Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Skip og Bátar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Dagný Sigmarsdóttir - safn 050
Kappróður á sjómannadegi. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1960. Í þetta skipti var róið frá bryggjunni sem fólkið stendur á og austur fyrir Skúffugarðinn. Bátarnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 169
Rækjubáturinn Húni Hu 62 til vinstri og Hafrún Hu 12 til hægri í Skagastrandarhöfn. Húni átti heimahöfn á Blönduósi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 947
Þrímastra skútan Kapilana í höfn á Djúpavík. Herbert Ólafssson (d.25.4.2007) tók myndina sennilega einhverntíma á fimmta áratugnum. Kapilana var sennilega færeyskur kútter sem voru tiltölulega algengir við Ísland á þessum árum.
Ólafur Bernódusson 694
21. maí 2013 kom Húni II EA 740 í heimsókn til sinnar fyrri heimahafnar á Skagaströnd. Fólki var boðið að koma um borð að skoða skipið og margir nýttu sér það. Á myndinni er fólk eitthvað að spá í bátinn af bryggjunni. Frá vinstri: Steindór R. Haraldsson (nær), Sævar R. Hallgrímsson (fjær), Árni Ólafur Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, óþekktur og Sigurjón Ástmarsson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 003
Myndin var tekin í borðsalnum á Arnari Hu 1 líklega snemma á áttunda áratugnum. Frá vinstri: Matthías Guðmundsson, Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017) og Sævar Hallgrímsson.
Ingibergur Guðmundsson 150
Skemmtisigling á sjómannadegi nýtur alltaf mikilla vinsælda. Hér kemur Dagrún St 12 úr einni slíkri með fullan bát af glöðu fólki árið 2000.
Jón Jónsson 500
Myndin var tekin sumarið 1971 af tveim fyrstu bátunum sem smíðaðir voru í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Fremri báturinn er Ásdís Hu 10, sem sökk út af Þorlákshöfn 3. desember 1971. Aftari báturinn er Guðmundur Þór Hu 17 sem seinna varð Dagrún St 12. Eins og sjá má hefur hafnarsvæðið breyst mikið síðan þessi mynd var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 106
Um borð í Sæljóni Re 317 haustið 1960. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) stendur í dyrunum en Kolbeinn ? er í glugganum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 148
Ánægðir með góðan afla. Bæðurnir Ragnar Smári Ingvarsson til vinstri og Þórarinn Brynjar Ingvarsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 50
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með þáverandi togara Skagstrendings hf í baksýn, ísfiskstogarinn Arnar Hu 1 til vinstri og frystitogarinn Örvar Hu 21 til hægri. Báðir voru þeir happa- og aflaskip.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 149
Örvar Hu 21 kemur í höfn á Skagaströnd úr túr í austan garra. Örvar reyndist Skagstrendingi hf mikið happaskip og tekjulind enda yfirleitt úrvals og metnaðarfull áhöfn um borð.
Ingibergur Guðmundsson 233
Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) pikkar upp fisk af dekkinu á Helgu Björgu Hu 7 í kar við löndun í Skagastrandarhöfn. Helga Björg var í eigu útgerðarfélagsins Björg sf en það félag áttu saman um árabil þeir Hallgrímur, Gylfi Sigurðsson og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) og voru þeir saman á Helgu Björgu. Hallgrímur var vélstórinn í hópnum, Gylfi stýrimaður og Jón Ólafur skipstjóri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 198
Víðir Gk 510 fullur af fólki, líklega á Reykjarfirði syðri.
Jón Jónsson 502
Litli báturinn á myndinni er óþekktur en nær honum er Arnar Hu 1 sem liggur utan á Örvari Hu 14. Báðir stóru bátarnir voru togbátar í eigu Skagstrendings hf. Arnar kom til Skagastrandar í janúar 1969 og var seldur aftur 1972. Örvar kom í lok desember 1970 og var svo seldur í maí 1974.(heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson) Myndin var tekin sumarið 1971. Ef þú þekkir litla bátinn á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 011
Ólafur Ingibjörnsson hífir um borð í Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin kringum 1974.
