Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn004
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd er vinnsla í fullum gangi. Frá vinstri á myndinni: Hans Birgir Högnason, óþekkt, Aðalheiður Harðardóttir (Dússý), Erla Theódórsdóttir og Ottó Ákason (d. 17.9.2005).
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn019
Frystihús Hólaness hf á Hólanesi - nú listamiðstöðin Nes. Mennirnir eru óþekktir en líklega er maðurinn til hægri með hattinn Jón Áskelsson (d. 1989) framkvæmdastjóri Hólaness hf. Myndin var tekin af bryggjustúf sem var vestan við frystihúsið. Húsin sem sjást í baksýn á milli húsa frystihússins eru Bogabraut 9 (Þorfinnshúsið) til vinstri og Holt til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið fyrri 1957 því annars mundi Höfðaskóli líka sjást á milli húsanna.
Guðmundur Guðnason096
Þetta prúðbúna fólk er á áramótadansleik með viðeigandi höfuðföt. Frá vinstri: Þórey Ólafsdóttir frá Árbakka, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu og hjónin Fjóla Sigurðardóttir (d. 15.7.1988) og Jón Kr. Jónsson frá Laufási.
Ólafur Bernódusson533
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Ófært var út á Skaga fyrir mjólkurbílinn og tóku bændur þá það til ráðs að þeir komu á dráttarvélum sínum með mjólkina í brúsum og tunnum til móts við mjólkurbílinn, sem komst hálfa leið út að Háagerði. Þar var mjólkinni dælt í mjólkurbílinn úr ílátum bændanna. Á þessari mynd er Sigfús Guðmundsson mjólkurbílstjóri að dæla upp úr brúsum frá Árna Sveinbjörnssyni frá Króksseli. Í baksýn eru að spjalla Baldvin Sveinsson frá Tjörn, Vilhjálmur Skaftason Skagaströnd, óþekktur og Jens Jónsson frá Brandaskarði.
Kvenfélagið Eining - safn061
Kvenfélagið Eining stóð fyrir samkomu í Fellsborg í janúar 1986 sennilega í samvinnu við kvenfélagið Vöku á Blönduósi. Á þessari mynd er fjöldasöngur í gangi. Á myndinni eru frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.10.2018), Gréta Arelíusdóttir, Sigrún Lárusdóttir með gítarinn, Jökulrós Grímsdóttir, Alda Friðgeirsdóttir, Þórunn Þorláksdóttir og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003).
Óþekktur ljósmyndari249
Kjötþvottur í sláturhúsi Kaupfélags Skagstrendinga KAST einhverntíma upp úr 1960. Konurnar á myndinni eru Guðrún Angantýsdóttir til vinstri og Ólína Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994) til hægri. Sláturhúsið var þar sem seinna var fiskmóttaka í frystihúsi Hólaness hf við Einbúastíg.
Séra Pétur og Dómhildur - safn104
Þessi mynd var sennilega tekin fyrir utan Hofskirkju eftir fermingu. Ekki er vitað hvenær en það mun hafa verið í kringum 1948. Aftan á myndinni stendur: <em>Einar Guðmundsson Saurum, Helgi Ólafur Pálsson Bakka, Sigurður Björn Arason Örlygsstöðum, sr. Pétur Ingjaldsson Höskuldsstöðum, Guðfinna Pálsdóttir Hofi, Sveinn Sveinsson Tjörn, Árni Hólm Víkum, Stefán Hólm Skeggjastöðum, Hallmann Lárusson Kálfshamarsvík.</em>
Guðmundur Guðnason104
Guðrún Angantýsdóttir hellir á könnuna heima í eldhúsinu sínu að Hólabraut 3.
Dagný Sigmarsdóttir004
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru þau Jóna Guðjónsdóttir og Grétar Haraldsson verkstjóri við vinnu sína í pökkunardeildinni.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn003
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd er kaffitími. Frá vinstri: Davíð Reynisson, Sigfús Sævar Sigurðsson, óþekkt, Gunnar Albertsson og baksvipurinn á Ottó Ákasyni (d. 17.9.2005).
