Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Skip og Bátar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 063
Pokarnir koma um borð í Hólmadrang ST 70 með sæmilegan afla. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 292
Í apríl 1989 varð stórbruni hjá bátasmiðjunni Mark hf á Vallarbraut. Húsið brann til grunna og bátar sem voru í smíðum brunnu líka eins og sést á myndinni. Húsið var stálgrindahús en stálbitarnir undust upp eins og pípuhreinsarar í hitanum frá eldinum.
Steinþór Karlsson 035
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1. Tveir hásetar eru að setja stroffu á belginn þegar verið er að taka trollið. Annar toghlerinn sést til vinstri með tveimur "gluggum".
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 010
Skipsfélagarnir Finnur Kristinsson til vinstri og Kári Lárusson til hægri um borð í Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin kringum 1974. Maðurinn í baksýn er óþekktur.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 037
Um árabil var það algeng sjón á sumrin að sjá báta koma með dauðar hrefnur í eftirdragi til hafnar á Skagaströnd. Hrefnurnar voru síðan hífðar upp á bryggju og skornar þar eftir kúnstarinnar reglum. Beinagrindin og innyflin voru síðan sett um borð aftur og þeim fargað í sjóinn í Húnaflóanum. Þessi mynd er þó óvenjuleg að því leiti að á henni eru fjórar hrefnur á bryggjunni í einu. Líklega eru þær afli bátsins Sigurbjargar St 55 sem sér í til vinstri. Hrefnuveiðibátarnir fengu úthlutað kvóta þannig að veiðarnar voru ekki frjálsar auk þess sem fjöldi báta, sem máttu stunda veiðarnar, var takmarkaður. Hrefnur geta orði allt að 14 tonn að þyngd og þær lifa venjulega 30 - 50 ár en geta orðið 60 ára. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega var það kringum 1985.
Ólafur Bernódusson741
Sjávarlíftæknifyrirtækið BioPol á Skagaströnd vaktar lífríkið í Húnaflóa. Meðal þess sem starfsmenn þess fylgjast með er þörungablómi í grennd við Skagaströnd. Sýni eru tekin vikulega frá vori fram á haust til að finna út þörungamagn á mismunandi dýpi og hiti og selta mæld og skráð. Á myndinni eru Karen Zech líffræðingur frá BioPol og Ólafur Bernódusson trillueigandi að skrá einhverja niðurstöðu mælinga um borð í Benna Ólafs Hu. Myndin var tekin sumarið 2014.
Steinþór Karlsson 027
Bæring Skarphéðinsson mokar karfa um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Maðurinn til hægri er óþekktur.
Steinþór Karlsson 031
Víðir Jóhannesson gengur á trollinu fullu af karfa og undirbýr að losa úr pokanum niður á vinnsludekkið. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Helga Berndsen 102
Í stýrishúsinu stendur Ernst Berndsen (d.21.8.1983) eigandi Litla Guls, eins og báturinn var kallaður. Framan við húsið sitja frá vinstri: Pálína Árnadóttir (d.?), Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991), Anný Jóhannsdóttir (d.?), Unnur Björnsdóttir (d. 14.12.1990) og Anna H. Aspar (d.1.9.1999). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1950. Myndina tók Helga Berndsen.
Steinþór Karlsson 020
Greinileg hafa þeir hitt á það í þessu hali á karfaveiðunum sumarið 1999 á Arnari Hu 1. Aflinn í trollinu á myndinni eru einhverjir tugir tonna. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Steinþór Karlsson 026
Víðir Jóhannesson háseti um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Steinþór Karlsson 010
Þessi mynd af Gunnari Reynissyni við störf sín sem kokkur um borð í Arnari Hu 1 var tekin sumarið 1999.
