Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson523
Gunnar Jónsson á Funa Hu 89 dró lax á handfæri í ágúst 1994. Afar sjaldgæft er að lax fáist á handfæri en á myndinni sýnir Gunnar okkur Laxinn.
Séra Pétur og Dómhildur - safn101
Á þessari mynd eru í fremsri röð talið frá vinstri: Elínbjörg Kristjánsdóttir Höskuldsstöðum, Kristján Sigurðsson Höskuldsstöðum, Helga Guðmundsdóttir Höskuldsstöðum, Anna Kristjánsdóttir Höskuldsstöðum, Agnes Sigurðardóttir (d. 15.10.2003) Mánaskál, Elínborg Einarsdóttir (d. 9.12.1972) Síðu og Elísabet Hafliðadóttir (d. 25.9.1979) Núpi. Aftari röð frá vinstri: Sigurbjörg Jóhannsdóttir (d. 7.6.1971) Skúfi, Guðríður Bergsdóttir (d. 10.6.1996) Skagaströnd, Þorgerður Guðlaugsdóttir (d. 21.12.1993)Neðri Lækjardal, Geirlaug Ingvarsdóttir Balaskarði, Filipía Helgadóttir Syðri Ey, Elsa Ingvarsdóttir (d. 11.12.2007) Balaskarði, Ingibjörg Karlsdóttir Neðri Lækjardal, Svanhildur Eysteinsdóttir Miðgili, Jóhanna Erlendsdóttir (d. 20.8.1979) Breiðavaði, Sigrún Jónsdóttir Vatnahverfi, Ingibjörg Elínmundardóttir Björnólfsstöðum, Steinunn Blöndal (d. 4.11.1996) Blöndubakka og Signý Benediktsdóttir (d. 7.1.1991) Balaskarði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né af hvaða tilefni það var gert.
Ólafur Bernódusson450
Árið 1990 tóku nokkrir félagar sig saman og keyptu billjardborð af bestu gerð. Var borðinu komið fyrir í Skátaskálanum og var síðan haldið snóker mót í desember 1990. Á þessari mynd mundar Skúli Tómas Hjartarson kjuðann. Jón Sveinsson fylgist með og einnig ókunn stúlka.
Ólafur Bernódusson491

Stúlkurnar á þessari mynd frá árinu 1993 tóku sig til og héldu tombólu til styrktar einhverju góðu málefni. Stúlkurnar eru, frá vinstri: María Guðrún Guðmundsdóttir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Hrafnhildur Jóhannesdóttir og Marta Kristín Jónsdóttir. Ef þú veist hvers dóttir Hrafnhildur er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason147

Samkvæmt því sem stendur aftan á þessari mynd eru í aftari röð frá vinstri: Lárus Jónsson (frá Haga d. 3.7.1983 ?), Pálmi Guðnason (d.23.3.1994) Ægissíðu, Jósef Jóhannsson (d. ?) Ósi, Steingrímur Björnsson ( frá Móbergi d. 21.5.2002 ?), Haukur Jóhannsson og Hergeir Albertsson. Konurnar eru frá vinstri: Þóra Sigurgeirsdóttir - kona Snorra - (d. 9.5.1999 ?), Magna Oddsdóttir, Margrét Jónsdóttir (d. 19.6.1988 ?), Helga Bjarnadóttir og Úrsúla frá Þýskalandi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né tilefni þess.

Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn008
Starfsmenn frystihúss Hólanes hf meðan það var með vinnslu á Hólanesi. Frá vinstri: Jóhann Jakobsson (d. 24.3.1987) Blálandi, Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) Árnesi, Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) Skjaldbreið, Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1996) Sævarlandi, Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) Sunnuhvoli, Jón Árnason (d. 11.4.1986) Ólafsvöllum/Náttbrún, Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) Litla Bergi, Árni Max Haraldsson (d. 6.12.1976) Litla Bergi, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) Dagsbrún, Jón Áskelsson (d. 1989) Hólanesi, framkvæmdastjóri Hólaness hf og Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) Sólvöllum, verkstjóri í frystihúsinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið á sjöunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson509
Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) var aldursforseti í kvennahlaupinu í júní 1993 á Skagaströnd . Á myndinni klappa aðrir þátttakendur fyrir Jónu.
Óþekktur ljósmyndari248
Tvær hrefnur skornar á bryggjunni á Skagaströnd. Það voru eingöngu aðkomubátar sem veiddu hrefnur og gerðu að þeim á bryggjunni. Maðurinn sem fylgist með hvalskurðinum með hendur í vösum er sennilega Gunnar Jónsson bílstjóri.
Óþekktur ljósmyndari266
Fyrsti bíllinn á Skagaströnd. Hjá bílnum stendur Emil Berndsen sem átti bílinn ásamt bróður sínum Ernst Berndsen. Bílinn keyptu þeir upp úr 1920 en hann varð fljótlega ónýtur. Myndin var sem sagt tekin einhverntíma snemma á þriðja áratugnum. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls 154)
Óþekktur ljósmyndari328
Sjómannadagur sennilega 1949. Þá voru hátíðahöld á Hólanesinu. Húsin í baksýn eru Árnes, þar sem menn sitja undir vegg, Miðnes eða Sigurðarhús er stóra húsið. Lengst til hægri er Bláland og lengra frá sér í Þorfinnshúsið (Bogabraut 9).
Hjördís Sigurðardóttir - safn021
Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir situr á þessari mynd í góðu yfirlæti hjá tengdaföður sínum, Ernst Berndsen frá Karlsskála (d. 21.8.1983).
Árni Geir Ingvarsson - safn001
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) með tvö af börnum sínum og systurdóttur sína. Frá vinstri: Ólöf Jóhanna Smith, Þórunn Bernódusdóttir og Ólafur Bernódusson. Myndin var tekin einhverntíma 1955 - 1957.
Ólafur Bernódusson538
Veturinn 1995 héldu krakkarnir í 8. - 10. bekk Höfðaskóla körfuboltamaraþon. Þá voru íþróttir kenndar í Fellsborg því ekki var búið að byggja íþróttahúsið og því fór maraþonið fram þar. Með maraþoninu voru krakkarnir að safna fé til kaupa á ýmsum íþróttaáhöldum. Á myndinni eru krjúpandi frá vinstri: Finnbogi Guðmundsson, Jóhannes Grétarsson, Gunnar Dór Karlsson, Smári Gunnarsson, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Birna Ágústsdóttir og Sigrún Líndal. Standandi frá vinstri: Geirþrúður Guðmundsdóttir, Bjarney Katrín Gunnarsdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir, Erla María Lárusdóttir, Linda Hafdal, Auður Eva Guðmundsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir?, Bæring Skarphéðinsson, Karen Peta Karlsdóttir, Hallbera Gunnarsdóttir?, Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Bjarni Þórmundssson íþróttakennari og Heiðrún Ósk Níelsdóttir.
Ólafur Bernódusson527
Viðbygging við leikskólann Barnaból var tekin í notkun í nóvember 1994. Á þessari mynd heldur Magnús B. Jónsson sveitarstjóri ræðu. Ragnar Ingvarsson er lengst til vinstri en Ingólfur Bjarnason er við hlið hans. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 522
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd spila þeir saman Birgir Árnason á harmóniku og Fannar Viggósson á gítar.
Halldór003
Myndin var tekin seint í desember 1998 þegar mennirnir á myndinni voru að bíða eftir að taka á móti Örvari Hu 2, áður Blængur NK 117, þegar hann kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd, þá nýkomin í eigu Skagstrendings hf. Mennirnir eru, frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, óþekktur, Gylfi Sigurðsson, Adolf H. Berndsen óþekktur og Jóel Kristjánsson.
Guðmundur Guðnason078
Áhorfendur fylgjast spenntir með langstökkskeppni á ókunnu íþróttamóti. Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kvenfélagið Eining - safn102
Þessi mynd er úr ferðalagi eldri borgara um Vatnsdal og í Þingeyrakirkju í júlí 1997 á vegum kvenfélagsins Eining. Þessi mynd var tekin af hópnum þegar áð var við Húnavallskóla. Á myndinni eru frá vinstri:Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Hallur Hilmarsson bílstjóri, Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020), Sigríður Vilhjálmsdóttir (d. 21.1.2012), Björgvin Jörgensson (d. 26.2.1999), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Haukur Gunnlaugsson (d. 18.1.2004), óþekkt barn, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007), Hallgrímur Kristmundssson (d. 9.10.1998), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010), Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Erna Högnadóttir og Birna Blöndal (d.26.10.2018).
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn011
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Erla Theódórsdóttir að vinna við pökkun á saltfiski.
Ólafur Bernódusson481
Óskar Ingi Þórsson (d. 5.4.2007) veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla.
Ólafur Bernódusson544

Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á þessari mynd er Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri að þakka ungum mönnum fyrir veturinn. Frá vinstri: Baldur Magnússon, Friðrik Gunnlaugsson, Atli Þórsson, Jón Heiðar Jónsson, Reynir Lýðsson, Björn Sigurðsson Gunnar Halldór Hallbjörnsson og Ingibergur.

Guðmundur Guðnason143
Þessi maður er óþekktur. Myndin var sennilega tekin í gömlu Tunnunni þar sem maðurinn er að lesa eitthvað upp. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason082
Myndin var tekin 1958 - 1960 þegar yfir stóð uppboð á ýmsum eigum úr búi Engilberts Óskarssonar (d. 13. 9. 1982) og Sigríðar Helgadóttir í Skálholti. Þau voru að flytja til Reykjavíkur og til að minnka umfang flutningsins héldu þau uppboðið. Á þessari mynd eru: Albert Haraldsson (d. 28.9.1980) Litla Bergi með derhúfu og ljósan trefil um hálsinn. Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982) Fjallsminni er aftast á myndinni. Maðurinn með poka undir hendinni er Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) Kárastöðum og til hægri við hann með ljóst um hálsinn er Elínborg Árnadóttir (d.7.4.1979) Sólheimum. Vinstra megin við Kára er Björgvin Guðmundsson (d. ?) frá Melstað. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir hitt fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kvenfélagið Eining - safn108
Konur í kvenfélaginu Hekla í Vindhælishreppi hinum forna (nú í Skagabyggð) tóku sig til á árunum 1930 - 33 og unnu að vegabótum á Skaganum. Þetta gerðu þær með aðstoð barna sinni en karlarnir komu ekki að verkinu. Minnisvarði um þetta framtak kvennanna var afhjúpaður við þjóðveginn um Skeiðamel stutt norðan við bæinn Hafnir hinn 2. júlí 1989. Á þessari mynd flytur Árný Hjaltadóttir formaður Heklu ræðu við afhjúpun minnisvarðans.
Óþekktur ljósmyndari241
Félagar úr hestamannafélaginu Snarfara á Skagaströnd á hestamannamóti á Vindheimamelum 1974. Í fremri röð eru Jóna Kristjánsdóttir og Magnús Hjaltason. Aftari röð frá vinstri: Guðrún Guðmundsdóttir, Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011) og Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989).
Ólafur Bernódusson 500

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðjón Ebbi Sigtyggsson skipstjóri, Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður, Ernst Berndsen vélstjóri, Gylfi Sigurðsson sjórnarformaður Skagstrendings hf og Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Myndin var tekin í brú hins nýja skips.

