Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Leikklúbbur Skagastrandar - safn219
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Aðalheiði Harðardóttur sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Jón Jónsson251
<p>7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Birna Blöndal í hlutverki sínu í sýningunni.</p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn153
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru þær Bóel Hallgrímsdóttir niðri og Björk Sveinsdóttir uppi í hlutvekum sínum.
Guðmundur Guðnason 2 453
Heyskapur upp á gamla mátann. Myndin var tekin á Vesturá í Laxárdal við heimili Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) og sér í mynni Vesturáarskarðs í baksýn. Fjölskylda Guðmundur bjó í dalnum á nokkrum bæjum áður en þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Konan lengst til vinstri er Klemensína Klemensdóttir (d.12.6.1966) móðir Guðmundar. Ungi maðurinn sem bindur bagga er Pálmi (d. 23.3.1994), Ingvi (d. 31.12.1991), eða Rósberg (d. 9.1.1983) en þeir voru bræður Guðmundar (líklegast er að þetta sé Rósberg). Guðmundur sjálfur heldur í hestinn og faðir hans Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) hleður fúlgu úr heyinu í baksýn.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn211
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Þórdísi Skúladóttur sem þátt tók í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Jón Jónsson314
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) til vinstri og Sigríður Ólafsdóttir - Sissa - (d. 2008) til hægri í veislunni.
Sigurður Jónsson - safn 005
Ragna Friðriksdóttir (d. 5.2.1981) og Sigurður Jónsson í Vestfjarðaferð 1974 ásamt fjölmörgum öðrum Skagstrendingum. Myndin var tekin í Ísafjarðardjúpi - líklega á Arngerðareyri.
Guðmundur Guðnason 2 407
Þessi fjölskylda flutti frá Skagaströnd að Núpi í Laxárdal árið 1957 en flutti síðan á Blönduós 1976 en þá fór Núpur í eyði. Hjónin eru Valgerður Kristjánsdóttir og Jökull Sigtryggsson. Valgerður situr undir Valgarði Jökulssyni, Halla Jökulsdóttir er á milli hjónanna og Jökull situr með Kristján Jökulsson.
Baldur Eðvarðsson - safn 2
Þorvaldur Skaftason á Höfðanum með Skagaströnd í baksýn. Myndin var sennilega tekin kringum 1965. Við vinstri öxl Þorvaldar má sjá Efri-Læk sem nú er löngu horfinn. Vinstra megin við Þorvald er Jaðar hvítmálaður og þar enn lengra til vinstri er Efri Jaðar sem líka er löngu horfinn.
Guðmundur Guðnason 2 362
Þessi mynd var tekin vestan við húsið Lækjarhvamm (Suðurvegur 1) líklega 1956. Önnur frá vinstri í öftustu röðinni er Anna Skaftadóttir og hægra megin við hana er Harpa Friðjónsdóttir, sem átti heima í Lækjarhvammi með foreldrum sínum. Stúlkan við hlið Hörpu er líklega Sigrún Kristófersdóttir. Sitjandi framan við Önnu er Björn Ómar Jakobsson en milli þeirra stendur Eyrún Birgisdóttir. Harpa heldur í Ragnheiði Lindu Kristjánsdóttur. Lengst til hægri í öftustu röðinni er Búi Þór Birgisson (d.18.9.2009) en sennilega er það Birgir Þórbjarnarson sem er lengst til vinstri í öftustu röð. Við hlið Björns Ómars í fremstu röð er Guðmundur Rúnar Kristjánsson og lengst til hægri í röðinni er Árni Björn Ingvarsson. Aftan við hann stendur systir hans, Elínborg Ingvarsdóttir og hallar sér að Sigrúnu. Á þessum tíma bjuggu systkinin Björn Ómar, Guðmundur Rúnar og Ragnheiður Linda í litlu húsi á sömu lóð - Gamla Lækjarhvammi - ásamt foreldrum sínum. Húsið stóð til vinstri, út við götuna, rétt utan við ramma þessarar myndar.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn014
Þessi mynd frá 1977 var tekin á skíðamóti í Spákonufellinu. Á myndinni tekur Gestur Arnarson við verðlaunum sínum. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn215
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðjón Árnason sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn181
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Birna Blöndal, Ólafur Bernódusson, Þórey Jónsdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og Magnús B. Jónsson
Guðmundur Guðnason 2 417
Þessi kona, sem var ljósmynduð á ljósmyndastofu Ólafs Magnússonar í Reykjavík, er óþekkt. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athuagsemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 477
Gunnar Jónsson vinnur við að taka upp bát sinn Funa HU 89. Bátinn gerði Gunnar út á færi á árunum 1992 - 1996.
