Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Skip og Bátar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn799
Geir RE 406. Stærð 73 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1956 í A- Þýskalandi. Vél MAK - Diesel 240 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn739
Sigurfari Hu 32 að koma úr róðri. Um Sigurfara segir svo í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 -2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson:" Sigurfari Hu 32. Báturinn var smíðaður úr eik og furu, 3,5 brl. með 6 ha. Bolinder vél. Þetta var gullfallegur hringlotaður bátur. Hann var hvítmálaður með bikaðan botn og breiðan rauðan fleyg sem náði aftur á bóga en svona skraut var ekki algengt. Eigendur hans voru Snorri Gíslason, Guðjón Einarsson og Hrólfur Jakobsson sem var formaður. Þeir félagar eignuðust bátinn 1935 en seldu hann til Drangsness 1943". Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 004
Ernst Berndsen yfirvélstjóri á kunnuglegum slóðum í stjórnherberginu í vélarrúmi Arnars Hu 1.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 090
Oft hefur verið mikið um að vera í dráttarbrautinni. Bátar af öllum stærðum og gerðum koma þar og fara. Sumir þeirra enda þar ævi sína eins og raunin varð með Auðbjörgu Hu 6, sem er á myndinni og Hinrik? sem er húslaus lengst til vinstri. verið er að hífa Beggu GK 717 upp á pallinn á kranabílnum sem síðan flutti hana burt. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 502
Haukur Böðvarðsson ÍS 847 dreginn upp í dráttarbrautina á Skagaströnd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 024
Hér eru þeir Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014 ) háseti til vinstri og Gunnar Reynisson kokkur í góðum gír í eldhúsinu um borð í annað hvort Arnari Hu 1 eða Örvari Hu 21.
Árni Geir Ingvarsson - safn 549
Trollið komið inn á dekk í Örvari Hu 21 fullt af fiski. Skipstjórinn, Guðjón Ebbi Sigtryggsson, stendur fyrir aftan kranann og virðir fyrir sér aflann. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 059
Jón Indriðason vélstjóri nýtur hér aðstoðar Friðvins Inga Ernstsonar við vinnu sína.
Árni Geir Ingvarsson - safn 520
Arnarborg Hu 11 á rækjuveiðum í blíðskapar veðri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 530
Karlinn brosir í brúnni enda úrgreiðsluborðið fullt af fiski eins og hann vill hafa það. Myndin var tekin um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 á netavertíð. Karlarnir eru, frá vinstri: Kristján Karlsson á rúllunni, Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðamaður í brúnni, Ragnar Ingvarsson og Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) við úrgreiðsluborðið. Maðurinn bak við Ragnar er Kristinn Thor Sigurðsson. Myndina tók Árni Geir Ingvarsson sem var kokkur á Ólafi á þessum tíma.
Minjasafn690
Síldarlöndun úr Húna Hu 1 í Skagastrandarhöfn 1959 eða 1960. Síldinni mokað með sérsmíðuðum háfum í "veltitunnnur" sem síðan eu hífðar í land, tæmdar þar og hífðar svo um borð aftur. Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Jóhann Ingibjörnsson, Gunnlaugur Árnason, Björn Haraldsson (d.21.9.1988) , Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000)(í köflóttri skyrtu). Bak við Sigmar er Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) og lengst til hægri er Gunnar Sveinsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Helgu Berndsen frá Karlsskála í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 013
Óli Hjörvar Kristmundsson við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 046

Á þessari mynd er verið að "taka það" þ.e. draga trollið inn, að þessu sinni með góðum kolmunnaafla. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1. Maðurinn lengst til hægri er Óskar Þór Kristinsson en hinir karlarnir á myndinni eru óþekktir. Pokinn á trollinu var leystur frá og Börkur NK tók pokann og dældi úr honum. Síðan var pokanum skilað og trollið gert klárt á ný. Í þessum túr bilaði bakborðs togvindan og
farið var í að skipta um togvindur. (Heimild: Guðmundur Henry Stefánsson)

