Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
umf Fram238
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Ólafur var líka með námskeið fyrir elstu nemendurna í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin á því námskeiði af Þórdísi Sigurðardóttur í ræðustól.
umf Fram217
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd tekur Guðmundur Haukur Sigurðsson þáverandi formaður Fram, til vinstri, við gjöf úr höndum Magnúsar Ólafssonar frá Sveinsstöðum, þáverandi formanns USAH.
Ólafur Bernódusson250
Óskar Þór Óskarsson í febrúar 1988.
Guðmundur Guðnason732
Guðmundur Jón Björnsson frá Jaðri á fermingardeginum sínum 1963. Myndin var tekin í gömlu Hólaneskirkju.
Guðmundur Guðnason004
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu hefur brugðið sér á ókunna ljósmyndastofu með bestu "vinkonu" sína í fanginu einhverntíma kringum 1945.
Guðmundur Guðnason916
<P>Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Á þessari mynd sýnir óþekktur keppandi góðan stíl í skíðastökkinu. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </P>
umf Fram214
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd spila systkinin Rannveig Jónsdóttir og Þorlákur Axel Jónsson fjórhent á flygilinn.
Ólafur Bernódusson063
Haldið var körfuboltamót á Húnavöllum um jólin 1982. Þar kepptu að gamni sínu lið frá Hvöt, Fram og Geislum. Þessi mynd var tekin í leik Fram og Hvatar. Fannar Viggósson Fram hefur tekið skot á körfuna og Hvatarmenn fylgjast spenntir og tilbúnir með.
Guðmundur Guðnason792
Hjónin Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6.2002) og Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996) verksmiðjustjóri, sem bjuggu að Bogabraut 9.
umf Fram272
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd sjást tímaverðir að störfum ásamt fleira fólki. Frá vinstr: tveir óþekktir, Valgerður Guðmundsdóttir, í rauðri úlpu, svo koma þrír óþekktir, þá Sigurður Guðmundsson, Adolf H. Berndsen, Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002), sem krýpur, Rúnar Loftsson, óþekkt, Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993), Guðmundur Haukur Sigurðsson og þrír óþekktir.
umf Fram180
Öldungamót USAH var haldið á Skagaströnd 28. júlí 1983. Þar öttu kappi eldri íþróttamenn af báðum kynjum sér til gamans. Á þessari mynd, þar sem Gunnar Sveinsson stekkur langstökk, sést vel hinn létti andi sem var á mótinu. Fólkið á myndinni er talið frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Gylfi Sigurðsson (krjúpandi), Guðrún Guðbjörnsdóttir, óþekktur drengur, Sigríður Gestsdóttir, Gunnar, Valgerður Guðmundsdóttir, Jón Gunnar Jósefsson (aftar), Sigurbjörn Þorvaldsson (d.13.8.2000), óþekktur, Karl Lúðvíksson, Ingvar Sigtryggsson (d. 10.7.1988), óþekktur, Ingibergur Guðmundsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Pálmi Jónsson, óþekktur og Hjörtur Guðmundsson. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram292
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd kastar Ingibergur Guðmundsson spjóti en hann sigraði í spjótkastskeppninni á mótinu. Ernst Berndsen til vinstri og Sigurjón Ingólfsson fylgjast með.
Ólafur Bernódusson074
Dansað á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Ungu mennirnir fyrir miðri mynd eru Ægir Jónsson til vinstri og Óskar Hjaltason til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson077
Mynd frá diskóteki í Höfðaskóla 1983. Þarna er verið að dansa "ásadans" en þá er dansgólfinu skipt í fjóra reiti og þeir merktir ásunum fjórum. Síðan fara allir út á gólfið en tónlistin er stöðvuð óvænt og þá verður fólk að vera kyrrt í þeim reit sem það er í þegar tónlistin stoppar. Þá er dreginn út einn ás og þeir sem eru í viðkomandi hólfi eru dæmdir úr leik. Síðan er þetta endurtekið þar til einungis eitt par stendur uppi sem sigurvegari. Krakkarnir á myndinni eru greinilega úr leik og verða að draga sig til hliðar. Frá vinstri: Gunnar Ásgeirsson, Hólmgeir Kristmundsson, Hólmfríður Oddsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson, Stefán Sveinsson, óþekkt, Svava Magnúsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Anna Þóra Birgisdóttir og Sigurbjörg Guðmundsdóttir.
umf Fram264
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd er Sigríður Gestsdóttir að keppa í kúluvarpi. Heimir Sigmarsson, Sólveig Gunnarsdóttir og Guðrún Berndsen fylgjast með.
