Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Skip og Bátar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Arnar HU 1 - safn 18
Björn Sigmundsson vélstjóri á Arnari HU 1 í stjórnklefanum niður í vélarúmi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Steinþór Karlsson 036
Jóhannes Heiðmar Indriðason að störfum í vinnslunni á Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Steinþór Karlsson 005
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Á henni eru þrír skipverjar að sjósetja gúmíbát til að fara á svartfuglaskyttetrí. Mennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1465
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) um borð í bát sínum Boggu í Vík Hu 6 um miðjan mars 2012. Líklega er hann að fara að setja Boggu á flot til að geta farið á grásleppu það vorið.
Ólafur Bernódusson952
Ólafur Magnússon Hu 54 á sjómannadaginn 6. júní 2009. Báturinn á myndinni er einn af mörgum bátum með þessu nafni og einkennistölu sem Stefán Jósefsson hefur átt.
Arnar HU 1 - safn 66
Þessi undarlegi fiskur, Pálsfiskur (Zenopsis conchifera), kom í trollið hjá Arnari HU 1 á Grindavíkurdýpi í apríl 2008. Pálsfiskur er afar sjaldgæfur við Ísland því hann veiðist mest í Indlandshafi og við Ástralíu. Þó finnst hann í einhverju mæli á strandsvæðum við Atlantshaf. Pálsfiskur getur orðið allt að 80 cm langur en fiskurinn á myndinni var um 30 cm.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 172
Ekki er vitað um tilefni þessarar myndatöku sem hefur líklega verið kringum 1964. Þá var hafskipabryggjan í góðu lagi eins og sjá má og öll mannvirki síldarverksmiðjunnar enn uppi standandi; löndunarkraninn, færibandið, þrærnar og verksmiðjan sjálf. Fólkið á myndinni er Hörður Ragnarsson, barnið er líklega Vilhelm B. Harðarson og konan hjá þeim Aðalbjörg Hafteinsdóttir. Konan í gráu kápunni er óþekkt. Svarti báturinn undir löndunarkrananum er Keilir sem var í eigu Hólaness hf.
Steinþór Karlsson 019
Það er alltaf handagangur í öskjunni þegar trollið er tekið innfyrir. Þessi mynd var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1 þegar hann var á karfaveiðum með flottroll. Karlarnir á myndinni eru óþekktir nema Þráinn Bessi Gunnarsson sem er lengst til vinstri. Ef þú þekkir hina karlana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Steinþór Karlsson 012
Guðmundur Henry Stefánsson við vinnu á vinnsludekkinu í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1423
Eigendur skipa og báta á Skagaströnd bjóða alltaf upp á stutta skemmtisiglingu á sjómannadögum. Á þessari mynd frá sjómannadegi 2. júní 2012 er Hafrún Hu 12 að leggja af stað í slíka siglingu með fullt af fólki.
Arnar HU 1 - safn 2
Finnur Kristinsson yfirvélstjóri á verkstæðinu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1473
Bræðurnir Friðþór Norðkvist Sveinsson til vinstri og Þorlákur Sigurður Sveinsson að gera klárt fyrir grásleppuveiðið á Bergi sterka Hu 17 um miðjan mars 2012 í Skagastrandarhöfn.
Ólafur Bernódusson774
Björgunarsveitarmenn úr Strönd að koma úr leiðangri á björgunarskipinu Húnabjörg á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það árið 2005. Mennirnir eru frá vinstri: Hafþór Gylfason, Gunnar Tryggvi Ómarsson, Guðmundur Henry Stefánsson skipstjóri í þessum leiðangri, Valdimar Björnsson og Eiríkur Lýðsson.
Steinþór Karlsson 039
Þessir þrír eru að gera sig klára í vinnsluna um borð í Arnari Hu1 sumarið 1999. Maðurinn í miðjunni er Jóhann Ásgeirsson og sá til hægri er bróðir hans Gunnar Þröstur Ásgeirsson. Maðurinn til vinstri er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Arnar HU 1 - safn 38
Skúli Tómas Hjartarson, afmælisbarn dagsins, sker fyrstu sneiðina af afmælistertunni sinni um borð í Arnari HU 1 17. maí 2012.
Steinþór Karlsson 037
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1 af þremur óþekktum mönnum að moka mori, sem kom upp með trollinu, í sjóinn.
Arnar HU 1 - safn 42
Þröstur Árnason með mottu um borð í Arnari HU 1 23. janúar 2013.
