Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Bílar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Skip og Bátar
393 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn274
Myndin var tekin 1996 af vinnu við að koma fyrir safntanki vegna vatnsveitu í Hrafndal. Við bílinn standa Rolf Árnason (d. 2014) með rauða húfu og Sigurjón Ástmarsson. Niðri í skurðinum er Páll Jóhannesson í blárri úlpu og tveir óþekktir menn.
Guðmundur Guðnason 2 363
Willys Overland Station Wagon H 192, sennilega árgerð 1946. Líklega átti Hannes Finnbogason læknir þennan bíl.
Skagaströnd - safn057
<p>1979 var útbúin byggingarlóð, með uppfyllingu, við Skúffugarðinn fyrir frystiklefa og hugsanlegt frystihús. Allir vörubílar á svæðinu voru kallaðir til enda þurfti að aka miklu efni á svæðið. Á þessari mynd eru bílarnir og eigendur þeirra fyrir framan þá. Frá vinstri: Sigurjón Ástmarsson, Jónas Skaftason, Gunnar Helgason (d. 19.10.2007), Hörður Ragnarsson, Kristinn Andrésson (d. 12.7.1991), Sigurgeir Jónasson og Hjálmar Pálsson (d. 28.12.2001). Á myndina vantar Adolf J. Berndsen sem var líka með vörubíl í þessari vinnu. </p>
Baldur Eðvarðsson - safn 1
Þessi mynd var tekin yfir útbæinn á Skagaströnd. Myndin var sennilega tekin 1966 eða 1967 en á henni eru allmörg hús, sem ekki standa lengur. Næst okkur í hægra horni myndarinnar sér ofan á Höfðaberg og Höfðakot, sem bæði eru horfin. Þar sem vörubíllinn stendur var bílastæði fyrir Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) vörubílstjóra en hann bjó í Stórholti, sem ber yfir Höfðakot, á þessum tíma. Þórsmörk er annað hús, hinum megin við vörubílinn, en það hús er horfið ásamt fjáhúsunum sem standa andspænis því. Næstu tvö hús, Héðinshöfði og Garður eru líka horfin fyrir löngu. Hægra megin við Gamla kaupfélagið stendur Kaupfélagshúsið, sem er enn eitt af húsunum, sem hefur verið rifið. Litli skúrinn sem ber í síldarverksmiðju-skorsteininn var afgreiðsluhús fyrir bensín og ólíur frá Esso olíufélaginu og ef grannt er skoðað má sjá dælurnar við hlið skúrsins. Hinn litli skúrinn, sem er vinstra megin við Esso skúrinn, var hafnarvigtin áður en hún var flutt á núverandi stað við höfnina. Lengra til vinstri upp af stóru skemmunni eru tveir braggar, sem nú eru horfnir. Í bröggunum voru íbúðir en undir það síðasta stóðu þeir tómir. Við enda Skúffugarðsins er ker sem verið er að ganga frá eftir að það var smíðað í slippnum við Bjarmanes. Stóri báturinn við bryggjuna er sennilega Helga Björg HU 7 og enn standa löndunarkraninn og færibandið sem lá frá honum og upp í verksmiðju.
Skagaströnd - safn108
Skagaströnd kringum 1950. Í portinu næst okkur, á milli kaupfélagshússins og skemmunnar, er kolabingurinn en kaupfélagið seldi kol eftir vigt. Yfir horn mjölskemmunnar, vinstra megin, sést hið merka hús Viðvík þar sem á árum áður var rekið gisti- og veitingahús. Til vinstri við Viðvík er svo Karlsminni en þar var eitt sinn rekin verslun um tíma. Myndina tók Björn Bergmann.
Skagaströnd - safn136
Á myndinni er verið að leggja út kjarnann í nýjum viðlegukanti í Skagastrandarhöfn 30. júlí 1991. Stálþil var síðan rekið niður að norðanverðu við kjarnann, fyrir enda hans og ca 20 metra upp með honum að sunnanverðu.
