Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason187
Myndin var tekin árið 1970 sennilega í Stafnsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt en er sennilega úr Svartárdal og Blöndudal að mestu. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason234
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) og Halla Björg Bernódusdóttir voru góðir vinir alla æfi. Hér eru þau saman sennilega einhverntíma kringum 1955.
Þórður Jónsson023
Skátar úr skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd á ferð í Vindhælisstapa í vetrarveðri. Ártal ekki vitað en líklega var myndin tekin um 1960. Frá vinstri: Jóhanna Valdemarsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Hrefna Þorbjörnsdóttir, Margrét Valdemarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Steinunn Ellertsdóttir, Halldóra Ásmundsdóttir, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir, Jóhanna Sigríður Pálsdóttir og Sigríður Ágústsdóttir. Sigurfari var stofnaður 26. mars 1959 en aðal hvatamaður þess, og fyrsti félagsforingi, var Ingólfur Ármannsson kennari við Höfðaskóla. Ingólfur kom frá Akureyri en þar var öflugt skátastarf sem hann hafði tekið þátt í. Sigurfari starfaði í u.þ.b. áratug lengst af undir stjórn Þórðar Jónssonar félagsforingja. Eftir að Þórður flutti frá Skagaströnd 1966 eða 1967 fjaraði undan félaginu og lagði það upp laupana smátt og smátt.
Skagaströnd - safn218
Myndin var tekin í flökunar- og vélasal frystihúss Hólaness hf 1976. Á myndinni eru frá vinstri: Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) handflakari, Guðjón Jóhannesson (d. 11.2.2011) handflakari, Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) við roðflettivél og Kjartan Bjarnason líka við roðflettivél.
Óþekktur ljósmyndari182
Réttað í Landsendarétt. Landsendarétt var staðsett við Landsenda sem er nyrsti endi Höfðans. Réttin var sem sagt á flötinni norðan við Réttarholt.
Skagaströnd - safn122
Þessar glöðu konur eru í eldhúsinu í Fellsborg. Tilefnið er óþekkt en konurnar eru frá vinstri: Bjarney Valdimarsdóttir og mæðgurnar Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (Bibba) (d. 26.8.2008) og Líney Jósefsdóttir.
Skagaströnd - safn276
Carl Erik Jakobsen íþróttakennari skoðar íþróttahús í Vogum á Vatnsleysuströnd líklega 1995 eða 1996. Myndin er skemmtileg því Calle sést frá öllum hliðum á henni - í speglunum.
Skagaströnd - safn088
Einar Haraldsson (d. 14.11.1983) frá Dagsbrún vinnur við gatnagerð í Ægisgrund sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti. Einar var oftar en ekki kenndur við Kjalarland þar sem hann bjó um tíma.
Skagaströnd - safn109
Hjónin Margrét Björnsdóttir (d. 11.9.1993) og Sigurður Guðmundsson (d. 2.12.1984) með einkadóttur sína Fjólu Sigurðardóttur (d. 5.7.1988). Fjölskyldan bjó í Laufási á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn116
Vinningshafar á golfmóti á Háagerðisvelli 1991 eða 1992. Frá vinstri: Steinþór Karlsson, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Rolf Árnason og Guðmundur Kristinsson. Í baksýn má sjá að framkvæmdir eru í gangi við golfskálann, sem nýlega hafði verið komið fyrir á sínum stað.
Þórður Jónsson056
Á þessari mynd eru þrír bændur sem voru vel þekktir í héraði á sinni tíð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Frá vinstri Þorsteinn Sigurðsson (d. 7.1.1967) Enni, Björn Jónsson (d. 21.4.1992) Ytra-Hóli og Jónatan J. Líndal (d. 6.11.1971) Holtastöðum.
Barnaból - safn181
Elva Mjöll Þórsdóttir á leikskólaárum sínum fyrir 1990.
Barnaból - safn088
Afmælisbarnið Helgi Óskarsson situr við enda borðsins í afmælisveislu sinni í leikskólanum Barnaból 30. maí 1997. Vinstra megin við borðið eru, talið frá Helga: Helga Dögg Jónsdóttir, Viktor Örn Valdimarsson, Guðjón Páll Hafsteinsson, Ólína Selma Þórarinsdóttir og Tanja Rán Einarsdóttir. Hægra megin við borðið eru, frá Helga talið: Alex Már Gunnarsson, Hallgrímur Davíð Egilsson, Eva Dís Gunnarsdóttir, Einar Kristberg Einarsson, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Tinna?? og Kristbjörg Una Guðmundsdóttir sem snýr baki í ljósmyndarann.
