Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Bílar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Skip og Bátar
393 myndir
Flæði
Reitir
Þórunn Bernódusdóttir - safn 045
Myndin var tekin þegar verið var að leita að heitu vatni með því að bora tilraunaholu í landi Hafurstaða eða Ytri Eyjar. Því miður skilaði leitin engum árangri frekar en holur sem boraðar voru hingað og þangað í grennd við Skagatrönd. Guðmundur J. Björnsson gröfumaður tók myndina. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn417
Pálmalundur eða Hólabraut 27 á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1516
Á myndinni, sem tekin var á einhverjum sjómannadegi, sýnir landhelgisþyrlan Sif björgun með því að hífa upp mann úr sjónum. Reyndar er maðurinn á myndinni úr áhöfn þyrlunnar og á leiðinni niður til að aðstoða mennina í sjónum við að setja á sig hífingarbeltið á réttan hátt.
Helgi Gunnarsson 10
Sigurjón Ástmarsson á fremri bílnum og Gunnar Helgason (d.19.10.2007) á þeim aftari flytja límtrésbitana í íþróttahúsið heim til Skagastrandar.
Óskar Kristinsson - safn 216
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Óskari Kristinssyni við fornbílinn sinn. Bíllinn, sem er Ford Thunderbird árgerð 1966 ?, flutti Óskar inn frá Bandaríkjunum.
Ljósmyndakeppni 2022 46
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Svanur Sigubjörnsson og sendi inn í flokkinn "Gamalt".
Ingibergur Guðmundsson 343
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á höfninni en líklega var það kringum 1990. Á henni er Þorlákur Sigurður Sveinsson undir stýri á lyftaranum en Jónas Jónasson (d.24.5.2021) er að segja honum til.
Óskar Kristinsson - safn 257
Óskar Þór Kristinsson ferðbúinn á Akureyri á einu af mótorhjólunum sínum. Myndin var tekin 23. júlí 2000.
Gréta 053
Myndin var tekin ofan af síldarþrónum yfir hafnarsvæðið. Tunnustæðurnar sýna að menn hafa verið bjartsýnir á gott síldarsumar en síld var söltuð á bryggjunni til vinstri. Færibandið á myndinni flutti síld frá löndunarkrana við enda þess upp í geysluþrærnar við síldarverksmiðjuna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 525
Myndin var tekin þegar verið var að steypa upp húsið á Suðurvegi 13 á Skagaströnd í september 1996. Eins og sjá má var það gert upp á gamla mátann með hrærivél. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Pétur Eggertsson, Viktor Pétursson, Helgi Gunnarsson, Sigurjón Ástmarsson Hannes Óskarsson, Hrólfur Pétursson og Ómar Jakobsson.
2001087
Baldvin Hjaltason til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri búa sig undir að renna fyrir silung í gegnum ís á Langavatni. Myndin var tekin í jeppaleiðangri á tíu jeppum um jól en ekki er vitað hvaða ár.
Ólafur Bernódusson1089
Myndin var tekin í Hrafndal í júlí 1996 þegar þar stóðu yfir framkvæmdir við vatnsveitu Skagastrandar. Boraðar voru nokkrar holur og upp úr þeim fékkst heilnæmt og gott kalt vatn sem enn (2022) er notað í bænum. Karlarnir upp við bílana á myndinni eru, frá vinstri: Rolf Árnason (d.3.6.2014) byggingatæknifræðingur, Karl Guðmundsson (d.11.12.2011) verkamaður, Guðmundur Jón Björnsson gröfumaður og Einar Karlsson pípulagninamaður. Mennirnir við borholuna eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1530
Kántrýhátíðin 2001 var mjög fjölmenn. Öll tjaldsvæði á Skagaströnd fylltust svo fólk kom sér fyrir hvar sem grænan blett var að finna. Eins og sjá má tjaldaði fólk meðal annars utan í Einbúanum en ekki er vitað annað en að álfarnir þar hafi umborið átroðninginn þessa helgi í ágúst.
