Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari290
Björn Ólafsson frá Árbakka. Myndin var tekin 1925.
Skagaströnd - safn083
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd er fólk að hlusta á einhvern ræðumann. Frá vinstri: Hjalti Skaftason, Georg Hjartarson (d. 13.9.2001), Sveinn Ingi Grímsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Helga Sigfúsdóttir, Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) , Sigurður Bjarnason, Ingibergur Guðmundsson, Hulda Pálsdóttir (d. 9.1.1995) og Páll Pétursson Alþingismaður frá Höllustöðum. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn262
Í mörg horn var að líta við undirbúning kántrýhátíðar 1996. Hér eru Magnús B. Jónsson sveitarstjóri til vinstri og Sigurður Berndsen til hægri að reisa samkomutjaldð á Hnappstaðatúni.
Óþekktur ljósmyndari239
Bridgeklúbbur Skagastrandar hélt uppi öflugu starfi í áratugi. Spiluðu félagar í klúbbnum einu sinni í viku yfir vetrartímann í Fellsborg. Á myndinni, sem sennilega var tekin kringum 1980, eru þungt hugsi yfir spili, frá vinstri: Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993), Ólafur Bernódusson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012). Jón Ingi Ingvarsson stendur og fylgist með.
Skagaströnd - safn211
Jónas Hafsteinsson (d. 22.11.1995) frá Njálsstöðum. Jónas var lengi oddviti Vinhælishrepps. Maðurinn við hlið Jónasar, til vinstri, er óþekktur.
Ólafur Bernódusson528
Viðbygging við leikskólann Barnaból var tekin í notkun í nóvember 1994. Á þessari mynd er fólk að kynna sér nýbygginguna. Frá vinstri: Þórdís Skúladóttir, Birna Sveinsdóttir (krýpur), Ragnheiður Magnúsdóttir, tvær óþekktar, Rolf Árnason, Jóhannes Símonsen, Fjóla Ævarsdóttir, óþekkt, Kristín Jónsdóttir, Adolf H. Berndsen, Kolbrún Viggósdóttir og Halla Lýðsdóttir. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson532
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Ófært var út á Skaga fyrir mjólkurbílinn og tóku bændur þá það til ráðs að þeir komu á dráttarvélum sínum með mjólkina í brúsum og tunnum til móts við mjólkurbílinn, sem komst hálfa leið út að Háagerði. Þar var mjólkinni dælt í mjólkurbílinn úr ílátum bændanna. Á þessari mynd eru frá vinstri: Sigfús Guðmundsson mjólkurbílstjóri, Baldvin Sveinsson Tjörn og Reynir Davíðsson frá Neðri Harrastöðum.
Séra Pétur og Dómhildur - safn134
Séra Oddur Einarsson með skírnarbarn í Hólaneskirkju (eldri).
Óþekktur ljósmyndari348
Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) verkalýðsfrömuður, hreppsnefndarmaður, sýslunefndarmaður, bóksali og sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Skagastrandar. Myndin var tekin á heimili Björgvins en ártalið er óþekkt.
Barnaból - safn028
Það var glatt á hjalla hjá systrunum á þessari mynd við piparkökubakstur í leikskólanum Barnaból 16. desember 1984. frá vinstri: Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Auður Eva Guðmundsdóttir og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Bak við þær systur sér í Málfríði Jóhannsdóttur.
Barnaból - safn038
Piparkökudagur á leikskólanum Barnaból 14. desember 1983. Næst okkur til vinstri er Guðný Finnsdóttir og bak við hana sér í móður hennar Guðbjörgu Ólafsdóttur. Stúlkan á horninu er Valdís Eva Vilhelmsdóttir og hægra megin við borðið situr Arnar Ólafur Viggósson. Milli þeirra Valrúnar og Arnars situr faðir hans, Viggó Bryjólfsson, sem er líka afi Valrúnar Evu.
Dagný Sigmarsdóttir036
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Grétar Haraldsson verkstjóri.
Dagný Sigmarsdóttir029
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar tók sig saman og eyddi kvöldstund á barnum á hótel Dagsbrún ásamt mökum sínum árið 1992. Á þessari mynd eru hjónin Kári Lárusson og Kristín Sigurðardóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn158
1. júlí 1998 var Kántrýbær endurvígður eftir að nýtt bjálkahús hafði verið reist á brunarústum eldra Kántrýbæjar. Af þessu tilefni var fólki boðið að koma og skoða bæinn og njóta veitinga. Húsfyllir var og leist fólki vel á nýju bygginguna. Á þessari mynd sýnir dansflokkur frá Skagaströnd línudans við vígsluna. Í dansflokknum eru frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Kristín Blöndal, Sæmundur Gunnarsson, Eygló Gunnarsdóttir, Linda Björk Ævarsdóttir og Drífa Kristjánsdóttir.