Séra Pétur og Dómhildur - safn129
Fermingarbörn 1958 í Hólaneskirkju (eldri) með Páli Jónssyni (d. 19.7.1979) organista. Fremri röð frá vinstri: Harpa Friðjónsdóttir, Anna Skaftadóttir, Helga Ólafsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Bylgja Angantýsdóttir og Sigrún Jósteinsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Sævar Bjarnason, Sigurjón Magnússon (d. 16.3.2007) Kristinn Lúðvíksson, Páll, Birgir Þórbjarnarson, Björn Sigurðsson og Konráð Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson552
Steingrímur St. Sigurðsson (d. 21.4.2000) listmálari dvaldi um tíma á Skagaströnd og vann að list sinni. Á myndinni er hann á Oddagötu að mála.
Guðmundur Guðnason251
Fermingarbörn ársins 1974 í Hólaneskirkju eldri. Aftari röð frá vinstri: Vigdís Viggósdóttir, Þorgeir Haukdal Jónsson, Þórdís Sigurðardóttir, Sigurjón Ingólfsson og Jóna Björg Jóasdóttir. Fremri röð frá vinstri: Stefán Þór Árnason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Ernst Berndsen, Kristinn Guðmundsson, Sigurjón Gísli Snorrason, Sigurður Guðmundsson og Matthías Ingvar Hjaltason.
Hjördís Sigurðardóttir - safn014
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Magdalena Jóhannsdóttir og Steinunn Friðriksdóttir.
Dagný Sigmarsdóttir007
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) við vinnu í pökkunardeildinni.
Skagaströnd - safn132
Veglega var haldið upp á 17. júní 1994. Myndin er frá skrúðgöngu dagsins. Fremst frá vinstri: Guðjón Ebbi Guðjónsson, Jón Atli Magnússon, Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Ásþór Óðinn Egilsson, Kolbrún Viggósdóttir og Eyþór Kári Egilsson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn027
Á þessari mynd eru hjónin Aðalbjörg Sigurðardóttir (1930-2015) og Þorbjörn Jónsson (1922-1986) í Akurgerði með börnin sín þrettán. Aftari röð frá vinstri: Ómar Þorbjörnsson(1946-2021), Heiðdís Þorbjörnsdóttir(1957), Ísleifur Þorbjörnsson(1951), Hrefna Þorbjörnsdóttir(1948), Sigurður Þorbjörnsson(1953), Guðbjörg Þorbjörnsdóttir(1949), Hallbjörn Þorbjörnsson(1954), Valborg Þorbjörnsdóttir(1950) og Þráinn Þorbjörnsson(1955). Fremri röð frá vinstri: Kristjana Þorbjörnsdóttir(1959), Sonný Þorbjörnsdóttir(1964), Aðalbjörg, Þorbjörn, Þröstur Þorbjörnsson(1962) og Heiðrún Þorbjörnsdóttir(1960).
Skagaströnd - safn066
Kaffisasæti í Fellsborg 1980 í tilefni þess að teknar voru í notkun fjórar þjónustuíbúðir fyrir aldraða við Ægisgrund. Við háborðið sitja frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Adolf J. Berndsen, Þórhildur Ísberg og Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður.
Guðmundur Guðnason207
Kappreiðar á Hvammsbökkum 1961. Knapar og hestar bíða ræsingar. Mennirnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson245
1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendur og starfsfólk vann að ýmsum verkefnum sem yfirleitt eru ekki á dagskrá í skólanum. Á þessari mynd eru nokkrir nemendur á fundi með Ingibergi Guðmundssyni kennara. Líklega er þetta ritstjórnarfundur vegna skólablaðsins. Frá vinstri eru á myndinni: Hjalti Magnússon, Ingibergur, Óskar Óskarsson, Jóney Gylfadóttir og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn142
Fjórir prestar í Hólaneskirkju (eldri). Myndin var sennilega tekin þegar séra Oddur Einarsson tók við af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) sem sóknarprestur á Skagaströnd 1981. Séra Oddur þjónaði söfnuðinum á árunum 1981 -1986 en séra Pétur hafði þá þjónað í 40 ár 1941 -1981. Á myndinni eru frá vinstri: séra Ólafur Hallgrímsson, séra Pétur Þ. Ingjaldsson, séra Róbert Jack (d. 11.2.1990) og séra Oddur Einarsson.
