Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Bílar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Skip og Bátar
393 myndir
Flæði
Reitir
Hallgrímur Kristmundsson safn054
Maðurinn á myndinni er Sigurjón Jóhannsson (d.7.12.1973) frá Sunnuhlíð (Bogabraut 19) bílstjóri og eigandi bílsins sem var af Chevrolet gerð líklega árgerð 1942. Ekki er vitað hver er með honum í bílnum þegar myndin var tekin.

Árni Geir Ingvarsson - safn 866
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir bílastæðið við virkið. Í baksýn er Víðidalsfjall með þokuslæðu í efstu brúnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 893
Catalina flugbátur frá Flugfélagi Íslands á Reykjarfirði syðri. Slíkar vélar þóttu hentugar þar sem ekki var búið að búa til flugvelli. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1950 því flugvélin kom til landsins 1947 eða 1948.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 044
Myndin var tekin í sundi sem var á milli Skálholts og Þórshamars. Í þessu sundi lagði Gunnar Helgason (d.19.10.2007) gjarnan vörubíl sínum, sem sést í baksýn, enda bjó hann í Stórholti, sem er húsið með kvistinum aftan við mennina. Mennirnir eru frá vinstri: Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), óþekktur, Karl Guðmundsson ? (d.11.12.2011) og Gunnar Sveinsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 714
Framlag vinnuskólakrakkanna við umhirðu og fegrun bæjarins er oft vanmetið og fólki hættir til að tala niður til þeirra. Það er þó algjör óþarfi því þau leggja gjörva hönd á margt sem til framfara horfir. Á þessari mynd eru þau að þökuleggja sár sem myndaðist við niðurrif hússins sem eitt sinn hýsti verslunina Borg. Krakkarnir eru frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Torfi Friðrik Magnason, Silfá Sjöfn Árnadóttir og ?Katrín Guðmundsdóttir?.
Árni Geir Ingvarsson - safn 964
Á myndinni er verið að vinna að grjótvörn sunnan við gamla frystihúsið við Einbúastíg. Grjótlagerinn er í baksýn.
Hjördís Sigurðardóttir - safn083
Eftir nokkra undirbúningsvinnu er hér verið að koma golfskálanum á Háagerðisvelli fyrir á undirstöðum sínum sumarið 1991. Skálinn hafði áður gegnt hlutverki rafmagnsverkstæðis Hólaness hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 777
Það óhapp varð í mars 1989 að steypt þekja sunnan við Hafnarhúsið gaf sig undan þunga flutningabíls sem fór þar um. Bíllinn var hlaðinn af frosinni rækju þegar óhappið varð. Eins og sjá má mátti ekki miklu muna að bíllinn ylti fram af brúninni í sjóinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 780
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir gröfu við snjómokstur í miklum snjó við Karlsskála.
Árni Geir Ingvarsson - safn 895
Catalina flugbátur frá Flugfélagi Íslands á Reykjarfirði syðri. Slíkar vélar þóttu hentugar þar sem ekki var búið að búa til flugvelli. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1950 því flugvélin kom til landsins 1947 eða 1948.
Árni Geir Ingvarsson - safn 908
Brugðið á leik á Djúpuvík. Fólkið, sem er að skemmta sér, er óþekkt en ef þú þekkir það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 859
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af bílaflotanum á bílastæðinu við virkið. Greinilegt að Willys jeppar hafa verið vinsælir bílar á þessum tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 860
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fólki að fylgjast með hátíðahöldunum af veggjum virkisins. Valdimar Benónýsson bóndi á Ægissíðu á Vatnsnesi gerði vísu af tilefni vígslunnar. Vísan varð fleyg enda vel gerð og skemmtileg:

Hlaðinn varðinn vitni ber
Víga-Barða stríði.
Þessi garður ennþá er
ættarjarðar prýði.

Dagný Sigmarsdóttir - safn 068
Helga Berndsen (Bíbí) og Gunnar Helgason (d.19.10.2007) í góðum gír sitjandi á stigbretti á vörubíl. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur Gunnar átt bílinn því hann var vörubílstjóri að atvinnu.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn040
Ungur óþekktur drengur fær að prófa að fara á hestbak við Undirfellsrétt í september 2004. Rúnar Jóhannsson heldur í hestinn og Guðrún Soffía Pétursdóttir passar upp á drenginn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 775
Tilraun var gerð til að dýpka meðfram Ásgarði með krana og skóflu eins og sést á myndinni. Sandinum var mokað á vörubíla og ekið burt. Á myndinni er Scania bíll H 34, sem var í eigu Gunnars Helgasonar (d. 19.19.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en þessi aðferð gaf ekki nógu góða raun.
