Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Barnaból - safn084
30. apríl 1997 var þesi mynd tekin af krökkum í hvíldarstund í leikskólanum Barnaból. Frá vinstri: Sonja Sif Ólafsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, óþekktur, Halla Björk Víðisdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir og Ólína Selma Þórarinsdóttir.
Barnaból - safn 099

Krakkarnir í leikskólanum Barnaból fóru í heimsókn að Steinnýjarstöðum 22. maí 2001. Eitt af ævintýrunum sem krakkarnir upplifðu var ferðalag á vagni sem dregin var af dráttarvél. Á myndinni eru börnin og starfsmenn á vagninum en Guðrún Sigurðardóttir gengur með til öryggis.

Barnaból - safn063
Elías Kristinn Sæmundsson. Myndin var tekin 23. ágúst 1996 á leikskólanum Barnaból.
Ólafur Bernódusson565

Á þessari mynd, frá 2001, æfa presturinn séra Magnús Magnússon og félagar úr kirkjukór Hólaneskirkju söng til að syngja fyrir söngfélaga sinn úr kórnum, Gylfa Sigurðsson, sem átti 60 ára afmæli nokkrum dögum síðar. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson með gítarinn, Einar Haukur Arason, Valdimar Þórðarson, Sigurjón Guðbjartsson, Sigurður Bjarnson, séra Magnús og Ólafur Bernódusson. Ungi aðdáandinn sem situr framan við karlana og hlustar er Páll Halldórsson.

Jón Jónsson248
Sú hefð hefur skapast á árshátíðum Höfðaskóla að kennararnir koma fram með eitt skemmtiatriði í lokin. Á þessari mynd sýna kennararnir fimleika undir stjórn Ingu Matthíasdóttur íþróttakennara. Í neðstu röðinni eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson og Ingibergur Guðmundsson. Kennararnir í miðröðinni eru óþekktir en efst trónir skólastjórinn Jón Pálsson.
Guðmundur Guðnason 2 361
Rósberg G. Snædal (d. 9.1.1983) talar á vormóti í Vaglaskógi 1948.
Barnaból - safn 132
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir hjálpar ömmubarninu sínu, Herði Aðils Vilhelmssyni, að baka á árlegum piparkökudegi í leikskólanum Barnaból 1991. Sama gerir Ernst Berndsen með syni sínum Friðvin Inga Berndsen.
Guðmundur Guðnason 2 383
Valgarður Bertelsson á fermingardaginn sinn.
Barnaból - safn016
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Elva Dröfn Árnadóttir horfir á ljósmyndarann en bak við hana situr móðir hennar Hlíf Sigurðardóttir. Til hægri, niðursokkinn við kökurnar sínar, er Vignir Hafþórsson.
Skagaströnd - safn155
Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) við járnaborðið við byggingu stjórnsýsluhússins á Skagaströnd.
Barnaból - safn027
Mæðgurnar Sesselja Guðmundsdóttir og dóttir hennar Hildur Inga Rúnarsdóttir á piparkökudegi í Barnabóli 16. desedmber 1984.
Barnaból - safn250
Sigurður Haukur Grétarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Jón Jónsson227
Þessi mynd var tekin í Hólaneskirkju eldri 17. júní 1988. Þá voru liðin 60 ár frá vígslu kirkjunnar. Til messunnar mættu fjögur fermingarsystkin sem fermd voru á vígsludeginum 17. júní 1928. Þau voru: Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) sem er önnur frá hægri á fremsta bekk og svo á bekknum fyrir aftan frá hægri: Guðmunda Pétursdóttir (d. 2.2.2001), Henryetta Berndsen (d.?) og Guðmann Magnússon (d. 22.11.2000). Aðrir á myndinni eru: Ása Jóhannsdóttir lengst til hægri á fremsta bekk, Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) sem situr við hlið Sigríðar konu sinnar og svo er óþekkt kona lengst til vinstri á fremsta bekk. Aftast til vinstri við Guðmann er Guðrún Angantýsdóttir.
Jón Jónsson267
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi leikritið Er þetta ekki mitt líf? veturinn 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Vilmundur Árnason, Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson, Guðný Sigurðardóttir og Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) í hlutverkum sínum.
Skagaströnd - safn239
Björgvin Halldórsson syngur einsöng með kirkjukór Hólaneskirkju á sviði á Hnappstaðatúni á Kántrýhátíð 2003. Kórfélagarnir sem sjást aftan við Björgvin eru frá vinstri: Aðalheiður Marta Steindórsdóttir (nær), Halla Kristín Árnadóttir (fjær), Hrafnhildur Jóhannsdóttir (nær), Hallbjörg Jónsdóttir (fjær), Bára Þorvaldsdóttir, Sigurður Bjarnason, óþekkt (nær), Guðbjörg Ólafsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sigríður Gestsdóttir. Óskar Einarsson sjórnandi spilar undir á hljómborð.
Barnaból - safn207
Systurnar Rakel Sara Gunnarsdóttir vinstra megin og Ragna Fanney Gunnarsdóttir til hægri á leikskólaárum sínum kringum 1985.
Árni Geir Ingvarsson - safn 465
Víkingur Viggósson við snjómokstur á veginum norðan við Hafurstaði. Sennilega var myndin tekinn annað hvort árið 1995 eða 1996.
Jón Jónsson254

