Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Bílar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Skip og Bátar
393 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 008
Þennan fallega vörubíl af Chevrolet gerð gerðu þeir upp feðgarnir Gunnar Helgason (d.19.10.2007) og Helgi Gunnarsson. Bíllinn var síðan í þeirra eigu um árabil og notaður við ýmsa flutninga m.a. heyflutninga eins og sést á þessari mynd. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 91
Hörður Ragnarsson vörubifreiðastjóri vinnur að dekkjaskiptum á bílnum sínum. Hjá honum, alveg tilbúinn að hjálpa til, er afastrákurinn hans, Hörður Aðils Vilhelmsson. Myndin var líklega tekin kringum 1988.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 75
Árni Geir Ingvarsson lætur sig dreyma um vélfáka, líklega kringum 1980.
Jónas Skaftason
Jónas Skaftason frá Dagsbrún á Skagaströnd lést 17. nóvember síðastliðinn, 76 ára að aldri. <br><br>Jónas var einn af þeim sem trúðu á sjálfan sig í lífinu og gekk sína götu, sannfærður um að vera á réttri leið, hvað sem öðrum fannst. Oft var hann með storminn í fangið en hélt alltaf ótrauður áfram, teinréttur, þrátt fyrir að stundum hefði kannski verið auðveldara að beygja af leið. Jónas bjó lengst af á Skagaströnd eða Blönduósi og var einn af þessum mönnum sem setti svip á bæinn þar sem hann átti heima hverju sinni. Samúð okkar er hjá börnum hans og öðrum aðstandendum sem nú kveðja mann sem ávallt sópaði af. <br><br>Útför Jónasar fer fram í kyrrþey. <br>
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 051
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en sennilega hefur það verið á fimmta áratugnum. Þessi vörubíll, H 17, sem var rækilega merktur á hurðunum, var í eigu Engilberts Óskarssonar (d.13.9.1982). Seinna fékk hann sér stærri bíl með flutningskassa og stundaði flutninga milli Reykjavíkur og Skagastrandar á honum. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en í baksýn sér í gamla kaupfélagið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 263
Skyndilegur leki kom að þessum bát, Smyrill SH 29, í róðri í byrjun júlí 2011. Báturinn var umsvifalaust hífður upp og í ljós kom óútskýrð sprunga á skrokknum. Gert var við bátinn og hann hélt áfram róðrum innan fárra daga.
Helga Berndsen 027
Ernst Berndsen umboðsmaður BP á Skagaströnd dælir bensíni á bíl Jón Steindórssonar. Bensínafgreiðslan var í skemmunni við vestan við Karlsskála, sem sést í baksýn. Í skemmunni var einnig selt sælgæti, ís og gosdrykkir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma á áttunda áratugnum.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 143
Á myndinni er annað hvort verið að leggja af stað í ferðalag eða koma heim úr ferðalagi. Ástmar Ingvarsson (d.10.10.1977) er lengst til vinstri en hann átti bílinn og gerði hann út til farþegaflutninga. Vilhelm B. Harðarson er strákurinn en pabbi hans Hörður Ragnarsson er til hægri. Myndin var líklega tekin kringum 1970.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 066
Gunnar Helgason (d.19.10.2007) dyttar að vörubílnum sínum.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 137
Þarna eru fimm frændsystkini á ferðalagi. Frá vinstri: Guðrún Björg Berndsen, Ernst Berndsen, Aðalsteinn Jörgensen, Laufey Berndsen og Adolf H. Berndsen.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 167
Karl Berndsen (d.12.2.1995) til vinstri og Valdimar Númi Guðmundsson (d.14.3.1972) til hægri. Bílinn sem þeir standa við átti Númi og stundaði á honum flutninga milli Skagastrandar og Reykjavíkur. Eins og sjá má var langt hús á bílnum þannig að Númi gat tekið með sér nokkra farþega í hverri ferð. Þegar þessi mynd var tekin, líklega einhverntíma kringum 1960, var það a.m.k. átta tíma ferðalag að fara þessa leið að sumri til með Núma. .
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 237
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin af vigtar- og aðstöðuhúsi Norðuráss á Sölvabakkamelum. Bílavigtin er framan við húsið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 254
Tveir atvinnurekendur á Skagaströnd. Gísli Snorrason til vinstri rekur Vélaverkstæði Skagastrandar, sem er í baksýn. Vilhelm Björn Harðarson til hægri á og rekur Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar. Myndin var tekin í september 2010.
