Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari235
Þessi mynd var tekin 1941 af hjónunum frá Brúarlandi með börnum sínum. Hjónin, Jón Bjarnason (d.?) og Ólína Sigurðardóttir (d.mars 1955) ljósmóðir, eru sitjandi. Lengst til vinstri er svo Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) kenndur við Höfðakot, maðurinn fyrir miðju aftast, með þverslaufu, er Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppsstjóri sem bjó í Norður Skála. Milli þeirra er Björn Bergmann Jónsson (d.12.1.1964). Næst lengst til hægri í öftustu röð er Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi og lengst til hægri er Þórarinn Jónsson (d.14.6.1963) bóndi á Fossi á Skaga. Konan lengst til hægri er Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður Skála og Laufey Jónsdóttir (d. 25.12.1969) frá Reykholti er í íslenskum búningi næst lengst til vinstri í fremri röðinni. Milli þeirra er Steinunn Jónsdóttir (d.?) og á endanum til vinstri er Sigrún Jónsdóttir (d.)
Óþekktur ljósmyndari256
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 - síðutogaranum - hafísvorið 1969. Verið er að láta trollið fara aftur eftir 20 - 30 tonna hal. Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008) er á gilsinum lengst til vinstri og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006) er við spili, Guðjón Jónsson er á forhleranum en í aðgerð eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Viggó Maríasson (d. 30.7.1973) og Óskar Kristinsson, sem snýr baki í myndavélina. Maðurinn milli Viggós og Óskars er óþekktur.
Kvenfélagið Eining - safn068
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Anna Jóna Geirsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari334
Þessi mynd var tekin af heiðurfélögum umf Fram á 30 ára afmæli félagsins 1956. Frá vinstri: hjónin Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) og Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) frá Höfðakoti, Sigurður Guðlaugsson (d. 19.7.1992 ) frá Hafursstöðum og Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987) frá Karlsskála. Ekki er víst að Sigurður hafi verið heiðurfélagi en hann var einn af stofnendum félagsins.
Hjördís Sigurðardóttir - safn026
Sjálfstæðismenn funda með alþingismanninum sínum. Frá vinstri: Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993), Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Eyjólfur Konráð Jónsson (d. 6.3.1997) alþingismaður sjálfstæðisflokksins í kjördæminu og Sveinn Ingólfsson.
Óþekktur ljósmyndari251
Þorvaldur Skaftason fimm ára gamall með Dísu frænku sinni úr Reykjavík fyrir neðan heimili sitt að Dagsbrún.
Óþekktur ljósmyndari183
Þessi mynd var tekin 1934 úti í Spákonufellsey. Karlarnir á myndinni eru að brjóta hana niður en grjótið var notað í uppfyllingu í höfninni ásamt grjóti úr Höfðanum. Eins og sjá má voru vinnubrögðin frumstæð, karlarnir með hamra og meitla við að brjóta grjótið og færanlegur gálgi til að lyfta grjótinu á einhvers konar vagn sem rann eftir teinunum sem sjást á myndinni.
Ólafur Bernódusson502
Eyþór Kári Egilsson hjólar hér í gegnum braut sem lögreglan setti upp á skólavellinum á hjóladegi í Höfðaskóla í maí 1994. Brautin gat verið snúin fyrir 7 - 8 ára gutta en enginn fékk að fara hana fyrr en að undangenginni hjólaskoðun lögreglunnar.
Guðmundur Guðnason154
Aftan á þessari mynd stendur: Ferð á Hnjúkshnjúk. Enghlíðingar og Vindhælingar. Annað er ekki vitað um myndina og fólkið er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson507
Sunna Gylfadóttir tók þátt í árlegu kvennahlaupi í júní 1993 þó hún væri ekki há í loftinu á þessum tíma. Hlaupið hófst á tjaldsvæðinu og endaði þar aftur eftir að konurnar höfðu farið ákveðinn hring um bæinn.
Skagaströnd - safn147
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Um kvöldið var kveiktur varðeldur og sungið saman. Á myndinni syngja fullum hálsi, frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir og Ólína Gyða Hafsteinsdóttir með Þorvaldi Skaftasyni sem spilar á gítarinn. Börnin í myndinni eru óþekkt.
Hjördís Sigurðardóttir - safn010
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á myndinni eru frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti Höfðahrepps, Magnús B. Jónsson hreppsnefndarmaður og Ólafur Bernódusson fréttaritari Morgunblaðsins.
Óþekktur ljósmyndari292
Verkamenn að hlaða grjóti á pallbíl. Glöggt má sjá vinnubrögðin sem viðhöfð voru við að koma grjóti frá Höfðanum niður í uppfyllingu við hafnargerðina á Skagaströnd. Myndin var tekin 1934 en þá stóð vinna við höfnina sem hæst.
