Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari189
Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986) Ásbergi (Ásbyrgi) Skagaströnd.
Skagaströnd - safn063
Kaffisasæti í Fellsborg 1980 í tilefni þess að teknar voru í notkun fjórar þjónustuíbúðir fyrir aldraða við Ægisgrund. Við háborðið eru frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Adolf J. Berndsen, Þórhildur Ísberg og Jón Ísberg (d. 24.6.2009). Við borðið nær okkur eru frá vinstri: Sigurður Þorbjarnarson (d. 15.3.2002) Geitaskarði, Gunnlaugur Sigmarsson, Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007), Sigurður Jónsson, Ingibjörg Kristinsdóttir og Guðmundur Jónasson (d. 6.2.1988) frá Ási í Vatnsdal. Við borðið til hægri eru frá vinstri: Karitas Pálsdóttir (d. 3.5.1989), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), Hulda Árnadóttir (d. 14.2.2007).
Leikklúbbur Skagastrandar - safn041
Myndin var tekin á æfingu á Stalin er ekki hér sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið leikárið 1980 - 1981 undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á myndinni eru Ólafur Bernódusson og Bjarnhildur Sigurðardóttir í hlutverkum sínum.
Ólafur Bernódusson475
Ástin sigrar er leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikritið var sýnt á vegum Leikklúbbs Skagastrandar árið 1990 undir leikstjórn Harðar Torfasonar. Þessir ungu menn komu að sýningunni en þeir eru Halldór G. Ólafsson til vinstri og Þorlákur S. Sveinsson til hægri.
Óþekktur ljósmyndari322
<p>Hljómsveitin Jójó frá Skagaströnd vann Músiktilraunir árið 1988. Myndin er af félögunum í hljómsveitinni. Frá vinstri í fremri röð: Jón Arnarson og Fannar Viggósson. Aftar frá vinstri: Ingimar Oddsson, Viggó Magnússon og Kristján Blöndal. </p>
Skagaströnd - safn187
Kjörstjórn Höfðahrepps að störfum í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið um 1970. Frá vinstri: Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) Iðavöllum, Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) Ásholti og Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri, Norður-Skála.
Óþekktur ljósmyndari287
Golf leikið á Skagaströnd í fyrsta sinn í júní 1985. Það er Magnús B. Jónsson sem púttar í holu á Hólatúninu (nú tjaldsvæði). Frá vinstri fylgjast með þeir: Stefán Ægir Lárusson, Ólafur Bernódusson, Sigurbjörn Kristjánsson og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012).
Ólafur Bernódusson486
Hafdís Ásgeirsdóttir veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla
Óþekktur ljósmyndari279
<p>Myndin var tekin í sláturhúsi Kaupfélags Skagstrendinga KAST um 1960. Á henni eru frá vinstri: Bjarni Loftsson (d. ?) frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8) fláningsmaður, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) frá Stórholti (Bankastræti 3) skar fyrir ( = skar fæturna af við "hné" og opnaði gæruna fyrir fláningsmennina), Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) fláningsmaður og Haraldur Sigurjónsson (d. 13.5.1986) frá Iðavöllum fláningsmaður. </p>
Séra Pétur og Dómhildur - safn105
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin fyrir utan Hólaneskirkju - eldri af kirkjukórnum. Aftan á myndinni stendur: <em> Kirkjukór Hólaneskirkju. Guðmundur Guðnason Ægissíðu, Stefán Kristinsson Herðubreið, Hjördís Sigurðardóttir, Sigurður Sigurðsson Kaupfél. húsi, Jón Kristinsson síðar rafveitustjóri v/ rafstöðina í Laxá á Ásum. Ingibjörg Bertelsdóttir, Sigríður Helgadóttir, Páll Jónsson organisti og skólastjóri, sr. Pétur Þ. Ingjaldsson Höskuldsstöðum, Ingibjörg Sæmundsdóttir Hólanesi, Sigurlaug Björnsdóttir Iðavöllum.</em>
Skagaströnd - safn120
Björn Hallbjörnsson vinnur við járnabindingar í nýbyggingu við Mánabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en íbúðirnar voru afhentar, fullbúnar, í febrúar 1983.
