Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
Menn
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli079
Börn fædd 1981 í 8. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Heiðrún Ósk Níelsdóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Kristrún Linda Jónasdóttir, Bæring Jón Skarphéðinsson og Jón Ingvar Valdimarsson aðstoðarskólastjóri. Fremri röð frá vinstri: Sigrún Líndal Þrastardóttir, Birna Ágústsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Birkir Rafn Gíslason, Ragna hrafnhildur Magnúsdóttir og Sverrir Brynjar Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 541
Unglingar á Skagaströnd fyrir allnokkrum árum. Frá vinstri: Bryndís Guðjónsdóttir, Björk Sveinsdóttir og Ragnar Jónsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 069
Starfsmenn Vélaverkstæðis Karls Berndsen 1985. Talið frá vinstri: Guðjón Árnason, Valdimar Viggósson, Jóhannes Sveinsson, Gísli Snorrason, Sigurjón Ingólfsson og Bergþór Gunnarsson.
Höfðaskóli - safn 119
Nokkrir 10. bekkingar við lokaútskrift sína úr Höfðaskóla 31. maí 1996 með einkunnirnar sínar og rós í tilefni dagsins. Frá vinstri: Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Ástmar Sigurjónsson, Gunnar Dór Karlsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Sigurður S.Ó. Hallgrímsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 624
Litli drengurinn á myndinni er Árni Geir Ingvarsson en fullorðna fólkið er óþekkt (?Oddur og Gerða?). Öll húsin á myndinni eru horfin. Í húsinu til vinstri (sést bara hálft) var einu sinni verslun og fiskvinnsla en það endaði æfi sína þegar það brann til grunna en þá var það bara notað sem geymsla. Húsið sem er fjær var kallað Skólahúsið og gegndi hlutverki skóla og jafnframt var það notað sem samkomuhús t.d. fyrir rómaða dansleiki sem þar voru haldnir á sínum tíma. Enn má sjá grunn húsins. Húsið til hægri var verbúð en það er ekki lengur til staðar. Nýtt salernishús og nestisaðstaða hefur verið byggt örlítið upp í hallanum vestan við verbúðina. Vitinn stendur að sjálfsögðu enn 17 metra hár.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 064
Sigursveitin í kappróðri karla á sjómannadegi, sennilega 1989, kom frá Vélaverkstæði Karls Berndsen. Á myndinni er sigursveitin. Frá vinstri: Fritz Hendrik Berndsen, William Sillar, Gísli Snorrason stýrimaður, Jóhannes Sveinsson, Guðjón Árnason, Valdimar Viggósson og Ari Þórsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 031
Hafþór Gylfason til hægri og Kiddi "Gullrass" til vinstri í borðsalnum á Arnari Hu 1. Ef þú veist hið rétta nafn á Kidda vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Sigurður Bjarnason - safn 023
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 255
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Þessi mynd var tekin af týskusýningu sem var í einni stofunni. Þar sýndu nemendur eldri fatnað þó e.t.v. væri hann ekki allur frá 1939 þegar Höfðaskóli var stofnaður. Frá vinstri: Ívar Kristberg Einarsson, Ómar Ingi Ómarsson, Sigurgeir Snævar Árnason, Sóley Elsa Blöndal, Amy Ósk Ómarsdóttir, ?Elna Ragnarsdóttir?, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir, Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Dóra Rebekka Sævarsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen, Brynja Hödd Ágústsdóttir, óþekktur og Þórir Óskar Björnsson.
