Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason549
María Sigurjónsdóttir Brandsstöðum og Soffía Ólafsdóttir (d. 30.8.1985) frá Mjóadal, í Húnaveri 1959.
Guðmundur Guðnason643
<P>Björn Jónsson (d. 18.2.1991) frá Gili í Svartárdal sópar dansgólfið í Húnaveri. </P>
Guðmundur Guðnason857
Fermingarsystur árið 1964 ganga til Hólaneskirkju (eldri). Frá vinstri: Árný Viggósdóttir frá Gunnarshólma, sem var alin upp í Höfðabergi af Júlíusi Árnasyni og Steinunni Guðmundsdóttur. Til hægri er Elínborg Ingvarsdóttir frá Sólheimum.
umf Fram275
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í 3000 metra hlaup. Frá vinstri: Óskar Guðmundsson, Kristinn Guðmundsson og Sigurður Ingi Guðmundsson.
Guðmundur Guðnason684
<P>Agnes Sævarsdóttir</P>
Ólafur Bernódusson104
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Á þessari mynd tekur Hugrún Sigurðardóttir víti. Aðrar stúlkur á vellinum eru frá vinstri: Kristín Jóna Sigurðardóttir, Hugrún Pálsdóttir og Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason840
Óþekktir leikarar í óþekktri leiksýningu í Tunnunni sennilega árið1963. Ef þú veist eitthvað um það sem myndin sýnir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason018
Þessir tveir garpar eru óþekktir. Ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason908
Kynnir á hestamannmóti í Húnaveri 1964 les upp og fólk fylgist grannt með. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram235
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Ólafur var líka með námskeið fyrir elstu nemendurna í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin á námskeiðinu hjá þeim. Frá vinstri: Guðrún Berndsen, Ástmar Kári Ástmarsson, óþekktur, Kristinn Guðmundsson og Grétar Smári Hallbjörnsson.
Guðmundur Guðnason648
Tvíburasysturnar Guðrún Angantýsdóttir til vinstri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) til hægri með dætur sínar. Líklega er Guðrún með dóttur sína, Sigurbjörgu Árdísi Indriðadóttur en Sigurbjörg með sína dóttur, Jóhönnu Báru Hallgrímsdóttur.
Skagaströnd - safn451
Á þessari mynd er þriðja hreppsnefnd Höfðahrepps eftir stofnun hans 1939. Þessir menn voru í nefndinni 1946 - 1950.
umf Fram253
Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd eru þrjár stúlkur úr Fram á veðlaunapallinum. Frá vinstri: Soffía Guðmundsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir og Kolbrún Viggósdóttir.
umf Fram259
Lára Guðmundsdóttir og Axel Jóhann Hallgrímsson voru stigahæstu einstaklingar Fram á héraðsmóti í sundi 13. ágúst (1976?). Lið Fram vann bikarinn, sem þau halda á milli sín, á mótinu.
Ólafur Bernódusson095
Annar bekkur Höfðaskóla veturinn 1982-83 að vinna í stofunni sinni. Hér var unnið í stöðvavinnu. Nær okkur sitja Björn Sigurðsson til vinstri og Gunnar Halldór Hallbjörnsson til hægri við lestrarborðið. Stúlkan sem er með þeim við borðið er óþekkt. Við borðið fjær eru Ása Ósk Ásgeirsdóttir og Atli Þórsson upp við vegginn en aðrir eru óþekktir. Þau eru að vinna við íslensku-verkefna borðið.
umf Fram281
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í kringlukasti. Frá vinstri: Ari Arason, Helgi Björnsson og Ingibergur Guðmundsson.
Skagaströnd - safn469
Steindór Rúniberg Haraldsson sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd 2014 - 2018.
Skagaströnd - safn454
Sjötta hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Mennirnir á myndinni voru í nefndinni 1958 - 1862.
Guðmundur Guðnason607
<p>Þetta fólk er óþekkt en stúlkan gæti verið ?Bergdís Sigmarsdóttir með Heimi Sigmarsson? bróður sinn í fanginu. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Guðmundur Guðnason822
Sólveig Georgsdóttir á fermingardaginn sinn 1964.
Ólafur Bernódusson098
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Myndin sýnir leik milli Blönduósinga og Skastrendinga og áhorfendur sem raða sér á hliðarlínuna.
umf Fram251
Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd eru standandi frá vinstri Skagstrendingarnir: Kolbrún Viggósdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Ingibergur Guðmundsson fararstjóri, Sólveig Gunnarsdóttir og Soffía Guðmundsdóttir. Bergþór Þórisson frá Blönduósi krýpur fyrir framan.
