Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Barnaból - safn256
Erla María Lárusdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Guðmundur Guðnason278
<p>Þetta fólk með Guðmundi Guðnasyni (d. 21.11.1988) eru afkomendur séra Gunnars Árnasonar á Æsustöðum. Haraldur Ólafsson, tengdasonur Gunnars er lengt til vinstri og Hólmfríður Gunnarsdóttir kona hans við hlið hans. Séra Gunnar er á miðri mynd við hlið Guðmundar sem er í ljósum buxum. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Skagaströnd - safn280
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Ingibergur Guðmundsson þáverandi skólastjóri Höfðaskóla fagnar tilkomu hússins.
Guðmundur Guðnason311
Þessi mynd var tekin utan við gamla bæinn á Höskuldsstöðum af biskupshjónunum þeim: Magneu Þorkelsdóttur (d. 10.4.2006) og herra Sigurbirni Einarssyni (d. 28.8.2008) biskupi. Til hægri á myndinni eru þeir Ingvar Ástmarsson lengst til hægri og Benóný Gunnarsson við hlið hans. Konan í bakgrunninum er Petrea Jónsdóttir (d. 22.3.1972) frá Skrapatungu.
Guðmundur Guðnason 2 413
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað:<em> Konur í Vatnsdal. Sigrún Grímsdóttir í Saurbæ lengst til hægri.</em> Önnur frá vinstri er Elín Sigurtryggvadóttir frá Kornsá þriðja frá vinstri er Ragnheiður Blöndal frá Brúsastöðum og konan í bleiku dragtinni er Lilja Halldórsdóttir (d. 29.9.1997) frá Haukagili. Næst lengst til hægri er líklega Guðlaug Ólafsdóttir frá Snærisstöðum. Konan lengst til vinstri er Fjóla ? frá Hvammi (kona Hallgríms Guðjónssonar).
Ólafur Bernódusson556
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru Valrún Eva Vilhelmsdóttir til vinstri og Dagbjört Agnarsdóttir til hægri.
Barnaból - safn197
Inga Valdís Heimisdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn012
Þessi mynd var tekin á skólaslitum 28. maí 2000. Á henni er árgangur fæddur 1988 að bíða eftir að fá einkunnir sínar afhentar. Frá vinstri: óþekkt, Ómar Ingi Ómarsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Jón Atli Magnússon, Ívar Gylfason, Sigurgeir Snævar Árnason og Sindri Jóelsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn161
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Konan á myndinni er Ásta S. Magnúsdóttir en bak við hana er Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003).
Leikklúbbur Skagastrandar - safn048
Veislukaffi eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á Allra meina bót eftir Jónas Árnason leikárið 1976 - 1977 undir leikstjórn Bernódusar Ólafssonar (d. 18.9.1996). Vinstra megin við borðið: Elín Njálsdóttir og Ólafur Bernódusson. Við enda borðsins situr Magnús B. Jónsson en hægra megin eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Bernódus Ólafsson, Þorvaldur Skaftason, Hjörtur Guðbjartsson og Hallbjörn Hjartarson. Konan sem stendur er óþekkt.
Skagaströnd - safn160
Þessi mynd var tekin á fundi hreppsnefndar 1984. Tilefni fundarins var meðal annars sveitarstjóraskipti á Skagaströnd. Lárus Ægir Guðmundsson var að hætta og Sigfús Jónsson að taka við. Í hreppsnefnd voru talið frá vinstri: Elín Njálsdóttir fulltrúi Alþýðuflokksins, Guðmundur Haukur Sigurðsson frá Alþýðubandalagi, Adolf J. Berndsen oddviti frá Sjálfstæðisflokknum, Magnús B. Jónsson frá Framsóknarflokknum og Gylfi Sigurðsson frá Sjálfstæðisflokknum.