Helga Berndsen 063
Hér koma þau að bryggju í blíðu veðri sumarið 1995, líklega eftir að hafa vitjað um silunganet, Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) úr Karlsskála og Helga Sigríður Ívarsdóttir afastelpan hans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 214 - Copy
Myndin var tekin um miðjan júlí 2012 þar sem karlarnir eru að spjalla. Þeir eru frá vinstri: Sigurjón Ingólfsson, Sigurður Björnsson, Gísli Snorrason og Hjörtur Guðbjartsson. Gísli á bátinn á myndinni en Sigurður koma að smíði hans með föður sínum. Hjörtur og Sigurjón vinna með Gísla á Vélaverkstæði Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1107
Bjarni Helgason (d. 30.12.1983) kemur úr grásleppuróðri með sel í farteskinu. Bjarni var löngum kenndur við bát sinn og kallaður Bjarni á Stíganda. Eftir að hann seldi Stíganda Hu 9 gerði hann út á grásleppu á minni bátum, fyrst á Blíðfara Hu 17 og síðan á trillunni Albert. Báturinn sem Bjarni er í á myndinni er líklega Blíðfari. Þeir sem eru að aðstoða hann við að landa selnum eru, um borð í trillunni: sonur hans Helgi Bjarnason (d.1.3.2007) næstur okkur, þá Kristmundur Ingibjörnsson í miðið og annar sonur Bjarna, Skúli Bjarnason lengst frá okkur. Um borð í stóra bátnum (líklega Stíganda Hu 9) er Guðmundur J. Björnsson og óþekktur. Myndina tók Þórarinn Björnsson (d.24.5.1985) líklega kringum 1965.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1097
Frændurnir Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson til hægri um borð í Hafrúnu Hu 12 sem Árni átti og gerði út í félagi við bróður sinn Sigurjón Guðbjartsson, föður Jóhanns. Myndin var tekin 23. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 208
Þessi mynd var tekin 18. september 2012. Páll Jóhannesson til vinstri er að ganga frá bátnum sínum fyrir veturinn og spjalla við Guðmund Jón Björnsson í leiðinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1171
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970. Bryggjan sem bátarnir liggja við var kölluð Litla bryggja og hún hallaði fram, sem var algengt með bryggjur á þeim tíma sem hún var gerð, til að auðvelda löndun úr bátum sem voru misjafnir á stærð. Báturinn til hægri er Sigurður Jónsson Hu 18, og sá til vinstri er Blíðfari Hu 17 en báturinn í miðjunni er óþekktur. Á myndinni má líka sjá nokkra báta sem geymdir voru í fjörunni til vinstri á myndinni. Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Steinþór Karlsson 028
Jóhannes Heiðmar Indriðason við störf um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1094
Myndin var tekin 17. janúar 2004 eftir að nokkurra daga illviðri slotaði. Mikil ísing og ofankoma varð til þess að tveir bátar sukku í höfninni eins og sjá má og litlu mátti muna með fleiri báta. Bátarnir voru báðir hífðir upp og þeir endurnýjaðir eftir þörfum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1051
Feðgarnir Lýður Hallbertsson og Eiríkur Lýðsson um borð í bát sínum Dagrún Hu 121 í febrúar 2008.
Ólafur Bernódusson954
Róðrarsveit unglinga á sjómannadegi 6. júní 2009. Frá vinstri: Stefán Velemir, Sæþór Ágústsson, Sylvía Hrólfsdóttir, óþekkt stúlka, Sonja Sif Ólafsdóttir, Elías Gunnar Hafþórsson og óþekktur stýrimaður.
Steinþór Karlsson 006
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999 af nokkrum skipverjum að fylgjast með félögum sínum á gúmmíbát á svartfuglaskytteríi. Báturinn sést, ef vel er skoðað, út við sjóndeildarhringinn vinstra megin við miðju. Bæring Skarhéðinsson er lengst til hægri með heyrnartól. Maðurinn í blárri peysu og sjóbuxum er Jóhann Ásgeirsson og maðurinn með bláu húfuna til hægri er Slavko Velemir. Hinir tveir eru óþekktir.
Steinþór Karlsson 038
Á þessari mynd frá sumrinu 1999 um borð í Arnari Hu 1, eru tveir sjómenn að setja stroffu um belginn á trollinu til að ná því inn. Maðurinn til vinstri er líklega Baldur Magnússon en sá til hægri líklega Skúli Tómas Hjartarson. Báðir eru mennirnir bundnir við skipið ef illa skyldi fara.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1154
Myndin var tekin um borð í Frigg Hu 15 líklega snemma á sjötta áratugnum. Karlarnir uppi í bassaskýlinu eru að skyggnast um eftir síld. Maðurinn til hægri er líklega Jón Vilhjálmsson (d.31.8.2011) frá Brandaskarði en hinn maðurinn er óþekktur. Frigg var smíðuð 1916 í Danmörku en endaði lífdagana á báli í Vestmannaeyjum í júlí 1964 þá dæmd ónýt. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson). Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Steinþór Karlsson 008
Arnar Hu 1 í höfn á Reyðarfirði sumarið 1999. Á bryggjunni er Slavko Velemir, sitjandi um borð í gúmmíbátnum er Reynir Lýðsson en standandi þar er Ólafur Ásgeirsson.
Steinþór Karlsson 017
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Þröstur Árnason til vinstri og Jóhannes Heiðmar Indriðason hægra megin tylla sér smástunud á bekkinn í stakkageymslunni áður en þeir fara fram í vinnsluna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1313
Sigurjón Elí Eiríksson niðri í lest á Dagrúnu Hu 121 að landa í lok apríl 2012. Sigurjón hefur getið sér gott orð í bílaíþróttum sem keppandi í "drift".
Steinþór Karlsson 021
Myndin ver tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Á henni er verið að hífa flottrollið á karfamiðum. Mikil flækja af köðlum koma fyrst upp á spiltromluna áður en belgur trollsins kemur með pokanum í endanum.