Ólafur Bernódusson738
Sumarið 2012 útbjuggu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar og aðrir sjálfboðaliðar, göngustíg gegnum skógræktarsvæði félagsins austan við tjaldsvæðið á Skagaströnd. Mikil vinna fór í að keyra út malarlagi í göngustíginn á vélinni sem sést á myndinni og raka stíginn til. Hann var síðan nefndur Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem í mörg ár var ötull formaður Skógræktarfélagsins. Á myndinni eru frá vinstri: Atli Þór Þórsson, Ólafur Bernódusson, Árni Geir Ingvarsson og Ari Þórsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 275
Þegar verið var að vinna við að ná varahlutum úr aflögðum Ford Pickup í gamla ketilhúsi verksmiðjunnar 24. október 2011 vildi svo illa til það kviknaði í honum. Þar sem hann var ekki á hjólum þurfti að hafa snör handtök og ná í lyftara sem dró hann út fyrir dyrnar þar sem honum var leyft að brenna að mestu. Á myndinni sér í Árna Guðbjartsson (d.20.2.2018) lengst til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson næst lengst til hægri en hann var eigandi bílsins sem brann. Hinir karlarnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 298
Jarðvinna við Bankastræti 9 í október 2013. Adolf J. Berndsen eigandi íbúðar í húsinu fylgist með framkvæmdum lengst til hægri en hinir mennirnir eru óþekktir. Fjöllin skarta hausthrími til skrauts.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 245
Jón Ólafur Sigurjónsson vinnur við að koma fyrir óvinsælli - en nauðsynlegri - hraðahindrun á Bogabrautinni norðan við Höfðaskóla í lok ágúst 2010.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 153
Þrenns konar flutningatæki má sjá á þessari mynd. Leikfanga-vörubíll bíður eftir nýjum farmi, Aðalsteinn Jörgensen? ekur hjólbörum og fulllestaður vörubíll bíður tilbúinn að aka á áfangastað. Maðurinn sem er að koma út úr bílnum er óþekktur. Myndin var tekin utan við Reykholt en ekki er vitað hvenær.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 274
Hausttiltekt í garðinum við Hólabraut 16 í október 2011. Frá vinstri: Pétur Eggertsson, Geir Arnarson og Haraldur ?.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 109
Stoltur af bílnum sínum situr Hörður Ragnarsson á húddinu á bílnum sínum fyrir utan Ásgarð á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 311
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að slétta landspildu undir skálann í suðurhlíðum Spákonufells. Eftir sléttunina var keyrð möl úr Hrafná á svæðið og sökkullinn síðan steypur ofan á hana. Gamli lyftuskúrinn sést í baksýn til vinstri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1272
Þessir tveir óþekktu ungu menn notuðu góða veðrið 2. apríl 2012 til að þrífa og bóna reiðhjólin sín á stéttinni framan við Fellsborg.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1058
Þröstur Líndal Gylfason bóndi á Kjalarlandi að slóðadraga tún sitt í júní 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 425
Flutningabíll fór út af veginum sunnan við Árbakka 10. apríl 2013 í vondu veðri og slæmu skyggni. Á myndinni er stór vinnuvél að draga bílinn upp á veginn aftur sem hann komst ekki af sjálfsdáðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1048
Jakob Guðmundsson bóndi og smiður á Árbakka í miðri heyskapartíð í júlí 2003.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 417
Tveir ungir reiðhjólakappar í byrjun apríl 2013. Daði Snær Stefánsson til vinstri og Páll Halldórsson til hægri.
Valdimar Viggósson 12
Árið 1993 gaf Valdimar Viggósson, sem er hæfileikaríkur teiknari, út dagatal með skopmyndum af fólki á Skagaströnd sem hann hafði teiknað. Þessi mynd af Sveini S. Ingólfssyni framkvæmdastjóra Skagstrendings hf prýddi júnímánuð á dagatalinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 240
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin á urðunarsvæði Norðuráss á Sölvabakkamelum. Á myndinni eru sveitastjórnamenn og aðrir gestir sem voru á svæðinu til að kynna sér starfsemina hjá hinu nýja fyrirtæki á opnunardeginum.
Ólafur Bernódusson796
Í nokkur ár veiddist vel af hörpudiski í Húnaflóa og voru gerðir út nokkrir bátar á þessar veiðar yfir sumarið og fram á haustið. Skelin var m.a. unninn á Skagaströnd og skapaði allmikla atvinnu. Smátt og smátt dró úr veiðunum þar til svo kom að þær hættu að borga sig. Þessi mynd var tekin 16. september 2006 af löndun á skel, líklega úr Arnarborg Hu 11. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur J. Björnsson, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðbjartur Sævarsson, Vilhjálmur Skaftason og um borð að hífa er Marías Bjarni Viggósson
Árni Geir Ingvarsson - safn 1293
Sumarið 2012 gerðu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar göngustíg gegnum skógræktina austan við tjaldstæðin. Stígurinn hlaut nafnið Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem var einn af stofnendum félagsins, formaður í mörg ár og mikill skógræktarmaður. Á myndinni eru Ari Jón Þórsson núverandi formaður félagsins (2018) og dóttursonur Jóns á vélhjólbörunum en Róbert Gunnarsson sonarsonur Jóns bíður albúinn að jafna úr hlassinu.
