Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari269
Skrúðganga skáta á sumardaginn fyrsta að Hólaneskirkju í skátamessu. Fremstur ber fána Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004) og stúlkan við hlið hans með hvíta skuplu er líklega Guðrún Þórbjarnardóttir. Aftan við þau er líklega, með þriðja fánann, Árni Sigurðsson (d. 14.11.2006) frá Sólvöllum. Lárus Ægir Guðmundsson gengur fyrir aftan aftasta fánann en fullorðni maðurinn til hliðar við fylkinguna er Ingólfur Ármannsson skátaforingi. Bak við Guðrúnu sér líklega í Hrafnhildi Jóhannsdóttir (Abbý). Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið snemma á sjöunda áratugnum. Ef þú þekkir einhvern í myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari186
Í bókinni : Byggðin undir Borginni (1989) segir um þessa mynd sem er á blaðsíðu 223:<em> " Starfsfólk Hólaness við salthúsið, frá vinstri: Bergur Jón Þórðarson Skjaldbreið, Jón Árnason Ólafsvöllum, Ólafur Guðlaugsson Sævarlandi, Jóhann Jakobsson Blálandi, Árni Kristófersson Árnesi, Teitný Guðmundsdóttir Bergi, Karla Helgadóttir Ásbergi, Þórður Jónsson Skjaldbreið, Jóhanna Jónasdóttir Höfðatúni, Ingunn Valdís Júlíusdóttir Hjallholti, Sveinn Kristófersson Bergi, Árni M. Haraldsson Bergi, Guðrún Angantýsdóttir, Rósa Pétursdóttir Miðnesi, Kristófer Árnason Sunnuhvoli, Oddný Jóhannsdóttir Skálholti, Skafti Jónasson Dagsbrún, Elín Jónsdóttir Sólbakka, Sigurbjörg Angantýsdóttir, Jón Áskelsson framkvæmdastjóri, Hólanesi, Sigurður Magnússon verkstjóri, Sólvöllum".</em> Ekki kemur fram hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 532
Togarinn Arnar Hu 1 tók þátt í togararallyi í maí 1993. Starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar um borð tóku með sér ýmis konar lífverur í land en þær höfðu komið í trollið hjá Arnari. Börnum úr Höfðaskóla, Blönduósskóla og Húnavöllum var boðið að koma og skoða lífverurnar. Eins og sjá má á myndinni þá var áhuginn gríðarlegur hjá krökkunum.
Óþekktur ljósmyndari321
Trjáplöntur gróðursettar á skógræktarsvæði Skóræktarfélags Skagastrandar ofan við Hólabergin. Hér er verið að gróðursetja víðiplöntur í skjólbelti nyrst á svæðinu árið 1988. Fólkið á myndinni eru óþekktir frumkvöðlar. Myndina tók Jón Jónsson.
Óþekktur ljósmyndari280
Guðbjörg Gylfadóttir úr umf. Fram kastar hér kúlu á héraðsmóti sumarið 1986 á íþróttavellinum á Blönduósi. Guðbjörg var ósigrandi í kúluvarpi í fjölda ára og setti Íslandsmet í greininni 17. maí 1992 (16,33 metrar) sem enn stendur 6. október 2014. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn009
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á myndinni er verið að meta saltfiskinn í flokka til útflutnings. Uppi satendur Högni Jensson og einhver óþekktur. Guðmundur ? fiskmatsmaður er með gleraugu og Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý) horfir á ljósmyndarann.
Þórður Jónsson027
3. bekkur miðskóla Höfðaskóla 1962. Þetta var í fyrsta sinn sem slíkur bekkur var starfræktur á Skagaströnd og þá fyrir nemendur fædda 1945 og 1946. Útbúin var sérstök kennslustofa í suðurenda á ganginum á efri hæðinni því þetta var áður en byggt var við skólann. Þessi stofa var svo notuð í mörg ár eða allt til þess að byggt var við skólann upp úr 1980. Á myndinni eru frá vinstri í fremri röð: Kristín Lúðvíksdóttir Steinholti, Pálfríður Benjamínsdóttir Skálholti, Eiríkur Kristinsson (d. 4.10.1994) kennari, Guðrún Þórbjarnardóttir Flankastöðum og Þórunn Bernódusdóttir Stórholti. Aftari röð frá vinstri: Hallbjörn Björnsson Jaðri, Lárus Ægir Guðmundsson, Ómar Þorbjörnsson Akurgerði og Kristinn Lúðvíksson Steinholti.