Steinþór Karlsson 015
Sævar Berg Ólafsson til vinstri og Óskar Þór Kristinsson til hægri bíða á bekknum í stakkageymslunni eftir að fiskur komi niður á vinnsludekkið svo hægt sé að hefja vinnsluna. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Steinþór Karlsson 009
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1 þegar verið var að sjósetja gúmmíbát með óþekktum mönnum sem voru að fara á svartfuglaskytterí á frívaktinni. Eins og sjá má þá heldur Arnar áfram að toga á meðan sjósett er og því er króknum ekki sleppt fyrr en untanborðsmótorinn er kominn í gang.
Ingibergur Guðmundsson 253
Óhapp varð í dráttarbrautinni haustið 1989 þegar búkki undir síðunni á Arnarborginni Hu 11 gaf sig þegar verið var að sjósetja bátinn. Nokkur sjór komst í bátinn við óhappið og á myndinni er verið að dæla úr lestinni. Enginn slasaðist við óhappið og vel gekk að koma bátnum á flot aftur - á réttum kili. Arnarborgin endaði svo ævi sína á áramótabrennu á Skagaströnd 1993. Myndina tók Ingibergur Guðmundsson.
Hafliði Óskarsson 4
Í mars 1990 voru áhafnir Örvars Hu 21 frá Skagaströnd og Ólafs Jónssonar Gk 404 frá Sandgerði í slysavarnaskóla sjómanna um borð í skólaskipinu Sæbjörgu. Á myndinni eru áhafnirnar að svamla í sjónum í flotbúningum og bíða þess að verða hífðir um borð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 345
Björgunarskipið Húnabjörg kemur úr vel heppnuðum leiðangri í blíðu veðri í júlí 2012. Við bryggjuna er björgunarbáturinn, Aðalbjörg sem er í eigu björgunarsveitarinnar Strönd á Skagaströnd. Húnabjörg er í umsjón Strandar en í eigu Landbjargar.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 002
Myndin var tekin í borðsalnum á Arnari Hu 1 líklega einhverntíma um 1974. Gylfi Guðjónsson er til vinstri bak við borðið en Árni Þórhallsson til hægri. Baksvipur Jóns Þorgeirssonar (d.21.1.2017) er fyrir miðju en til hægri, með axlabönd, er Matthías Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 329
Einn af fjölmörgum smábátum sem gerður var út frá Skagaströnd á strandveiðar strandaði við Landsenda á Höfðanum 2. júlí 2012. Engin slys urðu á mönnum og báturinn skemmdist lítið en þurfti þó viðgerð á stýri og skrúfu áður en haldið var til veiða á ný.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 059
Unnið við snyrtingu og pökkun á vinnslulínunni um borð í Örvari Hu 21. Sjómennirnir eru frá vinstri: Þorsteinn Jakobsson, óþekktur, Vilhelm Þórarinsson og Sævar Hallgrímsson.
Hafliði Óskarsson 5
Í mars 1990 voru áhafnir Örvars Hu 21 frá Skagaströnd og Ólafs Jónssonar Gk 404 frá Sandgerði í slysavarnaskóla sjómanna um borð í skólaskipinu Sæbjörgu. Á myndinni eru áhafnirnar í flotgöllum að æfa hífingar úr sjó. Gunnar Reynisson er annar frá vinstri og Gestur Arnarson sá fjórði frá vinstri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 273
Í lok september 2011 var haldin sjóbjörgunaræfing á Skagaströnd þar sem björgunarsveitir af öllu norðurlandi tók þátt. Þessi mynd er af hluta af bátaflotanum sem notaður var í æfingunni utan við hús björgunarsveitarinnar Strönd á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson842
Aðfaranótt 22. ágúst 2006 lentu báturinn á myndinni - Guðbjartur Sh 45 - og björgunarskipið Húnabjörg í árekstri. Guðbjartur skemmdist allmikið eins og sést en Húnabjörg slapp mun betur. Ekki urðu slys á mönnum við óhappið en auk þeirra skemmda sem sjást á myndinni skemdust nokkur af siglingatækjum Guðbjarts.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1256
Eiríkur Lýðsson um borð í Dagrúnu Hu 121 sem hann gerir út og stýrir.
Ólafur Bernódusson760
Bræðurnir Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson til hægri um borð í nýsmíðaðri Öldu Hu 12 í september 2003 sem þeir áttu saman gengum Vík sf. Aldan Hu 12 var ein af mörgum bátum sem þeir bræður áttu saman og gerðu út gegnum tíðina.
Ólafur Bernódusson762
Um borð í Arnari Hu 1 21. apríl 2004. Mennirnir á myndinni voru þá í áhöfn skipsins. Frá vinstri: Arnar Óskarsson með barn, Guðjón Guðjónsson (Jonni), Slavko Velemir og Sigurjón Ingólfsson.