Sigurður Bjarnason - safn 052
Konan til vinstri er Sigurunn Konráðsdóttir (d. 18.12.1998) en til hægri er Rósa Pálsdóttir (d. 1.5.2002) frá Bjargi. Barnið á milli þeirra er Jóhanna Jóhannsdóttir, ömmubarn Rósu.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 030
Brugðið á leik um borð í Arnari Hu 1. Gestur Arnarson hampar Sævari Hjaltasyni í fanginu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 518
Orka Ís 119 á fullu ferðinni úti á rúmsjó. Maðurinn um borð er óþekktur.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 043
Bjarni Ottósson frá Vélaverkstæði Skagastrandar við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Höfðaskóli078
Börn fædd 1980 í 9. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Gunnar Dór Karlsson, Ástmar Sigurjónsson, Bjarney Katrín Gunnarsdóttir og Kristinn Björgvinsson. Miðröð frá vinstri: Ólafur Bernódusson kennari, Erla María Lárusdóttir, Þorsteinn Rúnar Pálsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Rakel Petrea Finnsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Sigurður S. Ó. Hallgrímsson, Valrún Eva Vilhelmsdóttir og Auður Eva Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn 146
Hér er einn hópur nemenda á leiklistarnámskeiði með leiðbeinandanum, Sigrúnu Valbergsdóttur. Nemendurnir eru frá vinstri: Sveinn Elvar Jóelsson, Magnús Árni Hallgrímsson, óþekkt, Elva Mjöll Þórsdóttir, sem hylur andlit sitt, Jón Ingi Ragnarsson og María Markovic. Ef þú veist hver óþekkta stúlkan er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 161
Mikið er um hópastarf og ýmis konar samvinnu nemenda í vinnunni í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1992 af nokkrum stúlkum niðursokknum í einhverja textavinnu. Frá vinstri: Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir, Linda Hafdal, tvær óþekktar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 537
Hér er fólk að fara á skíði við skíðalyftuna í hlíðum Spákonufells. Dökki kofinn sem sést á myndinni fauk í óveðri einn daginn og splundraðist. Lyftan var þá færð örlítið sunnar og lengd um ca 50 metra og annar kofi reistur fyrir stjórntæki lyftunnar. Lyftan hefur nú verið tekin niður fyrir allmörgum árum. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Höfðaskóli - safn 312
Þrjár ungar stúlkur starfa saman að einhverri ritun með rafmagnsritvél 1988 eða 1989. Frá vinstri á myndinni: Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir og Halla Kristín Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 512
Þorvaldur Skaftason aðstoðar Sigurbjörn Björgvinsson við að klæðast flot-björgunarbúningi. Í slíkum búningi fljóta menn og á þeim er belti sem nota má til að hífa viðkomandi upp í þyrlu ef þarf.
Höfðaskóli - safn 305
Sigríður Einarsdóttir var kennari við Höfðaskóla í nokkur ár.
Höfðaskóli080
Börn fædd 1979 í 10. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Hilmar Árni Eðvarðsson, Finnbogi Guðmundsson, Eiður Örn Þórsson og Jóhannes William Grétarsson. Miðröð frá vinstri: Linda Hafdal, Árni Max Halaldsson, Hildur Inga Rúnarsdóttir og Ingibergur Guðmundsson skólastjóri. Fremsta röð frá vinstri: Gunnþór Sæþórsson, Guðrún Elsa Helgadóttir og Gunnar Guðmundsson.
Höfðaskóli - safn 250
Á kennarastofu Höfðaskóla vorið 1986. Frá vinstri: Ólafur Bernódusson og Inga Matthíasdóttir.
