Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Bílar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Skip og Bátar
393 myndir
Flæði
Reitir
Óþekkt086
Bíll á kafi í snjó fyrir utan skólann. Bílinn átti Einar Haukur Arason, sem var húsvörður í skólanum þegar myndin var tekin og bjó í íbúð, sem þá var í norðurenda skólans. Í baksýn sér í hornið á palli Volvo vörubíls Harðar Ragnarssonar. Barnið á myndinni er óþekkt.
Mundi255
Eigandi bílsins var Engilbert Óskarsson (d.13.9.1982) sem keyrði farþega og vörur milli Skagastrandar og Reykjavíkur. Engilbert Óskarsson og Sigríður Helgadóttir kona hans áttu heima í Skálholti, en fluttu frá Skagaströnd til Reykjavíkur 1958. Þessi bíll kom til Skagastrandar 1954. Bíllinn var óyfirbyggður og var notaður fyrsta sumarið í stauraflutnínga fyrir Rafmagnsveiturnar. Fór um haustið til Akraness og var byggt yfir hann um veturinn. Engilbert Óskarsson seldi Valdimar Núma Guðmundssyni (d. 14.3.1972) bílinn 1958 og var hann í eigu Núma til 1963. Númerið H275 var á flutningabílum frá Skagaströnd til 1982 og á bílum Hjalta Skaftasonar til 2007.
mundi384
Bogabraut 7, Læknisbústaðurinn. Þetta hús var byggt sem læknisbústaður með heilsugæsluaðstöðu á neðri hæð. Aldrei bjó læknir í húsinu en heilsugæslan og tannlæknir voru lengi í húsinu. Margskonar önnur starfsemi hefur farið fram í því en nú (2013) er félagsmiðstöð unglinga á efri hæðinni en hár- og snyrtistofa á neðri hæðinni. Bíllinn á myndinni var verkstæðisbíll frá Vélaverkstæði Karls Berndsen.
30600025
Síldarævintýri. Löndun úr Hrafni Sveinbjarnasyni GK-255 sumarið 1961
30600008
<P>Unnið að síldarlöndun úr Höfrungi AK 10 á Skagaströnd í júlí 1961</P>
mundi475
<P>Vinstra megin er báturinn Guðmundur Þór Hu 7 en til hægri sést aftan á Guðjón Árnason Hu 12. </P>
30680030
Vörubíll við Spákonufellsrétt sennilega einhverntíma á sjöunda áratugnum
30680004
Hjalti Skaftason á Hudson bíl sínum á bryggjunni á Skagaströnd.
30680005
Hér er verið að landa á Volvo vörbílinn H 221. Bíllinn var í eigu Sigurðar Magnússonar (Siggi pípa) sem er þarna til hliðar við bílinn bílstjóra megin. Báturinn lengst til hægri er líklega Stígandi HU 9.
Guðrún Guðbjörnsdóttir052
Birkir Rafn Gíslason fær að prófa að sitja á fjórhjóli. Stúlkan í bláu úlpunni er líklega Rakel Sara Gunnarsdóttir. Rússajeppann í baksýn átti Guðmundur Björnsson
Guðmundur Guðnason127
Þetta unga fólk er í fjallgöngu. Lengst til hægri er Fjóla Jónsdóttir en hin eru óþekkt en eru þó sennilega frændsystkini Fjólu - Snædal börn. Ef þú þekkir þeu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason111
Þetta fólk var saman á ferðalagi í rútu þegar áð var og myndin tekin. Líklega var myndin tekin í Giljareitum á Öxnadalsheiði og einnig er líklegt að hér sé um að ræða ferðalag kirkjukórsins á Skagaströnd en Páll Jónsson var organisti í Hólaneskirkju í einhver ár og margt af fólkinu á myndinni voru kórfélagar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru frá vinstri: fremst: óþekktur bílstjóri, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, Guðmundur Guðnason (d. 12.11.1988) Ægissíðu, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Páll Jónsson (d. 19. 7.1979) Breiðabliki, óþekkt barn, Sigríður Guðnadóttir (d. 4.3.1964) og tvær óþekktar konur. Miðröð: Björn Haraldsson (d. 21.9.1988) Iðavöllum, Vilborg Jónsdóttir (d. ?) Bergi, Guðfinna Pálsdóttir Breiðabliki, Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri, tvær óþekktar, Edda Pálsdóttir Breiðabliki, Ingibjörg Sæmundsdóttir en lengst til hægri er Hörður Ragnarsson (Dengsi). Aftasta röð: Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) Röðulfelli, Sigríður Helgadóttir Skálholti, Sigurlaug Björnsdóttir (d. 7.9.1982) Iðavöllum, tveir óþekktir og Axel Helgason (d. ?) Læk. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn021
Þetta unga og glaða fólk er frá vinstri: Vilborg Jónsdóttir (d.?) frá Bergi, Gunnar Helgason (d.19.10.2007) úr Stórholti og Helga Berndsen frá Karlsskála. Hér eru þau á skemmtiferð einhverntíma kringum 1950.