Barnaból - safn290
Friðvin Ingi Ernstson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Ólafur Bernódusson573
<p>Þessir þrír félagar áttu saman, og gerðu út í fjölda ára, bátinn Helgu Björgu Hu 7. Á vorinn réru þeir á grásleppu og verkuðu aflann sjálfir eins og sjá má af fullum hrognasigtum aftan við þá. Mennirnir eru frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d. 29.12.2013) og Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998). Myndin var tekin snemma á tíunda áratugnum.</p>
Jón Jónsson346
Á árunum sem skíðalyfta var rekin í Spákonufelli var almennur áhugi á skíðamennsku á Skagaströnd. Fjöldi barna, unglinga og fullorðinna mættu í brekkurnar um helgar þegar færi gafst. Á þessari mynd, sem tekin var einhverntíma að vorlagi kringum 1985, eru ungir skíðagarpar að fá afhent viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku í páskamóti. Maðurinn með sólgleraugun er Ólafur Bernódusson en konan í hvíta jakkanum er Sigríður Einarsdóttir skíðakennari. Með þeim á myndinni eru ungir skíðamenn frá Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson572
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) býr sig undir að hengja upp skorna grásleppu til að láta síga. Í baksýn sést í hjallinum að þetta er ekki fyrsti skammturinn af slíku sem hann hengir upp. Myndin var tekin snemma á tíunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason293
Myndin er frá hátíðamessu - sennilega í Bergsstaðarkirkju í Svartárdal - einhverntíma á árunum 1981 - 1986. Fyrir altarinu er séra Ólafur Hallgrímsson en prestarnir til hægri eru: séra Hjálmar Jónsson sést á hlið með skegg, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) situr framan við hann en til hægri við Hjálmar er séra Oddur Einarsson og séra Árni Sigurðsson með hökuskegg horfir á ljósmyndarann. Við hlið predikunarstólsins situr séra Gísli Kolbeins. Gráhærði maðurinn með gleraugun í áheyrandahópnum er Jón Tryggvason frá Ártúnum (d. 7.3.2007). Sigurjón Guðmundsson er lengst til hægri í kórnum og Guðmundur Valtýsson stendur framan við ofninn. Hinir kórfélagarnir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason301
Systkinin Hugrún Gréta Sigurðardóttir og Kolbeinn Vopni Sigurðsson frá Hólanesi. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1980.
umf Fram308
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu.Á þessari mynd, sem sennilega ver tekin sumarið 2004, eru krakkarnir að bíða eftir að fara í heimsókn að Brandaskarði. Á myndinni eru í fremstu röð frá vinstri: Bergrós Hafsteinsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir og Sylvía Hrólfsdóttir. Miðröð frá vinstri: Anton Einarsson og Birkir Gunnarsson. Aftasta röð frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Páll Halldórsson, Ívan Árni Róbertsson, Alma Eik Sævarsdóttir leiðbeinandi og Ragnheiður Erla Stefánsdóttir leiðbeinandi. Aftan við hópinn standa Stefán Jósefsson og Einar Ásgeirsson en þeir óku hópnum út að Brandaskarði.
Ólafur Bernódusson561
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér peysu sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Jón Jónsson290
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Þorbjörg Magnúsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir og María Magnúsdóttir.
Skagaströnd - safn373
Holan virkar !! Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að tengja ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal við vatnsveitu Skagastrandar. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Á myndinni er verið að prófa hvort fóðringin, sem mennirnir eru nýbúnir að koma fyrir, virkar eins og hún á að gera. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ari Þórsson við loftpressuna, Rúnar Jóhannsson sem skrúfar frá krananum og Sigurjón Ástmarsson bíl- og kranastjóri.
Barnaból - safn261
Jón Hall Magnússon á leikskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1980.
Barnaból - safn188
Sindri Fanndal Júlíusson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Jón Jónsson255
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Þórey Jónsdóttir í hlutverki sínu.
