Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Kvenfélagið Eining - safn118
Þessi mynd var tekin af konum í kvenfélaginu Eining einhverntíma snemma á áttunda áratugnum. Í fremri röð eru frá vinstri: Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974), Guðrún Helgadóttir (d. 15.4. 1987), Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978), Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002), Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) og Helga Berndsen. Aftari röð frá vinstri: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Lísbet ?, Guðbjörg Guðjónsdóttir (d. 3.7.1981), Birna Blöndal, Elísabet Árnadóttir (Bebbý), María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003), Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Friðbjörg Oddsdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn088
Ferðalag eldri borgara á vegum kvenfélagsins Eining. Árið er ekki þekkt né áfangastaðurinn. Á myndinni eru: Anna Skaftadóttir og Valdimar Gunnarsson, Fremri-Kotum í Skagafirði, bílstjóri.
Kvenfélagið Eining - safn084
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Inga Matthíasdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn018
Guðlaugur Guðlaugsson (d. 8.7.1990).
Ólafur Bernódusson 526
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd les ókunnur maður upp fyrir gesti.
Kvenfélagið Eining - safn025
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd spilar Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) á harmónikuna sína fyrir vistmenn. Fremst til vinstri situr Sigurbjörg Hjartardóttir (d. 14.7.1985) frá Vík.
Kvenfélagið Eining - safn052
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er Helga Guðmundsdóttir
Kvenfélagið Eining - safn116
Þessar prúðbúnu kvenfélagskonur gengu um beina á þorrablóti Einingar í gömlu Tunnunni. Myndin var tekin af þeim á sviðinu og myndin á bakvið þær er hluta leiktjalda sem Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) hafði málað. Ekki er vitað hvenæar myndin var tekin en það hefur sennilega verið einhverntíma á sjöunda áratugnum. Á myndinni eru frá vinstri: Elísabet Árnadóttir (Bebbý), Jóhanna Gunnlaugsdóttir (d. 18.4.2012), Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Gestheiður Jónsdóttir (d. 6.11.2010), Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Helga Berndsen og Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986). Á þessum tíma útbjuggu kvenfélagskonurnar sjálfar allan matinn sem í boði var á blótinu nema harðfiskinn og hákarlinn. Þær sáu samt um að það góðgæti væri í boði með því að fá valinkunna menn til að herða fisk fyrir sig og annan til að verka hákarlinn.
Ólafur Bernódusson 527
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd leika ungir flautuleikarar á hljóðfæri sín við undirleik kennara síns Rosemary Hewlett. Frá vinstri: Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Birna Ágústsdóttir, Bjarney Katrín Gunnarsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir og þrjár óþekktar stúlkur. Ef þú þekkir stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson374
Ritnefnd og höfundur við útkomu bókarinnar: Byggðin undir Borginni, í desember 1989. Frá vinstri: ritnefndarmaðurinn Lárus Ægir Guðmundsson, Bjarni Guðmarsson höfundur bókarinnar, Elínborg Jónsdóttir formaður ritnefndar og Ingibergur Guðmundsson ritnefndarmaður.
Ólafur Bernódusson 511
Í febrúar 1993 afhentu krakkar í þáverandi 5.og 6. bekk í Höfðaskóla sóknarprestinum séra Agli Hallgrímssyni sitt framlag til hjálparstofnunar kirkjunnar. Peningum höfðu krakkarnir meðal annars safnað með velheppnuðu áheitasundi um haustið. Á myndinni tekur séra Egill Hallgrímsson við gjöfinni úr hendi fulltrúa nemenda Kristrúnu Lindu Jónasdóttur.
Séar Pétur og Dómhildur - safn
Bræðurnir Pétur Ingjaldur Pétursson til vinstri og Jón Hallur Pétursson til hægri á unga aldri.
Ólafur Bernódusson483
Á þessari mynd, sem tekin var í júní 1992 á Háagerðisvelli, eru nokkrir áhugasamir golfarar. Frá vinstri: Guðmundur Kristinsson (Lilli), Vilhelm Jónsson, Adolf H. Berndsen, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Rolf Árnason (d.3.6.2014), Ingibergur Guðmundsson og Lárus Ægir Guðmundsson.