Adolf H Berndsen - safn083
Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) á leið heim til Skagastrandar sumarið 1965.
Árni Geir Ingvarsson - safn 965
Jónas Þorvaldsson að leika sér á vatnsketti á sjónum.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 007
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni dregur Landrover jeppi lítinn Moskvits yfir Laxá við Illugastaði á Þverárfjallsleið áður en hún var brúuð. Ökumaður Landrover jeppans var líklega Gunnar Sig. Sigurðsson á Blönduósi.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 001
Fólk á ferðalagi líklega kringum 1945. Maðurinn lengst til vinstri er Högni Sigurðsson (d.?), sem var maður Jakóbínu Pálsdóttur (d.?) frá Bakka. Næst koma hjónin frá Jaðri, Elísabet Frímannsdóttir (d.1.9.1990) og Björn Sigurðsson (d.15.10.1999) en lengst til hægri er óþekktur maður. Björn styður hönd á höfuð syni sínum, Sigurði Björnssyni. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 058
Þessi mynd var tekin sumarið 1964 af Jóni Sigurðssyni (d.26.7.1967) með lítinn óþekktan dreng með sér á heyvagni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 180
Á myndinni eru hafnar framkvæmdir við nýjan viðlegukant - Sægarð - í höfninni á Skagaströnd haustið 1990. Jafnframt sést á myndinni að verið er að skipa út frystum afurðum annað hvort rækju eða fiski í skip sem liggur við Útgarð.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 074
Ekki ferðuðust þau langar leiðir á Deutzinum, hjónin Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) og Guðrún Sigurðardóttir. Á þessari mynd eru þau samt saman á dráttarvélinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en í baksýn er Straumnes á Skagaströnd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 024
Willis Jeppi sem var í eigu Jóns Ólafs Ívarssonar (d.29.12.2013) á þeim tíma sem bílar voru ekki orðnir almenningseign.
Ingibergur Guðmundsson 290
Þessi mynd var tekin norður Bankastræti í apríl 1989. Þá var gríðarlegur snjór á Skagaströnd. Baldur Eðvarðsson er að moka upp bílinn en hjá honum stendur Ágúst ? verkstjóri í frystihúsinu en hann bjó í Bankastræti 10.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 073
Á myndinni er í gangi skemmtiatriði á sjómannadegi. Adolf H. Berndsen til vinstri býr sig undir að tannburst Finn Kristinsson sem situr í heimagerðum kassabíl. Finni til aðstoðar við skolun er ?Ari Þórsson? en maðurinn sem drekkur kók aftan við bílinn er óþekktur. Eins og sjá má eru Adolf og Finnur með húfur merktar MacLaren formúlu liðinu.
Jón Jónsson 480
Réttað í Stafnsrétt í Svartárdal einhverntíma kringum 1970.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 18
Myndin var tekin utan við Reykholt einhverntíma kringum 1970. Áslaug Hafsteinsdóttir faðmar son sinn Aðalstein Jörgensen en drengurinn með hjólið er Víkingur Viggósson.
Helga Berndsen 098
Helga Berndsen frá Karlsskála á reiðhjóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma kringum 1950.
Ólafur Bernódusson671
Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson kom til hafnar á Skagaströnd í mars 2008 með gamalt tundurdufl sem þeir fengu í trollið. Starfsmaður Landhelgisgæslunnar kom svo á staðinn og eyddi duflinu á afviknum stað. Á myndinni eru tveir óþekktir skipverjar að koma sprengihleðslunni fyrir á kerru aftan í bíl björgunarsveitarinnar Strandar. Kristján Pétur Guðjónsson úr Strönd og Höskuldur B. Erlingsson lögreglumaður bíða eftir að geta flutt hana á eyðingarstaðinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 963
Snjómokstur í Bankastræti líklega vorið 2013.
Hallgrímur Kristmundsson safn004
Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin af þessu glaða fólki á bílpallinum en ekki er ólíklegt að það hafi verið einhverntíma á fimmta áratugnum. Fólkið er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Einnig væri vel þegið að fá upplýsingar um bílinn á myndinni.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 061
Haustið og veturinn 1994 byggðu Helgi Gunnarsson og starfsmenn hans tvö ræsi á og við þjóðveginn við Húnaver. Á þessari mynd er fyrra ræsinu lokið og sést það í baksýn en framkvæmdir standa yfir við síðara ræsið. Mennirnir á myndinni eru óþekktir nema bílstjórinn sem er að hífa er Sigurjón Ástmarsson.
