Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson362
Kvenfélagasamband A-Hún hélt fund í Fellsborg í nóvember 1989. Þessi mynd sýnir nokkrar kvennanna á fundinum.
Ólafur Bernódusson163
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á þessari mynd eru þeir Róbert Gunnarsson til vinstri og Brynjar Pétursson til hægri að gera sig klára til að teka eina törn í lauginni. Kristín Jóna Sigurðardóttir er komin út í. Þórunn Óladóttir, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004) og Sigrún Lárusdóttir (í dyrunum) fylgjast með.
Ólafur Bernódusson286
Hafsteinsdætur með séra Ægi Fr. Sigurgeirssyni í hálfbyggðri Hólaneskirkju eftir fyrstu guðsþjónustu þar í ágúst 1989 í tilefni af 50 ára afmæli Höfðahrepps. Frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, séra Ægir, Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (Bibba) (d. 26.8.2008) og Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d. 24.11.1994).
Ólafur Bernódusson330
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Rosemary var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson372
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) formaður ritnefndar bókarinnar: Byggðin undir Borginni, flytur ræðu í hófi á hótel Dagsbrún, vegna útkomu bókarinnar, í desember 1989.
Ólafur Bernódusson259
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, í Fellsborg í febrúar 1988. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir og Hallveig Ingimarsdóttir.
Ólafur Bernódusson444
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Eftir hverja grein voru stig bekkjanna skráð á töflu og á þessari mynd sér aftan á Ingiberg Guðmundsson við þá iðju til vinstri. Nemendurnir fylgjast spenntir með.
Kvenfélagið Eining - safn016
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni eru hjónin Björk Axelsdóttir og Jón Pálsson
Ólafur Bernódusson188
1987 varð bruni í Sæbóli sem stóð ekki langt frá þar sem leikskólinn Barnaból stendur í dag. Guðmundur Óskarsson svaf í húsinu þegar eldurinn kom upp eldsnemma morguns og brenndist hann mjög illa og var lengi að komast á fætur aftur. Á þessari mynd vinna slökkviliðsmenn að því að rjúfa þakið til að komast að eldinum. Frá vinstri: Kári Lárusson, Magnús B. Jónsson, þrír óþekktir og Magnús Ólafsson slökkviliðsstjóri.
Ólafur Bernódusson319
6. - 11. nóvember 1989 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Þessa viku hófust dagarnir á morgunsöng. Hér taka allir undir og syngja hástöfum: "Ó, Borgin mín".
Ólafur Bernódusson247
Björk Sveinsdóttir í febrúar 1988.
Ólafur Bernódusson213
Að lokinni slysavarnaæfingu í nóvember 1987. Ávallt þarf að skola seltuna af flotbúningunum áður en þeir eru þurrkaðir. Á myndinni er Jóhannes Sveinsson að skola af Hendrik Berndsen sem er í flotbúningnum.
umf Fram230
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd eru frá vinstri: Soffía Lárusdóttir ( d. 31.3.2010), Kristinn Guðmundsson, Björk Axelsdóttir og Jón Jónsson (d. 9.7.1991).
Ólafur Bernódusson229
Myndin var tekin um borð í Arnarborg Hu í febrúar 1988 þar sem hópur nemenda í pungaprófi - 30 tonna skipstjórnarréttinda - er að kynna sér tækin í brúnni. Frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Jakob Guðmundsson og Guðmundur J. Björnsson.
Ólafur Bernódusson220
Guðmundur Haukur Sigurðsson framkvæmdastjóri saumastofunnar Violu innan um framleiðsluvörur saumastofunnar. Sjálfur klæðist hann peysu sem var vinsæl framleiðsluvara Violu. Saumastofan var rekin á efstu hæðinni í Gamla kaupfélaginu. Myndin var tekin í nóvember 1987.
Ólafur Bernódusson201
Jólatónleikar Tónlistarskólans á Skagaströnd 1987. Á myndinni syngur stúlknakór Höfðaskóla undir stjórn Jane Sillar tónlistarkennara. Stúlkurnar eru frá vinstri: Áslaug Jóhannsdóttir, Vilborg Jóhannsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), ?Hanna Ægisdóttir?, Berglind Karlsdóttir, óþekkt, Sandra Ómarsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir, Ólína Sveinsdóttir, Helga Kristmundsdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, tvær óþekktar, Kristín Jóna Sigurðardóttir, óþekkt og Inga Lára Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson336
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Elínu var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson385
Skákþing Norðurlands var haldið í Fellsborg á Skagaströnd dagana 2.-5. mars 1989. Á þessari mynd er keppt í opnum flokki en þar voru þátttakendur 18 talsins.