Ólafur Bernódusson351
Ný flæðilína var mikil framför í fiskvinnslunni í frystihúsi Hólaness hf. Þessi mynd var tekin í janúar 1989 þar sem konurnar eru að vinna við nýju flæðilínuna í sal frystihússins. Næstar okkur á myndinni eru Fjóla Jónsdóttir til vinstri og Sylvía Hrólfsdóttir til hægri.
umf Fram150
Í nokkur ár stóð umf Fram fyrir hjólakeppnum á vorin. Hjólaður var ákveðinn hringur um bæinn, mislangur eftir aldri keppenda, og tími tekinn. Á þessari mynd er Ingibergur Guðmundsson (í hvítum jakka) að fara yfir reglurnar og hjólaleiðina með keppendum áður en þeir leggja af stað. Á myndinni eru frá vinstri: Bryndís Ingimarsdóttir, Jón Indriðason, Þráinn Bessi Gunnarsson, óþekktur, Sigurbjörn Kristjánsson, óþekkt barn, Páll Jónsson, Kristjana Jónsdóttir, Jón Arnarson, Hilmar Eðvarðsson, Ingibergur, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, óþekkt barn, Elísabet Hallbjörnsdóttir, fjögur óþekkt, Jóhanna Sveinsdóttir (í rauðum íþróttafötum), Brynjar Pétursson, óþekkt, Björn Sigurðsson, Atli Þórsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Stefán Jósefsson, óþekkt, Þórarinn Ingvarsson, baksvipur Sigríðar Gestsdóttur, Arnar Arnarsson og Friðrik Gunnlaugsson.
Guðmundur Guðnason026
Myndin sýnir reiðskjóta tvegga tíma, hestinn og vélhjólið. Hjá reiðskjótunum stendur Ólafur Bjarnason (d. 6.10.1959) frá Stafni sem var hagyrðingur og skemmtikraftur. Róbert Snædal gerir Ólafi góð skil í bókum sínum.
Ólafur Bernódusson179
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar sótti námskeið 1987 sem gaf því formleg réttindi sem fiskvinnslufólk. Haldið var hóf í lok námskeiðsins til að halda upp á þennan áfanga fólksins. Á þessari mynd eru frá vinstri: Sigrún Lárusdóttir, óþekkt, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), óþekkt, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Grétar Haraldsson, Björn Ingi Óskarsson, óþekktur, Guðmundur Jóhannesson og Heimir Fjeldsteð.
umf Fram167
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd, sem tekin var af kepni í 100 eða 200 metra hlaupi, er Ingibergur Guðmundsson Fram lengst til vinstri, þá Hjörtur Guðmundsson Fram og síðan óþekktur en fremstur er Kári Einarsson úr Hvöt á Blönduósi.
umf Fram268
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd verið að veita verðlaun fyrir 400 metra hlaup. Frá vinstri: Soffía Guðmundsdóttir, Hulda Agnarsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir.
Ólafur Bernódusson321
Pétur Eggertsson hafði forgöngu að stofnun Rauða kross deildar á Skagaströnd. Bíllinn á myndinni er fyrsti sjúkrabíllinn sem deildin eignaðist 1989. Pétur fjármagnaði kaupin á honum sjálfur.
umf Fram239
Haldin var sýslukeppni þriggja héraðssambanda, Þristurinn, í frjálsum íþróttum, milli USAH, USVH og UMSS, við Reykjaskóla í Hrútafirði 29 ágúst (1976?). Á þessari mynd stekkur Ingibergur Guðmundsson úr USAH langstökk.
umf Fram199
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu og Jónína Valdimarsdóttir frá Kárastöðum í forgrunni. Aftan við þau má sjá Kristinn Guðmundsson sem snýr baki í myndavélina, Ástmar Kára Ásmarsson, Þórdísi Sigurðardóttur og Sólveigu Gunnarsdóttur. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram170
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd Kastar Sigríður Gestsdóttir kringlu. Guðmundur Haukur Sigurðsson í hvítri blússu, Vilhelm Jónsson í rauðum galla og Þorleifur Arason (d. 11.11.1991) fylgjast með.