Skagaströnd - safn125
Þessi mynd var tekin í febrúar 1983 af ungu fólki sem var að eignast sínar fyrstu íbúðir í verkamannabústöðum við Suðurveg. Frá vinstri: Magnús Blöndal, Sigurjón Ingólfsson og Hallbjörg Jónsdóttir. Nær okkur á myndinni sér á hnakkann á Steinunni Berndsen og maðurinn með gleraugun er Gísli Snorrason.
Óþekktur ljósmyndari308
Andrés Guðjónsson kaupmaður og hreppsnefndarmaður og oddviti í Höfðahrepp 1939 - 1954. <font size="1">(Heimild: Byggðin undir Borginni bls. 292 -293).</font>
Óþekktur ljósmyndari325
Sjómannadagur 12. júní 1949. Eitthvað mikið að gerast en börnin sjá ekki neitt fyrir fullorðna fólkinu sem fylgjast spennt með einhverju sem ekki er vitað hvað er.
Guðmundur Guðnason280
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) er til hægri en til vinstri er Bjarni Ó Frímannsson (d. 10.11.1987) oddviti frá Efri Mýrum.
Guðmundur Guðnason213
Óþekktur knapi á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Ef þú þekkir manninni eða einhvern meðal áhorfenda vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari320
Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001) frá Kambakoti og Reykholti var mikill veiðmaður og góð skytta. Hann skaut margan refinn gegnum tíðina og á þessari mynd, sem tekin var 1969 af Stefáni Jósefssyni, heldur hann á einum þeirra. Hlauplanga haglabyssan, sem hann er með, var af gerðinni Husqvarna en slíkar byssur voru nokkuð algengar á þessum tíma
Óþekktur ljósmyndari318
Þessir menn frá vélsmiðjunni Héðni í Reykjavík unnu að byggingu síldarverksmiðjunnar 1945 - 1947. Eitt af því sem þeir smíðuðu voru tveir risa-tankar upp við Höfðann. Hér hafa þeir stillt sér upp utan á öðrum þeirra til myndatöku.
Séra Pétur og Dómhildur - safn118
Bræðurnir Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til vinstri og Hallbjörn Hjartarson á spjalli við óþekkta konu. Myndin var sennilega tekin 1977.
Skagaströnd - safn152
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Af því tilefni voru gróðursett nokkur tré á Hnappstaðatúni. Á þessari mynd frá gróðursetningunni eru frá vinstri: Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Guðmundur Björnsson, tvö óþekkt börn, Guðný Björnsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Dagný Sigmarsdóttir018
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Berglind Karlsdóttir að mæta á vaktina en um tíma var verksmiðjan í gangi allan sólarhringinn.
Dagný Sigmarsdóttir022
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd starfsfólkið að njóta góðra veitinga í tilefni Litlu jólanna 1991. Á myndinni eru við borðið hægra megin talið frá vinstri: Steindór Haraldsson, Jóhannes Óskarsson, óþekkt, Sigríður Gestsdóttir, Málfríður Jóhannsdóttir,óþekkt, Ingólfur Bjarnason og Sigurður Bjarnason.
Séra Pétur og Dómhildur - safn134
Séra Oddur Einarsson með skírnarbarn í Hólaneskirkju (eldri).
Skagaströnd - safn211
Jónas Hafsteinsson (d. 22.11.1995) frá Njálsstöðum. Jónas var lengi oddviti Vinhælishrepps. Maðurinn við hlið Jónasar, til vinstri, er óþekktur.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn011
<p>Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á æfingu á sviðinu í Fellsborg. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir, Hjörtur Guðbjartsson, Elín Njálsdóttir, Guðný Sigurðardóttir, Hallbjörn Hjartarson og Kristín Björnsdóttir. </p>
Ólafur Bernódusson517
Í maí 1994 voru að venju haldinn útivistardagur í Höfðaskóla. Eitt af verkefnunum sem í boði voru fyrir nemendurna í unglingadeildunum var að prófa bjargsig út á Höfða undir leiðsögn og stjórn Carl Lehman Jakobsen íþróttakennara. Á þessari mynd er einn af nemendunum að stíga fyrsta skrefið út í óvissuna. Calle situr á brúninni og fylgist með en fleiri nemendur bíða eftir að röðin komi að þeim.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn005
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á sýningu í Fellsborg. Á myndinni eru í hlutverkum sínum þau: Guðmundur Haukur Sigurðsson og Kristín Björnsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari290
Björn Ólafsson frá Árbakka. Myndin var tekin 1925.