Guðmundur Guðnason233
Ekki er vitað hvar eða hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið 1962 -1964. Tilefni ferðarinnar er ekki þekkt en á myndinni eru, frá vinstri: Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974), Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), sem býður brjóstsykur, óþekktur, ?Kristín Björnsdóttir?, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, óþekkt fólk en maðurinn lengst til hægri er Hörður Ragnarsson.
Guðmundur Guðnason334
Blönduóskirkja eldri.
Guðmundur Guðnason333
Sigursveit í kappróðri tekur við verðlaunum sínum úr höndum Ingvars Jónssonar (með hatt) frá Brúarlandi og Björgvins Jónssonar frá Höfðabrekku. Í sveitinni voru, talið frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson (Assi) Höfðabrekku, Guðmundur J. Björnsson Jaðri, Reynir Sigurðsson Þórsmörk, Stefán Jósefsson Reykholti, Eðvarð Ingvason Valhöll, Árni Björn Ingvarsson Sólheimum og stýrimaðurinn Pétur Jóhannsson Lækjarbakka. Myndin var sennilega tekin 1967.
Guðmundur Guðnason670
Ferðafélagar í Siglufjarðartúr 15. júní 1968 stoppa til að rétta úr sér á óþekktum stað á leiðinni. Frá vinstri: Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún, Ástmar Ingvarsson ( d. 10.10.1977) frá Balaskarði, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) í Ægissíðu.
Guðmundur Guðnason052
Rúta /áætlunarbíll á fullri ferð neðan við Borgina. Þessir bílar þóttu afar flottir á sinni tíð.
Ólafur Bernódusson536
Óvenju snjólétt hefur verið á Skagaströnd það sem af er vetri 2016 - 2017. Þessi mynd er sett hér inn til að minna fólk á að svo hefur ekki alltaf verið. Til dæmis var gríðarlegur snjór á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Fljótlega var því gripið til þess ráðs að þjappa snjóinn með jarðýtu og síðan var ekið ofan á snjósköflunum kannski tveggja metra þykkum. Þessi mynd var tekin í Mýrinni og sýnir fannfergið þar.
Óþekktur ljósmyndari303
<p>Á þessari mynd eru verkamenn við grjótnám í Höfðanum vegna hafnargerðar á Skagaströnd 1934. Milli 40 og 60 verkamenn unnu við hafnargerðina þetta sumar. Grjótið var sprengt úr Höfðanum og komið upp á vörubíl, oftast með handafli, og síðan flutt í uppfyllingu frá landi og út í Spákonufellsey, sem einnig var brotin niður að hluta og notuð í uppfyllinguna. Strax sumarið 1935 var svo söltuð síld á tréplani í höfninni, sem gjörbreytti allri aðstöðu fyrir báta og fiskmóttöku. Húsin í baksýn voru Melstaður (nær) og Laufás lengst til vinstri.</p>
Skagaströnd - safn027
Byrjað var að leggja varanlegt slitlag á götur á Skagaströnd 1976. Ms Sandey flutti efnið til Skagastrandar og hér er verið að skipa því upp á pallinn á vörubíl Eiðs Hilmarssonar H 474.
Skagaströnd - safn025
Myndin var tekin þegar Ólafsvellir/Náttbrún var rifin. Húsið stóð nokkurn vegin á horninu þar sem nú mætast Oddagata og Túnbraut. Vörubíllinn á myndinni var H 34 í eigu Gunnars Helgasonar (d. 19.10.2007), sem situr undir stýri á myndinni. Myndin var tekin einhverntíma rétt fyrir 1990 en Stjórnsýsluhúsið, sem er í baksýn, var tekið í notkun 1987.