Óþekktur ljósmyndari247
"Axel með kerfið" var hann kallaður íþróttakennarinn sem ferðaðist um landið og hélt íþróttanámskeið. Námskeiðin byggðust á heraga þar sem nemendur voru látnir gera fimleikaæfingar o.fl. undir stjórn Axels. Myndin var tekin af hópi krakka á námskeiði fyrir utan gömlu Tunnuna en þar var námskeiðið haldið einhverntíma á árunum 1962-1963 . Lengst til vinstri er Reynir Sigurðsson frá Þórsmörk. Fyrir miðri mynd er Bergur J. Þórðarson úr Skjaldbreið í röndóttri peysu og hvítum stuttbuxum. Vinstra megin við hann er Finnur Kristinsson úr Héðinshöfða í köflóttri peysu og dökkum stuttbuxum. Lengst til hægri er Karl Lúðvíksson frá Steinholti og við hlið hans vinstra megin er Óskar Kristinsson úr Héðinshöfða.
Kvenfélagið Eining - safn095
Hér sjást kvenfélagskonur í Einingu við framleiðslu á ullar-neyðarfatnaði fyrir sjómenn. Fatnaðinn gáfu þær síðan um borð í skip sem gerð voru út frá Skagaströnd. Vinstra megin er Soffía Lárusdóttir(d. 31.3.2010) í köflóttri peysu og dökkhærða konan er Elísabet Árnadóttir (Bebbý), hinar eru óþekktar. Hægra megin eru frá vinstri: Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Rósa Pálsdóttir (d. 1.5.2002), Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002), Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987), Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), óþekkt og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003).
Hjördís Sigurðardóttir - safn023
Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987) á Karlsskála með tvö af ömmubörnunum sínum; Fritz Hendrik Berndsen til vinstri og Karl Berndsen (d.28.1.2020) til hægri. Myndin var sennilega tekin 1967-´68.
Ólafur Bernódusson530
Pungaprófsnemar, ásamt leiðbeinendum, á eldvarnarnámskeiði í febrúar 1995. Frá vinstri: Árni Björn Ingvarsson, Ingibjörg Kristinsdóttir (nær), Jón Gunnarsson, tveir óþekktir, Gylfi Guðjónsson, óþekktur, Jón Örn Stefánsson (krýpur), óþekktur, Svanur Árnason (krýpur), óþekkt, Gunnar Jónsson, óþekktur, Steinn Rögnvaldsson og óþekktur. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari190
Emma Pálína Jónsdóttir (d.29.2.1976) á Spákonufelli fyrsti formaður (forstöðumaður) kvenfélagsins Eining 1927. Emma var systir Páls skólastjóra á Breiðabliki og Péturs og Vilborgar á Stóra Bergi.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn024
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Magnús B. Jónsson, Jón Helgi Eiðsson og Birna Blöndal. Myndina tók Jónas Baldursson.
Ólafur Bernódusson508
Fjöldi kvenna tók þátt í kvennahlaupinu í júní 1993. Hér eru konurnar að leggja af stað. Fremstar fara Vigdís Ómarsdóttir með barnavagn en Dagný Sigmarsdóttir er við hlið hennar. Aftan við Þær eru mæðgurnar Hjálmfríður Guðjónsdóttir í grænum buxum og Halldóra Þorláksdóttir. Aðrar eru óþekktarn
Óþekktur ljósmyndari226
Minnismerki um drukknaða sjómenn afhjúpað fyrir utan Hólaneskirkju (eldri) 1972. Birgir Árnason (d. 2.2.2005) þáverandi formaður slysavarnadeildarinnar afhjúpaði minnismerkið og sést hann til hægri með hvítt klæði í höndum. Minnismerkið er enn á sínum stað og á hverjum sjómannadegi er lagður krans að því eftir messu í Hólaneskirkju. Maðurinn við horn kirkjuskipsins er Pálmi Sigurðsson (d. 21.4.1992) en framan við hann stendur Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003). Gunnar Sveinsson stendur aftast, bak við prestinn og Ómar Jakobsson stendur aftar og sést til vinstri við höfuð Birgis. Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d. 29.12.2013) stendur lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir. <br>
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn016
Þessir virðulegu menn eru Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri á Breiðabliki til vinstri og Jón Áskelsson (d. 1989) framkvæmdastjóri Hólanes hf, búandi í Hólanesi, til hægri. Aftan á þessa mynd hefur Páll skrifað eftirfarandi kveðju til Jóns: <em>"Jón ! Þakka samstarfið við skattstörfin o.fl.. Páll".</em> Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 513
Vorið 1993 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stálblóm eftir Robert Harling. Leikstjóri var Jónas Jónasson (d. 22.10.2011) sem var kunnur útvarpsmaður í áratugi. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Birna Blöndal, Guðný Sigurðardóttir, Lovísa Stefánsdóttir, Jensína Lýðsdóttir og Sigrún Jónsdóttir. Myndin var tekin á æfingu.