Ólafur Bernódusson081
Á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Við borðið til vinstri sitja Ægir Jónsson, sem bendir og Jón Arnarsson. Fyrir aftan Jón stendur Stefán Ægir Lárusson og spjallar við Óskar Hjaltason til vinstri og Sigurbjörn Kristjánsson til hægri. Guðmundur Haukur Sigurðsson kennari situr við borð til hægri og er með gleraugu. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson120
Vorið 1986 var haldið námskeið fyrir starfsfólk Rækjuvinnslunnar. Á þessari mynd er Steindór R. Haraldsson sem þá vann hjá Marska sem hýst var í Rækjuvinnslunni.
Ólafur Bernódusson408
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Þessar tvær stúlkur lásu ljóð á skólaslitunum. Bergþóra Guðjónsdóttir er vinstra megin en Salóme Ýr Rúnarsdóttir er til hægri.
Kvenfélagið Eining - safn022
Kvenfélagið Eining bauð eldri borgurum á Skagaströnd í ferðalag sumarið 1985. Á þessari mynd eru þær Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka til vinstri og Fanney Halldórsdóttir (d. 21.6.2005) frá Sviðningi við minnismerki um Þorvald víðförla við Stóru Giljá.
umf Fram202
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd spjalla þeir Gylfi Sigurðsson til vinstri og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) saman yfir kaffibolla í afmælishófinu.
Ólafur Bernódusson344
Ársþing USAH 1989 var haldið á Skagaströnd. Þingstörfin fóru fram í kaffistofu Hólaness hf og þessi mynd var tekin þar meðan þingið var að störfum.
Ólafur Bernódusson364
Á þessari mynd frá í desember 1989 sér yfir leiksalinn í leikskólanum Barnabóli. Foreldrar og börn vinna saman að piparkökubakstri.
Ólafur Bernódusson412
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Hér afhendir Stefán Ægir Lárusson kennari nemendum 5. bekkjar vitnisburði sína. Nemendurnir eru frá vinstri: Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Hjörtur Jónas Guðmundsson, Jón Örn Stefánsson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Elín Ósk Ómarsdóttir, Halla Krsitín Árnadóttir, Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Guðrún Björk Elísdóttir, Sigurður Berndsen, Pétur Hinrik Herbertsson, Árný Guðrún Ólafsdóttir og Ólína Laufey Sveinsdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn021
Ekki er kunnugt um tilefni þess að þessar vösku kvenfélagskonur buðu upp á kaffi í Höfðaskóla í desember 1986. Konurnar eru frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.10.2018), Ása Jóhannsdóttir og Lísebet Gestsdóttir.
Ólafur Bernódusson090
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson blessar nýsmíðina Laxdal NS 110 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar árið 1982 eða 83.
Ólafur Bernódusson349
Ný flæðilína var mikil framför í fiskvinnslunni í frystihúsi Hólaness hf. Þessi mynd var tekin í janúar 1989 þar sem konurnar eru að vinna við nýju flæðilínuna í sal frystihússins.
Ólafur Bernódusson243
Anna Sjöfn Jónasdóttir í febrúar 1988.
Ólafur Bernódusson347
Ársþing USAH 1989 var haldið á Skagaströnd. Þingstörfin fóru fram í kaffistofu Hólaness hf en síðan var haldið hóf í Fellsborg þar sem þessi mynd var tekin. Á henni eru frá vinstri: Kristinn Guðmundsson, Ólafur Kristjánsson, Gunnar Rikharðsson, Sigurlaug Hermannsdóttir og Baldur Daníelsson.
Ólafur Bernódusson190
1987 varð bruni í Sæbóli sem stóð ekki langt frá þar sem leikskólinn Barnaból stendur í dag. Guðmundur Óskarsson svaf í húsinu þegar eldurinn kom upp eldsnemma morguns og brenndist hann mjög illa og var lengi að komast á fætur aftur. Á þessari mynd eru slökkviliðsmennirnir að ná tökum á eldinum eftir að hafa rifið stóran hluta þaksins til að komast að honum. Ástmar Kári Ástmarsson er á jörðinni Þorvaldur Skaftason og óþekktur rífa járn af þakinu. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson352
Mikill snjór var á Skagaströnd 1989. Þessi mynd var tekin við Vélaverkstæðið. Drengurinn er óþekktur.
