Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
umf Fram293
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd kastar Sveinn Ingólfsson spjóti. Jón Jósefsson gengur yfir atrennubrautina fyrir aftan Svein meðan hann bíður eftir að röðin komi að honum. Vinstra megin fylgjast Ernst Berndsen og Sigurjón Ingólfsson með Sveini kasta. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson237
17. júní 1988 var haldið kaffisamsæti til að fagna 60 ára vígsluafmæli Hólaneskirkju - eldri. Að sjálfsögðu söng kirkjukórinn við þetta tækifæri. Frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Helga Guðmundsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Sigurður Bjarnason, Guðrún Sigurðardóttir, Guðmundur Guðnason(d. 21.11.1988), Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Kristín Kristmundsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Hjördís Sigurðardóttir. Í forgrunni myndarinnar eru hjónin Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) og Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) en konan lengst til vinstri er óþekkt.
Ólafur Bernódusson361
28. október 1989 sökk trillan Frami Hu 25 á miðunum nálægt Hofsgrunni. Eigandinn, Þorvaldur Skaftason, var einn um borð og komst hann í gúmmíbjörgunarbát og sendi upp neyðarblys, sem sást frá landi. Björgunarsveitin Strönd brást fljótt við og fór á Þórdísi og bjargaði Þorvaldi. Á þessari mynd er björguninni lokið og félagarnir í björgunarsveitinni eru að draga gúmmíbjörgunarbátinn upp á bryggju. Guðmundur Jón Björnsson snýr baki í myndavélina, Magnús Sigurðsson er honum til hjálpar og Ástmar Kári Ástmarsson er um borð í Þórdísi.
umf Fram190
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd er Jón Ingi Ingvarsson, einn af fyrri formönnum félagsins, með hljóðnemann í afmælishófinu.
Ólafur Bernódusson341
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd var tekin á æfingu. Á henni eru frá vinstri: Einar Haukur Arason, þorvaldur Skaftason, Herborg Þorláksdóttir, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) og Jóhann Lúðvík Ásgeirsson.
Ólafur Bernódusson383
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu skemmtiatriða kvöldið fyrir þorrablót í febrúar 1989. Hér syngja fullum hálsi, frá vinstri: Bergþór Gunnarsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Ólafur Bernódusson, Fannar Viggósson, Vigdís Viggósdóttir, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Dagný Sigmarsdóttir.
Ólafur Bernódusson103
<p>Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Á þessari mynd eru Skagastrandarstúlkur í sókn að marki Blönduósinga. Frá vinstri inni á vellinum eru: Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir,Hugrún Pálsdóttir, Kristín Jóna Sigurðardóttir, Jóhanna Sveinsdóttir og Hugrún Sigurðardóttir. </p><p> </p>
Ólafur Bernódusson195
Þessi ungi sjómaður er Jónas Fanndal Þorvaldsson sem á myndinni rær bát afa síns, Litla Kóp, um höfnina á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin 1987.
Ólafur Bernódusson169
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli gátu krakkarnir hvílt sig í búningsherbergjunum. Á þessari mynd er slökun í gangi en á myndinni eru frá vinstri: Óskar Óskarsson situr á bekknum, Helga Kristmundsdóttir, sem sefur fremst á myndinni, Hugrún Sigurðardóttir liggur framan við Óskar, Halldór Gunnar Ólafsson, Gígja Óskarsdóttir, María Rós Karlsdóttir og Anna Guðrún Ásgeirsdóttir.
umf Fram174
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd kastar Karl Lúðvíksson spjóti. Áhorfendur eru, frá hægri: Adolf H. Berndsen, Stefán Jósefsson og Gunnar Sveinsson. Lengra frá má sjá Ingiberg Guðmundsson á stuttbuxum með einhverja flík í höndunum.
