Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
umf Fram303
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, eru krakkarnir og leiðbeinendurnir í heimsókn að Brandaskarði. Frá vinstri: Eydís Einarsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir (fjær), Bergrós Hafsteinsdóttir (nær), Páll Halldórsson (fjær), Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir (nær), Alma Eik Sævarsdóttir, Ívan Árni Róbertsson og Sylvía Hrólfsdóttir.
Barnaból - safn 097
Flestir hafa gaman af að skoða gamlar myndir. Á þessari mynd, sem tekin var 26. maí 2001, er fólk að skoða gömul myndaalbúm sem innihalda myndir frá starfi leikskólans Barnaból. Á myndinni eru frá vinstri talið: Einar Haukur Arason (fjær), Einar Ari Einarsson (nær), Guðjón Páll Hafsteinsson, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006), Linda Rún Einarsdóttir og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir.
Barnaból - safn300
Ragnheiður Erla Stefánsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Óþekktur ljósmyndari354
Þessi maður er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn276
María Jóna Gunnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Jón Jónsson229
17. júní 1988 var haldið upp á 60 ára vígsluafmæli Hólaneskirkju eldri. Myndin er frá kaffiveislu í Fellsborg af þessu tilefni. Á myndinni eru frá vinstri: Jóhanna Ólafsdóttir, óþekkt kona við borðsendann, Guðmunda Pétursdóttir (d. 2.2.2001), Guðmann Magnússon (d. 22.11.2000) frá Vindhæli, María Ólafsdóttir (d. 13.5.2006) kona hans, Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka, Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) maður hennar og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) frá Höfðatúni. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn031
Mæðgurnar Guðrún Ásta Guðmundsdóttir og Guðrúna Hrólfsdóttir (fjær) baka piparkökur í leikskólanum Barnaból 16. desember 1984.
Ólafur Bernódusson 556
Sveinn Ingi Grímsson var refaskytta á Skagaströnd og í Skagabyggð í mörg ár. Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er hann nýkominn úr vel heppnuðum grenjatúr. Hann náði báðu fullorðnu dýrunum og þremur ylfingum þeirra.
Barnaból - safn189
<p>Hafsteinn Auðunn Björnsson á leikskólaárum sínum fyrir 1990</p>
Skagaströnd - safn114
Þessi mynd var tekin veturinn 1982 þegar Örvar Hu 21 var sjósettur í fyrsta sinn frá Slippstöðinni á Akureyri. Fólkið á myndinni er stjórnarmenn, framkvæmdastjóri, skipstjóri og kona hans en hún gaf skipinu nafn. Frá vinstri: Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012)stjórnarmaður, Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri, Halldóra Þorláksdóttir, Karl Berndsen (d. 12.2.1995) stjórnarformaður, Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) stjórnarmaður, Jón Ingi Ingvarsson stjórnarmaður og Gylfi Sigurðsson stjórnarmaður.
Barnaból - safn058
Ólína Selma Þórarinsdóttir. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Skagaströnd - safn232
Kaffifundur í kaffistofu Hólanes hf 1994, sennilega hluthafafundur í Skagstrendings hf. Við borðið sitja frá vinstri: Davíð Bragi Björgvinsson, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Stefán Jónsson (d. 29.6.2009), Sigríður Höskuldsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Guðrún Angantýsdóttir og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006). Hrönn Árnadóttir skoðar myndirnar á veggnum með son sinn Brynjar Max Ólafsson í fanginu og hjá henni stendur dóttir hennar Rebekka Laufey Ólafsdóttir og skoðar með henni.
Jón Jónsson258
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru, frá vinstri, í hlutverkum sínum: Hendrik Berndsen, Sigrún Jónsdóttir, Ingimar Oddsson og Þorvaldur Skaftason með gítarinn.
Guðmundur Guðnason255
Tilefni þessarar myndar voru hátíðahöld 1974 í Kirkjuhvammi við Hvammstanga vegna 1100 ára byggðar á Íslandi . Á henni flytur Guðlaugur H. Einarsson ljóð úr ræðustóli en aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Skagaströnd, Grímur Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ, Páll Þórðarson Sauðanesi, Sigurður Þorbjarnarson (d. 15.3.2002) Geitaskarði, Jóhannes ??? oddviti á Laugarbakka, Egill Gunnlaugsson Hvammstanga, Sigurbjartur Frimannsson á Sólbakka í Víðidal og Þorbjörg Bergþórsdóttir (d. 7.5.1981) Blönduósi. Allt var þetta fólk fulltrúar í sýslunefndum.
