Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
fram009
Magnús Ólafsson formaður USAH tekur í höndina á Ingibergi Guðmundssyni (til hægri). Þingfulltrúinn Ingibjörg Kristinsdóttir situr til hægri.
Jón046
Kappróður á sjómannadegi 1985
fram053
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Baksund kvenna. Guðrún Pálsdóttir er nær okkur á myndinni.
fram117
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. 100m hlaup stelpna. Guðbjörg Gylfadóttir umf. Fram í miðjunni.
guðmundur224
Á myndinni eru systurnar Pálfríður Björg Bjarnadóttir til vinstri og Ólína Jóna Bjarnadóttir til hægri. Þær áttu heima í Bjarnarhöfn (Bankastræti 8) á Skagaströnd.
guðmundur198

Núpur í Laxárdal Frá vinstri til hægri: Elísabet Hafliðadóttir, Þorvaldur Jónsson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Jón Guðmundsson bóndi á Núpi og Jökull Sigtryggsson. Myndin var tekin sumarið 1940.

fram064
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Hvöt vann mótið og hér tekur Þórður Daði Njálsson við bikarnum úr höndum Ingibergs Guðmundssonar, að auk var hann stigahæstur karla á mótinu.
Jón104
Jólapósturinn borinn út 1989. Félagar í Skíðadeild Fram báru út jólapóst fyrir jólasveinana í mörg ár. Síðan tók skólafélagið Rán við keflinu. Ávallt fengu jólasveinarnir mikla hjálp frá yngri kynslóðinni við útburðinn.
Jón003
Gestir á planinu framan við síldarverksmiðjuna fylgjast með leikjum á sjómannadegi 1983
Jón001
Gestir á planinu framan við síldarverksmiðjuna á sjómannadegi 1983.
fram093

Verðlaunahafarnir eru frá vinstri: Garðar Geirfinsson, óþekktur, Sofanías Lárusson, óþekktur, Arnór Snorri Gíslason, Magnús Filip Sævarsson, Andri Ómarsson, Sigurgeir Árnason, Kritsján Pétur Guðjónsson, óþekktur og Sunna Gylfadóttir.

fram077

Myndin er tekin á héraðsmóti á Bakkakotsvelli 1999. Frá vinstri: Sigurbjörg Dís (Bogga Dís) Konráðsdóttir umf. Fram , Sigurbjörg Ólafsdóttir umf. Hvöt og Erla Rut Valsdóttir umf. Geisla.

fram041
17. júni mót Fram á vellinum við Fellsborg 1983. Skúli Tómas Hjartarson stekkur lang- eða þrístökk Karl Lúðvíksson bíður tilbúinn með málbandið.
img124
Eftir að Ísland var hernumið 1940 voru reistar svona byggingar víða um land sem hýbýli fyrir hermennina. Eftir að herinn fór nýtti fátækt fólk sér gjarnan braggana sem heimili þrátt fyrir að þeir þættu afar slæmir til íbúðar, kaldir og saggafullir. Á sumum þeirra voru gerðar nokkrar endurbætur eins og t.d. á bragganum á þessari mynd þar sem búið er að byggja á hann kvist með tveimur gluggum. Fólkið á þessari mynd er óþekkt og einnig staðsetning bragganna.
hem043
Lending í vörinni sem var neðan við þar sem sundlaugin er nú. Unnið því að skipta afla dagsins. Sá sem stendur í bátnum er Jón Bjarnasson Brúarlandi, maðurinn með skeggið fyrir stafni bátsins er Guðmundur á Flankastöðum, sá sem stendur við fiskinn með hendur í vösum er Carl Berndsen. Myndin sennilega tekin á árunum 1908 - 1910. Ekki er vitað hvaða hlutverki húsið utan í Einbúanum gegndi en lengra frá má sjá í þök á tveimur húsum. Húsið með skorsteininum var hús verslunarstjóra Höphnersverslunar en hitt húsið var fjós og hesthús. Ekki er vitað hvað torfhúsið lengst til vinstri var.
Jón099
Frá vinstri: Guðni Már Lýðsson, Lýður Ragnar Arason og Ásdís Lýðsdóttir í snjó á Bogabraut.
Mundi290
Klemensína Klemensdóttir (d. 12.6.1966) í Ægissíðu, móðir Guðmundar ljósmyndara þessarar myndar.
Jón102
Myndin er af barnabörnum Jóns Jónssonar (d.9.7.1991) og Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) í dyrunum heima hjá þeim hjónum í Asparlundi. Stúlkan er María Jóna Gunnarsdóttir en drengurinn er óþekktur.
Jón049
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Skemmtikrafturinn Jonny King er fyrir miðri mynd með ljósan hatt og í ljósum jakka.
fram022
Við skráningar- og tímatökuborðið í víðavangshlaupi Landsbankans. Þorbjörg Magnúsdóttir skrifar, Flemming Jessen með skeiðklukkuna, Sigfús Jónsson skoðar pappíra og Kjartan Birgisson starfsmaður bankans fylgist með. Myndin tekin ca 1985.
Óþekkt036
Útimarkaður við Kántrýbæ. Sér í bakið á Sigurlaugu Jónsdóttur frá Ási. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir seldi kökur og fleira.
Jón009
Gospelmessa á Hnappstaðatúni á einhverri af fyrstu Kántrýhátíðunum
Óþekkt031
Á útmarkaði við Kántrýbæ. Fremst á myndinni eru mæðgurnar Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir og Linda Kristjánsdóttir að kynna sér hvað er í boði. Aðrir eru óþekktir.
fram030
Langhlaupararnir (frá vinstri): Víðir Ólafsson, Daníel Smári Guðmundsson og Hilmar Pétur Valgarðsson árið 1990.
Jón111
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Helga Kristmundsdóttir og Hólmfríður Oddsdóttir (til vinstri) sýna föt.
Mundi237
Þessi mynd er líklega tekin inni í stofu í Ægissíðu. Frá vinstri: Guðni Sveinsson (d.15.11.1971), Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011), Ingvi Guðnason (d.31.12.1991). Konurnar eru óþekktar en eru sennilega Soffía Sigurðardóttir (d.11.9.1968), kona Ingva, og Klemensína Klemensdóttir (d.12.6.1966) kona Guðna og móðir Guðmundar og Ingva.
fram033
Íþróttakonurnar sem hér eru með verðlaun um hálsinn eru frá vinstri: Sunna Gestsdóttir, Soffía Pétursdóttir og Guðbjörg Gylfadóttir.
fram086