Ingibergur Guðmundsson 251
Halldór Gunnar Ólafsson um borð í rækjubát að vinna við löndun á rækju sumarið 1989.
Ólafur Bernódusson 693
Hafþór Gylfason um borð í Öldu Hu 112 býr sig undir að landa eftir góðan línuróður. Myndin var tekin í mars 2013.
Ingibergur Guðmundsson 174
Myndin var tekin á sjómannadaginn 1993. Sjaldan hafa verið svo mörg stór skip og bátar í höfninni á sama tíma.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 001
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1974 um borð í Arnari Hu 1. Birgir Þórbjarnarson stýrimaður og skipstjóri situr í stólnum en í baksýn er Árni Ólafur Sigurðsson sem seinna varð farsæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf.
Helga Berndsen 058
Guðrún Einarsdóttir á Karlsskála með splunkunýtt reiðhjól. Í baksýn eru trillubátar Skagstrendinga í fjörunni neðan við Læk en þar voru þær gjarnan geymdar yfir veturinn þegar veður voru vályndi og ekki var róið. Myndin var líklega tekin einhventíma kringum 1965.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 009
Magnús Sigurðsson vélstjóri mundar logsuðutækin um borð í Arnari Hu1. Myndin var líklega tekin kringum 1974.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 060
Trollið tekið um borð í Hólmadrang St 70. Bobbingalengjan er að koma úr kafinu og karlarnir að gera sig klára til að hífa belginn og pokann inn. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 064
Myndin var tekin í brúnni á Hólmadrang St 70. Til hægri er Magni Kristjánsson skipstjóri. Hinn maðurinn er óþekktur
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 253
Bogga í Vík Hu 6 sjósett 9. mars 2011. Um borð er eigandinn Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018).
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 061
Um borð í Hólmadrang St 70 var fyrsta skrefið á vinnslulínunni að gera að fiskinum áður en hann fór áfram á línunni - hausun- flökun - snyrting - pökkun og frysting. Maðurinn næst okkur er Axel Jónsson frá Skálteigi í Norðfjarðarsveit. Hann var í áhöfn Hólmadrangs meðan Magni Kristjánsson frá Norðfirði var skipstjóri á Hólmadrangi. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 171
Á myndinni er verið að draga þorskanet skammt fram af Skagaströnd. Líklega var myndin tekin um borð í Vísi Hu 10 kringum 1962. Áhöfnin í þessum róðri hefur verið frekar óvenjuleg því á myndinni má sjá þrjá sem fóru með sem gestir. Á myndinni eru frá vinstri: óþekktur (?Stefán Stefánsson?(d.2.1.1988)), Áslaug Hafsteinsdóttir, Jón Stefánsson (d.3.8.1991), Sigurður Kristinsson, Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) (fjær), Sigurður Árnason (d.26.3.2013) (nær) og Jón Gunnar Jósefsson. <br>Á þessum tíma var Vísir Hu 10 í eigu bræðranna, Jóns, Jósefs og Stefáns Stefánssona og Sigurðar Árnasonar.
Árni Geir Ingvarsson 2 34
Stefán Jósefsson útgerðarmaður og skipstjóri um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni HU 54 í Skagastrandarhöfn.
Ólafur Bernódusson 686
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu. Á þessari mynd er björgunarskipið Húnabjörg að skutla gæslumönnunum um borð í Bjarna fram af Höfðanu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 244
Dagrún Hu 121 er gerð út til netaveiða meira og minna allt árið. Lengi var Lýður Hallbertsson maðurinn í brúnni en synir hans, einkum Eiríkur Lýðsson, voru með honum til sjós. Þegar þessi mynd var tekin 19. ágúst 2011 er Lýður kominn í land og sestur á bryggjupollann en Eiríkur tekinn við í brúnni með syni sína með sér á sjónum. Á myndinni eru þeir feðgar Lýður og Eiríkur að gera klárt fyrir næsta róður.