Skagaströnd - safn457
Níunda hreppsnefnd Höfðahrepps frá því að hann varð til 1939. Mennirnir á myndinni sátu í nefndinni 1970 - 1974.
Guðmundur Guðnason568
Þetta eru systur frá Ártúnum. Frá vinstri: Margrét, Klara Sólveig og Guðrún Þóranna Jónsdætur.
Guðmundur Guðnason030
Engu er líkara en þessi óþekkti knapi sé að spjalla við folaldið á myndinni. Ef þú veist hver knapinn er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason661
Bræður frá Vík spila sennilega á þorrablóti í gömlu Tunnunni. Hallbjörn Hjartarson til vinstri leikur á trommur og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til hægri spilar á harmoniku.
Skagaströnd - safn471
Adolf H. Berndsen sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd um árabil þar á meðal kjörtímabilið 2014 - 2018 og þá sem oddviti.
Guðmundur Guðnason780
Óþekktur drengur (?Guðjón Árnason í Ásgarði?). Myndin var sennilega tekin 1969. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson082
Grímubúnir drengir á öskudaginn 1983 fyrir utan Bogabraut 24 (Asparlund). Frá vinstri: Óþekktur, Ægir Jónsson, Viggó Magnússon og Halldór Gunnar Ólafsson.
Guðmundur Guðnason561
Ólöf Una Jónsdóttir með dýrum í Ártúnum. Hólahornið og Svartárbrú í baksýn. Veiðikofi var á þessum tíma í norðan við túnið í Ártúnum (til hægri á myndinni).
Guðmundur Guðnason740
Guðrún Þóranna Jónsdóttir frá Ártúnum.
Guðmundur Guðnason890
Þessi mynd af Unni Sólveigu Björnsdóttur var tekin 1963.
Guðmundur Guðnason662
Dansað á þorrablóti í gömlu Tunnunni um miðjan sjöunda áratuginn. Gunnar Sveinsson er lengst til vinstr, þá Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi og Sigurður Pálmason úr Pálmalundi. Örn Berg Guðmundsson (Assi) frá Höfðabrekku er rétt vinstra megin við miðja mynd og Ísleifur Haraldsson frá Jaðri er rétt hægra megin við miðja mynd. Dansparið til hægri eru þau Karl Berndsen (d. 12.2.1995) frá Karlsskála og konan hans Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir frá Reykholti. Aðrir á myndinni eru óþekktir
Guðmundur Guðnason028
Ekki er víst hver drengurinn á hestinum er en sennilega er hann annar bræðranna: Húnn Snædal eða Hólmsteinn Snædal en þeir eru synir Rósberg G. Snædal (d.9.1.1983) bróður Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) sem tók þessa mynd. Ef þú þekkir drenginn á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason475
Eggert Skarphéðinsson í Sólheimum (d. 2.6.1987) að snúast við fjárhúsin sín. Í baksýn má sjá Sólheima (nýrri) til hægri og fjárhús og hlöðu sem tilheyrðu Ingvari Jónssyni (d. 18.1.2003) sem átti heima þar. Þeir sem muna Eggert þekkja baksvip hans eins og myndin sýnir.
Guðmundur Guðnason616
Myndin var tekin í fermingarveislu Ómars Þorbjörnssonar frá Akurgerði í maí 1960. Standandi frá vinstri: Ómar Þorbjörnsson og Reynir Sigurðsson frá Þórsmörk. Sitjandi frá vinstri: Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) frá Þórsmörk, Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) Þórsmörk, Óli Albertsson frá Keldulandi (þá í Akurgerði) og Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) frá Akri. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn465
Sautjánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 2002 - 2006.
Guðmundur Guðnason796
Maðurinn á myndinni er Magnús Hálfdánarson og með honum er kona hans Halldóra Þorsteinsdóttir á lítilli mynd. Sonur þeirra var Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996) sem lengi var verksmiðjustjóri á Skagaströnd. Magnús bjó hjá fjölsyldu Ásmundar á Bogabraut 9.