Skagaströnd - safn256
Síðasta Kántrýhátíðin sem haldin var 2002 var afar fjölmenn en jafnframt afar blaut því það rigndi alla helgina. Fljótlega breyttust því tjaldsvæðin - sem voru út um allan bæ - í drullusvað eftir of mikla bílaumferð.
Skagaströnd - safn255
Stórt veitingatjald var reist við Kántrýbæ fyrir síðustu hátíðina sem haldin var 2002. Gámurinn var nýttur sem lager fyrir Kántrýbæ. Mikill mannfjöldi sótti þessa síðustu Kántrýhátíð - svo margir að það varð til vandræða því það rigndi alla helgina og tjaldsvæðin urðu fljótlega að drullusvaði.
Skagaströnd - safn015
Malbikunarframkvæmdir á Bogabraut sennilega kringum árið 2000.
Skagaströnd - safn018
Myndin er af skíðaskálanum í Spákonufelli. Þarna var skíðaparadís sem byggð var upp af samhentu áhugafólki með stuðningi sveitarfélags og fyrirtækja. Skíðamennska lagðist af þarna kringum árið 2000 m.a. vegna mjög hertra öryggiskrafna yfirvalda, sem gerðu gömlu skíðalyftuna nánast ónothæfa. Á myndinni er mikið um að vera í blíðviðri og margir á skíðum.
Ólafur Bernódusson552
Steingrímur St. Sigurðsson (d. 21.4.2000) listmálari dvaldi um tíma á Skagaströnd og vann að list sinni. Á myndinni er hann á Oddagötu að mála.
Skagaströnd - safn119
Grafið fyrir grunni dvalarheimilisins Sæborgar við Ægisgrund. Guðmundur Björnsson mokar á vörubíl Sigurjóns Ástmarssonar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Sæborg var vígð 22. október 1988.
Skagaströnd - safn257
Síðasta Kántrýhátíðin sem haldin var 2002 var afar fjölmenn en jafnframt afar blaut því það rigndi alla helgina. Fljótlega breyttust því tjaldsvæðin - sem voru út um allan bæ - í drullusvað eftir of mikla bílaumferð. Salernisaðstöðu var komið fyrir við öll tjaldsvæðin og hér er mynd af salernunum fyrir sunnan íþróttavöllinn. Þeim var haldið snyrtilegum og þau tæmd tvisvar - þrisvar á dag. Aftur á móti gekk erfiðlega að halda svæðinu kringum þau í góðu horfi eins og sést á þessari mynd.
guðmundur202
Willys-Jeep H 228. Þessi bíll var í eigu Sigmars Ólafssonar frá Brandsstöðum. Bíllinn var sennilega árgerð 1953 eða 54 en bílar af þessari gerð voru kallaðir Ísraelsjeppar. Þeir voru frábrugðnir eldri jeppum í útliti því húddið var hærra til að koma fyrir toppventlavél. Willis jeppar fylgdu innrásarliðinu á hernámsárunum eftir 1940 og urðu tiltölulega algengir á landinu næstu áratugina eftir stríð.
Guðmundur144
Að lokinni einhverri samkomu í Fellsborg heldur fólk til síns heima. Bílaflotinn bíður þolinmóður eftir eigendum sínum.
Jón013
Tjaldbúðalíf á Kántrýhátíð. Maðurinn á myndinni heitir Heimir Baldursson og er frá Hvammstanga.
mundi368
H 34 með stóran heyfarm. H 34 var í eigu Gunnars Helgasonar (d. 19.10.2007) vörubílstjóra sem átti marga bíla með þessu númeri. Áður en núverandi tækni við heyverkun var þekkt þurfti að þurrka heyið á túni og flytja það síðan heim í hlöðu áður en haustaði of mikið að með öllum sínum rigningum og lægðagangi. Þá var heyið gjarnan flutt á vörubíl að hlöðunni og því svo mokað inn með kvíslum. Þá var nóg að gera fyrir börn og unglinga að troða niður heyið, þjappa því saman, í hlöðunni til að koma sem mestu fyrir þar. Það af heyinu sem ekki komst inn í hlöðu var síðan sett í fúlgu við hlöðuna og það þótti mikil kúnst að hlaða fúlguna rétt svo hún verði sig sem best í rigningu. Í þeim tilgangi var oft breiddur strigi eða segl ofan á hana þannig að vatnið rann út af fúlgunni en ekki inn í heyið.