Kvenfélagið Eining - safn004
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Fremst á myndinni eru hjónin Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006). Fyrir aftan þau sjást, frá vinstri: Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) (nær), Guðrún Guðbjörnsdóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Karl Berndsen (d. 12.2.1995)
Ólafur Bernódusson335
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Herborgu var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson389
Mynd frá árshátíð Höfðaskóla í apríl 1990. Lengst til hægri er Baldur Magnússon en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram234
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd er unnið við kerta- og vasaljós lýsingu því rafmagnið fór af í 40 mínútur vegna illviðris. Frá vinstri: Elísabet Árnadóttir (Bebbý) frá Réttarholti, Birna Blöndal, Ólafur Bernódusson og Jón Pálsson.
Ólafur Bernódusson262
Í júlí 1988 stóð ungmennafélagið Fram fyrir ruslasöfnunarátaki. Gengu félagar Fram meðfram þjóðveginum milli Skagastrandar og Blönduóss og hirtu upp rusl á þeirri leið. Einnig voru gengnar fjörur við Skagaströnd. Að söfnunni lokinni var haldin grillveisla í skíðaskálanum og þar var þessi mynd tekin. Þessar tvær mágkonur voru meðal þeirra sem stjórnuðu átakinu. Erna Hreinsdóttir til vinstri og Kolbrún Viggósdóttir til hægri.
Ólafur Bernódusson119
Vorið 1986 var haldið námskeið fyrir starfsfólk Rækjuvinnslunnar. Á þessari mynd sést hluti starfsmannanna hlusta á einhvern óþekktan leiðbeinanda. Frá vinstri: Heimir Fjeldsteð, þrír óþekktir leiðbeinendur og Guðrún Angantýsdóttir.
Ólafur Bernódusson420
Ein af jólabókunum 1990 var bók um Hallbjörn Hjartarson. Þessi mynd var tekin heima í stofu hjá Hallbirni í ágúst 1990 þegar þeir Hallbjörn og Páll Ásgeir Pálsson, höfundur bókarinnar, voru að fara yfir próförk af bókinni.
Ólafur Bernódusson267
Áhöfnin á Örvari Hu 21 hélt upp á 300 milljóna aflaverðmæti á kvótaárinu í september 1988, sem þá þótti gríðarlega mikið. Frá vinstri: Sigurjón Ingólfsson, Árni Sigurðsson, Páll Valgeirsson, Gylfi Guðjónsson, Kristján Alexandersson, Gunnar Jónsson, Finnur Kristinsson, Sigurbjörn Björgvinsson, Jóhannes Simonsen, Hjörtur Guðbjartsson (í efstu röð), Guðjón Sigtryggsson skipstjóri, Sævar Hallgrímsson, Björgvin Karlsson, Axel Hallgrímsson (í efstu röð), Sigurður M. Alexandersson, Ingibjörn Sigurjónsson, Quentin Bates, Ingólfur Sveinsson, Óli Sigurjón Pétursson, Þórarinn Grétarsson (í efstu röð), Rögnvaldur Ottósson, og Hafsteinn Pálsson. Myndin var tekin í Fellsborg.
Ólafur Bernódusson404
Stefán Ægir Lárusson þáverandi kennari leikur undir kórsöng á skólaslitum Höfðaskóla í Fellsborg 1990. Stúlkurnar eru frá vinstri: Ólína Laufey Sveinsdóttir, Bryndís Axelsdóttir, Sylvía Kristín Sigurþórsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Rakel Sara Gunnarsdóttir, Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir og Ragna Fanney Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson069
Litlu jól í Höfðaskóla 1983 líklega hjá 8. eða 9. bekk. Á myndinni eru frá vinstri: Þórarinn B. Ingvarsson, Ingunn Kristjánsdóttir frá Steinnýjarstöðum, Kristín Karlsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir og Jensína Lýðsdóttir.
Ólafur Bernódusson144
Þessi mynd var tekin í hófi sem haldið var til að vígja endurbyggingu Hólanes frystihússins 1986 eða 87. Meðal annars var verið að fagna tilkomu glæsilegrar kaffistofu á efstu hæð hússins. Á þessari mynd sér yfir salinn í kaffistofunni þar sem starfsmenn Hólaness hf og aðrir gestir njóta kaffiveitinga í tilefni dagsins.
Ólafur Bernódusson357
<p>Óskar Kristinsson safnar vélhjólum. Á þessari mynd, sem tekin var sumarið 1989 er hann við þrjú þeirra fyrir utan heimili sitt.</p>
Ólafur Bernódusson164
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á þessari mynd fagna krakkarnir vel heppnuðu sund-átaki í lokin og áhorfendur klappa þeim lof í lófa. Kunnugir munu þekkja nokkur andlit meðal áhorfenda, bæði lífs og liðin.