Skagaströnd - safn186
Þessi mynd var tekin af Viggó Brynjólfssyni að moka snjó á Skagaströnd með jarðýtu í kringum 1960. Myndina tók Þórður Jónsson.
Jón Jónsson348
Skíðagarpar með páskaeggja-verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Páll Jónsson, Þórarinn Þórsson, Guðjón Árnason og Viggó Magnússon.
Jón Jónsson287
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir og Karl Berndsen (d. 12.2.1995)
Jón Jónsson228
Þessi mynd var tekin 17. júní 1988 í Hólaneskirkju eldri af þeim Jóhanni Péturssyni (d. 13.1.1999) frá Lækarbakka til vinstri Lísu Berndsen frá Stóra Bergi og Snorra Gíslasyni (d. 29.5.1994) frá Höfðatúni.
Barnaból - safn319
Marínó Freyr Jóhannesson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Jón Jónsson303
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Þessir ungu menn voru meðal þeirra sem komu til að líta á forsetann og fá að taka í hönd hennar. Frá vinstri: Jón Arnarsson, Viggó Magnússon, Guðbjartur Sævarsson, Arnar Erlingsson og Baldur Magnússon.
Barnaból - safn209
Salóme Ýr Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn235
Sveinbjörn Magnússon á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Jón Jónsson239
Fröken klukka mætti á grímudansleik Höfðaskóla 1985. Við vitum hvað klukkan er en stúlkan sem ber hana er Valrún Eva Vilhelmsdóttir þá fimm ára.
Jón Jónsson294
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Steindór Gíslason (d. ?), Bjarney Valdimarsdóttir og Þorbjörg Magnúsdóttir.
Barnaból - safn056
Guðjón Örn Kristjánsson. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Guðmundur Guðnason 2 486
(H)eldri borgarar frá Skagaströnd á ferðalagi hafa áð við pípuhliðið á Kerlingarholtinu. Frá vinstir á myndinni eru: Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), tvær óþekktar konur, Birna Blöndal, Guðlaugur Guðlaugsson (d. 8.7.1990), óþekktur bílstjóri, Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988)(nær), Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988)(fjær), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) með harmoniku, óþekktur, Helga Guðmundsdóttir með gítar, Jónína Valdimarsdóttir (nær),óþekkt (fjær), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011), Jóhanna Jónasdóttir, óþekkt, Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Ása Jóhannsdóttir, Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) og Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en í þessari ferð kom fólkið m.a. við í Þingeyrarkirkju og skoðaði hana ásamt fleiri stöðum.
Barnaból - safn226
Sigrún Líndal Þrastardóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Guðmundur Guðnason317
Hjónin Jökull Sigtryggsson og Valgerður Kristjánsdóttir sem lengi bjuggu að Núpi í Laxárdal.
Barnaból - safn145
Þessi mynd var tekin í Lundi í leikskólanum Barnaból 1994 - 1995. Aftasta röð frá vinstri: Sunna Gylfadóttir, Hanna María Gylfadóttir, Svandís Hannesdóttir, Marinó Freyr Jóhannesson, Ágústa Lóa Jóelsdóttir, Fanney Björk ?, Erna Högnadóttir, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Berglind Ósk Ingvadóttir, Jón Þórir Óskarsson, Lilja Ingólfsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir og Ástrós Vilhelmsdóttir sem krýpur á gólfinu. Miðröð frá vinstri: Katrín Björk Guðmundsdóttir, Ásþór Óðinn Egilsson, Aðalheiður Ragnarsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir, Arnrún Bára Finnsdóttir, Maríanna Ástmarsdóttir og Brynja Hödd Ágústsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Þórey Fjóla Aradóttir, Ívar Kristberg Einarsson, Sóley Linda Egilsdóttir, Ómar Ísak Hjartarson og Ragnar Már Björnsson. Myndin var tekin af ljósmyndastofu Péturs á Sauðárkróki. Ef þú veist föðurnafn Fanneyjar, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn073
Þessi mynd var tekin 1996 á leikskólanum Barnabóli af hluta nemendanna þar. Í fremri röðinni eru frá vinstri: Steinunn Fjólmundsdóttir með Helga Óskarsson á hnjánum, Telma Dögg Bjarnadóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, óþekkt, Birna Blöndal og Ólína Selma Þórarinsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Halla Björk Víðisdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Davíð Víðisson, Elísabet Anna Blöndal Einarsdóttir og Kristbjörg Ragnheiðardóttir. Ef þú þekkir óþekkta barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn167
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Á myndinni eru Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) og Bergþóra Kristjánsdóttir (d. 9.5.2011) Blönduósi.