mundi424
Kranabíllinn H-533 var í eigu Skagastrandarhafnar. Þetta var REO bíll með nokkuð öflugum krana og var alltaf kallaður hafnartrukkurinn. Líklega kom bíllinn frá Bandaríska setuliðinu á sínum tíma. Stjórnhúsið á krananum sjálfum var smíðað af vélaverkstæði Karls Berndsen. Bíllinn var mikið notaður við hífingar í löndunum á fiski, steypuvinnu og fleiru. Einnig var hann leigður út, með manni, í ýmis verkefni í héraðinu. Bíllinn endaði svo ævi sína sem brotajárn. Myndin var tekin af bílnum utan við Héðinshöfða en þar bjó, í suðurendanum, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) með sinni fjölskyldu. Kristinn var hafnarvörður í nokkur ár og sá um bílinn og vann á honum. Til gamans má geta þess að bíllinn í baksýn var í eigu Ástmars Ingvarssonar (d. 10.10.1972) sem bjó í norður enda Héðinshöfða með sínu fólki. Á þessum bíl ók hann fólki í hópferðum á böll hingað og þangað og fór einnig í lengri ferðir um land allt.
mundi487
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973. Arnar var smíðaður í Japan.
mundi642
Þessi bíll var í eigu Ástmars Ingvarssonar. Hann þjónaði sem fólksflutningabíll á dansleiki um héraðið ásamt ýmsum öðrum ferðalögum. Ástmar var mikið lipurmenni, vinsæll og vel látinn af öllum sem hann þekktu.
mundi473
Skagastrandarhöfn á góðviðrisdegi. Guðmundur Þór Hu 17 er til vinstri og báturinn fyrir aftan Guðmund Þór er Ásdís HU 10 sem sjósett var nokkru fyrr. Það er að öllum líkindum Guðjón Árnason sem liggur undir löndunarkrananum. Guðmundur Þór og Ásdís voru fyrstu bátarnir sem smíðaðr voru í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf.
30600006
<p>Síld var söltuð á Skagaströnd a.m.k. frá árinu 1935 þegar búið var að koma upp trébryggju í nýgerðri höfn. Síðan var saltað á hverju sumri í áratugi eða þar til síldin hvarf upp úr 1960. Þegar söltun var í gangi var aldeilis handagangur í öskjunni því fjöldi manns starfaði á planinu. Í þá tíð var öll síld söltuð í trétunnur en þær voru smíðaðar á Siglufirði. Á þessari mynd, sem sennilega hefur verið tekin einhverntíma á árunum rétt fyrir 1960, sést Volvo bíll Benjamíns Sigurðssonar (d. 30.9.2004) frá Skálholti með fullfermi af síldartunnum. Tunnurnar voru svo tíndar af bílnum á höndum því engir voru lyftarar á þessum árum.
mundi423
Ástmar Ingvarsson (d.10.10.1977) frá Balaskarði (Addi Bala) við bílinn sinn utan við heimili sitt í Héðinshöfða. Þennan bíl gerði Addi út til fólksflutninga við miklar vinsældir.
30680012
F.v. Birgir Árnason (d.2.2005) og Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986)við vinnu sína á planinu. Á bak við þá má sjá bíl Birgis H 40
Guðmundur Guðnason829
Hér hefur þetta góða fólk áð á ferð sinni. Frá vinstri: Frímann Lúðvíksson frá Steinholti, Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Guðríður Bergsdóttir (d. 10.6.1996) konan hans og óþekktur drengur. Þórður og Guðríður bjuggu í Skjaldbreið (Fellsborg 7) á Skagaströnd með tveimur börnum sínum.
Guðmundur Guðnason055
Tveir bílstjórar við fararskjóta sína. Maðurinn í ljósu skyrtunni mun vera Gunnar Jónsson (d.15.6.2003) frá Dalvík sem ók bæði eigin bifreiðum og var líka bílstjóri hjá Norðurleið. Ef þú þekkir hinn manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason205
Spáð í spilin í stóðrétt í Spákonufellsrétt 1964. Uppi á réttarveggnum situr Gunnlaugur Sigmarsson. Maðurinn lengst til hægri er Pálmi Sigurðsson úr Pálmalundi (Hólabraut 27), næst honum kemur baksvipur Einars Haraldssonar úr Dagsbrún, þá kemur Sigurjón Jóhannsson frá Sunnuhlíð. Maðurinn í úlpunni með hvítu húfuna er Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum en maðurinn í mittisjakkanum með hvíta húfu er Árni Kristófersson úr Árnesi. Maðurinn lengst til vinstri er líklega Ingvar Sigtryggsson. Aðrir eru óþekktir
Guðmundur Guðnason196
<p>Félagsheimilið Húnaver. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á sjöunda áratugnum.</p>
Guðmundur Guðnason335
Bjarmaland stendur við Skagaveg. Þar bjuggu lengi hjónin Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) og Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) ásamt dóttur sinni Áslaugu Hrólfsdóttur.
