af mörgum fjárhúsum á Skagaströnd sem þá stóðu. Frá vinstri á myndinni eru: Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) og sonur hans Hinrik Jóhannesson frá Ásholti. Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968) frá Goðhóli, Jón Árnason (d. 11.4.1986) í Náttbrún og Jón Jónsson (d. 9.7.1991) í Asparlundi.
Guðmundur Guðnason770
Kristján Eldjárn, forseti Íslands, kom í opinbera heimsókn í Húnaþing árið 1969. Af því tilefni var haldin móttaka í félagsheimilinu á Blönduósi. Hér syngur Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps í móttökunni.
Guðmundur Guðnason882

Grétar Guðmundsson frá Finnstungu.

Guðmundur Guðnason515
Pétur Jónsson Stóra Bergi ( d. 18.2.1966) til vinstri og Árni Daníelsson Eyjarkoti (d. 28.6.1970) til hægri við réttastörf í Spákonufellsrétt að sumri til þegar fénu var smalað til rúnings. Maðurinn sem bograr yfir kind til vinstri er Andrés Guðjónsson kaupmaður í Andrésarhúsi (d. 5.10.1968).
umf Fram181
Öldungamót USAH var haldið á Skagaströnd 28. júlí 1983. Þar öttu kappi eldri íþróttamenn af báðum kynjum sér til gamans. Á þessari þrí-samsettu mynd má sjá fólk í hófinu eftir mótið en það var haldið í Kántrýbæ (sem síðar brann). Lengst til vinstri er Sveinn Ingólfsson, á mið myndinni eru Helga Guðmundsdóttir, dökkklædd og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Lengst til hægri er svo Gunnar Sveinsson.
Skagaströnd - safn450
Þetta ar mynd af hreppsnefndarmönnum Höfðahrepps 1942 - 1946. Þeir sátu aðra hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939.
Guðmundur Guðnason489
Ragnar Arnalds alþingismaður talar í Tunnunni á fundi hjá Alþýðubandalaginu á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason647

Þessi mynd var sennilega tekin á skemmtun í Húnaveri. Frá vinstri: Þorbjörn Þorvaldsson (d. 28.1.1987) Strjúgsstöðum, Sverrir Haraldsson (d. 24.10.2002) frá Æsustöðum og Pétur Hafsteinsson (d. 9.10.1987) frá Hólabæ.

Guðmundur Guðnason521
Ólafur Guðmundsson frá Brautarholti (d. 6.10.1985) skoðar mark á kind. Takið eftir neftóbakskrukkunni og vasaklútnum í vinstri hendi hans.
Guðmundur Guðnason658
Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti. Myndin tekin um 1965.
umf Fram157
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd eru frá vinstri: Stefán Jósefsson, Adolf H. Berndsen, Guðmundur Haukur Sigurðsson með gjallarhorn og Gunnar Sveinsson.
Guðmundur Guðnason567
Hjónin Jón Tryggvason (d. 7.3.2007) og Sigríður Ólafsdóttir með börnum sínum. Tryggvi Jónsson er til vinstri og Ingi Heiðmar Jónsson til hægri. Ólöf Una Jónsdóttir er í fangi móður sinnar, Klara Sólveig Jónsdóttir stendur framan við föður sinn, þá kemur Margrét Jónsdóttir og lengst til hægri er Guðrún Þóranna Jónsdóttir.
Guðmundur Guðnason812
Hjónin Jón Þorgeirsson og María Konráðsdóttir (d. 9.8. 2003) úr Sænska húsinu (Hólabraut 23) eru aftar en fólkið fyrir framan eru Sigurveig Jóhannsdóttir og Styrmir Haukdal Þorgeirsson.
Guðmundur Guðnason790
Þessi systkin áttu heima á Bogabraut 9. Þau eru frá vinstri: Jóhanna Ásmundsdóttir, Ásmundur Ásmundsson, Halldóra Ásmundsdóttir og fyrir framan er svo Kristján Pétur Ásmundsson. Myndin var sennilega tekin um 1960.
Guðmundur Guðnason608
Barnið er óþekkt en gæti verið Heimir Sigmarsson? Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram208
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru frá vinstri: Magnús Sigurðsson frá Hnjúki í Vatnsdal, Þorlákur Rúnar Loftsson, Sveinn Ingi Grímsson og Sigurjón Ástmarsson.
umf Fram236
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Ólafur var líka með námskeið fyrir elstu nemendurna í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin á því námskeiði. Frá vinstri upp við púltið: Þórdís Sigurðardóttir, óþekkt og Guðrún Berndsen.
Guðmundur Guðnason620
Jónína Baldursdóttir ólst upp á neðri hæðinni í Þórshamri.
Guðmundur Guðnason006
Klapparstígur 7, Akureyri?. Á tröppunum eru bræðurnir Húnn og Hólmsteinn Snædal synir Róbergs Guðnasonar Snædal.
umf Fram176
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd eru tveir vaskir keppendur frá Hvöt á Blönduósi: Jóhann Sigurðsson og Þórhalla Guðbjartsdóttir.
Skagaströnd - safn448
Magnús B. Jónsson lengst til vinstri í vinabæjarheimsókn á óþekktum stað á norðurlöndum. Ekki er heldur vitað hvenær myndin var tekin og mennirnir með Magnúsi eru óþekktir.
Skagaströnd - safn460
Tólfta hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 1982 - 1986.
Guðmundur Guðnason654
Páll Ísólfsson við orgel í óþekktri kirkju
Guðmundur Guðnason456
Gylfi Sigurðsson og Ólína Hafsteinsdóttir (Lilla).
Guðmundur Guðnason836
Karlakórinn Vökumenn með stjórnanda sínum, Kristófer Kristjánssyni frá Köldukinn, 1.maí 1963 á Skagaströnd. Fimmti maður frá vinstri er Sveinn Þórarinsson og annar maður til hægri við Kristófer er Óskar Sigurfinnsson frá Meðalheimi. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern mannanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason038