Ólafur Bernódusson773
Myndin var tekin 12. febrúar 2005 af bát sem strandaði undir Króksbjarginu. Líklegt verður að teljast að maðurinn, sem var einn um borð, hafi sofnað við stýrið og þess vegna lent uppi í fjöru. Maðurinn slapp óslasaður og báturinn skemmdist ótrúlega lítið. Björgunarsveitin Strönd kom bátnum á flot með Húnabjörginni og dró hann heim til Skagastrandar þar sem gert var við bátinn. Í baksýn sér í eyjuna eða Stapann og Fossárfoss, sem er einn af fáum fossum á Íslandi sem fellur beint í sjó.
Arnar HU 1 - safn 54
Þegar vel fiskast flýtur belgurinn á trollinu upp þegar verið er að taka það. Á myndinni er stórt hal á leiðinni upp rennuna og einhver háseti skemmtir sér við að ganga á belgnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Ólafur Bernódusson953
Lýður Hallbertssson á kunnuglegum stað við stýrið á bát sínum Dagrúnu St 12 (Hu 121) í skemmtisiglingu á sjómannadegi 6. júní 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 12
Myndin var líklega tekin á sjómannadegi 1968. Sjóorrustleikur er í gangi á höfninni. Leikurinn fólst í því að tveir ræðarar reru skektum með einum bardagamanni hvor um borð. Síðan áttu bardagamennirnir að reyna að hrinda hvor öðrum í sjóinn með löngum stöngum. Það hlítur að hafa verið kalt að fara í sjóinn því þetta var hafísár eins og sjá má á ísmolanum sem er í baksýn.
Axel Jóhann Hallgrímsson 9
Myndin var tekin á sjómannadegi, líklega 1968. Hún sýnir skemmtiatriði sem fólst í því að ræðari og bardagamaður reru út á höfnina og síðan reyndu bardagamennirnir, klæddir björgunarvestum, að hrinda hvor öðrum í sjóinn með löngum stöngum. Sá sigraði að sjálfsögðu sem gat komið hinum í sjóinn. Ef grannt er skoðað má sjá að þetta hefur verið hafísár því það grillir í ísinn lengst til vinstri á myndinni. Mennirnir á bátunum eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 658
Viggó Brynjólfsson spjallar við vin sinn Gunnar Albertsson (d.17.7.2019) þar sem hann er að dytta að bátnum sínum í blíðunni þennan dag.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1326
Stefán Jósefsson um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54 að landa í Skagastrandarhöfn 8. október 2012.
Arnar HU 1 - safn 34
Gunnar Reynisson fyrir framan stefnið á Arnari HU 1 í þurrkví á Akureyri 16. desember 2012.
Steinþór Karlsson 014
Myndin var tekin af körlum að pakka fiski á vinnsludekkinu á Arnari Hu 1 sumarið 1999. Maðurinn næst okkur er líklega Sævar Berg Ólafsson og sá sem er lengt til hægri Guðmundur Henry Stefánsson. Hinir mennirnir tveir eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 58
Þessi mynd var tekin af Arnari HU 1 við hlið risa borgarísjaka á miðunum í apríl 2005. Það var Arnar Ólafur Viggósson sem tók myndina úr gúmmíbát Arnars HU 1. Myndin birtist í Morgunblaðinu 25. 4. 2005 með eftirfarandi texta: "Það fer ekki mikið fyrir frystitogaranum Arnari HU 1 þar sem hann skríður meðfram borgarísjaka af stærstu gerð. Ísjakinn var að lóna við Óðinsboða á Húnaflóa þegar Arnar var að koma inn til löndunar með aflaverðmæti upp á 115 m.kr. á laugardag."Við settum út tuðruna að gamni og strákarnir fóru upp að jakanum. Þetta var eins og eyja að stærð - minnti mann á þegar maður sér Grímsey úr fjarska," sagði Árni Sigurðsson skipstjóri. "Það var svo mikil bráðnun á jakanum í sólinni að á nokkrum stöðum voru fossar fram af brúninni á honum. Það eru nokkrir stórir jakar þarna að þvælast en þessi var langstærstur."
Arnar HU 1 - safn 4
Hans Birgir Högnason til vinstri og Ragnar Einarsson til hægri í borðsalnum á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Steinþór Karlsson 007
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1. Á henni bíður Reynir Lýðsson eftir króknum á krananum til að hífa gúmmíbátinn - og sig- um borð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1467
Stefán Jósefsson til vinstri Gísli Snorrason í miðið og Sævar Rafn Hallgrímsson til hægri á spjalli í snjómuggu við höfnina 16. mars 2012.