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 026

Slakað á í borðsalnum á Arnari Hu 1. Frá vinstri: Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004), Guðjón Guðjónsson, óþekktur og Níels Grímsson.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 081
Valdimar Viggósson frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu sína um borð í togara.
Minjasafn691
Húni II Hu 2 frá Höfðakaupstað í óþekktri höfn 1963. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Lárusi Ægi Guðmundssyni á Skagaströnd 1995.
Árni Geir Ingvarsson - safn 494
Arnar Hu 1 (Japans-Arnar) leggur upp í sjóferð í suð-vestan roki. Arnar var ísfiskstogari og mikið happaskip með góða skipstjóra. Túrarnir voru mis langir, frá viku upp í hálfan mánuð.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 030
Brugðið á leik um borð í Arnari Hu 1. Gestur Arnarson hampar Sævari Hjaltasyni í fanginu.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 043
Bjarni Ottósson frá Vélaverkstæði Skagastrandar við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn759
Á landleið um borð í Skíði Hu 8 vorið 1960. Í bókinni : "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um bátinn: "Skíði Hu 8. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1956 og var 8,4 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann hét Skíði EA 51 þegar bræðurnir Kristján og Sveinn Hjartarsynir keyptu hann í júlí 1958. Skíði fórst í sjóróðri á Húnaflóa 22. nóvember 1961 og með honum bræðurnir, Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir". Maðurinn sem sést á myndinni er líklega Sveinn Hjartarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhannes Björnsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 049
Ernst Berndsen yfirvélstjóri vinnur við aðalvélina í einum af togurum Skagstrendings hf.
Óþekktur ljósmyndari374
Guðmundur Þór Hu 17 nýbyggður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf á Skagaströnd í reynslusiglingu. Fólkið um borð er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 555
Mikil ókyrrð var við Skúffugaðinn áður en grjótgarður var gerður þvert á hann, fremst, til að mynda skjól. Síðan kom trébryggja, Smágarður, ofar út frá Skúffufgarðinum þannig að í dag er ákjósanlegt bátalægi við Skúffugarðinn í hvernig veðrum sem er. Á þessari mynd má sjá að bátarnir dönsuðu í landfestunum í sunnan kælunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 529
Árni Guðbjartsson um borð í Hafrúnu Hu 12 býður ljósmyndaranum í nefið. Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) bíður á bryggjunni eftir að röðin komi að honum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 586
Eiður Hilmarsson leikur sér að því að lyfta Herbert Ólafssyni (d.25.4.2007) og halda uppi með annarri hendi. Auðbjörg Hu 6 er í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 551
Stefán Jósefsson til vinstri og Ragnar Ingvarsson til hægri sansa veiðarfæri um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 í ljósaskiptunum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 525
Séra Oddur Einarsson blessar nýsmíðina Björg Hu 40 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 550

Líklega eru þessir þrír sjómenn á frívakt. Myndin var sennilega tekin uppi á brúarþakinu á Örvari Hu 21 í blíðskapar veðri innan um íshrafl. Mennirnir eru frá vinstri: Friðrik J. Arngrímsson fv. framkvæmdastjóri LÍÚ, Böðvar Björnsson frá Löngumýri og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 082
Björn Viðar Hannesson frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu sína um borð í Örvari Hu 21 í júlí 1994.
Minjasafn756
Skröyfa var líklega norskt síldarskip þar sem saltað var um borð. Myndin er sennilega frá því um aldamótin 1900 og kemur úr búi Carls Berndsen frá Karlsskála á Skagaströnd. Áhafnarmeðlimirnir eru óþekktir enda sennilega allir norskir.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 6. maí 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 508
Það liggur vel á þeim Gunnari Gunnarssyni við stýrið og Ragnari Jónssyni í skemmtiferð um borð í einhverri skektu.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 044
Björn Sigmundsson vélstjóri við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn787
Auðbjörg Hu 6. Báturinn var smíðaður í Stykkishólmi 1973 fyrir Auðbjörgu hf en eigendur félagsins voru Árna Björn Ingvarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Stefán Jósefsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Árni Björn Ingvarsson í október 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 507
Ekki er alltaf sól og blíða á Skagaströnd. Þrátt fyrir leiðinda veður halda hjól atvinnulífsins áfram að snúast eins og sést á þessari mynd þar sem Helga Björg Hu 7 er tekin upp í dráttarbrautina í skafrenningi og kulda.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 083
Þrír karlar frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu um borð í Örvari Hu 21, 7. júlí 1994. Frá vinstri: Árni Jón Guðmundsson (d. 8.1.2006), Gísli Snorrason og Björn Viðar Hannesson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 581
Njörður Nk 25/Eygló NK 28 var gerður út til hrefnuveiða frá Skagaströnd í nokkur sumur. Njörður/Eygló var með sérkennilega yfirbyggingu eins og sjá má á myndinni. Samkvæmt heimildum frá Gunnari Þorsteinssyni á Neskaupstað var báturinn í eigu Gunnars Vilmundarsonar (1931 - 1992) frá Neskaupstað og upphaflega mun Njörður/Eygló hafa verið tollbátur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 554
Ragnar Ingvarsson býr sig undir að sleppa að framan um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54.
Árni Geir Ingvarsson - safn 547
Ragnar Ingvarsson við vinnu sína um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54.
Árni Geir Ingvarsson - safn 522
Hér sýnir Landhelgisgæslan þyrlubjörgun úr sjó á TF - SIF á sjómannadegi í höfninni á Skagaströnd. Sigmaðurinn hefur farið niður og er með mann í flot- björgunarbúningi í fanginu á leið upp í þyrluna. Maðurinn sem er á leið upp í þyrluna er Axel Jóhann Hallgrímsson en sá sem glittir í í sjónum fyrir neðan er Sigurbjörn Björgvinsson, sem bíður eftir að röðin komi að honum. Á myndinni virðast tveir menn vera í sjónum en í raun eru það höfuð og tær Sigurbjarnar sem sjást.
Árni Geir Ingvarsson - safn 567

