Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Skip og Bátar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Páll J. Pálsson safn 3
Árabátur sem notaður var til að róa til fiskjar frá Bakka í Skagahreppi nú Skagabyggð. Bátinn átti Páll Tómasson bóndi á Bakka 1923 - 1960.
Jón Jónsson 390
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátraskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um þennan bát: "Guðbjörg HU 31. Sigurður Guðmonsson í Þórsmörk keypti þennan bát frá Akranesi um 1950. Þetta var opin trilla, rúmlega 2 tonn að stærð og frambyggð. Björgvin Guðmundsson frá Saurum í Skagahreppi keypti bátinn af Sigurði og lét setja í hann 8 ha. Saab vél og er hún nú í eigu Gunnars Albertssonar. Eðvarð Ingvason og Jón Jónsson keyptu bátinn af Björgvini 1964 og létu setja á hann nýtt stýrishús að aftan en þá ver hægt að standa frammi í barka þegar grásleppuveiðar voru stundaðar. Þeir félagar áttu bátinn í um 20 ár en þá var hann orðinn ónýtur".
Héraðsskjalasafn A-Hún 182
Arnar Hu 1 í heimahöfn í fyrsta sinn 15. október 1973 eftir langa ferð frá Japan þar sem hann var smíðaður. Þennan dag var fögnuður og hátíð í bæ á Skagaströnd. Þetta skip var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf.
Héraðsskjalasafn A-Hún 27
Myndin sýnir síldarlöndun og söltun á höfninni á Skagaströnd. Myndin hefur líklega verið tekin 1935 eða 1936. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 197
Gert að fiski á bryggju sem reist var upp úr 1920 rétt austan við syðsta odda Höfðans, Hólsnefið. Bátakostur Skagstrendinga þessa tíma sést á myndinni.
Hallgrímur Kristmundsson safn029
Ekki er vitað í hvaða skipi þessi mynd var tekin og mennirnir eru óþekktir. Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 032
Hjalti Indriðason líklega um borð í Hafrúnu Hu 12 á netaveiðum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 353
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 og eins og sjá má er Sellgeth inni í miðri ísbreiðunni í leit að selum. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Hallgrímur Kristmundsson safn017
Síldarbátarnir Leifur Eiríksson frá Dalvík og ?? Magnússon frá Hrísey í höfn og hásetarnir á spjalli afturá meðan karlinn tvístígur í stýrishúsinu.
Jósef H Sigurðsson - safn 070
Hjörtur í Vík Hu 11 var gerður út frá Skagaströnd á árunum 1975 -1980 þegar hann var talinn ónýtur og tekinn af skrá. Bátinn áttu bræðurnir Árni og Sigurjón Guðbjartssynir. Untan á Hirti liggur Þröstur sem einnig var í eigu þeirra bræðra um tíma. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Jón Jónsson 396
Halkion VE 27 var keyptur frá Vestmanneyjum til Skagastrandar 1960 og hlaut nafnið Máni Hu 5. Báturinn var dæmdur ónýtur 1965. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægir Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson - safn 700
Það getur verið erfitt að halda sér vakandi á heimstími í góðu veðri eftir langan og erfiðan dag á miðunum. Það fékk eigandi og eini áhafnarmeðlimur Beggu Gk 717 að reyna 23. júlí 2007 þegar hann vaknaði með andfælum við að vera kominn langt upp í fjöru í Vækilvíkinni á Höfðanum. Það var lán í óláni að hann hitti á víkina en keyrði ekki á fullri ferð í klettana sem eru beggja vegna við víkina. Báturinn skemmdist nokkuð við slysið missti stýrið, skrúfan ónýttist og leki kom í ljós í lúkar. Maður slasaðist lítilega en gekk þó þurrum fótum frá bátnum á strandstað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 941
Ms Helgafell I, smíðað 1954. Þessa mynd af Helgafellinu tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma á sjötta ártugnum.<br><br>
Jósef H Sigurðsson - safn 012
Gunnar Reynisson um borð í óþekktum bát.
Árni Geir Ingvarsson - safn 921
Trillubátur á ferð í hvítalogni á Reykjarfirði fram af Kúvíkum en þar átti ljósmyndarinn, Herbert Ólafsson (d.25.4.2007), heima á þeim tíma sem myndin var tekin líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 851
Myndin var tekin aftur eftir trolldekkinu á Arnari Hu 1 skipaskrárnúmer 2173. Þessi Arnar var gerður út af Skagstrendingi hf árin 1993 - 1995 er hann var seldur til Grænlands.
