Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli012
Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) starfaði við Höfðaskóla í yfir 50 ár. Myndin er af Elínborgu að fá sér kaffisopa á kennarastofunni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 086
Bergþór Gunnarsson vinnur við rennibekkinn á Vélaverkstæði Karls Berndsen.
Höfðaskóli021
Börn fædd 1981 í 5. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Höfðaskóli - safn 267
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á myndinni eru stúlkur að bíða eftir að það komi að þeirra atriði á afmælishátíðinni. Frá vinstri: Ólína Selma Þórarinsdóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Hanna María Gylfadóttir, Rósa Björk Einarsdóttir og Laufey Sunna Guðlaugsdóttir.
Minjasafn681
Þetta fólk bjó í Lundi, Skagaströnd. Til vinstri er sambýlisfólkið Margrét Jóhannesdóttir og Ole Aamundsen en hjá þeim situr Björg Berndsen. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gaf Ása Jóhannsdóttir Lækjarbakka, Skagaströnd.
Höfðaskóli093
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1966 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Guðfinnur Bjarni Ottósson, Einar Ásgeirsson, Fritz Hendrik Berndsen, Kristján Karlsson, Guðjón Árnason, Víðir Ólafsson, Kristján Steinar Kristjánsson, Ari Þórsson, Orri Blöndal og Jóhannes Sveinsson. Fremri röð frá vinstri: Vala Rós Ingvarsdóttir, S. Drífa Kristjánsdóttir, Jónas Baldursson kennari, Agnes Sævarsdóttir og Þórhildur Jakobsdóttir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 014
Gísli Snorrason frá Vélaverkstæði Skagastrandar við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Sigurður Bjarnason - safn 015
Rósa Pálsdóttir (d. 1.5.2002) frá Bjargi við saumavélina sína.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 021
Ernst Berndsen vélstjóri í vélarúminu á Arnari Hu 1. Áletrunin á myndinni er ráðgáta því Arnar var smíðaður í Japan og gjarnan kallaður Japans-Arnar til aðgreiningar frá öðrum yngri togurum Skagstrendings hf með sama nafni.
Minjasafn689
Síldarlöndun úr Húna Hu 1 á Skagaströnd 1959 eða 1960. Áhöfnin mokar síld í "veltitunnur" sem síðan voru hífðar upp á bryggju og þar hvolft úr þeim í handvagna sem var svo ekið að planinu þar sem síldarstúlkurnar biðu eftir síldinni til söltunar. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Helga Berndsen frá Karlsskála gaf myndina í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 003
Viðhaldsgengi frá Vélaverkstæði Skagastrandar um borð í einum af togurum Skagstrendings hf að spá í spilin ásamt vélstjóranum. Frá vinstri: Ari Þórsson, Birkir Rafn Gíslason, óþekktur, Óli Axel Óskarsson, Gísli Snorrason og Finnur Kristinsson yfirvélstjóri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 561
Hér hefur Vilhjálmur Skaftason, sem stendur og virðir aðstæður fyrir sér, búinn að festa Súkkuna sína í skafli. Í baksýn býr Eðvarð Hallgrímsson sig undir að draga Súkkuna úr skaflinum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 534
Stefán Kristinsson (d. 19.5.2011) nýtur hér útvistar í óþekktri hraunbreiðu.
Höfðaskóli - safn 229
Guðbjörg Ólafsdóttir, heimilisfræðikennari við Höfðaskóla í nokkur ár, í vinnunni í eldhúsi Höfðaskóla í lok nóvember 1998.
Minjasafn679
Þessi mynd var tekin í Höfðaskóla en ekki er vitað hvenær. Á henni eru, frá vinstri: Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978) ljósmóðir Árnesi Skagaströnd, Páll V.G. Kolka (d.19.7.1971) læknir og rithöfundur og kona hans Guðbjörg Guðmundsdóttir Kolka (d. 11.6.1974). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd en myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn722
Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) Bjarmalandi á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 6. júní 1996.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 088
Ungu drengirnir á þessari snjáðu mynd voru skólabræður í Höfðaskóla á yngri árum en störfuðu síðan báðir um tíma hjá Vélaverkstæði Karls Berndsen. Bergþór Gunnarsson er til vinstri og Valdimar Viggósson til hægri.