Guðmundur Guðnason778
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu tók þessa mynd af frægum íþróttafréttamanni, Sigurði Sigurðssyni í sjónvarpinu árið 1969. Guðmundur tók allmikið af myndum af fólki á sjónvarpsskjánum á þessum fyrstu árum sjónvarps á Íslandi. Þessi mynd er sýnishorn af slíkum myndum eftir hann.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 41
Á myndinni eru systkinin Bára Þórðardóttir og Hafsteinn Þórðarson, börn Pálínu Hafsteinsdóttur (d.22.7.2008) frá Reykholti og Þórðar Kristjánssonar (d.30.6.1991). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson283
Í júlí 1989 slasaðist Heimir Guðmundsson við vinnu sína úti á sjó. Lítill bátur var fenginn til að sækja Heimi og á þessari mynd er hann að stíga í land með umbúðir á andlitinu. Á myndinni eru auk Heimis, Jóhannes Sveinsson til vinstri í bátnum og Hendrik Berndsen til hægri. Árni Geir Ingvarsson fylgist með á bryggjunni ásamt Þórdísi Sigurðardóttur konu Heimis. Stúlkan á myndinni er óþekkt.
umf Fram160
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd tekur Adolf H. Berndsen þátt í kringlukasti. Yfir höfuð Adolfs grillir í Stefán Jósefsson.
umf Fram142
Á árum áður stóð umf Fram fyrir víðavangshlaupum á hverju vori. Hlaupið var þrisvar sinnum og þegar þeim var öllum lokið var samanlagður árangur keppenda látinn ráða röðinni. Ræsir og aðalstjórnandi hlaupanna var Lárus Ægir Guðmundsson og dáðust margir að raddstyrk hans þegar hann var að raða keppendum upp, ræsa þá af stað og hvetja áfram. Keppt var í nokkrum kynjaskiptum aldursflokkum. Á þessari mynd hefur stúlknahópur lokið hlaupinu en frá vinstri á myndinni eru: Soffía Lárusdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Hólmfríður Anna (Día Anna) Ólafsdóttir, Ragna Gunnarsdóttir, Salóme Rúnarsdóttir, María Jóna Gunnarsdóttir, Íris Jóna Gunnarsdóttir, ?Bergþóra Guðjónsdóttir, Ólína Sveinsdóttir og Kolbrún Ragnarsdóttir
umf Fram198
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru hjónin Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) og Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) Litla Bergi í forgrunni. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson193
1987 varð bruni í Sæbóli sem stóð ekki langt frá þar sem leikskólinn Barnaból stendur í dag. Guðmundur Óskarsson svaf í húsinu þegar eldurinn kom upp eldsnemma morguns og brenndist hann mjög illa og var lengi að komast á fætur aftur. Á þessari mynd er Guðmundur Ólafsson slökkviliðsmaður að kanna hvort einhversstaðar leynist glóð. Guðmundur veður vatn í ökla á gólfinu.
Ólafur Bernódusson191
1987 varð bruni í Sæbóli sem stóð ekki langt frá þar sem leikskólinn Barnaból stendur í dag. Guðmundur Óskarsson svaf í húsinu þegar eldurinn kom upp eldsnemma morguns og brenndist hann mjög illa og var lengi að komast á fætur aftur. Á þessari mynd er slökkviliðið komið á staðinn og byrjað að berjast við eldinn. Til hægri sér í stafninn á Barnabóli.
Óþekktur ljósmyndari161
Á þessari mynd er hluti af fjölskyldunni frá Mánaskál í Laxárdal. Frá vinstri: Óskar Eiríksson (kaupamaður)(d. ?), Jón Sigurðsson(d. 20.9.1990), Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993), Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982), Valdemar Guðbjartsson (maður Sigurbjargar Sigurðardóttur) , Sigurður Jónsson, Sigurður Valdemarsson, Guðrún Áslaug Valdemarsdóttir (nær), Lára Sigurðardóttir (d. 9.12.2008) (fjær), Sigurður Jónsson (d. 11.1.1968) og Guðrún Sigurðardóttir (d. 18.9.2002). Myndina tók Sigurbjörg Sigurðardóttir í ágúst 1946.
umf Fram195
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru hjónin Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) í afmælishófinu.
umf Fram294
Dagana 4. og 5. september 1976 var haldið Norðurlandsmót í frjálsum íþróttum á Akureyri. USAH sendi sína sterkustu íþróttamenn á mótið. Á þessari mynd er Ingibergur Guðmundsson á verðlaunapalli en hann náði 3. sætinu í spjótkasti. Maðurinn í fyrsta sæti var Sigfús ? frá HSÞ.