Skagaströnd - safn157
Þessi mynd var tekin þegar verið var að steypa upp Stjórnsýsluhúsið á Skagaströnd. Helgi Gunnarsson, sem er með hjálm á myndinni, var verktaki og yfirsmiður við bygginguna en Jón Hannesson (d. 10.9.2002) átti og rak Steypustöð Blönduóss, sem sá um að framleiða steypuna í stjórnsýsluhúsið.
Guðmundur Guðnason 2345
Það var virðulegur blær á Skrapatungurétt á þessum réttardegi með tveimur fánum á hliðinu. Líklega hefur réttin verið byggð 1957 en hún er enn notuð á hverju hausti.
umf Fram305
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, er Eydís Einarsdóttir, leiðbeinandi á námskeiðinu, að strjúka kettlingi í heimsókn að Brandaskarði.
Barnaból - safn 135
"Þegar lægst er á lofti sólin, loksins koma jólin........" Myndin var tekin þegar Gluggagægir kom í heimsókn á leikskólann Barnaból á litlu jólum 1991. Litlu jólin eru mikill hátíðisdagur barnanna því þá koma jólasveinar í heimsókn og allir dansa með þeim kringum skreytt jólatré og þiggja eitthvert góðgæti úr pokanum hjá sveinka. Ljósmyndasafnið óskar öllum gleðilegra jóla og friðs og farsældar á komandi tímum. Um leið þakkar safnið öllum þeim sem sýnt hafa því áhuga og velvilja, til dæmis með að senda inn ábendingar og leiðréttingar vegna mynda safnsins. Einnig þökkum við þeim sem hafa laumað að okkur myndum úr einkasafni sínu. Þannig myndum er öllum skilað aftur til eigenda eftir að hafa verið settar út á netið svo aðrir geti notið þeirra.
Skagaströnd - safn167
Sigursteinn Guðmundsson læknir, til vinstri, tekur við lækningatækjum fyrir Heilsugæsluna á Skagaströnd úr höndum Bernódusar Ólafssonar (d. 18.9.1996) oddvita Höfðahrepps einhverntíma á árunum 1974 - 1978. Tækin gáfu kvenfélagskonur í Einingu.
Skagaströnd - safn242
Að lokinni sumarvinnu 2001 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða og í sund í sundlauginni á Skagaströnd. Á myndinni er Sigurbjörn Björgvinsson (Sibbi) að gera sig kláran fyrir sundsprett.
Barnaból - safn045
Þessi mynd var tekin í ágúst 1982 af þeim Viktori Péturssyni, Hildi Ingu Rúnarsdóttur og Ólafi Magnússyni (frá vinstri talið) þar sem þau voru búin að grafa sig djúpt ofan í sandkassa við leikskólann Barnaból.
Jón Jónsson256
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Þorvaldur Skaftason (fjær), William Sillar (nær), Óli Hjörvar Kristmundsson, Ingimar Oddsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Kristín Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Herborg Þorláksdóttir og svo sér aftan á Gunnar Halldór Hallbjörnsson.
Jón Jónsson306
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru hjónin Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000). Aftan við þau til hægri er tengdsonur þeirra Adolf H. Berndsen.
Barnaból - safn039
Piparkökur bakaðar á leikskólanum Barnaból 14. desember 1983. Á myndinni eru Sigríður Gestsdóttir og sonur hennar Jón Örn Stefánsson að skera út kökur úr deiginu og skreyta þær.
Barnaból - safn302
Eydís Ósk Einarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990
Séra Pétur og Dómhildur - safn166
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Á myndinni eru heiðurshjónin Þorbjörg Bergmann Jónasdóttir (d. 11.10.2005) og Hallgrímur Eðvarðsson (d. 18.11.2000) frá Helgavatni í Vatnsdal.
Jón Jónsson320
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru skemmtiatriði í gangi. Magnús B. Jónsson sveitarstjóri til vinstri og Adolf J. Berndsen oddviti til hægri búa sig undir að keppa í að mata hvorn annan á júgúrt í kappi við annað par.