Skagaströnd - safn543
Þessi mynd tengist Skagaströnd ekki nema á óbeinan hátt. Hún er af Brjefspjaldi frá 1920 og sýnir hvernig fólk var flutt á milli staða ef það var sjúkt og eða var flutt til greftrunar. Ef grannt er skoðað mé sjá að maður með húfu liggur í kassanum milli hestanna. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en hún kemur úr póst- og jólakortasafni Elísabetar Árnadóttur (d.16.3.2017) frá Réttarholti.
Guðmundur Guðnason160
Aftan á myndinni stendur: <em>"Bergur Jón Þórðarson á Lækjardalsrauð. Myndin tekin á Laxárdal".</em>
Kvenfélagið Eining - safn093
Hér hefur ein kvenfélagskona úr Einingu klætt sig í sýnishorn af ullar-neyðarfatnaði sem kvenfélagskonurnar bjuggu til og gáfu um borð í skip sem gerð voru út frá Skagaströnd
Guðmundur Guðnason149
<p>Aftan á þessari mynd stendur: V. Ingibjörg Daníelsdóttir, Þórunn Steinþórsdóttir, María Steingrímsdóttir Dalvík, Sigrún Ármannsdóttir. 1954. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en hugsanlega tengjast konurnar Kvennaskólanum á Blönduósi á einhvern hátt. Ef þú veist eitthvað meira um myndina og konurnar á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Ólafur Bernódusson 505
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd , sem tekin var í borðsalnum, njóta gestir veitinga. Frá vinstri: Steindór Haraldsson, Þórarinn Grétarsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Ófeigur Gestsson. Sitjandi við borðið er Steinunn Berndsen ásamt fleirum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.</p>
Ólafur Bernódusson 525
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd eru leiknir ræningjarnir Jesper, Kasper og Jónatan úr Kardimommubænum. Hér atast ræningjarnir í kynni kvöldsins, Lárusi Ægi Guðmundssyni. Lárus er lengst til vinstri en síðan koma: Ingólfur Bjarnason, Rúnar Jóhannsson, Jón Ingvar Valdimarsson og Fannar Viggósson.
Ólafur Bernódusson506
Krakkarnir í vinnuskólanum á Skagaströnd fóru sumarið 1994 út í Kálfshamarsvík til að hreinsa fjöruna. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurður S.Ó. Hallgrímsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Ragna Gunnarsdóttir og Rakel Petrea Finnsdóttir eftir að hreinsunarstarfinu var lokið.
Kvenfélagið Eining - safn114
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni er Helga Berndsen að flytja ræðu. Fyrir framan hana sitja móðir hennar Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987) til vinstri og systir Guðrúnar, Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986) til hægri. Konan sem sér í lengst til vinstri er Björk Axelsdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn075
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Hjördís Sigurðardóttir
Ólafur Bernódusson 510
Í febrúar 1993 afhentu krakkar í þáverandi 5.og 6. bekk í Höfðaskóla sóknarprestinum séra Agli Hallgrímssyni sitt framlag til hjálparstofnunar kirkjunnar. Peningum höfðu krakkarnir meðal annars safnað með velheppnuðu áheitasundi um haustið. frá vinstri: Davíð Bragi Björgvinsson, Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir, Ásdís Lýðasdóttir, Sveinþór Ari Arason (fjær), Þóra Lísebet Gestsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir (nær), Andri Þór Ómarsson, Bæring Jón Skarphéðinsson og Hafsteinn Björnsson í fremstu röðinni og Kristrún Linda Jónasdóttir á milli þeirra. Elva Dröfn Árnadóttir er í köflóttri skyrtu en Sigrún Líndal Þrastardóttir og Heiðrún Ósk Níelsdóttir eru hægra megin við hana. Séra Egill Hallgrímsson stendur með gjafabréfið í höndunum og við hlið hans er Unnur Kristjánsdóttir kennari krakkanna. Framan við þau eru frá vinstri: Ólafur Guðmundson, Birna Ágústsdóttir, Elvar Arinbjörn Grétarsson og Sverrir Brynjar Berndsen. Í dag, 16. janúar 2014, þegar þessi mynd er birt búa einungis tvö barnanna enn á Skagaströnd. Getur þú áttað þig á hver þau eru?
