Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
guðmundur232
1. maí skemmtun 1957 í Tunnunni. Óþekktir menn skemmta fyrir troðfullu húsi. Líklega eru þeir félagar í einhverjum karlakór sem komið hefur í heimsókn til Skagastrandar.
Jón096
Skólaskemtun í Höfðaskóla 1984. Ingvar Þór Jónsson á trommum, Þorbjörg Eðvarðsdóttir syngur og Viggó Magnússon spilar á bassa. Hans Birgir Högnason fylgist með.
guðmundur187
<P>Myndin er tekin á hafnarsvæðinu á sjómannadegi þar sem einhver leikur er í gangi.</P>
fram021
Verðlaunaafhending að loknu víðavangshlaupi Landsbankans á Skagaströnd. Flemming Jessen skólastjóri á Hvammstanga er maðurinn með sólgleraugun, Róbert Þórðarson útibússtjóri í rauðri peysu og þorbjörg Magnúsdóttir starfsmaður bankans heldur á umslaginu og Elín Njálsdóttir starfsmaður bankans er til hægri og fylgist með. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin tekin ca 1985.
fram004
Halldór Hermannsson verslunarstjóri sem var í forystu íþróttamála á Skagaströnd í kringum 1990 sem formaður Umf Fram. Á myndinni flytur hann ræðu í samkvæmi á Hótel Dagsbrúna.
fram016
Sigríður Gestsdóttir með bikar í hönd eftir unnin afrek á íþróttavellinum. Myndin var tekin í Fellsborg en ekki er vitað hvenær.
Guðmundur120
Frá vinstri: Hulda Árnadóttir, Kristján Hjartarson, Ingvar jónsson í Sólheimum, sr. Oddur Einarsson og Guðmundur Guðnason. Bak við Huldu sér í grátt hár Friðjóns Guðmundssonar, manns hennar.
Jón006
Á sjómannadegi 1985. Frá vinstri eru: Séra Oddur Einarsson, Gylfi Sigurðsson, Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986), Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) og Svanur Árnason. Haraldur og Guðbjartur eru með ný fengin heiðursmerki sjómannadagsins í barminum.
Jón037
Sjómannadagur 1983. Guðmundur Haukur Sigurðsson stjórnar leikfimiæfingum nokkurra manna sem eru uppáklæddir í samræmi við tilefnið. Lárus Ægir Guðmundsson kynnir fylgist með úr ræðustól um borð í Örvari Hu 21
Image250
Kerjasmíði á Skagaströnd í slippnum neðan við Gamla skólann (Bjarmanes). Myndin var sennilega tekin á árunum 1935 - 1940.
guðmundur209
Hrútasýning. Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Kristján Guðmundsson (d. 16.4.1979) Háagerði, Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi, Jón Árnason (d. 11.4.1986) Ólafsvöllum (Náttbrún), Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) Árnesi, Jón Jónsson (d. 9.7.1991) Asparlundi, Sigurjón Jóhannsson (d. 7.12.1973) Sunnuhlíð, Benjamín Sigurðsson (d. 30.9.2004) Skálholti, Þorbjörn Jónsson (d. 2.9.1986) Akurgerði og Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri. Hrútarnir eru óþekktir.
Óþekkt033
Handagangur í öskjunni á útimarkaði við Kántrýbæ.
guðmundur208
Pétur Andrésson (Pétur makalausi) og Ástríður Ósk Bertelsdóttir (Lillý) dótturdóttir hans
guðmundur166
Á myndinn er Húnn Snædal sem var í sveit hjá afa sínum og ömmu, Guðna og Klemensínu í Ægissíðu á Skagaströnd. þarna er búið að heyja vel og sést til Borgarinnar.
fram069
<P>Ef þú þekkir þessi börn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin var tekin á einhverju íþróttamóti.</P>
Óþekkt094
Kindur settar í land í Skagastrandarhöfn. Skegglausi maðurinn á myndinni með lamb í fanginu er Birgir Árnason og maðurinn í köflóttu skyrtunni er Jónas Hafsteinsson frá Njálsstöðum. Aðrir eru óþekktir.