7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir í hlutverki sínu.

Jón Jónsson327
Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf um borð í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefnið var.
Skagaströnd - safn134
Veglega var haldið upp á 17. júní 1994. Eftir skrúðgöngu sungu ung börn fyrir gesti undir leiðsögn og undirspili Fannars Viggóssonar og Díönu Kristjánsdóttur. Börnin á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, María Markovic, óþekkt, Heiða Berglind Fannarsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson268
Á þessari mynd eru leikarar og starfsfólk sem kom að sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Er þetta ekki mitt líf? veturinn
1983. Frá vinstri: Þorvaldur Skaftason, Fannar Viggósson, Guðný Sigurðardóttir, Eðvarð Hallgrímsson, Vilmundur Árnason, Karl Lúðvíksson, Ólafur Bernódusson, Díana Kristjánsdóttir, Magnús Blöndal (d. 7.9.2001), Guðbjörg Viggósdóttir, Ólöf Ardís Arelíusdóttir (fjær), Ari Þórsson (nær), Ásgeir Sigurvaldason leikstjóri, Guðjón Árnason (nær), Magnús B. Jónsson (fjær), Elín Njálsdóttir, Kristján Blöndal og Ágústa Friðriksdóttir.
Guðmundur Guðnason232
Myndin er frá heimsókn Loinsmanna frá Skagaströnd til Siglufjarðar ásamt mökum. Hér er fólkið að skoða sundlaug Siglufjarðar. Frá vinstri: óþekktur, Jón Pálsson, óþekkt, Edda Pálsdóttir, óþekkt, óþekktur, Björk Axelsdóttir, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005), Hörður Ragnarsson, ?Sigurður Guðmonsson? (d. 5.8.1981), tveir óþekktir og Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978).
Barnaból - safn159
Anna María Magnúsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Séra Pétur og Dómhildur - safn133
Fermingarbörn 1981 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri). Í fremstu röð frá vinstri: Bergþóra Huld Birgisdóttir, séra Pétur, Svenny Hallbjörnsdóttir og Rósa Sigurðardóttir. Miðröð frá vinstri: Ólafur Sveinn Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Hrólfur Pétursson og Björn Hallbjörnsson. Aftasta röð frá vinstri: Þórarinn Kári Þórsson, Birna Sveinsdóttir, Arnar Arnarsson, Laufey Vilmundardóttir og Ingvar Þór Jónsson.
Guðmundur Guðnason 2 360

Á þessari mynd halda í hrúta sína á hrútasýningu á óþekktum stað, frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson (d. 20.10.1977) Holti Svínadal, Eysteinn Erlendsson (d. 27.10.1969) frá Beinakeldu, Leifur Sveinbjörnsson (d. 22.2.2008) í Hnausum, Reynir Steingrímsson (d. 3.11.1989) í Hvammi, Vatnsdal og Hannes Guðmundsson (d. 10.9.2008) á Auðkúlu. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.