Óþekktur ljósmyndari170
Dansleikur í gömlu Tunnunni. Sennilega jóla - eða áramótadansleikur. Takið eftir að á þessum tíma sat fólk ekki við borð á dansleikjum heldur sat í röðum meðfram veggjunum til að nægt pláss væri á dansgólfinu. því miður er ekki hægt að þekkja fólkið á myndinni en hún var líklega tekin á fimmta áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari265
Á Kántrýhátíð 1984 sem haldin var á tjaldsvæðinu. Á myndinni eru knaparnir frá vinstri: Jón Gunnarsson, Jónatan Hjaltason, Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011), Hallbjörn Hjartarson og Ólafur Ásgeirsson.
Óþekktur ljósmyndari205
Síldarlöndun og síldarsöltun í Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún er sennilega frá árunum 1935 - 1937. Á þessum tíma var síldinni landað á höndum í tágakörfum eins og sést á myndinni og var það hinn mesti þrældómur fyrir sjómennina. Síldin var svo söltuð undir berum himni hvernig sem viðraði. Hreinlætisaðstaðan var einn tvöfaldur kamar sem var í raun bara lítill skúr með milligerði og setbekk með tveimur götum. Kamrinum var komið þannig fyrir að afurðirnar duttu beint í sjóinn í höfninni. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason201
Ekki er vitað í hvaða leikriti þetta fólk var að leika og ekki er heldur vitað hvenær myndin var tekin. Myndin var tekin á sviðinu í gömlu Tunnunni - nú Spákonuhof - og á henni eru frá vinstri í hlutverkum sínum: Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Ólína Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994), Guðmunda Árnadóttir, Hallbjörn Hjartarson, óþekkt, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990). Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórður Jónsson029
<p>Birgir Júlíusson í Höfðabergi til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri standa hér á tröppunum við Gamla skólann - Bjarmanes. Þegar myndin var tekin var inngangurinn í húsið að austanverðu en nú hefur húsið verið endurbyggt í sinni upprunalegu mynd og því er þessi inngangur horfinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið einhverntíma á árunum fyrir 1958 því þá var skólastarfsemin færð í nýja byggingu sem enn er í notkun. </p>
Ólafur Bernódusson482
Ólafur Bernódusson kennari 10. bekkjar veturinn 1990 - 91 í Höfðaskóla
Skagaströnd - safn084
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd er fólk að hlusta á einhvern ræðumann. Frá vinstri: Jónas Skaftason, Gunnlaugur Sigmarsson, Rannveig Jónsdóttir, Sævar Hallgrímsson, Ragnheiður Magnúsdóttir og Sigurjón M. Alexandersson.
Guðmundur Guðnason205
<p>TF Eir mun vera fyrsta þyrlan sem Landhelgisgæslan eignaðist. Þyrlan var í rekstir á árunum 1965 - 1971. Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin ná hver konan og barnið eru. <font size="1">(Heimild: </font><a href="http://www.flugsafn.is/index.php?option=com_content&view=article&id=55&Itemid=145&lang=en"><font size="1">http://www.flugsafn.is/index.php?option=com_content&view=article&id=55&Itemid=145&lang=en</font></a><font size="1">)</font></p>
Þórður Jónsson028
Hér bregða þeir á leik, vinirnir Sigurður Bjarnason til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri árið 1963. Báðir eru þeir miklir Skagstrendingar í sér og vilja hag Skagastrandar sem mestan. Þessa mynd af þeim félögum tók Þórður Jónsson (d.25.12.2009) fyrir utan gamla útibúið sem stóð nokkurn vegin þar sem suð- vestur horn skólalóðarinnar er í dag. Útibúið var verslunarútibú frá Kaupfélagi Skagstrendinga.
Skagaströnd - safn224
Björn Jónsson (d. 21.4.1992) bóndi að Ytra- Hóli, hreppsnefndarmaður og oddviti Vindhælishrepps og sýslunefndarmaður í Húnavatnssýslu. .
