Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Barnaból - safn082
Þessi mynd var tekin 25. febrúar 1997 á leikskólalóðinni eftir miklar byggingaframkvæmdir barnanna þar. Flestir eru komnir með þak yfir höfuðið á myndinni og virðast ánægðir með það.
Barnaból - safn 105
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni eru mæðginin Kristín Jónsdóttir og Jón Ingi Ragnarsson við baksturinn. Heiða Berglind Fannarsdóttir sést í bakgrunninum á milli þeirra.
Guðmundur Guðnason319

Jón Kristinsson og kona hans sem er óþekkt. Ef þú veist hvað hún heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Skagaströnd - safn229
Fermingarmynd af Guðbjörgu Þorbjörnsdóttur frá Akurgerði.
Skagaströnd - safn261
Þessi borði blasti við aðkomufólki á Kerlingarholti þegar það mætti á kántrýhátíð á Skagaströnd 1996. Á myndinni er Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) bæjarverkstjóri að koma borðanum fyrir með aðstoð lyftara. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn 106
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni er Signý Magnúsdóttir með tveimur af sonum sínum þeim Árna Halldóri Eðvarðssyni til vinstri og Hilmari Eðvarðssyni til hægri.
Óþekktur ljósmyndari289
Lárus Ægir Guðmundsson á kunnuglegum slóðum á efsta palli á íþróttamóti á Blönduósvelli. Eins og sjá má hefur Lárus unnið til a.m.k. sex verðlauna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið í kringum 1970.
Óþekktur ljósmyndari200
Björn Þorleifsson (d.26.5.1956) oddviti á Skagaströnd
Hjördís Sigurðardóttir - safn018
Þetta fólk voru nágrannar við Bankastrætið undir Höfðanum. Myndin sýnir að þeim kom greinilega ágætlega saman. Frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) Höfðaborg (Bankastræti 9), Gunda Jóhannsdóttir (d. 9.11.2013) Höfðaborg (Bankastræti 9), Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017) Flankastöðum (Bankastræti 7) og maður hennar Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996).
Skagaströnd - safn009
Árblik var spunaverksmiðja sem starfrækt var um tíma í gamla frystihúsinu við Einbúastíg eftir að fiskvinnsla lagðist þar af. Vélar verksmiðjunnar voru keyptar notaðar ásamt stórum lager af garni og fleiru sem þurfti til rekstursins en reksturinn gekk ekki vel og starfsemin var lögð af og vélarnar fjarlægðar úr húsinu. Á myndinni er Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Árbliks við eina af vélum fyrirtækisins.
Jón Jónsson235
Þetta ágæta fólk var umsjónarfólk með þolsundi skólakrakka úr Höfðaskóla í sundlauginni á Skagaströnd 1987. Frá vinstri: Pétur Eggertsson, Inga Matthíasdóttir íþróttakennari og skipuleggjandi þolsundsins, Súsanna Þórhallsdóttir, Ingibjörg Skúladóttir, María Alexandersdóttir, Ragnheiður Sigurjónsdóttir og Steinunn Steinþórsdóttir. Öll áttu þau börn sem tóku þátt í þolsundinu nema Inga kennari. Í heita pottinum er Jóhanna Sveinsdóttir. Húsin í baksýn eru gamall beitninga- og geymsluskúr en brúna húsið var notað sem rafmagnsverkstæði fyrir Hólanes hf. Þetta hús þjónar nú sem golfskáli á Háagerðisvelli. Hitt húsið og tankurinn á bakvið húsin hafa verið rifin.
Séra Pétur og Dómhildur - safn177