Guðmundur Guðnason126
<p>Óþekktur prestur með barnahóp í kirkjudyrum. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Ólafur Bernódusson503
Lögreglan skoðar reiðhjól og útbúnað eigenda þeirra á hjóladegi Höfðaskóla í maí 1994. Næst okkur á myndinni bíður Anna María Magnúsdóttir eftir að röðin komi að henni. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason076
Þessir tveir óþekktu hlauparar leggja sig alla fram og áhorfendur fylgjast spenntir með. Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin. Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari303
<p>Á þessari mynd eru verkamenn við grjótnám í Höfðanum vegna hafnargerðar á Skagaströnd 1934. Milli 40 og 60 verkamenn unnu við hafnargerðina þetta sumar. Grjótið var sprengt úr Höfðanum og komið upp á vörubíl, oftast með handafli, og síðan flutt í uppfyllingu frá landi og út í Spákonufellsey, sem einnig var brotin niður að hluta og notuð í uppfyllinguna. Strax sumarið 1935 var svo söltuð síld á tréplani í höfninni, sem gjörbreytti allri aðstöðu fyrir báta og fiskmóttöku. Húsin í baksýn voru Melstaður (nær) og Laufás lengst til vinstri.</p>
Hjördís Sigurðardóttir - safn036
Þessir menn sem eru að spjalla fyrir framan Fellborg einhverntíma á árunum 1984 - 1986 eru frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson rafvirki og framkvæmdastjóri síldaverksmiðjunnar á Skagaströnd, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti Höfðahrepps og stjórnarformaður í Mánavör hf, Sigfús Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd og Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Mánavarar hf.
Hjördís Sigurðardóttir - safn035
Þessi mynd er af fjölskyldunni í Þórsmörk. Fyrir miðju eru foreldrarnir, hjónin Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) og Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981). Börn þeirra eru frá vinstri: Reynir Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir, Aðalbjörg Sigurðardóttir (d.10.12.2015), Hjördís Sigurðardóttir og Árni Ólafur Sigurðsson. Myndin var tekin á hlaðinu á Broddadalsá þegar Jón Sigurðsson (d.?), sem var einn af systkinunum, var jarðaður.
Skagaströnd - safn054
1979 Stóð FRÍ fyrir landshlaupi. Hlaupið var hringinn kringum landið en hlauparar komu frá ungmennafélögunum hverju á sínum stað. Þetta er mynd af hópnum frá umf. Fram á hlaupum. Frá vinstri: óþekktur, Kristjana Jónsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Kristinn Guðmundsson, óþekkt, Magnús Ólafsson, Soffía Guðmundsdóttir, óþekktur og Jón Pálsson
Skagaströnd - safn060
Menn á vegum Guðmundar Lárussonar vinna við að steypa þekju á viðlegukant - Ásgarð - í Skagastrandarhöfn árið 1981.
Guðmundur Guðnason120
Á þessari mynd er Hallbjörn Björnsson (Halli Boss) að taka þátt í tunnuboðhlaupi á sjómannadegi 1970 á planinu við Hafnarhúsið. Hallbjörn verður að borða egg áður en hann heldur áfram.