Skagaströnd - safn215
Þessi mynd sýnir horfinn tíma. Hún var tekin í vinnslusal frystihúss Hólaness hf 1976. Á henni má telja 21 konu sem eru að snyrta og pakka fiski. Ekki þekkjast allar konurnar en frá hægri eru: Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt, Kristín Sigurðardóttir, Bergljót Óskarsdóttir (d. 22.2.2004), óþekkt, Hólmfríður Rögnvaldsdóttir (d.13.10.2000), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Laufey Sigurvinsdóttir (d. 21.12.1994), fjórar óþekktar, Elísabet Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991) (nær), óþekkt (fjær), Elísabet Árnadóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir en aðrar eru óþekktar. Nú hefur vinnslusalnum verið breytt í rannsóknarstofur og Vörusmiðju BioPol ehf.
Séra Pétur og Dómhildur - safn136
Hafsteinn Pálsson á fermingardaginn sinn 1981 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri).
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn013
<p>Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Myndin var tekin í kaffipásu. Frá vinstri Sigfús Sævar Sigurðsson, Sigrún Benediktsdóttir og Gunnar Albertsson.</p>
Skagaströnd - safn222
<p>Ekki er vitað hvar eða hvenær þessi mynd var tekin. Sennilega tengist hún starfi kirkjukóranna á Skagaströnd og Blönduósi og fólkið í fremstu röðinni eru líklega einhverjir framármenn í tónlistarstarfi. Lengst til vinstri í fremstu röð situr Guðmann Hjálmarsson (d. 21.8.1973) Blönduósi og hægra megin við hann er Sólveig Sövik Blönduósi. Fyrir aftan Guðmann er Svanhildur Þorleifsdóttir (d. 13.4.1988) og hægra megin við hana er Anna Andrésdóttir (d. 14.9.1998)og síðan Davía Guðmundsson (d. 17.1.1999) allar frá Blönduósi. Fyrir aftan manninn með gleraugun fyrir miðju í fremstu röð (?séra Þorsteinn í Steinnesi?) er Guðrún Ingimarsdóttir Blönduósi. Lengst til vinstri í annarri röð er Guðrún Árnadóttir (d.?) og næst henni hægra megin er Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990). Í næstu röð fyrir aftan þær eru svo Ása Hafsteinsdóttir lengst til vinstri og Erla Lárusdóttir næst henni. Í öftustu röð er Hallbjörn Hjartarson annar frá vinstri, Jón Kr. Jónsson hægra megin við hann og Jón Bjarnason (d. 28.9.2002) frá Bakka í Vatnsdal kemur svo næstur. Framan við Jón Kr. til hægri er Páll Jónsson (d. 19.7.1979) og við hlið hans er sonur hans Jón Pálsson. &nbs
Skagaströnd - safn209
Guðmundur Haukur Sigurðsson framkvæmdastjóri saumastofunnar Violu bregður á leik innan um farmleiðsluvörur saumastofunnar. Myndin var tekin í nóvember 1987 af Ólafi Bernódussyni.
Skagaströnd - safn124
Hjónin Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) og Bergljót Óskarsdóttir (Begga) (d. 22.2.2004) hlýða á ræðu í hófi, sennilega í febrúar 1983, í tilefni af tilkomu nýrra íbúða í verkamannabústöðum við Mánabraut.
Þórður Jónsson025
Öflugt skátastarf var á vegum skátafélagsins Sigurfara á Skagaströnd í allmörg ár á sjötta og sjöunda áratugnum undir stjórn Þórðar Jónssonar (d.25.12.2009) félagsforingja. Eitt af verkefnum skátanna var að koma sér upp skála í Brandaskarði. Skálinn var því miður aldrei fullgerður heldur var einungis steyptar undirstöður og botnplata. Nokkrum árum seinna byggðu svo skátarnir skála í suðurhlíðum Spákonufells. Á þessari mynd eru skátar í vinnuferð í Spákonufelli líklega árið 1966. Frá vinstri: Steindór Haraldsson Höfðakoti, Ari Ólafsson Sævarlandi, Guðmundur Guðmundsson, Gissur Jóhannsson Lækjarbakka, Sigríður Ágústsdóttir Blálandi, Frits Bjarnason Bjargi, ?Gylfi Jóhannsson Læjarbakka?, ?Kristmundur Ingibjörnsson? og Gunnlaugur Sigmarsson. Vinsamlega sendu okkur athugasemd ef þú getur staðfest nöfn drengjanna Gylfa og Kristmundar.