Jósef H Sigurðsson - safn 094
Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) úr Hólaneshúsinu fær sér í pípu við Willis - jeppann sinn á planinu vestan við Hafnarhúsið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 840
Þeir eru sáttir við lífið og hjólin sín Jóhannes Sveinsson til vinstri og Einar Ásgeirsson til hægri fyrir utan verslunina sem þá var útibú Kaupfélags Húnvetninga. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið einhverntíma kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 870
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af virkinu yfir hátíðasvæðið og hluta tjaldsvæðisins. Til vinstri er danspallurinn sem settur var upp því dansað var þar eftir formlega vígslu virkisins. Í baksýn er Vesturhópsvatn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 926
Þetta fólk er á ferðalagi í Willis jeppanum sem er á myndinni. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma á fimmta áratugnum sennilega í grennd við Djúpavík. Fólkið á myndinni er frá vinstri: óþekktur, Benedikt Ágústsson (d.25.9.2016) og Júlíus Ágústsson (d.1.6.1987) bróðir hans, báðir frá Hvalsá í Steingrímsfirði. Við hlið Júlíusar er kona hans Lilja Árnadóttir frá Hólmavík en maðurinn lengst til hægri er óþekktur. Bræðurnir voru báðir landsþekktir aflaskipstjórar á sinni tíð. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 779
Það óhapp varð í mars 1989 að steypt þekja sunnan við Hafnarhúsið gaf sig undan þunga flutningabíls sem fór þar um. Bíllinn var hlaðinn af frosinni rækju þegar óhappið varð. Ekki mátti miklu muna að bíllinn ylti fram af brúninni í sjóinn. Á þessari mynd er Sigurjón Ástmarsson vörubifreiðastjóri að koma fyrir böndum á bílinn til að geta lyft honum upp úr gjótunni með krananum á bílnum sínum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 894
Catalina flugbátur frá Flugfélagi Íslands á Reykjarfirði syðri. Slíkar vélar þóttu hentugar þar sem ekki var búið að búa til flugvelli. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1950 því flugvélin kom til landsins 1947 eða 1948.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 045
Hér gæjast þær Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk til vinstri og Ardís Ólöf Arelíusdóttir til hægri út um dyrnar á hjólhýsi þeirrar síðar nefndu sumarið 1970.
Hjördís Sigurðardóttir - safn076
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) stendur hér stoltur við Willis-jeppann sinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 871
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af tjaldsvæðinu, bílastæðinu og Borgarvirki sjálfu sem gnæfir yfir í baksýn.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 064
Hér er fólk að koma sér af stað af náttstað í ferðalagi með Trésmiðju Guðmundar Lárussonar hf einhverntíma kringum 1974. Fremst á myndinni er Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d. 15.8.2015) og maðurinn í svörtu jakkafötunum til hægri er Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 982
Maðurinn á myndinni er Benedikt Ágústsson (d.25.9.2016) aflaskipstjóri frá Hvalsá í Steingrímsfirði. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) tók myndina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 891
Hér hefur orðið óhapp þar sem afturhásing vörubílsins hefur sópast undan bílnum. Ekki er gott að segja hvernig svonalagað gerist en allavega er ljóst að bíllinn fer ekki lengra í bili. Gunnar Sig. Sigurðsson á Blönduósi segir um þessa mynd: "Veit ekki hvenær myndin er tekin en giska á að það sé um 1950 -1955 eða um það bil. Mér finnst vörubílarnir vera frá þeim tíma. Ég tel að þetta óhapp hafi orðið á búnni yfir Árfarið sem er við vegamótin ínn í Vatnsdal að austan. Mér finnst, með því að stækka myndina og rýna í hana þannig, að ég sjái bæina Hnausa nær og Sveinsstaði fjær og svo mótar fyrir Vatnsdaldhólunum til vinstri á myndinni og svo Hnausatjörnina vinstra megin. Ég var búinn að sjá mynd af sama óhappi sem sýnir betur bílinn sem er út af. Þar sést greinilega að á bílnum er Ferguson dráttarvél og þær voru að koma um eða upp úr 1950".
Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Árni Geir Ingvarsson - safn 868
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir bílastæðið og tjaldsvæðið. Margir komu að og gistu í tjöldum á svæðinu. Meðal þeirra var hópur á vegum Húnvetningafélgsins í Reykjavík. Á miðri mynd má sjá danspallinn sem komið var fyrir á svæðinu því að lokinni vígslunni var dansað.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn052
Stórt iðnaðarhús á Blönduósi, sem gekk undir nafninu Votmúli, stórskemmdist í eldi í september 2004. Þessi mynd sýnir útlit hússins eftir að slökkviliðið hafði lokið störfum sínum.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 065
Hér er fólk að velja sér tjaldstæði við þjóðveg 1 fyrir ofan Höfn í Hornafirði. Fólkið var á ferðalagi með Trésmiðju Guðmundar Lárussonar hf árið 1974. Fremst á myndinni eru hjónin Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997). Aðrir á myndinni eru óþekktir.

Árni Geir Ingvarsson - safn 861
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið. Fólk kom víða að til að vera við hátíðina t.d. var farin hópferð á vegum Húnvetningafélagsins í Reykjavík norður og gisti það fólk og fleira í tjöldum á svæðinu. Eftir vígsluna sjálfa var dansað á palli sem hafði verið komið fyrir á hátíðasvæðinu utan við virkið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 179
Á myndinni er verið að koma fyrir grjótvörn í víkinni frá Hólsnefinu að uppfyllingunni vestan við verksmiðjuna.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 060
Þórir GK 116 í slippnum á Skagaströnd. Þórir var stærsti plastbátur sem var á Íslandi, skrokkurinn fluttur inn frá Frakklandi en báturinn síðan fullgerður hjá Mánavör hf á Skagaströnd. Vörubílinn á myndinni var í eigu Sigurjóns Ástmarssonar.

Ólafur Bernódusson 680
Í maí 2007 var rifinn olítankur sem stóð á Höfðanum á vegum Shell olíufélagsins. Tankurinn hafði staðið þarna í áratugi eða frá þeim tíma sem kröfur um mengunarvarnir voru í skötulíki. Tankurinn stóð þar sem nú hefur verið gert smekklegt, steinlagt hringtorg sem er vinsæll útsýnisstaður yfir Húnaflóa og Strandafjöllin.
Ólafur Bernódusson 681
Í maí 2007 var rifinn olítankur sem stóð á Höfðanum á vegum Shell olíufélagsins. Tankurinn hafði staðið þarna í áratugi eða frá þeim tíma sem kröfur um mengunarvarnir voru í skötulíki. Tankurinn stóð þar sem nú hefur verið gert smekklegt, hellulagt hringtorg sem er vinsæll útsýnisstaður yfir Húnaflóa og Strandafjöllin. Í baksýn, nær sjónum má sjá þrjá tanka sem voru á vegum Olís. Þeir hafa nú líka verið rifnir enda hættir að geta þjónað hlutverkum sínum vegna aukinna krafna í mengunarvarnamálum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 52
Hjónin Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) og Karitas Ólafsdóttir (d.15.10.2019) standa við bíl sinn á ferðalagi á einhverjum ókunnum stað. Hægra megin við bílinn stendur bróðir Karitasar, Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 151
Eins og sjá má á myndinni var Kántrýhátíðin 2001 mjög vel sótt og tjaldað alstaðar þar sem því var við komið.
Ingibergur Guðmundsson 310
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að slétta landspildu undir skálann í suðurhlíðum Spákonufells. Eftir sléttunina var keyrð möl úr Hrafná á svæðið og sökkullinn síðan steypur ofan á hana.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 153
Áð á ferðalagi. Frá vinstri Þórey Ólafsdóttir (d.?) frá Árbakka, Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) og óþekktur maður. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 231
Með tilkomu þessa sorpbíls 1990 varð gjörbreyting á sorphirðumálum á sýslunni þvi Vilhelm Harðarson, eigandi bílsins, sá um sorphirðu bæði í Austur- og Vestur Húnavatnssýslum á bílnum.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 067
Helgi Gunnarsson aðstoðar föður sinn, Gunnar Helgason (d.19.10.2007) í dekkjaslag vegna vörubíls hans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 181
Unnið við jarðvegskjarna í nýjum viðlegukanti í höfninni á Skagaströnd sumarið 1990. Garðurinn hlaut nafnið Sægarður er hann var fullbúinn.
1
2
3
4
5
6
7
Leita í myndasafninu
Leita