Ólafur Bernódusson548
Guðrún Pálsdóttir með Spákonufell í baksýn 1996.
Guðmundur Guðnason066
Ekkert er vitað um þessa mynd. Bíllinn til hægri er dæmigerður fyrir hvernig fólk var flutt á milli staða á þeim tíma sem myndin var tekin. Kassi var settur á bílpall og síðan sat fólk á hörðum trébekkjum inni í kassanum. Slíkir kassar voru kallaðir "Boddí" og bílarnir þá gjarnan "Boddí-bílar". Ef þú veist eitthvað um þessa mynd vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason176
Alþingishátíð var haldin á Þingvöllum 1930. Hátíðin var haldin til að minnast þess að 1000 ár voru þá liðin frá því að allsherjarþing var sett þar árið 930. Hátíðin stóð dagana 26. - 28. júní og þangað kom Kristján 10. konungur Danmerkur og þá ennþá, Íslands. Gríðarlegt fjölmenni var á hátíðinni og á þessari mynd sér yfir hluta mannfjöldans. Myndin er úr safni Guðmundar Guðnasonar en ekki tekin af honum enda fæddist hann árið 1923. Á myndinni er nafn ljósmyndarans:K.K. Bergen.
Ólafur Bernódusson 516
Vorið 1993 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stálblóm eftir Robert Harling. Leikstjóri var Jónas Jónasson (d. 22.10.2011) sem var kunnur útvarpsmaður í áratugi. Á þessari mynd sem var tekin eftir æfingu af þeim sem komu að sýningum á Stálblómi eru: fremsta röð frá vinstri:óþekktur, Jónas Jónasson, Óli Hjörvar Kristmundsson. Miðröð frá vinstri: Ása Ásgeirsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Lovísa Stefánsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Guðný Sigurðardóttir og Birna Blöndal. Aftasta röð frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Sigrún Jónsdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn038
Kvenfélaskonur úr Einingu funda í herbergi sínu í Fellsborg. Frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.10.2018), Ása Jóhannsdóttir, Steinunn Grímsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba) og María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003).
Ólafur Bernódusson463
Í október 1991 kom Röst Sk 17 til hafnar á Skagaströnd því báturinn hafði fengið á sig brotsjó á miðunum og gluggi í brúnni brotnaði og bleyta komst í tæki í brúnni. Þessi mynd var tekin af skipstjóranum, Finni Sigurbjörnssyni, sem sýnir að ramminn, sem hélt rúðunni, brotnaði við átökin og í baksýn má sjá hvernig skipverjar lokuðu glugganum eftir óhappið.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn005
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á myninni er Davíð Reynisson.
Guðmundur Guðnason058
Séra Sigtryggur Guðlaugsson Núpi.
Ólafur Bernódusson486
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu ásamt mökum til grillveislu framan við hótel Dagsbrún í júní 1992. Grillveislan var vel sótt enda var starfsfólk Hólaness margt á þessum árum. Á þessari mynd er Jóhanna Harðardóttir með (frá vinstri) Sigrúnu Líndal, Magnúsi Líndal og dóttur sinni Maríönnu Ástmarsdóttur að njóta veitinganna.
Kvenfélagið Eining - safn069
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Anna Jóna Geirsdóttir
Kvenfélagið Eining - safn066
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Þórunn Óladóttir.
