Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Skip og Bátar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 038
Sævar Hjaltason ísar fisk í kassa á millidekkinu á Arnari Hu 1. Þegar myndin var tekin hefur fiskirí verið gott því almennt var ekki hafður fiskur á millidekkinu. E.t.v. var lestin orðin full ?
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 036
Guðjón Guðjónsson (Jonni Ebba) fær sér kaffisopa á vaktaskiptum í borðsalnum á Arnari Hu 1.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 001
Gísli Snorrason á kunnuglegum slóðum að sinna viðhaldi í vélarúmi á togara, sennilega Örvari HU 21.
Árni Geir Ingvarsson - safn 516
Lítill bátur á stórum sjó. Hér róa tveir menn í land í austan golukalda á lítilli tré skektu. Stefán Jósefsson rær stjórnborðsmegin og Hjörtur Guðmundsson í bak.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 005
Arnar Hu 1 að leggja upp í veiðiferð. Arnari var snúið í stefnuna inni í höfninni því hann lætur illa að stjórn afturábk. Í dag fær Arnar hjálp frá Húnabjörg við að snúa þar sem Húnabjörgin þjónar sem dráttarbátur. Mennirnir á bryggjunni eru Hafþór Gylfason´til vinstri og Magnús Guðmannsson til hægri. Sjómennirnir um borð eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 511
Ragnar Ingvarsson smúlar dekkið um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54.
Fisk Seafood - safn 229
Högni Jensson var kokkur á skipum Skagstrendings hf í allmörg ár. Hér er hann á kunnuglegum slóðum við pottana. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 524
Helga Hermannsdóttir brýtur kampavínsflösku á stefni Bjargar Hu 40 og gefur henni nafnið um leið. Björg Hu 40 var smíðuð í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf fyrir feðginin Jakob Guðmundsson og Þórhildi Jakobsdóttur á Árbakka í Skagabyggð. Helga er eiginkona Jakobs og móðir Þórhildar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 548
Karlarnir um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 fá smá pásu meðan stímt er að næstu trossu. Maðurinn í lúkarskappanum er Stefán Kristinsson (d. 19.5.2011) en hinir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 556
Ólafur Bernódusson dregur hér grásleppunet á bát sínum, Balda, á veiðsvæði sunnan við Skagaströnd. Myndin var tekin einhverntíma á níunda áratugnum.
Fisk Seafood - safn 077
Þessa mynd tók Lárus Ægir Guðmundsson 1991. Félagarnir á myndinni voru þá að koma með Haukafell SF 40 til Skagastrandar eftir að Hólanes hf keypti bátinn frá Hornafirði. Báturinn fékk nafnið Gauti og einkennisstafina HU 59 og var gerður út á bolfisk og rækju til 1993. Þá var hann seldur Skagstrendingi hf sem seldi hann strax áfram til Hornafjarðar aftur. Þar var hann tekinn af skrá í apríl 1994 en settur aftur á skrá í apríl 1996 þegar hjónin Erna Sigurbjörnsdóttir og Þorvaldur Skaftason keyptu bátinn og komu með hann til Skagstrandar enn á ný. Þau hjón skírðu bátinn Húni II en það var hans upphaflega nafn þegar hann var smíðaður 1963 á Akureyri fyrir útgerðarfélagið Húni hf á Skagaströnd. Húni II er nú á Akureyri og þjónar þar sem útsýnis- og skólabátur. Það má því segja að báturinn sé búinn að fara marga hringi á líftíma sínum en líklega er hann nú að lokum kominn í lokahöfn. Sjómennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðarmaður, Vilhjálmur Skaftason sjómaður, Sigurjón Guðbjartsson skipstjóri og útgerðarmaður og Gunnar Albertsson vélstjóri.