Ólafur Bernódusson743
Í lok júlí 2013 strandaði Sædís Bára Gk 88 á einu af djúpskerjunum framan við Árbakkastein. Báturinn var að koma úr línuróðri og var talið að sá sem var sið stýrið hefði dottað og lenti Sædís Bára á skerinu. Báturinn skemmdist lítið og enginn meiddist. Hann var svo dreginn af strandstað á næsta flóði.
Hafliði Óskarsson 3
Á myndinni eru áhafnir Örvars Hu 21 og Ólafs Jónssonar Gk 404 frá Sandgerði á fyrirlestri um borð í skólaskipinu Sæbjörgu í mars 1990. Frá vinstri eru: Sigurbjörn Ingólfsson, Birgir Þórbjarnarson, Guðjón Guðjónsson, sjö óþekktir, Hafþór Gylfason og óþekktur.
Guðrún Soffía Pétursdóttir -safn113
Arnar Hu 1 í Skagastrandarhöfn. Arnar Hu 1 var fyrsta togskip Skagstrendings hf sem var stofnað 1968 og var keyptur til félagsins í janúar 1969. Frá Skagaströnd var hann gerður út til ársins 1972. Arnar var smíðaður í Harstad í Noregi 1964 og var 184 brl. með 600 hestafla Wichmann vél. 1973 var hann svo seldur til Þorlákshafnar en þaðan til Svíþjóðar 1988. Arnar endaði svo ævina í niðurrifi í Danmörku 1999. (Heimild:"Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 103
Sæljón Re 317 í slipp. Skipið var smíðaða í Danmörku 1955. Dæmdur ónýtur 1974 en endurbyggður 1979. Sökk 5. október 1988 út af Siglunesi.Heimild:http://emilpall.123.is/blog/2010/08/25/472602/)<br>Þrír menn vor um borð en þeir björguðust yfir í annan bát, Bjarma Ea, sem líka var á rækjuveiðum á svipuðum slóðum. (Heimild: Morgunblaðið 6.10.1988)
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 114
Á myndinni liggur skip við hafnargarðinn eða hafskipabryggjuna sem kölluð var. Ef grannt er skoðað má sjá að fremsti hluti bryggjunnar hallast til vesturs. Það er vegna þess að karið sem myndar garðinn seig eftir að búið var að koma því fyrir. Kraninn sem sést lengst til vinstri var löndunarkrani fyrir síldarverksmiðjuna. Hafnargarðurinn hefur nú verið varinn með stórgrýti og þjónar ekki lengur sem viðlegukantur heldur sem brimvörn fyrir innri höfnina. Löndunarkraninn er löngu horfinn. Skipið á myndinni er M.s. Tungufoss I.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 168
Dagrún St 12 var smíðuð í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf 1971 en hét þá Guðmundur Þór Hu 17.
Adolf H Berndsen - safn 091
Á myndinni er Helga Jóhannesdóttir nýbúin að gefa nýsmíðinni Arnari Hu 1 nafn í Noregi við afhendingu skipsins til Skagstrendings hf í desember 1992.
Ólafur Bernódusson 699
21. maí 2013 kom Húni II EA 740 í heimsókn til sinnar fyrri heimahafnar á Skagaströnd. Fólki var boðið að koma um borð að skoða skipið og margir nýttu sér það. Á myndinni er Gunnar Albertsson að skoða gamlar slóðir því hann var vélstjóri á Húna II í nokkur ár meðan hann var gerður út frá Skagaströnd.
Ingibergur Guðmundsson 301
Guðmundur J. Björnsson býr sig undir að leggja grásleppunet á bát sínum vorið 1987. Maðurinn á bryggjukantinum er óþekktur.