Guðmundur Guðnason335
Myndin var tekin frá Hótel Blönduós
Guðmundur Guðnason 2348
Fossar í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson230
<p>Þessir krakkar tóku þátt í einu af víðavangshlaupum umf. Fram sem yfirleitt voru haldin í maí á hverju ári. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri: Sonja Berndsen, Sveinþór Ari Arason, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Tinna Gunnarsdóttir, Eva Bergþórsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, óþekkt, óþekkt og Guðni Már Lýðsson. </p>
Barnaból - safn 099
<p>Krakkarnir í leikskólanum Barnaból fóru í heimsókn að Steinnýjarstöðum 22. maí 2001. Eitt af ævintýrunum sem krakkarnir upplifðu var ferðalag á vagni sem dregin var af dráttarvél. Á myndinni eru börnin og starfsmenn á vagninum en Guðrún Sigurðardóttir gengur með til öryggis.</p>
Guðmundur Guðnason 2 365
Amerískir bílar eins og þessi drossía voru algengir á árunum upp úr 1960 á Skagaströnd. Þeir voru með aflmiklar vélar sem eyddu miklu bensíni en í þá tíð var bensínverð mjög viðráðanlegt og fólk ekki farið að hugsa eins mikið um mengunarvarnir og nú. Ekki er vitað hvaða tegund eða árgerð bílinn er en ef einhver bílaáhugamaður sér þessa mynd og veit það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 465
Víkingur Viggósson við snjómokstur á veginum norðan við Hafurstaði. Sennilega var myndin tekinn annað hvort árið 1995 eða 1996.
Skagaströnd - safn373
Holan virkar !! Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að tengja ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal við vatnsveitu Skagastrandar. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Á myndinni er verið að prófa hvort fóðringin, sem mennirnir eru nýbúnir að koma fyrir, virkar eins og hún á að gera. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ari Þórsson við loftpressuna, Rúnar Jóhannsson sem skrúfar frá krananum og Sigurjón Ástmarsson bíl- og kranastjóri.
Skagaströnd - safn186
Þessi mynd var tekin af Viggó Brynjólfssyni að moka snjó á Skagaströnd með jarðýtu í kringum 1960. Myndina tók Þórður Jónsson.
Scan10096
<p> Vilhelm Björn Harðarson við vinnu sína á ruslabílnum á Kántrýhátíð 2001.</p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 429
Auðbjörg HU 6 í klössun í slippnum. Guli bíllinn á myndinni er Trabant en þeir bílar voru frægir fyrir að þeir voru (eru?) byggðir úr plasti. Gárungarnir söðu að munurinn á Trabant og Trabant Delux væri að það væri öskubakki afturí í Delux típunni.
Guðmundur Guðnason 2 450
Benjamín Sigurðsson (d. 30.9.2004) í Skálholti átti H 333 sem sést á myndinni þar sem hann stendur utan við Fellskjör, seinna Kántrýbæ, en húsið brann eins og kunnugt er og nýtt bjálkahús var reist á grunninum.
Guðmundur Guðnason 2 471
Unga stúlkan á hestbaki er óþekkt einnig konan (?Stína?)sem heldur í hestinn. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 470
Ungi knapinn er óþekktur sem og aðrir á myndinni. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Baldur Eðvarðsson - safn 3
Þorvaldur Skaftason stendur hér við "Lilla", sem var bíll föður hans, Skafta Fanndal Jónassonar (d. 2.9.2006). Bílinn kallaði Skafti "Lilla" en hann var smíðaður upp úr drossíu og gerður að pallbíl. Myndin var sennilega tekin kringum 1965.
umf Fram300
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, er Jens Jónsson á Brandaskarði að kenna Páli Halldórssyni að aka Massey Ferguson dráttarvél. Myndin var tekin í heimsókn krakkanna á leikjanámskeiðinu út að Brandaskarði.
Guðmundur Guðnason 2 372
Pétursborg á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 367
Þessi brú var (er ?) yfir Hólmsá í Skaftartungu. Augljóslega hefur verið vandasamt að aka rútum og lengri bílum yfir hana. Ökumaður þessarar rútu virðist þó kunna sitt fag því hann fer eins langt til hægri og hægt er til að ná beygjunni inn á brúna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 409
Hér eru menn í basli við að koma niður streng í við ræsi neðan við Árbakka.