Skagaströnd - safn156
Sigurður Björnsson mundar vibratorinn til að jafna út steypu í efstu plötunni í stjórnsýsluhúsinu.
Óþekktur ljósmyndari223
Síldarverksmiðjan í byggingu 1945 - 46.
Þórður Jónsson039
<p>Myndataka á skátafundi. Í fremstu röð fyrir miðju, í stuttbuxum, er Ingólfur Ármannsson en annar frá hægri er Þórður Jónsson (d.25.12.2009) báðir félagsforingjar hjá Sigurfara á Skagaströnd. Ingibjörg Kristinsdóttir er í annarri röð og sést yfir vinstri öxl Ingólfs en þriðja frá vinstri í þeirri röð er Kolbrún Jónsdóttir en sú fjórða er Steinunn Ellertsdóttir. Lengst til hægri er líklega Ástríður Ósk Bertelsdóttir (Lillý) og sú þriðja frá hægri er Magdalena Axelsdóttir. Fjórði frá vinstri í öftustu röð er Hallbjörn Björnsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Dagný Sigmarsdóttir039
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru tvær drottningar, Inga Lára Sigurðardóttir til vinstri og Árný Helgadóttir til hægri. Myndin var tekin sumarið 1993.
Ólafur Bernódusson546
Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á þessari mynd sést fullur salur Fellsborgar af nemendum, foreldrum og kennurum.
Skagaströnd - safn278
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Á myndinni afhendir Helgi Gunnarsson, yfirsmiður byggingarinnar, Adolf H. Berndsen, oddvita Höfðahrepps, íþróttahúsið formlega með táknrænum lykli að húsinu. Helgi er til hægri á myndinni.
Óþekktur ljósmyndari296
Guðmundur Guðlaugsson (d. 8.5.1985) frá Árbakka
Skagaströnd - safn080
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd eru frá vinstri: baksvipur Guðmundar Jóhannessonar, Sigurður Georgsson, Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Georg Hjartarson (d. 13.9.2001) og Pálmi Jónsson Alþingismaður frá Akri. Aðrir eru óþekktir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn172
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Konan til vinstri er Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011) en konan til hægri er Hrefna Hákonardóttir (d. 4.12.2005).
Skagaströnd - safn237
Hallbjörn Hjartarson - Kúreki Norðursins - syngur með hljómsveitinni Brimkló á sviði á Hnappstaðatúninu á kántrýhátíð 2003. Næst okkur á myndinni er Björgvin Halldórsson.
Óþekktur ljósmyndari304
Sveinn S. Ingólfsson kennari, oddviti Höfðahrepps, aðalhvatamaður að stofnun Skagstrendings hf og fyrsti framkvæmdastjóri þess útgerðafélags.
Guðmundur Guðnason270
Séra Oddur Einarsson faman við altarið í Hólaneskirkju eldri.
Guðmundur Guðnason209
Óþekkt fólk á kappreiðum 1961 á Hvammsbökkum. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson494
Myndin var tekin á námskeiði starfsfólks Skagstrendings hf í desember 1993. Frá vinstri: tveir óþekktir, Sveinn Ingólfsson (fjær), Guðjón Ebbi Sigtryggsson (nær), Ágúst Ómarsson, fjórir óþekktir, Sævar Hallgrímsson, Ingvi Sveinn Eðvarðsson (nær), Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) (fjær), tveir óþekktir, Sigurbjörn Ingólfsson, óþekktur, Jóhannes Símonsen, óþekktur, Guðmundur Guðmundsson (nær), Árni Sigurðsson (fjær), fimm óþekktir, Stefán Sveinsson, Steinunn Grímsdóttir (fjær) og Jóhanna Sigurjónsdóttir (nær).
Ólafur Bernódusson525
Viðbygging við leikskólann Barnaból var tekin í notkun í nóvember 1994. Á þessari mynd eru leikskólabörn að syngja fyrir gesti.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<P>Á þessari mynd er verið að salta síld í Skagastrandarhöfn. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1943, sennilega árið 1935 eða 1936. Húsin sem sjást í baksýn eru frá vinstri: Viðvík, þar sem lengi var rekin veitingasala og gistihús, Vík, Sæból, Sæborg og Bjarg. </P>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn002
<p>Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Á myndinni eru leikararnir í gervum sínum. Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Hallbjörn Hjartarson, Guðný Sigurðardóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (nær), Birna Blöndal, Hjörtur Guðbjartsson (fjær), Kristín Björnsdóttir (nær), Gunnar Benónýsson, Elín Njálsdóttir og Magnús B. Jónsson. </p>
Dagný Sigmarsdóttir035
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru tvö af tryggustu starfsmönnum vinnslunnar þau Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og Sigurður Bjarnason. Myndin var tekin sumarið 1993.
