Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason290
Jónína Valdimarsdóttir og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988). Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
Barnaból - safn169
Einar Örn Þórðarson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Guðmundur Guðnason 2 429
Mennirnir á þessari mynd eru óþekktir. Sama má segja um réttina - ekki er vitað hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 498
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) situr í stólnum en Bergur Jón Þórðarson tyllir sér á stólarminn hjá honum.
Barnaból - safn240
Þessi ungi drengur er óþekktur. Hann var á leikskólanum Barnaból, sennilega á árunum kringum 1985. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn307
Guðlaugur Ómar Guðmundsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Barnaból - safn177
Bára Dröfn Kristinsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990
Guðmundur Guðnason 2 382
Þessi ungmenni eru óþekkt. Drengurinn gæti hafa verið að fermast. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 462
Þessi mynd var tekin sumarið 1986 við sumarbústað póstmannafélagsins að Rauðabergi í Austur Skaftafellssýslu. Á henni eru frá vinstri: Einar Karlsson, Kristín Blöndal Sigurðardóttir, Dagný Hannesdóttir, Jóhanna Karlsdóttir, Karl Guðmundsson og Berglind Karlsdóttir.
Barnaból - safn238
Auður Eva Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Skagaströnd - safn421
Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), þáverandi starfsmaður Höfðahrepps, kannar skemmdir á hafnargarðinum (Útgarði) í febrúar 1996 áður en grjótvörn var sett við garðinn og ofan á hann.
Guðmundur Guðnason 2 393
Systurnar í Skálholti, Pálfríður Benjamínsdóttir til vinstri og Sóley Benjamínsdóttir til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið 1957 eða 1958.
Jón Jónsson295
Þessir ungu drengir hafa raðað sér upp eftir að hafa tekið þátt í víðavangshlaupi á vegum umf. Fram á Skagaströnd í maímánuði einhverntíma á árunum kringum 1985. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Arnarson í rauðleitri úlpu, Þröstur Árnason, Baldur Magnússon, Svanur Árnason, Theódór Karlsson með rauða og gráa húfu, Gunnar Halldór Hallbjörnson með gleraugu, Atli Þórsson, Björn Sigurðsson, Jón Heiðar Jónsson og Reynir Lýðsson. Maðurinn í bláu úlpunni í baksýn er Vilhelm Jónsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn218
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hjört Guðmundsson sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Barnaból - safn214
Theódór Líndal Helgason á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn249
Þóra Lísebet Gestsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn167
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastarndar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Ástmar Kári Ástmarsson, Kristín Jónsdóttir og Þorvaldur Skaftason.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn020
1984 var skötuveislan á Þorláksmessu haldin í Skátaskálanum. Þá voru þessar veislur minni í sniðum en seinna varð. Á þessari mynd eru við borðið lengst frá, talið frá vinstri: Sigurbjörn Björgvinsson stendur við borðsendann, Sólveig Eiðsdóttir, Eiður Hilmarsson og Bjarney Valdimarsdóttir. Við miðborðið frá vinstri: óþekkt (? Þórhildur Jakobsdóttir?), Sveinn Ingólfsson, Jakob Guðmundsson, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011), Guðmundur Jónsson, baksvipur Jóns Helgasonar og Ægir Jónsson. Við borðið næst okkur eru frá vinstri: Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12. 2013), Guðrún Sigurðardóttir, Charlotta Traustadóttir, Arnar Erlingsson, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (fjær) og Gylfi Sigurðsson (nær). Baksvipinn næst okkur á sennilega Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn020
Árið 1969 kom Kristján Eldjárn forseti Íslands í heimsókn til Skagastrandar. Þessi mynd var tekin á Höfðanum við það tækifæri. Þekkja má baksvip nokkurra þeirra sem fylgdu forsetanum en þau eru talið frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) (snýr andlitinu að okkur), óþekkt fólk, Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður með embættishúfu á höfðinu, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) með hendur fyrir aftan bak. Maðurinn með hattinn í höndunum er Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) þáverandi sveitarstjóri og lengst til hægri er Adolf J. Berndsen. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason 2 466
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið í Gömlu Tunnunni á einhverri skemmtun. Frá vinstri á myndinni eru: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir og Gunnar Sveinsson.
104-0434_IMG
Leikskólinn Barnaból varð 25 ára 2002. Blásið var til afmælisveislu 8. júní um sumarið og þá tók Ólafur Bernódusson þessa mynd. Á henni eru gestir og nemendur leikskólans að fylgjast með einhverri uppákomu sem nemendur Barnabóls voru með.