Höfðaskóli042
Börn fædd 1994 í 4. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftasta röð frá vinstri: Guðjón Páll Hafsteinsdóttir, Viktor Örn Valdimarsson, Stefán Velimir og Ingimar Gísli Guðjónsson. Miðröð frá vinstri: Torfi Friðrik Elíasson, Elías Gunnar Hafþórsson, Hildur Ingólfsdóttir kennari, Eva Dís Gunnarsdóttir, Unnar Leví Sigurbjörnsson og Sindri Snær Guðmundsson. Fremsta röð frá vinstri: Ellen Sigurjónsdóttir, Tanja Rán Einarsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir og Þorgerður Björk Guðmundsdóttir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 049
Ernst Berndsen yfirvélstjóri vinnur við aðalvélina í einum af togurum Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 584
<p>Báturinn Sæborg Hu 177 leggur úr höfn á Skagaströnd í sléttum sjó. Sæborg var smíðuð í Vestur-Þýskalandi 1956 eftir teikningu Hjálmars R. Bárðarsonar og endurbyggður í Keflavík 1978 - 1979. Sæborgin fórst út af Rifi á Snæfellsnesi 8. mars 1989 og með honum einn maður. Maðurinn sem fylgist með á bryggjukantinum er Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) fyrrverandi sjómaður og áhugaljósmyndari. </p>
Höfðaskóli - safn 137
<p>Þessi mynd var tekin í einhverju skólaferðalagi nemenda Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1995-1998. Frá vinstri: Lýður Ragnar Arason og Stefán Agnar Gunnarsson. Ekki er vitað hvar myndin var tekin.</p>
Höfðaskóli - safn 214
Ingunn Björnsdóttir kennari við Höfðaskóla. Í dyrunum sér í Ólaf Bernódusson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli070
Starfsmenn Höfðaskóla veturinn 1994 - 1995. Aftasta röð frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Jóhanna Jónsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Líney Jósefsdóttir, Helga Ólína Aradóttir og Egill Hallgrímsson. Miðröð frá vinstri: Sólveig Kristjánsdóttir, Elva Þórisdóttir, Bjarni G. Þórmundsson, Unnur Kristjánsdóttir, Þröstur Líndal Gylfason og Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007). Fremsta röð frá vinstri: Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Jón Ingvar Valdimarsson aðstoðarskólastjóri, Ingibergur Guðmundsson skólastjóri og Sóley Ægisdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 529
Árni Guðbjartsson um borð í Hafrúnu Hu 12 býður ljósmyndaranum í nefið. Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) bíður á bryggjunni eftir að röðin komi að honum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 572
Myndin var tekin á sjómannadegi af bardagaleik í höfninni á Skagaströnd. Leikurinn fólst í því að mennirnir áttu að reyna að koma andstæðingnum í sjóinn með því að ýta við honum með löngu priki með púða á endanum. Ef grannt er skoðað sést lítill ísjaki í baksýn svo líklega hefur sjórinn verið óvenju kaldur. Mennirnir eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 586
Eiður Hilmarsson leikur sér að því að lyfta Herbert Ólafssyni (d.25.4.2007) og halda uppi með annarri hendi. Auðbjörg Hu 6 er í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 538
Skíðadeildin á Skagaströnd hafði mjög gott samband við jólasveinana. Á hverju ári tóku félagar deildarinnar að sér að taka við pökkum og kortum fyrir þá fjallabræður en þeir komu síðan til byggða og báru út í húsin í bænum rétt fyir jól. Á þessari mynd hafa þeir bræður fengið Eðvarð Hallgrímsson til að hjálpa sér með því að keyra þá um bæinn á jeppa sínum. Bræðurnir á bílnum eru Kertasníkir til vinstri og Bjúgnakrækir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 613
Kristinn Guðmundsson (d. 1.12.1986) í Bræðraborg í fjáragi við Spákonufellsrétt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 600
<p>Á þessari mynd hafa þau stillt sér upp til myndatöku við vitann í Kálfshamarsvík, frá vinstri: Óþekkt, Árni Geir Ingvarsson og Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970. </p>
Höfðaskóli - safn 124
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Frá vinstri: Ásþór Óðinn Egilsson, Almar Fannarsson og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 590
Kári Lárusson og Sigrún Guðmundsdóttir á góðri stundu í Skíðaskálanum á Skagaströnd.
Sigurður Bjarnason - safn 013
Sigurjón Ingólfsson á árunum kringum 1965.