Skagaströnd - safn031
Mynd frá fyrsta 3. deildarleik í knattspyrnu á nýjum íþróttavelli á Skagaströnd sumarið 1976. Lið frá USAH og HSS keppa. Ekki er vitað um úrslit leiksins.
Óþekktur ljósmyndari319
Þessi mynd var tekin um borð í Auðbjörgu HU 6 - þeirri fyrstu með því nafni á Skagaströnd - á síldveiðum á Húnaflóa. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en þessi Auðbjörg var gerð út frá Skagaströnd árin 1947 - 1959 þannig að myndin hefur verið tekin einhverntíma á þessu árabili. Líklega er Auðbjörgin á reknetaveiðum og myndin er lýsandi fyrir af hverju síldin er kölluð "silfur hafsins" því karlarnir og allt skipið eru þakin silfurlitu hreistri síldarinnar.
Adolf H Berndsen - safn037
Ernst Berndsen (f. 2.6.1900 - d. 21.8.1983) á Karlsskála siglir hér á bát sínum Helgu þó ekki sé leiðið gott. Ernst var fyrsti hafnarvörður Skagastrandarhafnar og gengdi því starfi í áratugi. Þá var hann lóðs í Húnaflóa og lóðsaði lítil og stór skip til hafnar í höfnunum við flóann. Ernst var lengi umboðsmaður fyrir Olíufélag Íslands - Olís en jafnframt því sótti hann sjó á eigin trillum þegar færi gafst. Þeir eru ófáir sjómennirnir sem fóru sinn fyrsta róður með Ensa, eins og hann var kallaður, og lærðu hjá honum réttu handtökin á sjó. Nú síðasta vetur (2014) var Helgan gerð upp þannig að siglingasögu hennar er ekki lokið en hún er nú í eigu afkomenda Ernsts.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn025
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þau Hallbjörn Hjartarson og Birna Blöndal. Myndina tók Jónas Baldursson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn033
Myndin er af konum í kvenfélaginu Eining á Skagaströnd. Í öftustu röð frá vinsti eru: Gunda Jóhannsdóttir (d.9.11.2013) Höfðaborg, Steinunn Jónsdóttir (d. 6.4.1982) Stórholti, Jóhanna Gunnlaugsdóttir (d. 18.4.2012), Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) Lækjarbakka, Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) Höfðakoti, Gestheiður Jónsdóttir (d. 6.11.2010), Guðríður Bergsdóttir (d. 10.6.1996) Skjaldbreið, Vilborg Jónsdóttir (d. ?) Stóra Bergi, Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986) Ásbergi og Elísabet Kemp (d. 1.8.1984) Jórvík. Miðröð frá vinstri: Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) Árnesi, Hulda Árnadóttir (d. 14.2.2007) Lækjarhvammi, Guðbjörg Guðjónsdóttir (d. 3.7.1981), Sigríður Guðnadóttir ( 4.3.1964) Breiðabliki, Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974) versluninni Borg, Helga Þorbergsdóttir (d. 30.9.1970) Garði, Sigurbjörg Jónasdóttir (d. 25.4.1980) frá Fjalli og Ólína Sigurðardóttir (d. 22.5.1962) Garðhúsum (Konnabæ). Fremsta röð frá vinstri: Harpa Friðjónsdóttir Lækjarhvammi, Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008) Höfðabrekku, Guðríður Valdimarsdóttir (d.?) Vinaminni, Helga Berndsen Karlsskála, Guðmunda Árnadóttir Flankastöðum, Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6.2002) Þorfinnshúsi og Alda Jónsdóttir.
Guðmundur Guðnason191
Myndin var tekin í Stafnsrétt 1970 þar sem menn eru að ræða málin. Fólkið er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir025
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar tók sig saman og eyddi kvöldstund á barnum á hótel Dagsbrún ásamt mökum sínum árið 1992. Á þessari mynd eru frá vinstri: Þráinn Bessi Gunnarsson, Jóhannes Óskarsson, Helena Steindórsdóttir og Ingólfur Bjarnason.