Minjasafn 77
Gripur nr. 77. Gler/plast rammi með lítilli mynd af Sigríði Pétursdóttur.
Guðmundur Guðnason 2 402
Á þessari mynd er Þórhildur Guðjónsdóttir Ísberg að afhjúpa minnismerki um kvennaskólann á Ytri-Ey, sem hóf störf þar 1883 og var fyrsti kvennaskóli Húnvetninga. Skólinn var reyndar stofnaður 1879 en var fyrstu árin á hrakhólum á nokkrum bæjum í sýslunni áður en hann fékk fastan samastað á Ytri Ey 1883. Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) fylgist með en maðurinn sem aðstoðar Þórhildi er óþekktur. Myndin var sennilega tekin 1983.
Guðmundur Guðnason 2 383
<p>Þessi mynd var tekin í Félagsheimilinu á Blönduósi líklega á Húnavöku 1963 af karlakórnum Vökumenn á Blönduósi . Sitjandi eru talið frá til vinstri: Kristófer Kristjánsson frá Köldukinn, Einar Guðlaugsson (d. 2.4.2008), Jón Kristjánsson (d. 20.6.2014) frá Köldukinn og Jóhann Jónsson (d. 21.3.2004) frá Beinakeldu. Standandi frá vinstri: Benedikt Björnsson Blöndal , Jakob Sigurfinnsson (d. 27.3.1966) frá Hurðabaki, Sigurður Sigurðsson frá Blöndubakka, Páll Eyþórsson (d. 20.7.2002) frá Hvassafelli á Blönduósi, Heiðar Kristjánsson frá Hæli, Þorbjörn Sigurðsson (d. 20.7.2013) Blönduósi, Björn Sigurfinnsson (d. 22.3.1987) frá Hurðabaki, Óskar Sigurfinnsson frá Meðalheimi og Reynir Hallgrímsson frá Kringlu og Guðmann Hjálmarsson (d. 21.8.1973) Blönduósi .</p>
Skagaströnd - safn366
Myndin var tekin á Hágerðisvelli 1991 af siguvegurum kvenna á golfmóti. Frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir og Kristín Mogesen.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn117
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
umf Fram 345
Á níunda áratugnum stóð UMFÍ fyrir uppákomu sem fólst í því að hjólað var hringinn í kringum landið. Þátttakendur voru félagar í ungmennafélögum vítt og breytt um landið þar sem félagar viðkomandi félags hjóluðu um sitt félagssvæði. Fólkið hjólaði til skiptis þrír eða fjórir í einu en rúta fylgdi hjólreiðafólkinu með þá sem áttu eftir að taka sína törn eða höfðu lokið sínum kafla. Á þessari mynd, sem tekin var inni í rútunni, eru frá vinstri: Anna Skaftadóttir (standandi), Edda Pálsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Gunnar Helgi Benónýsson (d. 29.7.2003), Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), Erla Valdimarsdóttir (d. 29.9.2008) og Guðmundur Haukur Sigurðsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn004
Jón S. Pálsson sem lengi var kennari og skólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd.
umf Fram 324
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinandi á námskeiðunum var Ólafur Oddsson eða Pétur Eysteinsson sem kenndu fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd er Kristín Líndal frá Holtastöðum lengst til vinstri en hinar eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram 321
Í mörg sumur voru haldnar Ungmennabúðir USAH á Húnavöllum. Karl Lúðvíksson var í forsvari fyrir búðirnar, sem voru vel sóttar af börnum úr héraðinu, meðan þær voru starfræktar. Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1975. Eftir skemmtilega bátsferð á Svínavatni þurfti að ganga tryggilega frá bátnum í nausti þar til næsta ferð var farin. Strákarnir á myndinni eru, bakborðsmegin: fremst, Sigurjón Eðvarð Karlsson, Skafti Fanndal Jónasson er í miðið en sá aftasti er óþekktur. Stjórnborðsmegin eru: Sigurður Jóhannesson frá Torfalæk fremstur svo kemur óþekktur en aftan við bátinn er Jón Heiðarsson frá Hæli. Framan við bátinn er svo ?? Hilmarsson (í Stíganda). Stjórnborð á bát er hægra megin ef horft er fram eftir bátnum.
