Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jón Jónsson322
Þessi mynd var tekin í Skátaskálanum - sennilega á sjómannadaginn 1988. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Gylfi Sigurðsson og Björn Pálsson (d. 11.4.1996) alþingismaður frá Ytri- Löngumýri.
Skagaströnd - safn032
Árið 1977 var haldin ráðstefna um félagsheimili á Norðurlandi. Ráðstefnan var haldin í Fellsborg og á hana mættu sveitastjórnarmenn af Norðurlandi ásamt fleirum. Á myndinni spjalla saman, í fundarhléi, hreppsnefndarmenn frá Höfðahreppi. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) oddviti, Jón Jónsson (d. 9.7.1991) og Adolf J. Berndsen.
Guðmundur Guðnason236
Það var greinilega húsfyllir í gömlu Tunnunni á skemmtun 1. maí 1957. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn023
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru Árni Björn Ingvarsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
16
Hörður Aðils Vilhelmsson með föður sínum Vilhelm Birni Harðarsyni á nýjum sorphreinsunarbíl. Myndin var tekin 1994 þegar þeir feðgar voru nýkomnir til Skagastrandar á þessum nýja bíl.
Barnaból - safn 131
Þrír ungir drengir í bílaleik á leikskólanum Barnaból veturinn 1991. Frá vinstri: Arnór Snorri Gíslason, Sigurgeir Snævar Árnason og Leifur Ingi Vilhelmsson.
Skagaströnd - safn113
Hulda Árnadóttir (d. 14.2.2007) heilsugæsluhjúkrunarkona og Sigursteinn Guðmundsson læknir skoða tæki sem heilsugæslunni bárust að gjöf - líklega frá kvenfélaginu Eining. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1980.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn009
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á æfingu á sviðinu í Fellsborg. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Guðný Sigurðardóttir, Hallbjörn Hjartarson og Guðmundur Haukur Sigurðsson
Jón Jónsson240
Þessar stúlkur eru sælar með sælgætisafla dagsins á öskudegi 1985. Af augljósum ástæðum eru nöfn stúlknanna byggð að nokkru á ágiskunum en þær eru taldar vera, frá vinstri: Elín Ósk Ómarsdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Íris Jóna Gunnarsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir og óþekkt stúlka.
Guðmundur Guðnason259
Skíðamót var haldið við dráttarvélknúna togbraut í Spákonufelli einhverntíma á árunum 1974 - 1978. Þessir kappar mættu til að fylgjast með mótinu. Frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Jón Ingi Ingvarsson, óþekktur og Karl Berndsen (d. 12.2.1995). Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn162
Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Skagaströnd 1959 a
Myndin er af karasmíð sumarið 1959 í dráttarbrautinni sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Ef grannt er skoðað má sjá eitt kar í geymslu við Miðgarð í baksýn. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn226
Anna Eygló Skaftadóttir
Barnaból - safn274
Halla Kristín Árnadóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Barnaból - safn311
Arnrún Bára Finnsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
Barnaból - safn231
Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Skagaströnd - safn173
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd eru þau Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) fyrrverandi oddviti og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Í horninu til hægri glittir í Guðmund Jóhannesson.
Barnaból - safn 118
<p>Myndin var tekin 19. apríl 1991 á fimm ára afmæli Harðar Aðils Vilhelmssonar sem á myndinni gengur um með nammipoka og býður skólasystkinum sínum á leikskólanum Barnaból að fá sér mola. Elva Ösp Gunnarsdóttir er að fá sér en Jenný Lind Sigurjónsdóttir, í bláum smekkbuxum og Eydís Inga Sigurjónsdóttir bíða eftir að röðin komi að þeim.</p>
Guðmundur Guðnason 2 395
Sigríður Sveinsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn152
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til vinstri og vinur hans séra Friðrik Friðriksson ( d. 9.3. 1961).
Barnaból - safn243
Hákon Unnar Þórarinsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1987.
umf Fram298
Þessi mynd var tekin á fundi hjá umf Fram í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær en líklega hefur það verið kringum 1990. Í ræðustól er Halldór Hermannsson, sem var formaður Fram um tíma. Konurnar, sem sitja við borðið, eru frá vinstri: Jóhanna Harðardóttir, Steinunn Steinþórsdóttir og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Þær voru allar í stjórn Fram á þessum tíma.
Þórður Jónsson035
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin en sennilega hefur það verið upp úr 1960. Á myndinni eru félagar í skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd í skátaútilegu. Ingólfur Ármannsson félagsforingi stendur teinréttur og stjórnar einhverri uppstillingu. Skátarnir eru óþekktir nema lengst til vinstri, í dökkum jakka, er Árni Björn Birgisson og fremstur í næstu röð við hann til hægri er Lárus Ægir Guðmundsson. Steinunn Ellertsdóttir er svo í stúlknahópnum hægra megin (dökk yfirlitum) og ber yfir veifuna. Framan við hana er svo Hrafnhildur Jóhannsdóttir.