(heimild: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson - safn 619
Óþekktur bátur á handfæraveiðum fyrir tíma rafknúinna færarúlla. Karlarnir um borð eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 001
Hér skoðar Magnús Sigurðsson, útgerðarstjóri hjá Skagstrendingi hf, vinnsluþilfarið á einhverjum óþekktum togara. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 526
Nýsmíðin Björg Hu 40 sjósett í fyrsta sinn. Aftast ýtir Þórhildur Jakobsdóttir, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) er í munstraðri peysu, Ólafur Guðmundsson (d. 7.4.2015) í brúnum jakka og Herdís Jakobsdóttir stendur í stýrishúsdyrunum.
Fisk Seafood - safn 011
Örvar Hu 14 var annar báturinn sem Skagstrendingur hf eignaðist. Bátinn keypti félagið notaðan frá Noregi og kom hann til Skagastrandar 28. desember 1970. Hann var svo gerður út frá Skagaströnd fram í maí 1974 þegar hann var seldur til Patreksfjarðar. Örvar Hu 14 var annar af tveimur fyrstu bátunum á Íslandi sem var með allan afla sinn í fikikössum um borð.
Fisk Seafood - safn 203
Skagstrendingur hf keypti Betty Belindu Hu 31 frá Grænlandi árið 1995. Þetta var rækjufrystitogari byggður í Noregi 1976. Miklar umbætur voru gerðar á skipinu í Slippstöðinni á Akureyri og síðan hóf skipið rækjuveiðar á vegum Skagstrendings hf árið 1996 undir nafninu Helga Björg Hu 7. 1999 var skipið selt til dótturfélags Skagstrendings hf í Eistlandi og þá hét það Tahkuna en var síðan selt óskyldum aðilum árið 2000. (Heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Fisk Seafood - safn 232
Á þessari mynd vinna þeir Óskar Kristinsson til vinstri og Gunnlaugur Árnason til hægri við að setja síðustu fiskana í síðasta kassann sem fyllir lestina á Örvari Hu14 alveg upp í lúgu. Örvar Hu 14 var annar af fyrstu ísfisktogurunum á Íslandi sem ísaði allan afla í plastkassa en Skagstrendingur hf keypti skipið frá Noregi 1970. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 139
Þessi mynd var tekin 3. september 1993 í höfninni á Skagaströnd. Við bryggjuna liggur rússneskur? togari SOYANA en farmur hans hefur annað hvort verið frosinn þorskur eða frosin rækja. Nokkra slíka farma keypti Hólanes hf til að vinna í frystihúsinu eða rækjuvinnslunni eftir því sem við átti. Þegar þessi skip komu í höfn upphófust oft mikil viðskipti við áhöfnina en þeir voru sólgnir í að kaupa gamla bíla, sérstaklega gamlar Lödur. Keyptu þeir umvörpum slík farartæki sem menn voru jafnvel búnir að leggja fyrir löngu síðan. Mátti oft ekki á milli sjá hvorir voru ánægðari með viðskiptin, sjómennirnir eða bíleigendurnir en hvorir tveggju töldu sig gera góða samninga. Bílunum var síðan staflað á dekkið í togaranum og líklega hafa flestir þeirra verið rifnir í varahluti þegar heim til Rússlands var komið. Á myndinni má sjá sex svona bíla, einn um borð, en hinir bíða númerslausir á bryggjunni eftir að vera hífðir um borð.
Fisk Seafood - safn 158