Ingibergur Guðmundsson 144
Veturinn 1990 var allmikill snjór á Skagaströnd. Þá var gripið til þess ráðs eins og stundum áður að þjappa skaflana og gera þá ökufæra í stað þess að moka þeim burt. Á myndinni stendur heimilisbíllinn á ca 2 metra þykkum skafli utan við Hólabraut 25.
Jón Jónsson 485
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis byggðar á Íslandi 1974. Myndin var sennilega tekin í Kirkjuhvammi við Hvammstanga.
Helga Berndsen 058
Guðrún Einarsdóttir á Karlsskála með splunkunýtt reiðhjól. Í baksýn eru trillubátar Skagstrendinga í fjörunni neðan við Læk en þar voru þær gjarnan geymdar yfir veturinn þegar veður voru vályndi og ekki var róið. Myndin var líklega tekin einhventíma kringum 1965.
Ingibergur Guðmundsson 134
Hluti af ritnefnd Húnavöku 1985. Frá vinstri: Björn Bergmann Jónasson (d. 30.5.1985) frá Marðanúpi, sem var reyndar ekki í ritnefndinni en ákafur velunnari Húnavökunnar, Stefán Jónsson (d.29.6.2009) frá Kagaðarhóli, ritstjóri og Jóhann Guðmundsson ritnefndarmaður í Holti.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 055
Myndin var tekin á bílastæðinu við Lund einhverntíma kringum 1970. Fljóla Sigurðardóttir úr Höfðakoti er til vinstri og Unnur Gunnarsdóttir í Lundi til hægri. Í baksýn er líklega Helgi Gunnarsson bróðir Unnar.
Ólafur Bernódusson 697
Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður í Vík ehf lagar til balana á bílpallinum eftir löndun úr bát sínum, Öldunni Hu 112, í lok mars 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 242
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin af Guðmundi Sigvaldasyni (d.8.2.2017) til vinstri sveitarstjóra Hörgárbyggðar og fyrrverandi sveitarstjóra á Skagaströnd og Magnúsi B. Jónssyni til hægri sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagaströnd. Þeir félagr voru á staðnum að kynna sér starfsemi Norðuráss.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 61
Vilhelm B. Harðarson situr stoltur á kassabílnum sínum fyrir utan Gamla Pósthúsið (Bogabraut 10). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 690
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu.Á þessari mynd er duflið komið á kerru aftan í björgunarsveitarbílnum og er á leiðinna á eyðingarstað. Tunnan fremst á kerrunni inniheldur sprengiefnið. Bjarni er strax að leggja úr höfn aftur.
Ólafur Bernódusson 728
Bogga í Vík Hu 6 tekin á land eftir óhapp sem laskaði skrúfu og stýri bátsins. Myndin var tekin í kalsa veðri 29. mars 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 239
Norðurá er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin inni í vigtar- og aðstöðuhúsi Norðuráss á Sölvabakkamelum. Á myndinni er framkvæmdastjóri félagsins, Fannar Viggósson, á skrifstofu sinni. Utan við gluggann er bíll að koma upp á vigtina en allt rusl er vigtað áður en það er urðað á svæðinu.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 140
Þessi fjárflutningabíll með þessum langa palli var í eigu Harðar Ragnarssonar. Á myndinni er bíllinn við Spákonufellsrétt en hjá bílnum er kona Harðar, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með börn þeirra, Vilhelm Björn Harðarson, sem er að klifra í stiganum, og Pálínu Freyju Harðardóttur. Myndin var líklega tekin kringum 1970.
Ólafur Bernódusson761
Myndin var tekin 15. janúar 2004 af þremur mönnum úr björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd við að bjarga bíl úr snjó vestan við Vélaverkstæðið. Þá var ný afstaðin stórhríð með miklu fannfergi svo miklu reyndar að þakið á verkstæðinu gaf sig undan snjóþunganum. Mennirnir eru óþekktir
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 1
Hafsteinn Þórðarson leikur sér á Farmal Cub dráttarvél Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974) afa síns fyrir utan Reykholt. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1960.