Ólafur Bernódusson497
Á þrettándanum (6. janúar) 1994 var spilað bingo í Sæborg í boði Íslandsbanka. Við borðið næst okkur sitja frá vinstri: Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011) og óþekkt. Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) er konan í hvítu peysunni við næsta borð og maður hennar Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) er við hlið hennar. Pétur Eggertsson forstöðumaður Sæborgar stendur við skenkinn í baksýn á milli tveggja óþekktra kvenna.
Guðmundur Guðnason096
Þetta prúðbúna fólk er á áramótadansleik með viðeigandi höfuðföt. Frá vinstri: Þórey Ólafsdóttir frá Árbakka, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu og hjónin Fjóla Sigurðardóttir (d. 15.7.1988) og Jón Kr. Jónsson frá Laufási.
Hjördís Sigurðardóttir - safn003
Tvíburarnir Ingibergur Guðmundsson og Karl Guðmundsson í kerrunni sinni fyrir utan Þórsmörk. Myndin var líklega tekin sumarið 1955. Þórsmörk er til hægri og Bjarmaland fjær.
Óþekktur ljósmyndari208

Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979) frá Háagerði í heyskap á túninu við Háagerði. Á myndinni er Kristján að ýta saman heyi með tveimur hestum eftir að hafa rakað heyinu saman í garða. Spýta var bundin aftan í hestana og síðan var staðið á spýtunni til að halda henni niðri. Hestarnir drógu svo spýtuna þar til næg hrúga af heyi var komin framan við hana. Þá var spýtunni lyft yfir hrúguna og haldið áfram framan við hana. Síðan var heyinu úr hrúgunum hlaðið upp í sæti/sátur eins og sést fyrir aftan Kristján. Seinna var svo heyinu ekið heim í hlöðu eða sett í fúlgu heim við fjárhús eða fjós. Hlutverk hesta í sveitum landsins hefur breytst mikið frá þessum tíma úr því að vera þarfasti þjónninn og helsta vinnutæki bænda yfir í það að vera fyrst og fremst skemmtigripur og skrautfjöður eiganda síns.

Ólafur Bernódusson492
Myndin var tekin í desember 1993 þegar fulltrúar frá Verkalýðsfélagi A- Hún afhentu Hallbirni Hjartarsyni styrk til rekstrar Kántrýútvarpsins. Frá vinstri á myndinni: Valdimar Guðmundsson, Hallbjörn Hjartarson, Halla Björg Bernódusdóttir, Ólafur Guðmannsson og Stefanía Garðarsdóttir.
Ólafur Bernódusson554

Leikklúbbur Skagastrandar sýndi leikritið Kardimommubærinn árið 1992 í Fellsborg. Þessi mynd var tekin á einni af lokaæfingunum á verkinu. Frá vinstri eru í hlutverkum sínum: Jensína Lýðsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Fannar Viggósson, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Þorlákur Guðjónsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Steindór Haraldsson, Elva Árnadóttir og Hildur Inga Rúnarsdóttir.