Ólafur Bernódusson216
Löndun úr Örvari Hu 21 í apríl 1988. Löndunarmaðurinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson154
Í mörg ár stóð Landsbankinn fyrir víðavangshlaupum á Skagaströnd. Hlaupin voru miðuð við yngstu aldursflokkana og komu keppendur víða að úr héraðinu. Á þessari mynd frá því í maí 1987 sjást keppendur í einum aldursflokki á ráslínu. Frá vinstri á myndinni: Kristín Þórðardóttir, Gestur Arnarson og óþekkt barn framan við þau. Á ráslínunni eru : Bjarni Gaukur Sigurðsson, óþekkt, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Soffía Lárusdóttir, Guðný Finnsdóttir (Gýgja), óþekktur, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, óþekktur, Jón Heiðar Jónsson, Atli Þórsson, Friðrik Gunnlaugsson og óþekktur. Ræsirinn, sem snýr baki í myndavélina, er Lárus Ægir Guðmundsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd á netfangið: <a href="mailto:
[email protected]
">
[email protected]
</a>
Ólafur Bernódusson178
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar sótti námskeið 1987 sem gaf því formleg réttindi sem fiskvinnslufólk. Haldið var hóf í lok námskeiðsins til að halda upp á þennan áfanga fólksins. Á þessari mynd flytur Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) frumsamið ljóð í hófinu.
umf Fram288
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd réttir Lára Guðmundsdóttir Guðbjörgu Gylfadóttur keflið í 4x100 metra hlaupi. Keppandinn sem sé í á milli þeirra er óþekktur.
Ólafur Bernódusson092
Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) flytur ræðu í tilefni af skírn nýsmíðarinnar Laxdal NS 110 í Skipasmíðastöð sinni árið 1982 eða 83.
umf Fram286
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd keppir Ingibergur Guðmundsson í þrístökki.
Ólafur Bernódusson252
Ari Jón Þórsson í febrúar 1988.
Ólafur Bernódusson276
Þessir þrír menn báru hitan og þungan af byggingu Hólaneskirkju síðustu byggingarárin. Frá vinstri: séra Ægir Fr. Sigurgeirsson sóknarprestur, Kristján Helgi Gunnarsson byggingameistari kirkjunnar og Lárus Ægir Guðmundsson formaður bygginganefndar.
Ólafur Bernódusson261
Í júlí 1988 stóð ungmennafélagið Fram fyrir ruslasöfnunarátaki. Gengu félagar Fram meðfram þjóðveginum milli Skagastrandar og Blönduóss og hirtu upp rusl á þeirri leið. Einnig voru gengnar fjörur við Skagaströnd. Að söfnunni lokinni var haldin grillveisla í skíðaskálanum og þar var þessi mynd tekin. Á myndinni frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir (snýr baki í myndavélina), Birna Sveinsdóttir, Sigrún Ómarsdóttir, Erla Pálsdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Berglind Karlsdóttir en aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson254
Leikritið, Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, var sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í febrúar 1988. Á þessari mynd, sem tekin var í Fellsborg, eru frá vinstri í hlutverkum sínum: Sigrún Jónsdóttir, William Sillar, Björk Sveinsdóttir, Steindór Haraldsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Bóel Hallgrímsdóttir.
Ólafur Bernódusson242
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) skipstjóri og útgerðarmaður um borð í bát sínum Auðbjörgu Hu 6 í lok maí 1988. Auðbjörgina gerði Gunnar út í mörg ár til rækjuveiða frá Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson115
<p>Eftir að Þorvaldur Skaftason hafa kvartað, með réttu, undan að hreinlætisaðstaða við höfnina væri í ólestri, settu gárungar á vélaverkstæðinu upp þetta klósett við bát Þorvaldar, Kóp Hu 2. Ekki fylgir sögunni hvort klósettið var mikið notað enda var það fjarlægt nokkrum dögum seinna. Vísukorn var límt á setuna. Vísan var eftir Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), sem vann á vélaverkstæðinu á þessum tíma, en fyrripartur hennar var eftirfarandi: Ljúfi Valdi líttu á látt ei í þig fjúka
Ólafur Bernódusson366
Þessi mynd var tekin í desember 1989 af mæðgunum Bryndísi Guðjónsdóttur og Tinnu Gunnarsdóttur niðursokknum við piparkökubakstur í leikskólanum Barnaból
Ólafur Bernódusson253
Jón Hilmar Indriðason í febrúar 1988.