Þessi mynd var tekin á tröppum Höfðaskóla af krökkum sem sóttu kirkjuskólann/sunnudagaskólann í Hólaneskirkju ásamt fólkinu sem starfaði við hann. Myndin hefur sennilega verið tekin einhverntíma á árunum 1965 - 1970. Í öftustu röð eru frá vinstri: Þórdís Guðmundsdóttir?, Víkingur Viggósson, Birna Bjarnadóttir, Eygló Gunnarsdóttir, Jón Hallur Pétursson, óþekkt, Páll Jónsson (d. 19.7.1979)skólastjóri, Jón Ingvar Valdimarsson, Lára Bylgja Guðmundsdóttir, og Sigríður Gestsdóttir. Næstu röð eru frá vinstri: Þórdís Sigurðardóttir, Anna Bjarnadóttir, þrjú óþekkt börn, Þorlákur Jónsson, Sigurður Pétur Jónsson, Rósa Ingólfsdóttir, Pétur Ingjaldur Pétursson (fjær), Hörður Jónasson (nær) Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9. 1974) og Dagný Guðmundsdóttir (d. 22.4.2004). Næst fremsta röð frá vinstri: Óþekkt, Ólafur Valdimarsson? (með hatt), Hafþór Gylfason, Ástmar Kári Ástmarsson, Páll Jónsson (fjær), óþekktur (nær), Gísli Snorrason, Valdís Edda Valdimarsdóttir, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir og þrjár óþekktar stúlkur. Börnin í fremstu röðinni eru öll óþekkt nema rauðhærða stúlkan í bláu peysunni með rauðu hjörtunum er Guðrún Ágústsdóttir. Ef þú þekkir óþektu börnin og/eða getur staðfest nöfn þeirra, sem spurningarmerki er við, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn059
Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) var umsvifamikill atvinnurekandi á Skagaströnd í áratugi. Hér er hann árið 1981 að vinna við að steypa þekju á viðlegukant á Ásgarði í Skagastrandarhöfn ásamt mönnum sínum.
Séra Pétur og Dómhildur - safn120
Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) við afgreiðslu í nýopnuðu bókasafninu í kjallara Fellsborgar kringum 1980. Lengst til vinstri er Hrafnhildur Jóhannsdóttir að skoða bók sama á við um séra Pétur Þ. Ingjaldsson en Gestur Arnarson fær afgreiðslu. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Síðan þessi mynd var tekin hefur bókasafninu heldur betur vaxið fiskur um hrygg með auknum bókakosti.
Skagaströnd - safn288
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Kirkjukór Hólaneskirkju söng við undirleik Mike Jones organista. Frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, óþekkt, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Dagný Hannesdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Sigmar Jóhannesson, Guðrún Sigurðardóttir, Gylfi Sigurðsson, Hjördís Sigurðardóttir og bak við hana sér í Einar Hauk Arason.
Séra Pétur og Dómhildur - safn145
Presturinn til vinstri er séra Jóhann Briem (d. 8.6.1959) prestur á Melstað 1912 - 1954 en sá hægra megin er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996). Sennilega hefur myndin verið tekin á fimmta áratugnum en ekki er vitað hvar.
Óþekktur ljósmyndari198
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Bernódus var vélstjóri, tollvörður, oddviti og leikari á Skagaströnd um árabil.
Barnaból - safn052
Laufey Sunna Guðlaugsdóttir. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból.
Skagaströnd - safn018