Óþekktur ljósmyndari240
Ómar Jakobsson púttar á golfmóti á Hágerðisvelli. Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Guðmundur Kristinsson og Gunnar Sveinsson fylgjast með. Myndin var tekin 1986.
Guðmundur Guðnason128
Gömul mynd af réttastörfum í ókunnri rétt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn034
Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni eru þeir: Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Guðmundur Haukur Sigurðsson og Hallbjörn Hjartarson frá vinstri í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
Ólafur Bernódusson493
Myndin var tekin í desember 1993 af starfsfólki Skagstrendings hf á námskeiði í Fellsborg. Frá vinstri: Hólmgeir Kristmundsson, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson, Stefán Ægir Lárusson, fjórir óþekktir, Björgvin Karlsson, óþekktur (fjær), Sigurbjörn Björgvinsson, Hjalti Indriðason (næst), Gylfi Guðjónsson, óþekktur (fjærst), Gunnar Jón Jónsson, Ragnar Högnason, óþekktur, Guðjón Guðjónsson, þrír óþekktir, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (næst), Sveinn Ingólfssonn, óþekktur (fjærst) og Ágúst Ómarsson.
Guðmundur Guðnason297
Séra Birgir Snæbjörnssoní ræðustól í Húnaveri. Tilefnið var hátíð vegna 100 ára afmælis Bergstaðakirkju 1983.
Þórður Jónsson043
<p>Myndin var tekin á tröppunum við Höfðaskóla af umsjónarbekk Elínborgar Jónsdóttur (d. 7.1.2007) líklega 1958 eða 1959. Nemendurnir á myndinni eru fædd 1951 og voru fyrsti hópurinn sem hóf nám sitt í nýbyggðum Höfðaskóla. Fremsta röð frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Sævar Rafn Hallgrímsson, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Jóhannes Pálsson (d. 23.11.1986) og Ísleifur Þorbjörnsson (d.28.8.2021). Miðröð frá vinstri: Sævar Hafsteinsson, Ólafur Bernódusson, Guðmundur Rúnar Kristjánsson, Rúnar Jósefsson og Óskar Jóhannesson (fæddur 1950). Aftasta röð frá vinstri: Bergur Jón Þórðarson, Björn Bragi Sigmundson, Reynir Sigurðsson, Fritz Bjarnason, Karl Lúðvíksson og Elínborg kennari.
Skagaströnd - safn062
Kaffisasæti í Fellsborg 1980 í tilefni þess að teknar voru í notkun fjórar þjónustuíbúðir fyrir aldraða við Ægisgrund. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurður Þorbjarnarson (d 15.3.2002) frá Geitaskarði, Valgerður Ágústsdóttir Geitaskarði, Helena Ottósdóttir (d. 22.11.2007), Georg Hjartarson (d. 13.9.2001), Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Birna Blöndal og Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987).
Óþekktur ljósmyndari317
Þessir vösku menn störfuðu að byggingu síldarverksmiðjunnar á Skagaströnd 1945 - 1947. Þeir voru flestir - ef ekki allir - starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins í Reykjavík.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn019
Jónas Árnason (d. 5.4.1998) skrifaði leikritið Skjaldhamrar. Leikklúbbur Skagastrandar sýndi verkið í Fellsborg á leikárinu 1976 - 1977 undir leikstjórn Einars Rafns Haraldssonar. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Ólafur Bernódusson og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Óþekktur ljósmyndari291
Slitlag lagt á Fellsbraut 1976 í miklu átaki við að leggja varanlegt slitlag á götur á Skagaströnd. Drengurinn við ljósastaurinn til hægri, með hendur í vösum, er líklega Guðmundur Jónsson en aðrir eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari310
Karl B. Laxdal (d. ?) hreppsnefndarmaður í Vindhælishrepp hinum forna (fyrir skiptinguna 1939 í þrjá hreppa).
Leikklúbbur Skagastrandar - safn022
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru Birna Blöndal og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
Skagaströnd - safn030
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) oddviti, til hægri, skálar hér við Þorgeir Hafsteinsson, einn af starfsmönnum Miðfells hf, eftir að fyrirtækið hafði lokið lagningu varanlegs slitlags á götur á Skagaströnd 1976. Milli þeirra situr Elín Njálsdóttir.
