Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Leikklúbbur Skagastrandar - safn190
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Sigurbjörgu Baldursdóttur sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Guðmundur Guðnason 2 469
Sófus Guðmundsson (d. 2.8.1991) frá Skrapatungu.
Guðmundur Guðnason 2 442
Systurnar Margrét Guðlaugsdóttir og Sigrún Guðlaugsdóttir frá Mjóadal.
Minjasafn685
Síld landað úr Húna Hu 1, líklega 1958 eða 1959, í höfninni á Skagaströnd. Myndina, sem er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar, tók Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu, Skagaströnd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn143
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á æfingu af Guðmundi Hauk Sigurðssyni í hlutverki sínu. Í baksýn eru, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, óþekkt og Elín Njálsdóttir.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn090
Þessir tveir menn störfuðu lengi hjá síldarverksmiðju ríkisins á Skagaströnd. Þeir eru Jón Kristinsson (d. ?) til vinstri og Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996) til hægri. Á myndinni standa þeir utan við verksmiðjuna á Skagaströnd.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn019
Þessi mynd var tekin á vorsýningu Höfðaskóla á hluta af verkum nemenda þann veturinn. Á slíkum sýningum voru sýndir smíðisgripir, hannyrðir og teikningar eftir nemendurna. Lengst til vinstri á myndinni er Reynir Sigurðsson en stúlkan á myndinni er líklega ?Lára Guðmundsdóttir?. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn050
Árið 1983 stóð Leikklúbbur Skagastrandar fyrir "Jónasarvöku" í Fellsborg . Þar voru flutt brot úr verkum Jónasar Árnasonar í söng, tali og leik. Jónas sjálfur var heiðursgestur samkomunnar og tók þátt í fjöldasöng og fór með gamanmál. Á þessari mynd leiðir Jónas fjöldasöng í einum af lögum sínum. Frá vinstri: Fannar Viggósson, Helga Hermannsdóttir, Þorvaldur Skaftason, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Ólafur Bernódusson, Jónas Árnason, Guðbjörg Viggósdóttir, Hallveig Ingimarsdóttir, Guðný Sigurðardóttir Magnús B. Jónsson og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn084

Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner í litaglaðri sýningu í Fellsborg vorið 1992 undir leikstjórn Árna Blandon. Sýningin var fjölmenn og leikararnir voru á öllum aldri eins og leikritið gerir ráð fyrir. Á þessari mynd sem tekin var á sýningu eru frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Ingólfur Bjarnason, Rúnar Jóhannsson, Jón Ingvar Valdimarsson, Hildur Inga Rúnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Steindór Haraldsson.