Séra Pétur og Dómhildur - safn137
Myndin er frá skírn Jóhanns Guðbjarts Sigurjónssonar í Hólaneskirkju (eldri). Foreldrarnir Hrafnhildur Jóhannsdóttir og Sigurjón Guðbjartsson standa hjá séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) sem heldur á Jóhanni í fanginu. Katrín Sigurjónsdóttir systir Jóhanns stendur hjá mömu sinni.
Ólafur Bernódusson565
<p>Á þessari mynd, frá 2001, æfa presturinn séra Magnús Magnússon og félagar úr kirkjukór Hólaneskirkju söng til að syngja fyrir söngfélaga sinn úr kórnum, Gylfa Sigurðsson, sem átti 60 ára afmæli nokkrum dögum síðar. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson með gítarinn, Einar Haukur Arason, Valdimar Þórðarson, Sigurjón Guðbjartsson, Sigurður Bjarnson, séra Magnús og Ólafur Bernódusson. Ungi aðdáandinn sem situr framan við karlana og hlustar er Páll Halldórsson. </p>
Barnaból - safn084
30. apríl 1997 var þesi mynd tekin af krökkum í hvíldarstund í leikskólanum Barnaból. Frá vinstri: Sonja Sif Ólafsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, óþekktur, Halla Björk Víðisdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir og Ólína Selma Þórarinsdóttir.
Barnaból - safn 102
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni er frá vinstri: Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir (fjær), Ívar Logi Grétarsson (nær), Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir og Sandra Ómarsdóttir.
Skagaströnd - safn282
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Skarphéðinn Ragnarsson þáverandi svæðisstjóri VÍS í ræðustól en VÍS styrkti bygginguna með fjárframlagi.
Guðmundur Guðnason 2 225
Karlakór syngur við hátíðlegt tækifæri í Húnveri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Því miður er filman orðin slæm þannig að ekki er auðvelt að þekkja mennina á myndinni en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn248
Andri Þór Ómarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn017
Þessi mynd var tekin í júlí 1986 á leikskólalóðinni við Barnaból í blíðskapar veðri. Frá vinstri Vilborg Magnúsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Brynjar Sigurðsson og Erna Hreinsdóttir.
Barnaból - safn150
Eva Rún Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Barnaból - safn202
Sigríður Olga Magnúsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Guðmundur Guðnason321
Skarphéðinn Eiríksson frá Vatnshlíð á hestbaki.
Barnaból - safn143
Þessi mynd var tekin af börnunum í Lundi í leikskólanum Barnabóli eftir hádegi í apríl 2001. Fremri röð frá vinstri: Guðrún Helga Magnúsdóttir, Ásdís Birta Árnadóttir, Magnús Jens Magnússon, Ástrós Anna Gestsdóttir, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Sigurjón Elí Eiríksson, Róbert Björn Ingvarsson, Ásdís Erla Steingrímsdóttir og Rakel Jensína Jónsdóttir í fanginu á Lilju Ingólfsdóttur. Aftari röð frá vinstri: Birkir Bergsson, Þórey Jónsdóttir, Guðmann Einar Magnússon, Margrét Júlía Óladóttir, Birta Dögg Bessadóttir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Friðmar Kári Eiríksson, Kristný Huld Einarsdóttir, Aron Breki Hjartarson, Sesselja Karitas Óladóttir og Eik Guðmundsdóttir. Myndina tók Páll Pálsson ljósmyndari frá Akureyri.
Barnaból - safn283
Ásdís Adda Ólafsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990
Barnaból - safn008
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Á myndinni er Björgvin Ragnarsson að raða kökum á bökunarpappír en móðir hans Rut Jónasdóttir fylgist með.
Barnaból - safn 101
Oft er gaman í leikskólanum Barnaból. Á myndinni er Einar Ari Einarsson í leigur-hjóla-aksti með vins sinn ? Jensson í fötu aftan á þríhjólinu. Greinilega eru báðir ánægðir með fyrirkomulagið.
Barnaból - safn053
Sonja Sif Ólafsdóttir. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból.