Þórður Jónsson034
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hér er líklega verið að bera kistu frá Brautarholti eftir húskveðju þar. Sennilega hvílir kistunni Þuríður Jakobsdóttir (d. 19.7.1965) sem átti heimili í Brautarholti. Líkmenn eru frá vinstri: Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978), Haraldur Sigurjónsson (d. 13.5.1986), Guðjón Andrésson (d. 20.6.2012), Hörður Ragnarsson, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) og óþekktur. Í líkfylgdinni má þekkja frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Guðlaug Guðlaugsson (d. 8.7.1990), Eggert Skarphéðinsson (d. 2.6.1987), Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989) og Pálma Sigurðsson (d. 21.4.1992). Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1996) er frakkaklæddur með húfu, hjá hornstaurnum. Til vinstri við Ólaf sést Guðrún Björnsdóttir (Góa) í Sæborg og til vinstri við hana er Guðbjörg Guðjónsdóttir. Fast við öxl Ólafs vinstra megin sést andlit Körlu Helgadóttur. Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004 )er konan sem ber í hornið á félagsheimilinu til vinstri með slæðu á höfði og ljósri yfirhöfn.
Dagný Sigmarsdóttir005
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru félagarnir Ilic ? til vinstri og Hjalti Indriðason til hægri frammi í móttöku.
Þórður Jónsson026
Myndin af þessum fjórum vinum var tekin í Hólaberginu líklega upp úr 1960. Frá vinstri eru: Ingibergur Guðmundsson, Bergur Jón Þórðarson, Böðvar Jónsson og Arelíus Viggósson (d. feb. 1978).
Leikklúbbur Skagastrandar - safn021
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru þeir Hallbjörn Hjartarson til vinstri og Guðmundur Haukur Sigurðsson til hægri í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn038
Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar sumarið 1988. Henni til heiðurs var haldið kaffisamsæti í Fellsborg þar sem fólkinu í sveitarfélaginu gafst færi á að hitta forseta sinn. Á þessari mynd sker Vigdís fyrstu sneiðina af glæsilegri rjómatertu sem meðal annars skartar skjaldarmerki sveitarfélagsins. Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti bíður eftir að röðin komi að honum. Aðrir fylgjast með forseta sínum áður en þeirra tími kemur.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn033
Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni eru í hlutverkum sínunm frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Hallveig Ingimarsdóttir, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Birna Blöndal, Guðbjörg Viggósdóttir og Rúnar Loftsson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Skagaströnd - safn176
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Mikið fjör var í hófinu og mikið sungið við harmónikuundirleik. Á þessari mynd syngja fullum hálsi, frá vinstri: Bjarney Valdimarsdóttir kona Lárusar, Elín Njálsdóttir hreppsnefndarkona, Guðrún Pálsdóttir starfsstúlka á skrifstofu Höfðahrepps og Guðbjörg Viggósdóttir.
Skagaströnd - safn284
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Jón S. Pálsson fyrrverandi skólastjóri fagnar tilkomu hússins í ræðustól.
Kvenfélagið Eining - safn099
Þessi mynd er úr ferðalagi eldri borgara um Vatnsdal og í Þingeyrakirkju í júlí 1997 á vegum kvenfélagsins Eining. Á myndinni, sem tekin var í Þingeyrarkirkju eru, frá vinstri: Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), óþekkt stúlka, Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) (fjær) og Erna Högnadóttir.