Guðmundur Guðnason 2 385
Þessi mynd var tekin á kirkjutröppunum við Hólaneskirkju eldri. Frá vinstri á myndinni eru: séra Guðni Þór Ólafsson, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson sóknarprestur á Skagaströnd 1987 - 1990, Sigurgeir Árni Ægisson, Jóhanna Ólafsdóttir, Hafdís Hanna Ægisdóttir, Kristín Guðmundsdóttir og Sigurgeir Magnússon.
Guðmundur Guðnason 2 420
Á myndinni syngja saman félagar úr kirkjukór Hólaneskirkju á Skagaströnd og úr kirkjukór Hvammstanga. Frá vinstri á myndinni: Ingibjörg Pálsdóttir, Georg Hjartarson (d. 13.9.2001),Ingólfur Guðnason (d. 14.3.2007), óþekktur, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), óþekktur og Karl Sigurgeirsson.
Jón Jónsson331
Þessar konur sáu um kaffiveitingar í veislu sem haldin var í Skátaskálanum af óþekktu tilefni sem tengdist Skagstrendingi hf. Veislan fór fram í Skátaskálanum en þar var um þær mundir rekið mötuneyti fyrir menn sem voru að vinna að breytingum á síldarverksmiðjunni. Frá vinstri á myndinni: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), sem sá um mötuneytið, og Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020). Myndina tók Jón Jónsson einhverntíma kringum 1980.
Barnaból - safn003
10. júlí 1987 var haldin grillveisla á leikskólanum. Allir fengu grillaðar pylsur og djús. Á þessari mynd eru frá vinstri: Þóra Lísebet Gestsdóttir, Birna Ágústsdóttir, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Magnús Filip Sævarsson, Magnús Líndal Þrastarson og Gunnar Helgason.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn005
Hér taka hjónin, Guðrún Guðbjörnsdóttir og Gylfi Sigurðsson, vel undir í söng á einhverri góðri stund.
Guðmundur Guðnason 2 501
Árið 1977 gengu þeir félagar Sigurður Jónsson, sem myndin er af, og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) um Laxárdalinn en báðir áttu þeir ættir að rekja í dalinn og voru að hluta aldir þar upp. Náttstaður þeirra var hjá bænum Vesturá þar sem þessi mynd var tekin. Bærinn var þá löngu kominn í eyði en þar átti Guðmundur æskuár sín.
Jón Jónsson321
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru skemmtiatriði í gangi. Axel Jóhann Hallgrímsson til vinstri og Ingibjörg Kristinsdóttir til hægri hafa lokið keppni í að mata hvort annað á jógúrt í keppni við annað par. Bæði voru þau í hreppsnefnd Höfðahrepps á þessum tíma.
Skagaströnd - safn390
Skrúðganga frá höfninni til kirkju er föst venja á sjómannadegi á Skagaströnd. Þessum sið hefur verið haldið í áratugi og er messan sem á eftir fer alltaf mjög fjölsótt. Þessi mynd sýnir eina slíka skrúðgöngu en ártalið er óþekkt. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson gengur fyrir skrúðgöngunni í hempu með pípuhatt á höfði.
Guðmundur Guðnason 2 411
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) á hestbaki. Líklega var myndin tekin einhversstaðar á Laxárdal þar sem Guðmundur var alinn upp.
Skagaströnd - safn372
Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að tengja ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal við vatnsveitu Skagastrandar. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ari Þórsson, Rúnar Jóhannsson og Sigurjón Ástmarsson.