Þrír frumkvöðlar að stofnun Skagstrendings hf 1968 séðir með augum listamannsins Sveinbjörns Blöndal (d.7.4.2010). Fram í stafni situr Karl Berndsen (d.12.2.1995), Guðmundur Lárusson (d.15.10.2002) sér um viðhald á mastrinu og Sveinn Ingólfsson stýrir fleyinu með öðrum fæti.

Fisk Seafood - safn 162
Þessi mynd var tekin af Jóel Kristjánssyni, framkvæmdastjóra Skagstrendings hf, 23. desember 1999 þar sem hann er að ávarpa áhöfn Arnars Hu 1. Tilefnið var að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Myndin var tekin í brúnni á Arnari.
Fisk Seafood - safn 223
Hér er fagnað 10 tonna rækjuholi um borð í Helgu Björg Hu 7. Frá vinstri: Jóhannes Símonsen, Jón Jósefsson og Hjalti Indriðson. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 226
Sambýlisfólkið Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason sjómaður á sjómannadegi á Skagströnd. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 155
Örvar Hu 21 var smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf.. Örvar kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn í apríl 1982 og þá tók fjölmenni á móti skipinu á hafnarbakkanum. Flestir Skagstrendingar áttu hluti í Skagstrendingi hf og því um leið hlut í hinu nýja skipi. Því má leiða rök að því að meirihluti fólksins á myndinni hafi átt í Örvari sem þarna var boðinn velkominn í heimahöfn. Skipið reyndist hið mesta happaskip sem skilaði gríðarlegum verðmætum að landi í formi sjófrystra afurða, sem þá var nýung á Íslandi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 28
Myndin sýnir síldarlöndun og söltun á höfninni á Skagaströnd. Myndin hefur líklega verið tekin 1935 eða 1936. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Ólafur Bernódusson607
Rækjuskipið Mánatindur SU 359 kom til hafnar á Skagaströnd í ágúst 2001 fyrir eigin vélarafli eftir að kviknað hafði í bátnum á miðunum í vondu veðri. Í Morgunblaðinu er viðtal við Ragnar Ingibergsson stýrimann þar sem hann segir m.a.:" Það var óskaplega mikill reykur, það fylltist allt af reyk. Við vorum uppi á dekki þegar brunaboðinn fór í gang og þá var allt orðið fullt af reyk. Við reyndum að slökkva eldinn með slökkvitækjum og kláruðum fimm tæki í þetta. Þegar það dugði ekki fórum við með sjóslöngurnar niður um loftstokkana og fylltum íbúðirnar af sjó. Þá drapst eldurinn en við höfum verið um tvo klukkutíma að slökkva eldinn". Það merkilega við þessa sögu er að skipverjarnir á Mánatindi höfðu nokkrum dögum áður bjargað manni af alelda trillu, Hrönn AK, sem sökk undan skipverjanum þar um borð. Mennirnir á myndinni eru áhafnarmeðlimir á Mánatindi en nöfn þeirra eru óþekkt.
Fisk Seafood - safn 224

Stöku sinnum slæðist hákarl í trollið sem meðafli. Hér eru háseta að skera á magann á einum slíkum til að hleypa innyflunum út og henda þeim í sjóinn. Eins og sjá má á dekkinu er lifur hákarlsins mjög stór, enda var hann veiddur um aldir hennar vegna. Lifrinni var breytt í lýsi sem var verðmæt útflutningsvara og einnig notuð á Íslandi sem ljósmeti á lýsislampa fyrr á öldum. Nú á dögum er hákarl fyrst og fremst veiddur til að kæsa hann og borða en lifrinni oftast hent. Við hákarlinn standa Kristján Alexandersson til vinstri og Ragnar Högnason til hægri. Rúnar Jósefsson stendur utan við rennuna lengst til hægri.. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.