Skagaströnd - safn 317
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd er fólk við vinnu við færiband þar sem fiskurinn er hreinsaður úr þeim skeljum sem ekki hreinsuðust í snúningstromlunni sem annars sá um það verk.
Skagaströnd - safn417
Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina og komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís.
Barnaból - safn285
Jóna Gréta Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 372
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Sigrún Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Dagný Sigmarsdóttir og Kristín Jónsdóttir.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn003
Þessi mynd var tekin á skólatröppunum við Höfðaskóla. Á myndinni, sem tekin var 1972, eru krakkar sem fædd voru 1962 og því saman í bekk. Fremsta röð frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Erla Másdóttir, Rannveig Jónsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir og Sólveig Gunnarsdóttir. Í miðröð frá vinstri: Jóhann Grímsson, Pétur Ingjaldur Pétursson, Gunnar Gunnarsson og Vilhelm Harðarson. Aftast eru frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Guðmundur Jónsson og Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002).
Jón Jónsson281
Þessi mynd var tekin í hófi í Fellsborg í tilefni af að séra Pétur Þ. Ingjaldsson var að láta af prestskap á Skagaströnd 1981. Fólkið, sem hægt er að þekkja á myndinni, er frá vinstri: Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), Jakob Guðmundsson, Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) Runólfur ?, Jökulrós Grímsdóttir (nær), Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990), óþekkt, Guðsteinn Kristinsson (d. 26.2.2002), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011), Hólmfríður Rögnvaldsdóttir (d. 13.10.2000), Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982), Björg Björnsdóttir (d.11.11.1989)nær) Jónína Valdimarsdóttir (fjær), Gunnar Albertsson (fjær), Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993) (nær), Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989) og Laufey Sigurvinsdóttir (d. 21.12.1994). aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 409
Hér eru menn í basli við að koma niður streng í við ræsi neðan við Árbakka.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn112
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Vigdísi Viggósdóttur sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Guðmundur Guðnason 2 491
<p>Fermingarbörnin Anna Aðalheiður Halldórsdóttir frá Móbergi og Sigurður Örn Ágústsson frá Geitaskarði standa hér á tröppum Holtastaðakirkju ásamt séra Oddi Einarssyni sem fermdi þau í kirkjunni árið 1984. Maðurinn til vinstri er Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011). </p><p><br></p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 439
Karl Berndsen (d. 12.2.1995) við vinnu í slippnum. Í baksýn er hálf rifinn skrokkur Arnarborgarinnar HU 11 sem Karl var að vinna við að rífa þegar myndin var tekin 1993.
Óþekktur ljósmyndari364
Þessi mynd sýnir gömul vinnubrögð við að koma heyi heim að skepnuhúsum þeirra tíma. Myndin eykur líka skilning manns á af hverju hesturinn var kallaður "þarfasti þjónninn" fyrir öld dráttarvéla og annarra vélknúinna tækja í sveitum landsins. Hér er verið að reiða heim hey á fjórum hestum. Heyið var bundið í bagga á vellinum og síðan hengt á klakk á baki hestsins. Síðan var lestin teymd heim, oft af einhverjum hálstálpuðum krakka, sem sá svo um að koma með hestana til baka fyrir næstu ferð. Á þessari mynd er þó fullorðin maður sem teymir en krakki "situr á milli" á aftasta hestinum. Ekki er vitað hvar myndin var tekin né hvenær en líklega hefur hún verið handmáluð.
Skagaströnd - safn377
Þessir fermingarbræður eru Valgarður Hilmarsson frá Fremstagili til hægri en drengurinn til vinstri er óþekktur. Kirkjan er líklega Holtastaðakirkja. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram 319
Í mörg sumur voru haldnar Ungmennabúðir USAH á Húnavöllum. Karl Lúðvíksson var í forsvari fyrir búðirnar, sem voru vel sóttar af börnum úr héraðinu, meðan þær voru starfræktar. Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1975. Á henni leika sér í sundlauginni bræðurnir Hafsteinn Pálsson, sem horfir á ljósmyndarann, og Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989).