Kvenfélagið Eining - safn044
Þessi mynd var tekin í einhverju kaffisamsæti á vegum kvenfélagsins Eining í Fellsborg. Á myndinni eru, frá vinstri: Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Dagný Guðmundsdóttir (d. 22.4.2004), Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996), óþekkt, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Björk Axelsdóttir, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) og Jón S. Pálsson. Konan sem snýr baki í myndavélina er óþekkt.
Ólafur Bernódusson313
6. - 11. nóvember 1989 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Á þessari mynd er Guðmundur Henry Stefánsson að vanda sig við að hengja upp myndir.
Ólafur Bernódusson197
Á þessari mynd er verið að steypa sökkla undir raðhúsin að Ránarbraut 17 - 23 árið 1987. Bílstjóri steypubílsins, sem stendur við bílinn, er líklega Jónas Hrólfsson en hinir eru, frá vinstri: Jóhann Ásgeirsson, Eðvarð Hallgrímsson byggingameistari og sá sem byggði húsin, Þorsteinn Jónsson og Einar Ásgeirsson.
Óþekktur ljósmyndari162
Systurnar frá Mánaskál í Laxárdal. Frá vinstri: Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982), Sigurbjörg Sigurðardóttir (d. ?), Guðrún Sigurðardóttir (d. 18.9.2002) og Lára Sigurðardóttir (d. 9.12. 2008).
Ólafur Bernódusson294
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Þessi mynd er frá skemmtun sem haldin var á túninu neðan við Hólabergin þar sem nú er tjaldsvæði. Á myndinni syngur Kúreki norðursins eða Hallbjörn Hjartarson fyrir gesti.
Ólafur Bernódusson292
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Þessi mynd er frá skemmtun sem haldin var á túninu neðan við Hólabergin þar sem nú er tjaldsvæði. Á myndinn syngja tveir ungir drengir fyrir áheyrendur. Vinstra megin er Jón Örn Stefánsson en hinn er óþekktur. Bjarney Katrín Gunnarsdóttir, Erla María Lárusdóttir og Rakel Petrea Finnsdóttir bíða eftir að röðin koma að þeim við hljóðnemann.
Ólafur Bernódusson300
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Meðal annars var rekið útvarp í kjallara Fellsborgar helgina sem afmælishátíðin stóð. Á þessari mynd tekur Magnús B. Jónsson lengst til vinstri viðtal við tónlistarmennina Viggó Brynjólfsson, Þorvald Skaftason og Kristján Blöndal.
Ólafur Bernódusson325
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Kristínu var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson147
Þessi mynd var tekin í hófi sem haldið var til að vígja endurbyggingu Hólanes frystihússins 1986 eða 87. Meðal annars var verið að fagna tilkomu glæsilegrar kaffistofu á efstu hæð hússins. Á þessari mynd er Bernódus Ólafsson starfsmaður Hólaness hf í ræðustól. Í forgrunni hlustar Jóhann Ásgeirsson á ræðu Bernódusar.
Ólafur Bernódusson418
Sveinn Ingi Grímsson var grenjaskytta um árabil. Hér er hann nýkominn af greni sumarið 1990 með yrðling sem hann tók lifandi eftir að hafa eytt foreldrum hans. Það merkilega við yrðlinginn er að hann er greinilega blendingur villts dýrs og búrdýrs sem hefur sloppið úr búri sínu.
Kvenfélagið Eining - safn047
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er Jane Sillar (d.2017), organisti við Hólaneskirkju og tónlistarkennari, við hljóðfærið. Konan í baksýn er Elísabet Kristjánsdóttir (d.6.3.1991) frá Kárastöðum.
Ólafur Bernódusson293
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Þessi mynd er frá skemmtun sem haldin var á túninu neðan við Hólabergin þar sem nú er tjaldsvæði. Á myndinni syngja saman stöllurnar: Rakel Petrea Finnsdóttir (með derhúfu), Erla María Lárusdóttir og Guðrún Elsa Helgadóttir. Í bakgrunninum má sjá Salóme Ýr Rúnarsdóttur, Bergþóru Guðjónsdóttur og baksvip Maríu Jónu Gunnarsdóttur. Þær eru að bíða eftir að röðin koma að þeima að troða upp.
Kvenfélagið Eining - safn030
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Birna Blöndal (d.26.10.2018) og Jón Arnarson.
Ólafur Bernódusson272
Í desember 1988 var komið fyrir ruslapressu um borð í Arnari Hu 1. Var þetta gert til að minnka umfang ruslsins, sem getur orðið umtalsvert, á þessum 26 manna vinnustað í löngum 30 - 35 sólarhringa túr. Maðurinn á myndinni er Gunnar Reynisson kokkur á Arnari.
1
…
51
52
53
…
167
Leita í myndasafninu
Leita