fram125
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd. 100m undanrásir, frá vinstri: Hafsteinn, Ingi og Kristinn.
fram134
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd. Lára Guðmundsdóttir kastar kringlu eða kúlu.
fram082
<P>Verðlaunaafhending á héraðsmóti á Bakkakotsvelli 1999. Frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir Fram, Sigríður Gestsdóttir Fram og Jónína Guðbjartsdóttir Hvöt.</P>
Óþekkt093
Kindur settar í land í Skagastrandarhöfn. Skegglausi maðurinn á myndinni með lamb í fanginu er Birgir Árnason og maðurinn í köflóttu skyrtunni er Jónas Hafsteinsson frá Njálsstöðum. Aðrir eru óþekktir.
Óþekkt034
Útimarkaður við Kántrýbæ - eldri.
guðmundur190
Þetta prúðbúna fólk er að mestu óþekkt. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) er fremst á myndinni, hægra megin við miðju, með hvítan vasaklút í jakkavasanum og svarta þverslaufu. Séra Þorsteinn B. Gíslason (d. 8.6.1980) prófastur í Steinnesi er fremst á myndinni, vinstra megin við miðju, með gleraugu og slaufu og hattinn sinn í hendinni. Frakkaklæddi maðurinn lengst til hægri gæti verið Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppsstjóri frá Skagaströnd. Ef þú þekkir einhvern á myndinni eða þekkir tilefni myndatökunnar, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón026
Á myndinni er verið að hengja upp - eða taka niður - seilaða þorskhausa. Drengirnir á myndinni eru Hendrik Berndsen og Pétur Ingjaldur Pétursson. Ljóshærði maðurinn er Sigurður Björnsson.
Jón022
Sigurjón Ástmarsson staddur niður við verksmiðju. Beinabræðsla í gangi.
guðmundur167
<P>Þessi mynd, þar sem allir eru í sparifötunum sínum, var tekin í 10 ára afmæli Fjólu Jónsdóttur í Asparlundi 10. nóvember árið 1957. í Aftari röð eru frá vinstri: Pálfríður Benjamínsdóttir í Skálholti, Ingibjörg Kristinsdóttir úr Héðinshöfða og Helga Guðmundsdóttir Hólabraut 25. Í fremri röð eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson úr Asparlundi, bróðir Fjólu, afmælisbarnið sjálft, Fjóla Jónsdóttir, sem situr með bróður þeirra, Gunnar Jónsson. Þá kemur Guðbjörg Þorbjörnsdóttir í Akurgerði og lengst til hægri er Sóley Benjamínsdóttir systir Pálfríðar í efri röðinni.
fram002
Fundur umf Fram á hótel Dagsbrún í júlí 1990. Stúlkan í bláa jakkanum er Soffía Lárusdóttir en fyrir aftan hana sér í Guðný Finnsdóttur. Stúlkan í forgrunninum er Erla María Lárusdóttir, maðurinn í bleiku skyrtunni er Vilhelm Jónsson og á móti honum situr Karl Lúðvíksson. Maðurinn í dökka jakkanum lengst til hægri er Halldór Hermannsson. Aðrir eru óþekktir.
guðmundur204
Hrossarétt í Spákonufellsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt.