Auðbjörg Hu 6 var gerð út frá Skagaströnd frá árinu 1977 þar til henni var komið fyrir á hliðargarði í dráttarbrautinni 1998. Þar stóð hún svo ósköp umkomulaus í ein 11 ár til ársins 2009 þegar hún var rifin og fjarlægð.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 027
Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) lætur líða úr sér á bekknum um borð í Arnari Hu 1.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 006
Ari Þórsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri frá Vélaverkstæði Skagastrandar í viðhaldsvinna í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 028
Stund milli stríða í borðsalnum í Arnari Hu 1. Frá vinstri: Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) og Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014).
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 007

Óli Axel Óskarsson við vinnu sína um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 031
Hafþór Gylfason til hægri og Kiddi "Gullrass" til vinstri í borðsalnum á Arnari Hu 1. Ef þú veist hið rétta nafn á Kidda vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 091
Bogga í Vík HU 6 í eigu Árna Guðbjartssonar og gerð út af honum. Myndin var sennilega tekin einhversstaðar í Snæfellsbæ.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 015
Viðhaldsgengi á verkstæðinu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf. Frá vinstri: Björn Hallbjörnsson rafvirki frá Neistanum, Gísli Snorrason vélvirki frá Vélaverkstæði Skagastrandar, Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari frá Neistanum, Guðmundur Andersen vélstjóri, Óli Axel Óskarsson frá Vélaverkstæðinu og Hjalti Reynisson rafvirki frá Neistanum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 503
Nýsmíði inni á gólfi í skipasmíðastöðinni Mánavör hf. Ekki er vitað hvaða nafn þessi bátur fékk né hvert hann fór. Ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 518
Orka Ís 119 á fullu ferðinni úti á rúmsjó. Maðurinn um borð er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 617
Eiður Hilmarsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri skoða múkka/fýl sem Stefán hefur fangað. Eins gott að fara varlega með fýlinn því hann á til að æla lýsisbrækju á óvini sína ef honum er ógnað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 558
Mörgum finnst gaman að eiga lítinn bát til að geta skroppið á sjó og dregið sér fisk í soðið. Á þessari mynd má sjá skektufjölda sem liggur innan við Smágarð út frá Skúffugarðinum. Þetta svæði hafnarinnar er oft nefnt "Hobbýkarla svæðið" vegna eðlis þeirrar útgerðar sem stunduð er á bátunum sem þar liggja. Myndin var tekin fyrir 1993 því þá smíðuðu hobbýkarlarnir flotbryggju og komu fyrir á svæðinu þar sem skekturnar liggja.
Árni Geir Ingvarsson - safn 512
Þorvaldur Skaftason aðstoðar Sigurbjörn Björgvinsson við að klæðast flot-björgunarbúningi. Í slíkum búningi fljóta menn og á þeim er belti sem nota má til að hífa viðkomandi upp í þyrlu ef þarf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 584

Báturinn Sæborg Hu 177 leggur úr höfn á Skagaströnd í sléttum sjó. Sæborg var smíðuð í Vestur-Þýskalandi 1956 eftir teikningu Hjálmars R. Bárðarsonar og endurbyggður í Keflavík 1978 - 1979. Sæborgin fórst út af Rifi á Snæfellsnesi 8. mars 1989 og með honum einn maður. Maðurinn sem fylgist með á bryggjukantinum er Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) fyrrverandi sjómaður og áhugaljósmyndari.

Árni Geir Ingvarsson - safn 505
Kafarinn Kjartan? frá Ísafirði býr sig undir að kafa við rækjubát. Maðurinn sem snýr baki í okkur er Ólafur Ingibjörnsson sem var skipstjóri á bátnum (Hafbjörg Hu 100 ?).
Árni Geir Ingvarsson - safn 572
Myndin var tekin á sjómannadegi af bardagaleik í höfninni á Skagaströnd. Leikurinn fólst í því að mennirnir áttu að reyna að koma andstæðingnum í sjóinn með því að ýta við honum með löngu priki með púða á endanum. Ef grannt er skoðað sést lítill ísjaki í baksýn svo líklega hefur sjórinn verið óvenju kaldur. Mennirnir eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1980.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 010
Rafvirkameistarinn Hallbjörn Björnsson við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.. Hallbjörn hefur að stórum hluta séð um viðhald sem snýr að rafmagni og raftækjum um borð í togurum félagsins frá upphafi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 501
Tveir ungir menn leggjast í víking á litlum bát. Gunnar Gunnarsson við stýrið og Ragnar Jónsson í stafni.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 029
Sævar Hjaltason glaðbeittur við vinnu sína um borð í Arnari Hu 1.
Minjasafn794
Eyjaberg VE 130. Stærð 94 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1959 í A- Þýskalandi. Vél MWM Diesel 400 hestöfl. Heimahöfn Vestmannaeyjar. Strandaði og sökk 1965. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 515
Arnarborg Hu 11 tekin upp í dráttarbrautina. Verið er að byggja hliðargarða til hægri í dráttarbrautinni en þangað var svo Arnarborgin færð og seinna rifin og brennd 1993. Í baksýn sjást grænmálaðir togarar Skagstrendings hf; frystitogarinn Örvar Hu 21 nær og Arnar Hu 1 fjær. Fólkið á myndinni er óþekkt.
1

9
10
11

27
Leita í myndasafninu
Leita