Jósef H Sigurðsson - safn 008
Auðbjörg Hu 6 í höfn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 852
Þetta skip Arnar Hu 1 skipaskrárnúmer 2173 var smíðað fyrir Skagstrending hf í Bergen í Noregi. Skipið kom til heimahafnar rétt fyrir jól 1992 og var eitt glæsilegast skip íslenska flotans á þeim tíma. Skipið var svo selt til Grænlands í október 1995 eftir að mikill kvótaniðurskurður á Íslandi hafi kippt rekstargrundvelli þess í burtu. Keypt var annað ódýrara skip frá Rússlandi sem einnig var skírt Arnar Hu 1 með skipaskrárnúmerið 2265. Það skip var einnig smíðað í Noregi árið 1986.
Hallgrímur Kristmundsson safn007
Miðað við hvernig allt er útatað í hreistri þá er Elsa á síldveiðum. Maðurinn á myndinni er óþekktur en neðst til vinstri sér í háfinn sem síldin var háfuð með um borð úr nótinni. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 950
Myndin er tekin yfir Djúpavík þegar allt var í fullum gangi við síldarbræðslu í verksmiðjunni og margir bátar í höfn. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 738
Reglulega þarf að dæla eða moka sandi af botninum í Skagastrandarhöfn. Sandurinn berst inn í höfnina frá ánum á ströndinni inn með landinu. Á þessari mynd er verið dýpka með því að moka sandi í pramma sem síðan fer með hvert fullfermið á fætur öðru fram fyrir Höfðann þar sem botninn er opnaður og sandinum hleypt niður.
Hallgrímur Kristmundsson safn033
Þessi bátur er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 970
Óþekktur sjómaður um borð í bát sínum. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn028
Því miður eru þessir sjómenn óþekktir þannig að ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá afhugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 904
Hlaðinn síldarbátur á Reykarfirði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Jósef H Sigurðsson - safn 015
Jósep Sigurðsson í matsalnum á einhverju óþekktu skipi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 893
Catalina flugbátur frá Flugfélagi Íslands á Reykjarfirði syðri. Slíkar vélar þóttu hentugar þar sem ekki var búið að búa til flugvelli. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1950 því flugvélin kom til landsins 1947 eða 1948.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 7
Líklega eru þeir á silungsveiðum á Kambi, Ragnar Smári Ingvarsson og óþekktur ræðari. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 946
Síldarlöndun á Djúpavík úr Fróðakletti GK 250. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 922
Trilla full af fólki beygir fyrir bryggjuendann í Djúpavík í blíðviðri. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina einhverntíma kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 934
Fjör um borð í nótabát, harmónikuspil og gaman. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega í Siglufirði?. Mennirnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn039
Maðurinn á myndinni er óþekktur. Hann hefur tyllt sér á kaðalhönk og virðir fyrir sér síldarnótina eða trollið fyrir framan sig. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 225
Guðlax er sjaldséður fiskur á togslóð. Hér hafa þó þrír slíkir slæðst með í trollið. Sjómennirnir eru frá vinstri: Rögnvaldur Ottósson, Axel Gígjar Ásgeirsson, Axel J. Hallgrímsson og Ragnar Högnason. Maðurinn fyrir framan er Hilmar Stefánsson. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Árni Geir Ingvarsson - safn 731
Smári Hf 122 slitnaði upp í höfninni og endaði upp í grjótvörninni í krikanum milli Sægarðs og Ásgarðs. Báturinn brotnaði eitthvað þannig að leki kom að honum. Hann var síðan tekinn á land og gerður sjóklár á ný.
Páll J. Pálsson safn 26
Húni Hu 1 á netaveiðum 1963. Karlarnir eru að draga færið á einni trossunni. Mennirnir eru, frá vinstri: Gunnlaugur Árnason stýrimaður, Þorleifur Þórarinsson, sem dregur af koppnum, og bræðurnir Steingrímur Einarsson og Pálmi Einarsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 181
Á myndinni er Guðmundur Þór Hu 17 að verða fullsmíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1971. Guðmundur Þór var annar tveggja fyrstu bátanna sem smíðaðir voru í stöðinni. Hinn var Ásdís Hu 10. Guðmundur Þór er enn gerður út frá Skagaströnd undir nafninu Dagrún St 12 síðan árið 1975 er núverandi eigendur keyptu bátinn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 55
Færeyskir sjómenn á höfninni á Skagaströnd 1938. Algengt var að Færeyskar duggur kæmu í höfn á Skagaströnd allt fram undir 1960.