Höfðaskóli - safn 123
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Nemendurnir eru frá vinstri: Aris Eva Vilhelmsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Maríanna Ástmarsdóttir, Brynja Ágústsdóttir og Ester Ösp Víðisdóttir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 015
Viðhaldsgengi á verkstæðinu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf. Frá vinstri: Björn Hallbjörnsson rafvirki frá Neistanum, Gísli Snorrason vélvirki frá Vélaverkstæði Skagastrandar, Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari frá Neistanum, Guðmundur Andersen vélstjóri, Óli Axel Óskarsson frá Vélaverkstæðinu og Hjalti Reynisson rafvirki frá Neistanum.
Höfðaskóli - safn 240
Myndin var tekin 23. maí 2001 þegar hópur elstu nemenda Höfðaskóla var að leggja af stað í skólaferðalag til Danmerkur ásamt kennurum. Frá vinstri: Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Kristín Kristmundsdóttir stuðningsfulltrúi, Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir, Dóra Rebekka Sævarsdóttir, Guðrún Hjálmtýsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen (fremst), Ragnar Einarsson (í miðju), Hörður Aðils Vilhelmsson (fjærst), Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Stefán Agnar Gunnarsson, Tinna Björk Gunnarsdóttir, Eiður Bjarki Þórarinsson, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Birkir Rúnar Jóhannsson og Hans Holger Jörgensen kennari.
Árni Geir Ingvarsson - safn 521
<p>Fólk skoðar björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar - líklega á sjómannadegi - við höfnina á Skagaströnd. Lögreglumaðurinn til vinstri er Þór Gunnlaugsson og maðurinn með yfirvaraskeggið er Haraldur Árnason. Aðrir á myndinni er óþekktir. </p>
Minjasafn765
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er óþekkt en húsið til vinstri er Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd í dag. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996.
Höfðaskóli - safn 154
<p>Elva Þórisdóttir kennari á spjalli við nemendur sína. Nemendurnir eru talið til vinstri frá Elvu í hring: Björgvin Matthías Hallgrímsson, Almar Fannarsson, Íris Ósk Jóhannesdóttir, Arnór Snorri Gíslason, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Eydís Ósk Einarsdóttir, Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006), Sigurgeir Snævar Árnason,óþekktur og Elva kennari. </p>
Sigurður Bjarnason - safn 003
Brúðkaupsmynd af hjónunum Guðlaugu H. Pétursdóttur og Benedikts Hallgrímssonar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
larus098
Bræður frá Vík, þeir Georg Hjartarson (d. 13.9.2001) til vinstri og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til hægri, eftir að hafa verið heiðraðir á sjómannadegi 1995. Heiðursorða sjómannadagsins á Skagaströnd er veitt einstaklingum fyrir áratuga gott starf við sjómennsku og/eða fiskvinnslu á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 617
Eiður Hilmarsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri skoða múkka/fýl sem Stefán hefur fangað. Eins gott að fara varlega með fýlinn því hann á til að æla lýsisbrækju á óvini sína ef honum er ógnað.
Minjasafn759
Á landleið um borð í Skíði Hu 8 vorið 1960. Í bókinni : "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um bátinn: <em>"Skíði Hu 8. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1956 og var 8,4 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann hét Skíði EA 51 þegar bræðurnir Kristján og Sveinn Hjartarsynir keyptu hann í júlí 1958. Skíði fórst í sjóróðri á Húnaflóa 22. nóvember 1961 og með honum bræðurnir, Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir".</em> Maðurinn sem sést á myndinni er líklega Sveinn Hjartarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhannes Björnsson.
Sigurður Bjarnason - safn 036
Ingibjörg Gísladóttir dóttir Önnu Bjarnadóttur frá Bjargi.