Jón Jónsson 498
Sjósetning á fyrsta bátnum sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf sumarið 1971. Báturinn hét Ásdís Hu 10 smíðaður úr eik 21 brl. með 185 ha Kelvin Dorman vél. Eigendur voru Elvar Valdimarsson og Guðbjörn Hallgrímsson. Báturinn sökk út af Þorlákshöfn 3. desember 1971 en mannbjörg varð. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Adolf H Berndsen - safn045
Þessi mynd var tekin utan af sjó og sýnir skipafjölda á legunni framan við Skagaströnd einhverntíma kringum 1940. Fjöldi skipa er á legunni því höfnin er full af skipum. Eyjan sem sést á myndinni er Spákonufellsey og garðurinn lengst til vinstri er sá sem byggður var á uppfyllingu frá landi út í eyjuna. Stóra húsið vinstra megin við eyjuna er Hafnarhúsið, sem var byggt á höfninni 1935 en síðan flutt á núverandi stað 1944 eða 1945. Ef grannt er skoðað má sjá uppslátt hægra megin við eyjuna en þar er verið að steypa vegg, sem enn stendur, vestan við höfnina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 46
Helga Björg Hu 7 lengst til vinstri , Ólafur Magnússon Hu 54 og svo sést í Ísbergið Ís lengst til hægri. Helgu Björgu gerðu út félagarnir Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013), Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) og Gylfi Sigurðsson. Ólafur Magnússon var einn af mörgum bátum með því nafni sem Stefán Jósefsson hefur átt og gert út. Ísbergið var í eigu fyrirtækisins OK en stærsti hluthafinn í því var Skagstrendingur hf. Það var þó ekki lengi í eigu fyrirtækisins því einungis mánuði eftir að það var keypt sökk það 70 mílur austur af Grimsby eftir að þýskt skip keyrði á það í mikilli þoku. Allir um borð björguðust um borð í þýska skipið. Myndin var tekin í lok apríl 1983.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 062
Myndin var tekin í brúnni á Hólmadrang St 70. Maðurinn lengst til hægri er Magni Kristjánsson skipstjóri frá Neskaupstað sem var skipstjóri á Hólmadrang nýjum. Hinir mennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 201
Líklega er þetta Auðbjörg Hu 6 í höfn á Skagaströnd. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Í baksýn er síldarfæribandið sem flutti síld frá löndunarkrananum, sem var til vinstri, upp í verksmiðuna, sem var til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 075
Um borð í Ósk Hu 33 sem var í eigu Stefáns Stefánssonar (d.2.1.1988) frá Kambakoti. Á myndinni er Stefán að skera grásleppu og safna hrognunum í dalla. Í áhöfn Óskar voru þrír menn. Tveir fóru á skektunum til að vitja um gráslepputrossurnar og lönduðu síðan aflanum um borð í Óskina þar sem Stefán skar grásleppuna og dró skektuna að næstu trossu.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 005
Högni Jensson á kunnuglegum slóðum sem kokkur um borð í Arnari Hu1. Myndin var líklega tekin snemma á áttunda áratugnum.
Jón Jónsson 505
Sjómannadagur 1971. Á myndinni sýna félagar úr björgunarsveit Slysavarnafélagsins á Skagaströnd björgun með fluglínutækjum. Þarna er verið að draga mann í land á Litlu bryggjuna í björgunarstól af bát sem lá úti í höfninni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 181
Unnið við jarðvegskjarna í nýjum viðlegukanti í höfninni á Skagaströnd sumarið 1990. Garðurinn hlaut nafnið Sægarður er hann var fullbúinn.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 006
Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017) skipstjóri í brúnni á Örvari Hu 14 eða Arnari Hu 1 en báðum þeim skipum stjórnaði hann með frábærum árangri.