Jósef H Sigurðsson - safn 010
Mennirnir tveir um borð í þessum óþekkta bát eru að bíða meðan færið er dregið. Axel Gígjar Ásgeirsson til vinstri og ?Hjalti Indriðason? til hægri. Ekki er vitað hver báturinn er né hvenær myndin var tekin.
Hallgrímur Kristmundsson safn002
Þessi mynd var tekin um borð í Leifi Eiríkssyni frá Dalvík. Tveir karlar eru uppi á stýrishúsinu í bassaskýlinu að reyna að koma auga á síldarvöðu til að kasta á. Karlarnir í ganginum hægra megin eru að súpa kaffi í rólegheitunum meðan leitað er. Þessi háttur var hafður á við síldarleit áður en ný og fullkomin síldarleitartæki komu um borð í bátana. Þá varð að treysta á að síldin væri að vaða til að hægt væri að finna hana. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og sjómenirnir eru óþekktir en miðað við fjöllin í baksýn hefur hún verið tekin skammt norð vestur af Skagaströnd.
Hallgrímur Kristmundsson safn022
Óþekktur línu bátur í höfn á Skagaströnd. Innbærinn á Skagaströnd í bakgrunninum.Myndin hefur sennilega verið tekin einhverntíma upp úr 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 927
Strandferðaskipið ms Skjaldbreið kemur til hafnar á Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). <br>Ms Skjaldbreið var lengi í strandsiglingum á Íslandi en 16. janúar 1962 strandaði skipið á skeri nálægt Bjarnarey á Breiðafirði í vonsku veðri. 18 manns voru um borð og komust níu þeirra við illan leik í gúmmíbát sem þá slitnaði frá skipinu og rak burt. Því fólki var bjargað eftir fjóra og hálfan tíma um borð í vélbátinn Sigurfara. Skjaldbreiðin rann fljótlega af skerinu með lestarnar fullar af sjó en skilrúm héldu þannig að hægt var að dæla sjó úr vélarrúm með eigin dælum skipsins. Því var lagt við ankeri á staðnum því ekki þótti óhætt að hreyfa það í svo vondu veðri. 18. janúar fór skipið svo fyrir eigin vélarafli til Stykkishólms í fylgd með varðskipinu Þór. Þar voru lestarnar þéttar til bráðabirgða en síðan fór það til Reykjavíkur í fylgd vaðskipsins. (Heimild: Morgunblaðið 13. og 14. tölublað 17.og 18.janúar 1962)
Hallgrímur Kristmundsson safn009
Ekkert er vitað um þennan ómerkta bát né heldur hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir hvar hún var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugsemd um það.
Páll J. Pálsson safn 24
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 veturinn 1964 þegar hann var á netaveiðum. Við rúlluna þ.e. lengst til vinstri er Gunnlaugur Árnason stýrimaður. Næstur honum er Jónatan Pálsson og bak við hann, með svart hár, sér í MagSveinbjörn Jónsson. Maðurinn með "sixpensarann" er Steingrímur Einarsson og bak við hann bograr Þorleifur Þórarinsson. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) er aftur í ganginum við hliðina á stýrishúsinu að leggja niður netin. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina nær okkur við borðið er Pálmi Einarsson og lengst til hægri, ekki í stakk, er Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003).
Hallgrímur Kristmundsson safn041
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin af fólki að vinna við síldartunnur á bryggjusporði. Líklega er verið að pækla tunnurnar en það fólst í því að bæta saltlegi á tunnurnar eftir að þær voru fylltar, hafði verið lokað og látnar standa í nokkra daga. Til að þetta væri hægt var haft gat - spons - á hlið tunnunnar og trétappi rekinn í. Tunnurnar voru svo geymdar liggjandi á hliðinni til að síður læki úr þeim. Ef þú þekkir hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn015
Hvar var þessi friðsæla mynd tekin? Á henni eru tvö eða þrjú handsnúin spil, tvö hús og tveir bátar. Ef þú veist hvar þetta var vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 730
Smári Hf 122 slitnaði upp í höfninni og endaði upp í grjótvörninni í krikanum milli Sægarðs og Ásgarðs. Báturinn brotnaði eitthvað þannig að leki kom að honum. Hann var síðan tekinn á land og gerður sjóklár á ný.