María Magnúsdóttir - safn 062
Það ríkir friðsæld á þessari mynd sem var líklega tekin kringum 1940 - 45. Hún hefur verið tekin nokkurn vegin eins og hún væri tekin niður eftir Mánabrautinni í dag. Árbakkasteinarnir rísa upp úr móskunni, lítill bátur er í fjörunni og annar á floti og ber í steinana.
Héraðsskjalasafn A-Hún 34
Fjöldi síldarskipa í höfninni á Skagaströnd einhverntíma kringum 1936. Ekki er ólíklegt að einhver þessara skipa hafi verið frá Færeyjum því Færeyingar voru duglegir að stunda veiðar á Íslandsmiðum á þessum tíma.
Fisk Seafood - safn 171
Komið að landi eftir langan túr. Sennilega var myndin tekin í desember 1999 og skipið er líklega Arnar Hu 1. Maðurinn í miðið er Sigurjón Ingólfsson og lengst til hægri er Guðmundur Finnbogason? en maðurinn til vinstri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Páll J. Pálsson safn 23
Síld landað úr Húna Hu 1 í september 1963 Siglufirði. Á myndinni eru Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) til vinstri og Páll J. Pálsson til hægri. Mennirnir til hægri eru óþekktir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 084
Gísli Snorrason við rennibekkinn um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 528
Þegar vélin bilar er gott að geta gripið til vöðvaaflsins til að koma sér í land. Á þessari mynd eru mágarnir Hjörtur Guðmundsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri róa í land með bilaðan utanborðsmótor á lítilli skektu í austan kælu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 509
Selvík Hu 2 í höfninni á Skagaströnd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 008
Hólmgeir Kristmundsson við vinnu sína um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 552
Ernst Berndsen (nær) og Gísli Snorrason leika sér á hraðbát í höfninni á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 546
Ólafur Magnússon Hu 54 nýskveraður og flottur í höfninni á Skagaströnd.
Fisk Seafood - safn 236
Birgir Þórbjarnarson stýrimaður og seinna skipstjóri á skipum Skgatrendings hf. Þessi mynd af honum var tekin í hans fyrsta túr sem skipstjóri á Örvari Hu 14 árið 1971. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 140
Þessi mynd var tekin 3. september 1993 í höfninni á Skagaströnd. Við bryggjuna liggur rússneskur? togari SOYANA en farmur hans hefur annað hvort verið frosinn þorskur eða frosin rækja. Nokkra slíka farma keypti Hólanes hf til að vinna í frystihúsinu eða rækjuvinnslunni eftir því sem við átti. Þegar þessi skip komu í höfn upphófust oft mikil viðskipti við áhöfnina en þeir voru sólgnir í að kaupa gamla bíla, sérstaklega gamlar Lödur. Keyptu þeir umvörpum slík farartæki sem menn voru jafnvel búnir að leggja fyrir löngu síðan. Mátti oft ekki á milli sjá hvorir voru ánægðari með viðskiptin, sjómennirnir eða bíleigendurnir en hvorir tveggju töldu sig gera góða samninga. Bílunum var síðan staflað á dekkið í togaranum og líklega hafa flestir þeirra verið rifnir í varahluti þegar heim til Rússlands var komið. Mennirnir á myndinni eru að fylgjast með og e.t.v. hefur einhver þeirra selt verðlaust bílhræ á góðu verði. Frá vinstri: Hafþór Gylfason, óþekktur, Arnar Ólafur Viggósson, óþekktur, Jón Ólafur Sigurjónsson (fjær), óþekktur (nær), Guðjón Hall Sigurbjörnsson og Bjarni Ottósson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 576

Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908-2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um þetta skip: " Ísberg. Þetta var 350 tonna flutningaskip sem keypt var frá Noregi 1983 og var í eigu félagsins Ok h/f en í því átti Skagstrendingur h/f um fjórðungshlut. Skipið sökk í fyrstu ferð sinni en mannbjörg varð". Myndina tók Árni Geir Ingvarsson þegar verið var að lesta skipið í Skagastrandarhöfn fyrir síðustu för þess. Dagblaðið DV sagði frá sjóslysinu á eftirfarandi hátt 2. maí 1983:

"Mannbjörg varð er nýasta skip íslenska kaupskipaflotans, Isberg IS,
sökk eftir árekstur um 70 sjómílur
austur af Grimsby síðdegis á laugardag.

Atburðurinn átti sér stað um
klukkan 4 að íslenskum tíma. Þýskt
flutningaskip, Tilla, keyrði inn í Isberg
á miðju skipi bakborðsmegin. Isberg
fór á hliðina á nokkrum mínútum og
var sokkið eftir tæpa klukkustund.
Skipverjarnir fimm komust í björgunarbát
og var bjargað upp í þýska
skipið, sem var tiltölulega lítið laskað.
Skipverjar voru fluttir til Grimsby og
komu síðan til landsins í nótt.
Skipstjóri á Isberg var Jón Steinar
Árnason. Að hans sögn var mikil þoka
yfir þegar atburðurinn átti sér stað og
skyggni aðeins um 300 metrar. Áreksturinn
gerðist mjög snöggt, en skipstjóri
Isbergs hafði þó séð hvað verða
vildi. „Við vorum byrjaðir að beygja
og reyna að forða okkur og síðan
stoppuðum við og gáfum þokumerki.
Eg prófaði að kalla til þeirra á örbylgjustöð
en það gekk ekkert og næsta
skref var bara að forða sér því skipið
var oltið. Það lagðist á hliðina á 3 til 5
mínútum enda fór þýska skipið alla
leið inn í lest," sagði skipstjórinn, er
DV ræddi við hann við heimkomuna í
nótt.
Isberg er 360 tonna frystiskip sem
var keypt frá Noregi og kom fyrst til
landsins fyrir tíu dögum. Það var
byggt árið 1972 og því 11 ára gamalt.
Eigandi þess var OK h/f á Isafirði.
Þetta var fyrsta f
Árni Geir Ingvarsson - safn 514
Sigurbjörn Björgvinsson, lengst til hægri, býr sig undir að prófa að fara í sjóinn í flot-björgunarbúningi. Í slíkum búningi fljóta menn og á þeim er belti sem nota má til að hífa viðkomandi upp í þyrlu ef þarf. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina er Ragnar Högnason en sá sem hann er að tala við er Axel Jóhann Hallgrímsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 033
Þessi mynd var tekin á dekkinu á Arnari Hu 1. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Hafþór Gylfason, Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014), Guðmundur Guðmundsson og óþekktur. Ef grannt er skoðað sést að þeir félagar hafa nýlokið við að skera hákarl í beitur sem er næst okkur á myndinni.
Fisk Seafood - safn 164