Árni Geir Ingvarsson - safn 417
Snjómokstur á Mánabraut. Eins og sjá má er af nógu að taka. Sennilega hefur myndin verið tekin veturinn 1995 - 1996 þegar allt fór á kaf í snjó.
Jón Jónsson352
Þó skíðalyfta væri rekin í hlíðum Spákonufells um árabil fyrir svigskíðafólk nýtti áhugafólk um skíðagöngu sér snjóinn í fjallinu líka til að stunda sína íþrótt. Á þessari mynd er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) á gönguskíðum en hjá honum eru frá vinstri: Guðmundur Björnsson að klæða sig í skíðaklossa en bak við hann er líklega Þórunn Bernódusdóttir. Einar Haukur Arason sem hallar sér upp að Volkswagen Variantinum, Ari H. Einarsson og Halla Björg Bernódusdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 419
Giljá er ein af þessum sprænum/ám sem maður ekur yfir á ræsi án þess að taka eftir því. Áin minnti þó rækilega á sig í lok maí einhventíma á árunum kringum 1990. Þá óx hún svo mikið að hún sópaði ræsinu og veginum burt svo ófært varð milli Reykjavíkur og Blönduóss. Fólk var ferjað yfir ána í jarðýtu en enginn bíll komst yfir ána. Á þessari mynd sjást leyfarnar af ræsinu og stálið í vegstæðinu þar sem bílar bíða í ráðaleysi á brúninni að sunnanverðu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 422
Þessi mynd var tekin á athafnasvæði slippsins og á henni eru tveir af ötulustu starfsmönnum þar. Ólafur Guðmundsson til vinstri og Kári Lárusson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 416
Snjómokstur neðst á Mánabraut. Ekki dugir minna en jarðýta af stærstu gerð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Barnaból - safn334
28. ágúst 2001 kom lögreglan í heimsókn í leikskólann Barnaból. Þá var þessi mynd tekin. Starfskonurnar eru Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri til hægri. Lögreglumaðurinn er óþekktur og hver og einn verður að þekkja sjálfan sig á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 379
Oft er snjóþungt á Skagaströnd á vetrum. Á þessari mynd er verið að aka burt snjó á horninu á Bogabraut og Norðurbraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
umf Fram301
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, eru krakkarnir í heimsókn að Brandaskarði. Frá vinstri: Sylvía Hrólfsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Bergrós Hafsteinsdóttir, Páll Halldórsson, Guðrún Ana Halldórsdóttir, Anton Einarsson og Birkir Gunnarsson.
Skagaströnd - safn301
Höfðaberg, sem stóð upp undir Höfðanum norðan við núverandi Bankastræti, var rifið í desember árið 2000 eftir að hafa staðið autt um tíma.
Skagaströnd - safn300
Jarðhitaleit í Hrafndal veturinn 1998. Boraðar voru nokkrar holur en árangurinn varð lítill sem enginn. Á myndinni eru Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) fremst til vinstri og Rúnar Jóhannsson til hægri. Milli þeirra sér í Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) en maðurinn með gula hjálminn er óþekktur.
16
Hörður Aðils Vilhelmsson með föður sínum Vilhelm Birni Harðarsyni á nýjum sorphreinsunarbíl. Myndin var tekin 1994 þegar þeir feðgar voru nýkomnir til Skagastrandar á þessum nýja bíl.
Guðmundur Guðnason2 344
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: "Bifreiðar á Hólahátíð". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en bílaáhugamenn hafa kannski gaman af að finna út hvaða bílategundir eru á myndinni og út frá því að giska á á hvaða árabili myndin var tekin.
Skagaströnd - safn273
Hér er unnið að plægingu á stýrisstreng fyrir vatnsveitu í Hrafndal sumarið 1996. Myndin var tekin af gröfunni á kafi í mýri neðan og vestan við skíðaskálann. Þrátt fyrir að vera á tvöföldu bæði að framan og aftan sökk grafan eins og sést. Allt fór þó vel enda vanur maður á gröfunni, Guðmundur J. Björnsson.