Óþekktur ljósmyndari326
Á sjómannadegi sennilega 1949. Hátíðahöld fóru fram á Hólanesinu og þarna hafa menn sest sunnan undir vegg á Árnesi en krakkarnir stjákla í kring. Fólkið er óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari272
<p>Undir þessari mynd á bls. 213 í Byggðin undir Borginni stendur: <em>"Á línuveiðum. Þorkell Magnússon í Goðhól heldur á þorski, fyrir aftan hann er Gísli Jóhannesson frá Garði og Einar Guðjónsson er við rúlluna".</em> Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Gísli drukknaði í Laxá í Dalasýslu 11.5.1953 þannig að myndin var sennilega tekin 1945 - 1950. </p>
Skagaströnd - safn110
Þessi mynd var tekin kringum 1980 á hérðasmóti USAH á Skagastrandarvelli. Sveinn Ingólfsson kastar kúlunni, Ingibergur Guðmundsson er með málbandið en Hannes Guðmundsson (d. 10.9.2008) frá Auðkúlu fylgist með og skráir mælingarnar. Aftan við Ingiberg og Hannes eru : í ljósum fötum, Þorleifur Arason (d. 11.11.1991) og Guðgeir Gunnarsson með yfirvararskegg. Þorleifur og Guðgeir voru meðal keppenda í kúluvarpinu á mótinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir en maðurinn með hendur í vösum næst okkur til vinstri gæti verið Gestur Arnarson og Karl Lúðvíksson við hlið hans í úlpu. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
Óþekktur ljósmyndari311
Ernst G. Berndsen (d. 21.8.1983) frá Karlsskála fyrsti hafnarvörður Skagastrandarhafnar og lóðs um Húnaflóa í tugi ára.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn039
Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Magnús B. Jónsson, Birna Blöndal, Elín Njálsdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir og Ólafur Bernódusson. Bak við Magnús er svo Hallbjörn Hjartarson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Skagaströnd - safn050
Sigurður Guðmundsson glímir við steypusíló í viðbyggingu við Höfðaskóla 1978.
Skagaströnd - safn058
Steypuvinna við uppsteypun verkamannabústaða við Suðurveg árið 1981. Magnús Ólafsson heldur við síólið og Vilhelm Jónsson er með vibratorinn.
Ólafur Bernódusson 497
Hallbjörn Hjartarson bauð til veislu í veitingastað sínum Kántrýbæ í nóvember 1992 í tilefni af því að hanna var að opna Útvarp Kántrýbæ á efri hæðinni. Á myndinni bendir Hallbjörn á fallega tertu sem á er letrað: Útvarp Kántrýbær - FM 100,7 - Villta Vestrið - Skagaströnd. Myndin var tekin í gamla Kántrýbæ sem seinna brann en var strax endurbyggður með glæsibrag.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn026
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru þau Jónas Baldursson og Birna Blöndal í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
Ólafur Bernódusson526
Viðbygging við leikskólann Barnaból var tekin í notkun í nóvember 1994. Á þessari mynd eru nokkur leikskólabörn að gæða sér á veitingum og virða fyrir sér blómvönd sem kom í tilefni dagsins.
Óþekktur ljósmyndari297
Hafsteinn Pétursson (d. sept 1961) frá Gunnsteinsstöðum í Langadal
Óþekktur ljósmyndari300
Vilhelmína Kristina Karlsdóttir Örum 17.desember 1818 jómfrú á Skagaströnd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn098
Á þessari mynd, sem tekin var fyrir utan Hólaneskirkju eldri, eru séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Regína Berndsen (fædd Hansen) (d. ?) Stóra Bergi. Regína var gift Fritz Berndsen en á Stóra Bergi var símstöð í umsjón þeirra hjóna.
Hjördís Sigurðardóttir - safn009
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á myndinni eru frá vinstri: Magdalena Jóhannsdóttir útibússtjórafrú, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) og Hjördís Sigurðardóttir.
Guðmundur Guðnason102
Glatt fólk á dansleik með Spur Kóla á borðum. Frá vinstri: Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008) Höfðabrekku, Guðrún Halldórsdóttir, Óli Bogason , Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Erla Lárusdóttir (d. 24.8.1995) og Steinþór Carl Ólafsson (d. 18.9.1985).
Skagaströnd - safn082
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd er Adolf J. Berndsen oddviti Höfðahrepps í ræðustól.