Gréta 096
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er unnið við upp- eða útskipun í Skagastrandarhöfn. Því miður er skipið óþekkt og ekki er vitað hver átti Volvo vörubílinn, H 128, á myndinni. Ef þú getur upplýst þetta vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jónas 56
Auglýsingaspjald frá Bifreiðastöð Skagastrandar, sem Hjalti Skaftason (d.27.6.2022) sendi frá sér, til að minna á þjónustu sína í vöruflutningum. Hann átti og rak flutningafyrirtækið á Skagaströnd á árunum 1970 - 1982 er hann flutti til Reykjavíkur.
2001086
Myndin var tekin um jól en ekki er vitað hvaða ár en það var líklega á tíunda áratugnum. Á henni eru karlar sem fóru í jeppaleiðangur í afar fallegu veðri frá Skagaströnd upp á Langavatn og þaðan að fjallabaki og komu niður Norðurárdal á Þverárfjallsveg. Rennt var fyrir silung í gegnum ís á Langavatni og í Rangártjörnum án mikils árangurs. Á myndinni eru karlarnir að bera saman bækur sínar út á Langavatni.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 049
Myndin var tekin um páskana 1991 þegar nokkrir jeppakarlar frá Skagaströnd fóru upp á Langavatn til að veiða gegnum ís. Á ýmsu gekk að komast að vatninu í ófærðinni og erfitt að komast frá bakkanum út á ísinn. Á myndinni er Milan Durica að hjálpa til við að ná rússajeppa Guðmundar J. Björnssonar úr festu.
Höfðaskóli - safn416
Fjallsminni /Hólabraut 2. Framan við húsið er bíll af Saab 96 gerð sem var í eigu Sigurðar Jónssonar semm býr í Fjallsminni. Húsið til hægri, með blátt þak, er Fellsbraut 2.
Skagaströnd 1981 og 82
Sjómannadagurinn á Skagaströnd 1981 og 1982 einnig koma Örvars Hu 2, 1982. Ekkert tal en hljóð og mynd í góðu lagi, tími 16 mínútur. Myndataka: Sigursteinn Guðmundsson.
Óskar Kristinsson - safn 218
Óskar Þór Kristinsson safnar mótorhjólum. Á myndinni er hann utan við Hólabraut 7 með eitt af þeim fimm sem hann á. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 081
Ómar Jakobsson stendur við Mercury Comet bíl Óskars Þórs Kristinssonar utan við þáverandi heimili Óskars að Hólabraut 7. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið kringum 1970.
Óskar Kristinsson - safn 217
Það er misjafnt hverju fólk safnar. Óskar Kristinsson safnar mótorhjólum því hann á fimm aflmikil mótorhjól. Á myndinni er hann við eitt þeirra, sem er af Yamaha gerð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 226
Myndin var tekin 3. september 1993. Þá var rússneskur rækjutogari að landa frosnum afurðum til frekari vinnslu á Skagaströnd. Áhöfn þessa togara var töluvert fjölmennari en gekk og gerðist á íslenskum togurum. Áhafnarmeðlimir höfðu mikinn áhuga á að kaupa gamla bíla sem voru svo hífðir um borð í togarann. Þetta varð til þess að lífleg viðskipti hófust á bryggjunni og þá virtist ástand og tegund bílanna ekki skipta máli. Greiðslur fyrir bíldruslurnar voru með ýmsu móti þar sem gjaldeyrir, Vodki og ýmislegt annað fljótandi kom við sögu. Á myndinni er Hörður Ragnarsson lengst til hægri. Yfir miðju þaki bílsins sést Jóhannes Sveinsson í tvílitri grárri peysu skoða ýmsan varning sem átti að vera greiðsla í viðskiptunum. Gráhærði maðurinn er Vilhjálmur Skaftason en aðrir eru áhafnarmeðlimir og ókunnugt fólk.