Ólafur Bernódusson823
Sumarið 2010 fylltist höfnin á Skagaströnd skyndilega af sandsíli og Makríl sem gæddi sér á sílunum. Makríllinn var svo gráðugur að hægt var að veiða hann nánast á bera króka. Þetta nýtti Karl Olsen sér og veiddi hvern fiskinn af öðrum í frístundum sínum. Þessi mynd var tekin af Karli 12. júlí með einn á. Makríllinn hvarf svo úr höfninni nokkrum dögum seinna, jafn skyndilega og hann kom.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1172
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970. Bryggjan sem báturinn liggur við var kölluð Litla bryggja og hún hallaði fram, sem var algengt með bryggjur á þeim tíma sem hún var gerð, til að auðvelda löndun úr bátum sem voru misjafnir á stærð. Báturinn á myndinni er Sigurður Jónsson Hu 18 sem Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri teiknaði og smíðaði. Var hann fyrstur af nokkrum bátum sem Björn smíðaði. Dorgararnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1409
Ólafur Bernódusson til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson til hægri að skera hákarl í kar til kæsingar. Myndin var tekin 6. maí 2011 þannig að hákarlinn hefur líklega verið tilbúinn til átu einhverntíma nálægt jólum það ár.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1278
Ari Þórsson vinnur við að logsjóða um borð í Mána ÁR 7 í höfninni á Skagaströnd um miðjan september 2012.
Ólafur Bernódusson 2 713
Feðgarnir Lýður Hallbertsson til vinstri og Eiríkur Lýðsson til hægri komu með góðan afla í maí 2001 á Dagrúnu. Aflinn var fjórir hákarlar í sömu umvitjun en þeir lögðu oft hákarlalóð á vorin um leið og þeir voru á grásleppu. Hákarlarnir voru allir skornir, kæstir og þurrkaðir og síðan etnir með góðri lyst á þorrablótum vítt um landið.
Steinþór Karlsson 033
Hafsteinn Pálsson að hífa eða slaka aftur á Arnari Hu 1 sumarið 1999. Hluti karfaaflans úr síðasta hali er kominn niður í rennuna niður á vinnsludekk en hluti aflans er enn í trollinu á dekkinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 410
Jón Gunnarsson um borð í bát sínum Rán Hu um miðjan ágúst 2013.
Steinþór Karlsson 018
Jóhannes Heiðmar Indriðason gerir sig kláran á vaktaskiptum að fara í vinnsluna á Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Arnar HU 1 - safn 43
Spjallað í matsalnum milli hífa 27. mars 2004. Frá vinstri: Elvar Freyr Aðalsteinsson, Skúli Tómas Hjartarson og Kristján Karlsson.
Steinþór Karlsson 041
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumaruið 1999. Á henni er búið að breiða yfir hluta aflans úr síðasta hali á dekkinu því vinnslan er full. Maðurinn til vinstri er óþekktur en til hægri er Guðfinnur Bjarni Ottósson. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1411
Myndin var tekin í lok maí 2012 þegar Stefán Jósefsson (nær) og Sævar Rafn Hallgrímsson (fjær) voru að koma að bryggju frá því að draga upp grásleppunet í lok vertíðar á bátnum Hafsteini.
Ólafur Bernódusson1007
Sveinn Garðarsson kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi Gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1050
Hallbjörn Björnsson rafverktaki við vinnu upp í mastri á óþekktum bát í lok júlí 2006.
Steinþór Karlsson 030
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Þarna er verið að losa karfa úr pokanum eftir tuga tonna hal. Maðurinn með vidovélina er óþekktur.
Steinþór Karlsson 013
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Á henni eru þrír skipverjar að sjósetja gúmíbát til að fara á svartfuglaskyttetrí. Í bátnur er Bjarni Ottósson við mótorinn en hinir tveir eru óþekktir. Jóhann Ásgeirsson stendur við lunninguna og bendir kranamanninum að láta síga. Aftar eru Bæring Skarphéðinsson til vinstri og Slavko Velemir til hægri. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega senmdu okkur þá athugasemd.
Steinþór Karlsson 024
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari Hu 1 kominn niður á dekk til að fylgjast með þegar risahol var tekið innfyrir. Myndin var tekin sumarið 1999 þegar Arnar var á karfaveiðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1207
Myndin var tekin á Skúffugarðinum 2. nóvember 2012. Þegar viðrar eins og myndin sýnir þurfa eigendur báta að vera vel vakandi og moka úr þeim snjó sem safnast í þá í skafrenningnum fram af bryggjubrúninni. Ef það er ekki gert er hætta á að yfirvigtin á þeim geti lagt þá á hliðina og þar með sökkt þeim.
1
…
14
15
16
…
27
Leita í myndasafninu
Leita