Ólafur Bernódusson 495
Krakkarnir í 5. og 6. bekk Höfðaskóla 1992 syntu áheitasund í sundlauginni á Skagaströnd í október það ár ásamt kennara sínum Unni Kristjánsdóttur. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Elvar Arinbjörn Grétarsson, Ólafur Guðmundsson (nær), Elva Dröfn Árnadóttir, Sverrir Brynjar Berndsen, Karen Peta Karlsdóttir (fjær), óþekktur, Bæring Jón Skarphéðinsson, Unnur Kristjánsdóttir kennari, Andri Þór Ómarsson, Sveinþór Ari Arason, Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Kristrún Linda Jónasdóttir, Ásdís Lýðsdóttir, óþekkt, Birna Ágústsdóttir og ?Þóra Lísebet Gestsdóttir?. Birkir Rafn Gíslason er uppi á bakkanum. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson489
Guðjón Guðjónsson (Jonni) um borð í Örvari Hu 21, sem hann stýrði farsællega sem skipstjóri. Myndin var tekin 1993.
Guðmundur Guðnason090
Á þessari mynd er verið að koma með fjársafnið til réttar í Spákonufellsrétt. Maðurinn með tvo til reiðar er Lárus Árnason (d. 21.5.2011) frá Ási. Lárus var oft gangnaforingi í göngum frá Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hjördís Sigurðardóttir - safn034
Kaffiveisla af ókunnu tilefni á ókunnum stað. Frá vinstri: Helga Berndsen (Bíbí), Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Lárus Ægir Guðmundsson og Vilhelm Harðarson. Myndin var tekin 1983.
Guðmundur Guðnason122
Á sjómannadegi 1971 var sýnd björgun með fluglínutækjum. Helga Björg Hu 7 lagði út á höfninni og síðan var línu skotið út í hana af bryggjunni. Eftir að það voru síðan nokkrir menn dregnir í stól í land. Á myndinni er einn maður á stólnum á leið í land en fer í sjóinn á leiðinni. Mennirnir í forgrunninum eru um borð í Sigurði Hu 18.
Ólafur Bernódusson490
Guðlaugur Hjaltason og Kristjana Jóhannsdóttir með dóttur sína Laufey Sunnu Guðlaugsdóttur á tröppunum í Reykholti (Fellsbraut 6). Myndin var tekin 1993 en tilefni myndatökunnar var að þau hjón höfðu þá nýverið stofnað flutningafyrirtækið Alla leið hf.
Guðmundur Guðnason072
Þetta glaða fólk er óþekkt. Ef þú veist hvaða fólk þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
MBJ001
Líklega er myndin frá aðalfundi Búnaðarsambands A-Hún einhverntíma á árabilinu 1950 - 1960. Í fremri röð eru, frá vinstri: Grímur Gíslason (d.31.3.2007) Saurbæ, Sigurjón Oddsson (d.10.9.1989) Rútsstöðum, Pétur Pétursson (d.7.5.1977) Höllustöðum, Jón S. Pálmason (d.9.11.1976) Þingeyrum, Hafsteinn Pétursson (d.28.8.1961) Gunnsteinsstöðum, Hilmar A. Frímannsson (d.13.6.1980) Fremstagili, Guðmundur Jósafatsson (d.16.6.1982) Brandsstöðum, Jóhannes Hinriksson (d.27.10.1973) Ásholti á Skagaströnd, Gísli H. Jónsson (d.7.12.1985) Stóra-Búrfelli og Sigurður Erlendsson (d.28.9.1981) Stóru-Giljá. Aftari röð, frá vinstri: Skúli Jónsson (d.12.7.1999) Þórormstungu, Halldór Jónsson (d.21.1.1983) Leysingjastöðum, Lárus G. Sigurðsson (d.14.10.1983) Tindum, Magnús Björnsson (d.20.7.1963) Syðra-Hóli, Pálmi Jónsson (d.9.10.2017) Akri, Kristinn Magnússon (d.26.11.1979) Kleifum, Sigurður Þorfinnsson (d.11.7..1966) Skeggsstöðum, Björn Jónsson (d.21.4.1992) Ytra-Hóli, Bjarni Ó. Frímannsson (d.10.11.1987) Efri-Mýrum, Hilmar Árnason (d.16.3.1988) Hofi, Sigurður Ö. Þorbjarnarson (d.15.3.2002) Geitaskarði, Páll Geirmundsson (d.28.1.1975) Blönduósi, Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) Reykholti á Skagaströnd og Ólafur Magnússon (d.23.8.1991) Sveinsstöðum.
Ólafur Bernódusson516
Á þessari mynd sýnir, Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, óþekktum ráðherra frá Namibíu vinnsludekkið í Arnari Hu 1. Myndin var tekin í nóvember 1994.
Séra Pétur og Dómhildur - safn111

Aftan á þessa mynd hefur verið skrifað: Sr. Pétur Þ. Ingjaldsson. Þannig ferðaðist hann til allra prestsverka fyrstu árin. Þá var aðeins vegur... Pétur hafði aðsetur á Höskuldsstöðum en ferðaðist þaðan til annarra kirkna í Höskuldsstaðasókn t.d. á Skagaströnd og úti á Hofi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á fimmta áratugnum.