Jón Jónsson272
Skíðaskálinn í Spákonufelli var vígður vorið 1985. Skálinn var að mestu byggður í sjálfboðavinnu af skíðaáhugafólki. Á þessari mynd er fólk að njóta veitinga í tilefni dagsins. Frá vinstri: Rúnar loftsson, Linda Kristjánsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Lilja Bernódusdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) (nær) og Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) (fjær). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn182
Gísl eftir Brendan Beham í þýðingu Jónasar Árnasonar setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikárið 1979 - 1980. Leikstjóri var Ragnhildur Steingrímsdóttir. Leikritið gekk vel og var sýnt víða m.a. á Seltjarnarnesi fyrir fullu húsi. Á myndinni, sem Jónas Baldursson tók, eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Elín Njálsdóttir, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) og Ólafur Bernódusson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Guðmundur Guðnason 2 406
Þessi stúlka, Heiðdís Sigrún Þorbjörnsdóttir, er ein af dætrum Þorbjörns Jónssonar og Aðalbjargar Sigurðardóttur sem lengi bjuggu í Akurgerði á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn 327
Þessi mynd var tekin á vinabæjarmóti í vinabæ Skagastrandar í Finnlandi, Lohja. Á myndinni eru hjónin Adolf H. Berndsen oddviti Höfðahrepps fyrir miðri mynd og Dagný Sigmarsdóttir, lengst til hægri, að spjalla við hjónin Matti og Aila Saarinen frá Lohja en Matti er þingmaður á finnska þinginu. Vinstra megin við Dagnýju er Ritva Sylvander frá Lohja.
umf Fram 337
Síðaskálinn var vígður 1985 með almennri kaffiveislu. Á þessari mynd, sem tekin var í þokunni utan við skálann við þetta tækifæri, eru félagarnir og skíðamennirnir Stefán Ægir Lárusson til vinstri og Arnar Arnarsson til hægri.
Magnús B Jónsson093
<p>Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúbak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðann á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni eru tveir fulltrúar Hafró, í hlífðarbuxum, að byrja að skera í hvalinn. Ólafur Bernódusson stendur til hægri með hendur í vösum og fylgist með en aðrir eru óþekktir. </p>
Guðmundur Guðnason 2 457
Líklega var þessi mynd tekin í Laxárdal þar sem fjölskylda Guðmundar ljósmyndara bjó á nokkrum bæjum áður en þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á fimmta áratugnum. Maðurinn á hestinum er líklega bróðir Guðmundar, Rósberg Snædal Guðnason (d. 9.1.1983). Maðurinn á bakvið er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn045
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þau Elín Njálsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Guðmundur Guðnason 2 436
Gengið til kirkju á sjómannadegi. Fremstur fer Hörður Ragnarsson með fána. Prestarnir eru óþekktir en næstur þeim, einnig með fána, er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og þriðji maðurinn með fána er ?Sigurður Guðmonsson? (d.5.8.1981). Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 440
Pálfríður Bjarnadóttir í Bjarnarhöfn á Skagaströnd. Dóttir Fanneyjar Jónsdóttur og Bjarna Loftssonar.
Guðmundur Guðnason 2 390
Þetta barn með skólatöskuna sína er óþekkt. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn419
Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina á hjarni og komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís. Á þessari mynd eru þeir Baldvin Hjaltason til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri að gera færin sín klár til að renna í Hraunvatni.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn015
<p>Þessi mynd var tekin á Höfðanum vorið 1977. Sennilega eru krakkarnir á myndinni úr Höfðaskóla í vettvangsferð með kennaranum sínum. Krakkarnir standa við leifarnar af "Kerlingunni" sem var klettadrangur sem minnti á kerlingu að lesa í bók. Um hana var þjóðsaga um tröllskessu sem var að bíða eftir karli sínum af sjó en beið of lengi og lenti í sól og breyttist í stein. "Kerlingin" er því miður horfin nú. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Einar Karlsson, Kristján Steinar Kristjánsson, Orri Blöndal, Drífa Kristjánsdóttir, Víðir Ólafsson, Vala Ingvarsdóttir, Bjarni Ottósson, Þórhildur Jakobsdóttir og Agnes Sævarsdóttir. </p>
umf Fram 312
Á myndinni eru að starfa á einhverju íþróttamóti tveir ungmennafélagsmenn sem settu mark sitt á starf USAH um árabil. Karl Lúðvíksson er til vinstri og Björn Sigurbjörnsson til hægri. Drengirnir á myndinni eru óþekktir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn165
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Hendrik Berndsen, Bergþór Gunnarsson, Þórey Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Jón Arnarson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn085
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner í litaglaðri sýningu í Fellsborg vorið 1992 undir leikstjórn Árna Blandon. Sýningin var fjölmenn og leikararnir voru á öllum aldri eins og leikritið gerir ráð fyrir. Á þessari mynd, sem tekin var á sýningu, eru frá vinstri: Rúnar Jóhannsson, Jón Ingvar Valdimarsson, Ólafur Magnússon, Ingólfur Bjarnason, Hildur Inga Rúnarsdóttir, Elín Njálsdóttir, Lovísa Vattnes, Fannar Viggósson og óþekktur.