Skipstjórarnir á Arnari Hu 1 Guðjón Guðjónsson (Jonni) og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri baksa hér við að opna kampavínsflöskur til að skála við áhafnir sínar. Myndin var tekin 23. desember 1999 í tilefni þess að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna.Gárungarnir sögðu við þetta tækifæri að þeir félagar væru miklu færari í að fiska en að ná tappa úr kampavínsflösku. Hjá þeim félögum á myndinni er sonur Guðjóns, Kristján Pétur Guðjónsson.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 022
Hér slappa af um borð í togara Skagstrendings hf, þeir Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002) til vinstri og Ernst Berndsen til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 580
Óþekktur bátur (Hu 20) í höfninni á Skagaströnd á friðsælum degi. Ef þú veist hvað báturinn heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 607
M.s. Bakkafoss, skip Eimskipafélags Íslands, er hér í Skagastrandarhöfn á sjómannadaginn 1969. Ísinn fyllir Húnaflóa og hrafl er komið inn í höfnina.
Óþekktur ljósmyndari 380
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi en ártalið er óþekkt. Þegar myndin var tekin voru kappróðrasveitir að gera sig klárar fyrir kappróður en þá var róið frá bryggjunni til vinstri og endað fram af endanum á Skúffugarði. Bátarnir tveir eru óþekktir en gætu verið Auðbjörg og annað hvort Aðalbjörg eða Ásbjörg. Síldarverksmiðjan er eins og hún var upprunalega byggð með færibandi suður úr og þrærnar sem hvort tveggja er horfið í dag. Yfir verksmiðjuna fjær rísa taknarnir tveir upp undir höfðanum. Annar var notaður undir olíu en hinn undir lýsi frá verksmiðjunni. Tankarnir hafa nú (2016)verið rifnir og sama má segja um Kaupfélagshúsið/verslunarstjórahúsið sem sést í bilinu milli verksmiðjunnar sjálfrar og ketilhússins. Auk þessa er höfnin gjörbreytt í dag frá þessari mynd og sama má segja um Hólanesfrystihúsið sem sést yfir þrærnar.
Fisk Seafood - safn 228
Á leið í aðgerð um borð í fyrsta skuttogara Skagstrendings hf, Arnari Hu 1. Frá vinstri: Guðmundur Ólafsson, Ómar Jakobsson, Finnur Kristinsson og Vilhelm Þórarinsson. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 237
Signý Ástmarsdóttir kokkar um borð í einu af skipum Skagstrendings hf, líklega Arnari Hu 1 fyrsta skuttogara félagsins. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 172
Þessi mynd var tekin af Örvari í höfn á Skagaströnd í janúar árið 2000. Þegar hún var tekinn var hann skráður sem Örvar EK 9904 með heimahöfn í Pärnu í Eistlandi. Sjálfsagt hefur honum verið "flaggað út" vegna einhverra reglna úr kvótakerfinu en hann var samt í meirihlutaeigu Skagstrendings hf. .
Fisk Seafood - safn 235
Þessi mynd var líklega tekin um borð í Arnari Hu1, síðutogaranum, sem var fyrsta fiskiskip Skagstrendings hf. Á myndinni eru frá vinstri: Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008), Ómar Jakobsson og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006). Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 230
Um borð í togurum er unnið á vöktum. Þegar þessi mynd var tekin var unnið á 6 tíma vöktum og voru vaktaskipti á matmálstímum. Á myndinni eru að borða, frá vinstri: Jón Helgason, Jón Jósefsson og Gylfi Guðjónsson. Aftan við þá stendur Gunnar J. Jónsson. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 239
Gunnar Þór Gunnarsson var kokkur um borð í Arnari nýja eins og hann var kallaður. Hér er Gunnar við störf sín um borð. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 238
Óskar Þór Kristinsson var einn tryggasti sjómaður Skagstrendings hf um áratuga skeið. Hér er hann um borð í vinnugallanum að bíða eftir að trollið komi úr kafinu. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 163
Þessi mynd var tekin af Adolf H. Berndsen, stjórnarformanni Skagstrendings hf, 23. desember 1999 þar sem hann er að ávarpa áhöfn Arnars Hu 1. Tilefnið var að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Myndin var tekin í brúnni á Arnari.
Fisk Seafood - safn 165