Myndin var tekin við Höfðahólabæinn. Sitjandi á hestinum er Óskar Axelsson. Síðan
kemur móðir hans, Sveinbjörg Björnsdóttir (. 12.7.2001), með dóttur sína Guðríði Axelsdóttur í fanginu og
þá sonur hennar Ásgeir Guðni Axelsson (d. 8.6.2011) . Þau fluttu síðar að Litla-Felli 1955 eftir að hafa verið síðustu ábúendur í Höfðahólum.

Guðmundur Guðnason760
Þessar þrjár fallegu stúlkur báru sigur úr bítum í keppninni: Ungfrú Austur Húnavatnssýsla 1969, sem haldin var í Húnaveri. Þessi keppni var liður í fegurðarsamkeppni Íslands því sigurvegararnir í hverri sýslu fyrir sig tóku síðan þátt í keppni um fegurðardrottningu Íslands sem haldin var í Reykjavík. Stúlkurnar á myndinni eru, frá vinstri: Sóley Guðmundsdóttir Eiríksstöðum, Anna Grímsdóttir Ljótshólum og Kristín H. Guðmundsdóttir Hvammstanga.
Guðmundur Guðnason712

Sennilega var þessi mynd tekin á leikriti um Bakkbræður á sýningu á Blönduósi. Leikararnir eru líklega Skúli Pálsson (d. 3.3.2001), Tómas R. Jónsson (d. 10.5.1986) og Bjarni Einarsson (d. 15.8.1978) ásamt Nönnu Tómasdóttur (d. 2013). Ef þú getur staðfest nöfn leikaranna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Adolf H Berndsen - safn018
Fólkið, sem situr í makindum á góðviðrisdegi við Vækilvíkina á Höfðanum, er frá vinstri: Guðrún Helgadóttir frá Karlsskála (d. 15.4.1987), maður hennar Ernst Berndsen frá Karlsskála (d. 21.8.1983), Guðrún Björnsdóttir (Góa) úr Góubænum (Sæborg við Oddagötu) (d. 11.8.1971) og Lena Helgadóttir frá Læk (d?).
umf Fram189
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru þáverandi stjórnarmenn félagsins. Talið frá vinstri: Sigurður Guðmundsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Axel Jóhann Hallgrímsson og Unnur Gunnarsdóttir.
umf Fram206
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Kjartan Bjarnason, Stefán Kristinsson (Kúti) (d. í júní 2011) og Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
Guðmundur Guðnason625
Steinunn Margrét Ellertsdóttir til vinstri og María Bjarnadóttir (d. 1984) frá Holti til hægri. Myndin var tekin upp úr 1960.
Guðmundur Guðnason583
Skemmtun Lionklúbbs Skagastrandar 1967 í Tunnunni. Konurnar sem syngja fyrir áheyrendur við undirleik Guðrúnar Sigurðardóttur eru frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Áslaug Hafsteinsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir og Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016).
umf Fram175
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd er verið að skipta í boðhlaupi. Frá vinstri á myndinni eru: Óþekktur, Þorleifur Arason (Dúddi) (d. 11.11. 1991), Hrólfur Pétursson, Hjörtur Guðmundsson og Pétur Pétursson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram262
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd er Guðrún Berndsen að fara yfir 1,44 m í hástökki og setja með því nýtt sýslumet. Áhorfendur fylgjast spenntir með.
umf Fram212
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Þórdís Sigurðardóttir, Sólveig Gunnarsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Sigurbjörn Björgvinsson, Guðrún Berndsen,tvær óþekktar, Kristinn Guðmundsson og Guðrún Ágústsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram260
Fundur með stjórnum aðildafélaga USAH 13. mars 1976. Fundarfólk hefur stillt sér upp undir vegg til myndatöku. Frá vinstri: Sigurður Guðmundsson Skagaströnd, Pétur Eysteinsson framkvæmdastjóri hjá USAH þetta sumar, Valgarður Hilmarsson Fremsta Gili, óþekktur, óþekktur, Pétur Pétursson Hólabæ, Magnús Sigurðsson Hnjúki, óþekktur, Magnús Ólafsson Sveinsstöðum, Guðmundur Haukur Sigurðsson Skagaströnd, Valdimar Guðmannsson Bakkakoti, Þórdís Sigurðardóttir Skagaströnd og Unnur Gunnarsdóttir Skagaströnd. Ef þú þekkir óþekktu mennina á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn463
Fimmtánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Mennirnir á myndinni sátu í nefndinni 1994 - 1998.
Guðmundur Guðnason826
María Bjarnadóttir (d. 1984) frá Holti.
Guðmundur Guðnason525
Guðni Sveinsson frá Ægissíðu (d. 15.11.1971) hugar að marki á kind í dilk í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason706