Ólafur Bernódusson363
Í nóvember 1989 héldu þessar stúlkur tombólu til styrktar einhverju góðu málefni. Frá vinstri: María Jóna Gunnarsdóttir, Halla Kristín Árnadóttir, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir og Íris Jóna Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson394
Sem unglingur var Þröstur Árnason með andarækt og seldi hann úr þeim eggin til fólks á Skagaströnd. Þetta fyrirtæki Þrastar endaði þó illa því minkur komst í andabúið og drap allar endurnar. Þröstur kom þó við krók á móti bragði og tókst að veiða og drepa minkinn. Á þessari mynd frá því í apríl 1990 er Þröstur með minkinn í hendinni og fórnarlömb minksins liggja á jörðinni í kring.
Óþekktur ljósmyndari165
Á þessari mynd er Lára Sigurðardóttir (d. 9.12.2008) frá Mánaskál í Laxárdal með manni sínum Magnúsi Árnasyni (d. 3.7.1975) og börnum. Strákarnir eru Skúli Magnússon, á hnjám föður síns og Árni Magnússon en stúlkan í fangi móður sinnar er Jóhanna Magnúsdóttir.
Ólafur Bernódusson185
Grímuball á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 1987. Af auðsæjum ástæðum þekkjast grímubúnu krakkarnir ekki. Óskar Óskarsson og Jóna Arnarson sitja til vinstri fyrir aftan grímubúnu krakkana.
Ólafur Bernódusson297
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Þessi mynd er frá skemmtun sem haldin var á túninu neðan við Hólabergin þar sem nú er tjaldsvæði. Á þessari mynd er fólk að borða grillmat sem Höfðahreppur bauð upp á. Eins og sjá má á myndinni hefði veðrið getað verið betra.
Ólafur Bernódusson067
Litlu jól í skólanum eru alltaf tilhlökkunarefni nemenda og starfsfólks. Þann dag mæta nemendur og kennarar í betri fötunum í skólann og eiga saman skemmtilega og notalega stund fyrir jólafríið. Þessi mynd var tekin á litlu jólunum í Höfðaskóla 1983. Íþróttahúsið var ekki komið svo þá var gengið syngjandi kringum jólatré á sal í þá nýrri viðbyggingu við skólann. Frá hægri: Elísbet Hallbjörnsdóttir, Jóney Gylfadóttir, óþekkt, Guðmundur Haukur Sigurðsson kennari, óþekktur, Guðmundur Oddsson, Jóhann Ásgeirsson, Jón Indriðason, óþekktur, Magnús B. Jónsson kennari, Ingvi Sveinn Eðvarðsson, Kristjana Jónsdóttir, óþekkt, Sigríður Ásgeirsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, óþekktar stúlkur en lengst til vinstri er Þorbjörg Eðvarðsdóttir.
Ólafur Bernódusson175
Fyrstu árin eftir að stjórnsýsluhúsið var byggt var Hótel Dagsbrún rekið á miðhæðinni. Fyrstu rekstraraðilar hótelsins voru hjónin Sveinn Ingi Grímsson og Líney Jósefsdóttir. Þau eru hér fremst á myndinni til hægri en síðan koma tvær starfsstúlkur, Þórhalla Þórhallsdóttir og óþekkt kona. Myndin var tekin í veitingasal hótelsins en það var í eigu Skagstrendings hf á þessum tíma. Eftir að þau hjón Sveinn Ingi og Líney hættu rekstri hótelsins hafa nokkrir aðilar spreytt sig á að reka það en allir hætt þannig að í nokkur ár hefur engin starfsemi farið þar fram. Hótelið er nú í eigu Fisk Seafood á Sauðárkróki. Ef þú veist hvað konan lengst til vinstri heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson271
Fegrunarátak var gert á Skagaströnd sumarið 1988. Á þessari mynd er fólk sem tók sig til í ágúst það ár og málaði Drangey að utan. Húsið hafði þá verið í niðurníðslu um tíma svo ekki var vanþörf á að gefa því andlitslyftingu. Málararnir eru frá vinstri: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Kristinsdóttir, Axel Hallgrímsson, Vigdís Viggósdóttir og Ingibjörg Kristinsdóttir. Ekki er vitað hvert barnið á myndinni er. Drangey var seinna rifin en húsið stóð norðan við Fellsbraut fyrir neðan Ásgarð, beint á móti kirkjunni.
Ólafur Bernódusson324
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Sveinbjörgu Dóru var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson207
Jólatónleikar Tónlistarskólans 1987 í Höfðaskóla. Þrjár stúlkur syngja saman. Frá vinstri: Hólmfríður Oddsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir og Svava Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson245
Sigríður Ásgeirsdóttir í febrúar 1988.