hem039
<P>Veturinn 1918 var einn hinn kaldasti sem kom á síðustu öld. Hafís þakti Húnaflóa þannig að ekki var hægt að sækja sér björg úr sjónum. Fólk frá Skagaströnd gat gengið á ísnum a.m.k. inn að Laxá í Refasveit án þess að óttast mikið að detta í vök á milli jaka. Í þessu ástandi var það því mikið fagnaðarefni þegar uppgötvaðist að fimm hvalir voru fastir í vök fram af Ytri-Ey. Þeir voru fastir þar því þeir gátu hvergi annarsstaðar komið upp til að anda. Hvalirnir voru allir drepnir í vökinni og dregnir upp á ísinn þar sem gert var að þeim og fólk gerði sér mat úr þeim. Fólk kom víða að framan úr sveitum til að fá kjötbita og fleira sem hægt var að nýta úr hvölunum. Beinunum og öðru sem ekki var notað var síðan velt ofan í vökina aftur. Mennirnir í bátnum, sem eru að vinna að hvaladrápinu eru feðgarnir Carl Berndsen og Ernst Berndsen frá Karlsskála, Gisli Einarsson frá Viðvík, Hjörtur Klemensson frá Vík og Steindór Árnason frá Höfðahólum. </P>
fram020
Víðavangshlaup Landsbankans haldið á Skagaströnd. Krakkarnir tilbúnir að þjóta af stað. Frá vinstri: Óþekkt, Jónas Þorvaldsson, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Soffía Lárusdóttir, óþekkt, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, tvær óþekktar, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Dia Anna). Aðrir eru óþekktir. Myndin tekin ca 1985.
Jón062
Ræðuhöld við vígslu dráttarbrautarinnar 1985
Guðmundur131
Fjöldasöngur á þorrablóti í Fellsborg. Fjórar konur leiða sönginn við undirleik Þorvaldar Skaftasonar.
Guðmundur101
Séra Oddur Einarsson flytur ræðu í Fellsborg af óþekktu tilefni.
Guðmundur063
Fermingarbörn ganga til kirkju með prestinum. Húsið í baksýn er Ásgarður
DSC_1001b
50 ára fermingasystkini úr Hólaneskirkju, á myndin eru 6 af 9 Frá vinstri til hægri: Dagný Hannesdóttir, Kristín Lúvíksdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir, Magdalena Axelsdóttir, Pálfríður Benjamínsdóttir og Lárus Ægir Guðmundsson.
Jón039
Ernst K. Berndsen skammtar skötu og meðlæti á disk fyrir Fjólu Jónsdóttur í árlegri Þorláksdags-skötuveislu togaraútgerðarinnar á Skagaströnd í Fellsborg. Rúnar Loftsson í baksýn.
guðmundur220
Bernódus Ólafsson stjórnar grímuballi í gömlu Tunnunni.
guðmundur155
Jón Kr. Jónsson (d.21.12.2017) í Laufási með dóttur sína á Grétu Þ. Jónsdóttur í fanginu. Myndin var tekin upp við Höfðann á hlaðinu á Laufási.
fram026
Fjöldi manns kemur til að fylgjast með og/eða taka þátt í víðavangshlaupi. Myndin tekin ca 1985.
Jón068
Fjölmenni var viðstatt vígslu dráttarbrautarinnar 1985
Jón038
Kaffiveisla í Skátaskálanum. Fólkið á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón091
Friðgeir Eiríksson (d.17.5.1985) frá Sviðningi í Fossárrétt 1984.<br>
guðmundur217
Hátíðahöld á Akureyri af ókunnu tilefni á óþekktum tíma.
guðmundur173
Þórgunnur Snædal bróðurdóttir Guðmundar ljósmyndara. Myndi er sennilega tekin heima í Ægissíðu, heimili Guðmundar.
Guðmundur150
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996). Til vinstri sér í Báru Þorvaldsdóttur. Myndin var tekin í Fellsborg við óþekkt tilefni.
Jón108
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Sýnd voru föt sem voru til sölu í versluninni. Sviðið er plata sem lögð var ofan á frysti verslunarinnar og eins og sjá má kom fjölmenni til að fylgjast með sýningunni. Verslunastjóri á þessum tíma var Jón Jónsson. Stúlkurnar á myndinni eru óþekktar.