Magnús B Jónsson091
Anna Dúna Rúnarsdóttir hvílir sig í hestaferð 1998. Ekki er vitað hvar myndin var tekin.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn062
Dagbjört Jóhannsdóttir liðsmaður Leikklúbbs Skagastrandar.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn121
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðbjörgu Gylfadóttur sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn204
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Rosemary Angus sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins sem tónlistarmaður á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn228
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ástmar Kára Ástmarsson sem tók þátt í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn160
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri:Hendrik Berndsen, Óli Hjörvar Kristmundsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, William Sillar , tvær óþekktar, Steindór Haraldsson, Herborg Þorláksdóttir, Þorvaldur Skaftason, óþekkt, Viggó Magnússon, Jón Arnarson?, Kristín Jónsdóttir, Ástmar Kári Ástmarsson, Bóel Hallgrímsdóttir, Bergþór Gunnarsson og Sigrún Jónsdóttir. Litlu strákarnir sem sér aftan á fyrir miðri mynd eru Jónas Þorvaldsson til vinstri og Gunnar Halldór Hallbjörnsson til hægri.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn179
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru nokkrir af starfsmönnum sýningarinnar á æfingu. Frá vinstri: Þröstur Guðbjartsson leikstjóri, Guðjón Árnason leikmyndasmiður, Árni Geir Ingvarsson ljósamaður og leikmyndasmiður og óþekktur. Myndina tók Jónas Baldursson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn091
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner í litaglaðri sýningu í Fellsborg vorið 1992 undir leikstjórn Árna Blandon. Sýningin var fjölmenn og leikararnir voru á öllum aldri eins og leikritið gerir ráð fyrir. Á þessari mynd, sem tekin var á sýningu, eru frá vinstri: Jóney Gylfadóttir, Guðlaugur Hjaltason, Ingólfur Bjarnason, Rúnar Jóhannsson, Jón Ingvar Valdimarsson og Jensína Lýðsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn126
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Jónas Baldursson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Hallbjörn Hjartarson og lengst til hægri sér í Bjarnhildi Sigurðardóttir.
Minjasafn727
Aftan á þessari mynd stendur: "Einar Jónsson , Óseyri á Skagaströnd f, að Illugastöðum á Vatnsnesi 27/1 1862 d. á Blunduósi?". Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn128
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni er Ragnhildur við störf sín í Fellsborg á æfingatímabilinu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn234
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Þórey Jónsdóttur sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn230
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hjördísi Gestsdóttur sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn139
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg. Frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Dagný Sigmarsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir.
Höfðaskóli069
Börn fædd 1989 í 3. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Baldur Magnússon kennari, Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006), Ásþór Óðinn Egilsson, Maríanna Ástmarsdóttir og Arnrún Bára Finnsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ívar Kristberg Einarsson, Þóey Fjóla Aradóttir, Sigþór Ottó Hallgrímsson og Almar Freyr Fannarsson.
Skagaströnd - safn406
Viðbygging við leikskólann Barnaból formlega tekin í notkun í september 1994. Magnús B. Jónsson sveitarstjóri flytur tölu í tilefni dagsins. Frá vinstri á myndinni eru: Halla Lýðsdóttir en dóttir hennar Þórey Fjóla Aradóttir stendur við hlið hennar með blómaspöng í hárinu. Sonur Höllu, Guðjón Örn Arason, situr fyrir framan mömmu sína í skrautlegu vesti. Bára Þorvaldsdóttir þáverandi leikskólastjóri heldur um axlir Bergrósar Hafsteinsdóttur fyrir framan sig. Svandís Hannesdóttir er næst en framan við hana er Arnrún Finnsdóttir. Vilhelm Harðarson stendur í horninu og framan við hann er dóttir hans, Ástrós Vilhelmsdóttir og tvö óþekkt börn. Ragnar Ingvarsson er með son sinn Alexander Ragnarsson í fanginu og síðan koma Ingólfur Bjarnason og Magnús B. Jónsson. Jensína Lýðsdóttir er konan í rauðu blússunni og framan við hana er Patrik Bjarnason sonur hennar. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn195
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Viggó Magnússon sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn714
Guðmundur Kr. Guðnason (d 21.11.1988) frá Ægissíðu, póstur, ljósmyndari og kirkjuáhugamaður. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn093
Myndin var tekin af þessum systkinum í Fellsborg í október 1986. Systkinin eru, frá vinstri talið: Karítas Laufey Ólafsdóttir, Björg Jóhanna Ólafsdóttir (d. 1.3.2007), Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996).
Sigurður Bjarnason - safn 010
Jóhann Bjarnason (d. 14.9.2015) múrari frá Bjargi.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn187
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Jón Indriðason sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn711
Þessi mynd var líklega tekin á sjómannadegi 1945 eða 1946. Þá var haldið upp á daginn á Hólanesinu á blettinum milli Hólaneshúsins og Árness. Maðurinn með hvítu húfuna til vinstri er Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Bautarholti, Frakkaklæddi maðurinn hægra megin við Ólaf er Hörður Ragnarsson en konan í dökku dragtinni og hvítu bandaskónum er líklega Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka. Til hægri spjalla saman þeir Birgir Árnason (d. 2.2.2005) Straumnesi til vinstri og Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985) Höfðaborg (Bankastræti 9) til hægri með hvíta húfu. Aðrir eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi Gunnar Albertsson 29. september 1996.
Skagaströnd - safn 330
Haustið 2003 kom forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, í heimsókn til Skagastrandar ásamt fylgiliði. Meðal annars leit hann við í Höfðaskóla við miklar vinsældir nemenda og starfsfólks þar. Á þessari mynd hlíðir forsetinn á söng skólabarna í íþróttahúsinu ásamt fylgdarliði sínu. Frá vinstri: Hrefna Teitsdóttir sýslumannsfrú á Blönduósi, Dorrit Moussaief forsetafrú, Ragna Þórhallsdóttir forsetaritari, herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslenska lýðveldisins og óþekkt kona.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn051
Díana Kristjánsdóttir gerir sig klára fyrir að fara inn á sviðið í Fellsborg og leika hlutverk sitt í: Er þetta ekki mitt líf?, sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið 1983 undir leikstjórn Guðjóns Sigurvaldasonar. Í baksýn sér í Vilmund Árnason sem einnig lék í verkinu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn231

Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hallgrím Oddsson sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.

Minjasafn735
Þrír ungir drengir á árabát vestan við uppfyllinguna frá Einbúanum út í Spákonufellsey. Í baksýn til hægri sér í talíu á þrífæti sem notuð var til að færa til grjót í uppfyllingunni undir bryggjuna. Myndin var sennilega tekina 1934 eða 1935 þegar hafnarframkvæmdir stóðu sem hæst. Drengirnir eru Theódór Ólafsson, Jörgen Berndsen og Steinþór Ólafsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum á Skagaströnd í október 1994.
Guðmundur Guðnason 2 394
Aðalheiður Másdóttir frá Réttarholti.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn055
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg af aðalleikara sýningarinnar Magnúsi B. Jónssyni en hann lék lamaðan mann sem var að berjast við kerfið um að fá að deyja.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn191
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Einar Helgason sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Skagaströnd - safn354
Neyslusamfélaginu fylgir mikið af rusli. Á þessari mynd frá 1991 er verið að pressa járnarusl á brotajárnshaugunum við rætur Spákonufells. Þetta var gert með reglulegu millibili þegar haugurinn var farinn að verða of umfangsmikill. Pressað járnið var síðan sett í skip og flutt út í endurvinnslu. Mennirnir á myndinni eru Magnús B. Jónsson sveitarstjóri til vinstri og Rúnar Jóhannsson þáverandi starfsmaður Höfðahrepps að fylgjast með framkvæmdunum. Maðurinn á krananum er óþekktur.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn222
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) sem lék í nokkrum sýningum Leikklúbbsins auk þess að leikstýra leikritinu: Allra meina bót fyrir Leikkklúbbinn leikárið 1976 - 1977. Bernódus starfaði líka áður mikið með Leikfélagi Skagastrandar meðan það var og hét.
Guðmundur Guðnason 2 387
Kirkjugestir við Ábæjarkirkju í Austurdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn104
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Helgu Hermannsdóttur sem var starfsmaður við nokkrar sýningar klúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn130

Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson og Anna Jóna Geirsdóttir.