Höfðaskóli025
Börn fædd 1977 í 9. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 497
Þorvaldur Skaftason til vinstri og Fritz Hendrik Berndsen til hægri við vinnu á vinnupalli við stjórnsýsluhúsið á kuldalegum degi.
Sigurður Bjarnason - safn 022
Ragna Bjarnadóttir frá Bjargi.
Minjasafn678
Ólafur Ásgeirsson (d. 27.12.1995) frá Höfðahólum á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1.desember 1994.
Minjasafn783
Fólkið á myndinni var heimilisfólk að Höfðahólum á Skagaströnd. Mynd af bænum er fyrir miðju en hann stóð þar sem í dag er tjaldsvæðið á Skagaströnd. Guðríður Rafnsdóttir og Ásgeir Klemensson voru hjónin á bænum en Sigríður, Ólafur og Axel voru þeirra börn. Árni Sigurðsson var sonur Guðríðar og þar með hálfbróðir þeirra. Árni ólst upp hjá móður sinni og Ásgeiri manni hennar í Höfðahólum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Höfðaskóli101
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1957 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Viðar Guðmundsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson kennari, Axel Jóhann Hallgrímsson og Guðjón Guðjónsson. Fremri röð frá vinstri: Sesselja Guðmundsdóttr, Unnur Gunnarsdóttir, Fjóla Sigurðardóttir, Eyrún Guðbjartsdóttir (d. 7.4.1987) og Guðrún Einarsdóttir.
Höfðaskóli064
Börn fædd 1990 í 2. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Gunnlaug Þ. Gunnlaugsdóttir kennari, Ragnar Már Björnsson, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir, Ómar Ísak Hjartarson, Ágústa Lóa Jóelsdóttir, Unnar Már Garðarsson og Arís Eva Vilhelmsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Sunna Gylfadóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Fanney Björk Ingólfsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Katrín Björk Guðmundsdóttir og Steinar Orri Ólafsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 011
Hjörtur Guðbjartsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri við vinnu sína við vélaviðgerð um borð í einum af togurum Skgastrendings hf.
Höfðaskóli - safn 314
Í smíðatíma í Höfðaskóla líklega 1988 eða 1989. Á myndinni eru, frá vinstri: Jón Gunnar Einarsson, Gunnlaugur Briem og Jón Oddur Hjálmtýsson.
Minjasafn747
Gísli Einarsson (d. 27.10.1969) Viðvík á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 048
Jón Indriðason vélstjóri til vinstri og Gísli Snorrason frá Vélaverkstæðinu vinna við vél í einum af togurum Skagstrendings hf.
Höfðaskóli060
Börn fædd 1988 í 4. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Ívar Gylfason, Arnór Snorri Gíslason, Kristján Pétur Guðjónsson, Jón Atli Magnússon, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Rebekke Maren Þórarinsdóttir, Sigurgeir Snævar Árnason og Garðar Geirfinnsson kennari. Fremri röð frá vinstri: Ester Ösp Víðisdóttir, Kristján Freyr Sigurbjörnsson, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Óðinn Örn Sævarsson, Sindri Jóelsson og Valgerður Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli087
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1967 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Þórarinn K. Þórsson, Arnar Arnarsson, Ingvar Þór Jónsson, Björn Hallbjörnsson og Hrólfur Pétursson. Fremri röð frá vinstri: Birna Sveinsdóttir, Bergþóra H. Birgisdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir kennari, Svenný Hallbjörnsdóttir, Rósa Sigurðardóttir og Erna Rós Magnúsdóttir.
Minjasafn717
Brautarholt. Ólafur Guðmundsson (d.6.10.1985), íbúi þar, er til hægri en konan er Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með son sinn Vilhelm Harðarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 042
Hafþór Gylfason hvílir sig eftir aðgerð um borð í Arnari Hu 1. Skipið er greinilega með fullfermi því fiskur hefur verið ísaður í kössum á millidekkinu og meira segja í þvottakarinu þannig að allt pláss er fullnýtt.