Guðmundur Guðnason252
Árið 1974 komu skíðaáhugamenn á Skagaströnd upp togbraut í Spákonufellinu. Togbrautin var þannig gerð að staur var komið fyrir uppi á hólnum fyrir ofan núverandi skíðaskála. Við staurinn var fest blökk og kaðall dreginn gegnum hana og í gegnum drifhjól sem tengt var við dráttarvél. Drifhjólið var gert úr gamalli drifkúlu undan bíl og á hana var fest hjól og drifskaft sem síðan var hengt aftan á beislið á dráttarvél og tengt við drifúttak vélarinnar. Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp brekkuna. Í dag mundi svona útbúnaður aldrei vera viðurkenndur vegna öryggismála. 1979 var síðan keypt skíðalyfta og henni komið fyrir örlítið norðar í brekkunni og notuð þar í mörg ár. Maðurinn í úlpunni sem stendur við kaðalinn er Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) en hann átti dráttarvélina og stjórnaði henni. Ásgeir var með spotta í hendinni sem tengdur var við ádrepara vélarinnar til að geta drepið á og þannig stoppað kaðalinn ef á þurfti að halda.
Guðmundur Guðnason669
Ferðafélagar í Siglufjarðartúr 15. júní 1968 stoppa til að rétta úr sér á óþekktum stað á leiðinni. Frá vinstri: Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún, Hjalti Skaftason sonur hans, Ástmar Ingvarsson ( d. 10.10.1977) frá Balaskarði og Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi.
Guðmundur Guðnason054
Þessi vörubíll er sennilega af Chevrolet gerð. Ekki er vitað hver átti þennan bíl en myndin var tekin á heimkeyrslunni að Laufási og Melstað sem þá stóð uppi sunnan við Laufás.
Ólafur Bernódusson533
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Ófært var út á Skaga fyrir mjólkurbílinn og tóku bændur þá það til ráðs að þeir komu á dráttarvélum sínum með mjólkina í brúsum og tunnum til móts við mjólkurbílinn, sem komst hálfa leið út að Háagerði. Þar var mjólkinni dælt í mjólkurbílinn úr ílátum bændanna. Á þessari mynd er Sigfús Guðmundsson mjólkurbílstjóri að dæla upp úr brúsum frá Árna Sveinbjörnssyni frá Króksseli. Í baksýn eru að spjalla Baldvin Sveinsson frá Tjörn, Vilhjálmur Skaftason Skagaströnd, óþekktur og Jens Jónsson frá Brandaskarði.
Óþekktur ljósmyndari230
Þessi mynd var sennilega tekin árið 1950. Húsið lengst til hægri, Stórholt (Bankastræti 3), er í byggingu. Draumaland er litla húsið vinstra megin við Stórholt en þar bjuggu mæðginin Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) og Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007). Dvergasteinn er svo næst í röðinni en þar bjuggu Hafsteinn B. Fossdal (d. 22.2. 1962) og Svanbjörg M. Jósefsdóttir (d. 31.3.2002) með fjórum börnum sínum. Húsið í vinstra horninu var Höfðakot en þar bjuggu hjónin Steingrímur Jónson (d. 15.1.1992) og Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) með börnum sínum og seinna tveimur barnabörnum. Einnig var á heimilinu bróðir Halldóru, Guðmundur Pétursson (d. 30.6.1987). Skálholt ber yfir Höfðakot en þar bjuggu á þessum tíma Engilbert Óskarsson (d. 13.9.1982) og Sigríður Helgadóttir (d. ?) á efri hæðinni en Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) með tveimur dætrum sínum á neðri hæðinni. Fyrir aftan Skálholt (fjær) er Bjarmaland en þar áttu heima Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) og Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) ásamt dóttur sinni Áslaugu Hrólfsdóttur. Þórshamar sést milli Dvergasteins og Draumalands. Þar bjuggu á efri hæðinni Kristján Sigurðsson (d. 3.11.1966) og Unnur Björnsdóttir (d. ?). Á neðri hæðinni bjuggu Jóhann Baldvinsson (d. 9.4.1990) og Core Soffie Poulsen (d. 1987) kona hans með sinni fjölskyldu. Til hægri við Þórshamar er Þórsmörk sem var heimili Sigurðar Guðmonssonar (d. 5.8.1981) og Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987) og barna þeirra. Yfir þakið á Stórholti sést svo Héðinshöfði en ekki er vitað hver bjó þar á þessum tíma. Í Héðinshöfða voru tvær íbúðir, ein í hvorum enda hússins.