Skagaströnd - safn193
Myndin var tekin á fundi í gömlu Tunnunni. Tilefnið er óþekkt og ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Fremst til vinstri sitja Edda Guðmundsdóttir og Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), Peysuklæddur fyrir miðju á fremsta bekk er Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003). Til hægri við hann, aftar, situr Andrés Guðjónsson (d. 5.10.1968) en annar til hægri frá honum enn aftar er Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989). Aftan við Friðjón sést Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og aftan við Kristján til vinstri er Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013). Milli þeirra Friðjóns og Kristjáns, á næsta bekk fyrir aftan sitja systurnar Hólmfríður Hjartardóttir (d. 15.12.1991) til vinstri og Sigurbjörg Hjartardóttir (d. 14.7.1985) til hægri. Á milli þeirra sér svo í Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001). Ungi maðurinn sem stendur í horninu til hægri er Þorvaldur Skaftason. Ræðumaðurinn sem sér aftan á er Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007). Yfir vinstri öxl hans sér í Pálma Sigurðsson (d. 21.4.1992). Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 557
Þorvaldur Skaftason heima í stofunni sinni. Tilefni myndatökunnar var að daginn áður hafði trilla, sem Þorvaldur var einn á, sökk undir honum þegar hann var á leið í róður. Þorvaldur komst í gúmmíbát og sendi upp blys sem sást frá landi og var honum bjargað um borð í Þórdísi, sem var björgunarbátur Björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd. Þorvaldi var ekki meint af volkinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það mun hafa verið á níunda áratugnum.
Skagaströnd - safn068
<p>Séar Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) sóknarprestur á Skagaströnd og prófastur Húnavatnsprófastsdæmis ásamt konu sinni Dómhildi Jónsdóttur (d. 18.10.2012). Myndin var tekin í fjölmennu kveðjuhófi í Fellsborg þeim hjónum til heiðurs í nóvember 1982.</p>
Skagaströnd - safn141
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Einnig var kvölddagskrá. Veðrið lék ekki beint við hátíðargesti; norð-austan kaldi með skúraleiðingum. Fólk lét það ekki á sig fá heldur klæddi sig bara eftir veðri. Á þessari mynd er hjólbörukapphlaup í gangi. Fjær ekur Atli Þórsson Guðrúnu Pálsdóttur en til hægri er Finnur Kristinsson við stjórnvölinn og ekur dóttur sinni Guðný Finnsdóttur. Maðurinn í hvítu úlpunni er Ólafur Bernódusson.
Skagaströnd - safn130
<p>Veglega var haldið upp á 17. júní 1994. Myndin er frá skrúðgöngu dagsins. Fremstar fara prúðbúnar í íslenskum búningum, frá vinstri: Bergþóra Huld Guðjónsdóttir, Kristín Jóna Sigurðardóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir og Hildur Inga Rúnarsdóttir. Fánaberarnir voru líka prúðbúnir en þeir eru frá vinstri: Arnar Ólafur Viggósson, óþekktur, Eiður Örn Þórsson og Jón Örn Stefánsson. Lögreglumaðurinn er Þór Gunnlaugsson. </p><p><br></p>
Barnaból - safn089
Leikskólakrakkarnir í Barnabóli fóru og höfðu "Sleep-over" í skíðaskálanum vorið 1997. Á þessari mynd eru þær komar í svefnpokana sína, frá vinstri: Aðalheiður Ragnarsdóttir, Helena Mara Velemir og Elna Ragnarsdóttir.
Skagaströnd - safn196
Karl Árnason (d. 25.12.1995) bóndi og þúsundþjalasmiður í Víkum.
Dagný Sigmarsdóttir024
Jóney Gylfadóttir og Steindór Haraldsson vert á hótel Dagsbrún stilla sér upp á hótelinu.
Barnaból - safn170
Þorlákur Heiðar Þorgeirsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Þórður Jónsson057
Þessir þrír íþróttagarpar úr umf. Fram gerðu garðinn frægan á íþróttamótum á sinni tíð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Sigurður G. Sigurðsson og Sigurjón Úlfar Björnsson.
Óþekktur ljósmyndari198
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Bernódus var vélstjóri, tollvörður, oddviti og leikari á Skagaströnd um árabil.
Skagaströnd - safn191
Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholt. Líklega var myndin tekin þegar Ólafur ávarpaði gesti í 50 ára afmæli Þorfinns Bjarnasonar (d. 6.11.2005) oddvita og sveitarstjóra 1968. Myndina tók Guðmundur Guðnason.