Ingibergur Guðmundsson 142
Í óeiginlegri merkingu þýðir orðtakið: "að vera í djúpum skít", að vera í vandræðum. Á myndinni fær orðtakið dýpri merkingu því vélin er bæði í vandræðum og líka raunverulega föst í djúpum skít. Myndin var tekin á Vatnsskarði í maí 1987.
Helga Berndsen 015
Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið 1971 -72. Á henni er Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) með vinkonurnar Unni Gunnarsdóttur til vinstri og Guðrúnu Einarsdóttur til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 209 - Copy
Basl í snjómokstri 2. nóvember 2012. Grafan er hálf útaf og bjargar sér frá veltu með því að styðjast við gálgann. Karlarnir eru að koma fyrir dráttarvír milli hennar og stærri hjólagröfu sem kom til bjargar. Eins og sjá má er skyggnið mjög takmarkað í snjókófinu.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 159
Þessi mynd var tekin á sumardegi af hjónunum Herði Ragnarssyni og Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur með frumburð sinn, Vilhelm B. Harðarson. Bílinn átti Hörður en ekki er vitað um hvaða tegund hann var.
Helga Berndsen 093
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en maðurinn til hægri er Ernst Berndsen (d. 21.8.1983). Konan er Pálína Árnadóttir (d.6.2.1962)frá Hrísey sem var gift Kristni Ásgrímssyni (d.21.12.1971) en þau voru lengi búsett á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 273
Í lok september 2011 var haldin sjóbjörgunaræfing á Skagaströnd þar sem björgunarsveitir af öllu norðurlandi tók þátt. Þessi mynd er af hluta af bátaflotanum sem notaður var í æfingunni utan við hús björgunarsveitarinnar Strönd á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1210
Fannar Viggósson við sorptroðara á urðunarstaðnum í Stekkjarvík í janúar 2011.
Ólafur Bernódusson748
Hitaveita var lögð til Skagastrandar sumarið og haustið 2013 frá Reykjum við Húnavelli. Á myndinni, sem tekin var í lok september, er búið að leggja út leiðsluna í bæinn en ekki búið að grafa hana niður. Leiðslan var svo tekin í nýbyggt dæluhús við enda Sólarvegar og dreift þaðan um bæinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 247
Unnið að skógrækt á tjaldsvæðinu með stórvirkum vinnuvélum. Myndin var tekin 1. september 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 269
Þór Arason lappar upp á þakið á skemmunni við Karlsskála í ágústlok 2011 með hjálp skotbómulyftara.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 66
Óneitanlega voru það miklar framfarir þegar bændur eignuðust dráttavélar. Þessi Farmal Cub var í eigu Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974) í Reykholti en hann fékkst meðal annars við búskap. Eins og sjá má er sláttuvélargreiðan tilbúin en áður hafð verið slegið með orfi og ljá eða með sláttuvélum sem hengdar voru aftan í hest.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 303
Slavko Velemir við garðslátt fyrir utan Herðubreið í júlí 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1206
Það getur oft verið lítið skyggni þegar norðanáttin blæs og myndar skafhríðarkóf fyrir víkina. Þessi mynd var tekin í einu slíku veðri 2. nóvember 2012 en þá fór snjómoksturstæki með önnur hjólin fram af brúninni á Strandgötunni. Á myndinni er annað tæki að draga gröfuna upp á götuna aftur. Engin slys urðu við óhappið enda kom snjórinn í veg fyrir að grafan færi alveg á hliðina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1279
Þór Arason (d.11.8.2018) til vinstri, Sverrir Brynjar Berndsen í miðið og Adolf H. Berndsen til hægri koma fyrir auglýsingaskilti fyrir Spákonuhofið á Skagaströnd um miðjan júlí 2012.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 172
Ekki er vitað um tilefni þessarar myndatöku sem hefur líklega verið kringum 1964. Þá var hafskipabryggjan í góðu lagi eins og sjá má og öll mannvirki síldarverksmiðjunnar enn uppi standandi; löndunarkraninn, færibandið, þrærnar og verksmiðjan sjálf. Fólkið á myndinni er Hörður Ragnarsson, barnið er líklega Vilhelm B. Harðarson og konan hjá þeim Aðalbjörg Hafteinsdóttir. Konan í gráu kápunni er óþekkt. Svarti báturinn undir löndunarkrananum er Keilir sem var í eigu Hólaness hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1389
Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) átti erfitt með gang undir það síðasta. Þess vegna fékk hún sér rafskutlu til að geta skroppið í húsið sitt, Straumnes, eftir að hún var orðin íbúi á dvalarheimilinu Sæbog. Þessi mynd var tekin 8. nóvember 2012.
1
2
3
4
5
6
7
Leita í myndasafninu
Leita