Ekki er vitað af hvaða tilefni þessi prúðbúnu ungmenni tróðu upp á sviðinu í Gömlu Tunnunni. Myndin er sennilega tekin upp úr 1960 e.t.v. á einhverri hátíð tengdri ungmennafélaginu Fram eða stúkunni á Skagaströnd. Á myndinni má þekkja, frá vinstri: Sigrún Kristófersdóttir frá Sunnuhvoli, Helgi Þór Bjarnason (d. 1.3. 2007) frá Holti, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Guðmundur Guðmundsson úr Skeifunni, Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum, Bergdís Sigmarsdóttir, Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Búi Birgisson frá Straumnesi, Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti, óþekkt, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Jóhann Ingibjörnsson og Elíborg Ingvarsdóttir frá Sólheimum. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason855
Fermingarbörn ársins 1964 ganga til Hólaneskirkju (eldri). Frá vinstri á myndinni: óþekkt, Jóhanna Ásmundsdóttir, Alda Jónsdóttir úr Hjallholti , Sólveig Georgsdóttir, Signý Ástmarsdóttir og Elínborg Ingvarsdóttir frá Sólheimum. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason533
Stóðréttir í ókunnri rétt. Hávaxni maðurinn í ljósu úlpunni er Magnús Blöndal (d. 7.9. 2001), hjá honum er Ásgeir Axelsson Litla Felli (d. 8.6.2011) og skeggjaði maðurinn með prjónahúfuna er Gunnlaugur Sigmarsson.
umf Fram149

Á árum áður stóð umf. Fram fyrir víðavangshlaupum á hverju vori. Hlaupið var þrisvar sinnum með viku millibili og þegar þeim var öllum lokið var samanlagður árangur keppenda látinn ráða röðinni. Ræsir og aðalstjórnandi hlaupanna var Lárus Ægir Guðmundsson og dáðust margir að raddstyrk hans þegar hann var að raða keppendum upp, ræsa þá af stað og hvetja áfram. Keppt var í nokkrum kynjaskiptum aldursflokkum. Á þessari mynd hafa elstu keppendurnir lokið hlaupinu og raða sér upp í skjóli við Volvo vörubíl Harðar Ragnarssonar fyrir utan pósthúsið (Tónlistarskólann). Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Sigurbjörn Kristjánsson, Ómar Jakobsson, Jón Jósefsson, Jón Indriðason, Magnús B. Jónsson, Þórarinn Ingvarsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Fannar Viggósson, Vilhjálmur Skaftason, Gunnar Stefánsson og Ársæll Ottósson. Aðrir eru óþekktir.

Guðmundur Guðnason730
Systurnar frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8). Frá vinstri: Pálfríður Bjarnadóttir, Ólína Bjarnadóttir, Hjálmfríður Bjarnadóttir og Anna Bjarnadóttir.
umf Fram210
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, tveir óþekktir, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og maður hennar Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Guðfinna Þorgeirsdóttir og maður hennar Kristinn Ágústsson og Guðmundur Jóhannesson.
Guðmundur Guðnason549
María Sigurjónsdóttir Brandsstöðum og Soffía Ólafsdóttir (d. 30.8.1985) frá Mjóadal, í Húnaveri 1959.
1

43
44
45

167
Leita í myndasafninu
Leita