Óþekktur ljósmyndari176
Á bls. 277 í bókinni Byggðin undir Borginni (1989) er þessi mynd. Undir henni stendur: "Úr ferð stúkunnar Höfðaborg til Akureyrar. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Kr. Guðnason, Björn Helgason, Ása Hafsteinsdóttir, Úlfar Björnsson, Guðrún Sigurðardóttir, Engilráð Guðmundsdóttir, Hákon Magnússon, Gunnar Albertsson, Vera Magnúsdóttir, Jóhann Bjarnason, Kristinn Ásgrímsson, Arvid Olsen, Jón Jónsson. Fremri röð frá vinstri: Hörður Ragnarsson, óþekktur, Gylfi Sigurðsson og óþekktur". Ekki er nefnt hvenær myndin var tekin en sennilega var það árið 1952 því þá fóru stúkufélagar í ferð til Akureyrar.
Ólafur Bernódusson543
Óskar Þórðarson við vinnu sína sem framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Myndin var tekin veturinn 1995.
Guðmundur Guðnason056
Einar Olgeirsson alþingismaður flytur ræðu af svölunum á Hólaneshúsinu, sem þá kallaðist "Hreppstjórahúsið", á sjómannadegi 1955.
Óþekktur ljósmyndari254
Landburður af fiski var hjá Arnari HU 1 hafísvorið 1969. Gripið var til þess ráðs að koma í land með aflann óslægðan og landa honum þannig á bryggjuna þar sem slægingagengi tók við og slægði fiskinn sem síðan var fluttur upp í frystihús. Arnar hélt aftur á móti strax aftur á miðin. Slægingarmennirnir á myndinni eru óþekktir en Arnar HU 1 er í baksýn á leið út úr höfninni aftur. Einnig sjást nokkrir ísjakar á reki. Myndin var tekin löngu fyrir alla kvótasetningu á fiski á Íslandsmiðum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn025
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), lengst til vinstri, stendur hér við Dodge vörubíl sinn númer H 351. Maðurinn við hlið hans er óþekktur og hefur líklega verið gröfustjóri á gröfunni á myndinni. Adolf átti tvo vörubíla - H 351 - gegnum tíðina og vann sem vörubifreiðastjóri. Á þessari mynd er hann greinilega í malarflutningum e.t.v. í vegavinnu. Á þessum tíma var vinsælt hjá krökkum að fá að "sitja í" hjá bílstjórunum við vinnu sína. Sú er raunin á þessari mynd því Adolf er með þrjá unga farþega með sér í vinnunni. Það skal tekið fram að þessi mynd var tekin fyrir þann tíma að nokkrum var farið að detta í hug öryggisbelti í bílum. Myndin var sennilega tekin á sjöunda áratugnum í krúsinni/malarnáminu fyrir ofan Spákonufellsrétt.
Ólafur Bernódusson 496
Þessi mynd var tekin í október 1992 af tillukörlum að spjalla á bryggjunni. Mennirnir tveir til vinstri eru óþekktir en svo koma Sigurður Pálmason, sem lengi gerði út trillu frá Skagaströnd og Árni Björn Ingvarsson sem einnig gerði út trillu frá Skagaströnd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn

Séra Pétur Þ. Ingjaldsson ( f. 11. janúar 1911 - d.1. júní 1996 ) þjónaði sem prestur á Skagaströnd í 41 ár. Pétur var afar farsæll í öllum störfum sínum, maður vinsæll og eftirminnilegur öllum þeim er honum kynntust. Hann hóf prestsskap sem sóknarprestur að Höskuldsstöðum 1941, en þá heyrði sóknin á Skagaströnd undir Höskuldsstaði. Pétur flutti til Skagastrandar á sjötta áratugnum og bjó lengi í Höfða en seinna að Hólabraut 1, sem þá var prestbústaður á Skagaströnd. Prófastur varð Pétur 1967 og var stuttu seinna kjörinn á kirkjuþing þar sem hann starfaði þar til hann hætti prestskap. Séra Pétur giftist Dómhildi Jónsdóttur (f. 22. mars 1926 - d. 18. nóvember 2012 ) húsmæðrakennara frá Akureyri eftir að hann var kominn á miðjan aldur og eignuðust þau hjón tvo drengi; Jón Hall og Pétur Ingjald. Eftir að séra Pétur lést starfaði Dómhildur sem safnaðarsystir í Hallgrímskirkju og sá þar um félagsstarf aldraðra. Var Dómhildur kraftmikil og vinsæl kona sem lét sig mjög varða málefni þeirra sem höllum fæti stóðu í þjóðfélaginu bæði meðan þau hjón bjuggu á Skagaströnd og einnig eftir að hún flutti suður. Síðustu æviárum sínum eyddi Dómhildur í Hnitbjörgum á Blönduósi. Í minningargrein sem herra Sigurbjörn Einarsson biskup skrifaði um vin sinn og skólabróður, séra Pétur Ingjaldsson eru eftirfarandi orð sem þeir sem þekktu Pétur geta heilshugar tekið undir:" Þegar sr. Pétur Ingjaldsson lagði út í prestsskapinn hafði hann ekki háar hugmyndir um sjálfan sig. Það er mér kunnugt um. En hann var ráðinn í því að vera Guði sínum og kirkju hollur og trúr í vandasömu starfi. Því áformi hefur hann ekki brugðist".
Kvenfélagið Eining - safn115
Þessi mynd var tekin í rútu í ferðalagi eldri borgara á vegum kvenfélagsins Eining að sumri til. Ekki er vitað um tímasetninguna. Frá vinstri á myndinni eru: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991), Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) stendur í ganginum, óþekkt, Björk Axelsdóttir situr hjá Ottó Ákasyni (d. 17.9.2005), Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Dagný Guðmundsdóttir (d. 22.4.2004) (fjær), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3. 2011)(nær), Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) og Sigurður Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari168
Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) fyrrverandi oddviti og sveitarstjóri á Skagaströnd.
Kvenfélagið Eining - safn063
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Birna Blöndal (d.26.10.2018).
Óþekktur ljósmyndari347
Gatnagerð við undirbúning lagningar slitlags á Fellsbraut 1976. Á myndinni er verið að slétta undirlagið með veghefli. Maðurinn með skófluna er óþekktur.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn014
Á þessari mynd býr Karl Þ. Berndsen sig undir að stökkva stangarstökk á einhverju íþróttamóti. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvar.
Guðmundur Guðnason158
Aftan á þessari mynd af Bergi Þórðarsyni stendur: Bergur Jón Þórðarson á Núpsskjóna. Húnaver og Bólstaðarhlíð í baksýn.
Ólafur Bernódusson 507

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd biður séra Egill Hallgrímsson fyrir Arnari og áhöfn þess og blessar skipið. Fréttamaður útvarps tekur upp en Guðjón Ebbi Sigtryggsson hlustar á og sama geri Steindór Haraldsson (með skegg) til hægri. Aðrir eru óþekktir.

Óþekktur ljósmyndari260
Gott hal um borð í Arnari HU 1, fyrsta skuttogaranum með það nafn. Á pokanum standa þeir Níels Grímsson og Gestur Arnarson. Við hlið pokann til hægri stendur Guðmundur E. Guðmundsson.

Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn010
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Sigfús Sævar Sigurðsson vinnur á lyftara.
Ólafur Bernódusson 523
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd eru leiknir ræningjarnir Jesper, Kasper og Jónatan úr Kardimommubænum. Þeir sem leika eru frá vinstri: Jón Ingvar Valdimarsson, Rúnar Jóhannsson og Ingólfur Bjarnason.
Ólafur Bernódusson483
Þröstur Árnason veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla
1

57
58
59

167
Leita í myndasafninu
Leita