Steinþór Karlsson 042
Óþekktur maður að hífa um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Steinþór Karlsson 025
Óskar Þór Kristinsson var togarasjómaður í áratugi áður en hann kom í land og settist í helgan stein. Þessi mynd af Óskari var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Ólafur Bernódusson768
Ágúst Ómarsson togaraskipstjóri við stjórnvölinn á björgunarskipinu Húnabjörg í apríl 2005. Ágúst fer gjarnan í útköll sem skipstjóri ef hann er í landi og í fríi frá togara-skipstjórninni.
Arnar HU 1 - safn 52
Reglulega eru haldnar slökkvi- og björgunaræfingar um borð í Arnari HU 1. Þessi mynd var tekin á einni slíkri þar sem búið er að búa um messann, Evu Dís Gunnarsdóttur, á börum til flutnings. Ingimar Vignisson er vinstra megin við börurnar og Kristján Blöndal hægra megin í ljósum bol. Aðrir eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 403
8. ágúst 2013 var Arnar Hu 1 að leggja af stað í túr en Benni Ólafs að koma úr stuttum túr. Um borð í Benna Ólafs er eigandinn, Ólafur Bernódusson. Eins og sjá má er töluverður stærðarmunur á þessum tveinmur skipum.
Steinþór Karlsson 040
Karlarnir standa á troðfullu tollinu um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Baksvipinn á Guðjón Guðjónsson (Jonni) en hinn maðurinn er Ólafur Ásgeirsson.
Steinþór Karlsson 029
Guðfinnur Bjarni Ottósson til vinstri og Ólafur Ásgeirsson til hægri við störf um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1231
Feðgarnir Sigurgeir Snævar Árnason til vinstri og Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) faðir hans um borð í bátnum Bogga í Vík 19. mars 2012 að gera klárt til grásleppuveiða.
Arnar HU 1 - safn 48
Kristján Pétur Guðjónsson til vinstri og Ragnar Ásmundur Einarsson til hægri í borðsalnum á Arnari HU 1?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 41
Þrír hressir í vinnslunni um borð í Arnari HU 1 í lok janúar 2013. Frá vinstri: Þröstur Árnason, Arnar Ólafur Viggósson og Kristján Blöndal.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 476
Fjórir togarasjómenn stilla sér upp til myndatöku fyrir óþekktan ljósmyndara úr Nes listamiðstöð áður en lagt er í hann 6. júlí 2013. Sjómennirnir eru frá vinstri: Grétar Smári Hallbjörnsson, Jónas Fanndal Þorvaldsson, Kristján Blöndal og Gunnar Ásgeirsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1300
Arnari Hu 1 snúið í stefnuna 10. apríl 2012 af björgunarskipinu Húnabjörgu. Þar sem höfnin á Skagaströnd er nokkuð þröng er þetta fyrirkomulag haft á hlutunum þegar Arnar er að leggja upp í veiðiferð.
Arnar HU 1 - safn 29
Arnar Ólafur Viggósson raðar þorskum í hausarann um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Steinþór Karlsson 034
Guðjón Guðjónsson (Jonni) var 1. stýrimaður á Arnari Hu 1 sumarið 1999 þegar þessi mynd var tekin. Hér er hann kominn í vinnsluna niðri á vinnsludekki en þar tók hann þátt í vinnunni þegar mjög vel aflaðist og ekki hafðist nógu vel undan.
Steinþór Karlsson 011
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Hún sýnir þrjá skipverja vera að gera sig klára til að "takaða" eða fara á dekk og taka trollið innfyrir og koma því síðan út aftur eftir að fiskurinn hefur verið hirtur úr því. Mennirnir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson955
Róðrarsveit unglinga á sjómannadegi 6. júní 2009. Unglingarnir eru, talið aftur eftir bátnum: Brynjar Max Ólafsson?, Alex Már Gunnarsson, Telma Dögg Bjarnadóttir, Halla Björk Víðisdóttir, Guðjón Páll Hafsteinsson, Ingimar Guðjónsson og óþekktur stýrimaður.