Ólafur Bernódusson478
Særún Níelsdóttir veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla
Óþekktur ljósmyndari282
Þessir tveir menn áttu lengst af samleið gegnum lífið. Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) úr Höfðatúni til vinstri var sjómaður mestan hluta ævinnar en Björn Sigurðsson (d. 5. 10.1999) frá Jaðri til hægri var sjálflærður vélamaður, smiður og bátasmiður. Hér eru þeir félagar að dytta að bát í fjörunni neðan við skemmuna sem nú hýsir fiskmarkað, björgunarstöð og fleira. Myndina tók Árni Geir Ingvarsson árið 1986.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn002
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd skemmta þau sér vel í vinnunni Ottó Ákason (d. 17.9.2005) og Sigrún Benediktsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari286
Á sjávarútvegssýningu 1984. Þá sýningu sóttu nokkur fyrirtæki á Skagaströnd og kynntu starfsemi sína. Á myndinni eru þeir Sigfús Jónsson sveitarstjóri til vinstri og Adolf J. Berndsen oddviti til hægri á bás Hólaness hf og Vélaverkstæðis Karls Berndsen
Ólafur Bernódusson 528
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd er kvartett sem söng fyrir gesti. Við píanóið situr Julian Hewlett en söngvararnir eru frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Ástmar Kári Ástmarsson og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000).
Guðmundur Guðnason203
Guðrún Benjamínsdóttir (d.10.6.1999) frá Skálholti. Myndin var sennilega tekin um 1960.
Hjördís Sigurðardóttir - safn028
Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011) kvödd af kirkjukór Hólaneskirkju þegar hún flutti burt frá Skagaströnd. Við borðið eru frá vinstri: Sigrún Lárusdóttir, Helga Hermannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, óþekkt, Sigurður Bjarnason og Jakob Guðmundsson.
Óþekktur ljósmyndari209
Myndin er af Laufey Jónsdóttur (d. 25.12.1969) frá Reykholti með kúna sína hana Gránu.
Ólafur Bernódusson 492
Fjölmenni við opnun málverkasýningar Sigríðar Einarsdóttur - Sissíar - í Gamla kaupfélaginu í september 1992. Ljóshærða stúlkan vinstra megin við miðju er Jóney Gylfadóttir og fyrir aftan hana er Jón Valdimarsson á spjalli við Magnús B. Jónsson sem er í ljósum jakka. Hafdís Ásgeirsdóttir horfir á ljósmyndarann hægra megin við Magnús og hægra megin við hana er Aðalheiður Árnadóttir. Aftarlega fyrir miðri mynd sér í Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010). Aðrir eru óþekktir.
Þórður Jónsson030
Þessi mynd sýnir hátíðafund Lionsklúbbs Skagastrandar (eldri) í Skátaskálanum. Hér hafa félagarnir boðið mökum sínum eða vinkonum með sér á fund. Við háborðið sitja frá vinstri: Ole Aamundsen (d.?), Margrét Jóhannesdóttir, Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988), Helga Berndsen, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985), Guðríður Bergsdóttir (d. 10.6.1996), Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) og Þórður Jónsson (d. 25.12.2009). Standandi frá vinstri eru: Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Jón Pálsson, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Hörður Ragnarsson, Sveinn Ingólfsson, Helga Jóhannesdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008), Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992), Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005), Hulda Pálsdóttir, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Jóna Guðjónsdóttir, Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993), Edda Pálsdóttir, Páll Jónsson (d. 19.7.1979), Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) og Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið einhverntíma á árunum 1960 - 1965.
Dagný Sigmarsdóttir033
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru við hreinsi-færibandið frá vinstri: Sigrún Guðmundsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Ragna Gunnarsdóttir og Dagný Hannesdóttir. Konan í baksýn er óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari305
Hermannabyrgi sunnarlega á Höfðanum. Fyrst voru nokkrir breskir hermenn á Skagaströnd en síðan voru þeir leystir af af Amerískum hermönnum. Hlutverk hermannanna var að fylgjast með umferð skipa og flugvéla á og yfir Húnaflóa. Á þessari mynd er breski hermaðurinn Tom sem lætur fara vel um sig. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls. 180).
Óþekktur ljósmyndari353
Auðunn Bragi Sveinsson (d. 2.1.2013) kennari og skólastjóri, en hann ólst upp á Sneis og Refsstöðum í Laxárdal.