Árni Geir Ingvarsson - safn 878
Maðurinn uppi á stýrishúsinu er að skyggnast um eftir síldartorfum. Ekki er vitað hver maðurinn er en báturinn er Sæljón Re 317 sem var mikið aflaskip, varð meðal annars aflahæst síldarskipa 1957. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007), sem tók þessa mynd, var lengi háseti á Sæljóninu þar með talið aflaárið 1957. Yfirleitt voru menn inni í skýlinu sem er aftan við manninn - bassaskýlinu - þegar þeir voru á útkikki eftir síldarvöðum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn057
Feðgarnir Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) í bátnum og Adolf H. Berndsen á steininum að snúast við silungsveiði í sjónum við Höfðann. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið upp úr 1970.
Jón Jónsson 386
Mánavör hf byggði marga stóra og smáa plastbáta. Til þess þarf að hafa mót til að steypa skrokkinn. Á myndinni er eitt af þessum mótum sem Mánavör notaði til að steypa 13 tonna báta.
Jósef H Sigurðsson - safn 013
Jósep Sigurðsson slakar á í sólinni um borð í óþekktum ísfiskstogara.
Hallgrímur Kristmundsson safn031
Óþekktur síldarbátur á fullu stími. Ef þú þekkir bátinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 003
Skipsfélagarnir og vinirnir Jósep Sigurðsson til vinstri og Hjalti Hólmar Indriðason (d.17.11.2020) til hægri um borð í einhverjum bát sem þeir voru hásetar á.
Ólafur Bernódusson670
Húnabjörg kemur úr útkalli í mars 2008. Tilefnið var að rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson fékk gamalt tundurdufl í trollið og fékk Húnabjörgina sem fylgdarskip til hafnar. Starfsmaður Landhelgisgæslunnar kom svo á staðinn og eyddi duflinu á afviknum stað. Mennirnir á Húnabjörginni eru, uppi í brú: Ágúst Ómarsson gulklæddur og Bjarni Ottósson í rauðri peysu. Framan við brúna eru frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Reynir Lýðsson, Guðmundur Jón Björnsson og Stefán Sveinsson.
Jósef H Sigurðsson - safn 007
Jósep Sigurðsson við stýrið á óþekktum bát (? Hafrún Hu 12?).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 052
Húni Hu 1 í höfn á Skagaströnd með fullfermi af síld sem bíður löndunar. Kassinn á söltunarplaninu er fullur af síld en síldarstúlkurnar eru ekki komnar enda enn verið að undirbúa söltunina. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Hallgrímur Kristmundsson safn032
Báturinn á myndinni er óþekktur. Verið er að taka nótina því nótabáturinn liggur við hlið bátsins en inn í hann var nótin dregin, á handafli, og síðan var háfað úr nótinni um borð í bátinn sjálfan. Ef þú veist hvaða bátur þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson655
Semning í stafalogni við Skagastrandarhöfn 13.ágúst 2010 þegar yfir stóðu Kántrýdagar í bænum.
Hallgrímur Kristmundsson safn030
Sjómennska er ekki bara eintómt puð og pus. Á þessari mynd taka menn sig saman og spila á gítara og syngja sitjandi á síldarnótinni aftur á í skipi sínu. Einn getur þó ekki stillt sig um að taka í kríulöpp á meðan. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn034
Óþekktur bátur á síldveiðum. Ef þú þekkir bátinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn038
Karlarnir á myndinni eru að vinna við síldarnætur um borð í tveimur nótabátum. Svona bátar voru dregnir á eftir síldarbátum og þegar til veiðanna kom þá var nótin dregin um borð í þessa báta til að þrengja að síldinni í nótinni. Þaðan var hún svo háfuð um borð í síldarbátinn sjálfan. Eins og sjá má er komið spil um borð í bátinn nær okkur en þar sem engin vél var í nótabátunum var spilið handknúið og notað til að snurpa þ.e. loka nótinni að neðan til að búa til poka úr henni.
1
…
11
12
13
…
27
Leita í myndasafninu
Leita