Guðmundur Guðnason174
Þessi mynd var tekin á Hótel Blönduós en karlarnir voru kostgangarar en stúlkurnar voru starfsstúlkur þar. Aftan á myndinni stendur: "Efri röð frá v. Lárus Jónsson, Pálmi Guðnason, Einar Pétursson, Steingrímur Björnsson, Hergeir Albertsson. Fremri röð frá v. Ingibjörg Daníelsd., Þórunn Steinþórsd., María Steingrímsd Dalvík, Sigrún. Ljosm. B. Bergmann". Ekki er vitað hvenær Björn tók myndina.
Óþekktur ljósmyndari210
<p>Hjónin Regína og Fritz Berndsen á Bergi með óþekkta stúlku og kálf. </p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn028
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Meðal annars var farið með sýninguna til Siglufjarðar þar sem þessi mynd var tekin. Frá vinstri í fremri röð: Rúnar Loftsson, Hallbjörn Hjartarson, Magnús B. Jónsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Helga Ottósdóttir, Jónas Baldursson og Hilmar Hilmarsson rútubílstjóri. Aftari röð frá vinstri: Eðvarð Hallgrímsson, Árni Björn Ingvarsson, Bjarney Valdimarsdóttir, Ragnar Jónsson, Jón Helgi Eiðsson, Birna Blöndal, Lilja Kristinsdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir og Helga Hermannsdóttir. Myndina tók Jónas Baldursson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn007
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á sýningu í Fellsborg. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Birna Blöndal, Hallbjörn Hjartarson, Guðný Sigurðardóttir og Kristín Björnsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn110
Aftan á þessari mynd stendur: <em>Gamli bærinn á Bergstöðum. Kirkjan endurvígð. Á myndinni sr. Pétur Þ. Ingjaldsson, Guðmundur á Eiríksstöðum, Guðmundur Jósafatsson á bak við þá er Sigurbjörn Einarsson biskup.</em> Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari285
Síldarsöltun á Skagaströnd 1935 - 1940. Planið þar sem söltunarplanið er var fullgert fyrir síldarvertíð 1935 og hófst þá þegar söltun þar. Hafnarhúsið sem sér í til vinstri á myndinni var byggt sumarið 1935 en seinna (1943 - 1945) flutt á núverandi stað til að rýma fyrir verksmiðjubyggingunni. Bryggjan skemmdist um veturinn 1936 þannig að hún gekk upp um miðbikið (allt að 1 metra) og var hún því rifin niður og endurbyggð vorið 1937. Húsin í baksýn eru frá hægri: Lækjarbakki (gamli bærinn), Jaðar (Efri Jaðar), Lækur og Karlsskáli. Á bak við staurinn sem er á planinu má sjá Brúarland og lengst til vinstri er Gamla búðin. Önnur hús eru óþekkt.
Hjördís Sigurðardóttir - safn044
Efstu menn á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á Skagaströnd 1974. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson í 3. sæti, Sveinn Ingólfsson í 2. sæti, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) í 1. sæti og Páll Þorfinnsson (d.1.9.1993) í 4. sæti. Í kosningunum voru Adolf og Sveinn kjörnir í hreppsnefndina af listanum.
Skagaströnd - safn019
Á góðviðrisdögum þyrptist fólk á skíði í Spákonufelli og skemmti sér í brekkunum. Þessi mynd var tekin á einum slíkum skíðadegi í nægum snjó.
Guðmundur Guðnason249
Þórunn Bernódusdóttir. Myndin var sennilega tekin kringum 1955.
Óþekktur ljósmyndari257
Myndin var tekin 7. apríl 1982 þegar Örvar HU 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn nýsmíðaður frá Akureyri. Eins og sjá má var fjölmenni á bryggjunni til að fagna hinu nýja skipi.
Guðmundur Guðnason178
Alþingishátíð var haldin á Þingvöllum 1930. Hátíðin var haldin til að minnast þess að 1000 ár voru þá liðin frá því að allsherjarþing var sett þar árið 930. Hátíðin stóð dagana 26. - 28. júní og þangað kom Kristján 10. konungur Danmerkur og þá ennþá, Íslands. Gríðarlegt fjölmenni var á hátíðinni en hún fór að stórum hluta fram í tjöldum eins og sjást á þessari mynd. Myndin er úr safni Guðmundar Guðnasonar en ekki tekin af honum enda fæddist hann árið 1923. Á myndinni er nafn ljósmyndarans:K.K. Bergen.