Guðmundur Guðnason288
Þessir þrír herramenn eru að gera sér glaðan dag af óþekktu tilefni. Frá vinstri: óþekktur, Óskar Axelsson Ásholti og Jónmundur Ólafsson frá Kambakoti
Barnaból - safn228
Elva Dröfn Árnadóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn176
María Markovic á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 401
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er verið að vinna við að koma fyrir frárennslislögn vestur úr fjörunni fyrir neðan sundlaugina. Maðurinn á myndinni er Rolf Árnason (d. ?) tæknifræðingur.
Barnaból - safn288
Rósa Björk Einarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn 102
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni er frá vinstri: Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir (fjær), Ívar Logi Grétarsson (nær), Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir og Sandra Ómarsdóttir.
Barnaból - safn 107
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni eru frá vinstri: Tinna Björk Gunnarsdóttir, Bergþór Gunnarsson og dóttir hans Eva Dögg Bergþórsdóttir.
DX-6
Á þesari mynd eru, frá vinstri, mæðgurnar: Drífa Kristjánsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir og Þorgerður Guðmundsdóttir að baka piparkökur á leikskólanum Barnabóli 30. nóvember 2002.
Ólafur Bernódusson 558
Þessi mynd var tekin í september 1989 þegar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri afhenti Guðrúnu Berndsen lyklana að nýrri leiguíbúð Höfðahrepps að Skagavegi 10.
Barnaból - safn173
Birgitta Maggý Valsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn001

Barnaafmæli á Suðuvegi 9 sennilega vegna afmælis Kristjáns Péturs Guðjónssonar. Hann á afmæli í september þannig að myndin hefur sennilega verið tekin í þeim mánuði einhverntíma á árunum 1997 -1999. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurgeir Snævar Árnason, Sunna Gylfadóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Hanna Gylfadóttir og Arnór Snorri Gíslason.