Ólafur Bernódusson172
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli gátu krakkarnir hvílt sig í búningsherbergjunum. Á þessari mynd hvílast, frá vinstri: Helga Kristmundsdóttir, Hugrún Sigurðardóttir, María Rós Karlsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson.
Ólafur Bernódusson328
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Ástmari Kára var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson078
Vinirnir og nágrannarnir Katrín Sigurjónsdóttir og Jón Indriðason á diskóteki í Höfðaskóla 1983.
Ólafur Bernódusson228
Myndin var tekin um borð í Arnarborg Hu í febrúar 1988 þar sem hópur nemenda í pungaprófi - 30 tonna skipstjórnarréttinda - er að kynna sér tækin í brúnni. Lengst frá okkur, með loðhúfu, er Sigurjón Guðbjartsson sem leiddi hópinn í allan sannleik um notkun tækjanna. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Árni Björn Ingvarsson, Gunnar Hafdal, Þorvaldur Skaftason, Björgvin Karlsson og Magnús Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson340
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd var tekin á æfingu. Á henni eru frá vinstri: Vigdís Viggósdóttir, Óli Hjörvar Kristmundsson og Anna Sjöfn Jónasdóttir.
Ólafur Bernódusson198
Á þessari mynd er verið að steypa sökkla undir raðhúsin að Ránarbraut 17 - 23 árið 1987. Bílstjóri steypubílsins er óþekktur en hinir eru, frá vinstri: Jóhann Ásgeirsson, Einar Ásgeirsson (snýr baki í myndavélina) og Þorsteinn Jónsson.
Ólafur Bernódusson246
Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) í febrúar 1988.
Ólafur Bernódusson326
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Hjördísi var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson079
Mörgum finnst gott að eiga lítinn bát til að geta sótt sér fisk í soðið. Allmargar jullur og smærri trillur eru því til á Skagaströnd en slíkir bátar þarfnast aðstöðu við hæfi eins og aðrir stærri bátar. Vorið 1993 gerðu trillu- og jullukarlar samning við sveitarstjórn um að fá að smíða flotbryggju fyrir báta sína og jafnframt um staðsetningu hennar í höfninni. Samningurinn fól í sér að sveitarfélagið skaffaði efni í bryggjuna en bátakarlarnir skyldu smíða hana og hjálpa til við að koma henni fyrir. Voru báðir aðilar ánægðir með samninginn. Fljótlega tók hópurinn á myndinni sig til og smíðaði tvær flotbryggjulengjur sem tengdar voru saman í eina bryggju þannig að það myndaðist viðlegupláss fyrir allmargar jullur. Var bryggjunni komið fyrir ofan við (norðan við) og í skjóli við smágarð. Reynslan af þessari bryggju var svo góða að nokkrum árum síðar lét sveitarfélagið byggja aðra eins og koma fyrir á sömu slóðum. Á þessari mynd eru hressir bátakarlar við nýsmíðaða flotbryggju - lengju 1993. Frá vinstri: Jóhann Sigurjónsson, Guðmundur Björnsson, Baldvin Hjaltason, Vilhjálmur Skaftason, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Snorri Gíslason (d. 29.5.1994), Þorvaldur Skaftason, Stefán Jósefsson, Árni Björn Ingvarsson og Árni Geir Ingvarsson. Á myndina vantar Ragnar Smára Ingvarsson og Ólaf Bernódusson sem tók þessa mynd. Þess má geta að nú 20 árum eftir smíðina eru bryggjurnar enn í fullri notkun yfir sumarmánuðina.
Ólafur Bernódusson203
Jólatónleikar Tónlistarskólans 1987 í Höfðaskóla. Hér spilar hljómsveit á gítara og blokkflautur. Frá vinstri: María Rós Karlsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson, Kolbrún Ragnarsdóttir, Ólína Sveinsdóttir, Salóme Ýr Rúnarsdóttir og Árný Guðrún Ólafsdóttir.
umf Fram248
Hjólreiðakeppni umf. Fram 1. maí 1976. Slíkar hjólreiðakeppnir, þar sem keppendur hjóluðu stóran hring um bæinn, voru haldnar á vegum Fram í nokkur ár. Á þessari mynd eru með verðlaunaskjölin sín, frá vinstri: Soffía Guðmundsdóttir, Guðrún Berndsen og Sigurlaug Eðvarðsdóttir.