Óþekktur ljósmyndari237
Skautaferð inn á Vindhælistjörn á níunda áratugnum. Fólkið er óþekkt.
Skagaströnd - safn241
Að lokinni sumarvinnu 2001 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða í veitingahúsinu Við árbakkann á Blönduósi. Á þessari mynd er Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba) sem var einn af flokksstjórunum þetta sumar.
Ólafur Bernódusson477
Ástin sigrar er leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikritið var sýnt á vegum Leikklúbbs Skagastrandar árið 1990 undir leikstjórn Harðar Torfasonar. Myndin er af Herði.
Skagaströnd - safn051
1979 Stóð FRÍ fyrir landshlaupi. Hlaupið var hringinn kringum landið en hlauparar komu frá ungmennafélögunum hverju á sínum stað. Þetta er mynd af þátttakendum úr umf. Fram á Skagaströnd. Frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Kristinn Guðmundsson, Magnús Ólafsson, Kristjana Jónsdóttir, Soffía Guðmundsdóttir, óþekktur (nær), Valdimar Valdimarsson (fjær), Jón Pálsson, Sigurður Guðmundsson, tveir óþekktir, Valdís Valdimarsdóttir, Valdimar Viggósson, Björk Sveinsdóttir?, Þórarinn Ingvarsson (fremst), Kristín Sigurðardóttir, Ingibergur Guðmundsson (aftast), Jóney Gylfadóttir (nær) og Guðrún Guðbjörnsdóttir (fjær).
Skagaströnd - safn264
Þessi mynd var tekin 20. ágúst 1998 í ferð vinnuskólans eftir sumarvertíðina í nestisstoppi. Greinilega er grettukeppni í gangi þegar myndin var tekin. Frá vinstri: Hákon Þórarinsson, Marta Kristín Jónsdóttir, Tinna Gunnarsdóttir, Elva Gunnarsdóttir og Eva Rún Rúnarsdóttir
Hjördís Sigurðardóttir - safn004
Þessi mynd var tekin á góðum sumardegi á Akureyri 1971. Á bekknum sitja frá vinstri: Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og Gunda Jóhannsdóttir (d. 9.11.2013). Gunda og Þórarinn voru hjón og Ingibjörg Fríða var mágkona Adolfs.
Skagaströnd - safn027
Byrjað var að leggja varanlegt slitlag á götur á Skagaströnd 1976. Ms Sandey flutti efnið til Skagastrandar og hér er verið að skipa því upp á pallinn á vörubíl Eiðs Hilmarssonar H 474.
Dagný Sigmarsdóttir009
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) að vinna við pökkun á rækju.
Hjördís Sigurðardóttir - safn040
Á þessari mynd er Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) frá Þórsmörk með börnum sínum. Sitjandi frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Hallbjörg og Reynir Sigurðsson. Standandi frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Aðalbjörg Sigurðardóttir (d.10.12.2015), Hjördís Sigurðardóttir og Gylfi Sigurðsson. Myndin var sennilega tekin á árunum 1981 - 1985.
Dagný Sigmarsdóttir001
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru við hreinsi-færibandið frá vinstri: Ragnheiður Magnúsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir og Ardís Ólaöf Arelíusdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn317
Skipting Skagastrandar í útbæ og innbæ var mun meira áberandi á árunum 1950 - 1970 en hún er nú í dag. Þá börðust fylkingar ungra út - og innbæingar með trésverðum og öðrum slíkum vopnum með reglulegu millibili en eins og úr öðrum stríðum heimsins kom ekkert út úr þeim orrustum nema stöku blóðnasir. Á þessari friðsemdarmynd eru nokkrir útbæingar framan við Höfðabrekku (Bankastræti 10) einhverntíma kringum 1960. Frá vinstri: Matthildur Hafsteinsdóttir Fossdal Dvergasteini, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001) Höfðabrekku, Björn Hafsteinsson Fossdal (d. 13.4.1983) Dvergasteini, Ólöf Smith (Lólý) Höfðabrekku, Árni Björn Ingvarsson Sólheimum, Heiðar Elvan Friðriksson Höfðabrekku, Örn Berg Guðmundsson (Assi) Höfðabrekku, Ólafur Bernódusson Stórholti og Steindór R. Haraldsson Höfðakoti.