Guðmundur Guðnason 2 452
Þessi dráttarvél Hd 152 hefur örugglega verið mikið þarfaþing á sínum tíma. Vélin er af Hanomag gerð eins og sjá má en ekki er vitað með vissu hver átti vélina en sennilega hefur það verið Jökull Sigtryggsson á Núpi í Laxárdal því þar endaði vélin lífdaga sína. Hræið af henni stóð þar á hlaðinu í mörg ár en hefur nú verið fjarlægt og komið í hendurnar á einhverjum hugsjónamanni sem er með hugmyndir um að endurbyggja slíka vél úr mörgum.
Guðmundur Guðnason 2347
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en greinilega hefur ökumaður jeppans lent í vandræðum í drullusvaðinu á veginum út á Skaga og þurft að fá einhvern góðviljaðan á dráttavél til að draga sig upp.
Skagaströnd - safn157
Þessi mynd var tekin þegar verið var að steypa upp Stjórnsýsluhúsið á Skagaströnd. Helgi Gunnarsson, sem er með hjálm á myndinni, var verktaki og yfirsmiður við bygginguna en Jón Hannesson (d. 10.9.2002) átti og rak Steypustöð Blönduóss, sem sá um að framleiða steypuna í stjórnsýsluhúsið.
Scan10080
Þessi mynd var tekin árið 2000 þegar Sunnuhlíð (Bogabraut 19) var rifin til að rýma fyrir nýju húsi á lóðinni en það var byggt sumarið 2001.
Skagaströnd - safn102
Við H 17 standa þeir Engilbert Óskarsson bílstjóri frá Skagaströnd og Friðgeir Jóhannsson frá Ósi í Nesjum. Ekki er vitað hvað þeir félagar voru að fara en myndin var sennilega tekin kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 401
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er verið að vinna við að koma fyrir frárennslislögn vestur úr fjörunni fyrir neðan sundlaugina. Maðurinn á myndinni er Rolf Árnason (d. ?) tæknifræðingur.
Skagaströnd - safn335
Þessi mynd var tekin af gatnagerð á horni Fellsbrautar og Oddagötu árið 1988. Það sumar kom forsetinn frú Vigdís Finnbogadóttir í heimsókn til Skagastrandar og reynt var að hafa allt fínt og fágað í bænum þegar hún kom. Á myndinni er Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) að vinna með jarðvegsþjöppu og maðurinn sem stjórnar krananum á H 34 er Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) eigandi bílsins. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason 2 356
Fyrstu jepparnir voru gjarnan notaðir sem landbúnaðartæki. Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er Willys H 94 notaður til að rifja heyið. Hjónin Ástmar Ingvarsson og Jóhanna Sigurjónsdóttir áttu H 94 lengi en seinna fékk sonur þeirra Ástmar Kári Ástmarsson númerið og notaði á sína bíla.
Scan10095
Kamrar teknir af vagni í undirbúningi kántrýhátíðar árið 2000. Kömrunum var siðan komið fyrir á tjaldsvæðum hátíðarinnar.
Jón Jónsson243
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, eru þeir Sveinn Ingólfsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri að hlaupa í Langadalnum með logandi kyndil. Hlaupið var með kyndilinn hringinn í kringum landið líklega vegna baráttunnar fyrir friði í heiminum. Hlaupararnir komu úr hinum ýmsu íþróttafélögum um allt land en Sveinn og Magnús mættu fyrir hönd USAH ásamt fleiri hlaupurum.
Scan10094
Á myndinni sinnir Vilhelm Harðarson viðhaldi á fyrsta ruslabílnum sem kom í Húnavatnssýslurnar. Bílinn keypti Vilhelm til Skagastrandar 1990.