Jón005
Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) og Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) ganga frá borði á Örvari Hu 21 eftir að hafa verið heiðraðir á sjómannadegi 1985
hem040
Myndin er af tveim óþekktum börnum á sumardegi á Skagaströnd. Fyrir aftan þau til vinstri er assistentastofan, sem var íbúðarhús verslunarþjónsins sem var aðstoðarmaður verslunarstjórans í versluninni við hliðina. Næst assistentastofunni er pakkhúsið og svo verslunarhúsið fremst. Húsið á bak við með svartan gafl er Sæmundsenbúð. Þessi hús stóðu ekki langt austur af Einbúanum á svæðinu nálægt því þar sem Skátaskálinn stendur í dag. Evald Hemmert tók myndina en samkvæmt "Byggðin undir Borginni" (bls 118 - 119) var hann verslunarstjóri Höphnersverslunar þarna frá 1891 fram yfir 1920 þegar verslunin lagði upp laupana. Sennilega hefur því myndin verið tekin einhverntíma kringum aldamótin 1900.
Jón008
Gospelmessa á Hnappstaðatúni á einhverri af fyrstu Kántrýhátíðunum.
fram049
Frjálsar iþróttir, innanhús, Íslandsmeistaramót í febrúar 1977. Fannar Viggósson svífur yfir rána í hástökki.
Óþekkt032
Á myndinni má þekkja Sigrúnu Lárusdóttur í rauðum kuldagalla lengst til vinstri. Guðrún Pálsdóttir er í grænum anorak með svartan trefil um hálsinn. Sólveig Eiðsdóttir er svo konan í kuldúlpunni með derhúfu á höfðinu
Jón048
Á fyrstu Kánatrýhátíðinni 1985. Anna Sjöfn Jónasdóttir hefur samskipti við grímubúinn riddara. Lengst til hægri er Árni Guðbjartsson.
Guðmundur118
Veisluhöld í Fellsborg. Þekkja má Hörð Ragnarsson á myndinni en aðrir eru óþekktir.
hem042
Æðarvarpi sinnt í Spákonufellsey. Í landi sést Einbúinn og verslunarhúsin. Þar á bakvið er Spákonufellshöfði. Á myndin eru Carl Berndsen og Gísli Einarsson á bakvið hann sést í Ernst Berndsen og lengst til hægri er Jóhann Jósepssson.Líklega er myndin tekin 1908-1910. Fremst á myndinni sést í hluta af búnaði ljósmyndarans
fram029
Helgi Þór Helgason kúluvarpari með verðlaunbikar árið 1990.
fram005
Fundur umf Fram á hótel Dagsbrún í júlí 1990. Ingibergur Guðmundsson heldur ræðu. Systurnar Soffía (í bláum jakka) og Erla María Lárusdætur sitja við borðið framan við Ingiberg. Í baksýn eru frá vinstri: Jóhanna Harðardóttir, Vilborg Magnúsdóttir, Soffía Guðmundsdóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir og Sigríður Gestsdóttir. Særún Jónsdóttir snýr baki í ljósmyndarann.
guðmundur175
Ole Aamundsen (Óli norski) og Margrét Jóhannesdóttir kona hans sem lengi bjuggu í Lundi.
guðmundur215
Barnið í kerrunni er óþekkt. Myndin var tekin utan við Tunnuna fyrir eða eftir einhverja samkomu. Ef þú þekkir barnið vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur122
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Eðvarð Hallgrímsson, María Magnúsdóttir, óþekkt kona, Helga Guðmundsdóttir, Skafti Fanndal Jónasson, Jóna Vilhjálmsdóttir og óþekkt kona
fram118
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. 800m hlaup stelpna. Birna Sveinsdóttir umf. Fram til vinstri.
Mundi239
Frá vinstri: Þórir Ágústsson (d.24.9.2000), Andrés Árni Baldursson, Sigurður Bjarnason í hvítri skyrtu með slaufu, Gylfi Jóhannsson, Fritz Bjarnason og Búi Birgisson (d.18.9.2009). Aftast grillir í tvo jólasveina. Aðrir eru óþekktir.
1
…
4
5
6
…
167
Leita í myndasafninu
Leita