Maðurinn í úlpunni er Kristinn Guðmundsson. Drengirnir á verðlaunapallinum eru, frá vinstri: Sigurður Haukur Heimisson, Jóhannes Grétarsson og Árni Max Haraldsson.

guðmundur235
Skemmtun í gömlu Tunnunni, líklega skólaskemmtun. Skemmtikraftarnir sem eru að hneigja sig á sviðinu eru óþekktir. Drengurinn sem horfir í átt að myndavélinni er Árni Björn Birgisson. Aðrir eru óþekktir
fram046
Frjálsar iþróttir, innanhús, Íslandsmeistaramót í febrúar 1977. Verðlaun fyrir hástökk meyja, frá vinstri: Guðrún Berndsen USAH, Þórdís Gísladóttir ÍR og óþekkt stúlka.
fram008
USAH þing í Húnaveri. Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum, formaður sambandsins, í ræðustóli. Maðurinn til vinstri er Eggert levy skólastjóri á Húnavöllum.
Jón035
Sjómannadagur 1983. Einhver skemmtiatriði í gangi. Fremstur á myndinni er Guðmundur Haukur Sigurðsson í stuttbuxum úr breska fánanum.
Jón033
Hér grillir í Stefán Jósefsson skipstjóra og útgerðarmann í stýrishúsinu á bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54. Drengurinn sem horfir í átt að myndavélinni er Ársæll Ottósson frá Réttarholti. Maðurinn í lopapeysunni er Sigurbjörn Björgvinsson og til hægri við hann er Þórarinn B. Ingvarsson.
fram081

Verðlaunaafhending á héraðsmóti á Bakkakotsvelli 1999. Frá vinstri: Garðar Geirfinnsson, Ingvar Björnsson og óþekktur.

fram018
Lárus Ægir Guðmundsson með verðlaunabikar
fram095

Þátttakendur í einum flokki í víðavangshlaupi umf. Fram. Á myndinni eru, frá vinstri: Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, óþekktur, óþekktur, Þorlákur Guðjónsson, Steinþór Karlsson og Jónas Þorvaldsson. Myndin var tekin snemma á níunda áratugnum