Leikklúbbur Skagastrandar - safn140
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Á þessari mynd er starfsfólkið sem kom að sýningunni án þess að leika í verkinu. Sitjandi frá vinstri: Helga Hermannsdóttir, Díana Kristjánsdóttir, Kristín Björnsdóttir og Guðný Sigurðardóttir. Standandi frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Birna Blöndal, Árni Geir Ingvarsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir, Vilhelm Harðarson, Kristján Blöndal og Ástmar Kári Ástmarsson.
Guðmundur Guðnason 2 415
Á myndinni eru frá vinstri: séra Ólafur Hallgrímsson, Guðmundur Sigfússon (d. 27.3.1993) frá Eiríksstöðum, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Sigurður Jónsson. Líklega var þessi mynd tekin af þeim félögum við Merkigil í Skagafirði á leið til messu í Ábæjarkirkju en þangað sóttu þeir saman árlega í mörg ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Sigurður Bjarnason - safn 033
Ingólfur Skagfjörð Bjarnason (d. 17.1.1967) frá Bjargi á Skagaströnd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn223
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Óskar Þór Óskarsson sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Skagaströnd - safn345
Áður en farið var í smíði nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn 1991 var gert líkan af höfninni hjá Siglingamálastofnun í Kópavogi. Líkanið var gert til að hægt væri að gera ýmsar mælingar til að átta sig á hvaða útfærsla gæfi bestan árangur hvað kyrrð og öryggi innan hafnarinnar varðar. Þessi mynd var tekin 25. mars 1991 þegar hópur fólks frá Skagaströnd fór til að skoða líkanið undir leiðsögn starfsmanna Siglingamálastofnunar. Á myndinni sést aftan á Ólaf Bernódusson til vinstri, Jón Ólaf Ívarsson (d. 29.12.2013) og þorvald Skaftason þar sem þeir hlíða á starfsmann Siglingamálastofnunar.
Minjasafn695
Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991) Rjúpnafelli á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1985.
Minjasafn 46
Gripur nr. 46. Lítil ljósmynd af Jóhönnu Benónýsdóttur frá Steinnýjarstöðum í ramma. Síðast var Jóhann búsett í Drangey á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason 2 358
Ekki er vitað hvenær eða hvar þessi mynd var tekin. Fólkið er að fylgjast með einhverjum atburði, líklega á íþróttamóti. Áhorfendurnir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn098
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Helgu Ottósdóttur sem vann ýmis störf fyrir Leikklúbbinn sem hvíslari, leikmunavörður, umsjón með búningum, aðstoðarmaður leikstjóra auk þess að vera formaður Leikklússins1981 -1983.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn023
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi 1966 af fótboltaleik á Kaupfélagstúninu. Þar kepptu sjómenn íklæddir sjóstökkum í góðu veðri sem var þennan dag. Flestir þeirra voru ekki vanir fótboltaleikjum þannig að margur svitadropinn féll í leiknum sem var frjálslega dæmdur af dómara leiksins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 374
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Einar Haukur Arason, Ástmar Kári Ástmarsson, Ólafur Bernódusson og Þorvaldur Skaftason.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn056
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg. Ólafur Bernódusson mundar sprautuna en Magnús B. Jónsson fylgist með í rúminu.
Minjasafn 43
Gripur nr. 43. Lítil portrett mynd af Nikulási Helgasyni bónda á Bakka.
Guðmundur Guðnason 2 478

Þessi mynd var tekin á tröppunum í félgasheimilinu Fellsborg sumarið 1977 eða 1978. Myndin var tekin í tilefni af aðalfundi Prestafélags hins forna Hólastiftis sem haldinn var á Skagaströnd í þetta sinn. Frá vinstri í fremri röð: séra Pétur Sigurgeirsson, Akureyri, séra Pétur Þ. Ingjaldsson, Skagaströnd, séra Gunnar Gíslason, Glaumbæ, séra Sigurður Þ. Guðmundsson, Grenjaðarstað og séra Stefán Snævarr, Dalvík.Aftari röð frá vinstri: séra Sigurpáll Óskarsson, Hofsósi, séra Úlfar Guðmundsson, Ólafsfirði, séra Árni Sigurðsson, Blönduósi, séra Björn H. Jónsson, Húsavík, séra Hjálmar Jónsson, Bólstað, séra Jón Bjarman, fangaprestur Reykjavík, séra Kristján Valur Ingólfsson, Raufarhöfn og séra Sighvatur Birgir Emilsson, Hólum.

Árni Geir Ingvarsson - safn 370
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Vigdís Viggósdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Kristín Jónsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn221
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Sögu Jónsdóttur sem leikstýrði leikritinu: Stalin er ekki hér fyrir Leikklúbbinn leikárið 1980 - 1981.
Skagaströnd - safn400
Hólabraut 14 í byggingu ekki er vitað hvenær myndin var tekin en húsið á bakvið er Vinaminni (Hólabraut 16). Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
1

87
88
89

167
Leita í myndasafninu
Leita