Ólafur Bernódusson539
Veturinn 1995 héldu krakkarnir í 8. - 10. bekk Höfðaskóla körfuboltamaraþon. Þá voru íþróttir kenndar í Fellsborg því ekki var búið að byggja íþróttahúsið og því fór maraþonið fram þar. Með maraþoninu voru krakkarnir að safna fé til kaupa á ýmsum íþróttaáhöldum. Á þessari mynd hvílist hluti nemandanna uppi á sviðinu meðan hinn hlutinn spilar. Frá vinstri: Bjarni Þórmundsson íþróttakennari, Hrólfur Pétursson, Bjarney Katrín Gunnarsdóttir, Heiðrún Ósk Níelsdóttir, Linda Hafdal, Erla María Lárusdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Auður Eva Guðmundsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Bæring Skarphéðinsson, Finnbogi Guðmundsson og Gunnar Dór Karlsson.
Guðmundur Guðnason094
H 94 líklega á sjómannadegi. Bíllinn er Willys Jeep "Ísraelsjeppi" eins og þetta módel var kallað. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en í baksýn til hægri sér í Jaðar fjær og Lund nær. Jón S. Pálsson átti H 94 a.m.k. um tíma.
Guðmundur Guðnason195
<p>Myndin var tekin í Stafnsrétt 1970. Á myndinni frá vinstri má greina Maríu Steingrímsdóttur bónda á Brandsstöðum en fjórði maður frá henni, með gleraugu, er Markús? bóndi á Reykjahóli og síðan Ingólfur Bjarnason (d. 22.5.2000) bóndi á Bollastöðum. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn036
Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) í forgrunni, Gunnar Benónýsson (d. 28.7.2003) til vinstri og hægra megin eru: Bjarnhildur Sigurðardóttir, Hallveig Ingimarsdóttir og Hallbjörn Hjartarson. Lengst til vinstri grillir í Rúnar Loftsson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Óþekktur ljósmyndari352
Elísabet Hafliðadóttir (d.25.9.1979) var alin upp að Núpi í Laxárdal en bjó seinna á Brúarlandi á Blönduósi.
Ólafur Bernódusson557
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru tvíburarnir Þröstur Árnason til vinstri og Svanur Árnason til hægri að sýna jólafötin það árið.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn013
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á æfingu á sviðinu í Fellsborg. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Guðný Sigurðardóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir og Kristín Björnsdóttir.
Skagaströnd - safn037
Slitlagsframkvæmdir á horni Sólarvegar og Bogabrautar árið 1978. Adolf J. Berndsen sturtar af bíl sínum í útlagningarvélina. Lengst til hægri í ljósum hlífðarslopp er Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) bæjarverkstjóri frá Lækjarbakka.
Ólafur Bernódusson500
Þessi mynd var tekin í febrúar 1994 á þjóðveginum milli Árbakka og Vindhælis. Sveinn Þórarinsson, sem stendur framan við bílinn, keyrði lengi þennan bíl fyrir kaupfélagið á milli Blönduóss og Skagastrandar. Þennan dag var milkil hálka og hífandi rok þannig að Sveinn stoppaði til að keðja bílinn. Þegar hann var kominn með keðjuna í hendurnar og ætlaði að fara að setja hana á, skipti engum togum að bíllinn fauk á hliðina út í kant. Á þessari mynd er búið að fá aðstoð gröfu við að koma bílnum á fjögur hjól aftur. Bíllinn skemmdist furðu lítið við byltuna og var notaður í mörg ár eftir þetta. Hinn maðurinn á myndinni er óþekktur.
Guðmundur Guðnason307
Ingibjörg Engilbertsdóttir í garðinum við Þórshamar. Húsið í baksýn hægra megin var heimili hennar, Skálholt. Til vinstri sjást húsin Höfðaberg, fjærst, Höfðakot, með grænu þaki og Dvergasteinn með tilheyrandi hlöðu. Öll þessi þrjú hús eru horfin fyrir mis löngu síðan.
Barnaból - safn024
Piparkökubakstur á leikskólanum Barnsból 16. desember 1984. Charlotta Traustadóttir með börnum sínum frá vinstri: Svava Magnúsdóttir, Trausti Magnússon og Sigríður Magnúsdóttir.
Skagaströnd - safn151
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Af því tilefni voru gróðursett nokkur tré á Hnappstaðatúni.Á myndinni er Erla María Lárusdóttir tilbúin að leggja hönd á plóginn. Stellingin á Erlu segir meira en mörg orð hvernig veðrið var.
Óþekktur ljósmyndari309
Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður-Skála
Leikklúbbur Skagastrandar - safn004
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á sýningu í Fellsborg. Á myndinni eru í hlutverkum sínum talið frá vinstri: Hjörtur Guðbjartsson, Hallbjörn Hjartarson, Elín Njálsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
1
…
63
64
65
…
167
Leita í myndasafninu
Leita