Barnaból - safn141
Þessir krakkar voru í Sæbóli, sem er deild á leikskólanum Barnaból, sennilega 2001 eða 2002. Frá vinstri: Sigríður Sól Indriðadóttir, Páll Halldórsson, Þórunn Bernódusdóttir, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Huginn Frár Guðlaugsson (nær), Ægir Jónas Jensson (fjær), Sigurbjörg Birta Berndsen, Saga Lind Víðisdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Úlfur Snær Guðmundsson, Egill Örn Ingibergsson, Valgerður Sif Indriðadóttir (fjær), Indriði Theódór Hjaltason (nær), Aldís Embla Björnsdóttir (fjær), Knútur Jensson (nær), Fjóla Ævarsdóttir, Ásdís Rán kristjánsdóttir og Ívan Árni Róbertsson. Myndina tók Páll Pálsson ljósmyndari frá Akureyri.
Séra Pétur og Dómhildur - safn174
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Maðurinn á myndinni er Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) frá Sólheimum.
Skagaströnd - safn087
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) Höfðatúni vinnur við gatnagerð í Ægisgrund sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti.
Jón Jónsson305
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni spjallar Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður við Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Í forgrunni myndarinnar er Þóra Ásgeirsdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 366
Þessi mynd er af tveimur leikurum í óþekktu leikverki. Maðurinn til vinstri er óþekktur en til hægri er líklega Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) frá Höfðakoti í hlutverki þínu.
Barnaból - safn203
Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1985.
Skagaströnd - safn127
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) flytur ræðu í hófi í Fellsborg í febrúar 1983 í tilefni af tilkomu nýrra íbúða verkamannabústaða við Mánabraut en Bernódus var einn þeirra sem keypti sér þar íbúð. Konan í brúna kjólnum er Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) kona hans. Aðrir eru óþekktir.
Jón Jónsson286
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Elín Njálsdóttir.
Ólafur Bernódusson558
Hallbjörg Jónsdóttir sýnir hér peysu sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Skagaströnd - safn128
Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d. 26.8.2008) var almennt kölluð Bibba meðal fólks á Skagaströnd og kennd við heimili sitt Reykholt. Hér er Bibba í uppvaski í Fellsborg í febrúar 1983.
Barnaból - safn 130
Fjórar litlar stúlkur í dúkkuleik á leikskólanum Barnaból veturinn 1991. Frá vinstri: Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Sóley Elsa Magnúsdóttir,Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir og Sonja Hjördís Berndsen.
Skagaströnd - safn142
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Einnig var kvölddagskrá. Veðrið lék ekki beint við hátíðargesti; norð-austan kaldi með skúraleiðingum. Fólk lét það ekki á sig fá heldur klæddi sig bara eftir veðri. Á þessari mynd er hjólbörukapphlaup í gangi. Lengst til vinstri ekur einhver óþekktur Ólafi Ingibjörnssyni, Jón Jónsson er í næstu hjólbörum en ökumaður er óþekktur. Þriðju börurnar eru undir stjórn Bóelar Hallgrímsdóttur en farþeginn er óþekktur. Lengst til hægri ekur Laufey Ingimundardóttir (d. 31.12.1992) manni sínum Jóni Inga Ingvarssyni. Ekki fer sögum af hver sigraði í þessum leik.
Jón Jónsson246
1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendur og starfsfólk vann að ýmsum verkefnum sem yfirleitt eru ekki á dagskrá í skólanum. Á þessari mynd eru krakkarnir í eldhúsinu að baka fyrir hófið sem haldið var í vikulokin. Frá vinstri: Svava Magnúsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir, Margrét Jóhannsdóttir, Elínóra Rafnsdóttir kennari, Baldur Eðvarðsson og Helga Kristmundsdóttir.
Skagaströnd - safn171
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson hreppsnefndarmaður, Guðbjörg Viggósdóttir kona hans, Guðrún Pálsdóttir starfsstúlka á skrifstofu sveitarfélagsins og Sigfús Jónsson sem tók við sveitarstjórastarfinu af Lárusi.
Barnaból - safn247
Birna Ágústsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Séra Pétur og Dómhildur - safn159
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu.. Til vinstri er Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004) en hjá henni situr Sigríður Vilhjálmsdóttir (d. 21.1.2012).
Barnaból - safn322
Katrín Björk Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Skagaströnd - safn283
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Dagný Sigmarsdóttir umboðsmaður Sjóvá- almennar í ræðustól en félagið styrkti bygginguna með fjárframlagi.
Skagaströnd - safn135
Veglega var haldið upp á 17. júní 1994. Eftir skrúðgöngu og húllumhæ sungu þessi ungu börn á sviði á Hnappstaðatúninu undir stjórn og undirleik Fannars Viggóssonar og Díönu Kristjánsdóttur. Börnin eru frá vinstri: Rakel Petrea Finnsdóttir, Ásþór Óðinn Egilsson, óþekktur, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, María Markovic, óþekkt, óþekkt, Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, sex óþekktir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Gunnar Helgason (fjær), óþekkt (nær) og Skúli Jóhannesson. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu börnunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn133
Veglega var haldið upp á 17. júní 1994. Myndin er frá skrúðgöngu dagsins. Félagar í hestamannafélaginu Snarfara tóku þátt í göngunni á fákum sínum.