Guðmundur Guðnason074
J. Konráð S. Klemensson (d. 20.11.1986) Garðhúsum við réttastörf - sennilega í Hofsrétt. Lengst til vinstri er Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) frá Ásholti.
Dagný Sigmarsdóttir021
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd, sem tekin var 1991, er Kristín Sigurðardóttir að fá sér af kræsingum sem fram voru bornar í tilefni Litlu jóla fagnað starfsfólksins.
Hjördís Sigurðardóttir - safn030
Glaðlyndir bræður úr Þórsmörk taka lagið saman. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Reynir Sigurðsson og Árni Ólafur Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson473
Á myndinni, sem tekin var í kaffistofu Rækjuvinnslunnar 1990, er Sigurður Bjarnason að taka við viðurkenningu fyrir vörugæði , fyrir hönd starfsfólks Rækjuvinnslunnar, úr höndum Ingimundar Konráðssonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins sem flutti út vörur fyrirtækisins.
Halldór004
Myndin var líklega tekin í desember 1998. Á henni er fólk sem vann í Rækjuvinnslunni hf á Skagaströnd. Þau eru, frá vinstri: Guðrún Magnúsdóttir, Björn Hjálmarsson og Stefán Þór Árnason.
Ólafur Bernódusson498
Á þrettándanum (6. janúar) 1994 var spilað bingo í Sæborg í boði Íslandsbanka. Þessi mynd var tekin í kaffihléi. Við borðið nær okkur eru frá vinstri: Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Jóhanna Jónasdóttir og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994). Við borðið fjær eru talið frá vinstri: Auður Ágústsdóttir (d. 21.1.1997), óþekkt, Rósa Pálsdóttir (d. 1.5.2002), óþekkt, Laufey Sigurvinsdóttir (d. 21.12.1994), Guðrún Bjarnadóttir (d. ?), Jón Hall Magnússon (d. ?), Jónína Valdimarsdóttir og Lárus Björnsson (d. 28.4.1995).
Kvenfélagið Eining - safn049
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er séra Ægir Fr. Sigurgeirsson sóknarprestur á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn249
Undirbúningur kántrýhátíðar sumarið 2000. Tvö stór tjöld voru reist á Hnappstaðatúninu og hér er verið að undirbúa að reisa annað þeirra. Frá vinstri: Reynir Lýðsson, óþekktur maður frá þeim sem leigðu út tjaldið og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) verkstjóri sveitarfélagsins.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn003
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á sýningu í Fellsborg. Leikarar eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson (fjær), Elín Njálsdóttir og Hjörtur Guðbjartsson í faðmlögum á gólfinu, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Guðný Sigurðardóttir og Birna Blöndal.
Óþekktur ljósmyndari267
Kennarar og skólastjóri í Höfðaskóla veturinn 1960 - 1961. Aftari röð frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri, Kristinn Pálsson (d. 21.10.2008) og Sveinn Ingólfsson. Fremri röð frá vinstri: María Magnúsdóttir og Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007).
Ólafur Bernódusson476
Ástin sigrar er leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikritið var sýnt á vegum Leikklúbbs Skagastrandar árið 1990 undir leikstjórn Harðar Torfasonar. Þórdís Skúladóttir og Einar Haukur Arason, sem eru á þessari mynd, fóru bæði með hlutverk í sýningunni.
Hjördís Sigurðardóttir - safn019
Á myndinni eru samherjarnir og vinirnir Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) verkstjóri í Hólanesi og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti Höfðahrepps.
Kvenfélagið Eining - safn045
Þessi mynd var tekin í einhverju kaffisamsæti á vegum kvenfélagsins Eining í Fellsborg. Á myndinni eru, frá vinstri:Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003), Guðlaugur Guðlaugsson (d. 8.7.1990), Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989), Snorri Gíslason (d. 29.5.1994), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) í hvarfi við mann sinn, Svein Kristófersson (d. 9.5.1991).
Hjördís Sigurðardóttir - safn017
Á myndinni hafa þau það notalegt frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) maður hennar og Sveinn Ingólfsson. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 1984 - 1986.
Ólafur Bernódusson540
Veturinn 1995 héldu krakkarnir í 8. - 10. bekk Höfðaskóla körfuboltamaraþon. Þá voru íþróttir kenndar í Fellsborg því ekki var búið að byggja íþróttahúsið og því fór maraþonið fram þar. Með maraþoninu voru krakkarnir að safna fé til kaupa á ýmsum íþróttaáhöldum. Á þessari mynd grípa í spil á milli leikja þau Guðjón Hall Sigurbjörnsson til vinstri og Guðrún Elsa Helgadóttir til hægri.
Guðmundur Guðnason130