Jón070
Páll Pétursson (d.23.11.2020) alþingismaður flytur ræðu við vígslu dráttarbrautarinnar 1985
Jón083
Hér er Hallgrímur Oddsson kynnir á litlu jólum í Höfðaskóla 1984. Hann er í fínu peysunni sem hann sjálfur saumaði í handavinnu. Þór Arason og Karl Lúðvíksson kennarar sjást til vinstri.
Jón080
Grímuball í Höfðaskóla 1984. Barnið á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón047
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Eitt af skemmtiatriðunum var að snara kálfa. Hér er Vilhjálmur Skaftason að undirbúa atriðið með því að teyma kálf út úr gerðinu sem þeir voru geymdir í.
Jón078
Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) er fremstur á myndinni sem var tekin við vígslu dráttarbrautarinnar 1985.
guðmundur191
Hólmsteinn Snædal Rósbergsson, bróðursonur Guðmundar ljósmyndara myndarinnar
Óþekkt076
Á myndinni er verið að ná á flot aftur pramma sem sökkt var á sínum tíma við Skúffugarðinn til vesturs. Pramminn þjónaði ekki tilgangi sínum nógu vel og var hann því fjarlægður og fluttur inn á Blönduós þar sem hann fékk svipað hlutverk og hér. Í stað prammans var settur grjótgarður til að mynda skjól við Skúffugarðinn. Dökkhærði maðurinn á myndinni er Þorvaldur Skaftason en hinn er óþekktur.
Mundi277
Rósberg G. Snædal (d.9.1.1983) myndin er tekin í Ægissíðu sumarið 1960.
fram102

Tilefni myndarinnar er ekki þekkt en hún var tekin í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Á myndinni eru standandi frá vinstri: Brynja Hödd Ágústsdóttir, Sunna Gylfadóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Katrín Guðmundsdóttir, Arís Eva Vilhelmsdóttir og Ástrós Villa Vilhelmsdóttir. Drengurinn er Ómar Ísak Hjartarson

Mundi243
Á 30 ára afmæli ungmennafélagsins Fram, veisla í Tunnunni. Þarna er vangasvipur Jökuls Sigtryggssonar lengst til hægri þá Axel Helgason (d.16.7.1971) og Jóhanna Lárusdóttir (d.12.12.1980) kona hans frá Læk. Aðrir í myndinni eru óþekktir
fram054
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Karl Lúðvíksson í baksundi.
Jón012
Gospelmessa á Hnappstaðatúni á einhverri af fyrstu Kántrýhátíðunum.
Óþekkt075
Á myndinni er verið að ná á flot aftur pramma sem sökkt var á sínum tíma við Skúffugarðinn til vesturs. Pramminn þjónaði ekki tilgangi sínum nógu vel og var hann því fjarlægður og fluttur inn á Blönduós þar sem hann fékk svipað hlutverk og hér. Í stað prammans var settur grjótgarður til að mynda skjól við Skúffugarðinn. Mennirnir á myndinni eru Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson fyrrverandi sveitarstjórti til hægri
Jón109
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Jóhanna Sveinsdóttir og Skúli Tómas Hjartarson sýna nýjustu unglingatískuna.
Jón095
Skólaskemmtun í Höfðaskóla 1984. Þorbjörg Eðvarðsdóttir syngur við undirleik hljómsveitar. Ingvar Þór Jónsson spilar á trommur og Viggó Magnússon á gítar. Auk þeirra var Sigurbjörn Þorvaldsson (d.13.8.2000) í hljómsveitinni.
guðmundur183
Maðurinn lengst til hægri er Guðmundur Guðnason. Konan og stúlkan eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
fram124
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Guðbjörg Gylfadóttir umf. Fram keppir í spjótkasti.
fram055
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Takið ykkur stöðu! Jóhannes Fossdal og Karl Lúðvíksson eru tilbúnir að stinga sér. Milli þeirra standa Gestur Arnarson og Magnús Blöndal.
fram012

Pálmi Gíslason frá Grænuhlíð formaður UMFÍ hengir heiðursmerki Ungmennasambandsins á séra Pétur Þ. Ingjaldsson

Mundi283
Helga Berndsen, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) og óþekkt leikkona leika hlutverk sín í óþekktri leiksýningu í Tunnunni.
guðmundur194
Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari með lamb í fanginu. Myndin er tekin á túninu heima við Ægissíðu en í baksýn sér í Laufás.
Mundi257

Systurnar Pálfríður Bjarnadóttir til vinstri og Ólína Jóna Bjarnadóttir til hægri frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8) í jólakjólunum sínum. Myndin var tekin 1956 - 1958.

Óþekkt088
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson les úr Biblíunni í Hólaneskirkju (gömlu) á jólum.
fram037
17. júní mót Fram á vellinum við Fellsborg 1983. Ingibergur Guðmundsson og Guðbjörg Gylfadóttir halda í málbandið. Aftan við Guðbjörgu spjalla Birna Sveinsdóttir (til hægri) og Áslaug Gunnarsdóttir saman. Aðrir eru óþekktir.
1

5
6
7

167
Leita í myndasafninu
Leita