Höfðaskóli041
Börn fædd 1997 í 1. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftari röð frá vinstri: Gunnþór Ingi Kristjánsson, Róbert Björn Ingvarsson, Bára Þorvaldsdóttir kennari, Aron Breki Hjartarson og Elvar Geir Ágústsson. Fremri röð frá vinstri: Aldís Embla Björnsdóttir, Halldóra Ósk Guðmundsdóttir, Ásdís Birta Árnadóttir, og Rakel Jensína Heiðarsdóttir.
Höfðaskóli059
Börn fædd 1991 í 1. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir kennari, Hanna María Gylfadóttir, Sævar Hlynur Tryggvason, Eyþór Vilhjálmsson, Elna Ragnarsdóttir, Guðjón Örn Arason, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir og Patrik Snær Bjarnason. Fremri röð frá vinstri: Ásta Halla Lúðvíksdóttir, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Aðalheiður Ragnarsdóttir, Kristján Heiðmar Kristjánsson, Gunnar Már Sæmundsson og Jóhann Örn Stefánsson.
Höfðaskóli - safn 116
Þegar stund gafst milli stríða í vinnuviku í Höfðaskóla notuðu þessar stúlkur tækifærið til að fá sér nammi í horninu við innganginn í skólann. Frá vinstri: Anna María Magnúsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Birgitta Maggý ? og Rebekka Laufey Ólafsdóttir.
Höfðaskóli073
Börn fædd 1985 í 4. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Birna Þórkatla Sæmundsdóttir, Eva rún Rúnarsdóttir, Kristinn Daníel Guðmundsson, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari. Miðröð frá vinstri: Birkir Rúnar Jóhannsson, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Stefán Agnar Gunnarsson og Tinna Björk Gunnarsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Lýður Ragnar Arason, Þórður Óskarsson, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna, Lilja Nótt Sævarsdóttir), Anna María Magnúsdóttir og Anna Dúna Rúnarsdóttir.
Höfðaskóli047
Börn fædd 1995 í 3. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftasta röð frá vinstri: Ernst Guðni Hólmgeirsson, Sigurjón Elí Eiríksson, Sæþór Bragi Ágústsson, Kristmar Ingi Ragnarsson og Erling Arnar Erlingsson. Miðröð frá vinstri: Ingvar Páll Hallgrímsson, Ásdís Erla Steingrímsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir kennari, Linda Rós Ómarsdóttir og Magnús Jens Magnússon. Fremsta röð frá vinstri: Saga Lind Víðisdóttir og Silvía Ósk Hrólfsdóttir.
Höfðaskóli009
Þessir tveir menn störfuðu við Höfðaskóla um árabil. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), til vinstri, var kennari í hlutastarfi, prófdómari og forfallakennari. Eiríkur Kristinsson (d. 4.10.1994) kenndi unglingum í skólanum í mörg ár. Myndin var tekin á skólatröppunum en ekki er vitað hvenær þó líklega hafi það verið einhverntíma á árunum 1965 - 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn 496
Guðmunda Ólafsdóttir við afgreiðslustörf í sjoppunni.
Minjasafn720
Kristín Bjarnadóttir (d.?) frá Kálfshamarsvík (Viðvík). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Inga Þorvaldsdóttir Straumnesi 1. desember 1994.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 041
Hákarl er ekkert alltof vinsæll meðafli sem stundum kemur í trollið. Það getur nefnilega verið snúið að ná svona risaskepnu úr trollinu á dekkinu án þess að skemma það mikið. Maðurinn sem stendur hjá hákarlinum, um borð í Arnari Hu 1, er Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004). Hákarlinn á myndinni er beinhákarl. Hann er ekki nýttur lengur heldur er honum skilað í hafið aftur hið snarasta. Samkvæmt Vísindavefnum getur beinhákarl orðið allt að 12 metrar að lengd en er meinleysisskepna sem syndir um tannlaus með galopið ginið því hann lifir á örsmáu dýrasvifi. Öfugt við aðrar hákarlategundir hefur hann beinkennda stoðgrind en ekki úr brjóski. Vegna gríðarstórrar lifrar í honum var hann mjög verðmætur á árum áður vegna lýsisins sem unnið var úr henni og flutt út á háu verði.