Ólafur Bernódusson489
<p>Marska tók að sér að pakka og flytja út vatnasilungi úr Skagaheiðinni. Þessi mynd sem tekin var í júní 1992 sýnir starfsstúlkur Marska við vinnu sína við silunginn. Frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Lilja Kristinsdóttir og Birna Bjarnadóttir.</p>
Ólafur Bernódusson549
Þessi mynd sýnir stærstan hluta bekkjar í Höfðaskóla með krökkum fæddum 1975. Frá vinstri á myndinni eru: Jóhannes Óskarsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Þröstur Árnason, Börkur Árnason, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Heiðrún Níelsdóttir, Linda Rós Rúnarsdóttir, Vilborg Jóhannsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Soffía Lárusdóttir og Áslaug Jóhannsdóttir. Hugsanlega eru nöfn tvíburanna Áslaugar og Vilborgar ekki rétt þ.e. ekki rétt nafn við rétta stúlku en erfitt var að þekkja þær í sundur. Mynd var sennilega tekin árið 1989 eða 1990.
Ólafur Bernódusson 498
Hallbjörn Hjartarson bauð til veislu í veitingastað sínum Kántrýbæ í nóvember 1992 í tilefni af því að hanna var að opna Útvarp Kántrýbæ á efri hæðinni. Á þessari mynd njóta gestir veitinga á básunum sem einkenndu gamla Kántrýbæ. Á básnum næst okkur eru Gunnlaugur Sigmarsson og Magnús B. Jónsson. Á næsta bás þekkist Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) bróðir Hallbjörns og textahöfundur við nokkur laga hans. Aðrir eru óþekktir
Kvenfélagið Eining - safn043
Þessi mynd var tekin í einhverju kaffisamsæti á vegum kvenfélagsins Eining í Fellsborg. Á myndinni eru, frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, ókunnugt barn, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991), óþekkt kona, Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba) með barn, kristján Hjartarsond (d. 2.8.2003) og óþekkt kona.
Ólafur Bernódusson 515
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd sér yfir troðfullan sal áhorfenda.
Ólafur Bernódusson431
Ardís Ólöf Arelíusdóttir, til vinstri, og Ragnheiður Sigurjónsdóttir við skógræktarstörf í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson 501
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd er óþekktur maður að færa Sveini S. Ingólfssyni framkvæmdastjóra Skagstrendings hf blóm í tilefni dagsins. Gestir um borð fylgjast með.</p>
Kvenfélagið Eining - safn046
Þessi mynd var tekin í einhverju kaffisamsæti á vegum kvenfélagsins Eining í Fellsborg. Á myndinni eru, frá vinstri: Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Fjóla Gísladóttir (d. 5.11.1991) og Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011).
Ólafur Bernódusson434
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Farin var skrúðganga frá skólanum að félagsheimilinu og var þessi mynd tekin af nemendahópnum þegar þau komu að Fellsborg.
Ólafur Bernódusson474
<p>Formleg vígsla Hólaneskirkju fór fram 20. október 1991. Á þessari mynd er verið að bera muni inn í kirkjuna. Fremstir á myndinni eru Steindór R. Haraldsson meðhjálpari og Sigurjón Guðbjartsson úr kirkjukórnum. Gylfi Sigurðsson og Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) kórfélagar eru næst. Milli þeirra sést Árni Ólafur Sigurðsson og yfir öxlina á Gylfa sést Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý). Lengst til hægri grillir svo í Hallbjörn Hjartarson. </p>
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn001
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd eru Sigfús Sævar Sigurðsson og Sigrún Benediktsdóttir í kaffipásu inni á kaffistofu.
Kvenfélagið Eining - safn072
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó).
Guðmundur Guðnason140
Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988), póstur og ljósmyndari frá Ægissíðu.
Kvenfélagið Eining - safn083
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Inga Matthíasdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn048
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er hluti gesta á skemmtuninni. Fyrir miðri mynd eru hjónin Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) og Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) (í bláum kjól). Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) er til hægri á myndinni í brúnni blússu. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kvenfélagið Eining - safn006
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni er Guðmundur Haukur Sigurðsson, þáverandi formaður ungmennafélagsins Fram, að færa kvenfélaginu kveðju og gjöf frá Fram.