Skagaströnd - safn240
Fólk fylgist með einhverju atriði á sviði á Hnappstaðatúninu á kántrýhátíð 2003. María Rós Karlsdóttir er til vinstri með rauðan trefil, Vigdís Viggósdóttir er með rauða húfu, Ardís Ólöf Arelíusdóttir er ljóshærð með gleraugu, Heiða Berglind Fannarsdóttir og Vilhelm Þórarinsson. Framan við Heiðu, með dökk gleraugu, er Erna Hreinsdóttir að tala við Söru Rut Fannarsdóttur og Sólrúnu Ágústu. Maðurinn með hattinn er Fannar Viggósson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn032
Stjórn kvenfélagsins Einingar. Aftar frá vinstri: María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003), Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) og Hjördís Sigurðardóttir. Fremri röð frá vinstri: Elísabet Árnadóttir (Bebbý) (d.16.3.2017), Björk Axelsdóttir og Helga Berndsen. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn235
Margt er sér til gamans gert í félagsstrafi aldraðra í Fellsborg. Á þessari mynd frá 16. nóvember 1998 spila þrír góðborgara á Skagaströnd. Frá vinstri: Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003).
Barnaból - safn019
Þessi mynd var tekin í júlí 1986 á leikskólanum Barnaból. Frá vinstri: Sverrir Berndsen, Sigrún Benediktsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir (fjær), óþekkt barn (nær), Sigurður Haukur Grétarsson, Erna Hreinsdóttir (fjærst), Auður Eva Guðmundsdóttir (næst) og aftan við hana er Rakel Petrea Finnsdóttir, Björgvin Ragnarsson, Jóhannes Hinriksson, Karen Peta Karlsdóttir, Haraldur Brynjar Sigurðsson, Birna Ágústsdóttir, og Vilborg Magnúsdóttir bak við hana og ?Oliver Oliversson?. Í baksýn sér í húsið Sæból sem fór illa í bruna 1987 og var þá rifið. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn141
<p>Þessi mynd mun hafa verið tekin 1952 við skírn séra Péturs Þ. Ingjaldssonar (d. 1.6.1996) á þeim Sigurveigu Alfreðsdóttur og Gunnars Gauta Gunnarssonar. Á myndinni eru frá vinstri: Ásta Brynjólfsdóttir (d. 1997) með Sigurveigu í fanginu, séra Pétur og Sigurlaug Helgadóttir (d. 2009) með Gunnar Gauta í fangi sínu. Ásta Brynjólfsdóttir var gift Alfreð Kristjánssyni en þau komu bæði frá Hrísey. Sigurlaug Helgadóttir var gift Gunnari Grímssyni ( d.2003) sem var kaupfélagsstjóri á Skagaströnd um einhver ár.</p>
Þórður Jónsson037
Verkamennirnir Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) til vinstri og Valgarð Ásgeirsson (d. 22.4.1996) múrari til hægri fá sér pilsner í pásu í vinnunni.
Skagaströnd - safn272
Hér er unnið að vatnsdælingu í sambandi við vatnsleit í Hrafndal sumarið 1996. Rolf Árnason (d. júní 2014) vinnur við sogbarkann en Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) stjórnar dælunni.
Dagný Sigmarsdóttir011
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Þráinn Bessi Gunnarsson við vinnu sína.
Skagaströnd - safn291
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Þessir tveir menn stjórnuðu framkvæmdum við bygginguna. Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari til vinstri og Helgi Gunnarsson trésmíðameistari til hægri. Myndin var tekin í líkamsræktarsal íþróttahússins.
Skagaströnd - safn214
<p>Fyrirtæki á Skagaströnd tóku þátt í atvinnulífssýningu í Reykjavík og kynntu þar framleiðsluvörur sínar og starfsemi. Á myndinni smakkar frú Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands á framleiðsluvöru frá Marska hf. Halldór Ásgrímsson ráðherra fylgist með en konan til hægri er óþekkt. </p>
Skagaströnd - safn271
Páll Jóhannesson fylgist með vatnsdælingu við vatnsleit í Hrafndal sumarið 1996.
Þórður Jónsson054
Ísleifur Haraldsson frá Jaðri, sennilega á fermingardaginn sinn. Ísleifur átti heima í eldra Jaðri, sem nú er horfinn, en stóð beint á móti þeim sem enn stendur.