Barnaból - safn055
Elna Ragnarsdóttir. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Skagaströnd - safn254
Indíánatjald reist á tjaldsvæðinu fyrir síðustu kántrýhátíðina sem var haldin 2002. Á myndinni eru frá vinstri: Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Magnús B. Jónsson, Rósa Björg Högnadóttir, Kristín Þórðardóttir (uppi í stiga), Íris Valgeirsdóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir.
Skagaströnd - safn298
16. nóvember 1998 var þessi mynd tekin í félgasstarfi aldraðra í Fellsborg. Þarna spila, frá vinstri talið: Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Jóhanna Jónasdóttir og bróðir hennar Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011).
Jón Jónsson230
<p>Þessir krakkar tóku þátt í einu af víðavangshlaupum umf. Fram sem yfirleitt voru haldin í maí á hverju ári. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri: Sonja Berndsen, Sveinþór Ari Arason, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Tinna Gunnarsdóttir, Eva Bergþórsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, óþekkt, óþekkt og Guðni Már Lýðsson. </p>
DX-2
Hjónin Þröstur Árnason og Vigdís Elva Þorgeirsdóttir baka hér piparkökur með syni sínum Auðunni Árna Þrastarsyni í Barnabóli 30. nóvember 2002.
Barnaból - safn066
Gunnar Már Sæmundsson. Myndin var tekin 23. ágúst 1996 á leikskólanum Barnaból.
Skagaströnd - safn192
Leikritið: Klerkar í klípu, var sett up í gömlu Tunnunni undir leikstjórn Birnu Blöndal. Ártalið er óþekkt. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hörður Ragnarsson, Guðný Sigurðardóttir og Björg Ólafsdóttir (d. 1.4.2007). Myndina tók Guðmundur Guðnason.
Guðmundur Guðnason295
Séra Róbert Jack í ræðustól í Húnaveri. Tilefnið var hátíð vegna 100 ára afmælis Bergstaðakirkju 1983.
DX-10
<p>Hér baka mæðgurnar Dagný Úlfarsdóttir og Elín Ósk Björnsdóttir piparkökur á leikskólanum Barnabóli 30. nóvember 2002.</p>
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn017
Þessi mynd var tekin heima í eldhúsi á Túnbraut 5 efri hæð til vinstri. Á henni má sjá þrjú af börnum Guðrúnar Soffíu Pétursdóttur og Guðjóns Guðjónssonar - Obbu og Jonna. Frá vinstri: Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Guðjón Ebbi Guðjónsson og Þorlákur Ómar Guðjónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Guðjón Ebbi fæddist árið 1983 þannig að myndin gæti hafa verið tekin 1984 eða 1985.
Barnaból - safn 125
Myndin var tekin 8. júlí 1991 í grillveislu af leikskólakrökkum sem voru í Barnabóli fyrir hádegi á þeim tíma. Aftasta röð frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir, Sóley Elsa Magnúsdóttir, Albert Ingi Haraldsson, Eva Rún Rúnarsdóttir og Ragnar Stefán Rögnvaldsson. Miðröð frá vinstri: Jón Atli Magnússon, Kristján Pétur Guðjónsson, Ívar Gylfason, Fjóla Dögg Björnsdóttir og Kristbjörg Una Guðmundsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Sonja Berndsen, Sigurgeir Árnason, Arnór Gíslason og óþekkt barn.
Barnaból - safn064
Aðalheiður Ragnarsdóttir. Myndin var tekin 23. ágúst 1996 á leikskólanum Barnaból.
Skagaströnd - safn230
Erla Lárusdóttir með barn í skírnarkjól.
Barnaból - safn221
Bryndís Axelsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd á tröppunum heima hjá Hallgrími afa sínum að Hólabraut 14 áriðm 1981 eða 1982.
DX-6
Á þesari mynd eru, frá vinstri, mæðgurnar: Drífa Kristjánsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir og Þorgerður Guðmundsdóttir að baka piparkökur á leikskólanum Barnabóli 30. nóvember 2002.
Ólafur Bernódusson 558
Þessi mynd var tekin í september 1989 þegar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri afhenti Guðrúnu Berndsen lyklana að nýrri leiguíbúð Höfðahrepps að Skagavegi 10.
Barnaból - safn173
Birgitta Maggý Valsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
1
…
73
74
75
…
167
Leita í myndasafninu
Leita