Séra Pétur og Dómhildur - safn125
Þessi mynd er úr safni hjónanna séra Péturs Þ. Ingjaldssonar (d.1.6.1996) og Dómhildar Jónsdóttur (d.18.10.2012). Á myndinni sér heim að Höskuldsstöðum í Vindhælishreppi. Bærinn og gamla kirkjan til hægri eru bæði horfin en nýja kirkjan, sem byrjað er að mála, var vígð 13. mars 1963 og er enn í notkun. Á hlaðinu hjá Höskuldsstöðum sér í prestsbílinn sem var af Austin gerð. Myndin var tekin 13. júlí 1959. Á sínum tíma var á Höskuldsstöðum höfuðkirkja og prestsetur en kirkjan á Spákonufelli var útkirkja eða annexía (reyndar frá kirkjunni á Hofi) þannig að presturinn á Höskuldsstöðum þjónaði í Spákonufellskirkju öfugt við það sem er í dag. Séra Pétur Ingjaldsson var settur prestur á Höskuldsstöðum en prestsetrið var ekki flutt til Skagastrandar fyrr en árið 1963 þegar séra Pétur og Dómhildur kona hans keyptu Höfða á Skagaströnd og fluttu þangað. Tilfærslan frá Höskuldsstöðum á Skagaströnd hafði reyndar verið samþykkt 10 árum áður eða 1953 eftir að málið hafði verið að velkjast í kerfinu allt frá árinu 1936.<font size="1"> ( heimild "Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 - 2012" eftir Lárus Ægi Guðmundsson</font>)
Árni Geir Ingvarsson - safn 457
Unnið að snjómokstri í Hafstaðabrekkunni áður en veginum var breytt í það horf sem hann er í í dag. Myndin var sennilega tekin 1995 eða 1996.
24
Nýr ruslabíll kominn til Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar árið 2003. Á myndinni eru börn Vilhelms, Hörður Aðils með húfu og Ástrós Villa með sítt ljóst hár. Litla stúlkan er Þóra Karen, dóttir Krsitínar Jónu fósturdóttur Vilhelms.
Árni Geir Ingvarsson - safn 456
Fjórhjóladrifið er ekki alltaf nóg til að komast áfram. Hér hefur einhver fest sig í snjó en þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst segir einhversstaðar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 418
<p>Giljá er ein af þessum sprænum/ám sem maður ekur yfir á ræsi án þess að taka eftir því. Áin minnti þó rækilega á sig í lok maí einhventíma á árunum kringum 1990. Þá óx hún svo mikið að hún sópaði veginum burt og ófært varð milli Reykjavíkur og Blönduóss. Fólk var ferjað yfir ána í jarðýtu en enginn bíll komst yfir ána. Á þessari mynd er verið að koma byggja brú til bráðabirgða til að gera bílfært. </p>
Skagaströnd - safn417
Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina og komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís.
Skagaströnd - safn368
Þessi mynd var tekin 1.febrúar 1992 þegar Stóra Berg var rifið. Húsið stóð suð-austan við kirkjuna rétt hjá Iðavöllum.
Skagaströnd - safn371
Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að fóðra innan ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Mennirnir á myndinni eru Rúnar Jóhannsson í bláum samfestingi og Sigurjón Ástmarsson bílstjóri sem stjórnar krananum með fjarstýringu.
Guðmundur Guðnason 2 444
Óþekkt stúlka á sjómannadegi á Skúffugarðinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. H 30 mun Þorvaldur Þorláksson (Valdi í Vísi) frá Blönduósi hafa átt. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram 344
Á níunda áratugnum stóð UMFÍ fyrir uppákomu sem fólst í því að hjólað var hringinn í kringum landið. Þátttakendur voru félagar í ungmennafélögum vítt og breytt um landið þar sem félagar viðkomandi félags hjóluðu um sitt félagssvæði. Fólkið hjólaði til skiptis þrír eða fjórir í einu en rúta fylgdi hjólreiðafólkinu með þá sem áttu eftir að taka sína törn eða höfðu lokið sínum kafla. Á þessari mynd, sem tekin var inni í rútunni eru: vinstra megin við ganginn: Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012). Hægra megin við ganginn, talið frá vinstri: Charlotta Traustadóttir, Jökulrós Grímsdóttir, Edda Pálsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, óþekkt aftan við Fríðu, Ingibjörg Vera Kristinsdóttir og Gunnar Helgi Benónýsson (d. 29.7.2003).
Guðmundur Guðnason 2 349
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað "<em> Séð frá Varmahlíð, G.K.G.". </em>Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef til vill geta bílaáhugamenn giskað á það út frá útliti olíubílsins.
Sigurður Jónsson - safn 003
<p>Félagarnir Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu á Skagaströnd, í ljósum buxum, og Guðmundur Sigfússon (d. 27.3.1993) frá Eiríksstöðum á ferðalagi í Merkigili á Skagafirði. </p>
1
2
3
4
5
6
7
Leita í myndasafninu
Leita