Maðurinn á myndinni er Rósberg G. Snædal með elsta son sinn, Hún Snædal, í fanginu. Myndin var sennilega tekin í Aðalstræti 16 á Akureyri 1944, þar sem fjölskyldan bjó.

Óþekktur ljósmyndari275

Jóhanna Hemmert kaupmannsfrú á Skagaströnd var fyrsta konan sem kosin var í hreppsnefnd Vindhælishrepps hins forna árið 1910. Um þennan merka atburð má finna eftirfarandi klausu í tímaritinu Norðurland 29. tölublaði (16. 7.1910) 10. árgangi úr grein sem ber fyrirsögnina "Bréf frá Skagaströnd":

"....... Nýmæli eru það, að konur séu kosnar í hreppsnefnd. Á hreppaskilum Vindhælinga nú í vor, var kona kosin í hreppsnefnd. Kona þessi er frú Jóhanna Hemmert á Skagaströnd. Einnig var hún kosin í fræðslunefnd. Það er sómi fyrir hreppsbúa að hafa riðið á vaðið með að kjósa konu í þessar nefndir og ættu sem flestir hreppar að gera hið sama. Einnig á frú J. Hemmert þakkir skilið fyrir að gefa kost á sér til þessara starfa. Vonandi að árlega fjölgi konum í hreppsnefndum víðsvegar um landið og eigi verði langt að bíða þess, að konur fái fult jafnrétti við karlmenn. Ritað í júní 1910. Skagstrendingur ".

Þess má geta í þessu sambandi að konur og vinnuhjú, 40 ára og eldri, á Íslandi fengu ekki almennan kosningarétt fyrr en árið 1915. Á árinu 1882 fengu ekkjur og aðrar ógiftar konur, sem stóðu fyrir búi eða áttu með sig sjálfar, kosningarétt til að kjósa til hrepps- og sýslunefnda, bæjarstjórna og á safnaðarfundum ef þær voru orðnar 25 ára gamlar. Þó þessar konur mættu kjósa máttu þær ekki bjóða sig fram nema að uppfylltum ströngum skilyrðum um eignir, aldur og sjálfstæði. Lögunum var svo breytt 1920 þannig að þá fengu konur og vinnuhjú full pólitísk réttindi við 25 ára aldur.

Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn010
Árni Ólafur Sigurðsson togaraskipstjóri frá Þórsmörk á hjólinu sínu ungur maður. Myndin var tekin kringum 1960.
Óþekktur ljósmyndari299
Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974) frá Reykholti
Ingibergur Guðmundsson102
Nanna Tómasdóttir (d. 25.7.2013) frá Blönduósi
Hjördís Sigurðardóttir - safn006
Frá vígslu söluskála Olís á Skagaströnd 1979. Mennirnir á myndinni komu allir að byggingu skálans sem smiðir eða bifreiðastjórar. Frá vinstri: Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003), Sigurjón Ástmarsson og Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011).
Hjördís Sigurðardóttir - safn012
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á þessari mynd eru frá vinstri: Róbert Þórðarson (d. 26.11. 2011) útibússtjóri á tali við Sveinbjörn Egilsson sem sá um yfirtökuna. Fyrir aftan þá til hægri er Kjartan Birgisson starfsmaður í útibúinu.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn009