Guðmundur Guðnason 2 422
Þessi mynd var tekin á fyrstu kántrýhátíðinni 1984. Þessi fyrsta hátíð var ekki eins fjölsótt og þær sem síðar voru haldnar. Myndin sýnir hluta gesta hlýða á kántrýmessu. Sitjandi frá vinstri: Kristbjörg Antonsdóttir, Una D. Kristjánsdóttir, tvö óþekkt börn, óþekktur maður (nær), Bjarney Valdimarsdóttir (fjær), Erla María Lárusdóttir (stendur), Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Lára Guðmundsdóttir, Soffía Lárusdóttir?, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), óþekkt, Fannar Viggósson og Erna Berglind Hreinsdóttir. Aðrir sem sitja eru óþekktir. Standandi frá vinstri: Jón Helgason, óþekkt, Pétur Eggertsson, Sylvía Hrólfsdóttir, Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993) (nær), Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1996) (fjær), fjórir óþekktir, Guðmundur Jóhannesson og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006). Aðrir eru óþekktir nema maðurinn við kvikmyndavélina er Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og framleiðandi en hann gerði heimildamynd um kántrýhátíðina 1984 sem hann kallaði: Kúreki norðursins.
Skagaströnd - safn165
Soffía Lárusdóttir(d. 31.3.2010) flytur tölu í tilefni af því að kvenfélagið Eining var að gefa lækningatæki á Heilsugæsluna á Skagaströnd einhverntíma á árunum 1974 - 1978.
Skagaströnd - safn102
Við H 17 standa þeir Engilbert Óskarsson bílstjóri frá Skagaströnd og Friðgeir Jóhannsson frá Ósi í Nesjum. Ekki er vitað hvað þeir félagar voru að fara en myndin var sennilega tekin kringum 1940.
Barnaból - safn265
Hjörtur Jónas Guðmundsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1983.
Guðmundur Guðnason 2 357
Kastarinn í hringnum er Þorleifur Arason (d. 11.11.1991) og bak við hann er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), sem sennilega hefur skrifað niður árangur kastarans. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn195
Auður Dagný Kristinsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Barnaból - safn 109
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni eru mæðginin Málfríður Jóhannsdóttir og Stefán Gunnarsson í óða önn að skreyta kökurnar sínar.
Barnaból - safn140
Skólaspjald frá leikskólanum Barnabóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1985. Fremsta röð frá vinstri: Sigrún Líndal Þrastardóttir, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Kristín Dís Sigurðardóttir, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Hinrik Oliversson, Emelía Rós Sigfúsdóttir, Birkir Rafn Gíslason og Vignir Hafþórsson. Næst fremsta röð frá vinstri: Sigríður Oddsdóttir, Fjóla Ómarsdóttir, Kolbrún Eðvarðsdóttir, Áslaug Ottósdóttir, Birna Ágústsdóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir, Sveinþór Ari Arason, Hulda ?, Einar Oddsson, Andri Ómarsson og Valrún Eva Vilhelmsdóttir. Öftustu tvær raðirnar frá vinstri: Haraldur Brynjar Sigurðsson, Kristín Kristmundsdóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Dagný Sigmarsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Erla María Lárusdóttir, Auður Eva Guðmundsdóttir, Sigrún Benediktsdóttir, Magnús Líndal Þrastarson, Sverrir Berndsen, Trausti Magnússon, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Elva Mjöll Þórsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir leikskólastjóri.
Barnaból - safn183
Sveinþór Ari Arason á leikskólaárum sínum fyrir 1990.
Skagaströnd - safn253
Að lokinni sumarvinnu 2001 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða og í sund í sundlauginni á Skagaströnd. Á myndinni eru Ragnar Ingvarsson til vinstri og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) að gera sig klára fyrir sundsprett.
Ólafur Bernódusson566
Ívan Árni Róbertsson og Guðrún Anna Halldórsdóttir brosmild með banana í eldhúsinu hjá ömmu á Bogabraut 27. Myndin var tekin kringum árið 2000.
Barnaból - safn196
Hinrik Þór Oliversson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin um jólin 1981.
Skagaströnd - safn206
Guðjón Guðjónsson skipstjóri.
Barnaból - safn218
Jón Ólafur Sigurjónsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980
Jón Jónsson275
Skíðaskálinn í Spákonufelli var vígður vorið 1985. Skálinn var að mestu byggður í sjálfboðavinnu af skíðaáhugafólki. Á þessari mynd er fólk að njóta veitinga í tilefni dagsins. Frá vinstri: Egill Bjarki Gunnarsson, Viggó Brynjólfsson, óþekkt, Guðmundur Jóhannesson, Gunnar Sveinsson, Sylvía Hrólfsdóttir, Viktor Pétursson og Pétur Eggertsson,
Skagaströnd - safn231
Gylfi Sigurðsson í ræðustól á fundi í kaffistofu Hólaness hf 1994. Fundarefnið er ekki þekkt en gæti verið hluthafafundur hjá Skagstrendingi hf þar sem Gylfi var stjórnarformaður um tíma.
Guðmundur Guðnason 2 380
Þessi mynd var tekin framan við Höskuldsstaðakirkju - líklega á vígsludegi hennar vorið 1963. Lengst til vinstri er Jónmundur Ólafsson frá Kambakoti og næstur honum, með derhúfu, er Árni Kristófersson (d.11.10.1982) frá Árnesi á Skagaströnd. Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku á Skagaströnd snýr andlitinu að ljósmyndaranum og ber í dyrnar vinstra megin. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn071
Jóhann Örn Stefánsson. Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Barnaból - safn213
Viggó Maríasson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Jón Jónsson282
Þessi mynd var tekin á tröppum Hólaneskirkju (eldri) að lokinni innsetningarmessu þegar séra Oddur Einarsson var settur inn í embætti sem sóknarprestur á Skagaströnd 1981. Á myndinni eru frá vinstri: séra Ólafur Hallgrímsson, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006).
Barnaból - safn191
Erla Björgheim Pálsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Skagaströnd - safn044
Að lokinni hafnargerð í Skagastrandarhöfn 1978, þar sem byggður var viðlegukanturinn Ásgarður, var haldið hóf með þeim sem helst komu að framkvæmdunum. Á þessari mynd eru Sigurður Ingi skrifstofustjóri hjá Vitamál til vinstri og Adolf J. Berndsen til hægri.
Barnaból - safn091

Í tilefni af 20 ára afmælis Barnabóls fengu allir afmælishúfur á kollinn. Á þessari mynd sem tekin var 19. júní 1997 eru frá vinstri: Maríanna Ástmarsdóttir, óþekkt, Elna Ragnarsdóttir, Sævar Hlynur Tryggvason, Þórir Óskar Björnsson, Hafrún Kristjánsdóttir, Guðjón Örn Arason, Arnar Freyr Sigurjónsson og Kristján Ýmir Hjartarson.

Jón Jónsson293
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Magdalena Jóhannsdóttir og Steinunn Friðriksdóttir.
1

74
75
76

167
Leita í myndasafninu
Leita