Höfðaskóli068
Börn fædd 1986 í 6. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Elín Anna Rafnsdóttir kennari, Sóley Elsa Blöndal, Hörður Aðils Vilhelmsson, Þórunn Júlíanna Guðmundsdóttir, Elínborg Ásdís Árnadóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ragnar Ásmundur Einarsson, Eiður Bjarki Þórarinsson, Ívar Logi Grétarsson, Sonja Hjördís Berndsen og Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 612
Ekki er vitað um tilefni þessarar myndatöku né hvar eða hvenær hún var tekin. Á henni eru frá vinstri talið: Örn Berg Guðmundsson, Haraldur Max Árnason, Ernst Berndsen (í bleikri skyrtu), Óskar Jóhannesson, Kári Sigurbjörn Lárusson, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og Jón Helgason . Maðurinn bak við Ernst er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 574
Systkinin Vala Rós Ingvarsdóttir til vinstri og Þórarinn Brynjar Ingvarsson til hægri leika sér við að klifra, sennilega í Höfðanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið kringum 1980.
Fisk Seafood - safn 026
Endurbygging frystihúss Hólaness hf í fullum gangi árið 1985. Gamalt hús var rifið og nýtt byggt eins og sjá má á myndinni ásamt gagngerum endurbótum á vinnslusölum frystihússins. Verktaki við framkvæmdirnar var Eðvarð Hallgrímsson. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 274
Þessir hressu nemendur eru að undibúa 60 ára afmæli Höfðaskóla í nóvember 1999. Frá vinstri: fjögur óþekkt, Gunnar Sæmundsson, Hákon Unnar Þórarinsson, Sunna Gylfadóttir, Brynja Hödd Ágústsdóttir, óþekktur (nær), Sindri Njáll Hafþórsson (fjær), Elías Sæmundsson og Friðvin Ingi Ernstsson.
Óþekktur ljósmyndari374
Guðmundur Þór Hu 17 nýbyggður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf á Skagaströnd í reynslusiglingu. Fólkið um borð er óþekkt.
Höfðaskóli - safn 239
Þessir nemendur Höfðaskóla fæddust árið 1983. Þessi mynd af þeim var tekin 1998 eða 1999 og einhverjum hefur fundist við hæfi að merkja sérstaklega við þrjá nemendur bekkjarins. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Bernódusson kennari, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Jón Oddur Hjálmtýsson, Gunnar Helgason, Vignir Örn Hafþórsson, Marta Kristín Jónsdóttir, Gunnlaugur Briem, Guðjón Ebbi Guðjónsson og Elva Mjöll Þórsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Eyþór Ernstsson, Magnús Filip Sævarsson, Jón Gunnar Einarsson, Adolf Þór Lúðvíksson, Magnús Líndal Þrastarson og María Markovic.
Árni Geir Ingvarsson - safn 505
Kafarinn Kjartan? frá Ísafirði býr sig undir að kafa við rækjubát. Maðurinn sem snýr baki í okkur er Ólafur Ingibjörnsson sem var skipstjóri á bátnum (Hafbjörg Hu 100 ?).
Sigurður Bjarnason - safn 049
Þessi brosmilda stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 354
Gestir í Höfðaskóla á einhverjum opnum degi í skólanum. Frá vinstri: Inga Valdís Heimisdóttir?, Jónína Valdimarsdóttir, Þórdís Sigurðardóttir, óþekkt og Þorvaldur Skaftason.
Höfðaskóli - safn 232
Guðmundur Oddson var kennari í Höfðaskóla í nokkur ár. Á þessari mynd er hann að slaka á í kaffitíma á kennarastofunni.
Höfðaskóli089
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1967 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Kolbrún Þórðardóttir kennari, Sigurjón Karlsson, Ólafur Ásgeirsson, Ingvar Þór Jónsson og Arnar Arnarsson. Miðröð frá vinstri: Svenný Hallbjörnsdóttir, Rósa Sigurðardóttir, Birna Sveinsdóttir, Jóhanna Hafdís Leifsdóttir og Bergþóra Birgisdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Hrólfur Pétursson, Ingvar Jónsson, Hafsteinn Pálsson og Björn Hallbjörnsson.
1
…
95
96
97
…
167
Leita í myndasafninu
Leita