Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jón056
Jón Gunnarsson á hestbaki á Hólabrautinni
Jón043
Kappróður á sjómannadegi 1985. Óþekkt róðrarsveit með Jón Inga Ingvarsson við stýrið.
Óþekkt088
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson les úr Biblíunni í Hólaneskirkju (gömlu) á jólum.
fram007
Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum til vinstri, þáverandi formaður USAH, afhendir Kristni Guðmundssyni umf Fram verðlaunabikar.Sennilega var Kristinn íþróttamaður ársins hjá USAH. Hvenær myndin var tekin er óþekkt en ef þú veist það vinsamlegast sendu okkur þá arhugasemd.
Jón113
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Skúli Tómas Hjartarson (til vinstri) og Viggó Magnússon sýna töffarklæðnað anno 1986.
Jón071
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) flytur ræðu við vígslu dráttarbrautarinnar 1985.
fram129
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd . 100m hlaup kvenna.
Mundi287
Á skemmtun í Tunnunni. Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) til vinstri og Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) keppa í því að vefja tvær stúlkur inn í klósettpappír. Sá sem fyrr kláraði af rúllunni hjá sér vann.
fram092

Verðlaunahafarnir á myndinni eru: Garðar Geirfinnsson lengst til vinstri, Albert Ingi Haraldson er lengst til hægri en þriðji frá hægri er Eyþór Kári Egilsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.

Jón055
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Börnin voru spennt fyrir sandkastalakeppni sem var haldin á hátíðinni.
fram065
Héraðsmót USAH í sundi 1977. 100m bringusund. 1. sæti Þórður Daði Njálsson, 2. sæti Kári ??, 3. sæti Torfi ??.
img121
Þetta eru amerískir hermenn uppi á Höfða. Luis læknir tók myndina og sendi hana svo til Carls Berndsen (eldri) eftir að hann var kominn aftur til Ameriku.
Mundi262
Kristján Hjartarson (d.2.8.2003)spilar á hamóniku fyrir fullu húsi í Tunnunni á einhverri skemmtun þar.
Mundi273
Gígja Snædal
fram120
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Margrét? stekkur langstökk.
Jón085
Leikskólabörn úr leikskólanum Barnaból á ferð með Kristínu Kristmundsdóttur og Báru Þorvaldsdóttur árið 1985. Börnin eru óþekkt. Rauða húsið í baksýn var Sæborg, sem nú er horfið. Dvalarheimilið á Skagaströnd var nefnt eftir þessu húsi.
fram014
Laárus Ægir Guðmundsson þakkar fyrir sig eftir að hafa fengið íþróttabikar á samkomu USAH í félgasheimilinu á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
fram042
17. júní mót Fram á vellinum við Fellsborg 1983. Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir kastar kúlu, Guðbjörg Gylfadóttir með málbandið og Jensína Lýðsdóttir, í hvítri úlpu, fylgist með. Aðrir eru óþekktir.
fram083

Ásdís Lýðsdóttir er lengst til vinstri, Karen Peta Karlsdóttir í miðjunni og Þóra Lísbet Gestsdóttir til hægri.

Jón057
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Hópreið niður Hólabrautina.
img122
Ernst Berndsen frá Karlsskála, hafnarvörður, lóðs, kaupmaður o.fl.
fram076

Verðlaunaafhending á íþróttamóti á Bakkakotsvelli 1999. Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir umf. Fram er lengst til vinstri, Erla Rut Valsdóttir umf. Geisla er á efsta palli og Sigurbjörg Ólafsdóttir umf. Hvöt lengst til hægri.

fram111
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Guðbjörg Gylfadóttir umf. Fram kastar kúlu.
Mundi265
Þarna er Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988) póstur og ljósmyndari. Hann stendur á rústum bæjarhúsanna á Vesturá í Laxárdal þar sem hann ólst upp fyrstu árin.
fram091

Óþekkt barn. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

fram023
Beðið við lokamarkið í víðavangshlaupi Landsbankans ca 1985.
fram099

Verðlaunahafar í víðavangshlaupi umf. Fram. Frá vinstri: Ólína Sveinsdóttir, Salóme Rúnarsdóttir með systur sína Önnu Dúnu Rúnarsdóttur og lengst til hægri er Kolbrún Ragnarsdóttir.

fram098
Þátttakendur í einum flokki í víðavangshlaupi umf. Fram tilbúnir að rjúka af stað. Myndin var tekin snemma á níunda áratugnum sennilega 1. maí eða næstu tvo laugardaga þar á eftir. Mikill snjór ennþá.
fram121
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Birna Sveinsdóttir umf. Fram keppir í langstökki.
Mundi297
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni. Frá vinstri: Helga Berndsen, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966), Ólína Marta Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994) og óþekkt leikkona.
fram048
Frjálsar iþróttir, innanhús, Íslandsmeistaramót í febrúar 1977. Kolbrún Viggósdóttir í langstökki án atrennu.
Mundi271
Þórgunnur Snædal sumarið 1960 í Ægissíðu
fram046
Frjálsar iþróttir, innanhús, Íslandsmeistaramót í febrúar 1977. Verðlaun fyrir hástökk meyja, frá vinstri: Guðrún Berndsen USAH, Þórdís Gísladóttir ÍR og óþekkt stúlka.
fram017
Lárus Ægir Guðmundsson og Magnús Ólafsson takast í hendur á USAH þingi í Fellsborg. Guðmundur Haukur Sigurðsson í forgrunni.
Mundi241
Myndin er frá dansleik í Tunnunni en ártalið er óþekkt. Fremst á myndinni eru, frá vinstri: Áslaug Torfadótti, Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Anna H. Aspar (d.1.9.1999), Herbert Ólafsson (d.25.4.3007) Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007), Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996), Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017) og Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001). Fyrir aftan Önnu og Herbert eru hjónin Högni Jensson og Ragna Friðriksdóttir (d.5.2.1981). Milli Þórbjörns og Guðmundu er Svana Fossdal (d.31.3.2002).
Mundi259
Fullt hús í Húnaveri. Tilefnið óþekkt.
fram027