Guðmundur Guðnason269
Jón Hilmar Indriðason á fermingardaginn sinn vorið 1982 í Hólaneskirkju (eldri) ásamt prestinum séra Oddi Einarssyni.
Barnaból - safn297
Íris Ósk Jóhannesdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Jón Jónsson252
<p>7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum frá vinstri: Óli Hjörvar Kristmundsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Steindór Haraldsson. </p>
Skagaströnd - safn033
Konurnar í kvenfélaginu Eining sáu um kaffiveitingar á ráðstefnu um félagsheimili á Norðurlandi í Fellsborg 1977. Á myndinni eru þær Hjördís Sigurðardóttir til vinstri og Birna Blöndal til hægri komnar á kaf í að vaska upp.
Jón Jónsson279
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) hélt upp á 50 ára afmæli sitt í Skátaskálanum 1973. Húsfyllir var í afmælinu en á myndinni er afmælisbarnið með hluta gesta sinna. Frá vinstri: Elsa ? frá Efri-Lækjardal, Geirlaug Ingvarsdóttir frá Balaskarði, Erla Jakobsdóttir Síðu, Ingibjörg Sigurðardóttir Skeggjastöðum, María Hjaltadóttir frá Neðri Harrastöðum, Sigurður Sigurðsson frá Blöndubakka, Guðmundur, Sigurður Pálsson frá Króksseli, Alda Friðgeirsdóttir frá Sviðningi, Kristján Sigurðsson frá Höskuldsstöðum og Elsa Ingvarsdóttir( d. 11.12.2007) frá Balaskarði.
Barnaból - safn059
Guðjón Örn Arason. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Barnaból - safn049
Myndin er af börnum úr leikskólanum á Blönduósi þegar þau komu í heimsókn í leikskólann Barnaból árið 1980.
Barnaból - safn164
Ragnar Ásmundur Einarsson á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Guðmundur Guðnason331
Lúðvík Kemp (d. 30. 7.1971).
Skagaströnd - safn091
Gatnagerð sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti. Á þessari mynd slaka þeir á augnablik, frá vinstri: Kristján Karlsson, Sigurður Jónsson og Einar Karlsson þar sem þeir eru við vinnu á Skagavegi.
Barnaból - safn010
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Til vinstri er Eygló Gunnarsdóttir að hjálpa syni sínum Ólafi Guðmundssyni en fjær er Signý Magnúsdóttir að hjálpa sínum syni, Árna Halldóri Eðvarðssyni.
Jón Jónsson349
Skíðagarpar með páskaeggja-verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Viggó Magnússon og Sigríður Einarsdóttir skíðakennari.
Séra Pétur og Dómhildur - safn180
Myndin var tekin í Hólaneskirkju eldri á sunnudegi í kirkjuskólanum. Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974) les fyrir börnin. Til vinstri horfir Víkingur Viggósson á ljósmyndarann en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn244
Jón Ingi Ragnarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1987
Skagaströnd - safn089
Gatnagerð sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti. Á myndinni mokar Guðmundur Björnsson olíumöl á bíla en mennirnir eru frá vinstri: Snorri Gíslason (d.29.5.1994), Einar Haraldsson (d. 14.11.1983) og hægra megin við gröfuna er Guðbjartur Sævarsson.
Skagaströnd - safn213
Höfðahreppur varð 50 ára 1989. Í tilefni af því voru ýmsir viðburðir á Skagaströnd. Þeirra á meðal var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu 29. júlí. Þessi mynd sýnir eitt af skemmtiatriðunum þar sem "síldarstúlkur" syngja með Hallbirni Hjartarsyni. Á myndinni eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Þorvaldur Skaftason, Hallbjörn Hjartarson, Guðbjörg Viggósdóttir, Guðný Sigurðardóttir, Vigdís Viggósdóttir og óþekkt.
Séra Pétur og Dómhildur - safn154
1. júlí 1998 var Kántrýbær endurvígður eftir að nýtt bjálkahús hafði verið reist á brunarústum eldra Kántrýbæjar. Af þessu tilefni var fólki boðið að koma og skoða bæinn og njóta veitinga. Húsfyllir var og leist fólki vel á nýju bygginguna. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Hjörtur Guðmundsson, Hallbjörn Hjartarson eigandi Kántrýbæjar, tveir óþekktir, Hörður Ragnarsson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Fríða Hafsteinsdóttir. Aðalbjörg styður hönd á öxl Friðvins Inga Berndsen. Aðrir eru óþekktir.
1
…
71
72
73
…
167
Leita í myndasafninu
Leita