Hjördís Sigurðardóttir - safn039
<p>Starfsfólk Hólaneskirkju í desember 2000. Á myndinni eru tveir prestar því séra Magnús Magnússon, lengst til vinstri í fremstu röð, var að taka við af séra Guðmundi Karli Brynjarssyni, sem er lengst til hægri í sömu röð. Annars eru á myndinni konur þeirra beggja, organistinn, meðhjálparinn og kirkjukórinn. Í öftustu röð frá vinstri: Sigurjón Guðbjartsson, Halldór G. Ólafsson, Sigurður Bjarnason, Ólafur Bernódusson, Einar Haukur Arason, Gylfi Sigurðsson, og Valdimar ?. Í næst öftustu röð eru frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Steindór R. Haraldsson meðhjálpari. Í fremstu röð kórfélaga eru frá vinstri: Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý), Dagný Hannesdóttir, Kristín Blöndal, Kristjana Jónsdóttir, Guðrún Guðbjartsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Hjördís Sigurðardóttir. Sitjandi frá vinstri: séra Magnús, Berglind Guðmundsdóttir kona hans, Michael Jones organisti og stjórnandi kirkjukórsins, Kamilla Gísladóttir kona séra Guðmundar sem er lengst til hægri. Myndin var tekin í Hólaneskirkju. </p>
Skagaströnd - safn238
Fastur liður á kántrýhátíðum var kántrýmessa. Á þeim söng kirkjukór Hólaneskirkju oft styrktur af fleira söngfólki og með einhverjum einsöngvara. Á þessari mynd frá hátíðinni 2003 er kórinn að syngja í messunni undir stjórn Óskars Einarssonar á sviði á Hnappstaðatúni. Einsöngvarinn á myndinni er Sigríður Beinteinsdóttir (með svarta húfu). Kórfólkið er frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Hrefna Þorsteinsdóttir (nær), óþekkt (fjær), óþekkt, Elva Dröfn Árnadóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Dagný Hannesdóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir, ?Halla Kristín Árnadóttir?, Aðalheiður Marta Steindórsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Bára Þorvaldsdóttir, Sigurður Bjarnason, Sigríður Beinteinsdóttir einsöngvari, Halldór Gunnar Ólafsson, Guðbjörg Ólafsdóttir (fjær), óþekkt, (nær), Guðrún Sigurðardóttir, (nær), Sigríður Gestsdóttir (fjær), Þórarinn Grétarsson, Sigríður Stefánsdóttir, Magnús Stefánsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Stefán Jóhann Sigurðsson, Sólrún Ólína Sigurðardóttir og Gylfi Sigurðsson. Óskar Einarsson leikur undir.
Árni Geir Ingvarsson - safn316
Þessi mynd var tekin utan við Höfðabrekku (Bankastræti 10) af systkinunum, frá vinstri: Heiðar Elvan Friðriksson, Ólöf Smith (Lólý) og Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), sem þá áttu heima á efstu hæðinni þar.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn029
Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni eru í hlutverkum sínum talið frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Hallveig Ingimarsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Magnús B. Jónsson og Elín Njálsdóttir. Myndina tók Jónas Baldursson.
Skagaströnd - safn096
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2004) formaður stjórnar verkamannabústaða á Skagaströnd afhendir Birnu Bjarnadóttur lykilinn að íbúð sinni að Mánabraut 3 í febrúar 1983. Maður Birnu, Níels Grímsson, var fjarverandi.
Séra Pétur og Dómhildur - safn116
Séra Pétur Þ. Inggjaldsson (d. 1.6.1996) spjallar við Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985) á einhverri sýningu í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
61
62
63
…
167
Leita í myndasafninu
Leita