Guðmundur Guðnason253
Árið 1974 komu skíðaáhugamenn á Skagaströnd upp togbraut í Spákonufellinu. Togbrautin var þannig gerð að staur var komið fyrir uppi á hólnum fyrir ofan núverandi skíðaskála. Við staurinn var fest blökk og kaðall dreginn gegnum hana og í gegnum drifhjól sem tengt var við dráttarvél. Drifhjólið var gert úr gamalli drifkúlu undan bíl og á hana var fest hjól og drifskaft sem síðan var hengt aftan á beislið á dráttarvél og tengt við drifúttak vélarinnar. Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp brekkuna. Í dag mundi svona útbúnaður aldrei vera viðurkenndur vegna öryggismála. 1979 var síðan keypt skíðalyfta og henni komið fyrir örlítið norðar í brekkunni og notuð þar í mörg ár. Á þessari mynd er skíðmennskan í fullum gangi en dráttarvélin var í eigu Ásgeirs Axelssonr (d. 8.6.2011) Litla-Felli.
Jón Jónsson233
<p>Þessi mynd var tekin í sundlauginni á Skagaströnd 1987 af þeim Helgu Kristmundsdóttur til vinstri og Jóhönnu Sveinsdóttur til hægri. </p>
Skagaströnd - safn162
Sveitarstjóraskipti 1984. Lárus Ægir Guðmundsson, sem var sveitarstjóri á árunum 1972 til 1984, afhendir Sigfúsi Jónssyni lyklavöldi sveitarstjóra en hann tók við af Lárusi og var sveitarstjóri á Skagaströnd í um það bil tvö ár þegar hann tók við sem bæjarstjóri á Akureyri. Hreppsnefndarmennirnir, frá vinstri: Adolf J. Berndsen oddviti, Magnús B. Jónsson og Gylfi Sigurðsson fylgjast með.
Þórður Jónsson050
Guðbjörg Guðjónsdóttir (d. 3.7.1981). Guðbjörg var verkakona sem bjó lengi í kjallaranum í Gamla skólanum - Bjarmanesi, en seinna bjó hún á efstu hæðinni í Herðubreið.
Skagaströnd - safn086
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd er fólk að hlusta á einhvern ræðumann. Næst okkur á myndinni eru frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Hulda Pálsdóttir (d. 9.1.1995), Páll Pétursson Alþingismaður og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996).
Séra Pétur og Dómhildur - safn168
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Næst okkur á myndinni eru Björgvin Jörgenson (d. 26.2.1999) og Anna H. Aspar (d. 1.9.1999). Maðurinn í bláa jakkanum aftan við Björgvin er Haukur Gunnlaugsson (d. 18.1.2004). Konan í hvíta jakkanum sem ber yfir höfuð Önnu er Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir026
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar tók sig saman og eyddi kvöldstund á barnum á hótel Dagsbrún ásamt mökum sínum árið 1992. Á þessari mynd eru hjónin Jóhanna Karlsdóttir og Þráinn Bessi Gunnarsson.
Óþekktur ljósmyndari215
Sigríður Helgadóttir í Skálholti. Í baksýn eru Kárastaðir til vinstri, Draumaland til hægri og fjárhús frá Flankastöðum eða Kárastöðum fjær. Myndin var tekin kringum 1945.
Skagaströnd - safn016
Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri Höfðahrepps, og eftir nafnbreytingu, Sveitarfélagsins Skagaströnd, á skrifstofu sinni.
Skagaströnd - safn205
Mikill og almennur skíðaáhugi var á Skagaströnd á áttunda áratugnum og fram eftir þeim níunda. Fólkið á þessari mynd gekk á skíðum frá Skagaströnd út að Háagerði og til baka einn sunnudag veturinn 1983. Myndin var tekin efst á Bogabrautinni áður en lagt var af stað. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Halldóra Þorláksdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Guðrún Sigurðardóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Anna Bára Sigurjónsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Bjarney Valdimarsdóttir, Viggó Magnússon og Stefán Ægir Lárusson. Börnin tvö framan við röðina eru óþekkt. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn135
Rósa Sigurðardóttir í Hólanesi á fermingardaginn sinn 1981 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri).
Óþekktur ljósmyndari179
<p>Von Hu 2. Um þennan bát segir svo í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson:<em> "Von HU 2. Báturinn var smíðaður úr eik og furu í Reykjavík 1908 og var 4,8 brl. með 12 ha Dan vél. Árið 1930 var sett í bátinn 38 ha. Tuxham vél. Hann var keyptur frá Hólmavík í júní 1944 og hét þá <strong>Von ST 22</strong>. Eigendur voru Guðmundur Jóhannesson, Guðmundur Karlsson, Hallgrímur Kristmundsson, Óskar Frímannsson og Snorri Gíslason. Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá í október 1948".</em> </p><p><br></p>
1
…
66
67
68
…
167
Leita í myndasafninu
Leita