Árni Geir Ingvarsson - safn 611
Systkinin Árni Geir Ingvarsson og Vala Rós Ingvarsdóttir saman í blómabrekku snemma á áttunda áratugnum.
Sigurður Bjarnason - safn 041
Anna S. Sölvadóttir (d. 10.10.1965) frá Karlsskála á Skagaströnd.
Sigurður Bjarnason - safn 006
Ragna Skagfjörð Bjarnadóttir frá Bjargi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið um jól einhverntíma á sjötta áratugnum.
Minjasafn755
Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) kaupmaður í versluninni Borg á Skagaströnd. "Siggi í Siggabúð", eins og hann var oft kallaður, stundaði m.a. útflutning á ull og gærum um tíma meðfram dagvöruverslun sinni. Verslunin Borg var einnig heimili Sigurðar og konu hans Margrétar Konráðsdóttur (d. 17.9.1974) en verslunin var í litlu húsi sem stóð norðan við mjölskemmuna. Seinna var svo rekið rafmagnsverkstæði í húsinu, sem nú hefur verið rifið. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn725
Björn Ólafsson (d. 1935) Árbakka. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 12. september 1996.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 035
Gestur Arnarson slakar á yfir kaffibolla í borðsalnum á Arnari Hu 1.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 025
Feðgar um borð í Arnari Hu 1 í ókunnri höfn. Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) stendur framan við brúna en sonur hans Birgir Þórbjarnarson skipstjóri á Arnari stendur á brúarvængnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 627
Þessi mynd var tekin í Skíðaskálanum á Skagaströnd sennilega kringum 1990. Á myndinni eru frá vinstri: Sóley Elsa Magnúsdóttir Blöndal, Gunnar Tryggvi Ómarsson og Sólveig Eiðsdóttir móðir Sóleyjar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 040
Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) við vinnu á dekkinu á Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson - safn 517
Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðarmaður á kunnuglegum slóðum í brúnni á Ólafi Magnússyni Hu 54.
Minjasafn734
Aftan á þessari mynd stendur skrifað:<em> "Efnabær 19 aldar. Haukagil í Hvítarsíðu í Borgarfirði Mindin tekin sumarið 1884. Ljósmynd Sigfús Eymundsson".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi 8. október 1977.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 023
<p>Grétar Smári Hallbjörnsson slakar á í matsalnum á Arnarri Hu 1 á milli hífa.</p><p><br></p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 557
Ólafur Bernódusson dregur hér grásleppunet á bát sínum, Balda, á veiðsvæði sunnan við Skagaströnd. Myndin var tekin einhverntíma á níunda áratugnum.
Minjasafn716
Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholti fyrir utan Brautarholt. Drengurinn, sem er að skoða hverfisteininn, er líklega Vilhelm Harðarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Höfðaskóli049
<p>Börn fædd 1993 í 2. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftasta röð frá vinstri: Halla Björk Víðisdóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Árný Sif Gestsdóttir og Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir. Miðröð frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, Guðjón Örn Kristjánsson, Alex Már Gunnarssson og Davíð Víðisson. Fremsta röð frá vinstri: Sonja Sif Ólafsdóttir, Ólína Selma Þórarinsdóttir, Jóna Fanney Svavarsdóttir kennari, Sara Rut Fannarsdóttir og Elísabet Anna Einarsdóttir. </p>
Minjasafn730
Sigurður Guðmundsson (d. 2.12.1984) Laufási á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 039
Kátir karlar í netavinnu á dekkinu á Arnari Hu 1. Frá vinstri: Gestur Arnarson, Sævar Hjaltason, Vilhjálmur Jónsson og Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004).
Sigurður Bjarnason - safn 048
Sigurður Skagfjörð Bjarnason frá Bjargi á Skagaströnd
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 050
Ungur nemur gamall temur. Friðvin Ingi Ernstson hjálpar Ara Þórssyni við vinnu í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf.
1
…
92
93
94
…
167
Leita í myndasafninu
Leita