Arnar HU 1 - safn 60
Katrín Inga Hólmsteinsdóttir messi til vinstri og Ingibjörg Dúna Skúladóttir kokkur til hægri í eldhúsinu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 6
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af áhöfninni á Arnari HU 1. Standandi eru frá vinstri: Ragnar Högnason, Róbert Freyr Gunnarsson, Fannar Viggósson, Hafsteinn Björnsson, ?Guðni Lýðsson?, Árni Ólafur Sigurðsson, óþekktur, Sævar Berg Ólafsson, Stefán Sigurðsson, Skúli Tómas Hjartarson, Sigurjón Ingólfsson og Ernst Berndsen. Krjúpandi frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Valdimar Björnsson, Ólafur Ásgeirsson, óþekktur, Magnús Líndal Þrastarson, Arnar Ólafur Viggósson, óþekktur (fjær), Gunnar Helgason (nær), Þröstur Árnason, Kristján Karlsson, Björn Sigurðsson, Magnús Filip Sævarsson, Jónas Fanndal Þorvaldsson og Ingibjörg Dúna Skúladóttir.
Arnar HU 1 - safn 57
Hafsteinn Auðunn Björnsson í hársnyrtingu um borð í Arnari HU 1. Hér er vandað til verks því hvert hár er sléttrakað af höfði Hafsteins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver rakarinn er.
Ólafur Bernódusson968
Skemmtiatriða á sjómannadegi 6. júní 2009. Um var að ræða kappróður í fiskikörum ákveðna vegalengd í höfninni á Skagaströnd. Í þessu atriði má engu muna til að körunum hvolfi og ræðarar lendi í sjónum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1175
Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður til vinstri og Sigurbjörn Björgvinsson vörubifreiðastjóri til hægri spjalla saman á bryggjunni. Báturinn í baksýn er Hafrún Hu 12 sem er í eigu Sigurjóns.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1104
Daði Snær Stefánsson stoltur af dorgveiðiaflanum sínum, vænum þaraþyrsklingi, í ágúst 2010.
Steinþór Karlsson 032
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1 þegar hann var á karfaveiðum. Á myndinni er góður afli kominn inn á dekkið og hluti hans farinn niður um opna lúguna til hægri, niður á vinnsludekkið. Mennirnir á myndinni eru óþekktir nema sá sem er annar frá hægri en það er Guðjón Guðjónsson (Jonni). Ef þú þekkir hina mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Steinþór Karlsson 016
Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) lengst til vinstri, Sævar Berg Ólafsson og Óskar Þór Kristinsson til hægri bíða á bekknum í stakkageymslunni eftir að fiskur komi niður á vinnsludekkið svo hægt sé að hefja vinnsluna. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1228
Kyrrlátt kvöld í Skagastrandarhöfn 26. nóvember 2012.
Ólafur Bernódusson1008
Sveinn Garðarsson kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000. Eins og sjá má er Sveinn á sokkaleystunum því honum og öðrum skipverja tókst að komast í flotbúninga áður en Ingimundur sökk á 5-10 mínútum. Skipverjum tókst ekki að sjósetja gúmmíbát en honum skaut upp eftir að báturinn var horfinn í hafið. Skipstjóranum á Ingimundi, Friðrik Jóni Friðrikssyni, gafst ekki tími til að klæðast flotbúningi og fór hann því sjóinn og hvarf með skipi sínu. Sveini og hinum manninnum, sem er dóttursonur Friðriks, tókst að komast í gúmmíbátinn þaðan sem þeim var bjargað um borð í Sæbjörgu. Lík Friðriks fannst ekki, þrátt fyrir mikla leit, fyrr en 12 mánuðum síðar þegar farið var í leiðangur með neðansjávarmyndavél að flaki bátsins. <br><br>
Arnar HU 1 - safn 33
Myndin var tekin 16. desember 2012 í brúnni á Arnari HU 1. Hún sýnir hluta stjórntækjanna sem skipstjórinn hefur fyrir framan sig til að fara eftir. Kvöldroðinn lýsir inn um brúargluggana.
Arnar HU 1 - safn 30
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri í brúnni á Arnari HU 1. Árni var heppinn og fiskinn skipstjóri á skipum Skagstrendings hf og síðar Fisk Seafood ehf í áratugi. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin.
Arnar HU 1 - safn 7
Ernst Berndsen í borðsalnum á Arnari HU 1. Ernst var lengi yfirvélstjóri þar um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1216
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) að ausa bátinn sinn í júní 2011.
1
…
15
16
17
…
27
Leita í myndasafninu
Leita