Þessir afslöppuðu menn eru frá vinstri: Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppsstjóri í Norður Skála, Jón Áskelsson (d. 1989) framkvæmdastjóri Hólanesi og óþekktur maður til hægri. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Hjördís Sigurðardóttir - safn024
Í sumarblíðu hafa tyllt sér á tröppurnar við Karlsskála þau Carl Berndsen (d.1954) og Sigríður Ólafsdóttir (d.2008) með dóttur sína Sigríði Sigurðardóttur. Myndin var tekin í kringum 1960.
Dagný Sigmarsdóttir034
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru að koma á vakt eða fara af vakt, frá vinstri: Ragna Gunnarsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og Solla S. eins og segir aftan á myndinni.
Adolf H Bernsden - safn036
Starfsmenn Marska og Rækjuvinnslunnar í kaffipásu. Frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Hjördís Sigurðardóttir, Sylvía Hrólfsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson555
Vorið 1992 voru þessir þrír krakkar í fjöruferð í fjöruna fyrir neðan rækjuvinnsluna. Þar rákust þau á þennan smáhval - hnýðing - rekinn í fjörunni. Að sjálfsögðu létu þau vita af þessum merka fundi og fengu mynd af sér í Morgunblaðinu að launum. Krakkarnir eru frá vinstri: María Markovic, Eva Dögg Bergþórsdóttir og Sveinþór Ari Arason.
Óþekktur ljósmyndari341
Hér er unnið við grjótnám í Höfðanum. Grjótið var sprengt úr Höfðanum, síðan komið á bíl sem flutti það í uppfyllingu við hafnargerðina. Myndin var líklega tekin 1934 en þá var hafnargerðin í fullum gangi. Eins og sjá má var tæknin við grjótnámið samkvæmt því sem þá þekktist. Greinilega hefur derhúfan - "sixpensarinn" - þjónað því hlutverki sem öryggishjálmar gera í dag. Í baksýn sést Ægissíða sem nú er löngu horfin. Myndina tók Björn Bergmann en mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn007
Mynd frá vígslu söluskála Olís á Skagaströnd 1979. Á myndinni er Ingvar Sigtryggsson (d. 10.7.1988) smiður til vinstri og óþekktur starfsmaður Olís í Reykjavík til hægri.
Óþekktur ljósmyndari307
Angantýr Jónsson (d. 28.7.1983) ljóðskáld á Skagaströnd sonur Guðrúnar frá Lundi rithöfundar.
Óþekktur ljósmyndari338
Vermenn frá Skagaströnd 1916 ?. Standandi frá vinstri: óþekktur, óþekktur, Axel Helgason (d. 16.7.1971), Þorleifur Benediktsson (d. ?), Björn Þorleifsson (d.?), Jón Haraldur Guðlaugsson (d. ?), Sigurður Íshólm Klemensson (d. ?), Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) og Kristmundur Jakobsson (d. 1.5.1976). Sitjandi frá vinstri: óþekktur, óþekktur, Jónatan Guðmundsson (d. ?), Ari Einarsson (d. ?) og Eiríkur Guðlaugsson (d. ?). Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari336
Í texta með þessari mynd frá 1960 segir að þetta sé sjúkraflugvél. Hvað sem er um það þá var myndin tekin af vélinni á túni upp með vetrarbrautinni þar sem hún lenti, enda hefur aldrei verið flugbraut á Skagaströnd. Eins og sjá má var ungdómurinn ákaflega áhugasamur um vélina.

Eftirfarandi frétt Þórðar Jónssonar (d.25.12.2010) um vélina birtist í Morgunblaðinu 29. október 1960:
"Í dag kom hér sjúkraflugvélin TFHÍS, sem er eins hreyfils Cessna-vél, til að sækja sjúkling sem komast þurfti til Reykjavíkur. Flugmaðurinn lenti á nýræktuðu túni rétt við þorpið, og tókst bæði lending og flugtak prýðilega. Flugmaðurinn, Kristján Gunnlaugsson, sagði, að túnið væri ágætur flugvöllur, aðeins þyrfti að merkja hann betur...."
Kvenfélagið Eining - safn078
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Þórunn Óladóttir
Óþekktur ljósmyndari294
Ekki er vitað hvað þær kölluðu kvartett sinn konurnar á myndinni en þær eru frá vinstri: Edda Pálsdóttir, Ólína Hafsteindsdóttir (Lilla), Erla Lárusdóttir og Hjördís Sigurðardóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið einhverntíma á sjötta áratugnum.
1

60
61
62

167
Leita í myndasafninu
Leita