Myndin er af skíðaskálanum í Spákonufelli. Þarna var skíðaparadís sem byggð var upp af samhentu áhugafólki með stuðningi sveitarfélags og fyrirtækja. Skíðamennska lagðist af þarna kringum árið 2000 m.a. vegna mjög hertra öryggiskrafna yfirvalda, sem gerðu gömlu skíðalyftuna nánast ónothæfa. Á myndinni er mikið um að vera í blíðviðri og margir á skíðum.
Séra Pétur og Dómhildur - safn160
1. júlí 1998 var Kántrýbær endurvígður eftir að nýtt bjálkahús hafði verið reist á brunarústum eldra Kántrýbæjar. Af þessu tilefni var fólki boðið að koma og skoða bæinn og njóta veitinga. Húsfyllir var og leist fólki vel á nýju bygginguna. Á þessari mynd skemmtir söngflokkur úr línudanshópnum með söng. Drífa Kristjánsdóttir spilar á gítarinn en aftan við hana eru frá vinstri: Linda Björk Ævarsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Vigdís Viggósdóttir og Kristíni Blöndal.
Guðmundur Guðnason234
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) og Halla Björg Bernódusdóttir voru góðir vinir alla æfi. Hér eru þau saman sennilega einhverntíma kringum 1955.
Jón Jónsson247
Eitt af atriðunum á árshátíð Höfðaskóla 1985 var fimleikasýning undir stjórn Ingu Matthíasdóttur íþróttakennara. Á myndinni hafa krakkarnir myndað pýramída en Inga sést lengt til hægri.
Óþekktur ljósmyndari184
Síldarsöltun á bryggjuplaninu sennilega árið 1936 eða 1937. Húsið í baksýn er Hafnarhúsið en það var byggt 1935 en síðan flutt á núverandi stað á árunum í kringum 1944.Lengra frá má sjá frystihúsið lengst til vinstri og kaupfélagshúsið aftan við Einbúann fyrir miðri mynd.
Óþekktur ljósmyndari298
Fritz Hendrik Berndsen (d. ?) verslunarmaður á Karlsminni
Þórður Jónsson023
Skátar úr skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd á ferð í Vindhælisstapa í vetrarveðri. Ártal ekki vitað en líklega var myndin tekin um 1960. Frá vinstri: Jóhanna Valdemarsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Hrefna Þorbjörnsdóttir, Margrét Valdemarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Steinunn Ellertsdóttir, Halldóra Ásmundsdóttir, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir, Jóhanna Sigríður Pálsdóttir og Sigríður Ágústsdóttir. Sigurfari var stofnaður 26. mars 1959 en aðal hvatamaður þess, og fyrsti félagsforingi, var Ingólfur Ármannsson kennari við Höfðaskóla. Ingólfur kom frá Akureyri en þar var öflugt skátastarf sem hann hafði tekið þátt í. Sigurfari starfaði í u.þ.b. áratug lengst af undir stjórn Þórðar Jónssonar félagsforingja. Eftir að Þórður flutti frá Skagaströnd 1966 eða 1967 fjaraði undan félaginu og lagði það upp laupana smátt og smátt.
Skagaströnd - safn069
Fjölmenni mætti í kveðjuhóf í Fellsborg þegar séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) lét af störfum sem sóknarprestur á Skagaströnd eftir 40 ára starf. Á myndinni eru frá vinstri: María Magnúsdóttir, Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007), Teitný Guðmundsdóttir (d.28.2.2000), Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007), Hörður Ragnarsson, Sveinn Kristófersson (d.9.5.1991), Haraldur Árnason, Sólveig Róarsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011), Sigurlaug Björnsdóttir (d.7.9.1982) (nær), Viggó Brynjólfsson (fjær), Helga Jóhannesdóttir og Ingvar Jónsson (d.18.1.2003).
Skagaströnd - safn179

Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd eru tveir Magnúsar. Magnús Ólafsson ( d. 23.7.2012) til vinstri og Magnús B. Jónsson hreppsnefndarmaður til hægri. Út frá þessari mynd varð til eftirfarandi vísa hjá Rúnari Kristjánssyni:

Gleði í huga og gleði í sál

greitt mun þarna dafna.

Enda talað Maggamál

milli tveggja nafna !

Óþekktur ljósmyndari283
Þessi mynd var líklega tekin á þriðja áratugnum. Á henni njóta lífsins á Höfðanum þau: Ernst Berndsen (d. 21.8.1983), Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987) og systir hennar Magdalena Helgadóttir (d. ?).
Óþekktur ljósmyndari229
Bíllinn er H 8 sem var Ford hálfkassabíll,árgerð 1939, með boddýi og eigandinn Ágúst Jónsson (d. 21.7.1983) á Blönduósi. Hann var með sérleyfisflutninga, póstflutninga og fólksflutninga til Skagastrandar í tvo eða þrjá áratugi. Það er Ágúst sem stendur aftan við bílinn, við hlið mannsins í gráafrakkanum. Ágúst er í uppháum leðurstígvélum, bílstjórastígvélunum. Ágúst notaði bílinn fram í stríðsárin, en 1944 fékk hann H 10 Chefrolett árgerð 43, 28 manna rútu sem hann notaði í Skagastrandarferðum fram yfir 1960. Hér hefur hann áð með farþega sína við Ytri Ey. Maðurinn í ljósa frakkanum er Björn Þorleifsson (d.?). Lílklega var myndin tekin kringum 1940.
Barnaból - safn023
Piparkökubakstur í leikskólanum Barnaból 16. des 1984. Við borðsendann situr Soffía Lárusdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir móðir hennar er í röndóttum bol. Hin dóttir Bjarneyjar, Erla María Lárusdóttir situr hjá henni nær okkur á myndinni. Konan vinstra megin við borðið er Ingibjörg Skjaldardóttir með dóttur sinni Kristbjörgu Guðmundsdóttur.
Óþekktur ljósmyndari343

Þessi mynd var tekin 1905 af Pétri Ólafssyni og fjölskyldu hans. Pétur var sonur Ólafs Jónssonar sem var veitingamaður í Viðvík á árunum 1868 - 1883 þegar hann flutti með fjölskyldu sína til Akureyrar. Pétur Ólafsson fæddist 1.maí 1870 og dó 11.maí 1949 og var því unglingur þegar fjölskyldan flutti til Akureyrar. Pétur var við nám og verslunarstörf á Eskifirði en flutti til Kaupmannahafnar og var þar 1890 - 92 og lauk þar námi í verslunarfræðum ásamt því að stunda frönskunám hjá Jóni Sveinssyni - Nonna, enskunám og nám í Íslensku hjá Bjarna frá Vogi. Eftir að hafa unnið við verslun í Flatey og í Kaupmannahöfn settist hann að á Patreksfirði og varð þar yfirmaður yfir öflugu verslunar - og útgerðarfyrirtæki - IHF. Pétur var forstjóri Síldareinkasölunar, sat í stjórn Eimskipafélagsins sem formaður um tíma, starfaði fyrir ríkisstjórnina við gerð viðskiptasamninga erlendis og við markaðsleit víða um heim. Hann var norskur konsúll og einnig barsilískur konsúll á Íslandi, stundaði hvalveiðar í fimm ár með tveimur bátum frá Tálknafirði, rak selveiðiskip og togara. Þá var Pétur frumkvöðull í ljósmyndun og kvikmyndagerð. Kona Péturs, sem er með honum á myndinni, var Marie Kristine Arnesen. Saman eignuðust þau sex börn auk tveggja uppeldisbarna.

(Heimild: http://www.borgarskjalasafn.is/desktopdefault.aspx/tabid-4242/6667_read-1552/start-p/6630_view-2789/)

Barnaból - safn069
Laufey Inga Stefánsdóttir. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Þórður Jónsson046
Ekki er vitað tilefni ferðalags þessa prúðbúna fólks á H 275 - hugsanlega leikferð?. Ekki er heldur vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960. Á myndinni eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Stórholti, Helga Berndsen Karlsskála, Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) Héðinshöfða, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður-Skála, Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017) Flankastöðum, óþekkt, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) Norður-Skála, Ingólfur Ármannsson (d.1.9.2019), Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) Höfðakoti, óþekktur og Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) Skjaldbreið. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari221

Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) heldur ræðu á sjómannadegi af svölum Hólaneshússins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið í kringum 1950.

Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn015
Guðrún Angantýsdóttir á gangi á Skagaströnd vorið 1963.
Skagaströnd - safn144
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Einnig var kvölddagskrá. Veðrið lék ekki beint við hátíðargesti; norð-austan kaldi með skúraleiðingum. Fólk lét það ekki á sig fá heldur klæddi sig bara eftir veðri. Á þessari mynd bíða ræsingar í pokahlaup, frá vinstri: Gunnar Tryggvi Ómarsson, Viktor Pétursson, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Birkir Rafn Gíslason, Salóme Ýr Rúnarsdóttir og Íris Jóna Gunnarsdóttir.
Skagaströnd - safn201
Opnun Landsbankaútibús á Skagaströnd 1982. Á myndinni eru frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Ragnar Arnalds alþingismaður, Adolf J. Berndsen, Róbert Þórðarson (d. 26.11.2011), Páll Pétursson alþingismaður, baksvipur Bernódusar Ólafssonar (d. 18.9.1996) og Bjarney Valdimarsdóttir.
Skagaströnd - safn267
Þessi mynd var tekin 20. ágúst 1998 í ferð vinnuskólans eftir sumarvertíðina í nestisstoppi. Greinilega er grettukeppni í gangi þegar myndin var tekin. Frá vinstri: Elva Gunnarsdóttir, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir og sér í Eygló Amelíu Valdimarsdóttur lengst til hægri.
Skagaströnd - safn076
Nýsmíðin Örvar Hu 21 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri. Þar var skipið skírt og sjósett 1981 eða vorið 1982 og fóru margir Skagstrendingar norður til að vera viðstaddir. Þessi mynd var tekin í kaffistofu Slippstöðvarinnar en þar bauð stöðin upp á molakaffi en síðan til kvöldverðar í Sjallanum um kvöldið. Frá vinstri á þessari mynd: Steindór Gíslason, óþekktur, Ólafur Ingibjörnsson (situr), Högni Jensson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Ingibjörg Kristinsdóttir.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn013
Rósa Pétursdóttir (d. 10.10.1998) Miðnesi í Spákonufellsrétt við réttarstörf.
Skagaströnd - safn243
Að lokinni sumarvinnu 2001 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða í veitingahúsinu Við árbakkann á Blönduósi. Á myndinni eru Sigurbjörn Björgvinsson (Sibbi) og María Rós Karlsdóttir að gera aðalréttinum skil.
Hjördís Sigurðardóttir - safn020
Starfsfólk Hólaness hf og stjórnendur fóru saman til Kaupmannahafnar í frí einhverntíma í kringum 1980. Á þessari mynd er hluti hópsins sólbakaður í heimsókn í dýragarðinum. Frá vinstri: Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Sigrún Lárusdóttir, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Sigurður Bjarnason og Haraldur Árnason.
Hjördís Sigurðardóttir - safn013
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á myndinni eru fjórir alþingismenn Norð- vesturlands. Frá vinstri: Stefán Guðmundsson (d. 10.9.2011), Ragnar Arnalds, Páll Pétursson (d.23.11.2020 og Pálmi Jónsson (d.9.10.2017).
Skagaströnd - safn234
Félagsstarf aldraðra fer fram í Fellsborg. Á myndinni er kaffitími hjá þessu góða fólki með starfsmönnunum 16. nóvember 1998. Frá vinstri: María Magnúsdóttir, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3. 2011), Guðrún Ágústsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir. Hægra megin við borðið sitja í röð: Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011), og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) í rauðri peysu.
Óþekktur ljósmyndari172
Kristján Guðmundsson bóndi í Háagerði slær með hestasláttuvél sem hann hefur beitt tveimur hestum fyrir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum.
Skagaströnd - safn190
Þessi mynd frá 1961 sýnir verkamenn vinna við að handmoka möl á vörubílspall. Myndin var sennilega tekin í malarkrúsinni ofan við Skagaströnd. Ekki er vitað hverjir mennirnir eru.
Jón Jónsson270