Óþekktur ljósmyndari195
Steinbryggjan við Hólsnefið. Þessa bryggju byggðu sjómenn í sjálfboðavinnu gegn fjárframlagi frá Verslunarfélagi Vindhælinga árið 1922. Á þessari mynd er aðgerð í gangi á fiski úr fjórum bátum sem sjást á myndinni. Báturinn, sem er nær bryggjunni fyrir miðri mynd, hét Langlíf og var í eigu Axels Helgasonar frá Læk.
Ólafur Bernódusson487
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu ásamt mökum til grillveislu framan við hótel Dagsbrún í júní 1992. Grillveislan var vel sótt enda var starfsfólk Hólaness margt á þessum árum. Á þessari mynd eru í efri röð frá vinstri: Anna Kristjánsdóttir, Guðný Sigurðardóttir, Kristinn Guðmundsson, Vilborg Magnúsdóttir, Bára Kristinsdóttir, Jón Hilmar Indriðason og Maríanna Ástmarsdóttir. Í fremri röðinni frá vinstri: Soffía Lárusdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Guðný Finnsdóttir og Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir,
Ólafur Bernódusson 519
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd spila saman hjónin Rosemary Hewlett og Julian Hewlett.
Óþekktur ljósmyndari208
<p>Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979) frá Háagerði í heyskap á túninu við Háagerði. Á myndinni er Kristján að ýta saman heyi með tveimur hestum eftir að hafa rakað heyinu saman í garða. Spýta var bundin aftan í hestana og síðan var staðið á spýtunni til að halda henni niðri. Hestarnir drógu svo spýtuna þar til næg hrúga af heyi var komin framan við hana. Þá var spýtunni lyft yfir hrúguna og haldið áfram framan við hana. Síðan var heyinu úr hrúgunum hlaðið upp í sæti/sátur eins og sést fyrir aftan Kristján. Seinna var svo heyinu ekið heim í hlöðu eða sett í fúlgu heim við fjárhús eða fjós. Hlutverk hesta í sveitum landsins hefur breytst mikið frá þessum tíma úr því að vera þarfasti þjónninn og helsta vinnutæki bænda yfir í það að vera fyrst og fremst skemmtigripur og skrautfjöður eiganda síns. </p><p><br></p>
Kvenfélagið Eining - safn085
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er kynnir sýningarinnar Gunnar Svanlaugsson. Viggó Magnússon til vinstri og Ægir Jónsson til hægri virðast skemmta sér vel.
Óþekktur ljósmyndari187
Nýbyggingarráð kom í heimsókn til Skagastrandar í lok apríl 1945. Ráðinu var haldin veisla og þessar konur gengu um beina í veislunni. Frá vinstri: systurnar: Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987), Magdalena Helgadóttir (d. ?), Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986) og Jóninna Pálsdóttir. Drengurinn á myndinni er Adolf J. Berndsen <font size="1">(Heimild: Byggðin undir Borginni (1989) bls 186).</font>
Guðmundur Guðnason172
<p>Jóhanna Bertelsdóttir</p>
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn007
Starfsstúlkur í frystihúsi Hólanes hf meðan það var með vinnslu sína á Hólanesi. Frá vinstri: Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000), Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), Jóhanna Jónasdóttir, Ingunn Valdís Júlíusdóttir (d. 22.4.1998), Guðrún Angantýsdóttir, Rósa Pétursdóttir (d. 10.10.1998), Oddný Jóhannsdóttir, Elín Jónsdóttir og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson542
Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á þessari mynd afhendir Ingibergur Guðmundsson, þá aðstoðarskólastjóri, einhver verðlaun. Frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson, Svanur Árnason og Reynir Lýðsson.
Óþekktur ljósmyndari225
Þessi mynd sýnir síldarsöltun á planinu í Skagastrandarhöfn 1935. Þetta er merkileg mynd að því leiti að þetta var fyrsta sumarið sem síld var söltuð þarna enda var bryggjan sem planið er á byggð sumarið áður 1934. Með því að telja fólkið á myndinni er auðvelt að ímynda sér hve mikil áhrif síldarvinnan hafði í samfélginu þar sem áður hefði ekki verið um mikla vinnu að ræða.