Guðmundur Guðnason034
Þessi knapi er óþekktur en myndin var tekin norðan við bæinn Hvamm í Laxárdal.
umf Fram254
Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd er Sólveig Gunnarsdóttir úr Fram á efsta palli. Hinar stúlkurnar veru óþekktar.
Ólafur Bernódusson099
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Á þessari mynd býr Björn Sigurðsson sig undir að skjóta á markið hjá andstæðingunum frá Blönduósi. Skagstrendingarnir auglýstu Casita fellihýsi á búningum sínum en þau flutti Hallbjörn Hjartarson inn og var þannig einn af frumkvöðlunum í að kynna fellihýsi fyrir Íslendingum.
umf Fram193
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd spjalla saman þeir Jón Pálsson til vinstri og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) frammi í andyri Fellsborgar. Milli þeirra má sjá Karl Guðmundsson.
umf Fram255
Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd býr Guðbjörg Gylfadóttir úr Fram á Skagaströnd sig undir að varpa kúlu. Guðbjörg varð síðar margfaldur Íslandmeistari í kúluvarpi kvenna og átti Íslandsmet í greininni í mörg ár.
Óþekktur ljósmyndari153
Hópur eldri borgara frá Gerðubergi heimsótti Skagaströnd 5. júní 2000. Kórinn þeirra söng meðal annars afmælissönginn fyrir Hallbjörn Hjartarson við Kántrýbæ en Hallbjörn átti einmitt afmæli þennan dag. Á myndinni er Hallbjörn til hægri, með blómvönd, að hlíða á sönginn.
Ólafur Bernódusson109
Hér æfir Fritz Hendrik Berndsen sig á seglbretti í höfninni á Skagaströnd árið 1986.
Guðmundur Guðnason040
Pálmi Guðnason (d. 23.3.1994) frá Ægissíðu. Myndina tók Jón Kaldal en Pálmi sendi Guðmundi bróður sínum hana heim að Vesturá í Laxárdal með eftirfarandi áletrun: "Kaldal er ekki búinn með skólaspjaldið ennþá. Ég sendi þér þessa mynd. Pálmi Guðnason".
umf Fram203
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd sést háborðið í afmælishófinu. Frá vinstri á myndinni eru: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Sigurður Guðmundsson, Sigríður Gestsdóttir, Jón Ingi Ingvarsson og konan hans Laufey Ingimundardóttir (d. 31.12.1992).
Ólafur Bernódusson075
Hressir ungir menn á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Sá með húfuna er Björn Hallbjörnsson en hinn er Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason870
Þessi óskýra mynd var tekin á þorrablóti í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær.
umf Fram278
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru hvorki meira né minna en fimm smiðir við að setja hástökksrána lárétta í réttri hæð. Frá vinstri: Axel Jóhann Hallgrímsson, Helgi Gunnarsson, Ingvar Sigtryggsson (d. 10.7.1988), Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) og Hinrik Jóhannesson,
umf Fram177
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd stekkur óþekktur keppandi (?Hafþór Gylfason?) þrístökk. Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) heldur í málbandið. fjær standa hjónin Anna Bára Sigurjónsdóttir og Karl Lúðvíksson (á stuttbuxum), Fannar Viggósson er í hvítri peysu og svo sér í Guðmund Hauk Sigurðsson með sólgleraugu til vinstri. Hægra megin bíður Hjörtur Guðmundsson eftir að röðin komi að honum.
umf Fram246
Hjólreiðakeppni umf. Fram 1. maí 1976. Slíkar hjólreiðakeppnir, þar sem keppendur hjóluðu stóran hring um bæinn, voru haldnar á vegum Fram í nokkur ár. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðrún Berndsen, Þórdís Sigurðardóttir, Gestur Arnarson, Sigurður Guðmundsson og Kristinn Guðmundsson. Húsin í baksýn eru frá vinstri: Hólaneshúsið, gamla Útibúið, Miðnes, gamli Kántrýbær og Höfði (áður en kvistir voru settir á húsið).
umf Fram228
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum og síðan var sameiginleg lokahátíð haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd skemmtir Þorgerður Guðmundsdóttir (d. ?) frá Höfðabrekku í lokahófinu.