Á þessari mynd eru leikararnir í Saumastofunni sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið undir leikstjórn Halldórs Laxnes veturinn 1984. Myndin var tekin á sýningu og á henni eru, talið frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Elín Njálsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Dagný Sigmarsdóttir og Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
Skagaströnd - safn218
Myndin var tekin í flökunar- og vélasal frystihúss Hólaness hf 1976. Á myndinni eru frá vinstri: Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) handflakari, Guðjón Jóhannesson (d. 11.2.2011) handflakari, Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) við roðflettivél og Kjartan Bjarnason líka við roðflettivél.
Séra Pétur og Dómhildur - safn148
Á þessari fjölskyldumynd eru þau hjónin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir með börnum sínum. Börnin eru frá vinstri: Jóney Gylfadóttir, Hafþór Gylfason og Guðbjörg Gylfadóttir.
Barnaból - safn037
Piparkökur bakaðar á leikskólanum Barnaból 14. desember 1983. Á myndinni er Sólveig Róarsdóttir (Didda) með tvö af börnum sínum, Árna Max Haraldsson vinstra megin og Dagbjört Jóhannsdóttur hægra megin. Beint á móti Sólveigu situr svo Þóra Ágústsdóttir.
Skagaströnd - safn040
Aðalsteinn Aðalsteinsson (d.8.6.2014) starfaði hjá Vitamálastofnun sem verkstjóri við hafnargerð víða um land. Hér er hann að stjórna gerð viðlegukants - Ásgarðs - í Skagastrandarhöfn 1978. Aðalsteinn kom síðan aftur til Skagastrandar 1990 - 1991 og stýrði þá gerð - Sæðgarðs - í höfninni.
Ólafur Bernódusson505
Krakkarnir í vinnuskólanum á Skagaströnd fóru sumarið 1994 út í Kálfshamarsvík til að hreinsa fjöruna. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Ásta Ásgeirsdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir verkstjóri, Ragna Gunnarsdóttir, Hákon Þórarinsson og Rakel Petrea Finnsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari182
Réttað í Landsendarétt. Landsendarétt var staðsett við Landsenda sem er nyrsti endi Höfðans. Réttin var sem sagt á flötinni norðan við Réttarholt.
Skagaströnd - safn048
Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011) stýrir steypusílói við byggingu viðbyggingar við Höfðaskóla 1978.
Séra Pétur og Dómhildur - safn117
Þessar prúðbúnu konur eru Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) til vinstri og Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986) til hægri. Myndin var sennilega tekin 1977.
Barnaból - safn170
Þorlákur Heiðar Þorgeirsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Þórður Jónsson057
Þessir þrír íþróttagarpar úr umf. Fram gerðu garðinn frægan á íþróttamótum á sinni tíð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Sigurður G. Sigurðsson og Sigurjón Úlfar Björnsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn132

Aftan á þessari mynd stendur skrifað: " í Húsmæðraskóla Akureyrar fyrsta veturinn. Handavinnukennarar Jóhanna Jóhannesdóttir Kristín Sigurðardóttir" Ekki er vitað hvar þessar konur eru á myndinni en Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) er þriðja frá vinstri í fremstu röð. Ef þú þekkir einhverja kvennanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Barnaból - safn062
Patrik Snær Bjarnason. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Séra Pétur og Dómhildur - safn124
Þessi mynd var tekin sunnan undir vegg við gamla húsið á Höskuldsstöðum. Á henni eru hjónin séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) lengst til vinstri en þau bjuggu í húsinu. Þá koma foreldrar Dómhildar þau Kristín Mýrdal Karlsdóttir og Jón Hallur Sigurbjörnsson en maðurinn lengst til hægri er óþekktur.
1

65
66
67

167
Leita í myndasafninu
Leita