2001007
Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júddý) í skólaferðalagi einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson1094
Myndin var tekin í júlí 1996 þegar fram fóru framkvæmdir við vatnsveitu Skagastrandar í Hrafndal. Á myndinni eru Rolf Árnason (d.3.6.2014) byggingatæknifræðingur til vinstri og Guðmundur J. Björnsson gröfumaður til hægri. Boraðar voru nokkrar holur í dalnum og síðan var vatnið, sem fékkst, leitt í stóran miðlunartank neðst í dalnum. Guðmundur plægði niður vatnsrörið með gröfunni sinni, sem er á myndinni á tvöföldu bæði að framan og aftan. Ekki veitti af því í mýrunum á leiðinni sökk grafan gjarnan á kaf.
2001099
Myndin var tekin við Hvalá á Ströndum 2003. Þá voru þar á ferð nokkrir Skagstrendingar á jeppunum sínum en ekki er hægt að fara lengra út Strandir á bílum en að Hvalánni. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur J. Björnsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, ?Indriði Hauksson?, Eiríkur Lýðsson og Ari Jón Þórsson.
2001093
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á Strandgötunni. Þar hefur ekki mátt miklu muna að flutningabíllinn ylti niður í fjöru. Stór Payloader er að draga hann varlega upp á götuna aftur. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 524
Myndin sýnir vinnubrögð við steypuvinnu áður en farið var að versla við steypustöðvar. Gömul hrærivél var notuð til að hræra steypuna. Mölinni var mokað í vélina með dráttarvél í skúffuna utan á vélinni. Síðan var einum poka af sementi skellt ofan á mölina, vatni ausið inn í hana áður en skúffan var hífð upp og þá sturtaðist mölin og sementið inn í hana. Þegar steypan var orðin vel samlöguð var sturtað úr henni hinum megin í sílóið á myndinni sem kranabíll hífði svo á réttan stað þar sem hleypt var úr sílóinu. Myndin var tekin í september 1996 þegar verið var að steypa einhvern hluta hússins að Suðurvegi 13 á Skagaströnd. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Ómar Jakobsson, Helgi Gunnarsson, Viktor Pétursson og Pétur Eggertsson.
Ólafur Bernódusson1090
Myndin var tekin í júlí 1996 í Hrafndal. Þá stóðu þar yfir framkvæmdir við vatnsveitu Skagastrandar. Á myndinni er verið að gera plan þar sem síðar voru boraðar holur til að ná í kalt vatn. Fjallið í baksýn fyrir miðri mynd er Tungufell með Kambadal til hægri.
2001090
Veturinn 1995 var óvenju snjóþungur þannig að bílar snjóuðu í kaf, skaflar í íbúðagötum voru troðnir og bílar óku svo ofan á þeim i jafnvel tveggja metar hæð frá götunni. Þegar veður gaf færi á var bílum bjargað undan fönninni til þess að þeir skemmdust ekki. Á myndinni hefur Kristmundur Stefánsson, sem bjó efst á Ránarbrautinni, fengið gröfu til að moka frá bílnum sínum. Takið eftir að grafan stendur á skaflinum hátt ofan við bílinn.
Ljósmyndakeppni 2022 9
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Signý Ósk Richter og sendi inn í flokkinn "Gamalt". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki. Gestir sem komu á sýninguna völdu þessa mynd sem þá bestu í gamalt-flokknum.
2001100
Volkswagen bílar "Fólksvagen bjöllur" voru mjög vinsælir bílar á sjönda áratugnum. Vélin var loftkæld og var aftur í bílnum en "skottið" að framan. Þeir voru tveggja dyra og heldur þröngir miðað við bíla í dag.
20250926_101153
Myndin var tekin í september 2025 þegar verið var að steypa hluta af þekju á ný endurgerðum Ásgarði í Skagastrandarhöfn.
1
2
3
4
5
6
7
Leita í myndasafninu
Leita