Ólafur Bernódusson487
Linda Rós Rúnarsdóttir veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla
Guðmundur Guðnason086
<p>Mynd frá vígslu Höfðaskóla haustið 1958. Presturinn á myndinni er séra Pétur Þ. Ingjaldsson ( d.1.6.1996) og maðurinn við hlið hans er Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974) frá Reykholti. Sigurjón Jóhannsson (d. 20.11.1974) kennari frá Baldursheimi er númer tvö frá vinstri. Aðrir eru óþekktir. </p>
Óþekktur ljósmyndari293
Börn við framkvæmdir í fjörunni fyrir neðan Læk. Lækur er húsið til vinstri en lengra frá sér í Efri Læk. Börnin eru óþekkt.
Hjördís Sigurðardóttir - safn029
<p>Fermingarbörn vorið 1975 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) í Hólaneskirkju eldri. Aftari röð frá vinstri: Páll Jónsson, Jósef Sigurðsson, Egill Bjarki Gunnarsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Hafþór Smári Gylfason. Fremri röð frá vinstri: Ásdís Þórbjarnardóttir, Lilja Kristinsdóttir, Guðrún Björg Berndsen, Þórey Jónsdóttir, Þórdís Guðmundsdóttir og Hjálmfríður Bjarnadóttir.
Óþekktur ljósmyndari238
Guðni Sveinsson (d.15.11.1971) frá Ægissíðu tekur þátt í Norrænu skíðagöngukeppninni 1964. Keppnin fór fram um öll Norðurlöndin og átti fólk að ganga á skíðum ákveðna útmælda vegalengd eins oft og það kaus. Haldin var skrá yfir hverjir gengu og hve oft. Síðan var vegalengdin lögð saman þ.e. hvað fólk hverrar þjóðar gekk langt samtals og síðan var fundið út hvaða land hafði sigrað miðað við höfðatölu. Þátttakendur fengu síðan afhent barmmerki gull, silfur og brons að uppfylltum ákveðnum fjölda ferða. Guðni tók þátt í keppninni fram á gamals aldur og hafði gaman af.
Ólafur Bernódusson504
Í tengslum við Reiðhjóladag í Höfðaskóla í maí 1994 gaf Rauða kross deildin á Skagaströnd öllum yngstu börnum skólans nýja reiðhjólahjálma. Hér er hópurinn fyrir sunnan skólann með nýju hjálmana. Svo er bara að þekkja sjálfan sig á myndinni....
Séra Pétur og Dómhildur - safn108
Myndin var tekin eftir að séra Pétur Þ. Ingjaldsson hafði tekið fyrstu skóflustnguna að byggingu nýrrar Hólaneskirkju árið 1979. Á myndinni eru frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Bjarney Valdimarsdóttir, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Lárus Ægir Guðmundsson, Stefán Ægir Lárusson, Hulda Magnúsdóttir, Elín Njálsdóttir, Pálína Harðardóttir, Þorsteinn Jónsson, óþekkt, Georg Hjartarson (d. 13.9.2001), Ægir Jónsson, Guðrún Sigurðardóttir, Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Guðrún Guðbjörnsdóttir, séra Pétur (d. 1.6.1996), Aðalbjörg Hafsteinsdóttir (d.10.3.2022), Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) og Gunnlaugur Sigmarsson.
Óþekktur ljósmyndari191
Árni Árnason (d.1941) frá Höfðahólum
Ólafur Bernódusson488
Sumarið 1993 var haldinn sölumarkaður í Kántrýbæ. Myndin er frá markaðnum. Aftast horfir Sigrún Guðmundsdóttir á ljósmyndarann og við hlið hennar er tengdadóttir hennar Elva Þórisdóttir. Lovís Vattnes er fremst fyrir miðri mynd en konan í dökka jakkanum til hægri er Karitas Pálsdóttir en aftan við hana er Steinþór Karlsson.