Hér eru stoltir ungir menn að fá verðlaun fyrir boðhlaup. Á myndinni eru, frá vinstri: Jón Arnarson, Hrólfur Pétursson, óþekktur, Hilmar Pétur Valgarðsson, Björn Þormóður Björnsson og Hilmar Frímannsson.

fram115
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. 60m stelpna. Birna Sveinsdóttir umf. Fram lengst til hægri.
fram006
Fundur umf Fram á hótel Dagsbrún í júlí 1990. Frá vinstri: Halldór Hermannsson, óþekktur, Birna Sveinsdóttir og Anna Sjöfn Jónasdóttir.
Jón082
Sjómannadagur 1985. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom í heimsókn og var til sýnis fyrir fólk.
fram063
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Stigahæst kvenna. Unnur Hreinsdóttir
Mundi304
Herra Pétur Sigurgeirsson biskup (d. 4.6.2010).
Mundi303
Herra Pétur Sigurgeirsson (d. 4.6.2010) biskup við vinnu sína.
fram058
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Vinningssveit umf Fram í 4x25m boðsundi. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Helga Ottósdóttir, Díana Kristjánsdóttir og Lára Guðmundsdóttir.
Jón002
Gestir á planinu framan við síldarverksmiðjuna á sjómannadegi 1983.
Jón105
Hér er óþekktur jólasveinn á ferð með jólapóstinn fyrir jólin 1989. Sunnuhlíð, nú Bogabraut 19, í baksýn.
Mundi276
Gígja Snædal, bróðurdóttir Guðmundar ljósmyndara þessarar myndar
fram130
Héraðsmót USAH 1977. 400m hlaup. Ingibergur Guðmundsson til vinstri og Kristinn Guðmundsson til hægri.
Mundi292
Ólína Marta Steingrímsdóttir (d.4.2.1994) og Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966) í hlutverkum sínum á sviðinu í Tunnunni
Jón067
Við vígslu dráttarbrautarinnar 1985. Sigfús Jónsson sveitarstjóri, Pálmi Jónsson (d.9.10.2017) alþingismaður og Lárus Ægir Guðmundsson. Baksvipur á Adolf Berndsen (d.27.8.2018) oddvita. Arnarborgin í slippnum.
Mundi300
Ekki er vitað hverjir þetta eru. Eina sem vitað er um myndina er að hún var tekin 1962. Ef þú veist hverjir eru á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Mundi313
Ferming 1961 í Hofskirkju. Fermingarbörnin eru Sigríður Björk Karlsdóttir frá Víkum og Benedikt Jónsson (d.25.2.1999) frá Höfnum.
mundi359
Myndin er tekin upp Fellsbraut. Húsið lengst til vinstri er Herðubreið eða Fellsbraut 1. Ekki er búið að byggja Fellsbraut 3, en Fellsbraut 5 er ómálaða húsið til hægri. Spariklæddi maðurinn á myndinni er óþekktur en hann heldur á pípuhattinum sínum.
Jón058
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á tónleikum eða balli í skólanum. Lengst til vinstri er er líklega Sigurbjörn Þorvaldsson (d.13.8.2000) á gítar. Trommarinn er Ingvar Þór Jónsson og söngkonan er Þorbjörg Eðvarðsdóttir. Gítarleikarinn lengst til hægri er Viggó Magnússon.
fram136
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd. Ingibergur Guðmundsson keppir í kringlukasti.
Óþekkt091
Á pallinum frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Herborg Þorláksdóttir, Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Þorvaldur Skaftason að skemmta með síldar-söngvum.
fram060
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Sigurvegarar í 25m bringusundi. Frá vinstri: 1. og 2. sæti Guðrún Pálsdóttir og Díana Kristjánsdóttir, 3. sæti Hulda ??.
Jón086
Leikskólabörn úr leikskólanum Barnaból á ferð með Kristínu Kristmundsdóttur og Báru Þorvaldsdóttur árið 1985. Börnin eru óþekkt. Í baksýn sést húsið Ásbyrgi, sem nú er horfið, lengst til vinstri.
Mundi301
Drengurinn á myndinni, sem var tekin 1962, er óþekktur. Ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
fram070
Verðlaunahafar á íþróttamóti á Bakkakotsvelli 1999. Drengurinn lengst til hægri er Kristján Pétur Guðjónsson og sá í miðið er Haukur Geir Valsson en sá til vinstri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1

6
7
8

167
Leita í myndasafninu
Leita