Ólafur Bernódusson194
1987 varð bruni í Sæbóli sem stóð ekki langt frá þar sem leikskólinn Barnaból stendur í dag. Guðmundur Óskarsson svaf í húsinu þegar eldurinn kom upp eldsnemma morguns og brenndist hann mjög illa og var lengi að komast á fætur aftur. Á þessari mynd er Hörður Ragnarsson slökkviliðsmaður að skoða skemmdir á húsinu eftir að eldurinn hefur verið slökktur.
Ólafur Bernódusson251
Hallveig Ingimarsdóttir í febrúar 1988
Ólafur Bernódusson239
Sveinn Garðarsson (d.17.2.2019) við vinnu sína á bryggjunni í maí 1988.
Ólafur Bernódusson233
17. júní 1988 var haldið upp á 60 ár vígsluafmæli Hólaneskirkju - eldri. Við það tækifæri komu til messu í kirkjunni fólk sem fermdist saman þar fyrir 60 árum. Prestarnir aftan við fermingarsystkinin eru séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til vinstri og séra Ægir Fr. Sigurgeirsson. Frá vinstri í fremri röð: Guðmann Einar Magnússon (d. 22.11.2000) frá Vindhæli, Henryetta Berndsen (d.?), Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) og Guðmunda Pétursdóttir (d. 2.2.2001).
umf Fram249
Hjólreiðakeppni umf. Fram 1. maí 1976. Slíkar hjólreiðakeppnir, þar sem keppendur hjóluðu stóran hring um bæinn, voru haldnar á vegum Fram í nokkur ár. Á þessari mynd eru, með verðlaunaskjölin sín að lokinni keppni, frá vinstri: Þórarinn Ingvarsson, Hendrik Berndsen og Jóhannes K. Sveinsson.
Ólafur Bernódusson204
Jólatónleikar Tónlistarskólans 1987 í Höfðaskóla. Elísabet Eik Guðmundsdóttir til vinstri spilar á píanóið með óþekktri stúlku. Jane Sillar tónlistarkennari spilar á þverflautu með Hólmfríði Oddsdóttur Ef þú þekkir hinn píanóleikarann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram201
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru hjónin Jökull Sigtryggsson og Valgerður Kristjánsdóttir að spjalla við Soffíu Lárusdóttur (d. 13.3.2010) í afmælishófinu.
Ólafur Bernódusson151
Hjónin Anna Halldórsdóttir Aspar (d. 1.9.1999) og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) sem lengst af bjuggu í Stórholti.
Ólafur Bernódusson222
Séð yfir salinn í suamastofunni Violu á efstu hæðinni í Gamla kaupfélaginu á Skagaströnd í nóvember 1987. Saumakonurnar eru frá vinstri: Sigrún Guðmundsdóttir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Guðný Finnsdóttir og óþekkt.
Ólafur Bernódusson093
Þessi mynd var tekin við skírn nýsmíðarinnar Laxdal NS110 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar 1982 eða 83. Á myndinni eru frá vinstri: Pétur Eggertsson, Hallbjörn Björnsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Gísli Snorrason, Hjörtur Guðbjartsson, þrír óþekktir, Hendrik Berndsen, Hjördís Sigurðardóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Adolf J. Berndsen.
Ólafur Bernódusson241
Stefán Jósefsson skipstjóri um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54 í lok maí 1988. Stefán gerði Ólaf Magnússon út á rækjuveiðar í mörg ár. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson428
Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó) við skógræktarstörf í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Óþekktur ljósmyndari156
Lokahóf á vinabæjarmóti í Fellsborg 2004. Adolf H. Berndsen tekur við gjöf úr hendi óþekkts fulltrúa frá einhverju norðurlandanna.
Ólafur Bernódusson449
Árið 1990 tóku nokkrir félagar sig saman og keyptu billjardborð af bestu gerð. Var borðinu komið fyrir í Skátaskálanum og var síðan haldið snóker mót í desember 1990. Á þessari mynd mundar Guðjón Árnason kjuðann.
1
…
50
51
52
…
167
Leita í myndasafninu
Leita