Guðmundur Guðnason134
<p>Aftan á þessa mynd hefur verið skrifað:" <em>Í Spákonufellsrétt. Réttarstjóri Jón Sölvason í Réttarholti sést á miðri myndinni". </em>Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Jón Sölvason dó 17.8.1969 þannig að augljóslega var myndin tekin fyrir þann tíma. Aðrir á myndinni eru óþekktir.</p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn017
Allra meina bót eftir bræðurna Jónas og Jón Múla Árnasyni var sýnt í Fellsborg á vegum Leikklúbbs Skagastrandar leikárið 1976 - 1977. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Elín Njálsdóttir og Hjörtur Guðbjartsson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn041
Myndin var tekin 1978 af Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddvita Höfðahrepps. Í baksýn er dýpkunarskipið Grettir að dýpka höfnina með því að moka sandi og móhellu úr botninum í prammann sem liggur við hlið Grettis. Báturinn lengst til hægri dró síðan prammann fullan fram fyrir Höfðann þar sem botn hans var opnaður og sandinum hleypt úr.
Skagaströnd - safn092
Þessi mynd var tekin af þeim Sigurjóni Ingólfssyni og Hallbjörgu Jónsdóttur með son sinn Jón Ólaf Sigurjónsson í júní 1982. Tilefni myndatökunnar var að þá var þeim afhent fyrsta íbúðin í Verkamannabústöðum við Suðurveg.
Óþekktur ljósmyndari323
Myndin var tekin af tveimur starfsstúlkum saumastofunnar Víóla. Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008) til vinstri og Ragnheiður Sigurjánsdóttir til hægri. Víóla var með starfsemi sína á efstu hæðinni í Gamla Kaupfélaginu á árunum eftir 1970.
Ólafur Bernódusson485
Börkur Árnason veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla
Guðmundur Guðnason162
Aftan á þessari mynd stendur: <em>"Kjartan við birkirunna á Stóra - Núpi".</em> Ef þú veist hver þessi Kjartan er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson520
Í maí 1994 voru að venju haldinn útivistardagur í Höfðaskóla. Eitt af verkefnunum sem í boði voru fyrir nemendurna í unglingadeildunum var að prófa bjargsig út á Höfða undir leiðsögn og stjórn Carl Lehman Jakobsen íþróttakennara. Á þessari mynd eru nemendurnir sem tóku áskoruninni og prófuðu að síga niður 20 - 30 metar þverhnípi. Sitjandi frá vinstri: Gunnar Guðmundsson, Hildur Inga Rúnarsdóttir, óþekktur, Árný Guðrún Ólafsdóttir, þrír óþekktir, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Ólína Laufey Sveinsdóttir. Strákurinn í gráa jakkanum er Hjörtur Guðmundsson en aðrir eru óþekktir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn015
Allra meina bót eftir bræðurna Jónas og Jón Múla Árnasyni var sýnt í Fellsborg á vegum Leikklúbbs Skagastrandar leikárið 1976 - 1977. Á myndinni er Elín Njálsdóttir í hléi á sýningu en hún lék hjúkrunarfræðing í verkinu.
Óþekktur ljósmyndari199
Sigurjón Jóhannsson (d. 20.11.1967) Baldursheimi. Sigurjón var farkennari á Skagaströnd í mörg ár áður en fastur skóli var stofnaður þar 1939.
Ólafur Bernódusson518
Í maí 1994 voru að venju haldinn útivistardagur í Höfðaskóla. Eitt af verkefnunum sem í boði voru fyrir nemendurna í unglingadeildunum var að prófa bjargsig út á Höfða undir leiðsögn og stjórn Carl Lehman Jakobsen íþróttakennara. Á þessari mynd sígur Jón Ólafur Sigurjónsson niður 20 - 30 metra. Calle fylgist með og segir til á brúninni.
Hjördís Sigurðardóttir - safn001
Á þessari mynd eru systkinin frá Karlsskála ásamt mökum sínum. Aftari röð frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), Karl Þ. Berndsen (d. 12.2.1995). Fremri röð frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir kona Adolfs, Helga Berndsen kona Gunnlaugs og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir kona Karls. Líklega hefur myndin verið tekin kringum 1990.
1
…
58
59
60
…
167
Leita í myndasafninu
Leita