Skagaströnd - safn394
Naglaboðhlaup milli kvenna á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið. Stúlkan til hægri er líklega Ólöf Jóhann Smith (Lólý) en hin stúlkan er óþekkt. Í baksýn eru frá hægri: Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Pálmi Sigurðsson (d.21.4.1992), Elísabet G. Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991), Bjarni Helgason (d. 30.12.1983), Trausti Bertelsson, Bjarni Loftsson (d.?), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og maðurinn í hvítu skyrtunni er Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992). Mitt á milli Bernódusar og Björgvins sést í andlit Guðmundar Guðmundssonar og Ingibjörg Kristinsdóttir er við hægri hlið Björgvins. Drengirnir við lárétta staurinn eru tvíburarnir Ingibergur og Karl Guðmundssynir en lengst til hægri í drengjahópnum er Frits Bjarnason. Maðurinn með hattinn er líklega Gunnlaugur Björnsson (d. 8.5.1978) frá Harrastöðum.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn025
Kappróður á sjómannadegi 1966. Líklega eru hér tvær unglingasveitir að keppa en að þessu sinni var róið frá höfninni í austur og endað fram af enda Skúffugarðsins.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn157
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þau Steindór Haraldsson og Björk Sveinsdóttir. Í baksýn sér í Ástmar Kára Ástmarsson.
Guðmundur Guðnason 2 468
Guðmundur Óskarsson frá Ásholti með skólatöskuna sína e.t.v. á fyrsta skóladeginum í Höfðaskóla.
Minjasafn 98
Gripur nr. 98. Brúnn rammi með portrett mynd af óþekktum manni í sparifötum.
Barnaból - safn044
<p>Þessi mynd var tekin af gestum í 6. ára afmælisveislu Elísabetar Eikur Guðmundsdóttur 25. ágúst 1981. Aftasta röð frá vinstri: Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), afmælisbarnið Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Björn Sigurðsson og Anna Aspar Aradóttir. Næst aftasta röð frá vinstri: Gunnar Borg Jónsson, Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, óþekktur, Halla Kristín Árnadóttir, óþekktur, Ragna Fanney Gunnarsdóttir og Árný Guðrún Ólafsdóttir. Strákurinn í bláu peysunni og bláum sokkum hægra megin á myndinni er Jón Ólafur Sigurjónsson og Arnar Ólafur Viggósson situr fremst til vinstri. Þorlákur Guðjónsson snýr baki í myndavélina en aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir eitthvert barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Skagaströnd - safn336
Þessi mynd var tekin við leikskólann Barnaból líklega kringum 1990. Konurnar á myndinni eru Laufey Ingimundardóttir (d. 31.12.1992) vinstra megin og Hallveig Ingimarsdóttir til hægri. Börnin eru frá vinstri: Elva Mjöll Þórsdóttir, óþekktur, Ólafur Guðmundsson, Karen Peta Karlsdóttir, tvö óþekkt börn, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, óþekktur, Birna Ágústsdóttir, tveir óþekktir en fremst er Hermann Guðjónsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn388
<p>Ekki er vitað hvenær né hvar þessi mynd var tekin en maðurinn með harmonikkuna er Sigfús Kristmann Guðmundsson frá Eiríksstöðum, sem seinna bjó á Blönduósi. Ef þú þekkir hinn manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p><p><br></p>
Guðmundur Guðnason 2 399
Þórey Ólafsdóttir oft kennd við Árbakka.
Guðmundur Guðnason 2 481
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1989) til vinstri og Kristján Sigurðsson frá Höskuldsstöðum til hægri.
1
…
83
84
85
…
167
Leita í myndasafninu
Leita