Skagaströnd - safn031
Mynd frá fyrsta 3. deildarleik í knattspyrnu á nýjum íþróttavelli á Skagaströnd sumarið 1976. Lið frá USAH og HSS keppa. Ekki er vitað um úrslit leiksins.
Guðmundur Guðnason209
Óþekkt fólk á kappreiðum 1961 á Hvammsbökkum. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson494
Myndin var tekin á námskeiði starfsfólks Skagstrendings hf í desember 1993. Frá vinstri: tveir óþekktir, Sveinn Ingólfsson (fjær), Guðjón Ebbi Sigtryggsson (nær), Ágúst Ómarsson, fjórir óþekktir, Sævar Hallgrímsson, Ingvi Sveinn Eðvarðsson (nær), Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) (fjær), tveir óþekktir, Sigurbjörn Ingólfsson, óþekktur, Jóhannes Símonsen, óþekktur, Guðmundur Guðmundsson (nær), Árni Sigurðsson (fjær), fimm óþekktir, Stefán Sveinsson, Steinunn Grímsdóttir (fjær) og Jóhanna Sigurjónsdóttir (nær).
Þórður Jónsson022
Öflugt skátastarf var á vegum skátafélagsins Sigurfara á Skagaströnd í allmörg ár á sjötta og sjöunda áratugnum undir stjórn Þórðar Jónssonar félagsforingja. Eitt af verkefnum skátanna var að koma sér upp skála í Brandaskarði. Skálinn var því miður aldrei fullgerður heldur voru einungis steyptar undirstöður og botnplata. Nokkrum árum seinna byggðu svo skátarnir skála í suðurhlíðum Spákonufells. Á þessari mynd eru galvaskir skátar í vinnuferð í Brandaskarði. Frá vinstri: Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Hallbjörn Björnsson Jaðri, Gissur Jóhannsson Lækjarbakka, Kristinn Lúðvíksson Steinholti, Ísleifur Haraldsson Jaðri, Þórunn Bernódusdóttir Stórholti, Guðrún Þórbjarnardóttir Flankastöðum, Birgir Júlíusson Höfðabergi, Jóhann Ingibjörnsson, Frímann Lúðvíksson Steinholti, Lárus Ægir Guðmundsson og Helgi Jónatansson Höfðabrekku.
Skagaströnd - safn072
<p>Nýsmíðin Örvar Hu 21 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri. Þar var skipið skírt 1981 eða vorið 1982 og þessi mynd er frá þeim atburði. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Lárus Ægis Guðmundsson, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002)(nær), Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra (fjær), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Páll Pálsson ljósmyndari, Magnús Ólafsson og Gylfi Sigurðsson. </p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn006
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á sýningu í Fellsborg. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Birna Blöndal, Hallbjörn Hjartarson og Guðný Sigurðardóttir.
Óþekktur ljósmyndari268
Myndin var tekin um 1960 af nokkrum strákum í Höfðaskóla. Strákarnir eru frá vinstri: í efri röð: Gísli Kristjánsson, Frits Bjarnason, Sævar Hallgrímsson, Pétur Jóhannsson, Árni B. Birgisson, Ingþór Þorfinnsson og Ísleifur Þorbjörnsson. Fremri röð: Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004), Magnús B. Jónsson, Jóhannes Pálsson (d. 23.11.1986), Ómar Þorbjörnsson, Gylfi Jóhannsson og Gunnar Jónsson.<font size="1"> (Heimild: Byggðin undir Borginni bls. 255)</font>
Óþekktur ljósmyndari348
Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) verkalýðsfrömuður, hreppsnefndarmaður, sýslunefndarmaður, bóksali og sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Skagastrandar. Myndin var tekin á heimili Björgvins en ártalið er óþekkt.
Magnús B Jónsson090
Stakkur RE 186 var ein af nýsmíðunum frá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Á myndinni er nýbúið að gefa bátnum nafn og eigandi hans, Rögnvaldur Sæmundsson, flytur ræðu af því tilefni.
1
…
62
63
64
…
167
Leita í myndasafninu
Leita