Ingibergur Guðmundsson 234
Gylfi Sigurðsson pikkar upp fisk af dekkinu á Helgu Björgu Hu 7 í kar við löndun í Skagastrandarhöfn. Helga Björg var í eigu útgerðarfélagsins Björg sf en það félag áttu saman um árabil þeir Gylfi, Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998), og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) og voru þeir saman á Helgu Björgu. Gylfi var munstraður sem stýrimaður, Hallgrímur var vélstórinn í hópnum og Jón Ólafur skipstjóri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 691
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir um borð í Öldunni Hu 112 á leið í afmælisveislu í Reykjafirði ásamt fleira fólki frá Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 210 - Copy
Myndin var tekin 2. nóvember 2012 af bátum við Skúffugarðinn. Eigendur báta eru gjarnan á varðbergi þegar veður er eins og sést á myndinni og moka snjónum úr þeim áður en yfirvigtin verður of mikil.
Jón Jónsson 499
Sjósetning á fyrsta bátnum sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf sumarið 1971. Á myndinni er báturinn í sleðanum utan við stöðina en eftir er að renna honum á sjóinn. Báturinn hét Ásdís Hu 10 smíðaður úr eik, 21 brl. með 185 ha Kelvin Dorman vél. Eigendur voru Elvar Valdimarsson og Guðbjörn Hallgrímsson. Báturinn sökk út af Þorlákshöfn 3. desember 1971 en mannbjörg varð. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 263
Skyndilegur leki kom að þessum bát, Smyrill SH 29, í róðri í byrjun júlí 2011. Báturinn var umsvifalaust hífður upp og í ljós kom óútskýrð sprunga á skrokknum. Gert var við bátinn og hann hélt áfram róðrum innan fárra daga.
Helga Berndsen 029
Feðgarnir Björn Sigurðsson og Sigurður Björnsson smíðuðu nokkra báta í húsnæðinu sem sést á þessari mynd. Einkum voru það skektur sem þeir smíðuðu en einnig nokkrar trillur. Á myndinni er ein af þeim fyrstu ásamt kaupendunum og bátasmiðnum. Frá vinstri: kaupendurnir Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) og Helga Berndsen, Guðmunda Jónsdóttir, Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) bátasmiður, Guðrún Einarsdóttir og Haraldur Jónsson. Myndin var líklega tekin kringum 1975.
Ólafur Bernódusson 690
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu.Á þessari mynd er duflið komið á kerru aftan í björgunarsveitarbílnum og er á leiðinna á eyðingarstað. Tunnan fremst á kerrunni inniheldur sprengiefnið. Bjarni er strax að leggja úr höfn aftur.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 058
Unnið við snyrtingu á vinnslulínunni um borð í Örvari Hu 21. Sjómennirnir eru frá vinstri: Sævar Hallgrímsson, Ragnar Högnason og óþekktur maður.
Ingibergur Guðmundsson 289
Á myndinni er verið að skipta um planka í Auðbjörgu Hu 6 í dráttarbrautinni á Skagaströnd. Fjærst okkur á myndinni er Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) skipasmiður svo er óþekktur maður en næst okkur er Gunnar Þór Gunnarsson. Myndin var tekin í mars 1989.
Ólafur Bernódusson 728
Bogga í Vík Hu 6 tekin á land eftir óhapp sem laskaði skrúfu og stýri bátsins. Myndin var tekin í kalsa veðri 29. mars 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 113
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 sumarið 1968. Báturinn var á færum og líklega hafa verið fimm karlar um borð. Eins og sjá má voru rúllurnar handsnúnar sem gat verið erfitt ef fiskað var á miklu dýpi og lengi staðið við. Hver maður veiddi í sinn stamp, sem sjást á myndinni, og voru fiskarnir taldir frá hverjum og einum í lestina. Þetta var gert því hlutaskiptin voru þannig að hásetinn fékk þriðja hvern fisk í sinn hlut en útgerðin hina tvo. Þannig uppskáru menn mismikið eftir því hve fisknir þeir voru.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 012
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1, líklega kringum 1974. Á henni vinna við trollið Ólafur Ingibjörnsson til vinstri og Guðjón Guðjónsson (Jonni) til hægri. Báðir urðu þeir seinna stýrimenn og skipstjórar á togurum.
1
…
13
14
15
…
27
Leita í myndasafninu
Leita