Barnaból - safn192
Ólafur Guðmundsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Skagaströnd - safn287
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Fermingarbörn ársins 1998 tóku þátt í athöfninni. Frá vinstri á myndinni eru, í hvítum fermingarkirtlum : Bára Dröfn Kristinsdóttir, Guðni Már Lýðsson, Leó Kristberg Einarsson, Jón Ingi Ragnarsson,Hermann Freyr Guðjónsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir, María Guðrún Guðmundsdóttir, Elín Anna Konráðsdóttir og Rebekka Laufey Ólafsdóttir. Fermingarbörnunum til aðstoðar eru konurnar Hrönn Árnadóttir til vinstri og Guðbjörg Eiríksdóttir til hægri.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn173
Hörður Torfason leikstýrði sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikverki Ólafs Hauks Símonarsonar, Ástin sigrar, leikárið 1988 - 1989. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006), Guðjón Árnason og Einar Haukur Arason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 390
<p>Þessi mynd sýnir Snorra Gíslason (d. 29.5.1994) að fara með grásleppunetum á bátnum sínum á miðunum inn með landi. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 363 (2)
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Sigrún Jónsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Fannar Viggósson, Vigdís Viggósdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Kristján Blöndal, Magnús B. Jónsson og Jón Ingvar Valdimarsson.
Barnaból - safn270
Dagbjört Agnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1985.
Árni Geir Ingvarsson - safn 435
Hér er unnið við að mála Arnarborg HU 11. Maðurinn með rúlluna er Kristmundur Ingibjörnsson en hinn maðurinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 405
Stefnir St tekinn upp í slippnum á Skagaströnd. Kári Lárusson stendur gleiðfættur framan við stýrishúsið en aðrir eru óþekktir.
Sigurður Jónsson - safn 007
Þessi drengur er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn172
Anna Sólrún Bates á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn236
Trausti Magnússon á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn197
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Sigríði Ásgeirsdóttur sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Barnaból - safn315
Ívar Einarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
Guðmundur Guðnason 2 502
<p>Árið 1977 gengu þeir félagar Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), sem myndin er af, og Sigurður Jónsson um Laxárdalinn en báðir áttu þeir ættir að rekja í dalinn og voru að hluta aldir þar upp. Myndin var tekin á náttstað þeirra við Vesturá þar sem Guðmundur átti æskuár sín. Bærinn var löngu kominn í eyði þegar myndin var tekin. </p>
Guðmundur Guðnason 2 428
Hér er réttað í óþekktir rétt (Vindhælisrétt?) á óþekktum tíma. Ekki er hægt að þekkja fólkið á myndinni vegna þess hve filman er orðin máð.
Barnaból - safn232
Loftur Björgvinsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Skagaströnd - safn178
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd fer vel á með hreppsnefndarmönnunum Gylfa Sigurðssyni til vinstri og Guðmundi Hauk Sigurðssyni til hægri.
umf Fram 322
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinandi á námskeiðunum var Ólafur Oddsson sem kenndi fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Þessi mynd er af námskeiðskrökkum - líklega frá Blönduósi - en þau eru öll óþekkt. Ef þú veist nöfn þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram 338
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum 1975- 1980. Á henni eru íþróttagarpar frá umf Fram á Skagaströnd með viðurkenningarskjöl sín. Frá vinstri: óþekktur, Sólveig Gunnarsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Soffía Guðmundsdóttir,Steinunn Berndsen, Þórdís Guðmundsdóttir og Hafþór Gylfason. Ekki er vitað hvar myndin var tekin né fyrir hvað krakkarnir fengu viðurkenningarskjölin.
Jón Jónsson313
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á þessari mynd eru hjónin Sveinn Ingi Grímsson og Líney Jósefsdóttir en hún tók þátt í að útbúa veislukaffið í samsætinu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn188
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Jane Sillar sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Barnaból - safn200
Gunnar Borg Jónsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Séra Pétur og Dómhildur - safn157
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Á myndinni eru Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) frá Lækjarbakka og Geirlaug Ingvarsdóttir frá Balaskarði.
Skagaströnd - safn414
Gunnar Albertsson mokar snjó frá Gamla Hólanesfrystihúsinu á Hólanesi í október 1995. Sér til hjálpar hefur hann traktorsgröfu undir stjórn Guðmundar Björnssonar.
Barnaból - safn309
Ægir Hreinn Bjarnason á leiksskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1993.
Guðmundur Guðnason 2 448
Bræðurnir frá Þórsmörk Reynir Sigurðsson til vinstri og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri . Myndin var tekin fyrir utan Akurgerði en þar var heimili systur þeirra bræðra Aðalbjargar Sigurðardóttur. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1960.
1
…
80
81
82
…
167
Leita í myndasafninu
Leita