Skipstjórarnir á Arnari Hu 1 Guðjón Guðjónsson (Jonni) og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri skála hér í kampavíni í tilefni þess að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Myndin var tekin 23. desember 1999 og eftir að hafa skálað hvor við annan skálaði öll áhöfnin með þeim félögum. Myndin var tekin í brúnni á Arnari.

Ólafur Bernódusson589
Myndin var tekin kringum 1980 af málaragengi unglinga sem unnu við að mála togarann Arnar Hu 1 (Japans-Arnar) í Skagastrandarhöfn. Þessi fjörmikli hópur vann verkið undir verkstjórn fullorðinna. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Indriðason, Sigurbjörn Kristjánsson, Ingvar Jónsson, óþekktur, Þráinn Bessi Gunnarsson (fjær með húfu), Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Guðmundur Óskarsson (fjær), Arnar Erlingsson, Björn Halbjörnsson, Þórarinn Ingvarsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir (nær), Ingimar Oddsson (í miðið), Arnar Arnarsson (fjærst), Pálína Freyja Harðardóttir, Kristjana Jónsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 193
Síldveiðibátar í vari á Kálfshamarsvík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma snemma á fimmta áratugnum.
María Magnúsdóttir - safn 303
Eitt af skemmtiatriðum á sjómannadegi var að hífa karlmenn í kvenmannsfötum frá borði á Örvari Hu 21. "Konurnar´" fluttu síðan skemmtiatriði á bryggjunni við góðar undirtektir áhorfenda. Meðal "kvennanna" voru Guðmundur Haukur Sigurðsson, Magnús Blöndal og Finnur Kristinsson. Árni Sigurðsson skipstjóri fylgist með og Lárus Ægir Guðmundsson, kynnir dagsins, er við ræðupúltið.
Páll J. Pálsson safn 25
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 sumarið 1964 þegar hann var á síldveiðum. Á myndinni er verið að þurrka upp úr nótinni til að hægt sé að háfa síldina um borð. Karlarnir þurftu að draga netið/nótina inn á höndum til að mynda poka á móti korkateininum sem sést hanga strekktur í bómunni að framan. Síðan var háfnum sökkt í síldarkösina og hann hífður fullur um borð og þar hleypt úr honum. Karlarnir á myndinni eru óþekktir nema Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016)stýrimaður sem er fremstur og næstur honum er Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007). Myndina tók Páll J. Pálsson frá Bakka en hann var háseti á Húna á þessum tíma.
Héraðsskjalasafn A-Hún 57
Í Skagastrandarhöfn. Stóri báturinn er Stígandi Hu 9 en sá næst stærsti er líklega Ósk Hu 33. Trillan með mastrið er óþekkt en trillan til vinstri er sennilega Helga Hu 30. Húsin í baksýn eru, talið frá vinstri: Hafnarhúsið, Gamla smiðjan, Lækjarbakki, slökkvistöðin/vélaverkstæði Karls og Þórarins, Karlsminni, Strandgata 10, Viðvík, Höfðatún og Vík. Húsin sem standa lengra frá sjónum eru útihús og hlöður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1

10
11
12

27
Leita í myndasafninu
Leita