Guðmundur Guðnason645
Tiltekt í Húnaveri. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram232
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd eru frá vinstri: Þorgerður Guðmundsdóttir (d.?) frá Höfðabrekku, óþekktur, Axel Jóhann Hallgrímsson og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson065
Haldið var körfuboltamót á Húnavöllum um jólin 1982. Þar kepptu að gamni sínu lið frá Hvöt, Fram og Geislum. Á þessari mynd er hart barist í leik Hvatar og Fram. Fannar Viggósson úr Fram hoppar hæst en Guðjón Pálsson (Dúi) (d.14.12.1989) Framari bíður átekta til hægri (með hvítan kraga). Til vinstri í hvítri treyju er Pétur Pétursson úr Geislum með dómaraflautuna en maðurinn sem grillir í fyrir aftan hann er Adolf H. Berndsen úr Fram. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn458
Tíunda hreppsnefnd Höfðahrepps frá því að hann var stofnaður 1939. Þessir menn sátu í nefndinni 1974 - 1978.
Guðmundur Guðnason002
Þetta er Klemensína Karitas Klemensdóttir (d.12.6.1966) húsfreyja á Vesturá og Hvammi í Laxárdal en síðast í Ægissíðu á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason776
Þessi stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason716
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti og Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti.
umf Fram183
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd heldur séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), ræðu í afmælinu.
Guðmundur Guðnason667
Þorrablót í gömlu Tunnunni sennilega kringum 1965. Þröngt setinn bekkurinn. Að áti loknu voru borðin færð til svo pláss myndaðist til að dansa á miðju gólfi.
Guðmundur Guðnason924
<P>Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Töluverður fjöldi fólks lagði á sig göngu upp í Hörfellið til að fylgjast með keppninni. Ef myndin er skoðuð vel sést einn keppandi vera að ljúka stökki sínu og næsti keppandi er tilbúinn efst í brekkunni. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </P>
umf Fram192
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd búast til brottfarar að afmælishófinu loknu, frá vinstri: Jón Pálsson, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) og Björk Axelsdóttir. Aftan við Önnu sér í mann hennar, Bernódus Ólafsson.
Guðmundur Guðnason540
Mynd af Málfríði Jóhannsdóttur (Mallý) í Miðnesi 1 í jólakjólnum sínum. Myndin var tekin kringum 1960.
umf Fram285
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd keppir Hafþór Gylfason í hástökki. Áhorfendur fylgjst spenntir með.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 159
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með Silfá Sjöfn Árnadóttur í fanginu á stéttinni við Fellsbraut 5. Fjær er móðir Silfár, Herdís Jakobsdóttir, að bauka við grillið.
umf Fram159
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd mælir Gunnar Sveinsson og Stefán Jósefsson ritar mælinguna. Aðrir á myndinni eru: Guðmundur Haukur Sigurðsson á rauðum bol, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) í brúnni skyrtu. Pétur Arnar Pétursson er með hendurnar fyrir aftan bak og lengst til hægri er Guðmundur Kristinsson. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson148
Þessi mynd var tekin í hófi sem haldið var til að vígja endurbyggingu Hólanes frystihússins 1986 eða 87. Meðal annars var verið að fagna tilkomu glæsilegrar kaffistofu á efstu hæð hússins. Á þessari mynd er Adolf J. Berndsen oddviti Höfðahrepps í ræðustól en Jóhann Ásgeirsson starfsmaður Hólaness hf hlustar á.
Guðmundur Guðnason734
Þorvaldur Skaftason frá Dagsbrún á fermingardeginum sínum 1963.
umf Fram209
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru í forgrunni, frá vinstri: óþekkt, Elín Njálsdóttir, óþekkt, Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir. Við háborðið má þekkja Pál Jónsson (d. 19.7.1979) og Unni Gunnarsdóttur. Við borðið til vinstri sitja Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), inn í horni með gleraugu, og Bjarney Valdimarsdóttir, sem horfir í átt að myndavélinni.
Skagaströnd - safn466
Átjánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 2006 - 2010. Árið 2007 var nafni sveitarfélagsins breytt í: Sveitarfélagið Skagaströnd. Magnús Jónsson var ekki kjörinn fulltrúi heldur ráðinn sveitarstjóri.
Ólafur Bernódusson084
Á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Frá vinstri: Hugrún Pálsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Höskuldur Bragi Bragason, Jóhanna Sveinsdóttir, Erlingur Ottósson, Atli Þórsson, Björn Hallbjörnsson (með derhúfu), Jón Arnarson, óþekktur, Bylgja Bára Bragadóttir, tveir óþekktir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Arnar Arnarsson, óþekktur, Gunnar Ásgeirsson og Katrín Sigurjónsdóttir.
umf Fram184
<P>Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd heldur Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri ræðu í afmælishófinu.</P>
Guðmundur Guðnason832
<P>Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Eiríksstöðum.</P>
1
…
44
45
46
…
167
Leita í myndasafninu
Leita