Skagaströnd - safn029
Hér er verið að koma fyrir niðurfalli á Oddagötu áður en varanlegt slitlag er lagt á hana 1976. Starfsmenn Höfðahrepps þeir Vilhelm Harðarson til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri aðstoða ókunnan mann frá Miðfelli hf, sem sá um niðurlagninguna á slitlaginu.
Ólafur Bernódusson553
Eftir að nýja kirkjan á Skagaströnd var tekin í notkun var sú gamla afhelguð og síðan rifin en þá var þessi mynd tekin. Sú gamla, sem stóð rétt austan við hina nýju, var vígð 17. júní 1928 en var síðan rifin 19. febrúar 1992.
Guðmundur Guðnason205
<p>TF Eir mun vera fyrsta þyrlan sem Landhelgisgæslan eignaðist. Þyrlan var í rekstir á árunum 1965 - 1971. Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin ná hver konan og barnið eru. <font size="1">(Heimild: </font><a href="http://www.flugsafn.is/index.php?option=com_content&view=article&id=55&Itemid=145&lang=en"><font size="1">http://www.flugsafn.is/index.php?option=com_content&view=article&id=55&Itemid=145&lang=en</font></a><font size="1">)</font></p>
Skagaströnd - safn037
Slitlagsframkvæmdir á horni Sólarvegar og Bogabrautar árið 1978. Adolf J. Berndsen sturtar af bíl sínum í útlagningarvélina. Lengst til hægri í ljósum hlífðarslopp er Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) bæjarverkstjóri frá Lækjarbakka.
Þórður Jónsson046
Ekki er vitað tilefni ferðalags þessa prúðbúna fólks á H 275 - hugsanlega leikferð?. Ekki er heldur vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960. Á myndinni eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Stórholti, Helga Berndsen Karlsskála, Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) Héðinshöfða, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður-Skála, Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017) Flankastöðum, óþekkt, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) Norður-Skála, Ingólfur Ármannsson (d.1.9.2019), Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) Höfðakoti, óþekktur og Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) Skjaldbreið. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn017
Bílafloti Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar ehf utan við starfsstöð fyrirtækisins við Oddagötu 18.
Skagaströnd - safn190
Þessi mynd frá 1961 sýnir verkamenn vinna við að handmoka möl á vörubílspall. Myndin var sennilega tekin í malarkrúsinni ofan við Skagaströnd. Ekki er vitað hverjir mennirnir eru.
Skagaströnd - safn038
Guðmundur Björnsson mokar á bíl efni í slitlag á götur á Skagaströnd árið 1978.
Guðmundur Guðnason253
Árið 1974 komu skíðaáhugamenn á Skagaströnd upp togbraut í Spákonufellinu. Togbrautin var þannig gerð að staur var komið fyrir uppi á hólnum fyrir ofan núverandi skíðaskála. Við staurinn var fest blökk og kaðall dreginn gegnum hana og í gegnum drifhjól sem tengt var við dráttarvél. Drifhjólið var gert úr gamalli drifkúlu undan bíl og á hana var fest hjól og drifskaft sem síðan var hengt aftan á beislið á dráttarvél og tengt við drifúttak vélarinnar. Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp brekkuna. Í dag mundi svona útbúnaður aldrei vera viðurkenndur vegna öryggismála. 1979 var síðan keypt skíðalyfta og henni komið fyrir örlítið norðar í brekkunni og notuð þar í mörg ár. Á þessari mynd er skíðmennskan í fullum gangi en dráttarvélin var í eigu Ásgeirs Axelssonr (d. 8.6.2011) Litla-Felli.
Guðmundur Guðnason333
Þessi mynd var tekin frá Hótel Blönduós inn yfir Blöndu.
1
2
3
4
5
6
7
Leita í myndasafninu
Leita