Ólafur Bernódusson541
Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á myndinni eru börn fædd 1980. Frá vinstri: Ástmar Sigurjónsson, Gunnar Dór Karlsson, óþekktur, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson í hestapeysu Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson á bak við Sigurð Sverri, Sigurður Haukur Grétarsson, Rakel Petrea Finnsdóttir, Kristinn Björgvinsson, Erla María Lárusdóttir, Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Bjarney Katrín Gunnarsdóttir, Fjóla Sigurbjörg Ómarsdóttir og Auður Eva Guðmundsdóttir.
Ólafur Bernódusson510
Á þessari mynd er einn aldursflokkur stúlkna búinn að hlaupa í víðavangshlaupi Landsbankans í maí 1993. Þarna er verið að afhenda verðlaun fyrir hlaupið. Á efsta palli trónir Marta Kristín Jónsdóttir, en vinstra megin við hana er Karen Peta Karlsdóttir. Hávaxna stúlkan, í bláa gallanum til vinstri, er Þóra Lísebet Gestsdóttir og stúlkan með hárbandið og í fjólubláu úlpunni til hægri við verðlaunahafana er María Markovic og hægra megin við hana er Guðrún Ásta Guðmundsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Kvenfélagið Eining - safn033
Hér borða kvenfélagskonur úr Einingu í Kántrýbæ. Frá vinstri: María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003), Hallveig Ingimarsdóttir, Birna Blöndal (d.26.10.2018) og Steinunn Steinþórsdóttir.
Ólafur Bernódusson443
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Milan Djurica kenndi leikfimi og var mjög vinsæll meðal nemenda sinn eins og glöggt má sjá á þessari mynd. Frá vinstri: Páll Leó Jónsson skólastjóri, Kjartan Arnþór Þórðarson, Loftur Björgvinsson, Steinþór Karlsson, María Markovic, óþekkt, Marta Kristín Jónsdóttir, þrír óþekktir og Davíð Bragi Björgvinsson.
Ólafur Bernódusson 521
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd syngja þau saman, frá vinstri: Díana Kristjánsdóttir, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Guðrún Hrólfsdóttir, Erna Hreinsdóttir og Fannar Viggósson.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn014
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Frá vinstri: Ottó Ákason (d. 17.9.2005) og Hans Birgir Högnason.
Guðmundur Guðnason070
Á þessari mynd, sem tekin var á tröppunum framan við kirkjudyrnar á Höskuldsstaðakirkju (eldri), er fólk úr kirkjukór Hólaneskirkju. Konurnar eru frá vinstri: tvær óþekktar, Ása Hafsteinsdóttir Reykholti, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri og óþekkt. Karlarnir eru frá vinstri: Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) Ægissíðu, óþekktur, Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi og Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki. Myndin var sennilega tekin kringum 1960 en þessi kirkja var rifin 1964 eftir að ný kirkja var byggð skammt frá.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn007
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd er verið að pakka saltfiski til útflutnings. Frá vinstri: Högni Jensson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý) og Davíð Reynisson.
Kvenfélagið Eining - safn005
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni er Björk Axelsdóttir að flytja ræðu.
Kvenfélagið Eining - safn105
Kvenfélagið Eining hefur staðið fyrir árlegum þorrablótum á Skagaströnd í áratugi. Á þessari mynd eru kvenfélagskonur að vinna að laufabrauðsgerð fyrir þorrablót í febrúar 1996 í eldhúsinu í Fellsborg. Við borðið eru frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Birna Blöndal (d.26.10.2018), Íris Valgeirsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, Fjóla Ævarsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba) (fjær), Hafrún Eva Kristjánsdóttir , Lilja Nótt Sævarsdóttir og sú sem snýr baki í myndavélina er Rósa Högnadóttir.
1
…
55
56
57
…
167
Leita í myndasafninu
Leita