Jón Jónsson315
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á þessari mynd er Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993) bóndi á Mánaskál í veislunni.
Jón Jónsson292
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, láta þeir fara vel um sig frá vinstri: Jónas Hafsteinssson (d. 22.11.1995) Njálsstöðum, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Guðmundur Jóhannesson og Hallbjörn Björnsson.
Skagaströnd - safn090
Guðbjartur Sævarsson til vinstri og Vilmundur Árnason vinna við gatnagerð í Ægisgrund sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti.
Barnaból - safn152
Þröstur Þorsteinsson á leikskólaárum sínum kringum 1991.
Barnaból - safn079
Þriggja ára afmæli Elíasar Gunnars Hafþórssonar í leikskólanum Barnaból 27. janúar 1997. Elías situr við enda borðsins með kórónu. Við borðið nær okkur er Stefán Velemir til vinstri og óþekkt við enda borðsins. Við borðið fjær okkur eru frá vinstri: Guðjón Páll Hafsteinsson, Tanja Rán Einarsdóttir, Unnar Leví Sigurbjörnsson, Elías, Ellen Sigurjónsdóttir og óþekkt.
umf Fram 323
USAH stóð fyrir nokkrum félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín um árabil. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinendur á námskeiðunum voru Ólafur Oddsson og Pétur Eysteinsson til skiptir og kenndu þeir fólki ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd eru þátttakendur frá Blönduósi á einu slíku námskeiði. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Páll Kristinsson, óþekkt, Sigurður Kristjánsson, Valdimar Guðmannsson, óþekktur, Þorbjörg Bergþórsdóttir (d. 7.5.1981), Gísli Grímsson, óþekkt, Hilmar Kristjánsson (d. 1.1.2008), Kristín Líndal, Valgarður Hilmarsson, Halla Jökulsdóttir, Pétur Eysteinsson leiðbeinandi og Kristófer Sverrisson. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn 123
Grillveisla í leikskólanum Barnaból 8. júlí 1991. Ívar Gylfason til vinstri, Sigurgeir Árnason í miðið og óþekkt barn gæða sér á grilluðum pylsum og djúsi.
Barnaból - safn178
Heiða Berglind Fannarsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Barnaból - safn060
Þórður Indriði Björnsson. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Guðmundur Guðnason 2 388
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: <em>"Páll Jónsson fyrrv. skólastjóri organl. til 1965".</em> Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún er úr Hólaneskirkju eldri. Páll dó 19.7.1979.
Skagaströnd - safn335
Þessi mynd var tekin af gatnagerð á horni Fellsbrautar og Oddagötu árið 1988. Það sumar kom forsetinn frú Vigdís Finnbogadóttir í heimsókn til Skagastrandar og reynt var að hafa allt fínt og fágað í bænum þegar hún kom. Á myndinni er Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) að vinna með jarðvegsþjöppu og maðurinn sem stjórnar krananum á H 34 er Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) eigandi bílsins. Aðrir eru óþekktir.