Ólafur Bernódusson116
Vorið 1986 var haldið námskeið fyrir starfsfólk Rækjuvinnslunnar. Á þessari mynd sést hluti starfsmannanna hlusta á einhvern óþekktan leiðbeinanda. Frá vinstri: Hrönn Árnadóttir, Líney Jósefsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir, óþekkt, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), óþekkt, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011), Björn Ingi Óskarsson, Sigurður Bjarnason, tveir óþekktir, Guðmundur Jóhannesson, óþekkt, óþekktur, Eygló Gunnarsdóttir, Jón Jónsson (d. 9.7.1991) og Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý).
Ólafur Bernódusson127
Slysavarnanámskeið sjómanna var haldið á Skagaströnd vorið 1986 á vegum Skagstrendings hf. Á þessari mynd svamlar Hjörtur Guðbjartsson í sjónum í flotgalla.
Ólafur Bernódusson258
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, í Fellsborg í febrúar 1988. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir og Hallveig Ingimarsdóttir.
Ólafur Bernódusson111
Norðurlandsmót vestra í Bridge var haldið í Fellsborg 1986. Á þessari mynd eru sigurvegararnir. Þau fjögur talin frá vinstri eru systkini frá Siglufirði.
Óþekktur ljósmyndari164
Þessi mynd er af fólki sem átti heimili á Harrastöðum. Í öftustu röð eru frá vinstri: hjónin Kristján Guðmundsson (d. 16.4.1979) og Fjóla Gísladóttir (d. 5.11.1991) (seinna í Háagerði), Eiríkur Gíslason og hjónin Anna Gísladóttir (d. 22.7.1998) og Davíð Sigtryggson (d. 3.7.1971). Börnin eru frá vinstri: Reynir Davíðsson, Jóhanna Davíðsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Guðný Kristjánsdóttir, Guðmundur Kristjánsson (fjær), Aðalheiður Davíðsdóttir, Jónína Davíðsdóttir og Gunnar Davíðsson. <br><br>
Óþekktur ljósmyndari154
Eldri borgara úr Gerðubergi heimsóttu Skagaströnd 5. júní 2000. Hópurinn skoðaði meðal annars dvalarheimilið Sæborg. Á þessari mynd eru frá vinstri: Hjálmar Th. Ingimundarson leiðbeinandi, Sólveig G. Ólafsdóttir leiðbeinandi, Sigurlaug Eðvarðsdóttir frá Ásholti sem þá bjó á Sæborg, Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður félagsstarfs í Gerðubergi og Pétur Eggertsson forstöðumaður Sæborgar.
Ólafur Bernódusson307
Skólastjórnendur Höfðaskóla á óformlegum fundi í nóvember 1989. Páll Leó Jónsson skólastjóri til vinstri og Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri til hægri.
Guðmundur Guðnason702
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Kristinn Lúðvíksson frá Steinholti, tveir óþekktir leikarar og Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) frá Höfðaborg (Bankastræti 9). Ef þú þekkir óþekktu leikarana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson158
Landsbankinn stóð í mörg ár fyrir víðavangshlaupum á Skagaströnd. Hlaupin voru miðuð við yngstu aldursflokkana og komu keppendur víða að úr héraðinu. Á þessari mynd frá því í maí 1987 eru stúlkur að fá verðlaun sín. Frá vinstri: Steinþór Karlsson, Jónas Fanndal Þorvaldsson, óþekktur, Ragna Gunnarsdóttir, Þóra Ásgeirsdóttir, óþekkt, Viktor Pétursson, Árni Max Haraldsson, Guðbjörg Ólafsdóttir sem snýr baki í myndavélina, Þóra Ásgeirsdóttir og Berglind Karlsdóttir.
1
…
47
48
49
…
167
Leita í myndasafninu
Leita