Barnaból - safn303
Sigurgeir Snævar Árnason á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Ólafur Bernódusson571
Óhöpp gerast á sjónum eins og annars staðar. Á þessari mynd er verið að draga Auðbjörgina Hu 6 í dráttarbrautina til að hægt sé að skera snurvoðina úr skrúfunni. Eins og sést þarf ekki stóran bát til að draga ef stutt er að fara. Um borð í jullunni er Vilhjálmur Skaftason í gulri treyju en í stafni Auðbjargarinnar stendur Ólafur Guðmundsson. Aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1995.
Skagaströnd - safn182
Þessir hlaupagarpar hlupu frá Fargranesi í Langadal niður að vegamótum Skagastrandarvegar 22. júní 1991. Tilefnið var landshlaup FRÍ þar sem hlaupið var hringinn í kringum landið af félögum í ungmennafélögunum. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Hrólfur Pétursson, Baldur Magnússon, Atli Þórsson, Þorvaldur Skaftason, Magnús B. Jónsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir.
Barnaból - safn139
Á þessu skólaspjaldi frá Barnabóli 2003 - 2004 eru börnin sem voru í Sæbóli á þeim tíma. Hinn helmingur barnanna voru í Lundi og voru mynduð sér. Frá vinstri í fremstu röð: Margrét Björk Magnúsdóttir, Alexander Jóhannesson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Magnús Jóhannesson, María Jóna Jónasdóttir, Telma Jónasdóttir og Guðlaug Grétarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Sæunn Steingrímsdóttir, Sunna Steingrímsdóttir, Eymundur Lórens Grétarsson, Elmar Grétarsson, Jóna Margrét Sigurðardóttir og Lilja Hjaltadóttir. Aftasta röð frá vinstri: Guðrún Rós Hjaltadóttir, óþekktur, Birta Bessadóttir, Friðmar Kári Eiríksson og óþekktur. Myndina tók Páll Pálsson ljósmyndari frá Akureyri. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn 182
Þessi mynd var tekin af kirkjuskólanum í mars 1980. Kirkjuskólinn hefur greinilega verið vinsæll á þessum tíma ef miðað er við fjölda nemenda á myndinni. Myndin var tekin á tröppunum við Höfðaskóla. Fremsta röð frá vinstri: Óskar Hjaltason, Pálína Hjaltadóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Friðrik Gunnlaugsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Íris Gunnarsdóttir, Bryndís Ingimarsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Berglind Karlsdóttir. Önnur röð frá vinstri: Jóhanna Karlsdóttir, Eva Björg Jónasdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir eru uppi á handriðinu, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Elísabet Hallbjörnsdóttir, Hallgrímur Oddsson, Hugrún Pálsdóttir, Svava Sigurðardóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Steinþór Karlsson og Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012). Þriðja röð frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Halldór Gunnar Ólafsson, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir, Áslaug Gunnarsdóttir og Anna Þóra Birgisdóttir. Fjórða röð frá vinstri: Jón Indriðason, Þorlákur Sveinsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Katrín Sigurjónsdóttir, Kristjana Erlingsdóttir, Helga Heiða Helgadóttir, Hulda Magnúsdóttir og Pálína Freyja Harðardóttir. Efsta röð frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Soffía Lárusdóttir, Sigrún Lárusdóttir, Birna Sveinsdóttir, Bergþór Huld Birgisdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson, Vala Rós Ingvarsdóttir og Berglind Stefánsdóttir eru framar, Ingvar Jónsson og Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000)
Barnaból - safn153
Kristrún Lilja Sævarsdóttir/Lilja Nótt Sævarsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Jón Jónsson302
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á þessari mynd eru Gunnlaugur Árnason á Karlsskála til vinstri og Pétur Jóhannson frá Lækjarbakka til hægri.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn006
Þessi mynd var sennilega tekin í fermingarveislu frændanna á myndinni vorið 2002. Guðjón Ebbi Sigtryggsson er afi strákanna en þeir eru frá vinstri: Ívar Gylfason, Óðinn Örn Sævarsson og Kristján Pétur Guðjónsson.
1
…
75
76
77
…
167
Leita í myndasafninu
Leita